Upload
kalkin
View
87
Download
0
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Loftslagsmál og kolefnisbinding. Hugi Ólafsson, okt. 2012. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Loftslagsbreytingar Skuldbindingar Íslands gagnvart Loftslagssamningnum og EES-samningnum Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum Kolefnisbinding – reglur og staða. - PowerPoint PPT Presentation
Citation preview
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Loftslagsmál og kolefnisbinding
Hugi Ólafsson, okt. 2012
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
• Loftslagsbreytingar• Skuldbindingar Íslands gagnvart
Loftslagssamningnum og EES-samningnum• Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum• Kolefnisbinding – reglur og staða
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Spáð hlýnun um 2-4°C á 21. öld
Meiri breytingar á loftslagi, vistkerfum og lífs-skilyrðum en nokkru sinni á sögulegum tímum
Hlýnun í Evrópu til 2100
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Hafís minnkar og siglingaleiðir áN-Íshafi opnast
Jöklar hopa oghverfa að mestu á Íslandi á 2 öldum
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
• Loftslagssamningur S.þ. samþykktur í Ríó 1992:– Loftslagsbreytingar eru sameiginlegt viðfangsefni mannkyns– Markmið: Styrkur GHL valdi ekki hættulegum breytingum– Ríki skulu setja upp bókhald um útstreymi GHL og minnka losun
• Kýótó-bókunin samþykkt í des. 1997:– Bindandi töluleg markmið í útstreymi GHL á tímabilinu 2008-2012,
miðað við 1990 fyrir þróuð ríki (nær 40)
– Markmiðum má ná með: 1) Samdrætti í losun, 2) Bindingu CO2 með skógrækt og landgræðslu og 3) Kaupum á kvóta og sveigjanleikaákvæðum
– Lagalega bindandi: Eftirlit, framfylgdarnefnd, sektir
Loftslagssamningur S.þ. og Kýótó-bókunin
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
• Almennt útstreymi frá Íslandi skal ekki aukast meira en sem nemur 10% frá árinu 1990, þ.e. vera innan við 3.650 þús. tonn CO2-ígilda á tímabilinu 2008-2012
• CO2-útstreymi frá nýrri stóriðju sem fellur undir “íslenska ákvæðið” skal ekki vera meira árlega en 1.600 þús. tonn að meðaltali árin 2008-2012
Kýótó-bókunin - skuldbindingar Íslands
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
- Ísland er hluti af viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) skv. EES-samn.; flug fer í ETS 2012, stóriðja og fiskimjöl 2013
- Yfir 10.000 fyrirtæki í Evrópu í ETS: Þak sett á fjölda losunarheimilda í kerfinu og þeim fækkar frá ári til árs - 21% samdráttur 2005-2020
- Fyrirtæki sem minnka losun umfram kröfur geta selt heimildir; eftirbátar þurfa að kaupa
- Ísland vildi ekki vera með tvöfaldar skuldbindingar: EES + Kýótó
- Ísland hefur náð samkomulagi við ESB um að verða hluti af evrópsku „hvolfi“ eftir 2012, á 2. skuldbindingartímabili Kýótó, samþykkt í Durban 2012
- Í samfloti með ESB er ekki þörf á sérákvæði fyrir stóriðju í nýju alþjóðlegu samkomulagi; hún mun eingöngu búa við regluverk ETS
EES – skuldbindingar Íslands
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Staða Íslands m.t.t. losunar GHL• Hæsta hlutfall endurnýjanlegrar orku í heiminum• Mikil losun frá tveimur útflutningsgreinum:
Málmbræðslu og sjávarútvegi• Mikil losun frá vegasamgöngum á mann• Veruleg aukning í losun frá 1990 með aukinni stóriðju• Miklir möguleikar til
bindingar CO2 með skógrækt og landgræðslu
Losun 2009
Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðAðgerðaáætlun í loftslagsmálum – 2010
Tíu lykilaðgerðir eiga að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda þannig að hún verði 1,2-1,7 m tonna minni en ella árið 2020 (losun nú: 4,6 m tonn)
Lykilaðgerðir eiga að tryggja að Ísland standi við skuldbindingar til 2020
Mestir möguleikar eru á sviði bindingar kolefnis í skógrækt og landgræðslu
Verulegir möguleikar eru í minnkun losunar frá samgöngum og sjávarútvegi
Stóriðja þarf að afla losunarheimilda á evrópskum markaði eftir 2012
Losun utan stóriðju þarf að minnka um 20-30% til 2020 m.v. 2005
Aðgerðir í öðrum geirum en stóriðju eiga að skila 16% samdrætti í losun 2020 m.v. 2005; með bindingu kolefnis minnki nettólosun um yfir 30%
Endurskoða áætlun 2012 þegar meiri vissa er um alþjóðlegar skuldbindingar
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Tíu lykilaðgerðir:
1. Innleiðing viðskiptakerfis með losunarheimildir
2. Kolefnisgjald
3. Breytt kerfi skatta og gjalda á bíla og eldsneyti
4. Stjórnvöld setji stefnu um kaup á loftslagsvænum bílum
5. Efling göngu, hjólreiða og almenningssamgangna
6. Notkun lífeldsneytis á fiskiskipaflotann
7. Rafvæðing fiskimjölsverksmiðja
8. Aukin skógrækt og landgræðsla
9. Endurheimt votlendis
10.Efldar rannsóknir og nýsköpun í loftslagsmálum
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
• Flestar af tíu aðgerðum komnar í framkvæmd, að einhverju leyti a.m.k.
• Kolefnisskattur kominn á + viðskiptakerfi með losunarheimildir +
kolefnismiðuð gjöld og skattar á bíla og eldsneyti - skilaboð komið í
efnahagskerfið
• Líkön um væntanlega þróun losunar í einstökum geirum
• Losun hefur minnkað frá 2008, en ólíklegt að það haldi áfram nema með
markvissum aðgerðum
• Losun frá flestum geirum minnkað frá 2008, nema í fiskveiðum
• Jákvæð teikn: Aukin framlög til almenningssamgangna og hjólreiða, aukning á
metan-bílum, loftslagssjónarmið innleidd í samgönguáætlun o.fl.
• Á móti kemur: Aukning í fiskveiðum og fjölgun ferðamanna getur aukið losun
Fyrsta yfirferð á aðgerðaáætlun
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Ministry for the Environment
Ministry for the Environment
Staða Íslands á alþjóðavísu í loftslagsmálum- Virk þátttaka: Frumkvæði varðandi jafnréttis-
mál og endurheimt votlendis
- Ísland í samfloti með ríkjum ESB + Króatíu á 2. skuldbindingartímabili Kýótó eftir 2012
- Óvissar skuldbindingar utan ETS gagnvart ESB (“Effort sharing” – nær til losunar frá samgöngum, sjávarútvegi, landbúnaði o.fl. + reglur um kolefnisbindingu)
- „Íslenska ákvæðið” úr sögunni, ekki þörf á því eftir 2012, stóriðja á að taka þátt í ETS
- Líklegar skuldbindingar Íslands til 2020: 1) Losun frá stóriðju undir viðskiptakerfi ESB, utan beinnar stýringar íslenskra stjórnvalda; 2) Draga úr losun í öðrum geirum um 20-30% til 2020, m.v. 2005
- Aðgerðaáætlun: Árlegar skýrslur, aukin umræða
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Kolefnisbinding – reglur og staða- Skylda að gera grein fyrir kolefnisbindingu í gróðri og jarðvegi til
loftslagssamningsins (upplýsingaskylda allra aðildarríkja)
- Landnotkun og skógrækt (LULUCF) verða heimilar aðgerðir á 2. tímabili Kýótó til að vega á móti losun; skylt er að bókfæra skógrækt, ýmsar aðrar aðgerðir heimilar (landgræðsla, endurheimt votlendis o.fl.) – ríkjum er leyfilegt að gefa út sk. bindingareiningar
- Kolefnisbinding er utan viðskiptakerfis ESB um losun gróðurhúsalofttegunda (ETS), sem nær til stórra losenda (kolaorkuvera, stóriðju o.þ.h.)
- Kolefnisbinding í gróðri og jarðvegi er ein af 10 sk. lykilaðgerðum í Aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum
- Ekki er fyrirséður virkur markaður með bindingareiningar á Íslandi eða í Evrópu; velvilji í garð kolefnisjöfnunarframtaks, en engar opinberar reglur
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
TAKK FYRIR