5
1 Ferðaskrifstofan Íslandsvinir Sumarferðir 2015 Töfrar Gardavatnsins utivistarferð (göngur ög hjölreiðar) 9 dagar/8 nætur Fararstjórar: Brandur Jón Guðjónsson og Örvar Aðalsteinsson Dagsetning: 30. maí - 7. júní 2015 Um stórbrotið landslagið við norður enda Gardavatnsins er frábært að ferðast, hvort sem er gangandi eða á reiðhjólum. Í þessari ferð verður boðið uppá að koma eingöngu í hjólreiðaferð eða gönguferð eða blöndu af hvoru tveggja. Fararstjórarnir verða tveir, Örvar Aðalsteinsson, sem sér um gönguferðirnar (A), og Brandur Jón Guðjónsson, sem sér um hjólaferðirnar (B), og saman – og í sitthvoru lagi - verða þeir með dagskrá fyrir hvorn hópinn fyrir sig þar sem farið er í mis langar ferðir um ægifagurt landslagið. Fjölbreytni ferðarinnar eykst til muna við þetta fyrirkomulag og ætti hún því að höfða til enn stærri hóps heldur en hefðbundin göngu- eða hjólaferð myndi gera þar sem að flesta dagana er hægt að velja um hvort viðkomandi vill gera, eða hvort hann vill einfaldlega vera bara heima í bæ í sólbaði! Þetta er ferð fyrir venjulegt fólk til að njóta og upplifa! Dagleiðirnar eru fjölbreyttar og mis erfiðar. Þátttakendur þurfa ekki að vera í neinu ofurformi til þess að njóta þess sem gert er, en samt vanir göngum og/eða hjólreiðum, – eina takmark hvers dags er að klára dagleiðina og njóta þess sem fyrir augu ber – og vera komin inn á hótel fyrir kvöldmatinn! Lágmarks fjöldi 15 manns, hámark 20. Alltaf er verið á sama hótelinu í Riva del Garda, sem er stærsti bærinn við norður enda vatnsins, og þar eru snæddir morgun- og kvöldverðir. Útfrá hótelinu er síðan lagt af stað að morgni gangandi, hjólandi eða akandi í lengri eða styttri dagsferðir.

i i a feð (gö ng ög hjö leiða ) 9 daga /8 næ · 2015. 3. 5. · Ferðaskrifstofan Íslandsvinir – Sumarferðir 2015 1 Töfrar Gardavatnsins i i a feð (gö ng ög hjö leiða

  • Upload
    others

  • View
    1

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

  • 1 Ferðaskrifstofan Íslandsvinir – Sumarferðir 2015

    Töfrar Gardavatnsins u tivistarferð (gö ngur ög hjö lreiðar) 9 dagar/8 nætur

    Fararstjórar: Brandur Jón Guðjónsson og Örvar Aðalsteinsson Dagsetning: 30. maí - 7. júní 2015 Um stórbrotið landslagið við norður enda Gardavatnsins er frábært að ferðast, hvort sem er gangandi eða á reiðhjólum. Í þessari ferð verður boðið uppá að koma eingöngu í hjólreiðaferð eða gönguferð eða blöndu af hvoru tveggja. Fararstjórarnir verða tveir, Örvar Aðalsteinsson, sem sér um gönguferðirnar (A), og Brandur Jón Guðjónsson, sem sér um hjólaferðirnar (B), og saman – og í sitthvoru lagi - verða þeir með dagskrá fyrir hvorn hópinn fyrir sig þar sem farið er í mis langar ferðir um ægifagurt landslagið. Fjölbreytni ferðarinnar eykst til muna við þetta fyrirkomulag og ætti hún því að höfða til enn stærri hóps heldur en hefðbundin göngu- eða hjólaferð myndi gera þar sem að flesta dagana er hægt að velja um hvort viðkomandi vill gera, eða hvort hann vill einfaldlega vera bara heima í bæ í sólbaði! Þetta er ferð fyrir venjulegt fólk til að njóta og upplifa! Dagleiðirnar eru fjölbreyttar og mis erfiðar. Þátttakendur þurfa ekki að vera í neinu ofurformi til þess að njóta þess sem gert er, en samt vanir göngum og/eða hjólreiðum, – eina takmark hvers dags er að klára dagleiðina og njóta þess sem fyrir augu ber – og vera komin inn á hótel fyrir kvöldmatinn! Lágmarks fjöldi 15 manns, hámark 20. Alltaf er verið á sama hótelinu í Riva del Garda, sem er stærsti bærinn við norður enda vatnsins, og þar eru snæddir morgun- og kvöldverðir. Útfrá hótelinu er síðan lagt af stað að morgni gangandi, hjólandi eða akandi í lengri eða styttri dagsferðir.

  • 2 Ferðaskrifstofan Íslandsvinir – Sumarferðir 2015

    Ferðaáætlun: Dagur 1 - laugardagur, 30. maí: Flogið til Munchen Flogið með Icelandair til Munchen og við tekur nokkurra klukkutíma akstur til Riva del Garda, en þar verður gist í 8 nætur á hótel Albergo Ancora, litlu og snotru hóteli í hjarta gamla bæjarins.

    Dagur 2 - sunnudagur , 31. maí:

    A og B - Riva del Garda Það verður farið frekar rólega af stað til að venjast aðstæðum og byrjað á göngutúr upp í

    Monte Brione, sem er lágur höfði rétt austan við bæinn. Þeir sem ætla að hjóla sækja síðan hjólin og farið verður í stutta skoðunarferð á þeim um nágrennið. Ganga – hækkun/lækkun uþb. 250m 3-4 klst - þyngd 2 af 5 Hjól – hækkun/lækkun 25m - U.þ.b. 15 km, allt á hjólastígum og umferðarlitlum götum – Þyngd 1 af 5

    Dagur 3 - mánudagur, 1. júní:

    A - Monte Colodri Farið með almenningsvagni stuttan spöl yfir í bæinn Arco. Gengið á tignarlegt fellið ofan við bæinn og komið að kastala og kirkju sem standa í bröttum hlíðum. Farið upp á Monte Colodri og haldið áfram á hæsta tindinn Monte Colt. Meðal erfitt. 10 km. hækkun 400m. 5-6 klst. B - Sarca dalurinn Byrjað á að hjóla í gegnum bæinn Arco, um fjölbreyttan og fallegan Sarca dalinn og með

    samnefndri á, inn að Toblino vatni. Miðdegishressing tekin í kastalanum sem stendur við vatnið, áður en farið verður aftur til baka, að hluta til aðra leið, núna framhjá Cavedine vatni. Hækkun/lækkun 300m – U.þ.b. 75 km. Umferðarlitlir sveitavegir/góðir hjólastígar, þar af malarstígar u.þ.b. 10 km – Þyngd 2 af 5

    Dagur 4 - þriðjudagur, 2. júní:

    A - Cima Nodice Ekið í Ledrodalinn og gengið af stað neðan við þorpið Biacesa. Haldið upp hlíðar og komið í Bocca de Lé skarðið. Þaðan er stuttur spölur upp á tindinn Cima Nodice og blasir þá við frábært útsýni yfir Gardavatnið. Síðan er haldin niður til þorpsins Pregasina og snæddur miðdegisverður. Þaðan göngum við niður til Riva del Garda eftir hinum ótrúlega vegi „Strada del Ponale“. Meðal erfitt. 16 km. hækkun 500m. 6-8 klst B - Lago di Ledro Farið í bíl með hjólin upp að Lago di Ledro (Ledro vatni) sem er ein af perlum

    svæðisins. Hjólað umhverfis vatnið og síðan niður í áttina að Riva. Tekinn smá útúrdúr til að koma við á fallegum útsýnisstað og upp í þorpið Pregasina áður en hjólað verður um hið magnaða mannvirki „Strada del Ponale“ niður til Riva. Hækkun 200m/lækkun 750m – U.þ.b. 35 km, skiptist til helminga í umferðarlitla sveitavegi og hjólastíga, þar af malarstígar u.þ.b. 6 km. – Þyngd 2-3 af 5

  • 3 Ferðaskrifstofan Íslandsvinir – Sumarferðir 2015

    Dagur 5 - miðvikudagur, 3. júní:

    A - Cima Sat Gengið frá hótelinu upp hlíðar Rocchetta sem gnæfir tignarlega yfir bæinn. Þegar ofar dregur þarf á nokkrum stöðum að klífa upp klettastalla (via Ferrata leið) og nota þá stiga og járnþrep sem sett voru upp í fyrri heimstyrjöldinni. Þarna eru hjálmar og tryggingar notaðar og fyllsta öryggis gætt. Þessi ganga er ekki fyrir lofthrædda. Komið er á tindinn Cima SAT og haldið síðan niður í Riva. Nokkuð erfitt. 11 km. hækkun 1250m. 6 - 8 klst. B – Barböru kapellan

    Hjólin fá hvíld þennan daginn, en farið í staðinn í stuttan en snarpan göngutúr upp í kapellu heilagrar Barböru. Nokkuð erfitt - Hækkun 570m – U.þ.b. 3 klst.

    Dagur 6 - fimmtudagur, 4. júní:

    A – Navene skarðið Ekið til Navene sem er lítill bær á austurströnd Gardavatns. Þaðan er gengið upp hlíðarnar ofan bæjarins í Navene skarðið. Þar er áð á veitingastað og síðan haldið alla leið upp á Cima de Colma 1751m. Þaðan er frábært útsýni yfir svæðið og gaman að sjá Gardavatnið úr þessari átt. Síðan farið með kláfi niður í þorpið Malcesine og ekið þaðan heim á hótel. Nokkuð erfitt. 12 km. hækkun 1650m. 6 – 8 klst.

    B - Malcesine – Monte Baldo Farið í bíl til Malcesine og hjólin tekin

    með í kláfi upp á fjallið Monte Baldo. Þaðan er víðsýnt til allra átta, m.a. yfir Garda vatnið allt. Svo er hjólað „norður og niður” eftir fjallinu á ágætum vegum um fallegt landslag og blómlegar sveitir, heim á hótel. Hækkun 200m/lækkun 1900m – U.þ.b. 60 km, þar af malarvegur 4 km - umferðarléttir sveitavegir u.þ.b. 45 km / hjólastígar u.þ.b. 15 km – Þyngd 2 af 5

    Dagur 7 - föstudagur, 5. júní:

    A – Frá Pregasina til Limone Ekið til Pregasina og gengið upp með hlíðum áleiðis upp á Monte Guil. Fylgjum stígum sem liggja nærri fjallsbrúnum ofan Gardavatns og njótum mikilfenglegs útsýnis af snösum og tindum. Höldum niður brattar skógivaxnar hlíðar Singol dalsins og göngum alla leið niður í bæinn Limone sul Garda. Siglum með ferju til Riva de Garda. Meðal erfitt. 15 km. hækkun 850m. 5 –

    6 klst.

    B – Tremosine og Limone Nú verður hjólafólkinu skutlað dálítinn

    spotta suður með vatni að vestanverðu en svo stigið á bak hjólunum til að fara um stórbrotið gljúfrið í Val Brasa og upp í þorpið Pieve. Hjólaður góður hringur um Tremosine svæðið, og niður í hinn fallega bæ Limone sul Garda. Að lokum verðu svo siglt með ferjunni heim til Riva aftur. Hækkun 410m/lækkun 560m – U.þ.b. 25 km. allt bundið slitlag, þar af umferðarléttir sveitavegir 23 km. – Þyngd 3 af 5

  • 4 Ferðaskrifstofan Íslandsvinir – Sumarferðir 2015

    Dagur 8 - laugardagur, 6. júní:

    A og B – frjáls dagur Dagurinn nýttur í bæjarrölt eða sólbað eða borgarferð eða...

    Dagur 9 - sunnudagur, 7. júní:

    Heim á leið... Fótaferð eld snemma til þess að leggja af stað upp til Munchen flugvallar.

  • 5 Ferðaskrifstofan Íslandsvinir – Sumarferðir 2015

    Þjónusta & verð

    Innifalið í verði ferðar:

    Flug 30.05.2015: Flug FI 532 Keflavík - Munchen, brottför 07:20 lending 13:05 07.06.2015: Flug FI 533 Munchen – Keflavík, brottför 14:05 lending 16:00 Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst.

    Gisting 8 nætur á Hótel Albergo Ancora í Riva del Garda.

    Matur Morgunverður: Innifalið – 8 morgunverðir

    Hádegisverður: Ekki innifalið

    Kvöldverður: Innifalið – 7 kvöldverðir (ekki síðasta kvöldið)

    Ferðir /

    flutningar Allur akstur og aðrir flutningar (kláfur, ferja o.þ.h.) sem þarf til að fylla inn í áætlun ferðar.

    Fararstjórn Brandur Jón Guðjónsson og Örvar Aðalsteinsson Fundur með fararstjórum fyrir ferðina.

    Ekki innifalið: Drykkir með kvöldmat Aðgangseyrir á söfn o.þ.h. Annað það sem ekki er talið upp í „innifalið” Reiðhjólaleiga (u.þ.b. € 80) Öryggisbúnaður fyrir göngufólk A á 5. degi (via Ferrata leið)

    Verð: Verð á mann í tveggja manna herbergi 259.900,- staðgreitt

    Verð á mann í eins manns herbergi 279.900,- staðgreitt

    Greiðslur og gjalddagar:

    Staðfestingargjald:

    Staðfestingargjald ISK 50.000 þarf að greiða innan 7 daga frá pöntun. Athugið að staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt ef til afbókunar af hálfu viðskiptavinar kemur.

    Lokagreiðsla:

    Til að staðgreiðsluverð gildi þarf að greiða ferð að fullu í síðasta lagi 6 vikum fyrir brottför, annars hækkar verð um 5%.

    Ábendingar: Lágmarks þátttaka er 15 manns. Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferð sex vikum fyrir brottför ef þátttaka er ekki næg og mun þá endurgreiða að fullu.

    Ferðaskrifstofan Íslandsvinir og fararstjórar hennar áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

    Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutrygginga fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd.

    Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er aðili að SAF (Samtök ferðaþjónustunnar, sjá www.saf.is) og því gilda almennir skilmálar samtakanna um allar ferðir ferðaskrifstofunnar, auk þess sem viðkomandi flugfélag getur verið með sína skilmála til viðbótar.

    Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9500 eða sendið fyrirspurn á [email protected] Farþegar í ferðum Íslandsvina fá sérkjör í útivistarvöruversluninni „Fjallakofinn“ í Hafnarfirði og Reykjavík.

    http://www.saf.is/mailto:[email protected]