38
HÍ – félagsvísindadeild 10.53.70 Inngangur að kennslufræði -Hugsmíðihyggja- Meyvant Þórólfsson 30. október 2006

HÍ – félagsvísindadeild 10.53.70 Inngangur að kennslufræði -Hugsmíðihyggja-

  • Upload
    tawny

  • View
    56

  • Download
    1

Embed Size (px)

DESCRIPTION

HÍ – félagsvísindadeild 10.53.70 Inngangur að kennslufræði -Hugsmíðihyggja-. Meyvant Þórólfsson 30. október 2006. Úr samræmdu prófi í 10. bekk 1995. ¾ bolli af sykri samsvarar 12 teskeiðum. Hve margar teskeiðar af sykri eru þá í 3 bollum? Lagt fyrir sem heimaverkefni hjá 11 ára nemendum. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

HÍ – félagsvísindadeild10.53.70 Inngangur að kennslufræði

-Hugsmíðihyggja-

Meyvant Þórólfsson 30. október 2006

Úr samræmdu prófi í 10. bekk 1995

• ¾ bolli af sykri samsvarar 12 teskeiðum. Hve margar teskeiðar af sykri eru þá í 3 bollum?

• Lagt fyrir sem heimaverkefni hjá 11 ára nemendum.

Forngrikkir töluðu um PHYSIS og THESIS

• Physis: Allt það í alheimi sem við skynjum, getum mælt og reynt að spá fyrir um

• Við skynjum jörðina. Okkur er kennt að hún sé reikistjarna í útjaðri stjörnuþoku sem við nefnum Vetrarbrautina.

• Hún snúist umhverfis sólina ásamt a.m.k. 7 öðrum reikistjörnum.

Forngrikkir töluðu um PHYSIS og THESIS

• Thesis: Manngerð kerfi eins og talnakerfi, málkerfi og önnur táknkerfi (t.d. umferðarljós) sem menningin hefur getið af sér.

Truman Burbank (Truman Show)

• Burbank bjó í þægilegum og snyrtilegum „gerviveruleika“ þar sem atburðir endurtóku sig í sífellu.

• Er okkar veruleiki raunverulegur? Hvað sjáum við þegar við lítum í spegilinn? Sjá okkur einhverjir fleiri? Kannski milljónir manna? E.t.v. aðrar vitsmunaverur?

The Matrix

• Gerviveruleiki sem var stjórnað af skyni gæddum vélum er héldu manneskjum föngnum og ræktuðu þær sem orkuuppsprettur til að tengjast “the matrix”.

• A Construct, a virtual reality environment

EVE online

• Íslenskur „fjölnotendanetspunaleikur“

• Stjórnað af tölvunarfræðingum, stærðfræðingum, eðlisfræðingum o.fl.

• Ótakmarkað hugmyndaflug, flókin stærðfræðileg rökkerfi, margverðlaunuð hönnun og grafík

• Reynir Harðarson: Náttúrusnillingur Eina prófskírteini hans er bílprófsskírteini

Hvaðan hlaut Reynir menntun sína?

• Páll postuli spurði menn í Efesus hvort þeir hefðu meðtekið heilagan anda. Mennirnir settu upp stór augu og svöruðu að þeir hefðu ekki svo mikið sem heyrt heilagan anda nefndan á nafn. (sbr. Guðm. Finnbogason 1903)

• Væri ungt fólk spurt við lok skyldunáms hvort það hefði meðtekið þá menntun sem til var ætlast, yrðu viðbrögðin líklega svipuð: Stór augu: Hvað er eiginlega menntun?

Hvað er þekking? Hvað er þekkingarfræði?

• Ein af höfuðgreinum heimspeki og fjallar um eðli, grundvöll og takmörk mannlegrar þekkingar

• Heimspekingar, sálfræðingar og uppeldisfræðingar hafa brotið heilann um þekkingu allt frá örófi alda

• Ath. rökhyggju annars vegar og raunhyggju hins vegar

Hvað er menntun? Hvað er nám?

• Erum við að tala um nám sem atferlis- og/eða hegðunarbreytingu?

• Erum við að tala um nám sem einhvers konar ófyrirséð ferli í þroska manneskjunnar?

• Gerist þetta á svipaðan hátt eða eins hjá öllum?

• Eða eru einstaklingarnir eins ólíkir og þeir eru margir hvað varðar menntun og nám?

Íhugið – ræðið (2-3 mín)

• Hugtakið “einstaklingsmiðað nám” heyrist oft notað nú á dögum.

• Hvað er þar á ferðinni? Hvernig er þessi hugmynd rökstudd? Eða á hún sér e.t.v. engar stoðir?

Til að skerpa skilning og hugsun......stillum við oft hugmyndum og viðhorfumupp sem andstæðum:

• Hlutlægt (objective) vs. huglægt (subjective)?

• Megindlegt (quantitative) vs. eigindlegt (qualitative)?

• Formlegt vs. óformlegt?

• Kerfi sem tekur tillit til allra (inclusive) vs. kerfi sem tekur meira tillit til sumra en annarra (exclusive)?

Til að skerpa skilning og hugsun...

• Ferli og framvinda (process) vs. afrakstur og afurð (product) ?

• Nemendamiðað (student-centered) vs. kennaramiðað (teacher-centered)?

• Atferlishyggja vs. hugsmíðihyggja?

„Svarti kassinn“ Litróf námskenningar og námslíkana er margbreytilegten þó má geina ákveðna póla, a.m.k. í umræðunni:

Input Output

Áhrif frá pósitívisma, raunhyggju og atferlishyggju: Nám er röklegt, línulegt og mælanlegt

Áhrif frá rökhyggju og hugsmíðihyggju: Nám er flókið, ófyrirséð, afstætt og erfitt að meta

Fyrirfinnst sönn og endanleg þekking „þarna úti“ eða ekki? Hvað segja kenningarnar um það?

• Atferliskenning gerir í raun ráð fyrir að til sé endanleg þekking og veruleiki „þarna úti“ sem allir geti skilið og lært á sama hátt…þessa þekkingu getum við öðlast kerfisbundið með skipulegri atferlismótun

• Hugsmíðikenning: Einstaklingar og samfélög byggja upp „einstaklingsbundna/persónubundna“ sýn á veruleikann sem er háð túlkun og merkingu. Mislangt er gengið í að hafna hlutlægum veruleika án mannlegrar skynjunar (sbr. róttæka vs. félagslega hugsmíði).

Hvernig öðlumst við þekkingu?

• Hugsum okkur að ný þekking verði til með þeim hætti að ný hugmynd eða hugtak (rauður depill) tengist hugmyndum eða hugtökum sem fyrir eru (bláir deplar) í vitsmunabúi okkar.

Van de Walle 2003

Hvernig öðlumst við þekkingu?

• Samkvæmt atferliskenningu gerist þetta á fyrirséðan og kerfisbundinn hátt.

• Samkvæmt hugsmíðikenningu gerist þetta á flókinn og ófyrirséðan hátt og breytilegt eftir einstaklingum hvernig tengingar eiga sér stað – afstæð þekking!

Van de Walle 2003

Lykilhugtak: ForhugmyndirDavid Ausubel 1968

í Educational Psychology - A Cognitive View :• Það sem hefur mest áhrif á nám og námsárangur er það

sem nemandinn veit fyrir. Sannreyndu hvað það er og kenndu honum svo í samræmi við það.

• Meginhugmynd hugsmíðikenningar er að byggt sé á

hugmyndum og hugtökum sem þegar hafa lærst.

• En stundum hvíla forhugmyndir á veikum grunni (schema) og þær geta jafnvel verið rangar, sbr. þekktar ranghugmyndir um sólina og jörðina

Eðlisfræði

“...þekkja hugtökin varmaorka og varmaflutningur” (AG 99):

Eðlisfræði

Kennslubókin:

• Varmaflutningur er tilfærsla á varma frá heitum stað eða hlut yfir á kaldari stað eða hlut.

Varmaflutningur getur átt sér stað á þrjá vegu, þ.e. með:

• Varmaleiðingu • Varmaburði• Varmageislun

Ranghugmynd: Vatn kólnar vegna þess að það „tekur til sín kulda“ úr ísmola

• Kennsla sem tekur mið af hugsmíðihyggju miðar að því að grafast fyrir um forhugmyndir (ranghugmyndir) barna af þessu tagi og búa svo til aðstæður með æfingum, tilraunum og/eða umræðu sem hjálpa nemendum að „endursmíða“ hugmynd sína.

• Sbr. Einstein um vísindaleg vinnubrögð: Vísindamenn setja fram hugmyndir eða tilgátur sem þeir reyna að styðja með dæmum og/eða prófa með tilraunum, þ.e. máta við raunveruleikann. (Kirkpatrick & Wheeler)

Íhugið – ræðið (2-3 mín)

Enn betri skóli...: “Meira nám á skemmri tíma” (Mmrn 1998)

• Hvaða þýðingu hefur þessi áhersla í stefnu fræðsluyfirvalda fyrir skipulag náms og kennslu þegar hlutfirrtar hugmyndir og hugtök eins og varmaflutningur eru annars vegar?

Róttæk hugsmíðihyggja• Ernst von Glasersfeld kynnti

róttæka hugsmíðihyggju (e. radical constructivism) 1974

• hafnaði þeirri rótgrónu og almennu skoðun að raunveruleg þekking og þar með sjálfstæð tilvera hluta væri til utan skynreynslu mannsins.

• Manneskjan öðlast m.ö.o. aldrei beinan aðgang að einhverjum hlutlægum veruleika, sem er óháður heimatilbúnum hugmyndum hennar sjálfrar um hann.

Róttæk hugsmíðihyggja

• Það skiptir hins vegar máli að hugtökin og hugmyndirnar virki og passi við reynsluheim okkar.

• Glasersfeld talar því um gerleika (e. viability) hugmynda; hugtökin væru gerleg eða raunhæf að því marki sem þau hjálpuðu okkur að öðlast skilning á reynslu okkar og við að leysa ákveðin vandamál eða að ná einhverju persónulegu takmarki.

• Ef reynsla eða ný gögn reynast í ósamræmi við forhugmyndir okkar, þ.e. hugtök sem fyrir eru, skapast ákveðið ójafnvægi (sbr. Piaget) sem hleypir aðlögunarferli (námi) af stað er leiðir af sér ný eða breytt hugtök.

Félagsleg hugsmíðihyggja

• Félagsleg hugsmíði rakin til Levs Vygotskys, Jerome Bruners o.fl.: Félagslegar aðstæður vitsmunaþroska skipta meginmáli

• Beiting tungumálsins lykilatriði• Tjáskipti milli þess ólærða (óreynda, óþroskaða) og hins

lærða (reynda, þroskaða) forsenda vitsmunaþroska. Á jafnt við um kennara-nemanda sem nemanda-nemanda.

• Sameiginlegt hugtakanet myndast hjá hópi fólks sem fæst við og hugsar um sömu fyrirbæri.

• Aðlögun að menningu hugsuð sem félagslegt ferli (socio-cultural view eða cultural-historical approach)

Félagsleg hugsmíði – Lev Vygotsky

• Öll hegðun og kúltúr manneskjunnar eru háð flóknu félagslegu kerfi – “socio-cultural”

• Svæði raunverulegs þroska (e. zone of actual development) og svæði óráðins þroska (e. zone of proximal development), “þroskasvæðið”

• Virkni ZPD eins og blómknappar í þann veginn að springa út, búa þarf réttu félagslegu eða menningarlegu aðstæðurnar (námsaðstæður) til að öflugt nám/menntun eigi sér stað.

Endursmíði hugmynda og hugtaka

• Hugsmíðikenning: Það er eðli mannlegrar hugsunar að reyna að “endursmíða” hugmyndir svo hlutirnir gangi upp og komist í jafnvægi

• Með endursmíðinni reynum við að gera hlutina raunhæfa eða gerlega (e. viable – viability = gerleiki).

• Hlutverk kennara getur verið vandasamt þegar kemur að endursmíði hugmynda.

-Good og Brophy, Glasersfeld

Endursmíði hugmynda og hugtaka

• Hugsmíðin er sívirk því umhverfið er sífellt að gera kröfu um að við leysum ný vandamál sem leiða til æ meiri vitræns þroska og nýmyndunar þekkingar

• Piaget: Aðhæfing (e accomodation) og/eða samlögun (e. assimilation), þ.e. einstaklingurinn lagar sig að aðstæðum og/eða hann breytir umhverfinu sér í hag til að koma á jafnvægi (equilibrium).

Félagsleg hugsmíði og samræður

• Vygotsky leit á tungumálið sem lykilinn að hinni félagslegu hugsmíði.

• Þeir sem aðhyllast félagslega hugsmíði leggja áherslu á samræður þar sem þátttakendur (nemendur) brjóta hugmyndir og hugtök til mergjar, rannsaka, rökræða og leita saman að lausnum

• Mikilvægt að nemendur hlusti hver á annan og skilji hugmyndir hvors annars (cooperation/collaboration)

• Kennari virkar eins og umræðustjóri

Menntun og aðstæðubundið nám

• Mikil ábyrgð hvílir á kennaranum við að leiða barnið upp á æðri stig hugsunar með því að kynna sér fyrst forhugmyndir og beina þeim svo í réttan farveg (menntun = enculturation)

• Jeane Lave, Etienne Wenger o.fl: Aðstæðubundið nám (e. situated learning) líkt og nám lærlings hjá meistara við raunverulegar aðstæður. Mikilvægt að gera aðstæður sem líkastar veruleikanum.

Vinnupallafyrirkomulag og samvinnunám

• Vinnupallafyrirkomulag (e. scaffolding). Inntak og viðfangsefni eins og bygging þar sem vinnupallar og verkfæri eru til staðar.

• Kennarinn veitir mikinn stuðning í upphafi, en ábyrgð á náminu færist jafnt og þétt yfir á herðar nemandans.

• Gagnkvæm samvinna við mótun og uppbyggingu þekkingar (e. collaborative learning).

Heildstæð sýn á inntak náms og merkingu þess • Nám í menningarlegu og merkingarbæru samhengi (e.

cultural and meaningful context).

• Inntak hinna hefðbundnu námsgreina sé tengt og ofið í heildarsamhengi til að efla skilning á hugtökum. Margvísleg vensl og tengsl hugtaka.

• Heildstæð sýn á tungumálið og beitingu þess (e. whole language learning).

• Stærðfræðikennsla P. Cobb, T. Wood og E. Yackel .: Umræður og hlustun á hugmyndir annarra (taken-as-shared mathematical knowledge)

Heildstæð sýn á inntak náms og merkingu þess

Heildstæð sýn á inntak náms og merkingu þess

• Ýmsar aðrar tilraunir í stærðfræði, t.d. Cognitively Guided Instruction (CGI) þar sem börn kynnast reikniaðgerðum og tengslum þeirra gegnum “sögur” (orðadæmi) áður en farið er að reikna með formlegum aðferðum.

• Kennsla til skilnings, t.d. á sætiskerfi (tugakerfi): Nemendur rannsaka af hverju 3+14 314 . Gætum við fengið nemendur til að rökstyðja að þetta sé ekki jafnt? Hvers virði væri það í ljósi hugsmíðihyggju?

Hugsmíðihyggja, námsreynsla og kennsluaðferðir • Nemendur okkar koma í skólann með fyrirfram gefnar

hugmyndir sem stangast stundum á við það sem við viljum kenna þeim.

• Skapandi og gagnrýnin hugsun er nemendum okkar eðlileg.

• Nemendur eru færir um að rannsaka, sannprófa, rökræða og hlusta á rök.

• Okkar vandi er að búa þeim réttu aðstæðurnar til náms og velja viðeigandi aðferðir úr litrófi kennsluaðferðanna.

• Í því ljósi kunna hugmyndir hugsmíðihyggju og atferlishyggju að mætast einhvers staðar...