20
MÓTAHANDBÓK 2010 Leiðbeiningar fyrir mótanefndir, dómara og forráðamenn klúbba

Mótahandbók 2010

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Leiðbeiningar fyrir mótsnefndir, dómara og forráðamenn klúbba.

Citation preview

Page 1: Mótahandbók 2010

MÓTAHANDBÓK 2010Leiðbeiningar fyrir mótanefndir, dómara og forráðamenn klúbba

Page 2: Mótahandbók 2010
Page 3: Mótahandbók 2010

Efnisyfirlit

Framkvæmd móta.........................................................................Umgjörð móts

Uppsetning vallarins....................................................................AlmenntTeigurinnHolustaðsetningarÆfingaflötin

Mótsnefnd.....................................................................................AlmenntSkráningRæsingLeikhraðiFrestun eða aflýsing vegna veðursVerðlaunaafhending

Annað............................................................................................KeppnisskilmálarStaðarreglurLeikmenn og kylfuberarDæmi um upplýsingar fyrir mótHola í höggiVallarmetÖryggi

Síða

5

7

9

15

Page 4: Mótahandbók 2010

Síða 4 - Mótahandbók GSÍ

Þetta er 1.0 útgáfa af mótahandbók GSÍ semætluð er fyrir mótsnefndir og dómara í öllum stærrimótum klúbbanna. Einnig er þessi handbókhjálpartæki mótshaldara við að skipuleggja oghalda mót sem eru á vegum GolfsambandsÍslands.

Golf byggist á réttsýni kylfingsins. Kylfingar eruábyrgir fyrir því að kunna golfreglurnar og beitaþeim rétt. Samt sem áður er golf flókinn leikur ogmót verður að skipuleggja vel. Handbók þessi ættiað vera leiðbeinandi og veita mótshöldurumráðleggingar við að undirbúa, halda mót og kláraþau.

Handbók þessi eru að miklu leyti unnin upp úrbókinni "Guidance on Running a Competition" fráR&A og "Vorgaben og Spielbestimmungen" fráþýska golfsambandinu. Einnig var stuðst viðgolfreglunar 2008 - 2011.

Á vef GSÍ er að finna upplýsingar um allt semviðkemur starfsemi GSÍ. Sérstaklega skal bent áupplýsingar um lög og reglugerðir á golf.is undir"Um GSÍ” og þar í útgefið efni. Einnig er hægt aðnálgast þar nöfn dómara.

Skrifstofa GSÍÍþróttamiðstöðin í Laugardal104 ReykjavíkSími: 514-4050Fax.: 514-4051Netfang: [email protected] Vefsíða: www.golf.is

Framkvæmdastjóri:Hörður ÞorsteinssonSími: 514-4052Farsími: 896-1227Fax 514-4051Netfang: [email protected]

Formaður mótanefndar GSÍ:Guðmundur Friðrik SigurðssonHeimasími: 555-1382Farsími: 696-0202Netfang: [email protected]

Inngangur

Page 5: Mótahandbók 2010

Mótahandbók GSÍ - Síða 5

Lög og reglugerðir GSÍÁ vef Golfsambandsins er að finna móta ogkeppendareglur GSÍ og allar reglur sem varðamót. Klúbbum er sérstaklega bent á kynna sérvel þær breytingar sem gerðar eru áreglugerðum á golfþingi annað hvert ár enreglugerðirnar eru meðfylgjandi aftast í þessuriti.

Leiðbeiningar frá GSÍÁ hverju ári sendir skrifstofa GSÍ tilkynningar ítölvupósti til klúbbanna sem nauðsynlegt er aðtaka mið af. Áframsending og dreifing til allrasem hlut eiga að máli er mikilvæg. Mikilvægt erað breytingar á netföngum séu tilkynntar tilskrifstofu GSÍ þannig að upplýsingar berist tilréttra aðila.

UpplýsingarKlúbbar eru minntir á að setja mótið rétt upp ítölvukerfi sambandsins áður en opnað er fyrirskráningu. Skipa í mótsstjórn, birta rástíma ágolf.is, hengja upp reglur um æfingahringi,keppnisskilmála og staðarreglur. Æskilegt er aðalmennt upplýsingastreymi sé á töflu í klúbbhúsiog á heimasíðu klúbbsins. Skilgreina þarfmóttökustað fyrir skorkort. Setja uppaðgerðaáætlun ef taka á skor úti á velli. Ákveðafjölda starfsmanna sem koma að mótinu. Kynnasér verðurspá fyrir mótsdaganna. Einnig bera aðskapa sem besta aðstöðu fyrir fréttamenn.

Uppsetning vallarMikilvægt er að setja völlinn upp eins og hannvar tekinn út í vallarmati þ.e.a.s. breytaheildarlengdinni sem minnst. Nánar er farið yfiruppsetningu á vellinum á blaðsíðu 9 í þessarihandbók.

AuglýsingarGolfsambandið kynnir samstarfsaðila sína íformi skilta, teigmerkja, fána og á annan háttsem sambandið ákveður.Þá er nauðsynlegt aðmerki GSÍ komi ávallt fram á öllu því efni semútgefið er í sambandi við mótið og þegar það ávið, merki samstarfsaðila GSÍ.

Samstarfsaðilar GSÍLögð er áhersla á að klúbbarnir sem taka að sérGSÍ mót haldi merki samstarfsaðila á lofti.Framlag þeirra er mikið, ekki síst þáttur þeirra íkynningu mótanna. GSÍ og samstarfsaðilarleggja mikla áherslu á að auka verðmætisamstarfsins. Ekki er gert ráð fyrir aðsamstarfsaðilar þeirra golfklúbba sem haldamótin fái sérstaka kynningu á mótum GSÍumfram þær hefðbundnu auglýsingar semviðkomandi samstarfsaðilar eru með á vellinum.GSÍ getur óskað eftir því að slíkar auglýsingarséu fjarlægðar eða byrgðar ef þær á einhvernhátt rýrra hlut samstarfsaðila GSÍ.

MótsstjórnMótsstjórn ætti að tilgreina einn aðila sem erábyrgur fyrir framkvæmd mótsins og umgjörðhans. Ábyrgðarmaðurinn stjórnar öllumaðgerðum og verður að vera til staðar. Þá verðurað vera auðvelt að ná í hann símleiðis fyrir ogeftir mót. Mikilvægt er að dómarar og vallarstjórigeti leitað til hans, sem og aðrir.

Dómarar og mótsstjórnDómari og mótsstjórn skulu vera komnir ástaðinn vel á undan keppendum. Dómari skalfullvissa sig um að völlurinn og allur aðbúnaðursé í lagi. Dómari þarf að hafa afnot af golfbíl og

Framkvæmd móta

Page 6: Mótahandbók 2010

hafa aðstöðu til að funda með mótsstjórn.Dómari þarf að vera aðgengilegur við ræsinguog fylgjast vel með leikhraða. Nánariupplýsingar um hlutverk golfdómara er að finnaí sérstakri handbók fyrir dómara og eins eruhlutverk og skyldur golfdómara skilgreind ísérstakri reglugerð.

Aðstaða fjölmiðlaStarfsmönnum fjölmiðla þarf að skapa sembesta vinnuaðstöðu. Setja verður upp þráðlaustnet í aðstöðu fjölmiðla. Einnig þurfa golfbílar aðvera til afnota fyrir ljósmyndara og sjónvarp.Mikilvægt er merkja bílanna þannig að ekki farimilli mála að þetta séu fréttamenn. Þá er viðhæfi að bjóða íþróttafréttamönnum uppáveitingar.

Eftir mótÁður en verðlaunaafhending fer fram á mótumsem sett eru upp á golf.is er nauðsynlegt aðgera mótið upp í tölvukerfi GSÍ. Í mótastjóra ágolf.is er hnappur sem heitir "CSA leiðrétting".Öll 18 holu mót ber að reikna CSA og vista.Þegar þetta er gert er náð í nýjustuforgjafarupplýsingar hjá keppendum og mótiðþví gert rétt upp. Aldrei skal veita verðlaun meðforgjöf fyrr en þetta hefur verið gert. Sama á viðum 9 holu mót, nema að ekki reiknast CSA áþau. Þau eru þá gerð upp til hækkunar oglækkunar. Hægt er að ná í starfsmennGolfsambandsins í farsíma utan skrifstofutímaef spurningar vakna.

Síða 6 - Mótahandbók GSÍ

Framkvæmd móta

Page 7: Mótahandbók 2010

Mótahandbók GSÍ - Síða 7

Það er mikilvægt að mótsstjórnin viti nákvæmlegahvernig þeir vilja láta kylfinga leika völlinn íákveðnu móti. Mótsstjórnin ætti að sjá til þess aðvöllurinn sé settur upp í samræmi við vallarmat ogþá raunlengd sem vallarmatið byggir á. Breyting álengd vallar um 20 metra hjá körlum og 16 metrahjá konum getur skekkt vallarmatið um c.a. 0.1.Völlur sem er vel uppsettur lætur kylfinginn þurfanota allar eða flest allar kylfur í pokanum. Íuppsetningu golfvallar fyrir mót eru nokkur atriðisem er mikilvægt að taka mið af. Í fyrsta lagi þeimhugmyndum sem golfvallahönnuðurinn notaðistvið þegar hann skóp völlinn og hvernig hann sáfyrir sér að völlurinn yrði leikinn. Hvernig gerð afvelli erum við með og hvaða hópur kylfinga er aðfara keppa á vellinum.

Það ætti að vera markmiðið hjá vallarstjóra ogmótsstjórn að hafa mjög svipaðar aðstæður fráfyrsta æfingadegi til síðasta dagsins í mótinu.Breytingar á uppsetningu vallar ættu ekki að eigasér stað milli æfingahrings og fyrsta dags í móti ogþá sérstaklega hvað flatir varðar.Mótsstjórnin ætti að útnefna einn úr mótsstjórninniog gera hann ábyrgan fyrir að uppsetning vallarinssé í lagi. Hlutverk hans er að fara yfir staðsetningará teigmerkjum, ákveða holustaðsetningar, sjá tilþess að glompur séu rakaðar, flatir, brautir ogteigar hafi verið slegnir. Hann þarf að fara yfir hvortvöllurinn sé rétt merktur eins og til dæmisvallarmörk, vatnstorfærur og fleira.

TeigurinnAlmennt ættu teigmerki að vera eins aftarlega ogreglur leyfa á æfingadögum þannig að kylfingargeti prufað hámarkslengd hverrar holu. Einnig værihægt að skipta holunum niður ef æfingadagarnireru fleiri en einn. Bilið á milli teigmerkja ætti aðvera 5-6 metrar og stefna á miðja braut eða ámiðja flöt á par þrjú holum. Það er líka ágætt regla

að merkja með úðabrúsa staðsetningu teigmerkjaef þeim skildi verða stolið eða færð einhverja hlutavegna.

HolustaðsetningarMörg atriði hafa áhrif þegar leitað er að góðumholustaðsetningum, en fyrst og fremst ættiholustaðsetningin að verðlauna gott högg.Eftirfarandi atriði ætti að hafa í huga þegarholustaðsetningar eru ákveðnar.

a) Taktu með í reikninginn hvernig golfvallar-hönnuðurinn sá fyrir sér að flötin yrði notuð. Sjáðufyrir þér hvernig kylfingar nálgast flötina þ.e.a.s.hvað langt högg þeir þurfa að slá og hvaðamöguleg áhrif veðrið mun hafa - vindur, regn oghvernig flötin heldur boltanum. Skoða þarfveðurspá vel fyrir mótsdagana og gera áætlun útfrá henni. Ef útlit er fyrir rigningu ætti ekki að takaholu þar sem líklegt er að vatn safnist saman áflötinni.

b) Það ætti að vera hæfilega langt á milliholustaðsetningar og fremsta hluta flatar þannigað hægt sé að nálgast holuna úr líklegri fjarðlægð.Til dæmis ef höggið inn á flöt er langt og krefstþess að kylfingar noti lág járn eða brautartré ættiholustaðsetningin að vera innarlega og fyrir miðju.Fyrir styttri högg er hægt að færa sig meira út tilhliðar eða fram og aftur á flötinni. Almennt ætti aðhafa það fyrir reglu að minnst fjórir metrar þurfi aðvera frá flatarkannti í holu. Ef glompa eðavatnstorfæra eru við flatarbrún þá ætti bilið að verameira en fjórir metrar.

c) Athuga þarf vel svæðið í kringum holuna. Ítæplega eins meters radíus í kringum holuna ættiflötina að vera eins slétt og hægt er. Ekki nálægtnýlega notuðum holustaðsetningum. Efholustaðsetningin er í halla ætti að slá flötina þvert

Uppsetning vallarins

Page 8: Mótahandbók 2010

á hallann, þannig að kylfingur sem þarf að púttaniður hallann eigi möguleika á að stoppa boltannvið holuna.

d) Það ætti að vera jafnvægi í því hvar holurnareru staðsettar, framarlega, aftarlega, fyrir miðjueða til vinstri og hægri.

e) Þegar mót eru marga daga ætti uppsetningvallarins að vera í jafnvægi alla dagana og veraeins og mótsstjórn lagði til. Ekki ætti að reyna geravöllinn erfiðan einhvern daginn, heldur haldahonum sanngjörnum og í jafnvægi. Ein leið til aðná jafnvægi á hverjum degi er að velja sex nokkuðerfiðar holustaðsetningar, velja aðrar sex semværu meðal erfiðar og svo sex léttarholustaðsetningar. Einnig ætti að vera jafnvægi áað nota hægri eða vinstri hlið flatarinar. Til dæmisgeta á fyrstu níu holunum verið fjórarholustaðsetningar hægra megin, fjórar vinstramegin og ein fyrir miðju. Seinni níuholustaðsetningar ættu að vera svipaðar fyrri níu.

f) Sjáðu fyrir þér gönguleiðir kylfinga á flötinni.Holustaðsetningar á fyrstu dögunum ættu ekki aðvera þannig að gönguleiðir kylfinga af flötinni liggiekki yfir holustaðsetningar sem verða seinna ímótinu.

Ef við tökum dæmi um fjögra daga mót þar semleiknar eru 72 holur þá gætum við útbúið áætlunum holustaðsetningar á eftirfarandi hátt. Veljumfjórar bestu holustaðsetningar á hverri flöt fyrir sigog tökum með í reikninginn hvaða hluti af flötinniætti að vera notaður á hverjum degi. Gefumþessum fjórum holustaðsetningum númer, númer1 ætti að vera erfiðasta staðsetningin, númer tvöætti að vera næst erfiðust og svo framvegis.Næsta skref er að velja hvaða holustaðsetning

verður notuð á hvaða degi. Miðað við þau númersem við gáfum hverri holustaðsetningu ættisamlagning á númerum (1-4) á öllum 18 holumvallarins að vera nálægt 45 til að jafnvægi sé áerfiðleika holustaðsetninga.

Æfingaflötin

Allar flatir ættu að hafa sama hraða á stimpmeter.Æfingaflötin verður að hafa sama hraða og sömueiginleika og aðrar flatir á vellinum. Eins þarf húnað vera slegin eins og jafn oft og aðrar flatir ávellinum.

Allar upplýsingar um viðhald og umhirðu golfvallafyrir vallarstjóra og vallarstarfsmenn er að finna ávefsíðu SÍGÍ, samtaka íslenskra golf- ogíþróttavallastarfsmanna. SÍGÍ eru samtök semstuðla að fagmennsku hjá félagsmönnum sínumog sér þeim fyrir sem bestum upplýsingum til aðauðvelda þeim starf sitt á golfvöllum á Íslandi.

Menntun og fagmennska er höfð í hávegi hjásamtökunum og áhersla er á miðlun upplýsingamilli félagsmanna.

Síða 8 - Mótahandbók GSÍ

Uppsetning vallarins

Samtökin kappkosta að halda úti vefsíðunni www.sigi.ismeð upplýsingum SÍGÍ og vistunar á aðsendu efni semnýtist félagsmönnum.

Page 9: Mótahandbók 2010

AlmenntÖll mót eiga að fylgja gildandi golfreglum.Nauðsynlegt er fyrir mótsnefndina að vera meðnýjasta eintak af bókinni "Decisions on the Rulesof Golf" til staðar ef upp koma atvik sem taka þarfá. En bók þessi útskýrir golfreglur og dæmi mjögvel og er mikilvægt verkfæri fyrir mótsnefndina tilað styðjast við. Mótsnefndin þarf að athuga hvortgolfklúbburinn eigi ekki eitt eintak af þessari bók.Leikmenn ætlast til þess að þeir fái einssanngjarna meðhöndlun og golfreglurnar segja tilum. Og það er einungis hægt ef stuðst ef viðgolfreglurnar á réttan hátt. Það er mjög auðvelt aðkoma óorði á mót sem er illa skipulagt.

SkráningÞað er ráðlegt fyrir mótsnefndina að upplýsaleikmenn vel hvernig skráningu er háttað í mótið.Þegar leikmenn skrá sig í mót á golf.is verða þeirað hafa aðgengi að upplýsingum umkeppnisfyrirkomulag, skilmála, verð og svoframvegis.

RæsingMótsnefndin ætti líka að tilnefna einn úr nefndini tilað vera viðstadda ræsingu á leikmönnum og getaþar með aðstoðað leikmenn ef upp kemurágreiningur um rástíma eða merkingar á bolta.Eitt að hlutverkum ræsis er að sjá til þess aðleikmenn byrji á þeim rástíma sem mótsnefndinvar búinn að raða upp, og í höggleik að út deilaskorkortum til leikmanna með dagsetningu ognafni leikmanns. En auðvitað eru fleiri atriði sem"ræsir" verður að framkvæma.Fimm mínútum áður en rástíminn hefst á ræsirinnað kalla upp þá leikmenn sem eiga næst að hefjaleik og biðja þá að koma á teiginn. Ef einhverleikmaður er ekki mættur á teig stuttu eftir aðnafnið hans var kallað upp þá hefur ræsirinn smátíma til að athuga hvar viðkomandi leikmaður sé.Þegar leikmenn mæta á teig eiga þeir að fáskorkortin afhent og einnig þær upplýsingar semætlast er til að þeir þekki. Þar má nefnakeppnisskilmála, staðarreglur. Ef dómari er ekkiviðstaddur ræsingu þá ætti ræsirinn að bendaleikmönnum á það að hámark fjórtán kylfur mega

vera í pokanum. Einnig kynna dómarann ogútskýra hvernig hægt er að ná í hann.

Þegar ráshópur á að hefja leik ætti ræsirinn aðkynna leikmenn. Eins og t.d. "Næstur á teig, JónJónsson frá Golfklúbbi Furðuvíkur"

Í höggleik ætti ræsirinn að bíða með að ræsa útnæst síðasta holið þangað til hann hefur séð tvo úrsíðasta holi mæta. Það kemur í veg fyrir það aðeinn leikmaður verði eftir í síðasta holinu sem yrðiþá að ræsa út með næst síðasta holli.Ræsir ætti að fá verklista í hendurnar frámótsnefnd til að fara eftir. Einnig er mikilvægt aðræsir sé snyrtilega klæddur og vel merktur þarsem hann er mjög sjáanlegur í mótinu og gefurleikmönnum og áhorfendum ákveðna ímynd afmótinu.Ef veðurspáin fyrir mótsdagana er ekki góð ætti aðsjá ræsi fyrir litlum skúr, tjaldi eða jafnvel bíl þarsem hann getur leitað skjóls í. Eftirfarandi hlutirverða að vera til staðar fyrir ræsi:

a) Borðb) Golfreglubækurc) Skrifblokkd) Skorkortin með nafni og dagsetningu og

eitt autt skorkorte) Keppnisskilmálarf) Staðarreglurg) Holustaðsetningarh) Önnur upplýsingablöð fyrir leikmenni) Aðgangur að lista yfir leyfilega bolta og

kylfurj) Klukka sem ræst er eftir (á að sýna sama

tíma og klukkur í klúbbhúsi, veitingasalk) Talstöðl) Varanlegur tússpenni til að leyfa

leikmönnum að merkja boltann.

Mótahandbók GSÍ - Síða 9

Mótsnefnd

Page 10: Mótahandbók 2010

Fyrir ræsa:

Halda fast við útgefna rástímaáætlun.

Kynna sjálfan sig og bjóða keppendur velkomna ámót GSÍ.

Spyrja keppendur hvort þeir hafi kylfurnar og látaþá fullvissa sig um að þær séu ekki fleiri en 14.

Afhenda staðarreglur, keppnisskilmála og fara yfirhelstu reglur. (leikhraði).

Láta vita hvar framverðir eru staddir og hvaðamerki þeir nota.

a. Rautt flagg: ekki óhætt að slá og ráðleggjavarabolta

b. Hvítt eða grænt flagg: óhætt að slá og boltiauðfinnanlegur eða á braut.

Biðja keppendur um að gefa upp tegund og númerá bolta sínum. Þeir verða að láta keppendur vita efskipt er um bolta.

Afhenda keppendum skorkortin og láta þá víxlaþeim strax.

Fara yfir rásröð og kynna þann leikmann sem á aðslá fyrstur. Þegar hann hefur lokið sínu höggikynna þann næsta og s.frv. Athugið látið hollið ekkibyrja fyrir útgefinn rástíma.

Óska keppendum góðs gengis.

Úthlutun og skil á skorkortiÍ höggleik er nefndin ábyrg fyrir því að úthlutahverjum keppanda skorkorti, með dagsetningu ognafni hans. Hún er einnig ábyrg fyrir samlagninguá skori og heimfærslu þeirrar forgjafar sem skráðer á skorkortið. Þess vegna er mikilvægt fyrirmótsnefnd að sjá til þess að sá aðili sem tekur viðskorkortum sé meðvitaður um ábyrgðina sem þvífylgir. Því ef skorkort týnist eða önnur mistökhenda þá getur það haft leiðindi í för með sér semgeta skemmt mótið.

Fyrir starfsfólk sem tekur við skorkortum:

Spyrja leikmanninn hvort hann hafi farið yfir skoriðá öllum holum.

Spyrja leikmanninn hvort hann hafi einhverjarspurningar varðandi golfreglurnar.

Athugaðu hvort leikmaður og skrifari hafi undirritaðskorkortið.

Bentu leikmanni á það að hann geti beðið áskrifstofunni meðan farið er yfir skorkortið.

Sláðu skorið strax inn á golf.is

LeikhraðiÞað er hagur allra og skylda hvers leikmans aðleika á eðlilegum hraða. Það getur eyðilagt daginnef leikmenn sem leika framarlega í rásröðinni leikaof hægt. Þar af leiðandi ætti mótstjórn að gera alltsem í hennar valdi stendur til að halda leikhraðauppi og samkvæmt tímarömmum.Regla 6-7 tekur á leikhraða. Þar er sett semskilyrði að "Leikmaðurinn verður að leika ánóhæfilegrar tafar og samkvæmt sérhverjum þeimviðmiðunarreglum um leikhraða sem nefndin kannað setja fram". Vít fyrir brot á reglu 6-7 er holutapí holukeppni og tvö högg í höggleik, og fyrir ítrekaðbrot, frávísun. Í athugasemdum 2 undir reglu 6-7segir:

Nefndin má, til þess að fyrirbyggja slór við leik,setja í keppnisskilmálum (regla 33-1) framviðmiðunarreglur um leikhraða, með hámarkstímaleyfðum til að ljúka fyrirskipaðri umferð, holu eðahöggi.

Nefndin má í höggleik aðeins, breyta í slíkumskilmála víti fyrir að brjóta reglu þannig:

Fyrsta brot - eitt höggAnnað brot - tvö höggÞriðja brot - frávísun

Síða 10 - Mótahandbók GSÍ

Mótsnefnd

Page 11: Mótahandbók 2010

Mótahandbók GSÍ - Síða 11

Það er hlutverk mótstjórnar að útbúa tímarammafyrir mótið til að gera sér grein fyrir mögulegumleikhraða.Sem dæmi þá er hægt að útbúa lista þar sem framkemur hversu langan tíma það tekur að spilahverja holu á vellinum. (Reynslan kennir okkur aðsumar holur spilast hægar en aðrar,holustaðsetning getur hér skipt máli auk annaraaðstæðna).Eins er hægt að skrá á skorkortin hvenær séæskilegt að leikmenn séu komnir á ákveðna holu.(til dæmis á þriggja holu fresti).Þegar þær aðstæður koma upp að ráshópur ferfram yfir þennan fyrirframgefna tíma og er kominnafturúr á vellinum, (sjá viðauka G, skýring á "out ofposition), fá allir leikmenn í ráshópnum víti.

Sem dæmi getur mótstjórn ákveðið að ráshópurmeð þremur leikmönnum eigi að vera hámark tvotíma með níu holur, en ef þeir fari fram yfir þaumörk, þá fái allir leikmenn ráshópsins víti. Séu þeirenn á eftir áætlun eftir 18 holur fái þeir aftur tvöhögg í víti.

Vandamálið við að framfylgja þessari reglu er aðsá sem leikur hægt í ráshópnum er ekkisérstaklega víttur, heldur gengur þetta yfir allanráshópinn. Þannig verða leikmenn sem leika hrattfyrir því að fá á sig víti án þess að hafa í nokkrubrotið regluna um leikhraða. Hinsvegar verður slíkregla til þess að þeir sem leika hratt hvetja þannsem leikur of hægt til að hraða á sér svo forðastmegi vítishöggin.Þegar mótstjórn ákveður hæfilegan tíma fyrirleikinn hring, er rétt að taka tillit til þess hverjir eruað leika. Unglingar leika hraðar en öldungar osfrv.Atvinnumenn hafa aukið svigrúm því þeir eru aðleika fyrir lifibrauði sínu.Töf á leikhraða er ekki alltaf sök leikmanna.Mótstjórnin getur með því t.d. að senda ráshópa útmeð of stuttu millibili valdið því að stíflur myndast.Það er mikilvægt að mótstjórnin hafi nógu langt bilmilli ráshópa svo ekki myndist óeðlilegar tafir. Þaðer ekki óalgengt að setja inn bil í rás með reglulegumillibili (rástími án ráshóps) til að létta á álaginu.

Leikhraðaskilmálar fyrir almennan leikÞað er skiljanlegt að mismunandi sjónarmið ríkimeðal golfklúbba, almenningsvalla, ferða-mannastaða og skipuleggjenda golfmóta um þaðhvað sé viðunandi leikhraði og hvað ekki. En þaðer staðreynd að slór við leik dregur úr ánægjunniaf leiknum fyrir marga kylfinga, og fáir kylfingar

heyrast kvarta yfir of hröðum leik.Á öllum stigum leiksins er það því skyldaleikmanna og stjórnenda að tryggja að golfið séleikið á góðum hraða og á þeim hraða sem hæfirfyrir völlinn sem leikinn er. Þættir sem geta haftáhrif á hvað teljist eðlilegur hraði geta verið hvevöllurinn sé erfiður, vegalengdir milli flata og teiga,veðurfarið og hversu leiknir kylfingarnir á vellinumalmennt eru.

Þar að auki er nauðsynlegt að gera nokkurngreinarmun á golfi sem leikið er semtómstundaiðkun , og golfi sem leikið er af hinumfærustu í íþróttinni þar sem taka þarf ákveðið tillittil þess að þeir sem leika hafa það að atvinnu.Í leik hinna færustu verða stjórnendur á vellinumsem geta fylgst með leikhraða og framfylgtströngum ákvæðum sem ná yfir leyfð tímamörkleikhópa fyrir leik hverrar holu og að sætatímamælingu fyrir stök högg, að viðlagðri hættu áviðurlögum séu þeir ekki innan tímamarka.Það er ekki raunhæft að taka upp slík ákvæði fyrir"eðlilegan" leik og því ættu ráðamenn að treysta ágóðar venjur og samvinnu við leikmenn til aðviðhalda eðlilegum leikhraða.

Hvað þetta varðar er það áríðandi fyrir ráðamennað setja markmið um leiktíma fyrir umferð. Svosem fram kemur hér að framan finnst engin algildregla um hæfilegan leiktíma umferðar en það eráríðandi að sett markmið séu raunhæf, án þess þóað slaka um of á kröfunum..

Sem viðmiðun, ætti tveggja bolta umferð yfirleittekki að taka meira en 3 stundir og 10 mínútur;þriggja bolta ætti ekki að taka meira en 3 stundirog 30 mínútur og fjögurra bolta ekki meira en 3stundir og 50 mínútur.Reyndar ætti styttri tími fyrir umferð að veramarkmið allra leikmanna, þar sem því verður viðkomið.

En svo sem fyrr var getið skal það einnigviðurkennt að atriði svo sem skipulag vallar oglofthiti geta gert lengri tímamörk nauðsynleg ográðamenn ættu að hafa það í huga.

Hafi slór við leik orðið vandamál hjá þínum klúbbi,golfvelli eða sumardvalarstað ætti að grípa tilákveðinna og afgerandi aðgerða til að leysavandamálið.

Leikhraðaskilmálar fyrir almennan leik

Page 12: Mótahandbók 2010

Síða 12 - Mótahandbók GSÍ

Hvað ráðamenn geta gert sem stuðlar aðlágmörkun leiktíma umferðar

Ofhlaðið ekki völlinn með of litlu bili á millirástíma. Fyrir tveggja bolta ráshópa ættu aðvera minnst 8 mínútur á milli rástíma og fyrir þrjáeða fjóra bolta ætti bilið að vera minnst 10 mín.

Sé það mögulegt ættu að vera aukabil á millirástíma á vellinum svo rýma megi fyrir vegnatafa sem komið hafa upp.

Hvetjið leikmenn til að velja teiga sér við hæfi ogbiðjið ræsinn að leiðbeina leikmönnunum hvaðþetta varðar áður en þeir hefja umferð.

Grasvöxt í óslægju fyrir almennan leik á vellinumætti að takmarka svo forðast megi fjölda týndrabolta.

Holustaðsetningar fyrir almennan leik ættuhvorki að vera of erfiðar né of mikil hraði áflötum.

Bendið leikmönnum á hver eðlilegur leiktími fyrirumferð á vellinum sé og minnið þá á ábyrgð sínahvað varðar leikhraða, þ.e. að fylgja eftirleikhópnum á undan og leyfa þeim leikhópumsem hraðar fara að fara framúr.

Hvað leikmenn geta gert til þess að lágmarkaleiktíma umferðar:

Fylgist með stöðu ykkar með tilliti til leikhópsinsá undan

Hafið ekki áhyggjur af leikhópnum á eftir; sústaðreynd að þið séuð ekki að tefja hann skiptirengu þar sem ábyrgð ykkar leikhóps er að fylgjaeftir leikhópnum á undan

Finnist þér að leikhópur þinn sé að dragast afturúr láttu þá hina leikmennina í hópnum vita.

Sé ykkar leikhópur að dragast aftur úr reynið þáað ná hinum sem fyrst.

Dragist þið heila holu aftur úr og tefjið leikhópinná eftir, eða að enginn leikhópur er á undan ykkurog þið tefjið hópinn á eftir, bjóðið þá hópnum áeftir að fara fram úr.

Bíddu ekki með að klæðast golfhanskanumþangað til það kemur að þér að leika.

Bíddu ekki þar til það kemur að þér að leika meðað reikna fjarlægðina og velja þér kylfu.Skoðaðu púttlínuna þína á meðan aðrir íleikhópnum skoða sína (innan marka eðlilegrasiðareglna). Við flötina skuluð þið skiljagolfpokana eftir þannig að það flýti för frá flötinniað næsta teig. Víkið af flötinni strax og allirleikmenn í leikhópnum hafa leikið í holu; færið áskorkortin á næsta teig eða á leiðinni þangað.

Leiktu varabolta ef boltinn þinn gæti verið týndurutan vatnstorfæru eða út af.

Fylgið þið vel eftir leikhópnum á undan erekki unnt að ásaka ykkur um slór við leik.

Eftirfarandi eru dæmi um leyfðan hámarkstímahjá golfklúbbi furðuvíkur.

Leikhraðaskilmálar fyrir almennan leik

HOLA 1 2 3 4 5 6 7 8 9 ÚT

PAR 4 4 4 5 3 5 4 3 4 36

HÁMARKSTÍMI LEYFÐUR

15 14 14 17 12 17 15 11 15

HÁMARKSTÍMI ALLS

0.15 0.29 0.43 1 1.12 1.29 1.44 1.55 2.1

HOLA 10 11 12 13 14 15 16 17 18 INN

PAR 4 4 4 4 3 4 5 3 4 35

HÁMARKSTÍMI LEYFÐUR

16 17 15 15 11 16 17 12 16

HÁMARKSTÍMI ALLS

2.26 2.43 2.58 3.13 3.24 3.4 3.57 4.09 4.25

HOLA 1 2 3 4 5 6 7 8 9 ÚT

PAR 4 4 4 5 3 5 4 3 4 36

HÁMARKSTÍMI LEYFÐUR

12 12 12 15 10 15 13 9 12

HÁMARKSTÍMI ALLS

0.12 0.24 0.36 0.51 1.01 1.16 1.29 1.38 1.5

HOLA 10 11 12 13 14 15 16 17 18 INN

PAR 4 4 4 4 3 4 5 3 4 35

HÁMARKSTÍMI LEYFÐUR

14 15 12 13 9 13 15 10 14

HÁMARKSTÍMI ALLS

2.04 2.19 2.31 2.44 2.53 3.06 3.21 3.31 3.45

Leikhraði - Leyfður hámarkstími fyrir 3 bolta

Leikhraði - Leyfður hámarkstími fyrir 2 bolta

Page 13: Mótahandbók 2010

Mótahandbók GSÍ - Síða 13

Frestun eða aflýsing vegna veðurs

Frestun eða aflýsing á móti vegna veðursMótanefnd verður að vera undir það búin að takastá við vont veður. Mikilvægt er að allir, leikmenn,aðstoðarfólk og mótstjórnendur þekki þau merkisem gefin eru til að fresta eða stöðva leik. Það erhlutverk mótanefndar að koma því skýrt á framfærihvaða merki eru gefin s,s, hljóðmerki eða ekið ummeð fána o.s.frv. Reglan er sú að leik er frestaðeða hætt, sé völlurinn óleikhæfur. Dæmi:

a) Boltinn helst ekki með eðlilegum hætti á flötunum vegna mikils vinds

b) Allt í kringum holuna er aðkomuvatn og ekki hægt að pútta nema yfir polla

c) Snjór eða ís liggur yfir meirihluta af vellinum

d) Vindur er svo sterkur að hann nefndin teluróleikhæft (matsatriði mótanefndar).

Venjulega er viðmiðið um boltann á flötinni látiðráða, en flatir eru oft það hátt skornar, að jafnvel ímjög sterkum vindi helst boltinn á flötinni. Teljimótanefnd að vindur sé svo sterkur að ekki séleikhæft ástand, getur hún frestað leik. Hér ermikilvægt fyrir nefndina að vera samkvæm sjálfumsér og láta ekki leik halda áfram og vonast til aðveður lægi. Sé það mat nefndarinnar að ekki séleikhæft þá stundina, skal hún fresta leik, óháð þvíhvar menn eru á vellinum eða hversu mikið/lítið ereftir af leikinni umferð.

Þegar miklar og sterkar skúrir koma, má meðauðveldum hætti gera völlinn leikhæfan á stuttumtíma. Lokist holur vegna polla, má fara með sköfurog handklæði og þurka upp svæðin í kringumholurnar svo leikur geti haldið áfram. Í þeimtilfellum er ekki nauðsynlegt að kalla alla leikmenninn, en gera má stutt hlé á leik meðan á þessustendur.

Sé rigningin stöðug og völlurinn mjög blautur fyrirþarf að bregðast strax við ef hola eða holur faraundir aðkomuvatn. Þegar leikinn er holukeppni mámótanefnd leggja það til að tekin sé önnur hola áflötinni svo hægt sé að halda leik áfram. Þettagildir ekki um höggleik eftir að umferð er hafin ogholan hefur þegar verið spiluð (nema holanskemmist, sjá reglu 33-2b). Þá verður að frestaleik. Leikur getur ekki hafist aftur fyrr enflötin/flatirnar eru orðnar leikhæfar aftur.

Það er góð vinnuregla að sjá til þess aðvallarstarfsmenn séu undir það búnir að takast ávið þessi vandamál í mótinu. Með því að sjá tilþess að þeir séu með sköfur tilbúnar, má á stuttumtíma koma óleikhæfum flötum í leikhæft ástand.

Það eru tvær meginreglur sem fylgja verður þegaraðkomuvatn liggur á flötum: ef boltinn liggur áflötinni og aðkomuvatn liggur á leið, má leikmaður

a) fá lausn samkvæmt reglu 25-1b, eðab) láta hreinsa vatnið úr línunni (skafa eða

þurka upp)

Athugið þegar línan er skafin á að framkvæma þaðþannig að það sé skafið þvert á línuna, ekkisamsíða eða með línunni og það á að skafa framfyrir holuna í eðlilega lengd.

Telji nefndin að það hjálpi til við að halda mótinugangandi, má hún leggja til að báðar lausnir séuteknar, þ.e. lína hreinsuð og boltinn færður (sjáreglu 25-1b (iii)). Einnig er rétt að geta þess aðnefndin getur beðið um hjálp leikmanns ogkylfusveins til að hreinsa aðkomuvatnið af flötinni.(sjá Dicision 33/1).

Komi upp sambærileg vandamál á teigum, mælumvið með því að notuð séu handklæði til að þurkaupp vatnið þar sem hæð grasins torveldar notkuná sköfum.Jafnvel þótt það sé hlutverk mótanefndarinnar aðhalda mótinu gangandi, þá má það aldrei vera ákostnað öryggis leikmanna. Eldingahætta er fátíðá Íslandi og því ekki mörg dæmi um að leik hafiverið frestað vegna eldingahættu. Komi sú staðaupp verður að tæma völlinn tafarlaust.

Hinar dæmigerðu íslensku aðstæður sem kalla áfrestun eða að umferð sé feld niður, er mikill vindur

Page 14: Mótahandbók 2010

Síða 14 - Mótahandbók GSÍ

og rigning. Kuldi getur líka haft áhrif á ákvörðunnefndarinnar.

Dæmi: Í lokamóti unglingamótaraðarinnar áKiðjabergi 2007 voru aðstæður þannig að ekki varhægt að spila golf með góðu móti. Vindur var mikillog það rigndi stöðugt. Hitinn var c.a. 2 gráður.Boltinn hefði haldist á flötinni vegna þess að þærvoru svo þungar af vatni, en samt var ekki þaðmikið vatn á flötunum að þurft hefði að skafa. Þaðvar því kalt mat nefndarinnar að ekki væri leikhæft.Fyrst var leik frestað og tilkynning þess efnishegnd upp í klúbbhúsinu og frétt sett inn á golf.is.Einnig var útséð að það næðist ekki að ræsaákveðna hópa út var hætt við umferðina þanndaginn. Það var tilkynnt á sama hátt. Daginn eftirlá snjór yfir vellinum og völlurinn því ekki leikhæfur.Mótið var því í heild sinni fellt niður.

Í reglu 6-8b er viðhengi þar sem segir:“nefndin getur sett inn í keppnisskilmála (33-1), aðef aðstæður eru metnar hættulegar, verður aðhætta leik strax og merkin eru gefin. Ef leikmaðurfer ekki eftir þessu og heldur áfram leik fær hannfrávísun eða víti samkvæmt reglu 33-7”.

Setji nefndin þetta ákvæði í skilmálana, tekur þaðyfir reglu 6-8B. Þessi ákvæði eru notuð í öllummótum R&A. (sjá í bresku útgáfu reglubókarinnarAppendix I, bls. 137)

Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir muninumá höggleik og holukeppni þegar hætta verður leikvegna veðurs eða hættuástands. Í holukeppnifellur umferðin ekki niður, það verður að halda leikáfram á 7. holu hafi leikurinn verið stöðvaður eftirþá 6. Staðan eins og hún var þegar leik var frestaðstendur.

Í höggleik hefur nefndin þann möguleika að fella

niður umferðina í heild sinni eða láta leik haldaáfram þar sem hann var stöðvaður. Meginreglaner sú að leikur skuli stöðvaður, boltinn merktur(eða látinn vera) þar sem hann liggur og leikmennfara með sín áhöld í klúbbhúsið. Þar bíða menneftir því að leikur hefst að nýju.

Það er engin regla til um það hvenær leik skulifrestað eða hætt, en nefndin þarf að meta þaðhvort það sé mjög ósanngjarnt að láta hætta, eðaekki.

Dæmi: Veður er slæmt en nefndin telur ástandleikhæft. Síðan versnar veðrið og nefndin telur aðþað sé óleikhæft. Það væri ósanngjarnt að fellaekki niður alla umferðina. (sjá dicision 33-2d/1).

Verði völlurinn óleikhæfur eða veður er mjögslæmt, ætti nefndin að halda eins mörgummöguleikum opnum til að geta klárað mótið.

Taka verður tillit til dagsbirtu, þ.e. hversu lengi erhægt að spila frameftir og hversu snemma er hægtað byrja ræsingu næsta dag. Stundum er hægtað láta hluta leikmanna klára snemma næsta daghafi umferð verið frestað. Þetta verður nefndin aðmeta í hvert skipti fyrir sig.Í sveitakeppnum er það ekki óalgengt að það séekki hægt að klára allar umferðir vegna veðurs.Mælum við með því að nefndin lesi Appendix 1, enþar er að finna hugmyndir um lausn á slíkumaðstæðum.

VerðlaunaafhendingEf mót er sett upp á golf.is skal ekki veita verðlaunmeð forgjöf fyrr en mótið hefur verið gert upp. Meðþví að gera mótið upp er gengið úr skugga með aðallar forgjafarupplýsingar keppenda séu réttarmiðað við þann dag sem hann skráði sig í mótið.

Frestun eða aflýsing vegna veðurs

Page 15: Mótahandbók 2010

Mótahandbók GSÍ - Síða 15

Keppnisskilmálar

Eftirfarandi er dæmi um keppnisskilmála, ásamtviðbótum og breytingum sem ættu að vera birtir áhverjum keppnisstað af mótsstjórn.

1. ÞátttökurétturKeppt skal samkvæmt Reglugerð ... og Móta- ogkeppendareglum GSÍ (Golfþing nóvember 2007).

2. Leyfilegar kylfurSérhvert teigtré (driver) sem leikmaður er meðverður að vera með kylfuhaus, skilgreindan semgerð og með fláa svo sem skráð er á gildandi listaR&A yfir löglega kylfuhausa.Undantekning: Teigtré (drivers) með kylfuhaussem var framleiddur fyrir 1999 eru undanþeginþessum skilmála.Aths: Uppfærður listi yfir gildandi kylfur er birturreglulega á vef R&A (www.randa.org)

3. Leyfilegir boltarBoltinn sem leikmaður notar verður að vera aftegund skráðri í gildandi skrá frá R&A yfir löglegagolfbolta.Aths: Listi yfir löglega bolta er birtur reglulega á vefR&A (www.randa.org)

4. Leik frestað vegna þess að hætta steðjar að Þegar nefndin frestar leik vegna hættuástands ogleikmenn í holukeppni eða riðli hafa lokið leik umholu, mega þeir ekki hefja leik aftur fyrr en nefndinhefur ákveðið svo. Séu þeir að leika að holu verðaþeir strax að hætta leik og hefja hann ekki aftur fyrren nefndin ákveður svo. Hætti leikmaður ekki leikstrax sætir hann frávísun nema aðstæður réttlætiniðurfellingu vítisins svo sem regla 33-7 leyfir.Merki er gefið um að hætta leik vegnahættuástands með löngum blæstri vélflautu".Hættið leik strax: Samfellt langt hljóðmerkivélflautu.Hættið leik: Þrjú hljóðmerki vélflautu, endurtekin.Hefjið leik aftur: Tvö stutt hljóðmerki vélflautu,endurtekin.

5. GolfkerrurHeimilt er að nota rafknúnar golfkerrur.

6. AksturLeikmenn mega ekki ferðast á eða í neinu afbrigðifarartækis á meðan fyrirskipuð umferð er leikinnema að nefndin leyfi.Holukeppni - holutap. Höggleikur - tvö högg. Gildirum hverja holu sem brotið á við. (Dec. 33-1/8)

7. Leikhraði (Athugasemd 2 við reglu 6-7)Hámarkstími til að ljúka umferð eru 4 klst. og 20mín. fyrir þriggja manna ráshóp. Haldi ráshópurekki í við næsta ráshóp á undan svo nemi einniauðri braut mun dómari aðvara leikmenn svo aðþeir nái að halda í við næsta ráshóp. Nái leikmennekki að bæta leikhraða sinn innan tveggja holaskal dómari mæla leikhraða. Eyði leikmaður meiraen 45 sekúndum frá því að hann telst tilbúinn aðslá bolta sinn og þar til hann greiðir högg skal hannsæta víti samkvæmt reglu 6-7. Víti fyrir brot áreglu 6-7:Holukeppni: Holutap.Höggleikur: Fyrsta brot eitt högg, annað brot tvöhögg, seinna brot frávísun.

8. KylfusveinarKylfusveinar keppenda skulu klæðast vestummerktum mótaröðinni óski mótstjórn þess ogkeppendi ber ábyrgð á að skila vestinu um leið ogskorkorti síðustu umferðar er skilað. Víti fyrir brotá skilmála: Frávísun

9. GolfsiðirMótsstjórn áskilur sér fyllsta rétt til að refsa fyrirbrot á siðareglum, svo sem fyrir truflun vegnahávaða eða notkunar síma og annarrarafeindatækja. Refsing verður þá samkvæmtlokagrein siðareglna og leikreglu 33-7.Keppandi skal koma heiðarlega og drengilegafram við keppinauta sína og eigi beita óleyfilegumbrögðum. Hann skal sýna dómurum ogstarfsmönnum mótsins tilhlýðilega virðingu og eigifara niðrandi orðum um þá eða áhorfendur.Brjóti keppandi eitthvað af framanskráðu, á hann áhættu að vera vikið úr keppni. (úr Móta- ogkeppendareglum GSÍ, 10. gr).

10. Skorkorti skilaðSkorkorti telst skilað, þegar leikmaður hefur afhentfulltrúa nefndarinnar skorkortið og yfirgefið svæðiðsem til þess er ætlað.

13. Hvernig jafntefli er leystUpplýisngar um hvernig jafntefli skuli leyst verðabirtar á mótsstað.

14. Birting úrslitaa) HolukeppniÚrslit holukeppni teljast gild og endanleg þegarúrslitin hafa verið skráð á skortöflu.b) HöggleikurÞegar sigurvegari hefur fengið afhent verðlaun.

Page 16: Mótahandbók 2010

Síða 16 - Mótahandbók GSÍ

Eftirfarandi er dæmi um staðarreglur, ásamtviðbótum og breytingum sem birtar verða áhverjum keppnisstað af mótsstjórn.

1. Vallarmörk (Regla 27-1) Bolti er útaf þegar hann hafnar;

1) handan girðingar, veggjar eða hvítra hælasem afmarka völlinn,2) handan hvítrar vallarmarkarlínu eða er allur áhenni,3) í eða handan skurðar, stígs, stéttar eðabyggingar, sem afmarkar völlinn,

Aths. Bolti er útaf þegar hann liggur allur á eðautan "línu" sem dregin er vallarmegin niðri viðjörðu við slútandi vegg eða stikur sem afmarkavöllinn.

2. Vatnstorfærur (að meðtöldum hliðar-vatnstorfærum) ( Regla 26)Vatnstorfærur eru merktar með gulum hælum eðagulum línum. Hliðarvatnstorfærur eru merktar meðrauðum hælum eða rauðum linum.Aths. Séu bæði stikur og línur notaðar til að merkjavatnstorfæru, auðkenna stikurnar torfæruna enlínurnar skilgreina mörk hennar. Þegar mörkvatnstorfæru eru skilgreind með línu á jörðinni erlínan sjálf innan hennar.

3. Grund í aðgerð ( Regla 25-1)a) Svæði merkt með bláum línum eða bláumhælumb) Bláir hælar með hvítum toppi, marka grund íaðgerð þaðan sem leikur er bannaður úr c) hvert það skemmt svæði sem nefndin eðatilnefndur fulltrúi hennar metur svo.

4. Samskeyti skorinna grasþakna "Samskeyti skorinna grasþakna á leið (en ekkiþökurnar sjálfar) teljast grund í aðgerð. En truflunvegna samskeytanna á stöðu leikmannsins telstekki sem slík truflun samkvæmt reglu 25-1. Liggiboltinn í eða snerti samskeytin, eða þau truflafyrirhugað sveiflusvið, fæst lausn samkvæmt reglu25-1. Öll samskeyti innan svæðis skorinnagrasþakna teljast hluti sömu samskeytanna.

5. Óhreyfanlegar hindranir ( Regla 24-2)a) Jarðfastir steinar á snöggslegnu svæði á leiðb) Ofanáliggjandi varanlegar vatnslagnirc) Vatnskranar og vökvunarbúnaður.d) Fjarlægðarmerkingare) Bekkir, ruslafötur og kúlu-þvottastandar.

6. Hluti vallarSértæk ákvæði verða birt á mótsstað fyrir keppni

7. Steinar í Glompum"Steinar í glompum eru hreyfanlegar hindranir.(regla 24-1 gildir)."

8. Kylfuför á flötum"Kylfuför á flötum hafa sömu stöðu og gamlirholutappar sem má lagfæra samkvæmt (reglu 16-1c)

9. Glompukantur Hlaðinn torfkantur glompu, þó graslaus sé, telstekki snöggslegið svæði (Regla 25-2)

10. Skammtíma óhreyfanlegar hindranirSýnishorn af staðarreglu í Golfreglubókinni ásamtviðbótum eða breytingum sem birtar verða ámótsstað munu gilda - sjá blaðsíðu 80-82

11. Skammtíma raflínur og kaplarSýnishorn af staðarreglu í Golfreglubókinni er ígildi - sjá blaðsíðu 82

12. FjarlægðarmælarEinungis má nota fjarlægðarmæla ef það erheimilað í staðarreglum á mótsstað. GSÍ mælirmeð því að fjarlægðarmælar séu leyfðir en það erá valdi mótsnefndar hvers móts að virkja þessaheimild.

Sýnishorn af staðarreglu:"Í þessari keppni" eða "Við allan leik á vellinum",

o.s.frv.) má leikmaður afla sér upplýsinga umfjarlægð með því að nota tæki sem mælir fjarlægðaðeins. Ef, á meðan fyrirskipuð umferð er leikin,leikmaður notar tæki sem er hannað til að mælaeða meta aðrar aðstæður sem gætu haft áhrif áleik hans (s.s. halla, vindhraða, hitastig, o.s.frv.) erleikmaðurinn brotlegur við reglu 14-3 en víti fyrirþað er frávísun, án tillits til hvort slíkviðbótarhlutverk tækisins voru hagnýtt í raun.

Staðarreglur

Page 17: Mótahandbók 2010

Mótahandbók GSÍ - Síða 17

Leikmenn og kylfuberar

Af gefnu tilefni er hér áréttuð ábyrgð leikmanns oghlutverk kylfubera.

Til Leikmanns

1. Regla 6-1. Leikmaðurinn og kylfuberi hans eruábyrgir fyrir að kunna reglurnar. Á meðanfyrirskipuð umferð er leikin hlýtur leikmaðurinnviðeigandi víti fyrir sérhvert reglubrot kylfuberasíns.

2. Vertu snyrtileg(ur) til fara.

3. Mættu tímanlega á teig.

4. Berðu virðingu fyrir meðspilurum og komduheiðarlega fram við aðra leikmenn. Hafðu hugfastað þú spilar fyrir klúbbinn þinn og átt að verahonum til sóma.

5. Leiktu án tafar og kallaðu til dómara ef vafaatriðikoma upp.

6. Yfirfarðu skorkort vandlega að leik loknum ogafhentu það mótsnefnd eins fljótt og unnt er.Leikmaður ber ábyrgð á eigin skori.

7. Þegar slegið er má leikmaður ekki:a. Þiggja áþreifanlega aðstoð eða skjól fyrirhöfuðskepnunum

b. Leyfa kylfubera sínum, samherja eða kylfuberahans að taka sér stöðu á eða nærri framlengdrileiklínu, púttlínu bak við boltann eða horfa ígegnum sveifluferil.

8. Í höggleik er meðkeppendum ætlað að gætahagsmuna annara keppenda í mótinu. Sem ritariber þér að fylgjast nákvæmlega með skori þesskeppanda sem þú ritar fyrir og ættir að skrá það

jafnóðum holu fyrir holu. Leikmenn skulu veitastarfsmönnum mótsins upplýsingar um skor þegareftir því er leitað.

Almennt víti fyrir brot á golfreglu eru 2 högg í víti.Alvarleg brot geta varðað frávísun.

Til Kylfubera

9. Kylfuberi má auk þess að bera/draga útbúnaðleikmanns, aðeins veita honum ráð samkvæmtGolfreglum. Önnur afskipti eru óheimil.Kylfuberi skal aldrei hafa orð fyrir keppanda ogskal halda öllum samskiptum við aðra keppenur íalgjöru lágmarki. Kylfuberi og leikmaður hans getaað sjálfsögðu ráðfært sig hvor við annan umeinstök atvik í leikhópnum á hófstilltan og lítiðáberandi hátt en það er ávalt kylfingur sem tjáir sigvið aðra keppendur. Höfum það hugfast aðgolfleikur krefst mikillar einbeitingar og að minnstaáreiti getur komið keppenda úr jafnvægi.Brot á framangreindu geta leitt til brottvikningarkylfubera eftir aðvörun dómara.

10. Kylfuberi keppenda skal klæðast vesti merktumótaröðinni óski mótstjórn þess. Keppandi berábyrgð á að skila vestinu um leið og skorkortisíðustu umferðar er skilað.

Víti fyrir brot á skilmála: Frávísun keppanda.

Að fagna glæsilegu höggi er góður siður.

Mótsstjórn

Page 18: Mótahandbók 2010

Síða 18 - Mótahandbók GSÍ

Dæmi um upplýsingar fyrir mótaröð unglinga

LeikfyrirkomulagHöggleikur í unglingaflokki í forgjafarkeppni, 36 holur skulu leiknar, 18 holur fyrri dag mótsins og 18 holur þannsíðari. Keppt skal samkvæmt gildandi Reglugerð um Stigamót unglinga og Móta- og keppendareglur GSÍ.

Laugardaginn, 22. ágúst 2009 1. Hringur Rástímar: 07:30 - 09:20, 12:00 – 13:50Sunnudaginn, 23. ágúst 2009 2. Hringur Rástímar: 07:30 - 09:20, 12:00 – 13:50

Rástímar og ráshóparRástímar verða birtir á golf.is á miðvikudeginum klukkan 12:00.

Ræst verður út í tveimur hópum af 1. og 10. teig með 10 mínútna millibili. Fyrri hópurinn frá klukkan 07:30 og sá seinni byrjar klukkan 12:00. Á fyrri keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en seinni daginn verður raðað út eftir skori.

ÞátttökurrétturHámark 144 keppendur geta tekið þátt í stigamóti unglinga sem skiptist niður í þrjá aldursflokka. Í hverjumaldursflokki verða hámark 48 keppendur þar af verða 36 strákar og 12 stelpur. Ef fjöldi skráðra keppenda fer yfir hámark í hverjum flokki ræður forgjöf því hverjir komast inn í hvern flokk fyrir sig. Þ.e.a.s 36 forgjafar lægstu strákarnir og 12 forgjafar lægstu stelpurnar í þeim flokki komast í mótið. Standi val á milli keppenda með jafnháa forgjöf skal hlutkesti ráða. Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhvern ákveðin flokk má einungis bæta við keppendumí sama aldursflokk.

Piltaflokkur 17 – 18 ára 36 keppendur Gulir teigar 3.000,- kr.Stúlknaflokkur 17 – 18 ára 12 keppendur Bláir teigar 3.000,- kr.Drengjaflokkur 15 – 16 ára 36 keppendur Gulir teigar 3.000,- kr.Telpnaflokkur 15 – 16 ára 12 keppendur Bláir teigar 3.000,- kr.Strákaflokkur 13 – 14 ára 36 keppendur Rauðir teigar 2.500,- kr.Stelpuflokkur 13 – 14 ára 12 keppendur Rauðir teigar 2.500,- kr.Samtals 144 keppendur

Ráshópur 1: Piltaflokkur, Stúlknaflokkur, Telpnaflokkur og Stelpuflokkur.Ráshópur 2: Drengjaflokkur og Strákaflokkur.

1. teigur, ráshópur 1 (07:30-09:20): Stúlknaflokkur 17–18 ára, Telpnaflokkur 15–16 ára, Stelpuflokkur 13–14 ára10. teigur, ráshópur 1 (07:30-09:20): Piltaflokkur 17–18 ára

1. teigur, ráshópur 2 (12:00-13.50): Strákaflokkur 13–14 ára10. teigur, ráshópur 2 (12:00-13.50): Drengjaflokkur 15–16 ára

Skráning og þátttökugjaldÞátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 20:00 á mánudeginum 17. ágúst 2009. Þátttökugjald er frá 2.500,- krónur í 13-14 ára aldurshópnum og 3.000,- krónur öðrum aldursflokkum. Þátttökugjald fæst einungis endurgreitt séu forföll boðuð eigi síðar en klukkan 18:00 á miðvikudeginum 19. ágúst 2009.

Æfingahringur Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráðakeppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma.

VerðlaunVeitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum aldursflokkumEf keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.

VerðlaunaafhendingÁætlað er að verðlaunaafhending hefjist á sunnudeginum fyrir piltaflokk 17-18 ára klukkan 13:30.Stúlknaflokk 17 – 18 ára, Telpnaflokk 15 – 16 ára og Stelpuflokk 13 – 14 ára klukkan 15:00.Fyrir drengjaflokk 15 – 16 ára klukkan 17:00 og strákaflokk 13 – 14 ára klukkan 18:30.

Dórmari/Aðstoðardómari: Hinrik Gunnar Hilmarsson og Þorsteinn Sv. Stefánsson

Mótsstjórn: Guðmundur Friðrik Sigurðsson, sími: 696-0202 , Garðar Eyland, Ómar Friðriksson , BjörnVíglundsson og Hinrik G. Hilmarsson.

Page 19: Mótahandbók 2010

Að fara holu í höggi er draumur allra kylfinga.Þeir sem slíka snilli hafa sýnt eru þar meðorðnir félagar í sérstökum Einherjaklúbbi oggeta skartað sérmerktri húfu og pokamerki ávellinum.

Þær reglur sem þarf að uppfylla til þess að fáholu í höggi viðurkennda eru eftirfarandi.

1. Kylfingur þarf að hafa leikið minnst 9 holur ogvera með minnst einn meðspilara (vitni).

2. Höggið verður að vera það fyrsta sem slegiðer af teig í átt að holu.

3. Völlurinn sem afrekið er unnið á verður aðhafa viðurkenningu frá GSÍ eða sambærilegumerlendum aðila. Ekki er viðurkennd "Hola íhöggi" af par 3 holu völlum eða áþekkumæfingavöllum. Völlurinn þarf að vera minnst4.000 metra langur og viðurkenndur af GSÍ.

4. Skorkort verður að fylla rétt út. Á það skaleinnig rita nafn, nafn vallar, dagsetningu,heimilisfang og kennitölu leikmannsins.

5. Tilkynna verður um afrekið til klúbbstjórnareða starfsmanns á þeim golfvelli þar sem þaðvar unnið. Senda ber eyðublað og ljósrit afskorkorti til skrifstofu Golfsambands Íslandsstrax eftir að afrekið var unnið. Ber leikmannisjálfum að tryggja að slíkt sé gert.

Sérstakt eyðublað sem ber að fylla út og sendatil skrifstofu GSÍ er hægt að hala niður af vefsíðuEinherjaklúbbsins.

6. Í lok hvers árs fá þeir sem fara "Holu í höggi"senda viðurkenningu fyrir afrekið fráEinherjaklúbbnum.

7. Sá sem fer "Holu í höggi" er með því aðsenda gögn in til GSÍ orðinn fullgildur meðlimurí Einherjaklúbbi Íslands.

VallarmetSkilgreining á vallameti er almennt séð bestaskor úr höggleik frá viðkomandi teig. Þannig aðhægt er að ná vallarmeti frá gulum, hvítum teigo.s.frv. Sé vellinum breytt mikið ætti að byrjareikna vallarmet upp á nýtt. Samt sem áður fallagömlu vallarmetin ekki úr gildi en þau voru bestiárangurinn á þeim tíma og velli. Vallarmet ættiekki að teljast gilt hafi verið leyfð "bætt lega" ístaðarreglum.

ÖryggiKylfingar og áhorfendur, eiga mikið undir því aðá golfvöllum sé fyllsta öryggis gætt. Fleirihundruð barna, unglinga og fullorðinna nýta séraðstöðu í klúbbhúsi. Úti á golfvellinum leynastlíka hættur og eiga þar oft bæði minni og stærrióhöpp sér stað. Gera þarf sérstaka úttekt áöryggismálum golfvallarins með það aðmarkmiði að koma í veg fyrir slys. Mikilvægt erað hafa neyðar- og viðbragðsáætlun.

Mótahandbók GSÍ - Síða 19

Hvað skal gera ef kylfingur fer holu í höggi

Page 20: Mótahandbók 2010

Golfsamband ÍslandsStofnað 1942

Engjavegi 6104 Reykjavík

Sími: 514-4050Fax: 514-4051

[email protected]