5

Click here to load reader

Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Leikskrá á flettiformi

Citation preview

Page 1: Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu

LITLA SKRÍMSLIÐ OG STÓRA SKRÍMSLIÐÍ LeIKhúSInu eftir Áslaugu Jónsdóttur

Page 2: Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu

LITLA SKRÍMSLIÐ OG STÓRA SKRÍMSLIÐÍ LeIKhúSInu eftir Áslaugu Jónsdóttur

Leikstjórn: Þórhallur SigurðssonLeikmynd og teikningar á hreyfimyndum: Áslaug JónsdóttirHreyfimyndir: Sigurður Ó. L. BragasonBúningar: Ásdís Guðný GuðmundsdóttirLýsing: Ólafur Ágúst StefánssonHljóðmynd: Sigurvald Ívar HelgasonLeikmunir, yfirumsjón: Helga Björg GylfadóttirTónlist: Vivaldi, Mozart, Grieg o.fl.Sönglag: Kristinn Gauti EinarssonHljóðfæraleikur í sönglagi: Valdimar Olgeirsson (kontrabassi), Halldór Smárason (píanó), Kristinn Gauti Einarsson (trommur)Leikmyndarsmíði: Ingvar Guðni BrynjólfssonTæknistjórn á sýningum: Ólafur Ágúst Stefánsson / Jóhann Friðrik ÁgústssonUmsjón Kúlunnar: Þórey Selma Sverrisdóttir

Leikarar:Stóra skrímslið: Baldur Trausti Hreinsson Litla skrímslið: Friðrik Friðriksson

Þjóðleikhúsið 2011–2012, 63. leikár, 18. viðfangsefni Frumsýning í Kúlunni 28. desember 2011.

Page 3: Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu

SKRÍMSLASÖnGuRInn

Viljir þú eiga í vini gott skjól, vertu þá sannur og traustur. Enginn vill vin sem er frekja og fól: já, fantinum neitaðu hraustur!

Sáttir tveir! Þá syngjandi leikum vel saman. Hvernig sem veltur, þá verður það dúndur gaman!

Ef næðir í hjartanu sorg eða sút og sjáir þú eintóma galla: Vert’ ekki leiður og vintu þinn klút, að vininum skaltu þér halla!

Vinir tveir! Úr vandanum ráðum við saman. Hvernig sem veltur, þá verður það dúndur gaman!

Ef leynast í myrkrinu dularfull dýr og dapur þú skelfur af ótta: Við óhræddir sýnum hvað í okkur býr og ófétin rekum á flótta!

Snjallir tveir! Ef snúum við bökunum saman. Hvernig sem veltur, þá verður það dúndur gaman!

Texti: Áslaug JónsdóttirLag: Kristinn Gauti Einarsson

Þú getur hlustað á Skrímslasönginn á heimasíðu eða Facebook-síðu Þjóðleikhússins og sungið með!

Page 4: Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu

Áslaug Jónsdóttir hefur skrifað og myndskreytt fjöl margar bækur fyrir börn, þar á meðal sex bæk ur um litla skrímsl ið og stóra skrímsl ið sem hún skrif aði með fél ögum sínum Kalle Güettler í Svíþjóð og Rakel Helmsdal í Færeyjum. Leik sýn ing in um skrímsl in er byggð á þremur fyrstu bók unum: Nei! sagði litla skrímsl ið, Stór skrímsli gráta ekki og Skrímsli í myrkr inu. Fyrsta leik-rit Áslaugar, Gott kvöld sem sýnt var í Kúl unni í Þjóð leik hús inu, hlaut Grímuna – Íslensku leik-list ar verð laun in 2008 sem besta barna sýning leikársins. Fyrir sama leikrit var Áslaug tilnefnd til Norrænu leik skálda verðlaunanna 2010. Brúðuleikverkið Sindri silfurfiskur var frum sýnt í Kúlunni í Þjóð leik húsinu árið 2009 og tilnefnt til Grímu verðlaun anna í flokkn um besta barna-sýning leik ársins. Sindri silfur fiskur syndir um heims ins höf og hefur í þrí gang verið val inn til sýn ingar á alþjóð legar barna leik hús hátíðir, BIBU 2010 í Svíþjóð, ASSITEJ 2011 í Svíþjóð og Big Break í Moskvu 2011.

Þórhallur Sigurðsson (leikstjóri) hefur leikstýrt fjölda sýninga fyrir börn og full orðna og einnig leikið í mörg um sýningum. Hann fór meðal annars með aðal hlutverk í barna sýning un um Bangsímon, Litla Kláusi og Stóra Kláusi, Ferðinni til tungls ins og Kardemommu bænum. Hann lék líka í skóla sýning unum Inúk og Nætur galan um. Meðal barna sýninga sem Þórhallur hefur leik-stýrt eru Krukku borg, Amma þó, Emil í Kattholti, Blái hnötturinn og Jón Oddur og Jón Bjarni. Hann leik stýrði jóla sýn ing unni Leitin að jól unum sem fékk Grímu verð laun in sem besta barna sýn-ing ársins árið 2006 og er nú sýnd sjöunda leik árið í röð. Hann leik stýrði verk un um Góðu kvöldi, sem fékk Grímuna sem barna sýning ársins 2008, og Sindra silfur fiski eftir Áslaugu Jóns dóttur sem sýnd voru í Kúl unni. Þórhallur hefur leik stýrt mörg um brúðu sýn ing um, þeirra á meðal Trölla-leikjum, Bannað að hlæja, Leifi heppna, Gosa, Mjallhvíti, Eglu í nýju ljósi og Kjartani eða Bolla.

Baldur Trausti Hreinsson (stóra skrímslið) hefur leikið í mörgum leikritum fyrir börn og full-orðna. Af barna sýn ing um sem hann hefur leikið í má nefna Sögu stund, sýn ingu sem krökk um í eldri deild um leik skóla var boðið á, og var byggð á ævin týrinu um Karlsson, Lítinn, Trítil og fugl-ana. Hann lék sjálfan Bastían bæjar fógeta í Kardemommu bænum og lék lækn inn í söng leikn um Oliver. Svo lék hann hvorki meira né minna en Tíma þjófinn, Hávaða segg, Öskur apa, Óláta belg, Fýlu pokann, Leiðinda skjóðu og Hrekkja svínið í Góðu kvöldi! Hann lék líka pabb ann í Sitji guðs englar.

Friðrik Friðriksson (litla skrímslið) hefur leikið í mörgum leik ritum fyrir börn og full orðna, en hann er líka leik stjóri. Hann hefur meðal annars leik stýrt öllum Sögu stundar-sýning unum í Þjóð leik húsinu. Fyrsta Sögu stund in var byggð á Búkollu, sú næsta á ævin týr inu um Karls son, Lítinn, Trítil og fugl ana og nýjasta sögu stundin fjall aði um Hlina kóngsson. Af hlut verkum í barna sýn ingum sem Friðrik hefur leikið má nefna út farar stjór ann í Oliver, bak ar ann í Kardemommu bænum, bak ara dreng inn í Dýr un um í Hálsa skógi og litla dverg í Skila boða skjóð-unni. Hann lék líka Pétur Pan og Móglí í sam nefndum sýn ingum.

Ritstjórn leikskrár: Melkorka Tekla Ólafsdóttir. Umsjón: Sigurlaug Halldórsdóttir. Útlit: PIPAR\TBWA. Ljósmyndir: Eddi. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Útgefandi: Þjóðleikhúsið. Myndir í leikskrá eru teknar á æfingu og eru því ekki heimild um endanlegt útlit sýningarinnar. Sýningin tekur um 45 mínútur.

Page 5: Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu

www.forlagid.i s – alvör u bókaverslun á net inu

Fleiri sögur um skemmtilegu skrímslin eftir Áslaugu Jónsdóttur, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler.

Sönn skrímsla-skemmtun!