24
1. TBL. 3. ÁRG. MAÍ 2008 M PÓSTURINN Maí Geymið blaðið Sumarblað Meðal annars Listahátíð í Reykjavík 2008 Listasafn Reykjavíkur Skólavörðustígur Meðal annars Listahátíð í Reykjavík 2008 Listasafn Reykjavíkur Skólavörðustígur IÐBÆJAR

MIÐBÆJAR - mbl.is · 2008. 5. 14. · Atlantis, eftir Tea Mäkipää og Halldór Úlfarsson,er hús sem að hluta til er sökkt í Tjörnina í Reykjavík og fjallar um hugmyndir

  • Upload
    others

  • View
    1

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

  • 1. TBL. 3. ÁRG. MAÍ 2008

    M PÓSTURINNMaíGeymið blaðið

    Sumarblað

    Meðal annarsListahátíð í Reykjavík 2008Listasafn ReykjavíkurSkólavörðustígur

    Meðal annarsListahátíð í Reykjavík 2008Listasafn ReykjavíkurSkólavörðustígur

    IÐBÆJAR

  • Miðbæjarpósturinn

    Miðbæjarpósturinn2

    EINSTÖK GJÖF

    Laugarvegi 8 - Sími 551 8640 - www.nalin.is

    �Öðruvísi brúðhjón

    � Yfirfærum munstur og stafi á sængurver

    �Hannyrðanámskeið

    �Hannyrðavara

    �Barnaföt

    Jóhanna Margrét Steindórsdóttir

    Jóhanna Margrét Steindórsdóttir opnaði kvennfataverslunina Vera á Laugavegi 49 í lok febrúar sl. og bjóðum við hana hjartan-lega velkomna í miðbæinn. Þar leggur Jóhanna aðallega áherslu á þrjú valinkunn merki, þýskt merki sem heitir Passport, Minus frá Danmörku og hollensku línuna frá Expresso. En hvernig finnst Jóhönnu að vera komin í miðbæinn?„Mér finnst alveg frábært að vera komin hingað og er alveg sér-staklega gott að vera á Laugavegi 49. Hef ég fengið einstaklega góðar viðtökur. Ég hef aldrei verið með fataverslun áður, er betur þekkt sem hárgreiðslumeistari og var búin að vera með Hárgreiðslustofuna Möggurnar í 18 ár í Mjóddinni. En mig hafði lengi langað til að opna sérstaka kvennfataverslun með þessum þekktu eðalmerkjum. Svo ég lét til skarar skríða og er þetta orðið að veruleika,“ segir Jóhanna.Þótt Vera sé fyrst og fremst fataverslun, þá er einnig hægt að fá þar ýmsa aðra hluti eins og glæsilegar slæður, belti, veski og fleira. Er markhópurinn svona frá 30 ára og upp úr.

    Vera- ný kvennfataverslun á

    Laugavegi 49

    Fatahönnuðurinn Hanna ber nafn sitt með réttu enda er hún hönn-uður á heimsmælikvarða í mikilli útrás. Er hún að hanna mikið fyrir bandarískan og japanskan markað og er í stöðugri sókn þar. En hvernig er með Íslendinga og verslunina sem Hanna er með á Klapparstígnum rétt fyrir ofan Laugaveginn, er ekki mikið um að vera þar?„Jú, verslun Íslendinga hefur aukist mikið hjá okkur og láta þeir æ oftar sjá sig í búðinni ásamt ferðamönnunum sem koma mikið við hjá okkur,“ segir Ingibjörg Hanna Pétursdóttir fatahönnuður sem sem sérhæfir sig í kvennfatnaði úr þæfðu íslensku ullarefni í bómull.Eruð þið eingöngu að hanna fatnað fyrir kvennfólk?„Já, það er eingöngu kvennfólk sem við hönnum fyrir. Þar sérhæf-um við okkur í þæfingu íslenskrar ullar í samblandi við mismunandi bómullardúka, er áferðin á efninu það mikilvægasta sem við gerumút frá. Það sem við erum að hanna er númer eitt flottar og góðar peysur en við förum líka víðar í hönnuninni og gerum fínustu kápur, kjóla og pils svo eitthvað sé nefnt. Svo erum við líka með allskonar fylgihluti sem eru ómissandi eins og húfur, vettlinga, griflur og fleira,“ segir Hanna. Kúnnahópurinn er mjög breiður hjá Hönnu en ef hún ætti að nefna einhvern sérstakan aldurshóp sem er stærstur þá eru það konur á aldrinum 30-60 ára. „Okkar hugsjón og markmið er að hefja upp ullariðnaðinn á Íslandi og kynna fyrir fólki alla þá miklu möguleika sem hægt er að hanna úr íslenskri ull. Við erum í farsælu samstarfi við Ullarvinnslu frú Láru á Seyðisfirði og einnig við Ístex í Mosfellsbæ,“ segir Hanna.En hvernig kann Hanna við sig í miðbænum? „Ég er ekki búin að vera neitt mjög lengi hérna í miðbænum, rétt rúmt ár, en mér líður mjög vel hérna. Fyrsta árið hér hefur verið virkilega gott, lærdómsríkt og spennandi og vildi ég hvergi annarsstaðar vera en hér í miðbænum,“ segir Hanna að lokum.

    HannaSigrún Ægisdóttir

    Sigrún í Hársögu lætur ekki deigan síga og hefur flutt stofuna sína um set í Austurstræti, enda getur hún ekki hugsað sér að fara úr miðbænum. „Ég opnaði Hársögu í Austurstræti 8-10 í júní 2005, en þá hafði ég verið búin að reka Hársögu á Hótel Sögu í yfir 20 ár. Það var alltaf draumur minn að komast í miðbæinn alveg frá því að ég byrjaði að læra. Ég lét þann draum rætast og opn-aði útibú í Austurstræti 8-10 þar sem ég fékk húsnæði á leigu hjá þeim sem reka Thorvaldsenbar. 1. mars sl. rann svo leigu-samningurinn út og ekki möguleiki á að fá áframhaldandi leigu þar sem stækka átti Thorveldsenbar. Ég vildi alls ekki hverfa úr miðbænum og leitaði eftir nýju húsnæði. Kom þá til mín að húsnæðið við Austurstræti 6 var laust, þannig að ég sló til og færði mig um tvö númer,“ segir Sigrún Ægisdóttir.Í sama húsnæði var frægur bar sem margir þekkja rekinn til margra ára, Kaffi Austurstræti.„Hér er góður andi og er þetta mjög skemmtilegt pláss þar sem opið er báðum megin, bæði við Austurvöll og Austurstræti,“ segir Sigrún létt í bragði.Hárgreiðslan hefur verið líf Sigrúnar og yndi allt frá 17 ára

    aldri. Segir Sigrún að hárgreiðslan sé lífsstíllinn sinn og engin önnur áhugamál komast að þar sem það sé svo margt í kring-um starfið sem hún þurfi að sinna. Hefur Sigrún t.a.m. tekið þátt í allskyns keppnum, sýningum, myndatökum, verið í landsliði og keppt með því í Evrópukeppni að ógleymdum störfum fyrir meistarafélagið þar hún situr í stjórn og Intercoiffure (alheims félagsskapur hárgreiðslumanna) sem hún var meðlimur í til margra ára. „Ég hef verið með sýningu í Bologna á Ítalíu og tekið þátt í sýningum í París með Intercoiffure og verið á mörgum sýn-ingum hérna heima. Ég hef unnið allnokkra titla í þeim keppnum sem ég hef tekið þátt í, en stærstur var þó titillinn sem ég fékk í fyrra sem var þrefaldur hársnyrtir ársins, litskap-andi ársins í hári og svo í 2-3. sæti sem stofa ársins. Í fram-haldi af því var ég að vinna til alheimsverðlauna og er mér boðið að koma til Hollywood og taka á móti verðlaunum 7.-9. júní n.k. Verður heil þriggja daga dagskrá í kringum þessa athöfn. Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig sem fagmann og hvetur mig til að halda áfram á sömu braut,“ segir Sigrún að lokum og óskum við henni til hamingju með verðlaunin.

    Hársaga hefur flutt sig um set í Austurstræti

    Útgefandi: Hugmyndahúsið ehf.Ritstjóri: Eiríkur EinarssonUmbrot: Frum ehf.Prentun Landsprent

    Dreifing: MorgunblaðiðAuglýsingar: [email protected]ími 699 7764

    Laugavegi 69 - Sími 551 0821 -froken-pil.dk

    Full búð af nýjum vörum

  • Beretta síðan 1526 Veiðimaðurinn síðan1940

    Ítalskur útivistarfatnaður fyrir lifandi fólk

    Glæsilegur, vandaður fatnaður frá Beretta á Ítalíu. Út að ganga með hundinn eða í bíó? Í veiðitúr eða gefa öndunum brauð?

    Á hestbak eða í sumarbústaðinn? Þú færð vandaðar Beretta skyrtur, Beretta peysur, Beretta jakka, Beretta undirföt í Veiðimanninum Hafnarstræti 5

  • Miðbæjarpósturinn4

    Fimmtudaginn15. maí hefst þriggja vikna dagskrárveisla Listahátíðar í Reykjavík með fjölbreyttum tónlistar- og sviðlistaviðburðum og miklum fjölda myndlistarsýninga.Viðburðirnir eiga sér stað í sýningarsölum, listasöfnum,galleríum og á götum úti og teygja einnig anga sína út á land.

    Í ár verður aðaláhersla hátíðarinnar á myndlist, en það var fyrst gert árið 2005 og þótti takast mjög vel.Myndlistin er enn umfangsmeiri í ár og nú eru íslenskir sýningarstjórar í aðalhlutverki. Hátt í 200 íslenskir og erlendir myndlistarmenn taka þátt í yfir 20 sýningum en stærsta verkefnið, Tilraunamaraþon í Listasafni Reykja-víkur, Hafnarhúsi er jafnframt umfangsmesta myndlist-arverkefni sem hér hefur farið fram.

    Dagskrá hátíðarinnar í ár prýðir fjöldi annrra lista-manna sem allir skara fram úr hver í sinni grein, jafnt hér heima sem erlendis. Miðar á þá viðburði eru seldir á vef listahátíðar, www.listahatid.is.

    Söngdívan og saxófónleikarinn

    Meðal tónlistarviðburða á Listahátíð má nefna tónleika stórmeistara djassins, hins nífalda Grammy-verðlaunahafa Wayne Shorter (24. maí) og einsöngstónleika hinnar glæsi-legu bandarísku söngdívu Denyce Graves (1. júní) sem báðir verða í Háskólabíói. Denyce Graves, sem er messósópran, er ein skærasta stjarna söngheimsins um þessar mundir og heillar sífellt nýja aðdáendur, jafnt meðal almennings og gagnrýnenda um heim allan.Wayne Shorter hefur í fjölda ára tekist að blanda saman vinsælli og framsækinni tónlist, sem sýnir okkur að hann er án efa einn mest skapandi tónlist-armaðurinn í sögu djassins.Til marks um stöðu hans í tónlist-arheiminum kaus Downbeat hann besta sópransaxófónleik-arinn í sautján ár samfleytt. Enn í dag fylgir honum stór hópur dyggra aðdáenda sem bíður í ofvæni eftir hverju því sem frá honum kemur.

    Amiina, Afríka og Eyjastökk

    Margir bíða í ofvæni eftir tónleikum Amiinu, Kippa og vina í Undralandi sem verða í porti Hafnarhússins 15. og 16. maí;Jón Ólafsson setur saman einstakan hóp utan um ljóð Steins Steinarrs (29. og 30. maí) og Sigurbjörn Berharðsson heiðrar Þorkel Sigurbjörnsson með afmælistónleikum í Íslensku óperunni 4. júní. Í samstarfi við skólatónleika á Íslandi kemur barnasýning frá Berlín sem heitir Smaragðsdýpið og ekki má gleyma Barða og Keren Ann með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói 5. júní. Listahátíð í Reykjavík og Listahátíðin í Bergen taka höndum saman með Íslenska dansflokknum og Carte Blanche flokknum í glænýju dansverki, Ömbru. Frá Gíneu Bissá kemur vinsælasta hljómsveit Vestur Afríku, Super Mama Djombo, en þeir áttu hér endurkomu í vetur þegar þeir tóku upp nýjan hljómdisk en hópurinn hefur verið útlægur í mörg ár frá heimalandinu. Fyrstu opinberu tón-leikar hópsins í Evrópu í 20 ár verða á Listahátíð 30. og 31.maí. Mörg verkefni tengja myndlist við aðrar listgreinar, t.d.Eyjastökkið í Hafnarhúsportinu, slagverkstónleikar með myndlistarmanninum Agli Sæbjörnssyni. Og þá má ekki gleyma rómaðri sýningu Þóru Einarsdóttur frá óperunni í Wiesbaden á Önnu Frank.

    Myndlist í Reykjavík inni og úti

    Sérstök dagskrá verður í kringum opnunarhelgi hátíð-arinnar á sýningarstöðum og galleríum í Reykjavík og flogið

    Listamenn sem skara fram úr á Listahátíð í Reykjavík

    verður á vit afar spennandi sýninga á Norður- og Austurlandi.Opnunarhelgardagskránni lýkur á sunnudagskvöldinu með tónlistaruppákomu í Bláa lóninu.

    „Tilraunamaraþon” undir stjórn Listasafns Reykjavíkur og Serpentine Gallery í Lundúnum. Sýningunni og verkefninu í heild er stýrt af Hans Ulrich Obrist í samstarfi við Ólaf Elíasson.

    Meðal annarra stórra sýninga í Reykjavík eru List mót byggingarlist í Listasafni Íslands með verk eftir ýmsa lista-menn, s.s. Finnboga Pétursson, Monicu Bonvicini, Elínu Hansdóttur, Steinu Vasulka og Franz West; Draumar um íslenska ægifegurð í íslenskri samtímalist á Kjarvalsstöðum;Endurkast – íslensk samtímaljósmyndun, samsýning í Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafninu; verk eftir Paul-Armand Gette og Halldór Ásgeirsson verður að finna í Listasafni ASÍ; og sýning með sænska listamanninum Karl Holmqvist í Nýlistasafninu en safnið á 30 ára starfsafmæli í ár.

    Galleríin í Reykjavík munu einnig taka þátt í Listahátíð með sýningar á borð við Velkominn-samtímalist frá Króatíu í Gallerí 100°; sýningu eftir Rúrí í Start Art; verk eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur í Kling & Bang; einkasýningu á verk-um Ernesto Neto í Gallerí i8; og sýningu Andreu Maack í Gallerí Ágúst.

    Nokkur útiverk munu prýða borgina. Dialogue, verk sem Anna Leoniak og Fiann Paul unnu í sameiningu, og sýnir andlitsmyndir af börnum frá afskekktum svæðum á Íslandi verða prentaðar á 1000 álplötur og settar upp á vegg við horn Lækjargötu og Austurstrætis, þar sem bruninn átti sér stað í maí í fyrra. Í Module, verkefni skipulagt af Ladån/The Mobile Box, mun sýningarstaðurinn færast úr stað og verða verkin, sem þar eru sýnd, unnin út frá staðsetningu og umhverfi sýningarstaðarins hverju sinni. Atlantis, eftir Tea Mäkipää og Halldór Úlfarsson, er hús sem að hluta til er sökkt í Tjörnina í Reykjavík og fjallar um hugmyndir um það að komast af.

    Það á hús eftir að sökkva í miðri Reykjavíkurtjörn.

    Wayne Shorter er mest skapandi tónlistarmaður djassins og einn frægasti gesturinn sem hingað

    hefur komið úr djassheiminum.

    Denyce Graves er eftirsóttust söngdíva í heiminum í dag.

    LJÓSMYND: HELGI HALLDÓRSSON

  • Miðbæjarpósturinn 5

    „Langbestir á Laugaveginum“„Langbestir á Laugaveginum“

    Ferð án fyrirheits er yfirskrift tónleika sem verða í Íslensku óper-unni 29. og 30. maí.Nafnið er sótt í eina af ljóðabókum Steins Steinarrs, en í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Söngvararnir KK,Ellen Kristjánsdóttir,Helgi Björnsson,Þorsteinn Einarsson (Hjálmum), Hildur Vala og Svavar Knútur (Hraun) munu þar flytja lög sem samin hafa verið við kvæði skálds-ins. Umsjón með tón-leikunum hefur Jón Ólafsson tónlistarmaður en hann hefur í félagi við Sigurð Bjólu samið ný lög við kvæði Steins og verða þau frumflutt á þessum tónleikum.Það verður spennandi að heyra hvað samstarf þeirra félaga getur af sér. Mörg þekkt lög hafa

    Landslið íslenkra tónlistarmanna hyllir Stein Steinarr á Listahátíð

    orðið til við kvæði Steins í gegnum tíðina og má þar nefna Barn, Ræfilskvæði,Verkamaður, Það vex eitt blóm fyrir vestan og Hudson Bay sem dæmi. Eitthvað þessara laga verða vafalítið á dag-skránni á þessum tónleikum. Söngvurunum til fulltingis verður hljómsveit skipuð þeim Jóni Ólafssyni, Guðmundi Péturssyni, Helga Svavari Helgasyni, Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni, Hrafnkeli Orra Egilssyni og Unu Sveinbjarnardóttur.

    Mynd Jónatan Atli Sveinsson

    Jón Ólafsson hefur gengið með hugmyndina að þessum tónleikum í nokkur ár og með góðri liðveislu hefur hug-myndin nú orðið að veruleika. Hann er einn fjölmargra íslenskra lagahöfunda sem hafa gert lög við kvæði Steins Steinarrs og sennilega er lag hans við Passíusálm no. 51 hvað þekktast (Skyldi manninum ekki leiðast að láta kross-festa sig?)

    Jón hefur komið víða við á löngum ferli sem tónlistarmað-

    ur. Hann hefur leikið á píanó frá blautu barnsbeini og verið afkastamikill lagahöfundur, útsetjari, flytjandi og upptöku-stjóri á íslenskum plötum síðustu 20 árin. Hann hefur komið að tónlist í fjölda leiksýninga, ýmist sem tónskáld eða tónlist-arstjóri, auk þess að semja tónlist fyrir sjónvarp og kvik-myndir. Fyrir þremur árum gaf hann út sína fyrstu sólóplötu og síðan þá hefur önnur bæst í safnið. Jón hefur einnig stýrt tónlistarþáttum í sjónvarpi við miklar vinsældir.

    „Dressmannbúðirnar eru búnar að vera leiðandi á fatamarkaðnum á Íslandi und-anfarin áratug.Við erum að selja vandaða vöru á toppverði og það kunna Íslendingar að meta enda þjóð sem líkar að gera góð kaup. Allar búðirnar bjóða í senn upp á fjölbreytt úrval af fötum á vægu verði og góða þjónustu smekkmanna. En auðvitað erum við langbestir hérna á Laugaveginum, með björtustu og fallegustu búðina.Eitthvað hlýtur að draga fólkið að, ég er með langan lista af fastakúnnum sem hvergi annarstaðar vill versla og það er ekki óalgengt í samskiptum mínum við kúnna að skírnarnöfn séu notuð, mun persónulegri þjónusta þannig.Það er mikil uppbygging í gangi hjá okkur núna eins og vegfarendur taka eftir og erum við að byrja á lokakaflanum en hann snýst um að endurnýja framhlið búð-arinnar. Þá verður skipt um allt að framan og inngangurinn gerður nýtískulegri en hann er. Það er ekki annað hægt en horfa bjartsýnn fram á veginn þrátt fyrir verðbólgu og vandræði í efnahaginum, við erum með mestu gæðin á besta verðinu og það stuggar engin við okkur í því. Þar af leiðandi er útilokað að tapa á viðskiptum við okkur.Við erum alltaf með dúndurtilboð í gangi hvort sem við auglýsum þau eða ekki, fólk verður bara að gera sér ferð í bæinn og athuga hvað við erum að bralla hverju sinni. Svo má ekki gleyma að langskemmtilegustu tímabil ársins eru framund-an, vor og sumar þannig við erum mjög sprækir félagarnir.Viljum bara sjá meira af fólki í bænum,“ segir Ellert Baldursson verlunarstjóri Dressmann á Laugavegi.

  • Listasafn Reykjavíkur- glæðir miðbæjarlífið og gerir sumarið spennandi

    Miðbæjarpósturinn6

    HafnarhúsTilraunamaraþon - 15. maí-24. ágústTilraunamaraþon er umfangsmesti listviðburður sem Listasafn Reykjavíkur hefur staðið fyrir frá upphafi en að honum koma rúmlega fjörutíu virtir listaog vísindamenn úr alþjóðasamfélaginu. Tilraunamaraþonið er tvíþætt og skipt-ist annars vegar í lifandi tilraunastofu, sem verður starfrækt fyrir opnum tjöldum fyrstu daga sýningarinnar og hins vegar innsetningar unnar í ólíka miðla sem standa út sumarið.Sýningunni og verkefninu í heild er stýrt af Hans Ulrich Obrist, meðstjórnanda sýninga og viðburða og stjórnanda alþjóðlegra verkefna í Serpentine Gallery í London í sam-starfi við listamanninn Ólaf Elíasson. Vegleg sýningaskrá fylgir sýningunni og fer hún í alþjóðlega dreifingu.Tilraunamaraþonið er þungamiðja Listahátíðar í Reykjavík 2008. Sýningin er unnin í samvinnu við Serpentine Gallery.Bakhjarlar Tilraunamaraþonsins eru Orkuveita Reykjavíkur og Icelandair.

    List sem tilraunViðburðinum má skipta í tvo hluta, annars vegar maraþon þar sem hver tilraunin rekur aðra alla opnunarhelgi Listahátíðar og hins vegar sýning á fjölda innsetninga sem stendur í Hafnarhúsinu mestan hluta sumars. Auk listamannanna í sýningunni er leiðandi vísindamönnum, arkitektum, fræðimönnum og hugsuðum boðin þátttaka í maraþoninu. Þau munu setja upp og kynna fjölbreyttar og ólíkar tilraunir fyrir gestum en viðfangsefnin spanna meðal annars rannsóknir á orku, erfðafræði og minni.Tilraunamaraþon byggir á rómuðum marþonvirðburðum sem Serpentine Gallery hefur staðið fyrir undanfarin tvö ár í Lundúnum.Í fyrrahaust stóð „Serpentine Gallery Experiment Marathon” yfir í tvo daga en niðurstaða þess verður sérstaklega kynnt í Hafnarhúsinu í skála sem Ólafur Elíasson mun hanna með Einari Þorsteini Ásgeirssyni arkitekt. Sýningarstjórinn, Hans Ulrich Obrist, byggir þennan viðburð að nokkru leyti á sýningu sem hann setti upp ásamt Barböru Vanderlinden árið 1999 í Antwerpen og hét „Laboratorium”. Gögn frá þeirri sýningu verða einnig hluti af sýningu Hafnarhússins.

    Þátttakendur:Marina Abramovic, David Adjaye, Aranda/Lasch, Einar Thorsteinn Ásgeirsson, Fia Backström, John Baldessari, Thomas Bayrle,John Brockman, Peter Coles, Tony Conrad, Carlos CruzDiez, Attila Csörgö, Jimmie Durham, Ólafur Elíasson, Brian Eno, Erró, Simone Forti, Ivana Franke, Hreinn Friðfinnsson, Gabríela Friðriksdóttir, Yona Friedman, Aurélien Froment, Francesca von Habsburg,Sharon Hayes, Abhishek Hazra, Florian Hecker, Roger Hiorns, Karl Holmquist, Hilmar B. Janusson, Hekla Dögg Jónsdóttir, Haraldur Jónsson, Karl Ægir Karlsson, Kristján Leósson, Darri Lorenzen, M/M, Jonas Mekas, Gustav Metzger, Neri Oxman, Pedro Reyes,Matthew Ritchie, Israel Rosenfield, Dr. Ruth, Tomas Saraceno, Carolee Schneemann, Stewart Sherman, Thorsteinn I. Sigfússon,Katrín Sigurðardóttir, Luc Steels, Rirkrit Tiravanija, Thor Vilhjálmsson, Tris VonnaMichell, Emily Wardill.

    Listasafn Reykjavíkur verður heldur betur með viðburði hjá sér á komandi sumri. Af öllu því sem verður á döfinni hjá þeim hvort sem er í Hafnarhúsinu, á Kjarvalsstöðum eða í Ásmundarsafni eru það þrjár einkar athyglisverðar sýningar sem verða í brennidepli hjá þeim í sumar. Það er Tilraunarmaraþonið sem er þungamiðja Listahátíðar í Reykjavík 2008, Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist sem verður á Kjarvalsstöðum og er einnig á dagskrá Listahátíðar og svo sýningin „I Hate Nature“ þar sem Martha Schwartz, landslagsarkitekt og myndlistarmaður reisir gríðarlega stóra innsetningu í garði Kjarvalsstaða.Er það sýning sem er unnin í samvinnu við Félag íslenskra landslagsarkitekta í tilefni af 30 ára afmæli félagsins. Við skulum líta aðeins nánar á þessar þrjár helstu sýningar Listasafns Reykjavíkur sem ávallt er stór þátttakandi í að glæða og virkja lista- og menningarlíf miðbæjarins á ári hverju.

    Frá sýningu Mariana Abramovic í Serpentine galleríinu í fyrrahaust.En hún verður meðal þátttakenda í Tilraunamaraþoninu í Hafnarhúsinu í sumar

    Blue magnet eftir Roger Hiorn sem verður í Tilraunamaraþoninu.

    Panorama eftir Olgu Bergmann sem er meðal listamanna á sýningunni Draumur um ægifegurð

    í íslenskri samtímalist á Kjarvalssöðum.

    Martha Schwartz — I Hate Nature

    Á sýningunni eru mörg ný verk eftir framsæknustu listamenn landsins sem byggja á ólíkum hugmynd-um þeirra um náttúruna sem fyrirbæri í ljósmynda- og vídeólist. Sýningin spannar allt frá ljósmyndum frá fyrri hluta tuttugustu aldar til innsetninga sem ungir og þekktir, íslenskir listamenn hafa gert.Sýningarstjóri er Æsa Sigurjónsdóttir. Sýningin var fyrst á dagskrá á Bozar í Brussel á hátíðinni Iceand on the Edge 2008. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Landsbankinn er aðalstyrktaraðili sýn-ingarinnar.

    ListamennAnna Hallin, Daníel Þorkell Magnússon, Gjörninga-

    klúbburinn/Icelandic Love Corporation, Halldór Ás-geirsson, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson,Kristján Guðmundsson, Ólafur Elíasson, Olga Bergmann, Pétur Thomsen, Ragnar Kjartansson,Sigurður Guðjónsson, Spessi, Vigfús Sigurgeirsson.

    Martha Scwhartz er einn kunnasti, núlifandi lands-lagsarkitekt í heiminum í dag. Innsetning hennar í garði Kjarvalsstaða skírskotar í senn til sýningarinn-ar Ægifegurðar og uppplifunar listamannsins á nátt-úrunni og umræðunni um nýtingu og verndun náttúrunnar. Martha hefur unnið fjölmörg verk í þéttbýli og fer jafnan ótroðnar slóðir í að kanna og nýta nýja möguleika sem landslagið hefur upp á að bjóða. Schwartz er myndlistarmaður og landslags-arkitekt sem í verkum sínum leitast jafnan við að gera báðum listformunum jafn hátt undir höfði.

    Aðalstyrktaraðili sýningarinnar er Ingibjörg Kristjánsdóttir. Sýningin er unnin í samvinnu við Félag íslenskra landslagsarkítekta í tilefni af 30 ára afmæli félagsins.

    Martha Schwartz - I Hate Nature18. maí – 20. júlí

    KJARVALSSTAÐIR Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist - 18. maí – 31. ágúst

  • Laugavegi 27 - 101 Reykjavík - Sími 551 1080 - Kulusukart.com

    Laugavegi 82 - Sími 551 4473

    STOFNUÐ 1916

    Glæsilegundirföt

    Lífstykkjabúðin var stofnuð sumarið 1916 af kjarnakonunni Elísabetu Foss. Verslunin var því tveggja ára gömul þegar Ísland varð fullvalda ríki og hafði náð 28 ára aldri við sjálfa lýðveldisstofnunina. Fyrirtækið stundaði lengi vel eigin framleiðslu og á árunum fyrir seinna stríð annaði verslunin innlendri eftirspurn eftir lífsykkjum, brjóstahöldum og mjaðmabeltum.

    Þrátt fyrir háan aldur er lífstykkjabúðin ung í anda og þjónar kvenfólki á öllum aldri. Í dag flytur verslunin inn hágæða undirföt frá öllum heimshornum og brúar kynslóðabil íslenskra kvenna, því að tryggir viðskiptavinir verslunarinn-ar eru á öllum aldri og koma allstaðar af landinu.

  • Miðbæjarpósturinn8

    Sverrir Bergmann, eigandi Herrahússins Adam við Laugaveg, þekkir tímana tvenna hvað varðar tísku- og fatabransann enda hefur hann verið í eldlínunni í meira en 30 ár og allan tímann í miðbænum. Við heilsuðum upp á Sverri og spurðum hvað væri að frétta, en það er alltaf eitthvað nýtt að gerast hjá þeim í Herrahúsinu.„Það er allt gott að frétta af okkur, og það hefur verið mikið að gera. Þrátt fyrir krepputal í þjóðfélaginu er um 15% aukn-ing það sem af er á þessu ári. Það er alltaf eitthvað nýtt að gerast hjá okkur og nýir hlutir sem við leggjum áherslu á hverju sinni. Við erum alltaf með yfirstærðirnar og erum nú komnir með föt upp í stærðina 86, sem er alveg gríðarlega stórt. Svo erum við með skó allt upp í stærðina 50 (14). Meðal nýjunga erum við með extra-löng bindi fyrir þá sem hafa sveran háls til þess að bindið líti ekki út eins og síð slaufa þegar búið er að binda hnútinn. Við erum alltaf að auka við okkur í Melkavörunum og erum með mikið úrval af Melka skyrtum, einnig Melka galla- og kakibuxum sem hægt er að fá í mjög stórum stærðum.Það hefur komið mörgum skemmtilega á óvart hversu mikið úrval af rykfrökkum við eigum en það virðist ekki vera mikið framboð af þeim í bænum. Svo erum við með mjög sniðuga og vinsæla sportjakka frá Falbe. Þetta eru sportlegir jakkar sem krumpast ekki. Þeir eru með minni púða í öxlum og minna flísilín þannig að þeir eru mun léttari en venjulegir jakkar. Þannig að manni líður eins og að vera í skyrtu þegar maður klæðist þeim. Þess má geta að vörur frá Falbe hafa fengist í Herrahúsinu nánast frá upphafi, en öll kjólföt og smókingar eru frá þeim. Herrahúsið hefur verslað við Falbe frá því það hóf starfsemi sína árið 1965,” segir Sverrir.Hvað eruð þið með breiðan markhóp í herrafatnaðinum

    og herratískunni?„Það er mjög breiður hópur manna sem verslar hjá okkur, allt frá ungum mönnum og upp úr. Jafnvel enn yngri því við seld-

    um þó nokkuð af fermingarfötum í ár. Ég hef ekkert mikið verið að auglýsa fyrir þann aldurshóp en við eigum þessar stærðir til sem passa á þá. Við erum með föt frá stærðinni 40-42 og allt upp í 86 eins og fyrr segir. Svo erum við einnig með svona sér-stakar „extra-long“ stærðir sem eru fyrir mjög hávaxna stráka og menn. Einnig erum við með fatn-að fyrir lágvaxna menn. Svo þjón-ustum við þá sem þurfa breyt-ingar á fötunum og er það inni-falið í verðinu.Við erum með verkstæði á þriðju hæð en þar vinnur klæðskeri allan daginn við að breyta, sníða,og sauma. Það er alltaf nóg að gera enda hefur verið aukning hjá okkur frá ári til árs.Ég vil koma því að hér að við breytum skyrtum þegar þörf er á því. Mjög algengt er að menn hafi þykkan háls en eru grann-vaxnir en þá þarf að þrengja skyrturnar og jafnvel að stytta ermar. Þetta gerum við allt og er það innifalið í verði. Ég hef ekki heyrt um neina aðra versl-un sem er með þessa þjón-ustu enda höfum viðeignast margan fastakúnnann út á þetta.Það munar alveg rosalega miklu að ermarnar séu ekki langt fram á fing-

    urgóma eða að skyrtan sé ekki alltof víð,“segir Sverrir.

    Ég hef heyrt að þið séuð einnig farnir að sérsauma föt á

    menn, er eitthvað til í því?

    „Já, það er mikið rétt.Þetta er önnur nýjung sem við erum nýbyrj-aðir að bjóða upp á.Þá geta menn valið sér eðalefni og snið fengið auka buxur eða vesti einhneppt eða tvíhneppt föt o.s.frv.Við erum með efni frá Ceirutti, Riba,Dormuel og fleiri góðum efnisfram-

    leiðendum. Um þess-ar mundir erum við að sérsauma fyrir forset-

    ann okkar herra Ólaf Ragnar Grímsson. Það

    er ítalskur klæðskeri sem saumar fyrir Herrahúsið

    en hann hefur aðsetur í Portúgal. Afgreiðslutími

    sérsaums tekur þrjár til sex vikur eftir því hvað það er mikið að gera hverju sinni.

    Þetta er alveg nýtt hjá okkur,“ segir Sverrir.

    Herrahúsið Adamvið Laugaveg, þar sem alltaf eitthvað nýtt er að gerast

    Sverrir Bergmann í yfirstærð af jakka.

    Frá saumastofunni Herrahúsið býður uppá Calvin Klein nærfatnað

    Herrahúsið hefur uppá geysimikið úrval af bjóða af jakkafötum, fatnaði og skóm í öllum stærðum

  • Miðbæjarpósturinn 9

    Hvernig er með nanó tæknina í fötunum,er hún alltaf að verða algengari?

    „Já, nanó er alltaf að koma meira og meira inn í fatnaðinn.Þetta er jónatækni sem gerir það að verkum að klæðnaður-inn verður algjörlega vatnsheldur, tekur ekki í sig neinn raka.Blettir eins og af kaffi, rauðvíni, sósum eða bara nefndu það,er liðin tíð. Þetta er eitthvað sem á eftir að aukast til muna í öllum gerðum fatnaðar, og er sérstaklega hentugt fyrir allan ljósan fatnað sem er viðkvæmari fyrir blettum. En nú bara koma engir blettir, þú þurrkar þetta bara af sí svona.

    Við erum líka komnir með nanó í bindinn,“ segir Sverrir Bergmann í Herrahúsinu Adam hress að lokum.Það má með sanni segja að sumarið sé komið í Herrahúsið,allt sneisafullt af nýuppteknum sumarvörum sem eru jakka-föt, bolir, skyrtur, buxur, nærföt, stakir jakkar, bindi eða skór.Að ógleymdu miklu úrvali af óbundnum slaufum, axlabönd-um, ermahnöppum, bindisnælum, smókingum og mörgu fleiru fyrir herramanninn við allskonar tilefni.

    Skór í yfirstærð nr. 50 við hliðina á algengri stærð. Eins og sjá má er hægt að fá allt til alls í Herrahúsinu,bindi í öllum stærðum, jakka og bara nefndu það.

  • Miðbæjarpósturinn10

    Sígildir hringar alltaf vinsælirEinbaugar, þessir sígildu og klassísku

    hringar hafa alltaf verið mjög vinsælir hjá Jóni og Óskari. Þá má fá bæði í gulu og hvítu gulli og misjafnlega breiða.Jafnframt koma þeir í mismunandi

    þykkt og stundum eru þeir kúptir að innan sem mörgum finnst þægilegra.

    Hinn klassíski einbaugur er mjög fallegur á hendi og fer vel með öðrum hringum.

    Munstraðir hringar og íslensk hönnunHjá Jóni og Óskari er í boði mikið úrval af

    munstruðum hringum af ýmsu tagi og hring-um þar sem hvítu- og gulu gulli er blandað

    saman. Jafnframt hefur verið mjög vin-sælt að handgrafa í hringana og hefur gamla íslenska höfðaletrið þá oftast verið notað. Þar velur fólk að setja nöfnin

    sín eða einhver orð eða tákn sem þeim eru kær. Gullsmiðir fyrirtækisins hafa hannað

    fjölmargar útgáfur af mynstri og formum sem hafa reynst mjög vinsæl og má sjá glæsilegt úrval hringa á

    heimasíðu fyrirtækisins www.jonogoskar.is.

    Demantar í giftingarhringumUndanfarin ár hefur það orðið sífellt algengara að fólk velji að setja demanta í giftingarhringana og þá einkum kvenhringinn. Demantur glæðir hringinn lífi og eykur á fegurð hans. Hér er einnig um að ræða margar útfærslur og má sjá nokkrar þeirra hér á með-fylgjandi myndum.

    Gull, hvítagull, platína,palladium, stál, silfur

    Algengast er að gifting-arhringarnir séu hafðir úr gulu gulli en hvítagull eða blanda af gulu og hvítu gulli hefur líka verið mjög vinsæl. Hringar úr platínu

    eða palladium (sem er plat-ínumálmur) standa

    einnig til boða en eru mun dýrari en gullhringir og hafa verið minna teknir. Platínumálmarnir hafa þó verið mjög að

    sækja á erlendis og ekki er ólíklegt að vinsældir þeirra muni aukast hér á landi. Hringar úr silfri og stáli hafa einnig notið nokkurra vinsælda enda ódýrasti kosturinn sem í boði er í dag.

    Eitt tonn af gulli

    Demantshringur sem trúlofunarhringurAmeríska hefðin, þ.e.a.s. að daman setji upp demantshring

    við trúlofun hefur einnig verið að aukast mikið að vinsældum undanfarin misseri. Þegar þessi leið er

    valin setur karlmaðurinn ekki upp hring en konan setur upp demantshring þegar hennar er beðið.Báðir aðilar setja svo upp einbauga við giftingu.Samkvæmt amerísku hefðinni á hringurinn að

    kosta sem nemur a.m.k. tveimur mánaðarlaunum herrans en það er að sjálfsögðu ekki bráðnauðsyn-

    legt að vera svo flottur á því þegar þessi leið er valin því hjá Jóni og Óskari er hægt að fá glæsilega demantshringa á

    verði sem flestir ættu að ráða við.

    MorgungjafirSá siður að gefa morgungjafir hefur einnig verið að aukast mjög að vinsældum undanfarin ár og má segja að það sé orðin hefð í íslenskum brúðkaup-um. Mega þeir herrar sem gleyma morgungjöfinni eiga von á eitruðum athugasemdum frá sinni heitt-

    elskuðu. Í morgungjöf er hefðin að gefa fallegan demantsskartgrip. Svokallaðir „alliance” hringar eru

    orðnir ein vinsælasta morgungjöfin en þar er nokkrum demöntum raðað eftir baugnum sem er hafður úr hvítu eða gulu gulli.

    Skemmtilegustu viðskiptavinirnirHjá Jóni og Óskari eru þeir viðskiptavinir sem kaupa trúlofunar- og giftingarhringi í miklu upp-áhaldi. Þeir hafa ákveðið að treysta fyrirtækinu fyrir kaupum sem eiga að endast alla ævi og sú ákvörðun þeirra er tekin mjög alvarlega. Starfsmenn fyrirtækisins eru tilbúnir að leggja sig alla fram til að valið á hringunum verði sem auðveldast og að ánægja ríki með kaupin og einungis er boðið upp á vandaða hágæðavöru.

    Jón & Óskar er alhliða skartgripa-, úra- og gjafavöruverslun sem var stofnsett árið 1971 og er því 37 ára um þessar mundir. Lengst af rak fyrirtækið eina verslun við Laugaveg 61 í Reykjavík en nýlega hafa bæst við verslanir í Smáralind og Kringlunni.Hjá Jóni og Óskari hefur alltaf verið lögð mikil áhersla á að þjóna viðskiptavinum í trúlof-unar- og giftingarhugleiðingum og eftir þennan langa tíma sem fyrirtækið hefur starfað er óhætt að fullyrða að stór hluti Íslendinga ber í dag hringa frá fyrirtækinu. Það má áætla að gullið sem viðskiptavinir fyrirtækisins bera á fingrum sér í formi trúlofunar- og giftingahringa slagi hátt í tonnið.

  • Laugavegi 58 • Sími 551 4884 • stillfashion.is

    BLACKY DRESS • PBO

    JEAN PAUL • KAPALUA

    QUI • DAMO • BRAX

    Fru

    m

    ����� �� �

    �������������

    Jón Heiðar Andrésson sígur Valshamar í Eilífsdal

  • Miðbæjarpósturinn12

    Morgunverðar-tilboð

    Rauðarárstígur 8Cappuccino + smurð beygla + Óska jógúrt að eigin vali = 690 kr.

    Veitinga- og kaffihús í miðborginniVeitingahúsArgentínaBarónstíg 11a S. 551 [email protected]ð mán.-fim. 18-24 og fös.-sun. 17.30-01

    American StyleTryggvagötu 26 S. 511 2700 [email protected]ð mán.-fös. 10-23.30 og um helgar 11-23.30

    Austur IndíafélagiðHverfisgötu 56 S. 552 1630www.austurindia.is

    Á næstu grösumLaugavegi 20b S. 551 [email protected]ð mán.-lau. 11.30-22 og sun. 17-22

    CarusoÞingholtstræti 1 S. 562 7335www.caruso.is [email protected]

    DomoÞingholtsstræti 5S. 552 5588www.domo.is

    Einar BenVeltusundi 1 S. 511 [email protected]

    FjalakötturinnAðalstræti 16 S. 514 6000www.reykjavikhotels.is [email protected]

    GrillhúsiðTryggvagötu 20 S. 562 [email protected]

    Grænn kosturSkólavörðustíg 8b S. 552 [email protected]

    Hereford - steikhúsLaugavegi 53b S. 511 3350www.hereford.is [email protected]

    HorniðHafnarstræti 15 S. 551 3340 (borðapantanir)[email protected]ð alla daga 11-23.30

    HumarhúsiðAmtmannsstíg 1S. 561 3303www.humarhusid.is [email protected]

    Hótel Holt

    Bergstaðastræti 37S. 552 [email protected]

    Iðnó - TjarnarbakkinnVonarstræti 3S. 562 9700www.idno.is - [email protected]

    Indian MangoFrakkastíg 12S. 551 7722

    [email protected]

    IndókínaLaugavegi 19S. 552 2399, 552 3100

    ÍtalíaLaugavegi 11S. 552 4630www.italia.is - [email protected]

    JómfrúinLækjargötu 4S. 551 [email protected] Opið alla daga 11-18

    Kaffi ReykjavíkVesturgötu 2S. 552 3030, 551 7759 (borðapantanir)www.kaffireykjavik.is

    KínahúsiðLækjargötu 8S. 551 1014

    La PrimaveraAusturstræti 9S. 561 [email protected]

    LækjarbrekkaBankastræti 2 S. 551 [email protected]

    MaruAðalstræti 12S. 511 4440www.maru.is - [email protected]

    NúðluhúsiðLaugavegi 59S. 552 2400

    OSUSHILækjargötu 2a - Iðu-húsinu 2. hæðS. 561 0562www.osushi.is - [email protected]ð alla daga frá kl. 12-22

    Ó RestaurantÞórsgötu 1S. 511 6677 og 511 6200www.orestaurant.is - [email protected]ð sun-fim. 15-22.30.Fös-lau. 15-23.30

    PerlanÖskjuhlíðS. 562 0200www.perlan.is - [email protected]

    Pizza CompLaugavegi 81S. 561 [email protected]

    RossopomodoroLaugavegi 40aS. 561 0500www.rossopodomoro.is

    SaltPósthússtræti 2S. 599 1020www.saltrestaurant.is

    ShalimarAusturstræti 4S. 551 0292www.shalimar.is [email protected]

    SilfurVeitingastaðurinn v/AusturvöllS. 578 2008www.silfur.is [email protected]

    SjávarkjallarinnAðalstræti 2S. 511 1212www.sjavarkjallarinn.is [email protected]

    TapasVesturgötu 3bS. 551 2344www.tapas.is - [email protected]

    Tveir fiskarGeirsgötu 9S. 511 3474www.restaurant.is

    Við TjörninaTemplarasundi 3S. 551 [email protected]

    STUDIO 29 KAFFIBAR

    GLÆSILEGUR NÝR KAFFIBAR á tveimur hæðum í miðborginni.Léttar veitingar í hádeginu alla daga og lifandi tónlist föstudaga og laugardaga.

    Fagmannleg þjónusta. Verið velkomin!4TH FLOOR HOTEL | STUDIO 29

    Á HORNI SNORRABRAUTAR OG LAUGAVEGAR

    Fru

    m

  • Erum flutt á

    Laugaveg 59KjörgarðshúsiðVerið velkomin!

    Thailenskur veitingastaður Bjóðum upp á

    4ra rétta hádegistilboðá 700 kr.

    Frítt kaffi með mat.

    Fru

    m

    Opið mán. - fös. 9-21Lau. - sun. 17 - 21

    Sími 552 2400

    Vín og skelLaugavegi 24S. 534 4700www.vinogskel.is

    Þrír frakkarBaldursgötu 14S. 552 3939www.3frakkar.com [email protected]

    Barir og BistroB5Bankastræti 5S. 552 9600

    BarinnLaugavegi 22S. 517 5522

    BarónspöbbLaugavegi 72S. 561 4588

    BrennslanPósthússtræti 9S. 578 2020

    Café VictorHafnarstræti 1-3S. 561 9555www.victor.is - [email protected]

    Café CulturaHverfisgötu 18S. 530 9314www.cultura.is - [email protected]

    Café Oliver Laugavegi 20aS. 552 2300www.cafeoliver.is

    Café ParísAusturstræti 14S. 551 1020www.cafeparis.is [email protected]ð mán.-fim. 08-01, fös. 08-03,lau. 09-03, sun. 09-01

    Celtic CrossHverfisgötu 26S. 511 3240

    Cafe PucciniVitastíg 10aS. 552 5577

    DillonLaugavegi 30S. 511 2400

    DecoAusturstræti 12

    Grand RokkSmiðjustíg 6S. 551 5522

    GlaumbarTryggvagötu 20S. 552 6868

    HressingarskálinnAusturstræti 20S. 561 2240www.hressingarskalinn.is

    HverfisbarinnHverfisgötu 20S. 511 6700

    KaffibarinnBergstaðastræti 1S. 551 1588

    Kofi Tómasar frændaLaugavegi 2S. 551 1855

    Kaffi AmsterdamHafnarstræti 5S. 551 3800

    Kaffi VínLaugavegi 73S. 561 0073

    PrikiðBankastræti 12S. 551 2866www.prikid.is

    Q bar Ingólfsstræti 3S. 551 9660

    Red ChiliPósthússtræti 13S. 562 7830

    SirkusKlapparstíg 30

    SólonBankastræti 7aS. 562 3232www.solon.is

    Studio 29Laugavegi 101S. 511 3032www.4thfloorhotel.is

    Svarta kaffiðLaugavegi 54S. 551 2999

    ThorvaldsenAusturstræti 8S. 511 1413

    VegamótVegamótastíg 4S. 511 [email protected]@simnet.is

    VitabarBergþórugötu 21S. 551 7200

    VínbarinnKirkjutorgi 4S. 552 4120

    ÖlstofanVegamótastíg 4S.552 4687

    KaffihúsBabalúSkólavörðustíg 22aS. 552 2278

    Café RomaRauðarárstíg 8

    Grái KötturinnHverfisgötu 16aS. 551 1544

    IðukaffiIðuhúsinuLækjargötu

    KaffifélagiðSkólavörðustíg 10Opið frá 7:30 til 18:30, mánudaga til föstudaga og frá kl. 10:00 til 16:00 á laugardögum.

    Kaffi HljómalindLaugavegi 21S. 517 1980

    Kaffi RótHafnarstræti 17

    Kaffi -setriðLaugavegi 103S. 552 5444

    KaffitárBankastræti 8S. 511 4540Listasafni ÍslandsÞjóðminjasafninuwww.kaffitar.is

    MokkaSkólavörðustíg 3aS. 552 1174

    RáðhúskaffiRáðhúsinu Tjarnargötu 11 S. 411 1070

    SegafredoLækjartorgi S. 562 5200

    Te og kaffiLaugavegi 2Laugavegi 18Eymundsson Austurstræti 18Saltfélagið Grandagarði 2

    Tíu droparLaugavegi 27 S. 551 9380

    Nýr matseðill - HeilsuréttirSmáréttir - Veisluréttir - Tapasréttir

    Efri hæð SólonEinkasamkvæmi - Veislur - PartýFundir - Tónleikar - Boltinn í beinni

    Miðvikudaga: Dj Andrés & 110Fimmtudaga: Einar Ágúst / Ingó IdolFöstudaga: dj Brynjar Már / dj AtliLaugardaga: dj Brynjar Már dj Rikki G / dj Anna Brá / dj Atli

    www.solon.is

  • Miðbæjarpósturinn14

    Brim 10 ára í júní

    Verslunin Brim að Laugvegi 71 mun fagna þeim stóra og merka áfanga að verða 10 ára nú í júní.Þau „Brimarar'' hyggjast fagna þessum merku tímamót-um með stæl í sumar og verða uppákomur auglýstar síðar.Verslunin opnaði árið 1998 í Keflavík í 30 fm. húsnæði og síðan tæpu ári síðar að Laugavegi 44 í 120 fermetrum.Árið 1990 var síðan opnuð verslun í Kringlunni og núna fyrir rúmlega ári síðan fluttu þau í 400 fm. húsnæði að Laugavegi 71.Fyrsta árið var einungis boðið upp á vinsælu vörurnar frá Billabong en þau hafa aldeilis bætt við sig og bjóða nú 10 árum seinna upp á 25 merki sem þau flytja inn sjálf og eru með dreifingarrétt á.Búðina þekkja flestir enda skartar hún nú einu mesta og besta úrvali af hágæða brettatísku hér á landiBrim hefur frá upphafi haft þá stefnu að kaupa inn allar flíkur inn í svokölluðu „Limited Edition'' magni þ.e að hver flík er eingöngu í boði í mjög takmörkuðu magni.Síðastliðinn vetur var nóg að gera í sölu á snjóbrettum,og snjóbrettafatnaði enda fengum við Íslendingar loksins almennilegan vetur fyrir skíða og brettafólk. Brim selur snjóbretti og allan tilheyrandi búnað á mjög sanngjörnu verði.Næsta vetur ber það hæst að þau ætla að taka inn snjó-brettamerkin ROME og 686 sem eru meðal allra flottustu merkjanna í bransanum í dag og ætti að gleðja alla snjó-brettaáhugamenn landsins.Kvenfólk jafnt sem karlmenn verlsa mikið í Brim og

    Verslunin Brim að Laugvegi 71 mun fagna þeim stóra og merka áfanga að verða 10 ára nú í júní

    kom úrvalið af flottum bikiníum og kjólum undirritaðri skemmtilega á óvart.Brim er á tveimur hæðum og er 300 fm. kjallarinn sann-kallað draumaland fyrir fatafrík með gífurlegu úrvali af flottum fatnaði.Brim er fjölskyldufyrirtæki og hafa þau ákveðið að þrátt fyrir gengisfellingu krónunar að halda sama verði og fyrir gengishrun.„70% af okkar sumarvörum voru komnar til landsins fyrir veikingu krónunnar og það gengur einfaldlega ekki upp að hækka samskonar vörur sem komu eftir það um allt að 30%'' segja þau í Brim og væri óskandi fyrir okkur kaup-endur að fleiri hugsuðu þannig.Erlendir ferðamenn koma mikið í Brim og versla vel enda eru vörurnar sem þau selja líklega hvergi ódýrari í Evrópu en hér og allt að 50% ódýrari en gengur og gerist í Skandinavíu.Það er nóg að gerast í búðinni í dag, fullt af nýjum sum-arvörum og endalaust til af töff svokölluðum brettafatn-aði sem greinarhöfundi þótti þó meira vera bara flottur hátískufatnaður.Mæli með að þið kíkið við og sjáið hvað þau hafa upp á að bjóða.Ég stóðst allavega ekki mátið og gekk út með flottasta bikiníið sem ég hef augum litið.

    Ása Ott.

    Billabong Sumar 2008Billabong Sumar 2008Billabong Sumar 2008

    Billabong Sumar 2008 Billabong Sumar 2008

    Billabong Sumar 2008

  • Miðbæjarpósturinn 15

    ������� �� � ����������� � ��������������������� �� ��� ��� ��� � ��������� ��� ��� ��� � ��������������

    �� �������

    ��������������� ���� ����� � ������� ��

    � � �

    �!�� ����� ��� "#$"%& �������� ""$"' � ������ "($"'

    )������� ����

    � ��� *+, ���

    LAUGAVEGI 51

    DISEL LEE OILILY MOLO

    Í Kolaportinu er að finna einkar athyglisverða verslun sem er sannkölluð fjársjóðskista fyrir plötusafnarana, þ.e. gömlu góðu vínylpöturnar. Það er hann Ingvar Geirsson, plötusnúður og plötusafnari með meiru, sem rekur búð sína þar. Hjá honum er hægt að sjá þvílikt úrval af alls-kyns plötum í öllum geirum tónlistarlífsins hvort sem eru íslenskar eða erlendar. Lummar hann á fullt af sjaldgæfum plötum og sumum afar verðmætum sem „orginalar“. Er ekki laust við það að maður komist á flug í „nostalgíu“ þegar flétt er í gegnum þetta feikna mikla úrval af gömlu góðu hljómplötunni. Heyrst hefur að sífellt fleiri séu farnir að safna plötunum aftur og hún sé að gera mikið „come back“ enda hefur hljómplatan sinn sjarma, bæði hvað varðar sjálft plötu-umslagið og svo það að setja plötuna undir nálina. Ég kíkti við hjá Ingvari og átti skemmtilegt spjall við hann.

    „Ég hef aldrei sagt skilið við vínylplöturnar og er búin að vera safna í meira en 24 ár. Á því mikið safn og þar sem þetta hefur verið áhugamál mitt hefur maður fengið mikla þekkingu á þessu. Það er alltaf meiri og meiri áhugi fyrir vínylnum og hafa t.d. plötuspilarar ekki selst eins vel á Íslandi og nú um árabil,“ segir Ingvar.

    Þegar maður rýnir yfir safnið sem Ingvar er með þarna í Kolaportinu sér maður hverja perl-una á fætur annarri og allt flokkað eftir stíl og stefnum. Hvort sem er rokk, pop, soul, funk, jazz,metal, punk, disco, hip-hop eða hvað sem er.

    „Ég kaupi mikið af plötusöfnum og sía síðan það athyglisverðasta út og kem með það hérna í Kolaportið. Kaupi stór sem lítil söfn, dánarbú og kompudót af plötum. Það er alltaf eitthvað nýtt að finna hjá mér um hverja helgi. Er alltaf með mikið úrval af klassískum titlum eins og

    Gamla góða vínylplatan í miklum blóma

    Bítlarnir, Stones, Doors, Zeppelin, Bowie, Dylan og fleira. Ég held að ég geti alveg sagt það að það er engin önnur plötubúð á landinu með eins mikið og fjölbreytt úrval og ég er með hér í Kolaportinu. Ég var t.d. að ganga frá kaupum á heilum 13.000 plötum frá Bandaríkjunum og bíð ég spenntur eftir því að sjá hvað verður þar að finna,“ segir Ingvar.

    Ingvar bíður upp á að fólk geti fengið að hlusta á plötur hjá sér um leið og hann flæðir þarna sem mikill þekkingarbolti hvað hljómplöturnar varðar.

    „Það er allskonar fólk sem kemur hérna og kaupa plötur hjá mér, ungir sem aldnir. Svo er mikið af tónlistarmönnum og plötusnúðum sem eru fastakúnnar, enda alltaf eitthvað nýtt að finna hjá mér. Þetta er mjög skemmtilegur bransi og gaman að hitta svona marga sem hafa eitthvað með vínylplöturnar að gera. Ég er sjálfur plötusnúður og er búin að vera síðustu þrjú árin á veitingastaðnum Silfur við Austurvöll um helgar,“ segir Ingvar að lokum.

    Já, það verður enginn svikin af því að gera sér ferð niður í Kolaportið og kynna sér það mikla úrval sem Ingvar hefur upp á að bjóða og jafnvel að endurnýja kynnin við vínylplötuna

    http://www.myspace.com/luckysvinyl

    það er mikið úrval af allkyns tónlist af öllum gerðum,straumum og stefnum hjá Ingvari í Kolaportinu

    Ingvar Geirsson

  • Miðbæjarpósturinn16

    Gullkúnst Helgu– þar sem íslenska hraunið fær að njóta sín

    Hálsfesti og eyrnalokkar úr hrauni og Apatit

    „Við erum í mikilli sumarstemningu hér í Ecco á Laugaveginum og erum með mjög gott úrval af sumarskóm fyrir dömur, herra og börn,sem eru mjúkir og þægilegir. En það skiptir svo miklu máli að vera í þægilegum skóm ofan á allt hitt þar sem við verjum svo miklum hluta ævi okkar í skóm. Það er vörumerki Ecco að skór frá þeim passa fullkomlega og erum með besta stuðninginn í öllum þínum hreyfingum þegar þú gengur. Mjúkt leðrið, sveigjanlegt efni og léttur dempari í sóla tryggja þægindi.Um leið og þú ferð í Ecco-skó þá líður þér vel og vilt helst ekki fara úr þeim. Ef þú finnur ekki fyrir skónum sem þú ert í er hámarkinu náð,þægindin eru ofar öllu. Talandi um barnaskó,þá tel ég að Ecco séu með bestu barnaskóna sem til eru. Allir barnaskór eru hannaðir með auðvelda hreyfingu í huga, stuðning við ökla og rúmir til að hreyfa tær og virkja tábergið.Það er munur á fyrstu skónum fyrir 0-2 ára,barnaskóm 3-7 ára og krakkaskóm 8-12 ára,þar sem börnin stækka svo fljót og fóturinn breytist eftir því. Það þarf að huga vel að skóm barnanna allt frá fyrstu skóm og upp úr. Eins erum við með mikið úrval af sandölum, en vin-sælustu sandalarnir eru hinir frægu Offroad-skór sem eru mjög góðir fyrir allskonar útivist eða bara í vinnuna. Einnig er til gott úrval af götuskóm sem eru léttir og þægilegir, styðja vel við ökkla ásamt því að anda vel. Svo erum við líka með nokkrar tegundir af fjallgönguskóm, en þeir eru með Gore-tex vatnsvörn sem er mjög vinsælt. Ásamt skóm sem eru góðir fyrir sumarið eru líka til hjá okkur hefðbundnir skór og spariskór á börn og fullorðna,“ segir Þorbjörg.Gore-tex, hvernig virkar það?„Það er sérstök vatnsvörn sem er mjög góð á alla skó, því hún ver skóna eins og nafnið gefur til kynna fyrir vatni, en hindrar ekki eðlilega öndun leðursins. Það er alltaf best að byrja á því að vatnsverja alla skó og sandala áður en þeir eru notaðir. Svo erum við einnig með gott úrval af skóáburðum sem eru nauðsynlegir á alla skó til að viðhalda gæðum þeirra og útliti sem lengst. Og svo skósápu sem er gott að nota til að þrífa skóna með,“ segir Þorbjörg í Ecco á Laugaveginum að lokum.

    „Þegar þú finnur ekki fyrir skónum sem þú ert í, ertu í mjög góðum málum“– segir Þorbjörg Ósk Úlfarsdóttir, verslunarstjóri Ecco á Laugavegi

    Þorbjörg Ósk Úlfarsdóttir

    Í Gullkúnst Helgu á Laugavegi 13 hafa skartgripahönnuðir ávallt augun opin fyrir nýjungum og gæta þess að auka sífellt við fjölbreytta listsköpunina. Við hönnunina er íslenska hraunið mikið notað, ýmist með silfri, gulli eða perlum og steinum.Ein sérstaða Gullkúnstar Helgu eru óhefðbundin form demanta. Sérstaklega má nefna óslípaða og óflokkaða hrádemanta og óvenjulega skorna græna demanta.Gullsmiðirnir í Gullkúnst Helgu blanda óhræddir saman silfri, 14 karata gulli og hreinu 24 karata gulli og er útkoman oft listaverki líkast.

    Næla úr silfri og íslensku hrauni.

    Hálsmen úr silfri og íslensku hrauni.

    Hringar úr silfri, með gulli og hrádemöntum

  • Miðbæjarpósturinn 17

    Laugavegi 44 - Sími 561 4000opið 10:30-18:00 virka daga og 11-16 laugardaga

    www.diza.is

    sérverslun með prjónavörur,

    boli og fylgihluti.

    Nú þegar veðrið er að lagast aftur eftir frekar blautan og stundum kaldan vetur, fjölgar þeim sem fá sér göngutúr um miðborgina, sumir með barnavagna eða börn sér við hönd.Stundum er gönguferðin sannkölluð háskaför og má þakka fyrir að ekki heyrast daglega fréttir af slysum á börnum og/eða foreldrum þeirra í gönguferð niður á Tjörn. Og hvað veld-ur – það eru ökumenn sem þykja alveg sjálf-sagt að leggja ökutæki sínu á gangstéttir og ekki bara einu eða tveimur dekkjum, heldur öllum bílnum óháð stærð hans.Við það er ekki nokkur leið fyrir gangandi vegfarendur að komast framhjá nema að fara út á götuna.Hver er þá tilgangur með gangstéttinni. Í mínum huga er gangstétt stétt fyrir gangandi vegfarendur. Sumir ökumenn sjá annan til-gang með gangstéttum. Til Bílastæðasjóðs berast margar ábendingar og kvartanir, heldur

    Gangandi vegfarendur þvælast fyrir ökumönnum!

    fleiri kvartanir þó. Við gerum okkar besta að fara eftir ábendingum frá almenningi varð-andi hvernig við getum betur staðið okkur í að venja ökumenn af því að þykja það alveg sjálfsagt að leggja upp á gangstétt. Í gegnum vef Reykjavíkurborgar 1,2, og Reykjavík barst okkur svohljóðandi ábending frá foreldri. „Að ganga með barnavagn um miðborgina er stundum ekki hægt, bílum hefur verið lagt upp á allar gangstéttir og bara út um allt..Væri ekki lag að hækka sektirnar svo fólk hætti þessum ósið?” Með þessu erindi fylgdi dæmi sem viðkomandi lenti í. „Á Skólavörðustíg um

    daginn kom kona á risastórum jeppa og lagði upp á gangstéttina , rétt fyrir ofan 12 tóna. Ég komst ekki milli bílsins og hússins með barna-vagninn – hvað fólk getur verið sjálfhverft.”Erindið endaði á því að breyta þyrfti hugs-unarhætti fólks sem hagar sér svona. Tek ég heilshugar undir það, við þurfum að breyta þessu viðhorfi hjá ökumönnum. Það verður klárlega erfitt að breyta hugsunarhætti öku-manna en mikil áskorun á markmiðalistanum.Úr kvörtunardeildinni barst t.m.a. eftirfarandi.„Það eru einfaldlega of fá stæði við þessa götu og þegar ég er að koma heim í leiðindaveðri,

    oft með íþróttatösku og innkaupapoka og fleira og í leiðindaveðrum eins og hafa verið svo algeng í vetur þá finnst mér alveg fárán-legt af ykkur að ætlast til að maður leggi 2-300 metra frá íbúðinni sinni í stað þess að leggja við gangstéttina sem er meir en nógu breið til að fólk með barnavagna geti komist leiðar sinnar.” Síðar í sögunni kom svo. „Þið getið varla tekið öll atvik svona bókstaflega.Ég bara get ekki endalaust tekið þátt í svona skrípaleik.” Það er spurning hvort eigi að gráta eða hlægja af svona kvörtunum sem okkur berast. Á næstu vikum eiga ökumenn sem stunda það að leggja upp á gangstétt eða í stæði fatlaðra von á umslagi með stöðvunar-brotagjaldi undir bílrúðuna frá Bílastæðasjóði og myndum safnað í úrklippusafn okkar. Nú er átak í gangi gegn þessum brotum.Ég læt hér fylgja með eina stutta athugasemd í lokin. „Nú verð ég að viðurkenna að ég fatta ekki þetta grín hjá ykkur. Að mega ekki leggja í stæði fyrir hreyfihamlaða þegar löngu er búið að loka öllum búðum og þjónustu sem ein-hver þyrfti að nota. Vinsamlega þurrkið þetta út sem allra fyrst.” Svo mörg voru þau orð.

    Hver kannast ekki við Kaffi Roma á Rauðarárstígnum? Kaffi Roma er orðinn svo fastur punktur í kaffihúsamenningu miðbæjarins og eru þeir margir sem byrja daginn á því að koma við á Roma og fá sér kaffisopa og morgunbakkelsi og kíkja í blöðin. En Kaffi Roma opnar strax klukkan 7 á morgnana. Svo má ekki gleyma öllum þeim sem koma alltaf við í

    hádeginu og kíkja á hádegistilboðin sem eru í boði hverju sinni. Þetta er virkilega þægileg-ur staður sem hefur skapað sér fastan sess í miðbænum. Það er hún Ellen Augland sem er konan á bak við Kaffi Roma.„Ég er búin að vera með Kaffi Roma í heil sex ár og hefur margt breyst síðan ég byrjaði.Svæðið í kringum Hlemm hefur breyst mikið og líka fólkið. Við höfum verið að þróa þetta hjá okkur og erum með sérstök morgunverðatilboð sem og hádegisverðatilboð.Við gerum út á það að hér sé gott að fá sér kaffi og morgunverð snemma á morgnana, erum með nýbakað bakelsi, beyglur, rúnstykki, ciabattas og rosalega gott kaffi. Í hádeginu bjóðum við upp á sérstök tilboð eins og súpu, panini og kaffidrykk að eigin vali. Við erum með mikið úrval af sojavörum eins og mjólk og jógúrt. Erum líka komin með meira heilsusamlegt úrval af smurðu brauði með grænmeti og eggjum. Svo erum við líka með sérstakar heilsu-kúlur sem eru gerðar eingöngu úr döðlum, hnetum, kókos og kakó,“ segir Ellen.Viðskiptahópurinn er mjög blandaður. Mikið af fastakúnnum, bæði ungum sem öldnum og svo má sjá þar marga þekkta einstaklinga úr þjóðlífinu. „Fólk getur komið hingað til okkar til að fá sér góðan kaffibolla, lesa blöðin í ró og næði eða hittast og spjalla,“ segir Ellen.Á sumrin eru svo borð og stólar fyrir utan og geta menn tyllt sér þar í sólinni og átt nota-legar stundir með góðan kaffisopa og þær veitingar sem Kaffi Roma hefur upp á að bjóða.

    Kaffi Roma - fastur punktur í

    kaffihúsamenningu miðbæjarins

    Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri

    Bílastæðasjóðs.

    Studio29- nýr kaffibar sem lífgar upp á umhverfið

    Sigurður Friðriksson eða Diddi eins og flestir kalla hann, er mikill athafnamaður og lætur ekki sitt eftir liggja þó að hann sé farinn að gera út í landi. En hann hefur alla sína tíð gert út á sjó, verið þekkt aflakló, þangað til að hann söðlaði um fyrir tveimur árum og opnaði hótelið 4th floor á horni Snorra-brautar og Laugavegar. Ekki nóg með það að hótelið hefur stækkað jöfnum höndum síðan og umsvifin verið sífellt meiri, heldur hefur hann nú opnað kaffibarinn Studio 29 á tveimur hæðum í sama húsnæði.Þetta vakti forvitni okkar hjá Miðbæjarpóstinum og fór ég að kanna málin og hitti á Diddi á kaffi-barnum og spjallaði við hann og spurði hann út í hvað hafi komið til að hann hafi farið út í þessa miklu framkvæmd og opna þennan stóra og glæsilega kaffibar í miðbænum.„Það var þannig að árið 2006 þá opnuðum við, ég og kona mín Evelyn, þetta hótel hérna og fannst mér eftir 2 ár í þeim rekstri að það vantaði eitthvað, einhvern svona stað hérna. Stað sem byði upp á kaffi og veitingar í notalegu andrúmslofti á þessu svæði í miðbænum og þá ekki eingöngu fyrir hót-elgesti heldur líka fyrir gesti og gangandi. Þar sem ímyndin á þessu svæði út frá Hlemminum var frekar neikvæð, þá langaði mig til að hressa upp á þetta. Ég var búin að kaupa þó nokkuð af húsnæði hérna, auk þess sem að flottar lúxus íbúðir eru komnar hérna við hliðina. Er þetta svæði í mjög mikilli uppbyggingu og sókn. Svo þegar þetta húsnæði þar sem kaffibarinn er núna var til sölu, þá stökk ég á það og hóf framkvæmdir. Var hugsjónin eingöngu að breyta þessu húsnæði í svona flottan veit-ingastað og kaffibar. Það var kveikjan að þessu,“ segir Sigurður.Hvenær var kaffibarinn formlega opnaður?„Við opnuðum kaffibarinn síðasta dag febrúarmánaðar og höfum því haft opið hérna í rúma tvo mánuði. Hefur þetta bara farið vel af stað og með stígandi lukku. Höfum við haft mjög gaman af þessu og er það númer eitt, tvö og þrjú.Við leggjum mikið upp úr því að fólki líði vel hérna hjá okkur,það sé góður matur og veitingar, gott andrúmsloft og að fólk hafi bara gaman af því að sitja hérna og horfa út á bæjarlífið. Það er allt svo bjart hérna og mikið af stórum gluggum,“ segir Sigurður.Já, þetta er svo sannarlega staður sem lífgar upp á umhverfið og glæðir enn frekar menning-arlífið í miðbænum. En hvenær opnið þið á morgnana?„Við opnum strax klukkan átta á morgnana og bjóðum upp á morgunmat og kaffi, jafnt fyrir hót-elgesti sem og aðra. Klukkan tíu tökum við svo fram súpu og salatbar. Getur fólk komið hérna við hjá okkur og fengið sér súpu, salat, kaffi, kökur og fleira sem við erum með á boðstólunum allan daginn eða alveg til klukkan ellefu á kvöldin. Þetta er fjölbreyttur veitinga- og kaffibar fyrir alla þá sem eiga leið hér um. Það er mikið af fólki sem vinnur hérna í grendinni og á Laugaveginum sem kemur hérna til okkar, hvort sem er til að fá sér súpu eða eitthvað í svanginn, kaffisopa eða eitthvað annað. Auk þess mikla fjölda sem er í bæjarferð og vill geta staldrað aðeins við og slappað af í góðu andrúms-lofti. Við bindum miklar vonir við þennan stað, okkur finnst hann vera vel lukkaður og að þetta sé staður sem er kominn til með að vera,“ segir Sigurður hress að vanda og óskum við þeim til ham-ingju með staðinn.

  • Miðbæjarpósturinn18

    VALHÖLLHÁRGREIÐSLUSTOFA

    ÓÐINSGÖTU 2SÍMI 552 2138

    ����� � ����������� ��

    �� ������ ��� ��� ��� ���� ��!�"��#��� �����������

    �� ������� � ������ ������ ������������ �� ������� ��������� �� �� ������� � � ���� ����

    ���������� ����� �� ���� ����� ��

    ���� � !������� �� ���� ��

    ����� " #����� ��� �� ��� ������� ��

    �����$ %�� ��� ��� &���� �� ������� �'���������� ����� �� �(( " ���� ������� ��

    �$ ����� ��������� �� �� ���� ������ &���� �

    ��� &)������ �������������� ��� ���� " ������ �" �((��� �� ������

    ����� ������� ������ %��

    ������� ������� ���� ����� ��� ������ &����� � ����� "�� �� �� ����� (���� � ������ ������ ������

    * ����� ��� &��� �� ������ ������� %���� ���� ����� � �� ������������� �� �����

    �����)���

    ���� ���� ���

    �� ��

    �����

    $����� %������ � ��!����� � �# ��&

    Nostrumá Skólavörðustígnum

    Nostrum er ný verslun með íslenska hönnun.Nostrum hefur verið starfrækt frá því í

    nóvember á Dalvegi í Kópavogi en er nýflutt á Skólavörðustíg 1A. Þar er seldur kvenfatnaður

    s.s peysur, vesti, kjólar og pils sem eru hannaðar og saumaðar af Örnu Vignisdóttur,

    Huldu Hallgrímsdóttur og Sigrúnu Dóru Jónsdóttur (Diddú). Þær starfa allar saman

    undir einu merki Nostrum.Sigrún Dóra Jónsdóttir, Hulda Hallgrímsdóttir og Arna Vignigdóttir

    Að gera sér dagamun á Skólavörðustíg er góð hugmynd. Það fengum við svo sannarlega að reyna einn sólríkan dag á þessu vori. Kemur það skemmtilega á óvart að sjá alla þá fjölbreytni sem þar er að finna hvort sem er í list og menningu eða í marg-víslegri verslun og þjónustu. Þetta er án efa ein virkasta og skemmtilegasta gata miðbæjarins með alla sína sérstöðu. Þótt það séu einhverjar tímabundnar framkvæmdir efst á stígnum þá er allt annað í góðum gír og allt á fullu. Það verður gaman að sjá hvernig Skólavörðustígurinn lítur út þegar framkvæmd-unum verður lokið fljótlega í sumar og haldið verður upp á það með tilheyrandi fjöri. Ef einhver er í vafa um hvað hann eigi að gera í miðbænum þá skorum við á þann sama að kíkja á Skólavörðustíginn og sjá allt það sem hann hefur upp á að bjóða. Sjón er sögu ríkari. Á næstu fjórum síðum gefum við smá innsýn á þann margbreytileika sem á Skólavörðustígnum er að finna. Sjáumst á Skólavörðustígnum!

    Skólavörðustígurinn-perla í miðbænum

  • Miðbæjarpósturinn 19

    Það er allt á fullu í Ostabúðinni á Skólavörðustígnum sem er þekkt fyrir sína alkunnu veisluþjónustu. Við kíktum við hjá þeim og heyrðum í þeim hljóðið.„Það er allt gott af okkur að frétta, erum að vinna forréttaborðið sem hefur upp á ýmislegt að bjóða. Erum með gott úrval af gröfnu og reyktu kjöti sem við framleiðum sjálf. Eins bjóðum við upp á gott úrval af íslenskum og erlendum pylsum og hráskinkum. Í osta-borðinu erum við með mikið úrval af íslenskum og erlendum ostum. Meðal annars frá Frakklandi, Hollandi, Danmörku og Sviss. Útskriftartörnin fer að hefjast og við bjóðum upp á góða breidd í veisluþjónustu sem hentar vel í útskriftir, t.d. snittur, ostabakka og osta- og salamiveislu. Við minnum á heimasíðuna okkar ostabudin.is þar eru lýsingar og verð á veisluþjónustunni. Pantanir eru hafnar,“ segja þau hjá Ostabúðinni.

    OSTABÚÐIN

    Skólavörðustíg 8

    Úsölustaðir

    Kraum, íslensk hönnunAðalstræti 10, 101 R

    Gallery Kynnisferðir,Hilton hótel

    Gallery Kynnisferðir,Hótel Loftleiðir

    Gallery Kynnisferðir,Hótel Saga

    Epal,Flugstöð Leifs Eiríkssonar

    Kisan,Laugavegi 7, 101 R

    Landnámssetur,Borgarnesi

    Sirka,Skipagötu 5, 600 Akureyri

    Rósa Helgadóttir, HönnuðurSkólavörðustíg 10 gengið inn bílastæðismegin

    Opnunartímimánud.-föstud. 12-18laugardaga 12-16

    Rósa Helgadóttir

    Boutique BellaVerslunin Boutique Bella hefur verið starfandi á Skólavörðustíg í fjögur ár. Fyrst á Skólavörðustíg 5 en flutti í stærra húsnæði yfir götuna númer 8 í febrúar sl. Í dag er verslunin á tveimur hæðum og öll aðstaða mikið betri. Er mjög bjart yfir öllu í búðinni og miklu betri og aðgengilegri mátunaraðstaða. Eru þær í Boutique Bella með vandaðan kvenfatnað frá Uli-Schneider og Marc Cain í Þýskalandi,dönsku merkin Eva & Claudi og Style Butler og Paul & Joe Sisters frá Frakklandi. Pelsa frá Bonnie í Þýskalandi og Skinwille í Svíþjóð og einnig pelskápur. Svo er einnig hægt að fá hjá þeim frönsku skóna French Sole og mjög vandaða skartgripi og perlur eftir danska hönnuði. Svo má ekki gleyma ljósunum sem eru frá fyrirtæki í Ísrael sem heitir Aqua Creations en þau eru öll handgerð úr silki og eru algjör listaverk. Eru þau sérpöntuð fyrir hvern og einn og er afgreiðslutíminn um 10 vikur. Boutique Bella er glæsileg verslun sem sómar sig vel á Skólavörðustígnum.

  • Miðbæjarpósturinn20 Miðbæjarpósturinn20

    SPRON hefur ávallt verið eitt af kennimerkjum Skólavörðustígsins og hefur SPRON þjónustað fólki þar síðan árið 1968. Nú er SPRON að færa enn meira út kvíarnar með því að opna sérstaka þjónustudeild fyrir Pólverja búsetta á Íslandi. Það er Agata Maria Knasiak sem fer fyrir þessari nýjung hjá SPRON sem verður með aðsetur í Ármúla.

    Agata Maria Knasiak, pracownik obsługi klienta w SPRON:

    Udziela konsultacji finansowych w języku polskim.

    „Odkąd rozpoczęłam pracę w SPRON , mam bardzo dużo zajęć.Polacy mieszkający tu uważają, że todla nich duża wygoda móc konsultować swoje sprawy finansowe w ojczystym języku, a ja odczuwam to,że są bardzo zadowoleni z tego, że mogą porozmawiać z pracownikiem banku po polsku “ – mówi AgataMaria Knasiuk pracownik obsługi klienta w SPRON.SPRON prowadzi polską wersję stony internetowej, jak również pierwszy islandzki bank handlowyoraz konto internetowe w języku polskim.Niedawno zatrudniona została polska konsultantka obsługiklienta,Agata.Wszystko po to, by poprawić usługi banku w stosunku do polaków mieszkajacych na Islandi,a jest ich dziesięć tysięcy.Agata rozmawia wspaniale po islandzku, a na Islandi mieszka od czterech lat.Bardzo podoba jej siępraca, a urzęduje ona w oddziele SPRON przy ulicy Ármúla 13a.„Jestem bardzo zadowolona z pracy w SPRON i cieszy mnie fakt, ze mogę pomagać w znajdowaniurozwiązań tym, którzy się do mnie zgłaszają.Udzielam wszelkich porad i usług finansowych i otrzymujębardzo zróżnicowane zadania na moje biurko.“Adres polskiej strony internetowej SPRON: www.spron.is/pl

    Agata Maria Knasiak, starfar sem viðskiptastjóri hjá SPRON:

    Veitir fjármálaráðgjöf á pólsku

    „Ég hef haft heilmikið að gera frá því ég byrjaði hjá SPRON. Pólverjum sem búsettir eru hér finnst þægi-legra að ræða fjármál á sínu móðurmáli og ég hef fundið fyrir því að þeir eru mjög ánægðir að geta talaðvið bankastarfsmann á pólsku,” segir Agata Maria Knasiak, viðskiptastjóri hjá SPRON.SPRON rekur pólska útgáfu af heimasíðu sinni, fyrstur íslenskra viðskiptabanka og heimabankann máeinnig nálgast á pólsku. Fyrir stuttu var ráðinn pólskur viðskiptastjóri, Agata. Allt er þetta liður í því að bætaþjónustu bankans við Pólverja sem búsettir eru hér á landi en þeir eru um tíu þúsund.Agata talar prýðisgóða íslensku en hún hefur búið á Íslandi í fjögur ár.Henni líkar starfið vel en hún er með aðstöðu í útibúi SPRON, Ármúla 13a„Ég er mjög ánægð hjá SPRON og finnst gott að geta greitt götu þeirra sem til mín leita. Ég veiti allaalmenna ráðgjöf og þjónustu í fjármálum og viðskiptum og fæ mjög fjölbreytt verkefni inn á mitt borð.“Slóðin á pólska heimasíðu SPRON er www.spron.is/pl

    SPRON- veitir fjármálaráðgjöf á pólsku

    Agata Maria Knasiak viðskiptastjóri hjá SPRON

    Á Skólavörðustíg 5 hefur nýlega opnað lifandi og skemmtileg verslun fyrir börnin sem hefur hlotið það skemmtilega nafn – Lítil í upphafi. Eigandi verslunar-innar er Sigríður Björk Þormar sem stundar að öllu jöfnu doktorsnám í áfallasálfræði og vinnur að upp-byggingu sálræns stuðnings eftir hamfarir fyrir Rauða kross Íslands og Alþjóða Rauða Krossinn. Það var einmitt eftir að Tsunami reið yfir Asíu að Sigríður var í Indonesíu og hitti þar franska fatahönnuðinn Helen Seroin sem var að senda frá sér fatahönnunarlínu fyrir börn á aldrinum 0-12 ára. Helen býr á Bali og rekur þar lítið fjölskyldufyr-irtæki þar sem hönnun hennar tekur á sig mynd. Helen hannar fötin með tilvísun í barnaævintýri eða listina sem gerir fötin einstak-lega litrík og skemmtileg. Hönnun Helen hefur á síðustu 4 árum farið blysför um lönd eins Frakkland,Belgíu og Spán og hefur Ísland nú bæst í hópinn. Á ferðalögum

    sínum um heiminn hefur Sigríður rekist á verkefni sem stuðla að verndun eða stuðningi við börn sem minna mega sín eða eiga í erfiðleikum eftir ham-

    farir. Þetta var kveikjan að því að opna verslun með barnavörur á Íslandi. Sigríður selur

    meðal annars í versluninni leikföng sem fjármagna endurhæfingarstöð fyrir fötl-uð börn í Yogyakarta, Indónesiu. Stöðin býður upp á heildræna endurhæfingu,nám og starfsþjálfun og eru leikföng-in þeirra megin fjármögnunarleið.Leikföngin eru öll úr við og unnin með eiturefnafrírri málningu. Til að skoða vörurnar betur eða fræðast meira um versluna getur fólk farið á vef versl-unarinnar: www.litiliupphafi.is.

    Lítil í upphafi- lifandi og skemmtileg verslun fyrir börn

  • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is

    Ertu á ferðinni?

    Í Tösku- og hanskabúðinni má finna fjölbreytt úrvalaf ferðatöskum af öllum stærðum og gerðum. Þú finnurþví örugglega ferðatöskuna sem hentar þér og þínuferðalagi. Höfum einnig á boðstólum handtöskur,seðla- og kortaveski, skjalatöskur, dömuveski ogleðurhanska svo fátt eitt sé nefnt.

    Nú höfum við bætt um betur og sett verslun okkar á

    veraldarvefinn þar sem hægt er á aðgengilegan hátt að

    skoða úrvalið og gera góð kaup á slóðinni www.th.is

    Góðar ferðatöskur geta gert gæfumuninn!

    Gæðatöskur á góðu verði!

    Skólavörðustíg 20 –– Sími 561 5910 –– www.hnokkaroghnatur.is

    Skartgripir eftir Ófeig, Dýrfinnu, Hansínu o.fl.

    Fatnaður eftir Hildi Bolladóttur.Hlýlegt umhverfi fallegar vörur.

    Ófeigur gullsmiðja og listmunahúsSkólavörðustíg 5

    101 Reykjavík - Sími 551 1161

  • Miðbæjarpósturinn22

    Te & Kaffi hefur verið brautryðjandi í kaffiframleiðslu Íslandi allt frá stofnun fyrirtækisins. Te & Kaffi var stofnað árið 1984 og varð fyrsta íslenska fyrirtækið til að sérhæfa sig í sölu og framleiðslu á fersku sælkerakaffi ásamt fersku tei í lausavigt. Fyrirtækið hefur alla tíð lagt sinn metnað í að flytja inn og framleiða hágæða kaffi og verið í fararbroddi við að auka vitund Íslendinga um gæðakaffi.

    Hægt er að fara margar leiðir með það að sjónarmiði að láta gott af sér leiða um leið og verslað er kaffi á heimsmarkaði. Te & Kaffi hefur ávallt haft það að leiðarljósi hvort heldur fyrirtækið verslar beint frá bónda eða verslar kaffi frá bændum sem tengjast samtökum sem hjálpa þeim að auka gæði framleiðslu sinnar og gera betur við starfsmenn og umhverfi þeirra, sem þeir annars gætu ekki eða ættu erfiðara með sem einyrkjar.

    Fairtrade er ein af þeim leiðum sem hægt er að fara og er Te & Kaffi stolt af því að hafa lagt í þá vinnu að vera nú eini kaffifram-leiðandinn á Íslandi sem getur boðið Íslendingum upp á Fairtrade vottað kaffi.

    Kjör kaffibænda eru slæm

    Hundruð milljóna karla og kvenna í þróunarlöndum rækta kaffi-baunir. Því miður eru kjör þessa fólks oft slæm, vinnutíminn langur,laun lág,barnaþrælkun algeng,starfsumhverfi hættulegt og hvorki starfsöryggi né launatrygging.

    Við búum í heimi þar sem stórfyrirtæki nýta oft stöðu sína til að kaupa hráefni sem ódýrast frá framleiðendum – framleiðendum sem eiga oft engan annan kost en að selja á því verði sem fyrirtæk-in bjóða. Það verð getur jafnvel verið undir framleiðslukostnaði. Í slíkri samkeppni má sín lítils kaffibóndi í Kólumbíu, Kenýa eða Indónesíu, sem með uppskerunni sér fyrir fjölskyldu sinni.Aðgangur hans að markaðnum verður aðeins óbeinn og lifibrauð-ið stopul uppskera sem er háð síbreytilegu heimsmarkaðsverði. Ef

    uppskeran bregst eða markaðsverð lækkar þarf að lifa á sparifé og um leið að koma af stað næstu uppskeru. En fátækir bændur hafa ekkert sparifé. Ef illa árar, í veðri eða á mörkuðum, hrynur tilveran.

    Sanngjörn viðskipti

    Fairtrade stendur fyrir sanngjörn viðskipti. Með Fairtrade er unnið að sjálfbærri þróun fyrir fátæka framleiðendur í þróun-arlöndum.Sanngjörn viðskipti hjálpa bændum og framleiðendum í þróunarlöndum til að fá aðgang og afkastagetu til þess að vera í samkeppni á alþjóðlegum mörkuðum og gerir þeim kleift að sjá um sig og reka framleiðslufyrirtæki sín án þess að verða háðir erlendri hjálparstarfssemi. Með Fairtrade borgar neytandinn það verð sem það kostar að framleiða og senda vöru í verslun án þess að hann í leiðinni, óafvitandi, notfæri sér fátækt og vanmátt fram-leiðandans og haldi honum í viðjum fátæktar.

    Með Fairtrade merkingu á vörum er verið að senda skýr skilaboð þess efnis að varan sé framleidd á ásættanlegan hátt, þær mann-eskjur sem framleiða vöruna hafi viðunandi lífskjör.

    Fairtrade vottað kaffi í verslunum Te & Kaffi

    Nú hefur Te & Kaffi hafið framleiðslu á Fairtrade vottuðu kaffi sem nú er fáanlegt í öllum fjórum sérverslunum fyrirtækisins sem staðsettar eru á Laugavegi 27, Smáralind, Suðurveri og Kringlunni.Fairtrade vottað kaffi er fáanlegt í þremur tegundum; Espresso-blöndu, Colombia Brazil og lífrænu Mandheling. Með því að kaupa Fairtrade vottað kaffi taka viðskiptavinir þátt í að hjálpa fólki sem fær ómetanlegt tækifæri til að læra að byggja upp mikilvægt fyr-irtæki sem hlúir að samfélagi sínu og starfsmönnum og um leið gefur aukna möguleika á að bjóða aðeins hágæða framleiðslu.

    TE & KAFFI- hefur fengið leyfi til að framleiða og selja fairtrade kaffi

    Úr verslun Te & Kaffi á Laugaveginum þar sem hægt er fá Fairtradekaffi og ýmislegt annað góðgæti sem gott er að hafa með te og kaffi

  • Nýju svörtu gjaldmælarnir taka kreditkort og klink, en þeir gömlu gráu taka sem fyrr klink og P-kort.

    Svartir gjaldmælar sem taka kreditkort eru m.a. á Laugavegi, Austurstræti, Ránargötu og Bárugötu.

    Nú átt þú leik. Nýttu þér aukin þægindi og notaðu kreditkortið.

    Svartur á leikNú getur þú greitt með kreditkorti í nýja svarta gjaldmæla

    PIP

    AR

    •SÍA

    •80978

  • www.hanspetersen.is

    Stundum

    Stundumbara eitthvaðrugl.

    Verð frákr.4490

    » Laugavegur 178105 ReykjavíkSími 412 1840

    » Bankastræti 4101 ReykjavíkSími 412 1810

    » Kringlan103 ReykjavíkSími 412 1830

    » Smáralind201 KópavogurSími 412 1870

    » Fjörður220 HafnarfjörðurSími 412 1820

    midbpostur_mai2008_01.pdfmidbpostur_mai2008_02.pdfmidbpostur_mai2008_03.pdfmidbpostur_mai2008_04.pdfmidbpostur_mai2008_05.pdfmidbpostur_mai2008_06.pdfmidbpostur_mai2008_07.pdfmidbpostur_mai2008_08.pdfmidbpostur_mai2008_09.pdfmidbpostur_mai2008_10.pdfmidbpostur_mai2008_11.pdfmidbpostur_mai2008_12.pdfmidbpostur_mai2008_13.pdfmidbpostur_mai2008_14.pdfmidbpostur_mai2008_15.pdfmidbpostur_mai2008_16.pdfmidbpostur_mai2008_17.pdfmidbpostur_mai2008_18.pdfmidbpostur_mai2008_19.pdfmidbpostur_mai2008_20.pdfmidbpostur_mai2008_21.pdfmidbpostur_mai2008_22.pdfmidbpostur_mai2008_23.pdfmidbpostur_mai2008_24.pdf