Upload
gaflariis
View
266
Download
6
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Vikublaðið Gaflari sem kom út 16. maí 2014
Citation preview
Þjóðbúningurinn enn að þróast og er alltaf smart
Guðrún Hildur Rosenkjær rekur Annríki – þjóðbúninga og skart ásamt eig-inmanni sínum, Ásmundi Kristjánssyni. Hildur er lærður klæðskeri og kjól-
ameistari en þegar hún saumaði sinn fyrsta búning við silfur sem foreldrar hennar höfðu gefi ð henni ungri að aldri. Hildur er gafl ari vikunnar. hennar höfðu gggefi ð henni ungggri að aldri. Hildur er gggafl ari vikunnar.
Hvernig hefur bíllinn það?
Opið: mánudaga til fimmtudaga kl. 8.00-18.00, föstudaga kl. 8.00-16.30
BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Við hjá BJB erum sérfræðingar í dekkjum, pústi, smurningu og fleiru sem viðkemur reglubundnu viðhaldi bíla. Komdu með bílinn í BJB Hafnarfirði og þú færð góða þjónustu og vandaða vinnu.
2012
Tímapantanir í síma
565 1090
Save Water, Drink Beer
HAFNARFIRÐI
BOLTINNÍ BEINNI!
HAPPY HOUR16.00 – 19.00
TILVALINN STAÐURFYRIR EINKASAMKVÆMI
X-Hafnarfj örður: Framsókn og Píratar til svaraXF4
Kíkt í kaffi : Við erum bæði hugsjónafólkKb8Nemendur umbreyta mel
og moldarfl agi í gróðurvinNoo2
Sundkappar úr Firði gera það gott aaa S11
Frétt ir Umræðan Tilveran Íþrótt irgafl ari.is föstudagur 16. maí 2014 6. tbl. 1. árg.
2 - gafl ari.is
FRÉTTIR Vorhátíð Fríkirkjunnar var haldin um síðustu helgi
og var þar margt um manninn að vanda. Velunnarar kirkjunn-
ar komu saman í Kaldárseli og undu sér vel við söng, dans og
guðsboðskapinn. Eins og myndirnar bera með sér var Fríkirkju-
söfnuðurinn heppin með veður en mörgum þótti þó skrýtið að
Kaldáin var ekki á svæðinu en farvegur hennar var skraufaþurr.
FRÉTTIR Undanfarið hefur svo
sannarlega lifnað yfir Strandgötunni.
Langur laugardagur er orðinn að föst-
um lið í hverjum mánuði og kaupmenn
leggja sitt að mörkum til að gera búð-
ir sínar enn áhugaverðari.
Fríða skart er einn þessara kaup-
manna. Í hverjum mánuði fær hún til liðs
við sig listamann sem heldur sýningu
á verkum sínum í búðinni. „Við erum
mikið áhugafólk um miðbæinn og vilj-
um leggja okkar að mörkum til að gera
hann meira lifandi. Okkur finnst sýn-
ingarnar hafa glatt fólk sem á leið hér
um og ekki síður þá sem eru á rölti hér á
kvöldin eftir lokun verslana,“ segir Fríða
Jónsdóttir, skartgripahönnuður.
Listamaður hvers mánaðar vel-
ur eftirmann sinn þannig að Fríða
veit sjaldnast við hverju er að búast.
„Þetta er mjög skemmtilegt fyrir-
komulag og okkur hlakkar mikið til að
fá að vita hver verður hjá okkur í júní.“
Það var Kristbjörg Guðmunds-
dóttir sem reið á vaðið hjá Fríðu og
sýndi hún postulínsljós sem hún kall-
ar Ból og eru afsteypur af gömlum
netakúlum. Hún skoraði á Guðnýju
Hafsteinsdóttur leirlistakonu sem nú
sýnir verk sín hjá Fríðu skart.
FRÉTTIR „Guðrúnu Lízu hafði lengi
dreymt um að opna kaffihús og við
höfum allar unnið í veitingarekstri.
Guðrún var að vinna á hóteli í Noregi
og þegar hún kom heim spurði ég
hvort við ættum ekki að láta draum-
inn rætast,“ segir Erla Sigurðardótt-
ir. Mæðgurnar Guðrún Líza og Telma
Björk Bjarkadætur og Erla Sigurðar-
dóttir opnuðu nýverið Café Deluxe á
efri hæðinni í gamla Sjálfstæðishús-
inu.
Samstarfið gengur vel hjá mæð-
gunum. „Þetta er bara fullkomið.
Við bætum hvor aðra upp því við
erum allar með styrkleika á sitt
hvoru sviðinu. Mamma er mest og
best í bakstrinum,“ segir Telma. „Ég
sé m.a. um tónlistina en hugmyndin
er að hér sé lifandi tónlist á kvöldin
og um helgar. Við erum með vín-
veitingaleyfi, fyrir bjór og léttvín
og hugmyndin er að skapa notalega
stemningu.“ „Og Guðrún Líza er í
hlutastarfi og hjálpar til við rekstur-
inn,“ segir mamman.
Þær eru samhentar mæðgurnar
enda í mörg horn að líta þegar fyrstu
skrefin eru tekin í nýjum rekstri.
„Við erum rosalega ánægðar með
móttökurnar, okkur finnst við vera
staddar í litlu þorpi úti á landi. Fólk
vill okkur vel og hér hefur verslunar-
fólk verið að koma og kíkja á okkur
og fá sér að smakka á léttu réttunum
okkar eða kökunum. Fólki stendur
greinilega ekki á sama um okkur, ég
hélt að þetta væri horfið úr Hafnar-
firði, svona krúttleg stemning, en
þetta er einstaklega gleðilegt,“ segir
Erla.
Sýningarnar gleðja fólk
Nýtt kaffihús í gamla Sjálfstæð-ishúsinu
Sunnudagaskóli í sveitinni
FRÉTTIR Frá haustinu 2001 hafa
samtökin Gróður fyrir fólk í Land-
námi Ingólfs (GFF) farið með nem-
endur úr Flensborg í Krýsuvík að
klæða þar örfoka land gróðri. Lætur
nærri að hver einasti nemandi skól-
ans frá þessum tíma eigi þátt í því
að umbreyta þar mel og moldaflagi
í gróðurvin,“ segir Björn Guðbrandur
Jónsson framkvæmdastjóri GFF.
Leiðangrar til Krýsuvíkur hluti af námskeiði í lífsleikni.„Tilgangurinn er að græða upp land
og að nemendur fái upplifun af að
vinna markvisst og vísindalega að
öflun upplýsinga og meðhöndlun
þeirra. Farið er í apríl og í septem-
ber og leiðangrarnir eru undirbúnir í
skólastofu þar sem tilgangurinn er
settur í samhengi við sjálfbæra þró-
un og gróður- og jarðvegseyðingu.“
Lagt er upp með að nemendur
geri athuganir á umhverfinu, vakti
árangur af trjáplöntun nemenda fyrri
ára, en þannig hefur orðið til gagna-
banki um lifun og vöxt trjáplantna
í Krýsuvík, sem vonir standa til að
hægt verði að nota við kennslu í töl-
fræði við Flensborg.
GFF kallar þennan þátt í starfi
samtakanna LAND-NÁM og er hann
starfræktur með fleiri skólum, þótt
framlag Flensborgar sé viðamest. Í
verkefninu eru settar niður íslenskar
trjáplöntur og 80% þess sem er
plantað er birki, eins til tveggja ára
plöntur upp úr bakka. Restin er víði-
tegundir og 4% plantnanna er reyni-
viður.
„Með hjálp skólaæskunnar er
þess freistað að endurheimta birki-
skóginn sem í eina tíð þakti láglendi
á Íslandi; ekki verk fyrir óþolinmóða;
birkið er ekki fljótsprottnasta
tegundin. En hver telur það eftir sér
að þurfa að bíða aðeins þegar fyrir-
heit er um fagra birkilaut og alla þá
góðu vist sem slíkur staður hefur í
för með sér,“ segir Björn. Sjá nánar á
gaflari.is.
Nemendur Flensborgar-skólans við LANDNÁM í Krýsuvík
gafl ari.is - 3
„ Fjárhagur Hafnarfjarðar hefur
stórbatnað á síðustu árum. Undir styrkri
stjórn eigum við framtíð saman. “
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir
Bæjarstjóri
ATH: Þessi störf eru aðeins fyrir námsmenn á milli anna, þ.e. þá sem hafa verið í námi á líðandi vetri og eru skráðir í nám í viðurkenndri menntastofnun, innlendri eða erlendri í haust. Með umsókn þarf að fylgja staðfesting á áframhaldandi skólavist á næstu önn.
Umsækjendur skulu að lágmarki ná 18 ára aldri á árinu. Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected]
Einnig er hægt að skila umsóknum í Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6. Um er að ræða 15 störf sem ráðið verður í hjá hinum ýmsu stofnunum Hafnarfjarðarbæjar. Umsóknarfrestur er til 22.maí 2014.
SUMARÁTAK VINNUMÁLASTOFNUNAR FYRIR
NÁMSMENN
#Halló Hafnarfjörður
2001 - 2014
13ára
Ein fullkomnastaprentsmiðja landsinser á Bæjarhrauni 22í Hafnarfirði...
4 - gafl ari.is
Útgefandi: Bæjarfréttir ehf. - Kt. 521113-0300 • Framkvæmdastjóri: Jökull Másson • Ritstjórn og ábyrgðarmenn: Alda Áskelsdóttir, Erla Ragnarsdóttir, Helga Kristín Gils-
dóttir & Kári Freyr Þórðarson ([email protected]) • Umbrot & hönnun: Prentun.is • Prentun: Prentun.is - Bæjarhrauni 22 • Ljósmyndarar: Júlíus Andri Þórðarson & Vil-
hjálmur Valgeirsson • Upplag: 10.500 eintök • Auglýsingar: Júlíus Andri Þórðarson, Ólafur Guðlaugsson & Tryggvi Rafnsson, sími: 544 2100, netfang: [email protected]
Ég hef alltaf verið
maður sólarinn-
ar. Þrátt fyrir að
sólin hafi iðulega
farið illa með
mína næpuhvítu húð þá hefur hún
alltaf verið boðberi mikils fagnað-
ar. Með hækkandi sól og hitastigi
yfir frostmarki þá veit mitt stóra
íþróttahjarta að íslenski boltinn er
að fara byrja. Lyktin af nýslegnu
grasi, öskur áhorfenda á greyið
dómarann og 22 leikmenn hlaup-
andi um á grasbala að elta bolta er
bara eitthvað svo dásamlegt.
Hafnarfjörður er sannkallaður
íþróttabær. Fjöldi hafnfirskra
leikmanna er í íslenska landsliðinu
í handbolta og gott gengi í fót-
boltanum sýnir það svart á hvítu
að Hafnarfjörður stendur upp úr
á landinu ef miðað er við önnur
íslensk bæjarfélög. Hafnfirðingar
eiga að vera stoltir af því hversu
vel er haldið utan um íþróttalífið í
bænum og þeir eiga að fjölmenna
þegar íþróttaliðin þeirra eru að
spila. Íþróttir eru ekki bara góð
forvörn fyrir börn og unglinga
heldur geta þær verið afbragðs
vettvangur fyrir fjölskylduna
að gera eitthvað saman. Það á
að vera hægt að gera góða fjöl-
skylduferð úr deginum með því að
fara fyrir leik, fá sér jafnvel eitt-
hvað að borða á leikvellinum og
njóta þess svo saman að horfa á
íþróttafólk leika listir sínar.
Hafnarfjörður á fimm lið sem taka
þátt í Íslandsmóti fullorðinna í
knattspyrnu í sumar. Svo ef þið
hafið ekki áhuga á fótbolta þá
þýðir það ekki að þið þurfið að
sitja heima því frjálsíþróttadeild
FH, SH og Fjörður verða líka í eld-
línunni í sumar. Það er því engin
afsökun að sitja heima og láta sér
leiðast. Óstaðfestar rannsóknir
sýna líka að maður grennist við að
horfa á aðra hreyfa sig á meðan
maður andar að sér fersku hafn-
firsku lofti.
Kári Freyr Þórðarsson
Að sækja vatnið yfir lækinnLeiðari ritstjórnar Gaflarans
X-HafnarfjörðurÚt er runninn frestur til að skila
inn framboðum til sveitarstjórn-
arkosninga vorið 2014. Búið er
að staðfesta þátttöku sex fram-
boða í kosningunum í vor; Björt
framtíð sem fær bókstafinn Æ,
Framsóknarflokkurinn með B,
Píratar með bókstafinn Þ, Sam-
fylkingin S, Sjálfstæðisflokk-
urinn með bókstafinn D og VG
með V-ið. Skoðanakannanir eru
væntanlegar á næstu dögum en
spennandi verður að sjá hvern-
ig fylgið mun dreifast að þessu
sinni. Það er mál manna að mikil
hreyfing sé á fylginu og spennan
haldist því alla leið fram á kjör-
dag.
Gaflari gerir framboðunum sex
skil í blaðinu. Í síðustu viku svör-
uðu fulltrúar Samfylkingarinnar
og Bjartrar framtíðar spurningum
Gaflara og nú er röðin komin að
hreyfingu Pírata og Framsóknar-
flokknum.
Framsóknarflokkurinn í Hafnarfirði hefur ekki náð full-
trúa í bæjarstjórn síðustu tvö kjörtímabil. Flokkurinn
fékk 7,6% atkæða í síðustu sveitarstjórnarkosning-
um. Fyrstu þrjú sæti lista Framsóknarflokksins skipa þau Ágúst Bjarni
Garðarson, Jenný Jóakimsdóttir og Sigurjón Norberg Kærnested.
Píratar bjóða í fyrsta sinn fram til sveitarstjórnarkosninga
í Hafnarfirði. Píratar leggja áherslu á grunngildi Pírata, sem
lúta fyrst og fremst að beinu lýðræði og gegnsæi. Þau sem
skipa fyrstu þrjú sæti Pírata í Hafnarfirði eru þau Brynjar Guðnason, Hildur
Björg Vilhjálmsdóttir og Finnur Þ. Gunnþórsson
Hvað finnst þér að sveitarstjórn-arkosningarnar í vor eigi að snú-ast um? Þær eiga að snúast um
mikilvægi þess að í Hafnarfirði
sé fjölskylduvænt samfélag þar
sem allir búa við jöfn tækifæri og
öryggi. Hvort sem það er á sviði
atvinnu, skóla, frístunda eða í hús-
næðismálum.
Hvert yrði fyrsta verk Fram-sóknarflokksins komist hann í meirihluta bæjarstjórnar í vor?Taka á atvinnumálum og afla meiri
tekna fyrir bæjarfélagið. Einnig
munum við fara strax í að bregðast
við niðurstöðu þjónustukönnunar
Capacent Gallup frá því í nóvem-
ber 2013, þar sem það er augljóst
að auka og bæta þarf þjónustu við
bæjarbúa á öllum sviðum.
Mun Framsókn beita sér fyrir því að ráðinn verði ópólitískur bæj-arstjóri í Hafnarfirði? Við teljum
fyrst og fremst að það sé mikil-
vægt að hæfur einstaklingur gegni
starfinu, hvort hann er ópólitískur
skiptir okkur ekki öllu máli.
Af hverju eiga Hafnfirðingar að kjósa Framsóknarflokkinn?Vegna þess að frambjóðendum
Framsóknarflokksins er annt um
Hafnarfjörð og eru með ferskar
hugmyndir og lausnir sem munu
efla hag bæjarbúa.
Hvað finnst þér að sveitarstjórn-arkosningarnar í vor eigi að snú-ast um? Þær eiga að snúast um
þær lausnir sem framboðin hafa
fram að færa við þeim verkefn-
um sem framboðin telja brýnust
fyrir Hafnfirðinga. Okkar helsta
áherslumál er að opna stjórnsýsl-
una upp á gátt og gera hana gegn-
sæja og aðgengilegri bæjarbúum.
Í því felst að opna bókhaldið al-
gjörlega, gera gögn aðgengileg á
opnum sniðum og tryggja aukið
þátttökulýðræði.
Hvert yrði fyrsta verk Pírata kom-ist hann í meirihluta bæjarstjórn-ar í vor? Opna bókhald bæjarins
upp á gátt. Í því felst að birta allar
færslur á vefnum – fyrir utan þær
sem njóta verndar vegna persónu-
verndarsjónarmiða.
Munu Píratar beita sér fyrir því að ráðin verði ópólitískur bæj-arstjóri í Hafnarfirði? Í þágu
íbúalýðræðis er eðlilegast að
bæjarstjóri sé kosinn í beinni íbúa-
kosningu. Hinsvegar breyta bæjar-
fulltrúar ekki sveitarstjórnarlög-
um og það er ekki aðalatriði fyrir
Pírata hvernig bæjarstjóri er valinn
við núverandi fyrirkomulag.
Af hverju eiga Hafnfirðingar að kjósa Pírata? Til að tryggja að þeir
geti verið upplýstari og meðvit-
aðari um þær ákvarðanir sem tekn-
ar eru í Hafnarfirði og að þeir geti
haft meiri áhrif á þessar ákvarðan-
ir. Enda telja Píratar að draga þurfi
úr miðstýringu valds og efla beint
lýðræði.
Jenný Jóakimsdóttir
Brynjar Guðnason
gafl ari.is - 5
Nú er Löður við N1, Lækjargötu Hafnafirði!
6 - gafl ari.is
Alltaf mikið annríki í Annríki
GAFLARAR VIKUNNAR
„Ég ólst þannig séð upp við þessa gömlu búninga.
Mamma mín, hún Rúrí, var handavinnukennari til
margra ára í Flensborg og þegar hún var í Kennó
á sínum tíma þá saumaði hún upphlut á okkur
systurnar. Þett a voru jólafötin okkar í mörg ár. “
Annríki – Þjóðbúningar og skart er fyrirtæki rekið af Ásmundi Kristjánssyni, vélvirkja og
gullsmið og Guðrúnu Hildi Rosenkjær, klæðskera og kjólameistara. Þau sérhæfa sig í öllu
því sem viðkemur íslenska þjóðbúningnum og bjóða upp á námskeið og kynningar á honum.
gafl ari.is - 7
Þegar Gaflari náði tali af Hildi voru
þau hjónin í óðaönn að undirbúa
kynningu í Sagnheimum í Vest-
mannaeyjum og útskrifa nemendur
í þjóðbúningagerð. Hafnfirðingar
hafa einnig sótt slík námskeið og
verður prúðbúinn hópur af öllu höf-
uðborgarsvæðinu útskrifaður hér í
Firðinum þann 1. júní næstkomandi.
Erla Ragnarsdóttir ræddi við Hildi
um þjóðbúninginn og hlutverk hans í
nútímasamfélagi og öll þau verkefni
sem þau hjónin vinna að, í sannköll-
uðu annríki.
Þeir eru sjálfsagt margir sem
tóku eftir sérstaklega sparibún-
um þjóðhátíðargestum á 17. júní
skemmtuninni í miðbæ Hafnar-
fjarðar í fyrra. Mannlífið iðaði t.d.
á Austurgötunni og þar í kring og
víða mátti sjá konur í upphlut og
karla í fornmannaklæðum sem
settu hátíðlegan svip á bæinn. Það
eru þau Hildar og Ási í Annríki, sem
eiga heiðurinn af þessari nýbreytni
á hátíðahöldunum og kemur til
vegna elju þeirra og einlægs áhuga
á hinum gömlu búningum okkar Ís-
lendinga.
Hildur segist vera ánægð með
hversu vel íslenskri hönnun fleygir
fram og hún fylgist vel með því
nýjasta. Hugur hennar leitar þó til
hins forna og þjóðlega. „Ég ólst
þannig séð upp við þessa gömlu
búninga. Mamma mín, hún Rúrí, var
handavinnukennari til margra ára í
Flensborg og þegar hún var í Kennó
á sínum tíma þá saumaði hún upp-
hlut á okkur systurnar. Þetta voru
jólafötin okkar í mörg ár. Svo gaf
hún okkur silfur á búning sem mig
langaði alltaf til að sauma við. Það
kveikti í mér og ég lét verða af því
að sauma mér upphlut fljótlega
eftir að námi lauk. Ég á hann enn,
en frúin passar nú ekki alveg í hann,“
segir Hildur og hlær dátt. „En ég er
nú búin að sauma nokkra síðan.“
Hildur útskýrir fyrir blaðamanni
að það sé til hugtak yfir þetta, að
kaloríupöddur séu í skápnum og nú
hlæjum við báðar. „Það eru margar
konur sem lenda í þessu með bún-
ingana sína. Þær nota þá sjaldan og
þegar á að grípa til þeirra þá passa
þeir ekki alveg. En þetta er hægt að
laga, við erum að kenna nýsaum en
bjóðum konum líka að koma með
gamla búninga til að lagfæra.“
Vitum ekki hvort kom á undan, Annríki eða annríkiðHildur tók tvö sveinspróf í klæð-
skera- og kjólasaum frá Iðnskól-
anum í Reykjavík og varð meistari
í greininni fyrir 20 árum síðan. Þá
tók við kennsla hjá Heimilisiðnarfé-
lagi Íslands í 15 ár, eitt leiddi af öðru
og áhuginn fyrir gömlu búningunum
og sögunni jókst. Í dag eru þrjú ár
eru síðan Hildur og Ási settu upp
Annríki í Firðinum. „Ási er lærður
vélvirki en fór í gullsmíðina þegar
við stofnuðum fyrirtækið, því það
var nauðsynlegt að hafa það með.
Hann lauk náminu fyrir ári síðan og
það er botnlaust að gera og mikið
annríki hjá okkur. Maður veltir því
fyrir sér hvort kom á undan nafnið
eða reksturinn, þetta er eiginlega
búið að vera sturlun síðustu árin.“
Búningarnir eru stór hluti af því sem gerir okkur að þjóðOg þrátt fyrir annríkið þá geng-
ur þeim Hildi og Ása vel að vinna
saman. „Við erum svo samtaka. Við
erum á sama hlaðinu en í sitt hvoru
húsinu þannig að við höfum pláss.
Og þetta gefur okkur heilmikið,
við höfum til dæmis ferðast heil-
mikið saman vegna starfsins og þá
hjálpumst við að.“ Og á á dögunum
fengu hjónin styrk frá Menningar-
og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar
til að vinna að einu gæluverkefni
þeirra. „Við erum að vinna fald-
búning á Rannveigu Sívertsen, í
tilefni af 270 ára fæðingarafmæli
hennar, það er eiginlega gjöf okkar
til Byggðasafnsins. Við ætlum að
framkvæma þetta þannig að nem-
endur okkar vinna þetta með okkur,
en lýsingar á búningum Rannveigar
er að finna í dánarbúi hennar. Að
sauma faldbúning tekur tvö ár í
vinnslu en að því loknu verður hann
settur á gínu Rannveigar á safninu.
Þetta er mikið verk og þess vegna
erum við að leita að bæði vinnuafli
til að hjálpa okkur með verkið og
kostunaraðilum. Við höfum gaman
af þessu og erum í mjög góðu sam-
starfi við Byggðasafnið og tökum
þátt í ýmusm uppákomum með
þeim á tyllidögum.“
Hildur segir sögu búninganna
ekki síður hafa heillað sig. „ Við
getum í raun skoðað búningasögu
okkar Íslendinga allt frá landnámi.
Búningarnir eru stór hluti af því sem
gerir þjóð að þjóð og það eigum við
að varðveita. Þetta er hátískufatn-
aður sem þróaðist með konum í
alda raðir, enda búningar mjög lif-
andi og 20. aldar búningar lifa t.d.
góðu lífi. Notkun breyttist auðvitað
þá úr því að vera hversdags bún-
ingar í það að verða sparibúningar
og þannig kemur til þetta nafn þjóð-
búningur. Þjóðernishugtakið kemur
inn með 19. öldinni, sjálfsagt hefur
verið talað um þjóðbúning fyrr,
en konurnar voru ekki að velta því
fyrir sér hvort þær væru þjóðlega
klæddar eður ei. Svona klæddu kon-
ur sig hversdags, þetta voru bara
föt. En þjóðbúningurinn hefur feng-
ið ákveðinn virðingarsess og hefur
hátíðlegt yfirbragð og þannig nota
konur þá í dag.“
Dónalegt að láta sjást í ökklaÝmislegt hefur verið gert til að nú-
tímavæða þjóðbúninginn á síðustu
árum og þekktastur er e.t.v. hinn
svokallaði íslenski búningur fyrir
karlmenn. Hvernig skyldi fagmann-
eskjunni lítast á þessa þróun? „Allt
þetta er af hinu góða. Mikilvægast
er að ef fólk á búninga að það noti
þá. Búningarnir eru enn að þróast,
hann fylgir alltaf með tískunni, í
nýjustu efnum og sniðum. En við
erum auðvitað komin í hátæknis-
samfélag sem framleiðir föt fyrir
ekki neitt. Mér finnst mikilvægt
að halda í það, okkar hversdags og
sparifatnaður í dag er annars kon-
ar, en svo sjáum við bara til. Það eru
engin lög eða boð og bönn í tengsl-
um við íslenska þjóðbúninginn.
Okkar eigið hugarfar ræður för,“
segir Hildur hugsandi og blaða-
maður skýtur inn í hvort skyrtan
megi t.d. vera stutterma, eða með
púffi, eða jafnvel stutt pilsin? „ Já,
þetta snertir spurninguna um hvort
við ætlum að halda búningunum
í því samhengi sem þeir voru eða
hvort við viljum alveg brjóta upp
þetta form. Þar skiptir sagan svo
miklu máli. Búningarnir hafa þetta
fasta, sítt pils og efripartinn sem
hefur þróast með efninu. Formæð-
ur okkar hefðu t.d. aldrei látið sjást
í bert. Skyrtur voru alltaf síðerma
og ekki mátti sjást í ökkla, því það
var dónalegt. Á þrjátíu árum um-
breytist þetta, því eftir fyrra stríð
breyttist staða kvenna og kvenna-
hreyfingar spruttu og umbylting
varð á reynsluheimi kvenna,“ segir
Hildur og hún segir íslenskar kon-
ur framsæknar og frumlegar í dag
þegar kemur að þjóðbúningnum.
Þær láti gjarnan sauma á sig nýjar
skyrtur og svuntur við hin ýmsu
tækifæri auk þess sem búninga-
skartið og greiðsla gerir búninginn
nútímalegan.
Hæ, hó og jibbíjeiii… í þjóðbúningiÍslendingar nota búningana sína við
öll hátíðleg tækifæri þó þeir séu
ef til vill meira áberandi í byrjun
sumars. Þá eru gjarnan hinir ýmsu
tyllidagar, fermingar, útskriftir,
sjómannadagurinn og svo auðvitað
þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga.
„Við hvetjum fólk til að mæta í
búningum á 17. júní. Í fyrra auglýst-
um við eftir 100 manns, prúðbúnu
í skrúðgönguna. Það komu um 80,
eigum við bara ekki í ár að auglýsa
eftir 200?“ spyr Hildur og hlær. Og
blaðamanni líst vel á það, minn-
ugur þess að mamma á búning
sem hann getur kannski laumast í.
„Þetta snýst ekki bara um Ísland og
íslenska búninginn, heldur er fólk
af erlendu bergi brotið velkomið í
sínum þjóðbúningum. Við hittumst í
gamla Gúttó, um kl. 11 og ég hjálpa til
við að setja upp húfur og skraut svo
höldum við af stað í skrúðgöngu. Í
fyrra setti þetta skemmtilegan svip
á bæinn, víða mátti sjá fólk í bún-
ingum og það gerði stemninguna
hátíðlega og sjarmerandi.“
Og þau hjónin hafa verið dugleg að
bera út boðskapinn því víða um land
sitja menn og sauma búninga. Hjónin
eru t.d. að útskrifa 30 nemendur af
grunnnámskeiði í nýsaumi á næstu
þremur vikum og 50 nemendur eru
að sauma faldbúninga og skautbún-
inga á þriggja ára námskeiði fyrir
lengra komna. Allt er þetta fólk sem
hefur ánægju af fögru handverki. Út-
skriftin hér í Hafnarfirði fer fram á
Hrafnistu sunnudaginn 1. júní kl. 11 og
eru allir velkomnir að koma og taka
þátt. Seinna um daginn halda þau
Hildur og Ási síðan kynningu á þjóð-
búningnum í húsi Bjarna Sívertsen,
enda sjómannadagurinn og afmæli
Hafnarfjarðarbæjar og því tilefnið
ærið fyrir bæjarbúa til að klæða sig
upp.
8 - gafl ari.is
Auglýsingasími Gaflara544 2100
TILVERAN
Hvaða bók er á náttborðinu? Ég er að glugga í tvær um þessar mundir, annars vegar Árið með heimspeking-um eftir Sigríði Þorgeirsdóttur sem er í rauninni dagbók þar sem fjallað er um einn kvenheimspeking á viku. Hins vegar The doomsday handbook; 50 ways the world could end sem fjallar um allskyns hættur sem við stöndum frammi fyrir, mögulegar og ómögu-legar.
Eftirlætis kvikmyndin? Ég á margar uppáhalds kvikmyndir, til dæmis Mat-rix myndirnar, District 9, Serenity, V for Vendetta og Twelve monkeys. Svo eru Tarantino myndir líka í uppáhaldi.
Play-listinn í ræktinni? Það er engin
KÍKT Í KAFFI Í tilefni þess að bæjarstjórnarkosningar eru á næsta leiti kíkir Gaflarinn að þessu sinni í kaffi til Hildar Bjargar Vilhjálmsdóttur, nema í heimspeki, en hún vermir annað sætið á lista Pírata. Hingað til hefur verið tekið hús á betri helming frambjóðendanna en þar sem oddviti list-ans, Brynjar Guðnason, er makalaus var leitað til Hildar Bjargar að svara nokkrum laufléttum spurningum um Brynjar.
Við erum bæði hugsjónafólk
Hollráð SteinarsGróðurinn hefur heldur betur
tekið við sér þessar fyrstu vik-
ur maímánaðar og það styttist í
sumarblóm og sólbekki. Steinar
hjá Skógræktinni gefur lesendum
Gaflarans góð ráð fyrir garðinn.
Gróðursetning og flutningur trjáa og runnaNú og næstu vikurnar er rétti tím-
inn til að taka upp tré og runna sem
þarf að flytja. Limgerðisplöntur/
hekkplöntur eru yfirleitt seldar
berróta og ber því að gróðursetja
sem fyrst á vorin eða á haustin. Yf-
irleitt eru settar niður þrjár plöntur
á hvern lengdarmeter. Jarðvegur
þarf að vera að minnsta kosti 45
sm djúpur fyrir limgerði. Gott er
að blanda moltu eða hrossataði
saman við jarðveginn. Stærri tré
eins og greni, reyniviður, álmur og
hlynur þurfa að minnsta kosti 80
sm djúpan moldarjarðveg. Stærri
tré þarf að binda við staur. Vökvið
alltaf vel eftir gróðursetningu
rækt í mínu lífi en ég stunda helst jóga eða fjallgöngur og hlusta þá bara á friðinn eða nota tímann til að hugsa. Í bílnum hlusta ég á Sprengjuhöllina, Todmobil, Leikhópinn Lottu, Diskóeyju og Pollapönk eða bara á Rás 2. Svo höfum við Brynjar verið að rifja upp gömul kosningalög undanfarna daga.
Fallegasti staðurinn í Hafnarfirði? Ég gæti haldið langa tölu um fegurð en í stuttu máli er hún afstæð! Uppá-haldsstaðirnir mínir eru Hellisgerði, Lækurinn og Suðurbæjarlaugin.
Eftirlætis maturinn? Soðin ýsa eða þorskur með smjöri.
Eftirlætis húsverkið? Er hægt að eiga eftirlætis húsverk?
Ertu í einhverskonar félagi eða fé-lagsskap? Ég sæki heimspekikaffi-hús sem haldið er á veitingastaðnum Horninu alla laugardaga.
Helsti kostur Brynjars? Brynjar er mikill sáttasemjari
Helsti galli Brynjars? Hann getur verið smámunasamur, en ég er það reyndar líka.
Hvað var það sem þér fannst eft-irtektarvert við Brynjar? Ég tók strax eftir því hvað hann var hress og skemmtilegur.
Hvernig kynntust þið? Við hittumst fyrst á kaffihúsinu Pallett til að ræða mögulega stofnun Pírata í Hafnarfirði.
Hvers vegna deilið þið sömu stjórn-málaskoðun? Þessi spurning kallar á langt svar en stutta útgáfan er sú að við erum bæði hugsjónafólk. Við trúum á mikilvægi samvinnu, lýðræð-is, og heiðarleika. Við erum líka mjög sammála um að það sé hægt að gera mun betur í að opna stjórnsýsluna fyr-ir íbúum.
Hvernig hljómar síðasta sms-ið sem þú fékkst frá Brynjari? „Hvenær verður þú komin?“
GAFLARI MÆLIR MEÐ...
Steik á grilliðEr einhver
Hafnfirðingur
sem er ekki bú-
inn að uppgötva Kjötkompaníið?
Þar er svo sannarlega hægt að
finna sumarsteikina sérvalda af
fagmönnum. Og lambakonfektið
mmm… smakkið
Að skella sér á völlinn Hvort
sem þú held-
ur með FH,
Haukum eða
ÍH, þá jafnast ekkert á við kaffi
og súkkulaði í góðra vina hópi um
leið og þú horfir á boltann rúlla úti
í fersku lofti.ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDSðurh 5, Rv 5 1 00 t n
Sverrir Einarsson
Kristín Ingólfsdóttir
HinrikValsson
gafl ari.is - 9
Í spilaranumHvað er í spilaranum hjá Stefáni Erni Gunnlaugssyni?Pollapönkarinn Arn-
ar Gíslason skoraði
á Stefán Örn Gunn-
laugsson tónlistar-
mann. Stefán í hlutverki Íkornans
sendi frá sér samnefnda sóló-
plötu í fyrra en Stefán er þessa
dagana að undirbúa uppsetningu
söngleiksins Revolution in the El-
bow og Ragnar Agnarsson Furnit-
ure Painter sem verður settur upp
Off-Broadway í New York í sum-
ar. Stefán er einnig að pródúsera
plötu með Láru Rúnars.
„Milli þess sem
ég hlusta á þá
músík sem ég er
að vinna í hef ég
verið að hlusta á
Wilde woman með Lucius. Fínasta
hipsterapopp.
Ég myndi vilja
skora á Andrés
Þór Gunnlaugsson,
gítarleikara, bæj-
arlistamann og bróður til að vera
næstan .“
Fjársjóður HafnarfjarðarAÐSEND GREIN Barnafjölskyldur
eru fjársjóður hvers bæjarfélags. Við
hér í Hafnarfirði erum svo heppin að
hér hafa fjölmargar barnafjölskyld-
ur kosið að búa og ala upp börnin
sín. Það er því einkar mikilvægt að
hlúð sé að þeim á þeirra forsendum.
Forsendum sem eiga að miða að því
að skilja og skynja þarfir þeirra.
Stuðla þarf að betri þjónustu
við barnafjölskyldur svo auka megi
lífskilyrði þeirra er snúa að veittri
þjónustu sveitarfélagsins. Koma
þarf til móts við fjölskyldur hvernig
sem þær eru samsettar, af hvaða
þjóðerni og hvaða fjölskyldumynstri
sem er.
Auka þarf frelsi hvers leik– og grunnskólaHafnarfjörður er skólabær sem
státar af fjölmörgum glæsilegum
leik– og grunnskólum sem allir eiga
það sameiginlegt að hafa frábært og
fjölhæft starfsfólk. Til þess að nýta
betur skólastarfið og starfsfólkið er
mikilvægt að auka frelsi hvers skóla.
Frelsi sem miðar að því að fá það
besta úr hverjum skóla. Foreldrar
eiga að hafa valfrelsi þegar kemur að
þeirri ákvörðun að skrá barnið sitt
í grunnskóla með því til dæmis að
afnema „hverfaskiptingu“ skóla, og
að þeir geti tekið upplýsta ákvörðun
um hvað barni þeirra sé fyrir bestu.
Styðja þarf við einstaklingsfram-
takið, samanber Hjallastefnuna,
og vera opin fyrir nýjungum sem og
þróun í skólastarfi. Tímabært er að
gera átak í tæknivæðingu skólanna
og gefa nemendum og starfsfólki
kost á að nýta sér upplýsingatækn-
ina til fullnustu með þráðlausum
nettengingum í skólum bæjarins.
Samþætting skólastarfs og afnám sumarlokanaLeikskólastarf hér í Hafnarfirði
hefur í raun tekið miklum breyting-
um á undanförnum árum þar sem
markvisst hefur verið unnið að
þróun í takt við nýja tíma. Taka þarf
skrefið lengra og samþætta starf
leik-, grunn- og framhaldsskólanna
í samvinnu við fagfólk, sem skilar
sér í sterkari og ánægðari nemend-
um. Nýta má atvinnulíf hér í þágu
skólastarfsins frekar og ná þannig
fram meiri eflingu í tækni- og verk-
námi í skólum bæjarins. Fjölskyldu-
fólk hefur mismunandi væntingar
til þjónustu sveitarfélagsins en
hlýtur þó að hafa það sammerkt
að vilja val. Eitt af því er að fá að
velja sér hvenær sumarfrí er tekið
í leikskólum. Breyta þarf núverandi
fyrirkomulagi og koma til móts við
nútíma fjölskyldur og afnema sum-
arlokanir.
Fjölskyldan er eitt af því sem skiptir
okkur öll gríðalega miklu máli. Með
því að hafa að leiðarljósi fjölskyldu-
væna stefnu sem miðar að því að
styrkja stoðir og leggja grunn að
góðu samfélagi erum við að bæta í
fjársjóð okkar.
Fjársjóður Hafnarfjarðar er okkur
öllum mikilvægur. Veljum það að
hafa val og veljum það að þroskast
og þróast í átt til nútímans með það
að markmiði að byggja upp samfé-
lag fyrir börnin okkar sem við getum
verið stolt af.
Höfundur skipar 6. sætið á lista
Sjálfstæðisflokksins í HafnarfirðiKristín Thoroddsen
Kíktu viðVið viljum hitta þig
Fös. 16.5. kl. 16-18 við FjarðarkaupLau. 17.5. kl. 16-18 við Bónus - HelluhraunSun. 18.5. kl. 16-18 við Bónus á Völlum
Kosningaskrifstofa á hjólum
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði › hafnarfjordur.xd.is
Frambjóðendur bjóða upp á rjúkandi kaffi og kleinur!
VIÐGERÐIR FYRIR ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG
SUÐURHRAUNI 2 GARÐABÆ SÍMI 554 4060 [email protected]
finndu okkur á facebook
10 - gafl ari.is
Cesarkjúklingur með spínati og hummus
Lolý
UNDIR GAFLINUM
MATUR Þessi uppskrift fæddist í
eldhúsinu fyrir ekki svo löngu. Mig
langaði í einhvers konar kjúklinga-
rétt með cesar-dressingu og ég
átti þetta allt til í ísskápnum, sem
er stundum svolítið gott því þá
sleppur maður við að fara út í
búð. Og þess vegna má líka alveg
breyta þessari uppskrift eftir því
hvað er til í skápunum hverju sinni.
Ég hef reyndar gert þetta bæði
með ferskum kjúklingabringur og
líka notað kjúkling sem hefur ver-
ið afgangur frá deginum áður en
þá hef ég bara skellt honum beint í
dressinguna. Held að þetta sé svona
réttur sem flestum líkar við og er
ferskur og hollur.
2 kjúklingabringur
1 skammtur hummus (tilbúinn eða heimagerður)
1 pakki burritos kökur minni stærðin
1 poki kasjúhnetur
1 dós sýrður rjómi
5 msk Cesarsalat dressing
50 gr rifinn parmesanostur
50 gr rifinn mozzarella ostur
Kjúklingakrydd frá Nicolas Vahé eða eitthvað annað gott krydd
Hvítlaukskrydd
Salt og pipar eftir smekk
Spínat
Takið kjúklingabringurnar og sker-
ið í strimla, steikið á pönnunni upp
úr kjúklingakryddinu,salti og pipar.
Blandið saman í
skál sýrða rjóman-
um og cesarsalat-
dressingunni. Rífið
parmesan ostinn
smátt út í sósuna.
Takið kjúklinginn og blandið honum
saman við sósuna. Blandið humm-
us saman eins og uppskriftin segir
til um – en það er gott að gera það
áður en maður gerir allt hitt því þá
verður hann bragðmeiri.
Takið burritos kökurnar og hitið
saman tvær og tvær saman ofan á hver
annarri inn í ofni við 150°C í 10 mínútur
og passið að setja ekki neitt yfir þær
því það er betra að hafa þær aðeins
stökkar. Síðan set ég hummus á milli
tveggja burritos kaka, set svo aftur
hummus ofan á, dreifi rifnum mozzar-
ella yfir og set síðan fullt af spínati,
kjúklinginn og að lokum kasjúhneturnar.
Þetta er einfalt en algjör snilld -
bragðmikið og gott.
Skemmtilegir pennar leggja Gafl ara lið.Þeir fj alla um ólík málefni og áhugamál, s.s. heilsu, dýramál, tísku og lífstíl, mat, sögu og Hafnfi rðinga í útlöndum skrifa
heim. Á gafl ari.is birtist svo í hverri viku nýr og skemmtilegur pistill eft ir hvern þeirra.
UMHVERFIÐ Ég fékk staðfestingu
á því síðastliðinn sunnudag á leið
minni á Höskuldarvelli að rusladólgar
ganga um lausir hér á landi.
Ég rak upp stór augu og gleymdi
Rusladólgar á HöskuldarvöllumMaría
Þorvarðar-
dóttir
fegurðinni um stutta stund. Svartir
ruslapokar á víð og dreif í vegakantin-
um oftar en einu sinni á leiðinni og sums
staðar í haugum.
Vegurinn er ekki í alfaraleið og er
frekar stórgrýttur og nauðsynlegt að
vera á vel útbúnum bíl. Þess vegna hefði
ég talið að þarna væri ósnortin og hrein
náttúra eða þar til að annað kom í ljós.
Því miður eru spilliefni úr brúsum,
málningarfötur, eldavél og fleira drasl
til margra ára í hrauninu. Sjónmengun
af versta tagi.
Útivistarfólk og ferðamenn
ganga gjarnan á Keili einkennisfjall
Reykjaness allan ársins hring til að upp-
lifa fallega náttúrusýn sem er aldrei
eins.
Mosalögð hraunbreiðan er óvenju-
lega falleg, mjúk og þykk undir il með
víðáttuna í algleymi sem er stórkost-
legt sjónarspil fyrir ferðamenn sem
koma til landsins í frí og njóta andstæð-
anna í íslenskri náttúru.
Það er heilsusamleg hugleiðing að
finna undir fótum sér að jörðin andar.
Leggjast flatur út í íslenska náttúru og
hlaða batteríin. Hlusta á alheimshjart-
að slá og komast í snertingu við upp-
runann.
Sveitarfélagið Vogar á að sjá sóma
sinn í að hreinsa burt ófögnuðinn sem
er af mannavöldum í hrauninu, svo að
fegurðin fá að flæða óhindruð á ný.
Sýnum náttúrunni ávallt stuðning og
virðum hana með því að ganga vel um,
því við eigum aðeins eina jörð.
Kær kveðja, María
Framsókn í Hafnarfirði býður fólk velkomið í Hafragraut og kaffi á
eftirtöldum dögum frá 7:30 - 9:00
Framsókn í Hafnarfirði býður fólk velkomið í Hafragraut og kaffi á
eftirtöldum dögum frá 7:30 - 9:00
Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins er að Linnetstíg 2
VERIÐ VELKOMIN
fös 16. maí mán 19. maí þri 20. maí og fös 23. maí
gafl ari.is - 11
ÍÞRÓTTIRAuglýsing 93x25 mmAuAuAuAuAuAuAAuAuAuAAuAuAAuAuuuuAuAAuAuAAAAAuAuuuuAuAAAAAuuuuuAuAuAAAAuuuAuAAAAuAAuAuAuuAuAuAuAAAAAAuAuuAuAAAAAAAAAAAuAuAuAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAuAuAuAAAAAAAAAAAAAAAAAAuAAAAAAAAAAAAAAAAAuuAuAAAAAAAAAAuAuuAuAAAuAuAuAuAuAuAuAuuuuuuuuuuuuuAuAuuuuAuuuuuuuuAuuAuAuAuuuuuAuAuuAuAuAuuAAAAuAAAuAuAAAAuAuuuuAAuAuAuAAAuuuuuuuuuAuAAuAuAuAuuuuuuuuAAAAuuuuuuuuAuAuuAuuuuAuAuuuuAAAAuAuAAuAAuuuuuAAAuAAAuuAAAuAuuAAAuAAAuuuuuuuuggggggggglggglglgllglggggglglglgggggggllglllgggglglgllggggggggglglglgggggggglglggggggglggggggglgglglglglgllggggggglglgllggglglgggggglgllglgggglgglgllgggglgllgggggggglggggggggggggggggggglglglgggggglglgggggggggglgggggggggggggggglgggggggggggggglggggggglgggglglgggglglggglggggglgglglglglggggglglggggglggggllggggllgglgglgllgllgggggllggglllgggggllgggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggg ýýýýýýýýýýýýýsýsýýýýýýýýýýýýýsýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýý iiiiiiininnnnnnnnnnniiiiiinnnniiinnnniiinnnniiininnnnnnnnnnniiniinnnnnniinnnniinnnnnininniinnnniinnnnnnninnnnnnnnnnniinnnnnnnnnnnnnnnnnnniinnniinnniiinnnniiiiiiinnnniiiiiinnniiiiiiiinnnnnniiiiiiiiinnniiiiiiiinnnggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggg
33333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333x2x2xxx2xx2x2x2x2x2x2xxx2x2xx2xx2x2xx2x2x2x2x2x2xx2x2x2x2x 555555555555555555AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA99999999999993939939399999939999999933999999999999999999999993999399399399939993999999999393999999999339999999999999399999999999999939999999999999999999999999993999999999999999993393999999999999993999999993399999999339999999999999993999999339999999999999999999999999999999999999999999
Frétta- ogmannlífsvefurinn
ýsýýsýsýsýýýsssýsssssýsssssssssýssýssýsýsýsýssýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýý iiiiiiiiinnnnnnnnnnnnnnnnniiiiinnnnnnnnnnnnnnnininiiniiiinnnnnnnnnnniiiiinnninnnniiiiiinnnnnnnnnniiiinnnnnnnniiiiinnnnnnniiiiiiinnnnnnnniiiiiininnnnnnniiiiiii ggggggggggggggggggggggggg ggggggggggggggggggggggggg g g g g ggggggggg gg ggggggggggg ggggggg gggggg ggggg gg ggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggg5 5 55 555555 555555555555555555555 mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
FÓTBOLTI Heimir Guðjónsson og
lærisveinar hans gerðu sér góða
ferð í Laugardalinn síðastliðinn
mánudag þegar þeir mætt u Ís-
landsmeisturum KR í þriðju umferð
Pepsi-deildar karla. FH-ingar sem
voru fyrir leikinn með fj ögur stig
höfðu mætt KR-ingum fyrr á árinu
en þá lauk leiknum með sigri FH
eft ir æsispennandi vítaspyrnu-
keppni. Leikurinn á mánudaginn
var einnig afar spennandi enda
tvö bestu lið landsins að mætast.
Skemmst er frá því að segja að FH-
ingar nældu sér í þrjú dýrmæt stig
gegn sterku KR-liðinu með marki
frá Kristjáni Gauta Emilssyni. Þett a
var hans annað mark í þremur leikj-
um og ef hann heldur svona áfram
þá eru FH-ingar í góðum málum.
Næsti leikur FH er gegn Eyjamönn-
um næstkomandi sunnudag og fer
leikurinn fram í Kaplakrika.
Kristján Gauti tryggði FH sigur gegn KR
Sundfólk frá Íþróttafélaginu Firði var
á meðal keppenda fyrir Íslands hönd
á opna breska og opna þýska meistar-
mótinu sem fór fram í apríl mánuði.
Það voru þau Kolbrún Alda og Aníta
Ósk sem fóru fyrst til Glasgow þar sem
þær tóku þátt í opna breska meistara-
mótinu. Kolbrún Alda, sem hefur verið
að glíma við meiðsli að undanförnu
sýndi mikinn styrk og komst inn í B
úrslit í 200 metra fjórsundi á tímanum
02:48,62. Þær stöllur komust svo báð-
ar inn í B úrslit í 200 metra skriðsundi
þar sem þær enduðu í öðru og þriðja
sæti á nánast sama tíma. Aníta Ósk
hefur verið að bæta sig jafnt og þétt og
hefur verið í mjög góðu formi á undan-
förnum vikum. Það verður því gaman að
sjá þessar stelpur í framtíðinni.
Aðeins tveimur dögum eftir að
landsliðið kom heim frá Glasgow fóru
þrír sundmenn frá Firði til Berlínar til
að taka þátt í 28. opna þýska meist-
aramótinu. Vaka Rún, Ragnar Ingi og
Hjörtur Már fóru fyrir hönd Fjarðar og
stungu sér til sunds í „Schwimm- und
Sprunghalle im Europa Sportpark
Berlin“. Þýskukunnátta blaðamanns er
því miður ekki nægilega góð til að þýða
þetta yfir á okkar ylhýra tungumál.
Hjörtur Már náði frábærum árangri og
bætti sinn besta tíma. Það dugði hon-
um í annað sætið í flokki S6. Hann var
ekki hættur því hann vann einnig brons-
ið í bæði 200 og 400 metra skriðsundi.
Vaka Rún var í mjög góðu formi í Þýska-
landi og gerði tvívegis harða atlögu að
Íslandsmetunum. Í 100 metra skrið-
sundi munaði aðeins sekúndubrotum
að hún næði að bæta Íslandsmetið
en í 50 metra baksundi var hún rúmri
sekúndu frá metinu. Það dugði henni í
annað sætið í flokki S11 og er það nokk-
uð ljóst að það er ekki hvort heldur
hvenær Vaka mun bæta Íslandsmetið.
Vaka var ekki hætt því hún nældi sér
í gullverðlaun í 200 metra skriðsundi.
Sannarlega frábær árangur hjá þessari
flottu sundkonu. Ragnar Ingi náði því
miður ekki að komast á pall í þessari
ferð en engu að síður átti hann flotta
spretti í lauginni og er óðum að ná sínu
gamla formi.
Áttu flotta spretti í lauginni ÍSLANDSMÓTIÐ Í KNATTSPYRNU
Uppskeruhátíð yngri flokka FH
Erfið byrjun Hauka í 1. deildinni
HANDBOLTI Það var margt um
manninn þegar uppskeruhátíð yngri
flokka FH í handknattleik fór fram á
laugardaginn. Eins og venjan er fengu
allir iðkenndur allra yngstu flokkana
viðurkenningu en í eldri flokkunum
voru þrír einstaklingar sem fengu
sérstakar viðurkenningar. Tæplega
300 iðkendur eru að æfa að jafnaði
í yngstu flokkum FH og hefur yngri
flokka starfið verið að gera frábæra
hluti og það sést best á hversu margri
frambærilegir handboltamenn og
konur eru að koma upp í meistara-
flokkana.
Þjálfari ársins var einnig valinn en
að þessu sinni var það Hilmir Heiðar
Lundevik fyrir valinu en Hilmir þjálfar
7. flokk karla.
Haukar mættu Þrótti Reykjavík í sín-
um fyrsta leik í 1. deildinni í sumar.
Haukum er spáð ágætis gengi í sumar
og væntingar manna í hófi settar fyrir
þetta tímabil. Hópurinn er samt sem
áður nokkuð sterkur og ætti að geta
komist upp í deild þeirra bestu ef vel
er haldið á spilunum. Haukar voru í
allskonar vandræðum í sínum fyrsta
leik og í hálfleik höfðu þeir fengið
þrjú ódýr mörk á sig. Seinni hálfleikur
byrjaður heldur ekki vel hjá Haukum
því Þróttarar skoruðu strax á 55. mín-
útu. Skömmu síðar fékk svo Hilmar
Geir Eiðsson, leikmaður Hauka, rautt
spjald og útlitið var því orðið ansi
svart fyrir Hauka. Á 82. mínútu minnk-
uðu Haukar muninn í 1-4 en þetta
sárabótarmark skoraði Andri Steinn
Birgisson. Byrjun Hauka í 1. deildinni
er því engin draumabyrjun en það má
þó ætla að Haukarnir mæti sterkari
til leiks á morgun þegar þeir fara í
Kópavoginn og mæta þar liði HK.
12 - gafl ari.is
Andrea Magnúsdóttir fatahönnuðurAndrea Magnúsdótt ir fatahönnuð-
ur heldur sína fyrstu tískusýningu í
Hafnarborg í kvöld.
Andrea útskrifaðist úr fatahönnun frá
Margrethe-skolen í Kaupmannahöfn
árið 2009 og opnaði versluna sína
AndreA boutique á Strandgötu 19
sama ár. Hún sér til þess að hafnfi rskar
konur eru alltaf klæddar samkvæmt
nýjustu tísku. Andrea stendur upp úr
þessa vikuna.
„Andrea er í alla
staði frábær, hún er
skemmtileg, heiðarleg
og jákvæð manneskja
sem gott er að vera
í kringum. Andrea er fyrst og síðast
frábær félagi og traustur vinur. Hún er
mjög ákveðin, með skýr markmið og
lætur fátt stoppa sig. Andrea er fl ott ur
fulltrúi íslenskar kvenna og sýnir það
bæði í tali og verki. Það er mér sannur
heiður að fá að vera henni samferða.“
Ólafur Ólason, eiginmaður Andreu
Andrea er einfaldlega
besta vinkona sem
hægt er að hugsa sér.
Stærsti kostur Andreu
er hversu heiðarleg hún
er og ekki skemmir að hún er skemmti-
leg og fyndin. Þegar Andrea útskrifaðist
úr FG á sínum tíma skildi ég ekkert hvað
hún ætlaði að gera við saumavélina
sem hún fékk í útskrift argjöf. Í dag veit
ég betur. Sameiginlegt áhugamál okkar
er postulín og við getum lesið nýja og
gamla bæklinga frá Royal Copenhagen
endalaust.
Sara Regins., vinkona Andreu
Júlíus Sigurjónsson, sölumaður og diskó-tekariÁ föstudag ætla ég
hendast inn í Reykjavík og spila
vel valin lög upp á þaki á húsi niðri
í miðbæ. Laugardagurinn byrjar
snemma með því að þrífa bílinn og
svo fer ég með dósir í endurvinnsl-
una. Að því loknu fer ég heim í betri
fötin og skunda í brúðkaup um
kvöldið.
Sunnudaginn ætla ég að nota í að baka
fyrir afmæli dóttur minnar, þessi yndis-
lega stelpa verður fimm ára á mánu-
daginn. Til vonar og vara plata ég systur
mína til að hjálpa mér svo það verði
örugglega hægt að borða þetta. Ef það
klikkar þá fer ég bara í bakaríið á mánu-
daginn.
Kristín Björnsdóttir, doktor í fötlunarfræðumÁ föstudögum bugast ég
eftir að hafa eytt vikunni í
að skutla börnum í Bláfjöll, frjálsíþrótta-
velli, samspil, slysó, hljóðfæratíma, tón-
fræði og að útskýra fyrir leikskólanum
af hverju ég gleymi alltaf að sækja þann
yngsta. Laugardagarnir fara meira eða
minna í það að lesa pistlana sem Silja
Úlfarsdóttir skrifar og gera æfinga-
hringina. Laugardagskvöldin eru heilög
rómantísk stefnumótakvöld með bónd-
anum. Við förum oftast í lasertag. Það
er bara eins og að endurnýja hjúskap-
arheitin að drepa hvort annað með leik-
fangaleiserbyssum. Flesta sunnudaga
fer ég til kirkju en ef messufall verður þá
langar mig á boccia-æfingu með eldri
borgurum í Hraunseli.
STENDUR UPP ÚR
HELGIN MÍN