Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði
Selfoss 29. apríl 2011Svanfríður Jónasdóttir, formaður verkefnisstjórnar.
Aðdragandi og markmið
• Unnið hefur verið að Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma frá árinu 1999 í samræmi við framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar Sjálfbær þróun í íslensku samfélagi árið 1997.
Hvað er rammaáætlun?
• Tilraun til að vega og meta mismunandi hagsmuni.
• Tilraun til að leiða saman ólík viðhorf til nýtingar og leita sátta.
• Tilraun til að vinna faglega að lausn deilumála.• Tilraun til að búa til ferla svo hægt sé að vinna
skipulega, hvort sem er að friðun eða annarri nýtingu svæða.
Markmið rammaáætlunar
• Ná meiri sátt um vernd og nýtingu.• Leggja mat á og flokka virkjunarkosti, jafnt
vatnsafl og háhita, og áhrif þeirra á náttúru- og menningarminjar, m.a. með tilliti til orkugetu, hagkvæmni og annars þjóðhagslegs gildis.
• Verkefnisstjórn er skipuð 12 fulltrúum ,,hagsmunaaðila”.
Faghópar rammaáætlunar
Fjórir faghópar skipaðir sérfræðingum unnu fagvinnuna.
I Náttúrufar og minjar. II Ferðaþjónusta, útivist og hlunnindi.III Þjóðhagslegt gildi og byggðaþróun.IV Orkulindirnar.
Faghópur I Náttúrufar og minjar
• Mat verðmæti náttúru og menningarminja.• Mat áhrif mögulegrar virkjunar á þessi
verðmæti.• Mat á áhrifum vatnsaflsvirkjana var að mestu
miðað við vatnasvið ofan stíflu en meginfarveg fallvatns neðan hennar. Í jarðhita var tekið mið af víðáttu háhitasvæða skv. viðnáms-mælingum en einnig horft til landslagsheildar.
Faghópur II Ferðaþjónusta, útivist og hlunnindi
• Faghópur II beitti nýjum og ítarlegum aðferðum í mati á útivistargildi og ferðaþjónustu.
• Áhrifasvæði voru skilgreind út frá ferðamynstri og ferðaleiðum og virði svæða metið fyrir ferðaþjónustu og áhrif virkjana ásamt raflína á svæðin.
Faghópur III Þjóðhagslegt gildi og byggðaþróun
• Mat möguleika einstaka virkjunar-hugmynda til að valda breytingum annars vegar í félagsgerð og hins vegar í efnahagsgerð samfélagsins, bæði staðbundin áhrif og áhrif á landsvísu.
• Svarar ekki spurningunni um það hvort breytingar eru góðar eða vondar!
Faghópur IV Orkulindirnar
• Faghópur IV skilgreinir þá kosti sem fyrir hendi kunna að vera til að nýta vatnsorku og jarðhita til raforkuvinnslu.
• Metur afl, orkugetu og líklegan orkukostnað hvers þeirra og forgangsraðar eftir hagkvæmni.
Staða vinnunnar
• Faghópar luku sínu mati snemma árs 2010 með röðun.
• Kynningar og umsagnarferli.• Faghópar endurmátu á grundvelli þess.• Verkefnisstjórn hefur gengið frá sinni röðun á
grundvelli niðurstaðna faghópa.• Verkefnisstjórn er að ganga frá sínum tillögum
og skilar til iðnaðarráðherra og umhverfis-ráðherra.
Röð verkefnisstjórnar
• Unnin út frá niðurstöðu faghópa.• 66 virkjunarhugmyndir af 84.• Þar af 44 jarðvarmavirkjanir sem raða sér bæði
efst og neðst; bæði fýsilegar til nýtingar og verndunar.
Framhald málsins
• Lög frá Alþingi um meðferð niðurstöðu: Verndarflokkur - biðflokkur - nýtingarflokkur• Þingsályktunartillaga unnin á grundvelli vinnu
verkefnisstjórnar.• Þingsályktunartillaga í UMÁ.• Þingsályktunartillaga lögð fyrir Alþingi til afgreiðslu í
haust.
Takk fyrir