Upload
camdyn
View
295
Download
9
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Sögueyjan – 1. hefti. Kafli 2 Ísland byggist fólki , bls.13-25. Ísland byggist fólki. Af hverju byggðist Ísland seinna en önnur lönd? Ísland tengist mikið sögu annarra landa Siglingar víkinga skipta þar mestu máli. Landnám Íslands - 1. - PowerPoint PPT Presentation
Citation preview
Sögueyjan – 1. hefti
Kafli 2Ísland byggist fólki, bls.13-25
Ísland byggist fólki
Af hverju byggðist Ísland seinna en önnur lönd?
Ísland tengist mikið sögu annarra landa
Siglingar víkinga skipta þar mestu máli
Landnám Íslands - 1Fornar heimildir segja
Ingólf Arnarson og konu hans, Hallveigu Fróðadóttur, fyrstu landnámsmenn Íslands
Talið er að þau hafi sest að á Íslandi um 870
Landnámabók segir frá hvernig vildi til að þau völdu sér búsetu í Reykjavík
Landnám Íslands - 2 Landnám hefst á
víkingaöld sem er talin hefjast 793 og lýkur 1050
Landnámsöld er innan víkingaaldar, frá 870 til 930
Ísland var numið á víkingaöld þegar norrænir menn sigldu um Evrópu
Til eru frásagnir af mönnum sem komu á undan Ingólfi og Hallveigu
Landnám Íslands - 3Elsta frásögnin sem gæti átt við Ísland er frá
4.öld fyrir Krist þegar Pýþeas sigldi frá Miðjarðarhafi til þess að kanna hversu langt heimurinn næði í norður!
Hann nefndi eyjuna sem hann kom að Thule og það nafn var oft notað yfir Ísland í landfræðiritum á fyrri öldum
Landnám Íslands - 4
• Nokkuð víst er að írskir munkar, sem kölluðustu papar, komu hingað um 100 árum fyrir landnám
• Paparnir vildu vera í einrúmi. Þess vegnaforðuðu þeir sér þegar norrænir menn hófu hér landnám
Landnám Íslands - 5Þekking manna á
heiminum var ekki mikil í þá daga
Fyrstu landnámsmennirnir höfðu engin kort og því var afrek þeirra mikið er þeir náðu landi á nýjum slóðum
VíkingaöldNorrænir menn tóku að
sigla víða um lönd og höfðu þær ferðir mikil áhrif á sögu Evrópu
Norrænu víkingarnir hjuggu strandhögg, rændu og myrtu, stunduðu verslun og námu lönd
Upphaf víkingatímans miðast við árás víkinga á klaustrið Lindisfarne á Englandi árið 793
Víkingaöld lýkur síðan 1050 en þá hafði dregið mikið úr ferðum norrænna manna
Víkingaöld - 2Víkingarnir áttu auðvelt
með að koma fólki á óvart, því þeir voru snillingar í skipasmíði og siglingum.
Íbúar þeirra landa sem víkingarnir herjuðu á voru mjög óttaslegnir vegna grimmdar þeirra.
Víkingarnir komu frá þrem löndum: Noregi, Danmörku og Svíþjóð.
Norðmenn sigldu til Englands, Færeyja og Íslands.
Siglt til Íslands Þrír norrænir menn komu til
Íslands fyrir landnám.
1. Naddoddur, sem rak hingað á leið sinni frá Noregi til Færeyja og kallaði landið Snæland
2. Garðar Svavarsson, sænskur maður sem sigldi fyrstur umhverfis landið, eftir það var landið kallað Garðarshólmi
3. Hrafna-Flóki, settist að í Vatnsfirði og hafði vetradvöl á landinu og kallaði það Ísland.
Ísland varð albyggt 870 – 930 samkvæmt Íslendingabók Ara fróða
Ferðaleiðir Naddodds, Garðars og Hrafna-Flóka
Siglt til Íslands - 2
Ísland var síðasta land Evrópu sem byggðist fólki.
Landnámsfólkið kom frá Evrópu, sem bar með sér siði, menningu og venjur að heiman.
Landnámsmenn höfðu keltneska þræla með sér frá Norður - Bretlandi.
Íslendingar eru fyrst og fremst afkomendur Norðmanna og Kelta.
Siglt til Íslands - 3Fornleifar gefa til kynna
að landnámsmenn hafi verið sæmilega stæðir bændur.
Landnemarnir notuðust við sólina og stjörnurnar til þess að sigla í rétta átt.
Skip landnemanna kölluðust knerrir og um borð var bústofninn, verkfæri ofl. Siglingin gat tekið nokkra daga upp í margar vikur eftir veðri.
Landnám ÍslandsLandnámsfólkið byrjaði að koma sér upp
öruggu skjóli. Fólkið var fyrst og fremst bændur og leitaði því eftir landi sem var hentugt fyrir landbúnað.
Lífið einkenndist af sjálfþurftarbúskap, sem þýddi að fólk framleiddi sjálft það sem það þurfti á að halda: mat, klæðnað og áhöld.
Landnám Íslands 2 Gróið land hefur minnkað
um helming frá landnámsöld, vegna ofbeitar búfjár og náttúruhamfara.
Fólkið í landinu ber mikla ábyrgð á því hvernig landgæði hefur breyst.
Það er mikilvægt að bera virðingu fyrir umhverfinu.
LífshættirRæktun lands er erfið
þar sem loftslag er svalt, landið hrjóstrugt og tíðar náttúruhamfarir.
Korn var mest ræktað sunnan- og vestanlands og bústofn bænda voru nautgripir, sauðfé, svín, geitur og hænur.
Lífshættir
• Sauðfé hafði mest áhrif á líf þjóðarinnar sem gaf af sér kjöt, mjólk og ull
• Hesturinn var ,,þarfasti þjónninn”, aðal samgöngutækið og vinnuþjarkurinn.
Lífshættir 2 Sumir bændur komu sér
upp selum, en þar sátu konur og börn yfir fénu sem var á beit á sumrin.
Túnin við bæina voru síðan slegin síðsumars til þess að hafa hey fyrir skepnurnar á veturna.
Sjósókn var lítil á fyrstu öldunum, bara stunduð sem auka búgrein og hlunnindi fyrir bændur
Hlunnindi voru öll gæðin sem náttúran gaf af sér, s.s. fiskur, fugl, egg, dúnn, rekaviður auk hefðbundinn landbúnaður
Lífshættir
Hús landnámsmanna voru einföld úr timbri, grjóti og torfi
Rekaviður var mikilvægt byggingarefni í hús og áhöld, því íslensk tré voru of smágerð
Flestir landnámsmenn komu með timbur frá Noregi til húsbygginga