26
Borgarfjarðarbrúin „Ný“ hugsun í kennsluháttum Ingvar Sigurgeirsson 1. október 2007

Borgarfjarðarbrúin „Ný“ hugsun í kennsluháttum

  • Upload
    ronat

  • View
    67

  • Download
    4

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Ingvar Sigurgeirsson 1. október 2007. Borgarfjarðarbrúin „Ný“ hugsun í kennsluháttum. IS mun leitast við að ræða og stýra umræðu um:. Markmið verkefnisins ... ... Tengsl þeirra og námskrá / lög ... Tengsl við stefnur og strauma í kennslufræðum - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Borgarfjarðarbrúin „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Ingvar Sigurgeirsson1. október 2007

Page 2: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

IS mun leitast við að ræða og stýra umræðu um:

Markmið verkefnisins ... ... Tengsl þeirra og námskrá / lög... Tengsl við stefnur og strauma í

kennslufræðum... Tengsl við aðra skólaþróun hér á landi

(hvað eru aðrir að gera?)• Kennsluhættir• Námsmat

Page 3: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Í hverju felst þróunarverkefni?

• Markmið• Skilgreindar leiðir• Formlegt mat á því hvernig til tekst (þar

sem byggt er á gögnum)• Skýrsla (sem aðrir geta lært af)

Page 4: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Að þróa kennsluaðferðir sínar Lestur (tímarit, bækur, Netið) Ígrundun Leshringir Skólaheimsóknir Fræðslufundir og námskeið Sjálfsmatsverkefni Jafningjaleiðsögn Samstarfsverkefni Formleg þróunarverkefni

Page 5: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Markmið verkefnisins• Skapa samfellu á milli grunn- og framhaldsskóla, auka

sveigjanleika milli og innan skólastiga og að mæta breytilegum þörfum ólíkra nemenda.

• Endurskoða og aðlaga skólanámskrár grunnskólanna að nýrri aðalnámskrá.

• Auka fjölbreytni og sveigjanleika í kennsluháttum og námsmati, meðal annars með því að þróa „flæðinám“ í námi og kennslu í grunnskóla.

• Tryggja eðlilega framvindu í námi nemenda frá upphafi grunnskóla til loka framhaldsskóla.

• Styrkja sjálfsmynd nemenda og gefa þeim aukin tækifæri til ábyrgðar á eigin námi og námshraða.

• Efla faglegt samstarf milli skóla og skólastiga á sviði kennslu og ráðgjafar. (Leturbr. IS)

Page 6: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Hversu vel tengist verkefnið áherslum í nýjum námskrám ...?

• Aðalnámskrá fyrir grunnskóla. Almennur hluti. 2006.

• Aðalnámskrá fyrir framhaldsskóla. Almennur hluti. 2004.

Page 7: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Hvað boðar ný aðalnámskrá grunnskóla (2006)?

Aukin áhersla á• Ábyrgð nemenda• Val• Samstarf við heimili• Menntun sem ævimenntun• Skóla fyrir alla• Lýðræðislega starfshætti• Tölvu og upplýsingatækni

Page 8: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Markmið grunnskólans 2. grein* Hlutverk ... er að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Starfshættir ... skulu því mótast af umburðarlyndi, kristilegu siðgæði og lýðræðislegu samstarfi. Skólinn skal temja nemendum víðsýni og efla skilning þeirra á kjörum fólks og umhverfi, á íslensku þjóðfélagi, sögu þess og sérkennum og á skyldum einstaklingsins við samfélagið. Grunnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins . Grunnskólinn skal veita nemendum tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni og temja sér vinnubrögð sem stuðli að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Skólastarfið skal því leggja grundvöll að sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra. (Leturbr. IS).

*Lög um grunnskóla nr. 66/1995

Áhersla á:

Samvinnu – lýðræðislegt samstarf

Viðhorfamótun – víðsýni Þekkingaröflun – stöðuga

þekkingarleitSkilning – sjálfstæða hugsun

Page 9: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Aðalnámskrá grunnskóla. Almennur hluti. 2006

• Það er skylda hvers skóla að laga námið sem best að nemendum hverju sinni. Nemendur eiga rétt að viðfangsefnum sem henta námsgetu þeirra og hæfni. (Aðalnámskrá grunnskóla. 2006:11)

• Val á kennsluaðferðum og skipulag skólastarfs verður að miðast við þá skylduskyldu grunnskóla að sjá hverjum nemanda fyrir bestu tækifærum til náms og þroska. Kennslan verður að taka mið af þörfum og reynslu einstakra nemenda og efla með nemendum námfýsi og vinnugleði. (Aðalnámskrá grunnskóla. 2006:15, leturbreytingar IS)

Page 10: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Aðalnámskrá framhaldsskóla. Almennur huti (2004)

Hlutverk framhaldsskóla er að• stuðla að alhliða þroska nemenda svo að þeir verði

sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi

• búa nemendur undir störf í atvinnulífinu og frekara nám• efla ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði,

sjálfstraust og umburðarlyndi nemenda• þjálfa nemendur í öguðum og sjálfstæðum

vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun• kenna nemendum að njóta menningarlegra verðmæta• hvetja nemendur til stöðugrar þekkingarleitar.

Page 11: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Aðalnámskrá framhaldsskóla 2004

Aukin áhersla á• Lykilhlutverk lífsleikni sem námsgreinar• Innra mat

Page 12: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Meginmarkmið framhaldsskóla Við lok náms í framhaldsskóla er stefnt að því að nemendur:• hafi fengið alhliða menntun sem er við hæfi hvers og eins• séu undir það búnir að fara í áframhaldandi nám og/eða starf í þjóðfélagi sem er

í sífelldri þróun• geri sér ljóst að námi lýkur ekki við lok skólagöngu heldur er nauðsynlegt að

halda áfram að afla sér nýrrar þekkingar og reynslu• hafi fengið góða þekkingu á íslensku samfélagi• kunni skil á réttindum og skyldum einstaklings í lýðræðisþjóðfélagi• hafi tamið sér sjálfstæði í hugsun og vinnubrögðum, ábyrgð á eigin námi, öðlast

sjálfstraust og lært að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum• hafi ræktað með sér gagnrýna hugsun, dómgreind og umburðarlyndi• séu færir um að tjá skoðanir sínar, taka ákvarðanir og séu óhræddir við

breytingar í námi og starfi.

Markmið þessi snerta allar námsgreinar framhaldsskóla og starfsemi þeirra. Námsgreininni lífsleikni er ætlað að vinna sérstaklega að ofangreindum markmiðum en ljóst er að þeim verða ekki gerð skil einungis í einni námsgrein.

Page 13: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Við þurfum líka að taka afstöðu!

• Tjáning• Samstarfshæfni• Þekking – eða hæfni í

þekkingarleit• Gagnrýnin hugsun• Sköpun• Frumkvæði, áræði• Dugnaður

Hvaða markmið skipta mestu?

Page 14: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Þetta eru líka mikilvægar þarfir ...

• Öryggi, hlýja, virðing, hrós, hvatning• Fá að glíma við ögrandi viðfangsefni• Beita hugsun sinni • Þörf fyrir að sjá tilgang í því sem maður er að gera• Þörf fyrir að vera hluti af góðum hópi og eiga góð

samskipti• Þörf fyrir að leggja af mörkum• Sköpun, tjáning• Forvitni ... löngun til að vita og skilja• Leik- og hreyfiþörf

Page 15: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Gróska í kennslufræðum Ótal stefnur og straumar sem geta verið uppspretta

hugmynda

Hugsmíðihyggjan(Constructivism)

Fjölgreindakenningin(Theory of Multiple Intelligences)

Brain-based Instruction (íslenskt heiti vantar)

Nám til skilnings (Teaching for understanding)

Page 16: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Fleiri stefnur og straumar

Samvinnunámshreyfingin(Cooperative Learning)

Óhefðbundið námsmat (Alternative assessment)

Einstaklingsmiðað nám(Ótal heiti)

Page 17: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Einstaklingsmiðað nám merkir oftast að kennarar reyna með markvissum hætti við að koma betur til móts við hvern nemanda með

hliðsjón af ...

Getu og kunnáttu og hvers og eins

Hæfileikum Áhuga og viðhorfumNámstíl (Learning Style)Framtíðaráformum

Page 18: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Einstaklingsmiðað nám – dæmi um áherslur í stefnumörkun

Reykjavíkurborgar

• Ábyrgð nemenda á eigin námi

• Þemanám – samþætting • Val nemenda• Samvinnunám• Fjölbreytt, sveigjanlegt

námsumhverfi – skólinn sem vinnustaður

• Markviss notkun tölvu og upplýsingatækni

• Skapandi starf• Sterk sjálfsmynd nemenda

• Frumkvæði nemenda og sjálfstæði í vinnubrögðum

• Samvinna nemenda, kennara og foreldra

• Náin tengsl við grenndarsamfélag, umhverfi og atvinnulíf

• Þverfagleg samvinna kennara

• Kennarinn sem leiðbeinandi

Page 19: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

• Áhersla á tengsl við umhverfið• Höfð er hliðsjón af áhuga og þörfum nemenda –

nemendur hafa val um viðfangsefni• Virkar kennsluaðferðir ... áhersla á sjálfstæð

vinnubrögð, öflun upplýsinga ... leikni ... áþreifanleg viðfangsefni

• Áhersla á ábyrgð nemenda• Fjölbreytt og áhugavekjandi viðfangsefni ...

kennsluaðferðir• Fjölbreytt og örvandi námsumhverfi• Leiðsagnarhlutverk kennara

Opni skólinn hafði einstaklingsmiðun að leiðarljósi

Úr bókinni Skólastofan: Umhverfi til náms og þroska.

Page 20: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Skólaþróun hér á landi

• Menntamál í brennidepli• Miklar umræður ... tekist á um mál• Gerjun og gróska á öllum skólastigum! • Þróunarstarf hefur líklega aldrei verið meira (

www.skolathroun.is)

Page 21: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Dæmi um þróunarskóla á leikskólastigi

• Hjallastefnuskólarnir• Reggio-skólarnir• Dewey-skólarnir • Heilsuleikskólinn Urðarhóll • Leikskólinn Reynisholt

Page 22: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Dæmi um nokkra grunnskóla sem hafa lagt sérstaka rækt við þróun kennsluhátta að

undanförnu

• Borgaskóli í Reykjavík • Hrafnagilsskóli í Eyjafjarðarsveit• Ingunnarskóli Reykjavík• Korpuskóli í Reykjavík • Norðlingaskóli í Reykjavík• Sjálandsskóli í Garðabæ• Víkurskóli í Reykjavík

Page 23: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Dæmi um nokkra grunnskóla sem hafa lagt sérstaka rækt við þróun námsmats að

undanförnu• Laugalækjarskóli í Reykjavík (námsmöppur)• Salaskóli í Kópavogi (einstaklingsmiðuð próf)• Hrafnagilsskóli í Eyjafjarðarsveit (fjölbreytt

námsmat), heimasíða verkefnisins • Ingunnarskóli og Norðlingaskóli í Reykjavík

(móðurskólaverkefni um einstaklingsmiðað námsmat), heimasíða verkefnisins

• Einnig t.d.: Ölduselsskóli (Rvík), Grunnskóli Reyðarfjarðar, Grunnskólinn í Borgarnesi

Page 24: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Þróunarskólar á framhaldsskólastigi

• Framhaldsskólinn á Laugum í Þingeyjarsveit

• Fjölbrautaskóli Snæfellinga• Keilir• Menntaskóli Borgarfjarðar

Page 25: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Skólaþróunarverkefni sem IS hefur verið ráðgefandi um

• http://starfsfolk.khi.is/ingvar/throunarverkefni.html

Page 26: Borgarfjarðarbrúin  „Ný“ hugsun í kennsluháttum

Verkefnið okkar

• Heildarrammi• Faggreinahópar• Skólahópar

• Markmið• Skilgreindar leiðir• Formlegt mat • Skýrsla (sem aðrir geta lært af)