41
Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennari Lagadeild Háskóla Íslands 1 Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar Guðbjörg Bjarnadóttir lögfræðingur

Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar. Guðbjörg Bjarnadóttir lögfræðingur. Hugtök. Refsiréttur Hefur tvíþætta merkingu: Heiti á þeirri fræðigrein sem fæst við að lýsa réttarreglum um afbrot, skilyrði refsiábyrgðar og viðurlögum við afbrotum. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

1

RefsirétturRefsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir

lögfræðingur

Page 2: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

2

HugtökRefsirétturHefur tvíþætta merkingu:

• Heiti á þeirri fræðigrein sem fæst við að lýsa réttarreglum um afbrot, skilyrði refsiábyrgðar og viðurlögum við afbrotum.

• Merkir einnig refsilög, þ.e. þær réttarreglur almennt sem varða refsiverða háttsemi og viðurlög við henni.

AfbrotHver sú háttsemi, athöfn eða athafnaleysi sem refsing liggur við samkvæmt þeim refsiheimildum sem viðhlítandi eru taldar á hverjum tíma

RefsingÞau viðurlög réttarins sem liggja við afbrotum

Page 3: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

3

Refsing

Refsingar eru þau viðurlög réttarins sem liggja við afbrotum– Refsingu er ætlað að hafa þau áhrif á þann sem fremur

afbrot, að hann geri það ekki aftur – sérstök varnaðaráhrif

– Refsingu er einnig ætlað að hafa almenn varnaðaráhrif, þ.e. fæla menn almennt frá því að fremja afbrot

Page 4: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

4

Refsimál (opinber mál)

– Samkvæmt 24. gr. hgl. skal sérhver refsiverður verknaður sæta opinberri ákæru, nema annað sé sérstaklega ákveðið í lögum.

– Samkvæmt 25. gr. hgl. getur aðeins sá er misgert er við, borið fram kröfu, í þeim tilvikum ef ekki ber að höfða mál af hálfu opinbera ákæruvaldsins út af broti, eða það á aðeins að fylgja máli eftir að krafa sé um það gerð.

– Með ákæruvald fara ríkissaksóknari og lögreglustjórar (sýslumenn), þ.á.m. ríkislögreglustjóri, sbr. V. kafla laga um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991.

Page 5: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

5

Tegundir refsinga• Refsingar eru tvenns konar, sbr. 31. gr. hgl.:

– Refsivist– Fjársektir

• Refsikennd viðurlög– Vararefsing– Skaðabætur– Réttindasvipting– Réttargæsla utan stofnana– Skilyrtar refsiákvarðanir

• Fullnustuúrræði stjórnvalda– Samfélagsþjónusta– Náðun– Reynslulausn

Page 6: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

6

Refsingar og þvingunarúrræði

Önnur réttarfarsúrræði sem beitt er í þágu rannsóknar máls, þegar rökstuddur grunur liggur fyrir um refsiverða háttsemi, m.a.:

– Handtaka

– Gæsluvarðhald

Þessi úrræði falla ekki undir hugtakið refsingu en gæsluvarðhald kemur hins vegar til frádráttar heildardagafjölda í afplánun

Page 7: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

7

Réttarheimildir

• Meginréttarheimildin á sviði refsiréttar eru almennu hegningarlögin, nr. 19/1940

• Jafnframt eru refsiákvæði í ýmsum sérlögum, t.d. umferðarlögum, áfengislögum, skatta- og tollalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.

Page 8: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

8

Almennur og sérstakur hluti

• Refsiréttur skiptist í almennan og sérstakan hluta– Almenni hlutinn – almenn ákvæði um skilyrði refsiábyrgðar og lok

hennar, viðurlagategundir og refsiákvörðun

– Sérstaki hlutinn – einstakar mikilvægar brotategundir, t.d. manndráp, þjófnað, nauðgun o.fl.

• Almennu hegningarlögin skiptast með sama hætti í almennan og sérstakan hluta.

Page 9: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

9

Hgl. og sérrefsilög– Veigameiri og alvarlegri afbrotum skipað í hgl., frekar veigaminni

brotum og brotum sem tengjast ákveðnum sviðum, skipað í sérrefsilög.– Hgl. einkennast meira af tjónsbrotum (skerðing á hlutum eða tjón á

mönnum eða munum). Sérrefsilög einkennast meira af hættubrotum (ákveðnum hagsmunum stofnað í hættu) og samhverfum brotum (háttsemi refsiverð án tillits til afleiðinga)

– Í hgl. er ásetningur aðalreglan en gáleysi dugir eingöngu í undantekningartilvikum, sbr. 18. gr. hgl. Í sérrefsilögum er ásetningur og gáleysi yfirleitt lagt að jöfnu en gáleysisábyrgð mun algengari.

– Í hgl. eru viðurlögin í ákvæðunum sjálfum en í sérrefsilögum eru viðurlögin aðgreind.

– Sérrefsilög breytast örar en hgl. Nýjum refsiákvæðum fjölgar oftast í sérrefsilöggjöf.

Page 10: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

10

Refsiheimildir

• Refsiheimildir eru þær heimildir í lögum sem mæla fyrir um hvað séu afbrot og viðhlítandi refsingar við þeim

• Það er meginregla í refsirétti að refsiheimildir skuli vera lögbundnar, sbr. 1. gr. hgl. og 69. gr. stjskr.

• Því verður eingöngu refsað skv.– Settum lögum

– Fullkominni lögjöfnun frá þeim ákvæðum og stjórnvaldsfyrirmælum sem eiga sér stoð í lögum

– Aðrar réttarheimildir geta skipt miklu máli

Page 11: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

11

Skilyrði refsiábyrgðar

• Að lágmarki verða þrjú skilyrði að vera fyrir hendi svo unnt sé að refsa fyrir afbrot:

– Refsinæmur verknaður– Ólögmætur verknaður– Saknæmur verknaður

Page 12: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

12

Refsiheimildir• Meginreglan um lögbundnar refsiheimildir felur í sér:

– að heimild skal vera í lögum á þeim tíma er brot er framið– að birting laga skuli fara fram með réttum hætti, sbr. 27. gr. stjskr.– bann við afturvirkni– skýrleika heimildar í lögum

• Lögbundnar refsiheimildir eru:– Sett lög – Grundvallarlög, almenn lög og bráðabirgðalög á meðan þau eru í gildi. Milliríkjasamningar ef þeir hafa öðlast lagagildi og heimildir fyrir 1874.– Fullkomin lögjöfnun – Í lögjöfnun felst að settu lagaákvæði er beitt um ólögákveðið atriði sem er náskylt eða eðlislíkt atviki sem lagareglan tekur til, en rúmast ekki innan ákvæðis skv. skýringu. Fullkomin lögjöfnun – ríkari

kröfur gerðar til lögjöfnunar.

• Því verður eingöngu refsað skv.– Settum lögum

– Fullkominni lögjöfnun frá þeim ákvæðum og stjórnvaldsfyrirmælum sem eiga sér stoð í lögum

– Aðrar réttarheimildir geta skipt miklu máli

Page 13: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

13

Refsiheimildir, frh.

• Frávik frá meginreglunni– Lögjöfnun

– Stjórnvaldsreglur – eru ekki frumrefsiheimild og verða að eiga sér stoð í settum lögum og mega ekki ganga lengra en lögin. Ef lög falla úr gildi eða breytast geta stjórnvaldsreglur tapað gildi sínu.

– Dómvenja – Ítrekuð fordæmi fyrir dómstólum sem verða sterkari eftir því sem fleiri dómar ganga í sömu átt.

Page 14: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

14

Nánari skilyrði refsiábyrgðar

Page 15: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

15

Almennt

Til þess að baka sér refsiábyrgð verður maður að fullnægja öllum refsiskilyrðum laga með því að vinna verk eða vanrækja lagaskyldu (athafnaleysi)

•Refsiábyrgð getur verið tvenns konar:– Hefðbundin refsiábyrgð, sakhæfur einstaklingur sem ber ábyrgð á eigin

verkum og vinnu tiltekið verk (eða lætur vera að vinna það) af ásetningi eða gáleysi.

– Afbrigðileg refsiábyrgð, hlutræn refsiábyrgð (ábyrgð án sakar), refsiábyrgð lögaðila. Dæmi:2. mgr. 14. gr. laga nr. 80/1993, um aðgerðir gegn peningaþvætti. Þar kemur m.a. fram að þegar brot er framið í starfsemi lögaðila má gera lögaðila sekt fyrir brot á lögum þessum án tillits til þess hvort sök verður sönnuð á fyrirsvarsmann eða starfsmann lögaðilans.

Page 16: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

16

Flokkun skilyrða

• Hefðbundna refsiábyrgð er unnt að flokka eftir þeim skilyrðum refsingar sem þarf að uppfylla í hverju tilviki, þ.e. eftir refsiskilyrðum. Þau geta verið:

– Skilyrði tengd verknaðarlýsingu

– Skilyrði um sakhæfi

– Skilyrði um gildissvið refsilaga, refsilögsögu, tímamörk og fyrning

Page 17: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

17

Skilyrði tengd verknaðarlýsingu• Háttsemi verður að vera:

– Refsinæm

– Ólögmæt

– Saknæm

• Saknæmisskilyrðið

Í því felst krafa um ásetning eða gáleysi, en ásetningur er meginreglan í refsirétti, sbr. 18. gr. hgl.

Gáleysisbrot eru því aðeins refsiverð að það sé tekið sérstaklega fram í refsiákvæðinu. Þeim mun grófari sem verknaður er, þeim mun líklegra að refsað sé fyrir gáleysi, sbr. 215. gr. hgl.

Page 18: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

18

Saknæmisskilyrðið - Ásetningur

• Mismunandi stig ásetnings:• Hinn brotlegi vill koma því til leiðar sem refsiheimild lýsir afbrot (hæsta

stig ásetnings)

• Hann álítur það óhjákvæmilega afleiðingu verknaðar (annað stig ásetnings)

• Yfirgnæfandi líkur eru fyrir því að afleiðing komi fram (líkindaásetningur)

• Ef hann álítur að afleiðing kunni að koma fram en hefði engu að síður framið verknaðinn (dolus eventualis)

• Hann lætur sér í léttu rúmi liggja hvort afleiðing kemur fram

Page 19: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

19

Saknæmisskilyrðið - Gáleysi

• Um gáleysi er að ræða þegar:

• Hinn brotlegi álítur að afleiðing verknaðar kunni að koma fram

• Hann hefur hugboð um að verknaður sé refsiverður en vinnur verkið í trausti þess að allt fari vel

• Hann hefði átt að gera sér grein fyrir þessum aðstæðum og hefur ekki gætt þeirrar varkárni sem af honum mátti ætlast

Það kallast neðri mörk gáleysis þegar um er að ræða óhappatilviljun eða lítilfjörlegt gáleysi sem ekki getur verið grundvöllur refsiábyrgðar.

Page 20: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

20

Sakhæfisskilyrðið

– Sakhæfisaldur, sbr. 14. gr. hgl.• Lögaldur sakamanna er 15 ár

• Rök: Börn skortir reynslu og þroska til að skilja afleiðingar og eðli refsiákvörðunar

• Miðast við fæðingarstund geranda og verknaðarstund. Miðað við lok afmælisdags ef ekki unnt að leiða í ljóst fæðingarstund

Page 21: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

21

Sakhæfisskilyrðið, frh.

– Geðrænt sakhæfi, 15. – 17. gr. hgl.Í 15. gr. felst það skilyrði að viðkomandi hafi verið alls ófær, á þeim tíma sem hann vann verkið, til þess að stjórna gerðum sínum. Þrjú atriði sem skoða þarf:

• Hefur einhver sú andlega vanheilsa eða vanþroski sem greinin tiltekur, þjakað sökunaut, og verið á því stigi að það nægi til refsileysis?

• Var vanheilsa eða vanþroski fyrir hendi á þeirri stundu er verknaðurinn var framinn?

• Var maðurinn vegna vanheilsu eða vanþroska allsendis ófær um að stjórna gerðum sínum? (orsakatengsl).

Page 22: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

22

Sakhæfisskilyrðið, frh.– Geðrænt sakhæfi, 15. – 17. gr. hgl., frh.

16. gr. hgl. tekur við af 15. gr., þ.e. ef refsing getur borið árangur.

17. gr. hgl. kveður á um að refsa skuli mönnum þó þeir fremji brot í ölæði eða undir áhrifum lyfja.

– Réttaráhrif sakhæfisskortsSakhæfisskortur leiðir til sýknu án tillits til þess hvort afbrot er alvarlegt eða smávægilegt.

Rök: Einstaklingur sem ekki hefur þroska til að ráða sjálfur athöfnum sínum sé ekki hæfur til að sæta refsingu, enginn tilgangur með refsingu.

Page 23: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

23

Sakhæfisskilyrðið, frh.

– Sakhæfisskortur sem refsileysisástæðaSakhæfi sem refsiskilyrði og sakhæfisskortur eru tvær hliðar á sama máli. Ef sakhæfisskilyrðin eru ekki uppfyllt, er skylt að sýkna en úrræði 62. og 63. gr. auk 16. gr. hgl. geta þá komið til álita.

Page 24: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

24

Gildissvið refsilaga

Skilyrði tengd gildissviði– Hugtakið refsilögsaga

• vald til að setja refsilög• vald til að framfylgja þeim með rannsókn, dómi og refsifullnustu• um meðferð mála og niðurstöðu fer eftir íslenskum lögum

– ForráðasvæðisreglanLögfest í 4. gr. hgl., þ.e. refsað skal eftir íslenskum refsilögum fyrir afbrot framin innan íslenska ríkisins (á landi og í land- og lofthelgi).

Page 25: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

25

Skilyrði tengd gildissviði

– Takmarkanir á refsilögsögu• Ríkisréttarlegar undanþágur – menn í ákveðnum stöðum heyra

ekki undir íslenska lögsögu, sjá 2. mgr. 11. gr. og 49. gr. stjskr.• Úrlendisréttur – Menn á ákveðnum stöðum njóta friðhelgi gegn

hvers kyns saksókn og refsifullnustu hér á landi en ekki í eigin heimalandi. Þó unnt að höfða einkamál

• Milliríkjasamningar – Varnarliðssamningur milli Íslands og USA, í honum felast þó ekki víðtækar takmarkanir á íslenskri lögsögu.

Page 26: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

26

Skilyrði tengd gildissviði, frh.

– Rýmkuð refsilögsagaÁtt er við reglur sem veita íslenska ríkinu lögsögu vegna brota sem eru framin utan forráðasvæðisins. (Brot sem íslendingar fremja í útlöndum)

– Staðarákvörðun brotsAðalreglan að brot telst framið þar sem frumverknaður er framinn. 7. gr. hgl. kveður á um að sá staður þar sem afleiðingar koma fram, skuli lagður að jöfnu við þann stað þar sem brotið er framið.

Page 27: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

27

Skilyrði tengd gildissviði, frh.

– AlþjóðasamningarSamningar sem ríki gera sín á milli og skuldbinda sig til þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir heima fyrir, t.d. á löggjafarsviðinu.

Skv. 11. gr. hgl. skal beita ákvæðum 4. – 6. gr. laganna með þeim takmörkunum sem leiðir af reglum þjóðarréttarins. Um að ræða refsireglur sem settar eru af alþjóðastofnunum, svokallaðar þjóðréttarlegar refsireglur

Dæmi um samninga: Alþjóðasamningur um ráðstafanir gegn hópmorðum, Samningur um að koma í veg fyrir ólöglega töku loftfara, o.fl.

Page 28: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

28

Skilyrði tengd gildissviði, frh.

– Gildi erlends réttar og erlendra refsidómaSkv. 8. gr. hgl. fer að öllu leyti eftir íslenskum réttarreglum um meðferð máls og niðurstöðu.

– EvrópurefsirétturÝmsir samningar verið gerðir á milli ríkja á vegum Evrópuráðs, þar sem ríki taka á sig ákveðnar skuldbindingar, m.a. um mótun refsireglna, meðferð refsinga og framkvæmd þeirra.

Dæmi: Samningar um framsal sakamanna og um fullnustu refsidóma.

Page 29: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

29

Tilraun, hlutdeild og samverknaður

Page 30: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

30

Tilraun til afbrota og afturhvarf

• Mörk tilraunar og fullframins brotsFullframið er brot, þegar allir þeir efnisþættir verknaðar eru fram komnir, sem hlutaðeigandi refsiákvæði tilgreinir eða hefur að geyma í verknaðarlýsingu sinni. (T.d. brot gegn 244. gr. hgl.)

Vanti eitthvað upp á það að öll þau atriði séu fram komin sem felast í verknaðarlýsingu er sá verknaður refsilaus, nema skilyrði refsiverðrar tilraunar séu fyrir hendi. (T.d. brot gegn 244. gr. sbr. 20. gr. hgl.

• Tilraunaheimildir20. gr. hgl. – almenn tilraunarheimild, en einskorðuð við hgl. Getur þó náð til ákveðinna tilraunaverka á sviði sérrefsilaga:

• Með lögjöfnun• Með lögákveðinni tilvísun til 20. gr.• Með sjálfstæðum tilraunaheimildum í lögunum

Page 31: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

31

Tilraun til afbrota og afturhvarf, frh.

• Ákvörðun refsingar fyrir tilraunaverkAðalreglan að refsimörk séu þau sömu og gilda um brotin fullframin

• Afturhvarf frá tilraunÞað er afturhvarf frá tilraun, ef gerandi lætur af sjálfsdáðum af þeim ásetningi sínum að drýgja afbrot, áður en það er fullframið og þessi sinnaskipti stafa ekki af tálmunum eða annarri tilviljun.

Afturhvarf telst refsileysisástæða í íslenskum rétti

Skilyrði afturhvarfs:• sýna vilja til afturhvarfs í verki• gerandi hafi af sjálfsdáðum látið af ásetningi sínum

Page 32: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

32

Hlutdeild og samverknaður

• HlutdeildAlmennt ákvæði í 1. mgr. 22. gr. hgl. – hver sá sem með liðsinni í orði eða verki, fortölum, hvatningum eða á annan hátt á þátt í því að brot skv. hgl. er framið, skal sæta þeirri refsingu sem við brotinu er lögð.

Í 2. mgr. 22. gr. eru frjálsar refsilækkunarheimildir, í 3. mgr. eru refsibrottfallsheimildir og í 4. mgr. er fjallað um eftirfarandi hlutdeild.

Sjá Hrd. 1980:89

Hlutdeild flokkast:• verkleg hlutdeild• sálræn hlutdeild• athafnaleysi

Page 33: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

33

Hlutdeild og samverknaður, frh.

• Samanburður á hlutdeild og samverknaði– Hlutdeild er fyrst og fremst þátttaka í undirbúningi, skipulagningu

eða afrakstri verknaðar sem annar maður (eða menn) framkvæmir.

– Samverknaður er þegar tveir menn eða fleiri hafa samvinnu í verki eða samkvæmt fyrirfram gerðu samkomulagi um framkvæmd refsiverðs verknaðar og standa allir nokkurn veginn jafnt að vígi um ákvarðanir og framkvæmd. Allir virtir sem aðalmenn.

– Hrd. 1985:150 Landsbankaránið

Page 34: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

34

Refsileysisástæður

Hvert lagaákvæði hefur refsiramma sem ekki má fara út fyrir nema með sérstakri heimild.

Ýmsar ástæður geta verið fyrir hendi sem geta haft áhrif á refsihæðina

Refsileysisástæður eru sérstök atvik eða aðstæður, sem eru fyrir hendi þegar refsinæmur verknaður er framinn og leiða til þess, að refsiábyrgð stofnast ekki, þ.e. brot er refsilaust frá upphafi.

Helstu tegundir refsileysisástæðna:- Neyðarvörn - Óbeðinn erindisrekstur- Neyðarréttur - Neyðarhjálp- Samþykki - Ómöguleiki- Lögmæt réttarvarsla

Page 35: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

35

Refsilseysisástæður og atriði sem hafa áhrif og refsihæð

Page 36: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

36

Neyðarvörn, sbr. 12. gr. hgl.

Lögmæt réttarvörsluathöfn einstaklings, er felur í sér nauðsynlega beina valdbeitingu gegn manni til þess að verjast eða afstýra ólögmætri árás á þann sem neyðarvörninni beitir eða á einhvern annan.

Leiðir til sýknu en skilyrði að verk sé nauðsynlegt og að forsvaranlegri aðferð hafi verið beitt.

Í 74. gr. hgl. er heimild til refsilækkunar eða refsibrottfalls ef farið er út fyrir takmörk leyfilegrar neyðarvarnar

Page 37: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

37

Neyðarréttur, sbr. 13. gr. hgl.

Lögmæt athöfn einstaklings sem er nauðsynleg til þess að vernda lögmæta hagsmuni hans eða annarra fyrir yfirvofandi hættu, þótt með því séu skertir hagsmunir, sem telja verður að miklum mun minni.

Leiðir til sýknu en skilyrði að verk sé nauðsynlegt. Getur bakað þeim skaðabótaskyldu sem nýtur góðs af neyðarréttarverki.

Neyðarréttur og neyðarvörn geta tengst saman

Page 38: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

38

Samþykki

Gilt samþykki leiðir til refsileysis. Átt er við undanfarandi eða samtímis viljatjáningu þess sem afbrot bitnar á um að hann fallist á framkvæmd verksins.

Að mestu ólögfest heimild, en þó lögfest sem hlutræn refsileysisástæða í 2. ml. 2. mgr. 218. gr. a, ef afleiðingar skv. 217. gr.

Á ekki við ef brot felst í því að brjóta gegn vilja manns, t.d. þjófnaður.

Page 39: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

39

Refsilækkunar- og refsihækkunarástæður

Almennar og sérstakar heimildir

Almennar lækkunarheimildir gilda án tillits til brotategundar, þær eru: 2. mgr. 20. gr., 2. mgr. 22. gr., 74. gr. og 75. gr. hgl.

Almennar hækkunarheimildir eru í 71. – 73. gr., 2. mgr. 77. gr. o.fl.

Sérstakar lækkunarheimildir eru: 129. gr., 2. mgr. 142. gr., 2. mgr. 150. gr., 2. mgr. 155. gr., 1. mgr. 161. gr., o.fl.

Sérstakar hækkunarheimildir: 94. gr., 101. gr. 2. mgr. 130. gr., 135. gr., 136. gr., 138. gr., 1. mgr. 148. gr., 2. mgr. 164. gr., 1. mgr. 175. gr. o.fl.

Page 40: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

40

Refsilækkunar- og refsihækkunarástæður, frh.

Bundnar og frjálsar heimildir

Bundin refsihækkunarheimild, ef hún mælir fyrir um hækkun á lágmarki hinna almennu refsimarka, sbr. t.d. 73. gr. og 101. gr. hgl.

Bundin refsilækkunarheimild kveður á um lækkun á hámarki hinna almennu refsimarka, sbr. 2. ml. 129. gr. og 1. mgr. 161. gr. hgl.

Frjáls refsihækkunarheimild heimilar að fara upp fyrir hámark hinna almennu refsimarka ákvæðis

Frjáls refsilækkunarheimild heimilar að fara niður fyrir lágmark hinna almennu refsimarka ákvæðis.

Page 41: Refsiréttur Refsiheimildir og almenn skilyrði refsiábyrgðar

Guðbjörg Bjarnadóttir stundakennariLagadeild Háskóla Íslands

41

Refsilækkunar- og refsihækkunarástæður, frh.

– Einstakar refsiákvörðunarástæður (ekki tæmandi)

• Lömæltar ástæður, 70. gr. hgl. – leiða til málsbóta eða refsiþyngingar innan refsimarka. Ekki refsihækkunar- eða refsilækkunarheimild.

• Ítrekun – Hefur í för með sér refsihækkun. Skilyrði að sérstaka ítrekunarheimild sé að finna í lögum.