8
Miðvikudagur 1. apríl 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn 13. tbl. 33. árgangur Gleðilega páska Hreinn Eiríksson heiðursfélagi USÚ Á 50. ársþingi USÚ, árið 1982, var fyrsti heiðursfélagi USÚ, Torfi Steinþórsson á Hala í Suðursveit, útnefndur. Eftir því sem stjórnin kemst næst, hefur það ekki verið gert síðan, og hefur því Torfi heitinn verið eini heiðursfélagi USÚ til þessa. Stjórninni fannst kominn tími til að útnefna annan heiðursfélaga og strax kom upp eitt nafn í því samhengi. Hreinn Eiríksson. Greint var frá þessu á 82. ársþingi USÚ í Mánagarði, 26. mars sl. Hreinn er fæddur þann 10. mars 1931 og ólst upp á Miðskeri í Nesjum og hefur alla tíð verið mikill Mánamaður. Aðspurður hafði hann ekki tölu á því hversu lengi hann var í stjórn Mána en mundi þó eftir að hafa verið formaður þegar húsið sem ársþingið fór fram í, Mánagarður, var vígt árið 1952. Hann sagðist þó vera nýlega hættur í sóknarnefnd Bjarnaneskirkju, eftir um 40 ára setu. Hreinn var mikill íþróttamaður á sínum yngri árum, líkt og systkini hans. Eitt er það þó sem mörg ungmennafélög hafa sem íþróttafélög hafa fæst, en það er allt hitt starfið sem fram fer í félögunum. Hreinn hefur alla tíð verið mikill framámaður í leikhópi Mána, sem glöggt má sjá vitni um í grein hans í nýjasta tölublaði héraðsritsins Skaftfellings. Síðast setti leikhópurinn upp Fiðlarann á þakinu á 100 ára afmæli Mána árið 2007, og var þá Hreinn í stóru hlutverki. Hreinn hlaut starfsmerki UMFÍ árið 2007. Hreinn sat í stjórn USÚ á árunum 1960- 1965 og aftur 1972-1976, þar af sem formaður 1963-1965. Hreinn gat því miður ekki mætt sjálfur og tekið við viðurkenningunni. Hann bað fyrir kærar kveðjur til allra sem hann hefur unnið með í gegnum árin. Regína, dóttir Hreins tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd. María Birkisdóttir íþróttamaður USÚ 2014 Á ársþinginu var íþróttamaður USÚ árið 2014 útnefndur og þar að auki fengu þrjú ungmenni sem þótt hafa staðið sig vel á árinu viðurkenningu og hvött til áframhaldandi velgengni. Íþróttamaður USÚ árið 2014 er María Birkisdóttir. María er fædd árið 1995. Hún hefur stundað íþróttir alla ævi, bæði knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Fyrir fáum árum ákvað hún að einbeita sér að frjálsum enda þá orðin efnileg í hlaupum. Það þarf mikla elju og sjálfsaga til að stunda frjálsar á Hornafirði í litlum árgöngum. Maríu hefur tekist það og oft hefur hefur hún verið ein í árgangi. Nú um síðustu áramót tók María þá ákvörðun að skipta yfir í ÍR þar sem hún nýtur leiðsagnar færustu frjálsíþrótta- og hlaupaþjálfara landsins. Helstu afrek Maríu á árinu 2014 voru þessi: • Íslandsmeistari 18-19 ára í 800 m og 1500 m hlaupi úti og inni. • Íslandsmeistari í 800 m og 5000 m hlaupi í fullorðinsflokki. • Annað sæti í 10 km hlaupi í Reykjavíkurmaraþoninu. • Fast pláss í landsliðshóp FRÍ. María er góð fyrirmynd og hefur sýnt að hægt er að ná eftirtektar verðum árangri með góðri ástundun og heilbrigðum lífstíl. Hvatningarverðlaun hlutu: Ingibjörg Lucía Ragnarsdóttir, fædd 1998, fyrir góðan árangur í knattspyrnu en Ingibjörg hefur keppt fyrir U17 landslið kvenna ásamt því að vera fastamaður í æfingahóp landsliðsins. Ingibjörg Valgeirsdóttir, fædd 1998, fyrir góðan árangur í knattspyrnu en Ingibjörg er efnilegur markmaður. Hún hefur keppt fyrir U17 landslið kvenna líkt og nafna hennar og sömuleiðis verið fastamaður í æfingahóp landsliðsins. Gísli Þórarinn Hallsson, fæddur 1999, fyrir góðan árangur í körfubolta og knattspyrnu en hann hefur verið í æfingahópi hjá U16 landsliðinu í körfubolta og Gísli er jafnframt efnilegur markmaður í knattspyrnu. Heiðursfélagi og íþróttamaður USÚ María hvílir lúin bein eftir erfitt hlaup í keppni við Anítu Hinriksdóttur.

Eystrahorn 13. tbl. 2015

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Miðvikudagur 1. apríl 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn13. tbl. 33. árgangur Gleðilega páska

Hreinn Eiríksson heiðursfélagi USÚ

Á 50. ársþingi USÚ, árið 1982, var fyrsti heiðursfélagi USÚ, Torfi Steinþórsson á Hala í Suðursveit, útnefndur. Eftir því sem stjórnin kemst næst, hefur það ekki verið gert síðan, og hefur því Torfi heitinn verið eini heiðursfélagi USÚ til þessa. Stjórninni fannst kominn tími til að útnefna annan heiðursfélaga og strax kom upp eitt nafn í því samhengi. Hreinn Eiríksson. Greint var frá þessu á 82. ársþingi USÚ í Mánagarði, 26. mars sl. Hreinn er fæddur þann 10. mars 1931 og ólst upp á Miðskeri í Nesjum og hefur alla tíð verið mikill Mánamaður. Aðspurður hafði hann ekki tölu á því hversu lengi hann var í stjórn Mána en mundi þó eftir að hafa verið formaður þegar húsið sem ársþingið fór fram í, Mánagarður, var vígt árið 1952. Hann sagðist þó vera nýlega hættur í sóknarnefnd Bjarnaneskirkju, eftir um 40 ára setu. Hreinn var mikill íþróttamaður á sínum yngri árum, líkt og systkini hans. Eitt er það þó sem mörg ungmennafélög hafa sem íþróttafélög hafa fæst, en það er allt hitt starfið sem fram fer í félögunum. Hreinn hefur alla tíð verið mikill framámaður í leikhópi Mána, sem glöggt má sjá vitni um í grein hans í nýjasta tölublaði héraðsritsins Skaftfellings. Síðast setti leikhópurinn upp Fiðlarann á þakinu á 100 ára afmæli Mána árið 2007, og var þá Hreinn í stóru hlutverki. Hreinn hlaut starfsmerki UMFÍ árið 2007. Hreinn sat í stjórn USÚ á árunum 1960-1965 og aftur 1972-1976, þar af sem formaður 1963-1965. Hreinn gat því miður ekki mætt sjálfur og tekið við viðurkenningunni. Hann bað fyrir kærar kveðjur til allra sem hann hefur unnið með í gegnum árin. Regína, dóttir Hreins tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd.

María Birkisdóttir íþróttamaður USÚ 2014

Á ársþinginu var íþróttamaður USÚ árið 2014 útnefndur og þar að auki fengu þrjú ungmenni sem þótt hafa staðið sig vel á árinu viðurkenningu og hvött til áframhaldandi velgengni. Íþróttamaður USÚ árið 2014 er María Birkisdóttir. María er fædd árið 1995. Hún hefur stundað íþróttir alla ævi, bæði knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Fyrir fáum árum ákvað hún að einbeita sér að frjálsum enda þá orðin efnileg í hlaupum. Það þarf mikla elju og sjálfsaga til að stunda frjálsar á Hornafirði í litlum árgöngum. Maríu hefur tekist það og oft hefur hefur hún verið ein í árgangi. Nú um síðustu áramót tók María þá ákvörðun að skipta yfir í ÍR þar sem hún nýtur leiðsagnar færustu frjálsíþrótta- og hlaupaþjálfara landsins.

Helstu afrek Maríu á árinu 2014 voru þessi:

• Íslandsmeistari 18-19 ára í 800 m og 1500 m hlaupi úti og inni.

• Íslandsmeistari í 800 m og 5000 m hlaupi í fullorðinsflokki.

• Annað sæti í 10 km hlaupi í Reykjavíkurmaraþoninu.

• Fast pláss í landsliðshóp FRÍ.

María er góð fyrirmynd og hefur sýnt að hægt er að ná eftirtektarverðum árangri með góðri ástundun og heilbrigðum lífstíl.

Hvatningarverðlaun hlutu:Ingibjörg Lucía Ragnarsdóttir, fædd 1998, fyrir góðan árangur í knattspyrnu en Ingibjörg hefur keppt fyrir U17 landslið kvenna ásamt því að vera fastamaður í æfingahóp landsliðsins.

Ingibjörg Valgeirsdóttir, fædd 1998, fyrir góðan árangur í knattspyrnu en Ingibjörg er efnilegur markmaður. Hún hefur keppt fyrir U17 landslið kvenna líkt og nafna hennar og sömuleiðis verið fastamaður í æfingahóp landsliðsins.

Gísli Þórarinn Hallsson, fæddur 1999, fyrir góðan árangur í körfubolta og knattspyrnu en hann hefur verið í æfingahópi hjá U16 landsliðinu í körfubolta og Gísli er jafnframt efnilegur markmaður í knattspyrnu.

Heiðursfélagi og íþróttamaður USÚ

María hvílir lúin bein eftir erfitt hlaup í keppni við Anítu Hinriksdóttur.

2 EystrahornMiðvikudagur 1. apríl 2015

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

EystrahornEystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Helgihald í Bjarnanesprestakalli um páska

HafnarkirkjaKyrrðarstund á föstu miðvikudaginn 1. apríl kl. 18:15

Messa á skírdagskvöld kl. 20:00

Guðsþjónusta á föstudaginn langa kl. 13:00

Hátíðarmessa á aðfangadag páska 4. apríl kl. 11:00 - ferming

Hátíðarguðsþjónusta á páskadag kl. 9:00

HoffellskirkjaHátíðarmessa á aðfangadag páska 4. apríl kl. 14:00 - ferming

KálfafellsstaðarkirkjaHátíðarmessa á skírdag 2. apríl kl. 13:00

BjarnaneskirkjaHátíðarmessa á páskadag kl. 13:00 – ferming

HofskirkjaHátíðarguðsþjónusta á páskadag kl. 16:00

StafafellskirkjaHátíðarmessa á annan páskadag 6. apríl kl. 13:00 – ferming

BrunnhólskirkjaHátíðarguðsþjónusta á annan páskadag 6. apríl kl. 16:00

Og hann er dáinn fyrir alla til þess að þeir sem lifa lifi ekki framar sjálfum sér heldur honum sem fyrir þá er dáinn og upprisinn.

Síðara Korintubréf 5:15

Kaþólska kirkjanVelkomin í hl. páskamessuSunnudagur 5. apríl - Skriftir frá kl. 11:00. - Hl. messa kl. 12:00.Eftir hl. messu er öllum boðið að þiggja kaffiveitingar. Allir eru hjartanlega velkomnir, sjáumst í kirkjunni. Ekki messa sunnudaginn 12. apríl

Gleðilega páska

Félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga

SAMVERUSTUND föstudaginn 10. apríl.

EkRUMEiSTARi í HoRNAFjARðARMANNA!

Spilað verður um EKRUMEISTARANN í HORNAFJARÐARMANNA LAUGARDAGINN 11. APRÍL.

Nánar auglýst í Eystrahorni næst.

GLEðiLEGA PÁSkA!

Sundlaug Hafnar Opnunartímar yfir páskahátíðina

Fimmtudagur 2. apríl ........ kl. 10:00 - 17:00

Föstudagur 3. apríl ............ LOKAÐ

Laugardagur 4. apríl .......... kl. 10:00 - 17:00

Sunnudagur 5. apríl ........... LOKAÐ

Mánudagur 6. apríl ............ kl. 10:00 - 17:00

landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

NS

SO

N &

LE

’MA

CK

S

jl.i

s

SÍA

Við stefnum að farsælum samruna fyrir samfélagiðSamruni Landsbankans og Spari sjóðs Vestmannaeyja tryggir hag viðskipta vina og greiðir veginn fyrir betri og öflugri þjónustu. Við bjóðum nýja viðskiptavini velkomna í Landsbankann.

Samkvæmt ákvörðun Fjár­mála eftir lits ins voru Lands­bankinn og Spari sjóður Vest manna eyja sam einaðir þann 29. mars sl. og eru nú öll útibú sparisjóðsins orðin útibú Landsbankans. Lands­bank inn er stærsta fjár mála­fyrir tæki lands ins og leggur ríka áherslu á trausta og

persónu lega þjón ustu við við skipta vini sína. Allt kapp verður lagt á að sam run inn gangi vel fyrir sig. Reikn­ingar og kort virka líkt og áður sem og net banki en þegar fram líður verða við­skipta vinir færðir í sam svar­andi vörur hjá Lands bank­anum.

Útibú spari sjóðs ins á Höfn verður áfram opið fyrst um sinn en fyrir hugað er að það sam einast úti búi Landsbankans í bænum.Frekari upplýsingar og svör við spurningum má fá í viðskiptaútibúum og á vef Landsbankans, landsbankinn.is.

4 EystrahornMiðvikudagur 1. apríl 2015

Páskaeggjabingó Kiwanisklúbbsins Óss

verður 2. april, skírdag, í Nýheimum kl. 14:00.

Allir að mæta og reyna að vinna páskaegg frá Freyju.

Þingið verður haldið í Nýheimum á Höfn og hefst dagskrá kl. 10:00 og eru áætluð lok um kl. 16:30. Þema þingsins er fuglar og verða flestir fyrirlestrar tengdir rannsóknum og athugunum á fuglum, en einnig verður fyrirlestur um hreindýr á dagskránni. Þingið er opið almenningi og er ókeypis inn, en mikilvægt er fá tilkynningu um þátttöku í netfangið [email protected] fyrir 3. april svo gera megi ráðstafanir vegna veitinga. Nánari dagskrá má finna á vef Náttúrustofu Suðausturlands nattsa.is

Bifreiðaskoðun á Höfn 13., 14. og 15. apríl.Tímapantanir í síma 570 9090

fyrir kl. 16:00 föstudaginn 10. apríl.

Næsta skoðun er 18., 19. og 20. maí.

Þegar vel er skoðað

framtíðarstarfa frá og með 17.mai 2015

á milli Hafnar í Hornafirði og Víkur.

Hæfniskröfur: Rúturéttindi, rík þjónustulund og hreint sakavottorð.

Náttúrustofuþing 8. apríl á Höfn

KútmagakvöldHið árlega og vinsæla kútmagakvöld Lionsmanna verður haldið í Sindrabæ

laugardaginn 11. apríl nk.

Veislustjóri : Jóhannes Sigfússon

Gunnarsstöðum

Miðaverð: 5000 kr

Húsið opnar kl. 19:30

Allir karlmenn velkomnir

Lionsklúbbur Hornafjarðar

Skref til SjálfShjálparFræðslunet Suðurlands á Höfn ætlar að bjóða uppá námsleið í byrjun september sem kallast Skref til sjálfshjálpar en námið er 60 kennslustundir í lestri og ritun og er ætlað fólki með stutta skólagöngu sem á við lestrar- og ritunarerfiðleika að etja.

Hægt er að fá námskeiðið metið í allt að 5 einingar á framhaldsskólastigi.

Kennari verður Zophonías Torfason, íslenskukennari í FAS og kennt verður tvisvar í viku, í 8 vikur, í Nýheimum.

Skráning og frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Nínu Síbyl í síma 560-2050 og á netfangið [email protected] og Möggu Gauju í síma 470-8074 eða á netfangið [email protected].

Ljósmynd: Björn Arnarson

5Eystrahorn Miðvikudagur 1. apríl 2015

Höfuðlúsin kemur upp á hverju ári í grunnskólum og

leikskólum landsins. Talið er að hún hafi borist hingað fyrst með landnámsmönnum og þótti mönnum það merki um heilbrigði hér áður fyrr ef á þeim þrifust lýs. Fullorðin lús er um 2-3 mm á stærð, með sex fætur , stutta fálmara á höfði og hún nærist á blóði úr hársverðinum.

Líftími lúsarinnar

Kvenkyns lús lifir í 3-4 vikur. Hún verpir eggjum alveg niður við hársvörðinn þar sem mesti hitinn er og þau kallast nit. Nitin klekjast út eftir 6-10 daga og eftir situr tómt hylkið ca 4-6 mm frá hársverðinum. Lúsin verður kynþroska eftir 7-10 daga og þá getur hún verpt allt að 10 eggjum á dag þar til hún drepst. Hún getur lifað mest í einn sólarhring án næringar.

Smitleiðir

Lúsin getur skriðið á milli hausa við beina snertingu en hún getur hvorki stokkið flogið né synt og hún smitast eingöngu frá manni

til manns ekki fyrir milligöngu dýra. Lúsin verður fljótt löskuð þegar hún dettur úr hárinu og út í umhverfið, því er talið ólíklegt að smit verði með innanstokksmunum en hún getur borist á milli með greiðum, burstum, húfum og þess háttar sem notað er af fleirum en einum.

Meðferð við lúsasmiti

Ef lús greinist í hári, þá þarf að meðhöndla strax. Margt hefur breyst á síðustu áratugum hvað varðar meðhöndlun og hafa komið á markaðinn efni sem lúsin getur ekki

myndað ónæmi gegn og þau eru einnig mildari í hársvörð barnanna. Algengustu efnin á markaðnum í dag eru hedrin, licener og paranix. Nýlega hefur komið á markaðinn r a f m a g n s k a m b u r sem drepur lúsina og nit hennar með rafstuði og getur hann gagnast vel við að greina lúsina og nota eftir meðferð með lúsasjampói. Mikilvægt er að kemba öllum heimilismönnum, þvo rúmfatnað við 50-60°C, frysta fatnað sem þolir ekki heitan þvott og hella sjóðandi vatni yfir bursta og greiður. Umfram allt þarf svo að kemba hárið reglulega á t.d. 4 daga fresti næstu 2-3 vikurnar til að tryggja að árangur hafi náðst.

f.h. heilsugæslunnar í Hveragerði, HSU Sigríður B. Ingólfsdóttir, hjúkrunarstjóri

Heimildir: www.landlæknir.is, www.ni.is, visindavefur.is, bæklingur : að fanga höfuðlúsina

• Höfuðlús

Glæsilegur þriggja rétta páskaseðill hjá okkur á Hótel Höfn um helgina

• Koníaksbætt humarsúpa með rjómatopp og humri

• Ofnbakað lambafille og stórlúða með dijon-sveppasósu, sellerírótarmauki og gratíneruðum kartöflum

• Ljós og dökk súkkulaðimús með hindberjasósu og ís

Verð kr. 4.990,-Borðapantanir í síma 478-1240

Gleðilega páska

Páskalamb á Hótel HöfnPáskalamb á Hótel Höfn

6 EystrahornMiðvikudagur 1. apríl 2015

N1 HöfnSími: 478 1940

Veitingatilboð

Beikonborgarifranskar, lítið Kit Kat og 0,5 l Coke í dós

1.479 kr.

1.279 kr. 779 kr. 499 kr.

Samlokameð skinku, osti, iceberg og sósu og franskar, lítið Kit Kat og 0,5 l Coke í dós

Djúpsteikt pylsameð osti og frönskum á milli og 0,5 l Coke í dós

Pylsa með öllulítið Kit Kat og 0,33 l Coke í dós

Minnum á tónleika hamrahlíðakórsinsLaugardagur 11. apríl kl. 14:30 Tónleikar í félagsheimilinu Hofgarði í Öræfum.

Sunnudagur 12. apríl kl. 11:00 Sungið á hjúkrunardeild HSU, Hornafirði. kl. 14:00 Tónleikar í Hafnarkirkju í Hornafirði.

Mánudagur 13. apríl kl. 10:00 Skólatónleikar fyrir Grunnskóla Hornafjarðar, 1. - 6. bekk.

kl. 11:30 Skólatónleikar fyrir Framhaldsskólann í A- Skaftafellssýslu og efstu bekki Grunnskóla Hornafjarðar.

Varla geta komið endalausar lægðir yfir okkur, en með betra veðri og hækkandi sól er ekki úr vegi að rifja upp góðar venjur og reglur úr umferðinni. Munum að nota reiðhjólahjálminn og minnum á að það er skylda fyrir yngri en 15 ára. Við sem eldri erum tökum þau síðan til fyrirmyndar og notum líka hjálminn. Bara af því að það er skynsamlegt. Spyrjið bara Gísla.Spennum bílbeltin og ökum á löglegum hraða. Ekki bara skynsamlegt, heldur kemur okkur lengra og sparar um leið peninga. Bæði eldsneyti sem og sektir. Ekki gleyma að ökumaður ökutækis ber ábyrgð á þeim sem er yngri en 15 ára.Sýnum tillitsemi og þolinmæði. Ólíkt fólk er í umferðinni og endalaus flóra af alls kyns aðstæðum sem koma upp. Sumir eru gangandi, hjólandi, akandi og ónefndir allsstaðar stoppandi. Stress bætir ekki neitt. Drögum djúpt andann og úr hraðanum. Málið leyst.Við munum leggja okkar af mörkum til að bæta umferðaröryggi og skorum á þig að gera slíkt hið sama. Því þetta er samvinna. Þetta snýst um öryggi – komum heil heim !

Lögreglan á Suðurlandi

Umferðarsumarið 2015Kynningarfundur

Tillaga að nýju deiliskipulagi Höfnin – Ósland verður til kynningar í Ráðhúsi 3. hæð Hafnarbraut 27 Höfn

þann 7. apríl kl. 13:00.

Skipulagsfulltrúi

7Eystrahorn Miðvikudagur 1. apríl 2015

Leyfi til nýtingar við FjallsárlónBæjarstjórn Hornafjarðar hefur samþykkti nýtt deiliskipulag við austurbakka Fjallsárlóns á Breiðamerkursandi skv. skipulagslögum nr. 123/2010. Svæðið er í þjóðlendu við Fjallsárlón og hefur landnúmerið 222267. Allt skipulagssvæðið er skilgreint á náttúruminjaskrá. Markmið deiliskipulagsins er að sníða ramma utan um ferðamennsku á svæðinu þannig að hægt verði að taka á móti ferðamönnum svo umhverfið verði fyrir sem minnstu hnjaski. Deiliskipulagið gerir m.a. ráð fyrir að komið verði upp nauðsynlegri ferðamannaaðstöðu, svo sem þjónustuhúsi og salernisaðstöðu.

Bæjarráð Hornafjarðar hefur ákveðið að auglýsa leyfi til nýtingar á landsvæði við Fjallsárlón laust til umsóknar með fyrirvara um samþykki Skipulagsstofnunar á deiliskipulagi við Fjallsárlón. Um er að ræða leyfi með gildistíma frá 1. maí 2015 til 1. maí 2027 með möguleika á framlengingu til 1. maí 2033. Lágmarkgjald fyrir leyfið er kr. 9.500.000 á ári.

Með auglýsingu þessari vill bæjarráð Hornafjarðar lýsa eftir aðilum sem hafa áhuga á starfsemi sem fellur að deiliskipulagi svæðisins og uppfylla þá skilmála sem að neðan greinir. Leyfishafi þarf að koma upp varanlegri þjónustu- og salernisaðstöðu fyrir ferðamenn á svæðinu fyrir maí 2016. Nauðsynlegt er að koma upp bráðabirgða þjónustu- og salernisaðstöðu áður en starfssemi hefst 2015.

Leyfishafa verður heimilt að vera með allt að fjóra báta í siglingum á lóninu. Stefnt skal að notkun umhverfisvænna utanborðsmótora í siglingum á lóninu. Er þetta gert til að upplifun ferðamanna af svæðinu verði eins náttúruleg og mögulegt er.

Leyfishafi kemur upp vatnsveitu og fráveitu sem stenst kröfur til þeirrar starfssemi sem hann hyggst halda úti á svæðinu. Öll uppbygging á svæðinu er á kostnað og ábyrgð leyfishafa. Akvegur að svæðinu, bílastæði og göngustígar eru á ábyrgð sveitarfélagsins.

Skilmálar sem einkum verður litið til við ákvörðun um leyfisveitingu á umræddu svæði eru eftirfarandi. Ekki skal litið svo á að röðun þeirra gefi til kynna vægi einstakra skilmála innbyrðis:

• Hvernig viðkomandi hyggst nýta skipulagsreit í þeim tilgangi að hafa þar starfsemi fyrir ferðamenn,• Framkvæmdaáætlun um uppbyggingu á svæðinu,• Að uppbygging samræmist vel landsslagi og stingi ekki í stúf við umhverfið• Upphæð gjalds fyrir leyfið • Tæki og búnaður til starfseminnar,• Reynsla og þekking viðkomandi aðila af ferðaþjónustu,• Leyfi sem skylt er að hafa fyrir starfsemina,

Áhugasamir aðilar vinsamlegast skilið inn umsókn til bæjarráðs Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði, eigi síðar en kl. 12 á hádegi þann 20. apríl 2015.

Umsækjendur nálgast frekari upplýsingar um nýtingarleyfið í Ráðhúsinu á Höfn, í síma 470-8000 eða sent fyrirspurn á netfangið [email protected]

Bæjarráð Hornafjarðar

Björgunarfélag Hornafjarðar og Björgunarbátasjóður Hornafjarðar halda aðalfund sinn í húsi félagsins 8. apríl kl. 20:00.

Venjuleg aðalfundarstörf

Stjórnin

Afmæli og vöfflukaffiÍ tilefni af 60 ára afmælinu mínu sem var 28. mars sl. verður opið hús á heimili vinkonu minnar, Jörgínu, á Kirkjubraut 15 á Höfn þar sem boðið verður uppá vöfflukaffi miðvikudaginn 1. apríl kl. 16:00 – 21:00.

Ættingjar, vinir og kunningjar verið velkomin.

Anna Egilsdóttir

Tegund Stofn Sekkur/kg kr/kg Verð pr. sekkGrasfræGrasfræblanda*Grasfræblanda*VallarfoxgrasVallarfoxgrasVallarfoxgrasVallarsveifgrasHávingullTúnvingull

SS AlhliðaSS TúnEngmóSwitchVegaSobraNorildReverent

20 kg20 kg10 kg10 kg10 kg10 kg10 kg10 kg

750750510720720790720610

15.000 kr15.000 kr5.100 kr7.200 kr7.200 kr7.900 kr7.200 kr6.100 kr

GrænfóðurfræSumarrýgresiFjölært rýgresiFjölært rýgresiVetrarrýgresiVetrarrepja

JivetCalibraKentaurTurgoEmerald

25 kg10 kg10 kg25 kg10 kg

470590590470490

11.750 kr5.900 kr5.900 kr11.750 kr4.900 kr

ByggBygg 2ja raðaBygg 2ja raðaBygg 2ja raðaBygg 2ja raðaBygg 6 raðaBygg 6 raðaBygg 6 raða

FilippaFilippaKríaKríaJuditAukustiAukusti

25 kg700 kg25 kg700 kg700 kg350 kg700 kg

130130137137129129129

3.250 kr91.000 kr3.425 kr95.900 kr90.300 kr45.150 kr90.300 kr

HafrarHafrarHafrarHafrar

AxeliBelindaBelinda

350 kg25 kg350 kg

135135135

47.250 kr3.375 kr47.250 kr

Sáðvörulisti 2015

*SS Alhliða: 60% Vallarfoxgras (10% Switch - 50% Vega) - 10% Vallarsveifgras Sobra - 15% Hávingull Norild - 15% Fjölært rýgresi Calibra.*SS Tún: 70% Vallarfoxgras (25% Switch - 45% Vega) - 30% Hávingull Norild

Áskiljum okkur rétt til verðbreytinga án fyrirvara - öll verð eru gefin upp án virðisaukaskatts. Með fyrirvara um prentvillur.

Ef gengið er frá pöntun fyrir 1. maí er frír flutningur til bænda.

Sláturfélag Suðurlands svf. • Fosshálsi 1 • 110 Reykjavík • Sími 575 6000 • www.ss.isSölumaður Bjarni Hákonarson sími 894-0666.

Verðlækkun vegna gengisbreytinga

Litur Listaverð án vsk. Magn á brettiRúlluplastTenospin - 750*0,025*1500 Hvítt 10.950 kr 15Tenospin - 750*0,025*1500 Ný vara Grænt 10.950 kr 15Tenospin - 750*0,025*1500 Ný vara Svart 10.800 kr 15NetWestfalia - 123*3000 m 23.500 krGarnCobra 4.500 kr

Rúlluplastið sem bændur treysta