29
Réttindi og skyldur Hvað þarftu að vita?

Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Réttindi og skyldurHvað þarftu að vita?

Page 2: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Yfirlit

Atvinnuleysistryggingar – almennar upplýsingar

Réttindi og skyldur.

Kynning á helstu þjónustuþáttum

Vinnumiðlun.

Ráðgjafaþjónusta.

Vinnumarkaðsúrræði.

Atvinnuleit

Page 3: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Vinnumálastofnun

Heyrir undir VelferðarráðuneytiðFer með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu atvinnuleysistryggingasjóðs.

Starfar samkvæmt lögum Nr. 54/2006 um Atvinnuleysistryggingar.Nr. 55/2006 um Vinnumarkaðsaðgerðir.

Markmið laganna er• Að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir

þátttakendur á vinnumarkaði.• Að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í

landinu.

Page 4: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Skráning - vinnumiðlun - ráðgjöf

Nýskráning og móttaka Móttaka og skráning umsókna um atvinnu- og atvinnuleysisbætur, vottorða og annarra fylgigagna.

VinnumiðlunVeitir m.a. upplýsingar um laus störf og starfstengd vinnumarkaðsúrræði. Hægt er að panta tíma hjá vinnumiðlara.

RáðgjafaþjónustaVeitir upplýsingar og ráðgjöf varðandi atvinnuleit og möguleika á námi samhliða henni. Hægt er að panta tíma hjá náms- og starfsráðgjafa.

Úrskurður bótaréttarAfgreiðsla umsóknar og úrskurður bótaréttar getur tekið allt að 6 vikur frá því gögn berast til Greiðslustofu. Hægt er að fylgjast með stöðu umsóknar á Mínum síðum.

Page 5: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Heimasíða Vinnumálastofnunarwww.vinnumalastofnun.is

Page 6: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Mínar síður

Page 7: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Réttur til atvinnuleysisbóta

Almenn skilyrðiLaunafólk á aldrinum 18 – 70 ára með búsetu og lögheimili á Íslandi. Atvinnuleitendur þurfa einnig að vera staddir á landinu til að eiga rétt til greiðslu bóta í atvinnuleit.

Krafa er gerð um virka atvinnuleit: Vera fær til flestra almennra starfa. Skila þarf læknisvottorði ef

vinnufærni er skert. Frumkvæði við atvinnuleit og vera reiðubúinn að taka starfi á

Íslandi sem greitt er fyrir skv. lögum og kjarasamningum. Vilji og geta til að taka þátt í úrræðum samanber lög um

vinnumarkaðsaðgerðir.

Lengd bótatímabilsBótatímabilið er 30 mánuðir.

Page 8: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Upphæð atvinnuleysisbóta

Grunnatvinnuleysisbætur

eru kr. 184.188.- á mánuði miðað við fullan bótarétt (100%)

Tekjutengdar atvinnuleysisbæturBætur eru tekjutengdar í þrjá mánuði í upphafi bótatímabils þannig að greiddar eru grunnbætur fyrsta hálfa mánuðinn en síðan tekur tekjutengingartímabilið við.

Launamaður Miða skal við meðaltal heildarlauna á 6 mánaða tímabili sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus og eru greidd 70% af heildarlaunum viðmiðunartímabilsins.

Sjálfstætt starfandi Miða skal við síðasta heila tekjuár.

Hámark tekjutengdra bóta: kr. 281.909.- á mánuði.

Greiðsla vegna barna: Vegna hvers barns á framfæri yngra en 18 ára eru greiddar kr. 7.368.- á mánuði til viðbótar, óháð hlutfalli bótaréttar.

Page 9: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Útborgun atvinnuleysisbóta

Atvinnuleysisbætur eru greiddar út fyrsta virkan dag í mánuði.

Greitt er fyrir einn mánuð í einu sem nær yfir tímabilið 1. – 31. hvers mánaðar, greitt eftirá.

Veikindi

Tilkynna skal veikindi sem hindra virka atvinnuleit.

5 daga veikindaréttur er á hverju 12 mánaða tímabili eftir 5 mánuði á

atvinnuleysisskrá. Má taka í tvennu lagi.

Ferðalög

Atvinnuleysisbætur eru ekki greiddar ef dvalið er erlendis.

Tilkynna þarf um dvöl erlendis fyrir brottför og óska eftir afskráningu.

Þegar heim er komið þarf að mæta á næstu þjónustuskrifstofu innan þriggja virkra daga til að skrá sig aftur í atvinnuleit.

Skila þarf afriti af flugfarseðli til staðfestingar eftir að heim er komið.

Page 10: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Reglubundin samskipti

Staðfesting á atvinnuleit fer fram í gegnum Mínar síður

Atvinnuleit þarf að staðfesta 20.- 25. hvers mánaðar þann tíma sem einstaklingur er skráður í atvinnuleit.

Ef staðfest er á tímabilinu 26. – 3. næsta mánaðar seinkar greiðslum um 5 virka daga.

Þeir sem ekki staðfesta atvinnuleit á tilsettum tíma eru afskráðir.

Page 11: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Staðfesting á atvinnuleit

Þegar atvinnuleit hefur verið staðfest berst tölvupóstur um að skráning hafi tekist.

Berist tölvupóstur ekki er mikilvægt að hafa strax sambandvið þjónustu-skrifstofu Vinnumálastofnunar

Page 12: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Atvinnuleitinnanlands og í Evrópu

Upplýsingar um störf í boði innanlands á www.vinnumalastofnun.is

Upplýsingar um laus störf erlendis á www.eures.is

Vinnumiðlarar og ráðgjafar Vinnumálastofnunar aðstoða fólk við leit að starfi og veita nánari upplýsingar

Tenglasafn á aðrar ráðningarþjónustur á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Page 13: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Atvinnuleit í Evrópu

Vottorð U-2

Veitir þeim sem eiga staðfestan rétt til atvinnuleysisbóta heimild til að leita að starfi erlendis í allt að þrjá mánuði á greiddum atvinnuleysisbótum frá Íslandi . Afgreiðsla umsókna tekur 3-4 vikur.Nánari upplýsingar á þjónustuskrifstofum VMST.

ATH. Ekki er heimilt að fara til útlanda samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta nema með U-2

Eures - Evrópsk vinnumiðlun

Upplýsingar og ráðgjöf um atvinnuleit erlendis.

Page 14: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Hlutastörf og tilfallandi vinna

Hlutastarf

Breyta þarf rafrænni umsókn á Mínum síðum, skrá þar rétt starfshlutfall í hlutastarfi og hlutfall í atvinnuleit.

Fylla út áætlun um tekjur vegna hlutastarfs (heildartekjur) á Mínum síðum (Tilkynningar).

Tilfallandi vinna

Tilkynna um tilfallandi vinnu til VMST í síðasta lagi með dags fyrirvara á Mínum síðum (Tilkynningar).

Heimilt að tilkynna samdægurs við sérstakar aðstæður.

Á við alla tilfallandi vinnu óháð lengd, tíma eða launum.

Tilkynna um heildartekjur inn á Mínum síðum þegar laun hafa verið

greidd út.

Page 15: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Frítekjumark v/tilfallandi vinnu

Frítekjumark er kr. 59.047.- á mánuði

Dæmi: Heildartekjur kr. 80.047Frítekjumark kr. 59.047 Tekjur umfram frítekjumark kr. 21.000.-

Helmingur af þeim tekjum sem eru umfram frítekjumarkið mynda frádrátt á greiðslu bóta við samkeyrslu við upplýsingar RSK eftir tvo mánuði. Frádráttur vegna tekna væri þá í þessu dæmi kr. 10.500.-

Page 16: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Tilkynning um tilfallandi vinnuskráð inn gegnum Mínar síður

Page 17: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Tilkynning um tekjur skráð inn gegnum Mínar síður

Tilkynna þarf um allar tekjur og styrki á Mínar síður

Page 18: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Sjálfstætt starfandi

• Ekki má opna virðisaukaskattsnúmer á eigin kennitölu samhliða atvinnuleysisbótum.

• Einstaklingur getur ekki verið í sjálfstæðum rekstri og fengið greiddar atvinnuleysisbætur samhliða.

• Þeim sem býðst vinna sem verktakar á eigin kennitölu verða að afskrá sig

á meðan verkefni/vinnu stendur.

Page 19: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Upplýsingaskylda

Nauðsynlegt er að tilkynna um breytingar á högum sem snerta atvinnuleitina s.s.

Heimilisfang, símanúmer, netfang. Vinnu (tilfallandi vinnu, hlutastarf, fullt starf).

Tekjur (t.d. laun, lífeyrisgr., fjármagnstekjur, styrki s.s. líkamsræktarstyrk og fjárhagsaðstoð).

Þátttöku í námi samhliða atvinnuleit. Orlof og ferðir utanlands án U-2. Veikindi sem hindra virka atvinnuleit. Vinnufærni (Skert vinnufærni eða óvinnufærni).

Ef ekki er tilkynnt um breytingar þá getur það leitt til biðtíma/viðurlaga

Biðtími/viðurlög: Ekki eru greiddar atvinnuleysisbætur þann tíma sem biðtími varir. Til að biðtími telji þarf atvinnuleitandi í virkri atvinnuleit að sinna skyldum atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun og staðfesta atvinnuleit mánaðarlega.

Page 20: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Biðtími og viðurlög

Komið getur til biðtíma eða viðurlaga í tengslum við...

Starfsmaður segir upp starfi. Starfsmaður er valdur að eigin uppsögn. Námsmaður hættir námi án lokaprófs. Starfi eða atvinnuviðtali hafnað. Þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum hafnað eða mætingarskylda ekki

uppfyllt. Er í námi án þess að hafa sótt um námssamning. Látið hjá líða að veita upplýsingar um vinnu, tekjur, dvöl erlendis eða

tilkynna um breytingar á högum (heimilisfang, símanúmer, netfang).

Málum vísað til Greiðslustofu til úrskurðar. Kallað eftir skýringu atvinnuleitanda áður en úrskurðað er í málinu.

Page 21: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Vinnumarkaðsúrræði

Tegundir vinnumarkaðsúrræða

Starfstengd úrræði, námskeið, námsúrræði, atvinnutengd endurhæfing og ráðgjöf

Markmið vinnumarkaðsúrræða

Sporna gegn atvinnuleysi

Auðvelda fólki að halda virkni

Stuðla að tengslum við atvinnulífið

Endurmenntun – viðhalda og öðlast nýja hæfni

Page 22: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Starfstengd vinnumarkaðsúrræði

Starfsþjálfun (3-6 mánuðir)

Reynsluráðning (3-6 mánuðir)

Sérstök átaksverkefni (3-6 mánuðir)

Sjálfboðaliðastarf

Atvinnutengd endurhæfing

Starfsorka – Frumkvöðlastarf innan fyrirtækis (allt að 6 mán.)

Þróun eigin viðskiptahugmyndar (3-6 mánuðir)

Nánari upplýsingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is

Page 23: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Ýmis önnur úrræði VMST

• Náms- og starfsráðgjöf

• Áhugasviðsgreining

• Ferilskrárgerð

• Ýmis námskeið

Nánari upplýsingar hjá þjónustuskrifstofu.

Page 24: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Atvinnuleysisbætur og nám

Atvinnuleysisbætur – fyrir þá sem eru í virkri atvinnuleit og vilja nýta tíma sinn samhliða atvinnuleitinni til að afla sér þekkingar og færni með því að sækja námskeið og styttra nám. Sbr. reglugerð nr. 13/2009.

Námslán – fyrir þá sem ákveða að hætta virkri atvinnuleit um lengri tíma og fara í formlegt nám.

Nám á eigin vegum samhliða atvinnuleit verður að vera samþykkt af

Vinnumálastofnun og uppfylla skilyrði í samræmi við reglugerð.

Atvinnuleitendur geta óskað eftir námssamningi skv. reglum þar um.

Page 25: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Viðmið fyrir nám

samhliða atvinnuleit

• Nám í dagskóla á framhaldsskólastigi er ekki heimilt samhliða atvinnuleit og greiðslu bóta.

• Að höfðu samráði við náms- og starfsráðgjafa er hægt að gera námssamning um 50% nám í fjarnámi/kvöldskóla á framhaldsskólastigi (dæmi: 9 ein. ef fullt nám er 18 ein.).

• Gerður er námssamningur vegna náms á háskólastigi – 10 ECTS ein. Með fleiri einingum á misseri skerðast bætur í ákv. hlutfalli.

Nánari upplýsingar hjá náms- og starfsráðgjöfum.

Page 26: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Námskeið - Námsstyrkir

Námskeiðskipulögð af Vinnumálastofnun eru atvinnuleitendum með staðfestan bótarétt að kostnaðarlausu. Upplýsingar og skráning hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar.

Námsstyrkurer veittur til greiðslu námskeiðsgjalda vegna annarra námskeiða en þeirra sem Vinnumálastofnun stendur fyrir. Skilyrði er að námið auki líkur á vinnu og að umsækjandi sé kominn með staðfestan bótarétt. Námsstyrkur er 50% af námskeiðsgjaldi að hámarki kr. 70.000.-

• Umsókn um námsstyrk skal skila til ráðgjafa, (eyðublað á www.vinnumalastofnun.is) Með umsókninni þurfa að fylgja allar helstu upplýsingar um námið.

• Sækja þarf um áður en námskeið hefst. • Skriflegt svar gildir sem staðfesting á námsstyrk frá Vinnumálastofnun.

Page 27: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Styrkir og afsláttarkjör

BúferlastyrkurHeimilt er að veita styrk vegna búferlaflutnings innanlands frá lögheimili til þess staðar sem lögheimili er flutt í því skyni að sækja vinnu hjá nýjum atvinnurekanda sem hefur sannanlega boðið fastráðningu í starf.

Með umsókninni þurfa að fylgja reikningar fyrir útlögðum kostnaði.

LækniskostnaðurAfsláttur fyrir atvinnuleitendur sem hafa verið atvinnulausir samfellt í 6 mánuði eða lengur. Framvísa þarf vottorði frá Vinnumálastofnun við komu á heilsugæslustöð eða lækni.

Page 28: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Annað í boði

Stéttarfélög bjóða fjölbreytta þjónustu þeim félagsmönnum sínum, sem hafa misst vinnu og fá greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun.

Atvinnuleitendur hafa val um það hvort þeir halda áfram að greiða félagsgjald í sitt stéttarfélag eftir að þeir hætta störfum og skrá sig í atvinnuleit. Með áframhaldandi greiðslu félagsgjalds er áunnum réttindum viðhaldið.

Ýmis sveitarfélög bjóða atvinnuleitendum fríðindi, t.d. frítt í sund. Atvinnuleitendum er bent á að leita upplýsinga á skrifstofu síns sveitarfélags.

Page 29: Kynningarglærur á heimasíðu 6.1.15

Skipulögð atvinnuleit

Ferilskrá og kynningarbréfLeiðbeiningar um ferilskrárgerð og sniðmát fyrir ferilskrár er að finna á

heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Nálgast atvinnuleit eins og vinnu með ákveðin verkefni á hverjum degi.

Gera vinnuáætlun og setja sér markmið í atvinnuleitinni Skrifleg og mælanleg, t.d. fyrir eina viku í senn.

Halda skrá yfir: Störf sem sótt er um.

Starfsviðtöl sem farið er í.

Fyrirspurnir og tengiliði í tengslaneti.

Ráðningastofur og samskipti við þær.

29