9
Sögueyjan 1 - Kafli 4 Siglingar og landafundir Íslendingar hafa átt talsvert af góðum skipum á þjóðveldisöld. Ekki auðvelt að stunda siglingar. Skip voru mjög dýr og langt til næstu landa. Siglingar á milli landa á þessum tíma voru hættulegar, en mikilvægar til að stunda verslun við önnur lönd.

Sögueyjan 1 - Kafli 4 Siglingar og landafundir

  • Upload
    corina

  • View
    221

  • Download
    1

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Sögueyjan 1 - Kafli 4 Siglingar og landafundir. Íslendingar hafa átt talsvert af góðum skipum á þjóðveldisöld. Ekki auðvelt að stunda siglingar. Skip voru mjög dýr og langt til næstu landa. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Sögueyjan 1   -  Kafli 4 Siglingar og landafundir

Sögueyjan 1 - Kafli 4Siglingar og landafundir

Íslendingar hafa átt talsvert af góðum skipum á þjóðveldisöld.

Ekki auðvelt að stunda siglingar. Skip voru mjög dýr og langt til næstu landa.

Siglingar á milli landa á þessum tíma voru hættulegar, en mikilvægar til að stunda verslun við önnur lönd.

Page 2: Sögueyjan 1   -  Kafli 4 Siglingar og landafundir

Siglingar og landfundir (2)

Sjálfsþurftarbúskapur að mestu stundaður, en vissar vörur varð að flytja inn.

Verslun stóð yfir á nokkrum dögum á ári og þá á sumrin.

Íslendingar áttu mest í viðskiptum við Norðmenn á þessum tíma.

Aðalútflutningsvara Íslendinga var vaðmál, sem var grófofið ullarefni. Var notað í klæði, ábreiður og fleira.

Vefnaður var mikilvægasti heimilisiðnaður landsins. Aðallega konur sem ófu vaðmál.

Page 3: Sögueyjan 1   -  Kafli 4 Siglingar og landafundir

Siglingar og landafundir (3)

Mikilvægustu innflutningsvörur voru:

Timbur, mjöl og ýmsar munaðarvörur.

Næsta land við Ísland var Grænland, 287 km frá Vestfjörðum.

Eiríkur rauði nemur þar land árið 980.

Page 4: Sögueyjan 1   -  Kafli 4 Siglingar og landafundir

Siglingar og landafundir (4)

Tveir byggðarkjarnar íslenskra manna á Grænlandi:

1. Eystribyggð (Eiríkur rauði og hans fólk) hentaði vel til landbúnaðar.2. Vestribyggð hentaði betur til veiða.

Page 5: Sögueyjan 1   -  Kafli 4 Siglingar og landafundir

Siglingar og landafundir (5)

Þegar mest var er talið að nokkur þúsund norrænir menn hafi búið á Grænlandi.

Síðustu skráðu frásagnir um þetta fólk eru frá því snemma á 15. öld.

Talið að átök við frumbyggja (inúíta), sjúkdómar og erfið lífsbarátta hafi gert út af við þessa afkomendur íslenskra landnámsmanna.

Page 6: Sögueyjan 1   -  Kafli 4 Siglingar og landafundir

Siglingar og landafundir (6)

Leifur Eiríksson sigldi fyrstur Evrópumanna til Ameríku árið 1000. Leifur og félagar reyndu fyrir sér á þremur stöðum, sem nú tilheyra Kanada:

Helluland (Baffinsland)Markland (Labrador)Vínland (Nýfundnaland)

Leifur og félagar dvöldu í Ameríku í einn vetur. Sneru svo aftur til Grænlands.

Page 7: Sögueyjan 1   -  Kafli 4 Siglingar og landafundir

Siglingar og landafundir (6)

Leifur og félagar björguðu skipbrotsmönnum úr sjávarháska. Þess vegna fékk Leifur viðurnefnið ,,heppni“.

Dvöl norrænna manna í Ameríku virðist hafa verið stutt og þeir skyldu engin spor eftir sig í menningu innfæddra (indíána).

Evrópumenn komu ekki aftur til Ameríku fyrr en Kólumbus sigldi þangað 1492.

Page 8: Sögueyjan 1   -  Kafli 4 Siglingar og landafundir

Siglingar og landafundir (8)

Mikilvægustu samskipti Íslendinga við aðrar þjóðir á landnáms-og þjóðveldisöld voru við Norðmenn.

Ísland taldist vera á norsku áhrifasvæði.

Page 9: Sögueyjan 1   -  Kafli 4 Siglingar og landafundir

Siglingar og landafundir (9)

Langmikilvægasta innflutningsvara Íslendinga var timbur til húsagerðar og skipasmíða. Af timbri áttu Norðmenn nóg.

Mikil ættar- og menningartengsl á milli landanna.

Eftir kristnitöku árið 1000 jukust samskipti Íslendinga við aðrar Evrópuþjóðir