41
Kennari Eggert J Levy 1 Orkan Almenn náttúruvísindi Rafmagn og segulmagn Kaflahlutar 3-1 Rafhleðsla 3-2 Stöðurafmagn 3-3 Streymi rafmagns 3-4 Straumrásir 3-5 Segulmagn úr rafmagni 3-6 Rafmagn úr segulmagni

Orkan Almenn náttúruvísindi

  • Upload
    masako

  • View
    110

  • Download
    9

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Orkan Almenn náttúruvísindi. Rafmagn og segulmagn Kaflahlutar 3-1Rafhleðsla 3-2Stöðurafmagn 3-3Streymi rafmagns 3-4Straumrásir 3-5Segulmagn úr rafmagni 3-6Rafmagn úr segulmagni. Rafmagn og segulmagn 3-1 Rafhleðsla. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 1

Orkan Almenn náttúruvísindi

Rafmagn og segulmagnKaflahlutar

3-1 Rafhleðsla

3-2 Stöðurafmagn

3-3 Streymi rafmagns

3-4 Straumrásir

3-5 Segulmagn úr rafmagni

3-6 Rafmagn úr segulmagni

Page 2: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 2

Rafmagn og segulmagn

3-1 Rafhleðsla

• FrumeindFrumeind er minnsta eind frumefnis sem býr yfir öllum eiginleikum viðkomandi frumefnis.

Page 3: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 3

Rafmagn og segulmagn

3-1 Rafhleðsla

• Aðdráttarkraftur er kraftur sem dregur hluti hvern að öðrum.

• Fráhrindikraftur er kraftur sem verkar milli hluta og hrindir þeim frá hverjum öðrum.

Page 4: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 4

Rafmagn og segulmagn

3-1 Rafhleðsla

• Fjöldi rafeinda í frumeind er jafn fjölda róteinda í sömu frumeind.

Við núning hluta skiljast rafhleðslur að. Annar hluturinn missir rafeindir, en hinn tekur þær til sín.

Sá hlutur sem fær rafeindir verður neikvætt hlaðinn, en sá sem missir þær verður jákvætt hlaðinn.

Page 5: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 5

Rafmagn og segulmagn

3-1 Rafhleðsla

• Það eru aðeins rafeindirnar sem hreyfast, ekki róteindirnar.

• Hlutur sem er óhlaðinn verður hlaðinn ef hann missir eða tekur við rafeindum.

Page 6: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 6

Rafmagn og segulmagn

3-1 Rafhleðsla• Rafsvið er svæðið

umhverfis rafhleðsluna.

Rafsvið hlaðinnar eindar verkar með krafti á aðrar hlaðnar eindir, það er sterkast næst hlöðnu eindinni en verður veikara sem fjær dregur.

Page 7: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 7

Rafmagn og segulmagn

3-2 Stöðurafmagn

• Segja má að raforka sé orka sem byggist á rafeindum sem hafa færst úr stað.

• Stöðurafmagn myndast þegar rafhleðslur safnast fyrir í hlut og halda þar kyrru fyrir.

Spennugjafi Van de Graaffs

Page 8: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 8

Rafmagn og segulmagn

3-2 Stöðurafmagn• Spennugjafi Van de Graafs myndar

stöðurafmagn við núning.

• Rafeindir úr málmgreiðu eru fluttar með gúmmíbelti upp í efsta hluta spennugjafans.

• Gríðarleg neikvæð hleðsla myndast á ytra borði kúlunnar.

Page 9: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 9

Rafmagn og segulmagn

3-2 StöðurafmagnStöðurafmagnSamkynja hleðslur safnast fyrir í hárinu þegar höndin er lögð á spennugjafann.

Samkynja hleðslur hrinda hvor annari frá sér og hárið stendur út í loftið.

Page 10: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 10

Rafmagn og segulmagn

3-2 Stöðurafmagn

• Leiðari er efni sem flytja rafhleðslur greiðlega.

• Einangrari er efni sem hleypir rafeindum treglega gegnum sig.

Page 11: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 11

Rafmagn og segulmagn

3-2 Stöðurafmagn

• Rafhrif er endurröðun rafhleðsla í óhlöðnum hlut sem verður þegar annar rafhlaðinn hlutur nálgast hann.

Page 12: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 12

Rafmagn og segulmagn

3-2 Stöðurafmagn

• Rafsjá er tæki sem greinir rafhleðslu.

Rafsjáin er hlaðin þegar málmþynnurnar sperrast í sundur

Önnur gerð af rafsjá

Page 13: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 13

Rafmagn og segulmagn

3-2 Stöðurafmagn

Skoðum rafsjár örlítið nánar

Page 14: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 14

Rafmagn og segulmagn

3-2 Stöðurafmagn

• Eldingar stafa af afhleðslu stöðurafmagns, rafhleðsla flytst frá einum hlut yfir í annan.

• Gífurleg raforka losnar úr læðingi í eldingum. Eldingavari er jarðtengd járnstöng sem komið er fyrir á húsþökum.

Page 15: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 15

Rafmagn og segulmagn

3-3 Streymi rafmagns• Spenna er mælikvarði á þá orku, sem

myndast þegar rafhleðslur fara milli tveggja staða. Mælieining spennu er volt, táknuð [V]

• Rafstraumur er streymi rafhleðsla (rafeinda) eftir vír.

Mælieining rafstraums (I), mældur í amper, táknað [A].

• Amper er mælikvarði á fjölda rafeinda sem fara framhjá tilteknum punkti á sekúndu.

Page 16: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 16

Rafmagn og segulmagn

3-3 Streymi rafmagns

• Viðnám er mótstaða efnis gegn streymi rafstraums í leiðara.Mælieining viðnáms (R) er óm (ohm) táknað [].

• Lögmál Ohms: I = V / R I = rafstraumur í amperum

V = spenna í voltum R = viðnámið í ómum

Page 17: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 17

Rafmagn og segulmagn

3-3 Streymi rafmagns

Verkefni bls 63

I (amper) V (volt) R (óm)

12 75

15 240

5,5 20

6 25

5 110

Page 18: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 18

Rafmagn og segulmagn

3-3 Streymi rafmagns

• Rafhlaða er hylki þar sem efnaorka breytist í raforku.

• Raforka er orka sem fólgin er í rafhleðslum sem hreyfast úr stað.

Page 19: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 19

Rafmagn og segulmagn

3-3 Streymi rafmagns

• Berum saman jafnstraum og riðstraum:

Jafnstraumur er rafstraumur sem einkennist af því að rafeindir hreyfast ávallt í sömu átt.

DC Straumstefna

Page 20: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 20

Rafmagn og segulmagn

3-3 Streymi rafmagns

Riðstraumur er rafstraumur sem einkennist af því að rafeindirnar breyta stefnu sinni á reglubundinn hátt.

AC Riðstraumur

Page 21: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 21

Rafmagn og segulmagn

3-3 Streymi rafmagns

Rafafl er mælikvarði á það hversu mikil orka er notuð á tímaeiningu.

Mælieining rafafls er vatt táknað [W].

• Jafnan til að reikna afl rafmagns:

Afl = spenna • straumur

eða ef notaðar eru mælieiningar

vött = volt • amper

Page 22: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 22

Rafmagn og segulmagn

3-3 Streymi rafmagns

Dæmi:

1. Hversu mikinn straum tekur straujárn sem á stendur 230 volt og 1000 vött?

2. Hversu mikið afl notar ljósapera sem á stendur 0,45 amper og 230 volt?

3. Hvaða spennu þarf þurrkari sem á stendur 920 vött og 4 amper?

Page 23: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 23

Rafmagn og segulmagn

3-4 Straumrásir• Straumrás er

hringleið sem rafstraumur getur farið um, straumrásin verður að vera lokuð.

• Ef straumrásin er opin, þá kemst straumur ekki í gegn. Lokuð hliðtengd straumrás

Lokuð raðtengd straumrás

Page 24: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 24

Rafmagn og segulmagn

3-4 Straumrásir• Samanburður á rað-

og hliðtengdum straumrásum:

Raðtengd straumrás þegar rafstraumurinn hefur aðeins eina leið til að fara eftir.

Page 25: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 25

Rafmagn og segulmagn

3-4 Straumrásir

• Hliðtengd straumrás þegar rafstraumurinn hefur nokkrar mismunandi leiðir að velja.

• Straumstefnan er frá mínusskautinu.

Page 26: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 26

Straum- og spennumælar

• Straummælir Þegar þú mælir straum verður alltaf að tengja straummælinn inn í straumrásina.

• Spennumælir Þegar þú mælir spennu verður alltaf að tengja spennumælinn yfir viðnámin eða póla straumgjafans, allt eftir því hvaða spennu er verið að mæla.

Page 27: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 27

Dæmi um rafrás

Spennan mæld

Page 28: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 28

Rafmagn og segulmagn

3-4 Straumrásir• Var (öryggi) er búnaður sem rýfur

straumrás ef álagið verður of mikið.

• Tvær gerðir; sjálfvar og bræðivar

Bræðivar er með silfurþráð sem bráðnar ef of mikill straumur fer í gegnum það. Þessa gerð er að mestu hætt að nota

Page 29: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 29

Rafmagn og segulmagn

3-4 StraumrásirSjálfvar er öryggisrofi sem rýfur straum við of mikið álag eða við útleiðslu.

Í daglegu tali er þessi búnaður kallaður lekaliði.

Page 30: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 30

Rafmagn og segulmagn

3-5 Segulmagn• Segulmagn orsakast af aðdráttar- og

fráhrindikröftum, vegna hreyfingu rafeinda í efninu.

• Segulkraftar lýsa sér eins og rafkraftar.

Þeir eru sterkastir næst endum segulsins, en endarnir kallast segulskaut; norðurskaut og suðurskaut.

• Samstæð skaut hrinda hvort öðru frá sér, en ósamstæð skaut dragast að hvort öðru.

Page 31: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 31

Segulsviðslínur eru þéttastar við skautin

Page 32: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 32

Rafmagn og segulmagn

3-5 Segulmagn

• Segulsvið er sviðið umhverfis segulinn þar sem áhrifa segulkrafta gætir. Sterkast er segulsviðið næst seglinum en verður veikara er fjær dregur.

Stefna segulkrafta umhverfis stangarsegul

Page 33: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 33

Rafmagn og segulmagn

3-6 Segulmagn úr rafmagni

• Segulmagn er nátengt rafmagni, byggjast bæði á hreyfingu rafeinda.

• Þegar rafstraumur flyst eftir vír myndast segulsvið umhverfis vírinn, en nota má rafstraum til að búa til segulsvið.

Page 34: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 34

Rafmagn og segulmagn

3-6 Segulmagn úr rafmagniEinfaldan rafsegul má búa til með því að vefja koparvír þétt um járnnagla og tengja vírinn við rafstraum.

Page 35: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 35

Rafmagn og segulmagn

3-6 Segulmagn úr rafmagni

• Styrkleiki segulsins vex með auknum fjölda vafninga. Með því að vefja rafleiðara umhverfis mjúkt járn má búa til enn öflugri segul.

• Rafsegulfræði fjallar um tengsl rafmagns og segulmagns.

• Rafsegulmagn skiptir okkur miklu máli í daglegu lífi. Rafseglar eru m.a. í símum,

Page 36: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 36

Rafmagn og segulmagn

3-6 Segulmagn úr rafmagni

þvottavélum, dyrabjöllum, rafhreyflum og brunavarnar- hurðum og mörgum fleiri tækjum.

• Rafhreyfill (rafmótor) er tæki sem breytir raforku í vélræna hreyfiorku.

• Rafhreyfill er gerður úr rafsegli sem snýst á öxli inn í segulsviði frá einum eða fleiri föstum seglum; síseglar eða rafseglar.

Page 37: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 37

Rafmagn og segulmagn

3-7 Rafmagn úr segulmagni

• Þegar leiðari (vír) hreyfist í segulsviði flæða rafeindir um vírinn og mynda rafstraum.

• Stefna rafstraumsins fer eftir því hvernig leiðarinn hreyfist í segulsviðinu.

• Ef leiðarinn hreyfist fram og til baka flæða rafeindirnar fyrst í aðra áttina og síðan í hina, þá myndast riðstraumur.

Page 38: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 38

Rafmagn og segulmagn

3-7 Rafmagn úr segulmagni

• Flæði rafeindanna verður þeim mun meira og rafstraumurinn sterkari eftir því sem segulsviðið verður sterkara sem leiðarinn hreyfist í.

• Það er afar óhentugt að hreyfa leiðarann í sífellu upp og niður í segulsviði. Leiðarinn er því látinn mynda lykkju og látinn síðan snúast í segulsviðinu.

Page 39: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 39

Rafmagn og segulmagn

3-7 Rafmagn úr segulmagni

• Rafall er tæki sem breytir vélrænni hreyfiorku í raforku á hagkvæman hátt, (framleiðir raforku).

• Orkubreytingin sem verður í vatnsfallsvirkjun

Stöðuorka => vélræn hreyfiorka => raforka.

Page 40: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 40

Rafmagn og segulmagn

3-7 Rafmagn úr segulmagni

Flutningur rafmagns til neytenda

Til fróðleiks

Page 41: Orkan Almenn náttúruvísindi

Kennari Eggert J Levy 41

Rafmagn og segulmagn

3-7 Rafmagn úr segulmagni

Spennubreytir fyrir riðstraum

Til fróðleiks