124
Á ÍSLANDI 5. TBL. DESEMBER 2014. 24. ÁRG. GOLF Á ÍSLANDI DESEMBER 2014 Gleðileg golfjól!

Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Tímaritið Golf á Íslandi

Citation preview

Page 1: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Á ÍSLANDI

5. T

BL. D

ESEM

BER

2014

. 24

. ÁRG

.

GO

LF Á ÍSLANDI DESEMBER 2014

Gleðileg golfjól!

Page 2: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GEFÐU ÞÉR GÓÐAN TÍMA Í LONDON Verð frá 17.600* kr. Þessi ferð gefur frá 1.500 til 4.500 Vildarpunkta aðra leiðina.

Njóttu hverrar mínútu

Það er ekki nauðsynlegt að hlaupa upp og niður Oxford-stræti til að kíkja í allar búðirnar. Strunsa framhjá stórmennum mannkynssögunnar í Madame Tussauds. Það sem skiptir máli er að njóta tímans. Skoða umhverfið og fólkið. Horfa á dúfurnar við Marble Arch. Eiga gæðastundir og safna minningum sem lifa.

ÍSLENSKA

SIA

.IS

IC

E 6

8202

09/

14

* Innifalið: Flug aðra leiðina og flugvallarskattar.

+ Bókaðu núna á icelandair.is Vertu með okkur

Page 3: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GEFÐU ÞÉR GÓÐAN TÍMA Í LONDON Verð frá 17.600* kr. Þessi ferð gefur frá 1.500 til 4.500 Vildarpunkta aðra leiðina.

Njóttu hverrar mínútu

Það er ekki nauðsynlegt að hlaupa upp og niður Oxford-stræti til að kíkja í allar búðirnar. Strunsa framhjá stórmennum mannkynssögunnar í Madame Tussauds. Það sem skiptir máli er að njóta tímans. Skoða umhverfið og fólkið. Horfa á dúfurnar við Marble Arch. Eiga gæðastundir og safna minningum sem lifa.

ÍSLENSKA

SIA

.IS

IC

E 6

8202

09/

14

* Innifalið: Flug aðra leiðina og flugvallarskattar.

+ Bókaðu núna á icelandair.is Vertu með okkur

Page 4: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

STÖÐUGAR FRAMFARIROKKAR BESTA HÖNNUN.

LÍTILL SPUNI. MIKILL BOLTAHRAÐI. ÓTRÚLEGUR

STÖÐUGLEIKI. KYNNUM NÝJU TITLEIST 915 LÍNUNA.Nú getur þú fengið lengra boltaflug án þess að fórna stöðugleikanum og þeim fjölda brauta sem þú ert vanur að hitta. Active Recoil Channel er nýjasta tækni Titleist sem minnkar spunann og eykur boltahraðann og færir þannig eigandanum hámarks lengd af miðjum höggfletinum og meiri lengd en áður af boltum sem fara af könntum höggflatarins. Þessi nýja tækni ásamt SureFit Tour stillingarkerfinu, frábærri hönnun og fyrsta flokks sköftum gera 915 að mest spennandi dræver sem komið hefur frá Titleist. Sköftin sem hægt er að velja um eru; Aldila Rogue Black, Aldila Rogue Silver og Mitsubishi sköftin; Diamana White, Diamana Blue og Diamana Red. Allt eru þetta gríðarlega vönduð og verðmæt sköft sem hæfa nýju 915 línu Titleist fullkomlega og gera það að verkum að allir kylfingar (ekki bara bestu atvinnukylfingar heims) geta nú fundið Titleist dræver sem hentar þeirra leik. Allar nánari upplýsingar má finna á titleist.co.uk, facebooksíðu Titleist á Íslandi og í helstu golfverslunum.

Adam Scott Jason Dufner Geoff Ogilvy Brooks Koepka

Þessi nýja örk gerir það að verkum að þegar við hittum golfboltann (impact) munu bæði efri og neðri hluti höggflatarins beygjast inn og kastast fram að nýju og framkalla þannig meiri boltahraða og minni spuna en áður hefur þekkst.

ACTIVE RECOIL CHANNEL

HIGH MOI DESIGNRADIAL SPEED FACE

Þyngdarpunkturinn er staðsettur aftarlega og djúpt á kylfuhausnum og eykur stöðugleika boltaflugsins.

Er nýr endurhannaður höggflötur sem vinnur með örkinni að því að búa til meiri boltahraða af öllum höggfletinum en ekki bara af miðjunni, þannig bíður 915 upp á stöðugra og lengra boltaflug, oftar.

Minni kylfuhaus 440cc.

Stærri kylfuhaus 460cc.

www.titleist.co.uk

Page 5: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

STÖÐUGAR FRAMFARIROKKAR BESTA HÖNNUN.

LÍTILL SPUNI. MIKILL BOLTAHRAÐI. ÓTRÚLEGUR

STÖÐUGLEIKI. KYNNUM NÝJU TITLEIST 915 LÍNUNA.Nú getur þú fengið lengra boltaflug án þess að fórna stöðugleikanum og þeim fjölda brauta sem þú ert vanur að hitta. Active Recoil Channel er nýjasta tækni Titleist sem minnkar spunann og eykur boltahraðann og færir þannig eigandanum hámarks lengd af miðjum höggfletinum og meiri lengd en áður af boltum sem fara af könntum höggflatarins. Þessi nýja tækni ásamt SureFit Tour stillingarkerfinu, frábærri hönnun og fyrsta flokks sköftum gera 915 að mest spennandi dræver sem komið hefur frá Titleist. Sköftin sem hægt er að velja um eru; Aldila Rogue Black, Aldila Rogue Silver og Mitsubishi sköftin; Diamana White, Diamana Blue og Diamana Red. Allt eru þetta gríðarlega vönduð og verðmæt sköft sem hæfa nýju 915 línu Titleist fullkomlega og gera það að verkum að allir kylfingar (ekki bara bestu atvinnukylfingar heims) geta nú fundið Titleist dræver sem hentar þeirra leik. Allar nánari upplýsingar má finna á titleist.co.uk, facebooksíðu Titleist á Íslandi og í helstu golfverslunum.

Adam Scott Jason Dufner Geoff Ogilvy Brooks Koepka

Þessi nýja örk gerir það að verkum að þegar við hittum golfboltann (impact) munu bæði efri og neðri hluti höggflatarins beygjast inn og kastast fram að nýju og framkalla þannig meiri boltahraða og minni spuna en áður hefur þekkst.

ACTIVE RECOIL CHANNEL

HIGH MOI DESIGNRADIAL SPEED FACE

Þyngdarpunkturinn er staðsettur aftarlega og djúpt á kylfuhausnum og eykur stöðugleika boltaflugsins.

Er nýr endurhannaður höggflötur sem vinnur með örkinni að því að búa til meiri boltahraða af öllum höggfletinum en ekki bara af miðjunni, þannig bíður 915 upp á stöðugra og lengra boltaflug, oftar.

Minni kylfuhaus 440cc.

Stærri kylfuhaus 460cc.

www.titleist.co.uk

PANTONE 2945 C

PANTONE 485 C

BLACK

Page 6: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is6

Sjaldan er góð vísa of oft kveðinÉg hef oft nefnt það áður að fjölgun kylfinga hér á landi undanfarin 15 ár hefur verið gríðarleg og á sér varla hliðstæðu í heiminum. Á sama tíma og félagsmönnum í erlendum golfklúbbum fækkar mikið höfum við siglt í gagnstæða átt. Af þessum merkilega árangri má golfhreyfingin vera virkilega stolt. Það má skipta íslenskum kylfingum í tvennt. Annars vegar eru það þeir sem eru skráðir í golfklúbba og hins vegar þeir sem ekki eru

skráðir í golfklúbba. Seinni hópurinn leikur golf gegn því að greiða vallargjöld eða er hluti af sérstökum golfklúbbum, sem ekki eiga aðild að golfsambandinu. Fjöldi kylfinga í fyrri hópnum liggur fyrir en útilokað er að vita hversu stór seinni hópurinn er. Ef miðað er við skráða kylfinga þá hefur hægst á nýliðun þeirra undan-farin tvö ár og má segja að fjöldi fullorðinna kylfinga hafi staðið í stað á þessum tíma. Á sama tíma hefur hins vegar orðið fækkun í hópi barna og unglinga. Þótt veðurfar undanfarinna tveggja ára spili eflaust stórt hlutverk þá er full ástæða til að vera á varðbergi gagnvart fækkun barna og unglinga í golfi. Frá árinu 2011 hefur skráðum kylfingum, yngri en 15 ára, fækkað um tæp 20%, þar af um 17% á síðustu tveimur árum. Íslendingar hafa aldrei átt betri kylfinga en í dag. Meðalforgjöf kylfinga lækkar frá ári til árs og bestu kylfingar landsins eru að ná betri árangri heldur en forverar þeirra. Það kann því að skjóta skökku við að á sama tíma séum við að upplifa fækkun hjá börnum og unglingum. Þessu þarf að breyta. Framundan þarf að eiga sér stað markmisst átak hjá golf-hreyfingunni sem felst í því að fjölga börnum og unglingum í golfi. Björt framtíð íþróttarinnar veltur á því. Golfsambandið og golfklúbbar lands-ins þurfa að taka höndum saman og snúa við þróun síðustu ára. Við eigum að bjóða unga kylfinga velkomna á golfvellina í stað þess að fussa yfir látunum í þeim, líkt og ég hef orðið var við að sumir gera. Börnum fylgir meiri hamagangur en öðrum og sumum finnst slík hegðun ekki eiga heima á golfvelli. Þetta er hins vegar alrangt auk þess sem þetta skiptir engu máli. Börn þurfa að fá að vera börn, hvort sem þau eru á golfvellinum eða ekki. Þar fyrir utan er nóg pláss fyrir alla. Slökum á og leyfum börnum að njóta sín á æfingasvæðinu og golfvellinum. Hvetjum þau til að fara á námskeið, skrá sig í golfklúbb og njóta sín með kylfuna í hendinni. Kennum þeim gildi íþróttarinnar og búum þannig til framtíðar kylfinga. Með samstilltu átaki golfsambandsins, golfklúbba, sveitarfélaga og grunnskóla getur ávinningurinn orðið mikill. Við höfum nefnilega öll hag af því að íþróttinni okkar vegni sem best, stækki og laði til sín skemmtilegt fólk. Um leið og ég vil hvetja forsvarsmenn, starfsmenn og sjálfboðaliða í klúbbum landsins til aukins samstarfs þá þakka ég þeim fyrir störf sín á árinu sem er að líða. Ég óska öllum kylfingum gleðilegra jóla og gæfu-ríks árs á golfvöllum landsins.

Með jólakveðju, Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands

Útgefandi/ábyrgðaraðili:Golfsamband Íslands, Laugardal, 104 Reykjavík.

Framkvæmdarstjóri: Hörður Þorsteinsson, [email protected]

Ritstjóri: Páll Ketilsson, [email protected]

Textahöfundar í þessu blaði:Sigurður Elvar Þórólfsson ogPáll Ketilsson.Prófarkalestur: Olga Björt ÞórðardóttirLjósmyndir: Páll Ketilsson, Sigurður Elvar Þórólfsson, Páll Orri Pálsson, Stefán Garðarsson, Helga Magnúsdóttir og fleiri.

Þýðing á erlendu efni frá Golf World og Today´s Golfers: Björn Malmquist

Útlit og umbrot: Víkurfréttir, Páll Ketilsson og Þorsteinn KristinssonAuglýsingar: Stefán Garðarsson, [email protected]ímar 514 4053 og 663 4656

Blaðinu er dreift inn á öll heimili félagsbundinna kylfinga á Íslandi í 15.000 eintökum.

Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.

Næsta tölublað kemur út í maí 2015.

FORSETAPISTILL

Byrjendanámskeið í golfi í jólapakkann!Golfleikjaskólinn býður upp á jólagjafabréf fyrir golfnámskeið sumarið 2015

Jólagjafabréfið kostar aðeins 10.000 kr. Innifalið í verði er lán á golfkylfum og boltum, ásamt golfhandbók sem er ómissandi fyrir byrjendur.

Frábær Jólagjöf fyrir þá sem vilja kynnast golfíþróttinni á einfaldan og árangursríkan hátt.

Hvert námskeið er 5 virkir dagar í röð 1 ½ klst. á dag.

Golfleikjaskólinn hefur starfað í 15 ár með glæsilegum árangri.

Með jólakveðju,Anna Día

[email protected]

Page 7: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 8: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is8

vefverslun og kennsla

Stigameistararnir

PGA kennsla

Dalvík

Efnilegir

SMÁ SÝNISHORN AF EFNI BLAÐSINS

18

80

50

110

28

86

64

102

Formannafundur GSÍ

Brynjar

Hin 4 fræknu

Rory

RITSTJÓRAPISTILL

Hinn venjulegi kylfingur í sviðljósinuFulltrúar hins venjulega kylfings á Íslandi prýða forsíðuna okkar að þessu sinni en eru einnig í sviðsljósinu inni í blaðinu á nokkrum blað-síðum. Fjórmenningarnir, eða hin fjögur fræknu

eins og við ákváðum að nefna þau, eru Grímur Kolbeinsson 62 ára úr GR, Hólmfríður Einarsdóttir 42 ára úr GKG, Grétar Agnarsson 42 ára Keilismaður og Þorlákur Helgi Ásbjörnsson 52 ára úr Golfklúbbi Suðurnesja. Þau eru nokkurs konar þverskurður af hinum íslenska kylfingi sem er á miðjum aldri og leikur golf í hverri viku yfir tímabilið. Valið á fjórmenningunum var þó engan veginn eftir einhverri formúlu. Við lögðum fyrir þau spurningar og fengum þau til að prófa nýjustu pútterana á markaðnum.

Það er gaman að rýna í svör þeirra. Hér eru örfá dæmi:

„Ég byrjaði alltof seint, þegar ég varð fertugur eða fyrir 22 árum.“

„Það þarf að vera meira eftirlit – vera með golfbíla úti á vellinum að fylgjast með leikhraða.“

„Golfið er fjölskylduíþrótt hjá okkur og við förum því oft í ferðalög til þess að spila golf.“

„Ég hef ekki verið nógu duglegur að nýta mér golfkennarana á undan-förnum árum.“

Þau segjast öll hafa metnaðarfull markmið um að lækka forgjöfina og verða betri í golfi. Þau fylgjast nokkuð vel með afrekskylfingum okkar en þau eru mis dugleg að kaupa sér nýjar golfgræjur. Þau voru alger-lega sammála í pútteraprófinu því einn pútterinn fékk fullt hús stiga.

Við ræðum einnig við stigameistarana á Eimskipsmótaröðinni, þau Kristján Þór Einarsson úr GKj og Karen Guðnadóttur úr GS. Þau eru líka með markmið, mis stór auðvitað eins og fjórmenningarnir. Það er margt í gangi í golfhreyfingunni og við fjöllum um formannafund sem haldinn var í Borgarnesi. Þar sagði forseti GSÍ að hinn venjulegi kylfingur fengi meiri athygli á næstunni. Það er vel til fundið enda heldur hann uppi golfmarkaðnum á Íslandi. Við fáum líka loka-skýrslu Jóns Péturs Jónssonar sem hættir nú sem formaður lang stærsta golfklúbbs landsins. Þá er margt annað áhugavert í þessu blaði. Við erum farin að flytja út golfkennara en í blaðinu eru viðtöl við Brynjar Eldon Geirsson fráfarandi íþróttastjóra GR sem nú heldur á vit nýrra ævintýra í Þýskalandi. Ísfirðingurinn og golfkennari Auðunn Einars-son segir okkur frá vandræðagangi Norðmanna á golfvellinum. Rory McIlroy var hins vegar ekki í vandræðum á árinu og við heyrum í honum eftir stórkostlegt ár. Um leið og við þökkum fyrir ánægjulegar golfstundir á árinu sem er að líða sendum við lesendum okkar og kylfingum öllum okkar bestu óskir um gleðileg jól og nýtt golfár.

Páll Ketilsson.

Page 9: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

ECCO - KRINGLANSTEINAR WAAGE - SMÁRALIND SKÓBÚÐIN HÚSAVÍKGOLFBÚÐIN - HAFNARFIRÐIGOLFSKÁLINN - REYKJAVÍKSKÓBÚÐIN - KEFLAVÍK

Nýja Golflínan 2015

frá Ecco er komin

NÍNA - AKRANESISKÓBÚÐ - SELFOSSAXEL Ó - VESTMANNEYJUMEAGLE - AKUREYRIÖRNINN GOLFVERSLUN - REYKJAVÍK SKÓR.IS - NETVERSLUNHOLE IN ONE - REYKJAVÍK

Page 10: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is10

„Kominn á ný í baráttuna með þeim bestu“

Birgir Leifur lék í ellefta sinn á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar en náði ekki alla leið.

Eskifjörður: „Frábær sumar“

„Sumarið var frábært í einu orði sagt. Veðrið var stórkostlegt í allt sumar og það eru engar ýkjur. Völlurinn var í góðu standi og við fengum mikið af heimsóknum frá ferðamönnum,“ segir Jóhann. Um 80 félagsmenn eru í GBE sem var stofnaður árið 2009 eftir að Golf-klúbbur Eskifjarðar lagðist af. „Við höfum verið með ýmsar fram-kvæmdir á vellinum og lengt hann í 2.600 metra. Byggðarholtsvöllur er par 36 í dag en var áður 33 og það munar miklu. Við höfum fengið 15 nýja félaga í sumar og það er heilmikil fjölgun miðað við stærð klúbbsins“ segir Jóhann Arnarson formaður Golfklúbbs Byggðarholts á Eskifirði.Brynjar Sæmundsson golfvallafræðingur hjá GrasTec hefur verið rágjafi GBE hvað vallarmálin varðar á undanförnum árum og segir Jóhann að völlurinn hafi breyst mikið frá þeim tíma. „Við þurfum að gera meira fyrir barna- og unglingastarfið hjá okkur en það er dýrt fyrir lítinn klúbb að fá kennara og leiðbeinendur á svæðið. Við erum að gera okkar besta með því að leiðbeina sjálfir en það er verk að vinna á þessu sviði.“Jóhann segir að Byggðarholtsvöllur hafi fengið mikið hrós frá gestum á undanförnum misserum og meira að segja félagar í Golfklúbbi Norðfjarðar hafi hrósað vellinum. „Þegar það gerist þá vitum við að völlurinn er jafnvel betri en Grænanesvelli á Norðfirði,“ segir Jóhann í léttum dúr.

Hella: „Varnarsigur og fjölgun þrátt fyrir úrkomuna“

„Við unnum varnarsigur í sumar og það eru ívið fleiri sem léku á Strandarvelli en árið áður,“ segir Óskar Pálsson formaður Golf-klúbbsins Hellu. „Það er ekki okkur að þakka, Strandarvöllur hefur

verið óendanlega flottur í sumar. Þetta er yfirburðavöllur, þó ég segi sjálfur frá. Ég er búinn að vera hérna lengi og völlurinn hefur aldrei verið betri. “Óskar býst ekki við því að margir vellir á Suðurlandi hafi aukið heimsóknafjöldann á rigningasumrinu 2014 frá því í fyrra, sem reyndar var einnig rigningasumar. „Ég held að margir átti sig á því að Strandarvöllur er fljótur að þorna eftir miklar rigningar. Það er ekkert vesen, flatirnar taka bara betur við og málið er dautt.“Félagafjöldinn hjá GHR breytist lítið á milli ára en félagafjöldinn hefur verið 100 í mörg ár en Óskar segir að einn hafi bæst í hópinn. „Við erum 101 og það er fín tala. Allt saman frábært fólk sem leggur mikið á sig fyrir klúbbinn.“Tvö stórmót á vegum Golfsambands Íslands fóru fram á Strandar-velli í sumar. Egils Gull mótið á Eimskipsmótaröðinni og Íslandsmót unglinga í höggleik á Íslandsbankamótaröðinni. Óskar segir að Golf-sambandið hafi leitað mikið til GHR með mótahald í gegnum tíðina. „Það býr mikil reynsla hjá okkur hvað þetta varðar og það er góður og samstilltur hópur sem er alltaf tilbúinn að leggja sitt að mörkum til að þetta gangi upp,“ segir Óskar.

Frá Strandarvelli á Hellu 2.

Byggðarholtsvöllur á Eskifirði.

Frá Strandarvelli á Hellu.

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG þræddi nálaraugað á öllum þremur stigum úrtökumótsins fyrir Evrópu-mótaröðina en Íslandsmeistarinn náði ekki að komast í gegnum niðurskurðinn á lokaúrtökumótinu. Birgir var einn af 39 kylfingum sem komust inn á lokaúr-tökumótið með því að komast í gegnum 1. og 2. stig úrtökumótsins – en alls léku 156 kylfingar á lokaúrtökumótinu og komust 25 þeirra alla leið inn á Evrópumótaröðina.

Birgir endaði í 101-110. sæti á lokaúr-tökumótinu á PGA Catalunya á Spáni en hann lék hringina fjóra á +3 samtals (74-73-68-72). Birgir Leifur var einn af 68 kylfingum sem komust í gegn af völlunum fjórum á öðru stigi úrtökumótsins. Við þann hóp bættust 90 kylfingar sem kÓhætt er að segja að Birgir Leifur sé þrautreyndur á úrtökumótunum fyrir Evrópumóta-röðina. Hann lék í ellefta sinn á lokaúr-tökumótinu frá því hann tók fyrst þátt árið 1997 og í heildina var þetta í 16. sinn sem hann reynir við úrtökumótið. Hann er eini íslenski kylfingurinn sem hefur komist alla leið í gegnum úrtökumót Evrópu-mótaraðarinnar en það gerði hann tvö ár í röð, 2006 og 2007.

Ætti að fá um 10 mót á Áskorenda-mótaröðinniBirgir hafði ekki komist inn á lokaúr-tökumótið frá árinu 2010 og þrátt fyrir að hann hafi ekki náð alla leið að þessu sinni er staða hans á styrkleikalista atvinnu-kylfinga mun betri en á síðustu árum. Birgir ætti að geta leikið á um 10 mótum á Áskorendamótaröðinni á næsta tímabili en þar hefur hann fengið fá tækifæri á undan-förnum árum. „Það var mjög mikilvægt skref fyrir mig að komast á lokastigið. Núna er ég kominn aftur inn í baráttuna með þeim bestu í Evr-ópu. Það var svekkjandi að komast ekki alla leið á lokaúrtökumótinu. Meðalskorið mitt

í ár er í kringum 69 högg sem ég er svaka-lega sáttur með. Staðan á næsta ári er betri en í ár því núna er ég kominn með stöðu á styrkleikalistanum á Áskorendamóta-röðinni,“ sagði Birgir Leifur en hann ætlar að meta framhaldið hjá sér með sínum nánustu áður en hann tekur ákvörðun um framhaldið.

Alls reyndu fjórir íslenskir kylfingar sig við úrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina, Axel Bóasson úr Keili komst ekki í gegnum 1. stigið en þeir Þórður Rafn Gissurarson úr GR og Ólafur Björn Loftsson úr Nes-klúbbnum komust líkt og Birgir í gegnum 1. stigið en þeir féllu úr leik á öðru stiginu.Frá því að Ragnar Ólafsson og Sigurður Pétursson reyndu fyrstir íslenskra kylfinga við úrtökmót Evrópumótaraðarinnar árið 1985 hafa aðeins tveir náð að komast á lokaúrtökumótið. Birgir Leifur alls 11 sinnum og árið 2001 komst Björgvin Sigur-bergsson úr Keili inn á lokaúrtökumótið.

216 holur á 8 höggum undir pariBirgir Leifur lék alls 216 holur á öllum stigum úrtökumótsins fyrir Evrópumóta-röðina á þessu hausti og var hann samtals á 8 höggum undir pari.1. stig Ribagolfe – Portúgal - 5.-8. sæti(69-70-69-72) -8.2. stig Compo de Golf El Saler, Spánn –12.-14. sæti(73-70-72-70) -3.3. stig PGA Catalunya – Spánn – 103. sæti(74-73-68-72) +3. 1. stig úrtökumótsins fyrir Evrópu-mótaröðina fór fram á 10 mismunandi keppnisvöllum víðs vegar um Evrópu. 2. stig úrtökumótsins fór fram á fjórum keppnisvöllum samtímis 7.-10. nóvember á Spáni og lokaúrtökumótið fór fram 15.- 20. nóvember á Spáni. Um 700 keppendur tóku þátt á 1. stigi úrtökumótsins.

Page 11: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Okkar vinsælu golfferðir

Islantilla, El Rompido, Valle del Este, Nuevo Portil á Spáni,

Morgado og Penina í Portúgal.

Islantilla, El Rompido, Nuevo Portil Penina og Morgado:28. mars – 6. apríl6. – 13. apríl13. – 23. apríl23. apríl – 3. maí Valle del Este:7 og 14 nætur í boði21. apríl28. apríl5. maí12. maí

ISLANTILLA

Vinsældirnar aukast og aukast. Frábær staður. Nauðsynlegt að bóka strax!

EL ROMPIDO

Tveir 18 holu vellir, 5 stjörnu hótel og íbúðagisting þar sem allt er innifalið.

PENINA

Okkar lúxus 5 stjörnu flaggskip sem hefur slegið í gegn.

MORGADO

Tveir gríðarlega skemmti legir og fjöl-breyttir vellir í algjörri náttúruparadís. Hótelið við vellina er fyrsta flokks.

VALLE DEL ESTE

Nýuppgert hótel við frábæran golfvöll.Ótrúlega hagstæður pakki. Golfbíll og fullt fæði innifalið.

NUEVO PORTIL

Huggulegt og sjar-merandi hótel við fallegan 18 holu skógarvöll á ótrúlega hagstæðu verði.

VITA Skógarhlíð 12Sími 570 4444

Ótakmarkað golf í vetur

„Þessi áfangastaður er sá mest spennandi sem ég hef séð lengi, jafnt fyrir kylfinga og þá sem spila ekki golf.“

Peter Salmon, VITA golf.

Tenerife – Golf Del Sur á mjög hagstæðu verði

TENERIFE – Golf del Sur

Morgunrástímar á flottum 27 holu golfvelli í 2 mínútna akstursfjarlægð frá glæsilegu hóteli við ströndina. Fjölmargir veitingastaðir, barir og skemmtistaðir eru í göngufæri við hótelið. Golf del Sur pakkinn okkar á Tenerife er einfaldlega mest spennandi haust- og vetrarnýjung sem við höfum boðið upp á lengi.

Fararstjóri: Sigurður Hafsteinsson, golfkennari.

UPPSELT Islantilla - 23. apríl

Brottfarardagar:17. og 27. jan., 3., 17., og 24. feb., 3. mars

Páskaferð

7 nætur (Golf í 8 daga)

10 nætur

10 nætur

Nýtt

ÍSLE

NSK

A SI

A.IS

VIT

718

04 1

1/14

Page 12: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is12

Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum komst naumlega í gegnum fyrsta stig úr-tökumótsins fyrir Evrópumótaröðina með því að leika á höggi undir pari (69-71-71-72) eða 283 höggum. Mótið fór fram á Hardelot vellinum í Frakklandi en alls var keppt á tíu völlum á fyrsta stigi úrtökumótsins.

Compo de Golf El Saler völlurinn á Spáni var næsti keppnisstaðurinn hjá Ólafi Birni en hann lék samtals á +8 (75-71-77-73) og endaði hann í 48. sæti. Aðeins 17 efstu komust áfram á þessum velli en keppt var á fjórum völlum samtímis á öðru stigi úr-tökumótsins.

„Ég er að sjálfsögðu mjög svekktur yfir úrslitunum en ég gerði mitt besta. Ég átti flotta kafla í mótinu en of mörg klaufaleg mistök komu í veg fyrir að ég næði tak-markinu í þetta skiptið,“ sagði Ólafur eftir mótið á Spáni en hann er með keppnisrétt á Nordic League mótaröðinni á næsta tímabili. Hann á einnig möguleika á að fá boð á mót á

Þórður Gissurarson úr GR náði ekki að komast í gegnum annað stigið á úr-tökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Þórður endaði í 23. sæti á Frilford Heath vellinum á Englandi á 1. stigi úrtökumótsins en þar lék hann á 6 höggum undir pari (72-72-67-71) eða 282 höggum. Hann náði sér alls ekki á strik á fyrstu keppnisdögunum á Compo de Golf El Saler vellinum á Spáni á öðru stiginu. Hann lék fyrsta hringinn á 83 höggum (+11) og kom sér í erfiða stöðu sem hann náði ekki að bæta. Þórður endaði í 68. sæti en hann lék hringina fjóra á (83-77-75-71)en 17 efstu kylfingarnir komust á lokaúrtökumótið.

„Úrtökumótið var augljóslega vonbrigði en það jákvæða var síðasti hringurinn þar sem ég náði að sýna mitt rétta andlit,“ sagði Þórður Rafn og viðurkennir að sjálfs-traustið hafi ekki verið nógu gott í upphafi mótsins. „Ég átti í nokkrum vandræðum með sveifluna dagana fyrir mótið. Það er með því versta sem getur gerst.“

Þórður er með keppnisrétt á ProGolf móta-röðinni í Þýskalandi þar sem hann lék á síðasta keppnistímabili. „Ég er reyndar að velta ýmsum öðrum möguleikum fyrir mér. Ég hef ekki enn ákveðið hvað ég mun gera. Það gæti verið að ég fái boð um að leika á einu eða tveimur mótum á Áskorendamóta-röðinni og ég mun að sjálfsögðu spila á þeim mótum ef það er í boði. Ég ætla að taka mér smá frí á næstunni og fara yfir stöðuna,“ sagði Þórður Rafn Gissurarson.

Vonbrigði hjá Þórði á Spáni

Ólafur bjartsýnn þrátt fyrir mótlæti

Áskorendamótaröðinni. „Ég hef fulla ástæðu til að vera bjartsýnn fyrir næsta tímabil. Ég er staðráðinn í því að leggja enn harðar að mér að ná mínum markmiðum,“ segir Ólafur Björn.

Alexander Aron Gylfason úr GR tók þátt í heimsmeistaramótinu í hraðagolfi (SpeedGolf) sem fram fór í lok október á á Bandon Dunes vellinum í Bandaríkjunum. Alexander endaði hann í 27. sæti en hann lék á 82 höggum og tími hans var 55.07 mínútur.

Eri Crum fagnaði sigri en hann lék á 76 höggum og það tók hann 46 mínútur og eina sekúndu að ljúka við 18 holur. Aðeins voru leiknar 18 holur en fyrsta umferðin sem átti að fara fram á laugardaginn var felld niður vegna hvassviðris og úrkomu.Crum fékk par á 15 holum og hann var að meðaltali 2 ½ mínútu að leika hverja

Alexander var eldsnöggur með 18 holurnar

Arnór lék vel á opna spænska áhugamannamótinuArnór Snær Guðmundsson úr Golf-klúbbnum Hamri á Dalvík náði bestum árangri af íslensku keppendunum sem tóku þátt á opna spænska unglingameistara-mótinu. Mótið fór fram í lok október á Bonmont vellinum við Barcelona og tóku alls sex íslenskir kylfingar þátt – þar af tvær stúlkur. Arnór endaði í 12.-13. sæti af alls 130 keppendum sem voru frá 16 þjóðum. Arnór lék hringina þrjá á pari samtals (71-72-73). Sigurvegarinn var Kristoffer Reitan frá Noregi en hann lék á -10 samtals.

Stefán Þór Bogason, klúbbmeistari GR frá

því í sumar, endaði í 20.-27. sæti en hann lék síðasta hringinn á -4 og (75-76-68) og var samtals á +3. Stefán lék síðustu 9 holurnar á -6 sem er stórkostlegur árangur. Henning Darri Þórðarson úr GK endaði í 45.48. sæti en hann lék samtals á +11 (76-76-75). Björn Óskar Guðjónsson úr Kili Mosfellsbæ endaði í 54.-60. sæti á +15 (79-78-74).

Helga Kristín Einarsdóttir (NK), Íslands-meistari í höggleik í flokki 17-18 ára endaði í 21. sæti á +22 samtals (83-74-82). Hafdís Alda Jóhannsdóttir úr GK lék á (88-86-82) höggum og endaði í 30. sæti á +40.

holu. Crum lék á sínum tíma með Stanford háskólaliðinu þar sem Tiger Woods var liðsfélagi hans. „Þú þarft að vera íþrótta-maður til þess að vinna keppni á við þessa. Það skiptir mig miklu máli að sigra á þessu móti á þessum velli,“ sagði Crum sem var samtals með 122.01 stig í þessari keppni.

Page 13: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

minna pláss krefst meiri hugsunarBlade, fyrirferða minnsta 3ja hjóla kerran á markaðnum!

Kíktu í heimsókn, skoðaðu og prófaðu kerrurnar frá Big Max.

GOLFSKÁLINN | MÖRKINNI 3, 108 REYKJAVÍK | SÍMI 578-0120 | [email protected] | OPIÐ 10:00-18:00 VIRKA DAGA OG 11:00-16:00 LAUGARDAGA

GÓÐ ÞJÓNUSTA | VANDAÐAR VÖRUR | BETRA VERÐ

BLADE

Wheeler, er frábær 4ja hjóla kerra sem er ótrúlega einföld í uppsetningu.

I-Q frá Big Max er létt og flott 3ja hjóla kerra, nokkrir litir í boði.

Autofold er frábær valkostur fyrir þá sem vilja vandaða og öfluga 3ja hjóla kerru.

Verð: 32.800 krVerð: 29.800 kr

Mikið úrval af golfkerrum í öllum verðflokkum

Verð: 36.800 kr

Verð: 42.800 kr

Lite Max III er einföld og létt 3ja hjóla kerra.

Verð: 19.800 kr

Page 14: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Ert þú á leiðinni í

Golfferð í vor?

Nánar á urvalutsyn.is/golfÚrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.

Sími 585 4000 www.uu.is

Villaitana – Aftur í sölu!

FLOTTIR GOLFVELLIR Í EINSTÖKU LANDSLAGI

„Golfvellirnir eru tveir, hannaðir af hinum þekkta kylfing, Jack Nicklaus. Levante par 72, hálfgerður links-völlur en án kargans sem kemur sér reyndar vel fyrir þá ekki svo beinu. Brautirnar eru frekar harðar, með mikið af glompum og flatirnar stórar með miklu landslagi. Af öftustu teigum er Levante 6.612 metrar og býður því þeim högglengri til veislu.Levante völlurinn er hannaður með það í huga að vera keppnisvöllur á alþjóðavísu en þrátt fyrir það hefur hann reynst forgjafarhærri kylfingum nokkuð viðráðanlegur. Brautirnar eru nokkuð breiðar og ekki mikið um erfiðan karga. Það eru einna helst glompurnar og 4 púttin sem hafa verið að stríða fólki. „Okkar álit er að Levante sé frábær valkostur fyrir alla kylfinga“ segir Ingibergur sem hefur margoft verið fararstjóri á Villaitana.Poniente par 62. „algjöra perla“. Fallegra landslag í golfvelli er erfitt að finna og þrátt fyrir að vera aðeins 3.858 metrar þá reynist hann mörgum ansi erfiður þó það sé engin par 5 braut. Ingibergur segir að Poniente sé frábær æfingavöllur fyrir alla kylfinga ekki síst þá forgjafarlægri. Forgjafarhærri kylfingum ráðleggjum við að taka með nóg að boltum. Golfbíll er innifalinn þegar spilað er á Poniente.Ingibergur segir að af fenginni reynslu þá er morgunnmatur aðeins innifalinn í ferðunum til Villaitana. Fólk hafi ekki viljað binda sig við kvöldverðahlaðborð þar sem á hótelinu sjálfu er að finna úrval veitingastaða auk þess að örstutt er að renna niður á Benidorm þar sem er mikið úrval veitingastaða.“

Vegna mikillar eftirspurnar býður Úrval Útsýn nú aftur upp á golfferðir til Villaitana á Spáni. Við báðum Ingiberg Jóhannsson deildarstjóra golfdeildar Úrvals Útsýnar að segja okkur aðeins meira frá Villaitana svæðinu og hvað það er sem skýrir vinsældirnar.

Villaitana er sannkölluð ævintýraveröld kylfingsins, bara í 40 mín fjarlægð frá flugvellinum í Alicante. Tveir 18 holu vellir, flott 4 stjörnu hótel sem er byggt eins og lítið þorp, fullkomið SPA og frábær sólbaðsaðstaða. Öll umgjörð er hin glæsilegasta og ekki skemmir að það er örstutt að skjótast með leigubíl niður á Benidorm í verslanir, veitingahús og næturlíf.

PLANTIOVERÐDÆMI

23. – 30. mars 2015

214.900 kr

RODAVERÐDÆMI23. – 30. mars 2015

179.900 kr

HUSAVERÐDÆMI6. – 13. apríl 2015

189.900 kr

VILLAITANAVERÐDÆMI21. apríl – 1. maí 2015

229.900 kr

TENERIFEVERÐDÆMI28. janúar – 4. febrúar 2015

229.900 kr

El SALERVERÐDÆMI1. – 5. apríl 2015

169.900 kr

„Það eru ófáir kylfingarnir sem hafa byrjað ferilinn í golfskóla Úrval Útsýnar á Spáni og sem vott um ánægju nemenda með skólann þá er talsvert um það að fólk komi ekki bara einu sinni heldur 2 til 3 sinnum í skólann. Þrátt fyrir stífa kennsludagskrá þá leggjum við einnig mikið upp úr því að það sé gaman í skólanum sem skýrir kannski að hluta endurkomu nemenda.Eitt atriði vil ég þó nefna sérstaklega en það er að skólinn er ekki bara fyrir byrjendur. Algengt var að við fengum eiginkonuna í skólann og karlinn fór sálfur bara út að spila en það hefur verið að færast í vöxt að karlarnir eru að koma með konunum í skólann og sjá ekki eftir því. Ég hef ekki enn hitt þann kylfing sem er fullnuma í íþróttinni og aðstæðurnar verða varla betri til að bæta sig. Sem dæmi þá var forgjafarlægsti kylfingurinn sem ég man eftir í augnablikinu, með rétt um 4 í forgjöf þegar hann kom í skólann. Í 6 daga skóla eru nemendur 18 klukkutíma undir handleiðslu golfkennara þar sem ekki er aðeins farið í gegnum golfsveifluna og stutta spilið (vipp og pútt) heldur líka leikskipulag, siða- og umgengnisreglur, leikhraða og forgjafarkerfið. Við leggjum mikla áherslu á að fjöldi nemenda á hvern kennara sé hámark 6-7 manns þannig að allir fái góðan tíma með kennaranum. Kennslan fer fram á morgnana og eftir hádegismat þá býðst nemendum að fara út að spila, allt eftir

áhuga hvers og eins.Nú í þeim tilvika sem t.d. annar aðilinn er í skóla og makinn að spila þá reynum við að stilla þannig saman að viðkomandi geti farið saman út að spila eftir hádegismatinn.Fyrir vorið 2015 þá eru í boði 2 fyrirfram skipulagaðar skólaferðir á tvo mjög ólíka staði. Husa/Alicante Golf, gott 4* hótel, mjög gott æfingasvæði og flottur 18 holu golfvöllur og val um að hafa innifalið morgun og kvöldmat eða eingöngu morgunmat þar sem aðgengi að ólíkum veitingastöðum er mjög gott. Bæði í göngufæri eða með stuttum akstri. Hinn staðurinn er Plantio en þar eru frábærar íbúðir, gott æfingasvæði og 2 golfvellir, annar 9 holu par 3 völlur sem hentar byrjendum í mörgum tilfellum mjög vel. Á Plantio er allt innifalið í mat og drykk, bæði í klúbbhúsinu sem og í veitingasölunni við íbúðirnar. Ef við fáum beiðni um kennslu utan þessara 2 vikna þá skoðum við það að sjálfsögðu hverju sinni.Sjálfur er ég menntaður PGA golfkennari og kenni við skólann. En skólastjóri golfskólans er enginn annar en Þorsteinn Hallgrímsson og ekki skemmir fyrir að Júlli, Júlíus Hallgrímsson bróðir hans hefur verið að kenna við skólann líka, og þeir sem þekkja þá bræður vita að þar sem þeir eru er ekki leiðinlegt.“ segir Ingibergur Jóhannsson

GOLFSKÓLINN ER JAFNT FYRIR BYRJENDUR SEM LENGRA KOMNA

Golfskólinn

Page 15: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Ert þú á leiðinni í

Golfferð í vor?

Nánar á urvalutsyn.is/golfÚrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.

Sími 585 4000 www.uu.is

Villaitana – Aftur í sölu!

FLOTTIR GOLFVELLIR Í EINSTÖKU LANDSLAGI

„Golfvellirnir eru tveir, hannaðir af hinum þekkta kylfing, Jack Nicklaus. Levante par 72, hálfgerður links-völlur en án kargans sem kemur sér reyndar vel fyrir þá ekki svo beinu. Brautirnar eru frekar harðar, með mikið af glompum og flatirnar stórar með miklu landslagi. Af öftustu teigum er Levante 6.612 metrar og býður því þeim högglengri til veislu.Levante völlurinn er hannaður með það í huga að vera keppnisvöllur á alþjóðavísu en þrátt fyrir það hefur hann reynst forgjafarhærri kylfingum nokkuð viðráðanlegur. Brautirnar eru nokkuð breiðar og ekki mikið um erfiðan karga. Það eru einna helst glompurnar og 4 púttin sem hafa verið að stríða fólki. „Okkar álit er að Levante sé frábær valkostur fyrir alla kylfinga“ segir Ingibergur sem hefur margoft verið fararstjóri á Villaitana.Poniente par 62. „algjöra perla“. Fallegra landslag í golfvelli er erfitt að finna og þrátt fyrir að vera aðeins 3.858 metrar þá reynist hann mörgum ansi erfiður þó það sé engin par 5 braut. Ingibergur segir að Poniente sé frábær æfingavöllur fyrir alla kylfinga ekki síst þá forgjafarlægri. Forgjafarhærri kylfingum ráðleggjum við að taka með nóg að boltum. Golfbíll er innifalinn þegar spilað er á Poniente.Ingibergur segir að af fenginni reynslu þá er morgunnmatur aðeins innifalinn í ferðunum til Villaitana. Fólk hafi ekki viljað binda sig við kvöldverðahlaðborð þar sem á hótelinu sjálfu er að finna úrval veitingastaða auk þess að örstutt er að renna niður á Benidorm þar sem er mikið úrval veitingastaða.“

Vegna mikillar eftirspurnar býður Úrval Útsýn nú aftur upp á golfferðir til Villaitana á Spáni. Við báðum Ingiberg Jóhannsson deildarstjóra golfdeildar Úrvals Útsýnar að segja okkur aðeins meira frá Villaitana svæðinu og hvað það er sem skýrir vinsældirnar.

Villaitana er sannkölluð ævintýraveröld kylfingsins, bara í 40 mín fjarlægð frá flugvellinum í Alicante. Tveir 18 holu vellir, flott 4 stjörnu hótel sem er byggt eins og lítið þorp, fullkomið SPA og frábær sólbaðsaðstaða. Öll umgjörð er hin glæsilegasta og ekki skemmir að það er örstutt að skjótast með leigubíl niður á Benidorm í verslanir, veitingahús og næturlíf.

PLANTIOVERÐDÆMI

23. – 30. mars 2015

214.900 kr

RODAVERÐDÆMI23. – 30. mars 2015

179.900 kr

HUSAVERÐDÆMI6. – 13. apríl 2015

189.900 kr

VILLAITANAVERÐDÆMI21. apríl – 1. maí 2015

229.900 kr

TENERIFEVERÐDÆMI28. janúar – 4. febrúar 2015

229.900 kr

El SALERVERÐDÆMI1. – 5. apríl 2015

169.900 kr

„Það eru ófáir kylfingarnir sem hafa byrjað ferilinn í golfskóla Úrval Útsýnar á Spáni og sem vott um ánægju nemenda með skólann þá er talsvert um það að fólk komi ekki bara einu sinni heldur 2 til 3 sinnum í skólann. Þrátt fyrir stífa kennsludagskrá þá leggjum við einnig mikið upp úr því að það sé gaman í skólanum sem skýrir kannski að hluta endurkomu nemenda.Eitt atriði vil ég þó nefna sérstaklega en það er að skólinn er ekki bara fyrir byrjendur. Algengt var að við fengum eiginkonuna í skólann og karlinn fór sálfur bara út að spila en það hefur verið að færast í vöxt að karlarnir eru að koma með konunum í skólann og sjá ekki eftir því. Ég hef ekki enn hitt þann kylfing sem er fullnuma í íþróttinni og aðstæðurnar verða varla betri til að bæta sig. Sem dæmi þá var forgjafarlægsti kylfingurinn sem ég man eftir í augnablikinu, með rétt um 4 í forgjöf þegar hann kom í skólann. Í 6 daga skóla eru nemendur 18 klukkutíma undir handleiðslu golfkennara þar sem ekki er aðeins farið í gegnum golfsveifluna og stutta spilið (vipp og pútt) heldur líka leikskipulag, siða- og umgengnisreglur, leikhraða og forgjafarkerfið. Við leggjum mikla áherslu á að fjöldi nemenda á hvern kennara sé hámark 6-7 manns þannig að allir fái góðan tíma með kennaranum. Kennslan fer fram á morgnana og eftir hádegismat þá býðst nemendum að fara út að spila, allt eftir

áhuga hvers og eins.Nú í þeim tilvika sem t.d. annar aðilinn er í skóla og makinn að spila þá reynum við að stilla þannig saman að viðkomandi geti farið saman út að spila eftir hádegismatinn.Fyrir vorið 2015 þá eru í boði 2 fyrirfram skipulagaðar skólaferðir á tvo mjög ólíka staði. Husa/Alicante Golf, gott 4* hótel, mjög gott æfingasvæði og flottur 18 holu golfvöllur og val um að hafa innifalið morgun og kvöldmat eða eingöngu morgunmat þar sem aðgengi að ólíkum veitingastöðum er mjög gott. Bæði í göngufæri eða með stuttum akstri. Hinn staðurinn er Plantio en þar eru frábærar íbúðir, gott æfingasvæði og 2 golfvellir, annar 9 holu par 3 völlur sem hentar byrjendum í mörgum tilfellum mjög vel. Á Plantio er allt innifalið í mat og drykk, bæði í klúbbhúsinu sem og í veitingasölunni við íbúðirnar. Ef við fáum beiðni um kennslu utan þessara 2 vikna þá skoðum við það að sjálfsögðu hverju sinni.Sjálfur er ég menntaður PGA golfkennari og kenni við skólann. En skólastjóri golfskólans er enginn annar en Þorsteinn Hallgrímsson og ekki skemmir fyrir að Júlli, Júlíus Hallgrímsson bróðir hans hefur verið að kenna við skólann líka, og þeir sem þekkja þá bræður vita að þar sem þeir eru er ekki leiðinlegt.“ segir Ingibergur Jóhannsson

GOLFSKÓLINN ER JAFNT FYRIR BYRJENDUR SEM LENGRA KOMNA

Golfskólinn

Page 16: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is16

Gríðarleg þátttaka var Regluverði, spurningaleik Golfsambands Íslands og Varðar. Rúmlega 5000 manns tóku þátt í sumar og fjölgaði þátttakendum um 1000 á milli ára. Í leiknum gafst þátttakendum færi á að kanna þekkingu sína á golfreglunum og gátu þeir sem stóðust prófið fengið gull-, silfur- eða bronsverðlaun. Um 2000 þátt-

takendur hlutu gullverðlaunin og sýndu með því yfirburða þekkingu á golfreglunum.Sigurvegari Regluvarðar þetta sumarið var Kristján Geir Guðmundsson. Hann hlaut að launum magnaða haustgolfferð með Heims-ferðum fyrir tvo á Montecastillo golfsvæðið á Spáni. Golfsamband Íslands þakkar öllum sem tóku

þátt kærlega fyrir og minnir alla golfáhuga-menn á að kynna sér golfreglurnar. Þeir sem ekki eiga eintak af af Golfreglubókinni ættu að næla sér í hana. Bókin passar vel í golfpokann en svo er líka gott að rýna í hana þegar ekki er lengur fært á golfvöllinn.

Kristján með reglurnar á hreinu og vann golfferð til Spánar

Hörður Arnarson, framkvæmdastjóri golfdeildar Heimsferða, Kristján Geir Guðmundsson, sigurvegari Regluvarðar, Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands og Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, við afhendingu verðlaunanna.

FACEBOOK.COM/KRINGLAN.ISKRINGLAN.IS

GJAFAKORT KRINGLUNNAR

er gjöf af öllu hjartaÞú færð kortið á þjónustuborði okkar á 1. hæð, við Hagkaup eða á kringlan.is

Smakkaðu...

SEXTÍU ÁR Á MILLI KEPPENDA Í SAMA LIÐI„Þetta var mjög skemmtilegt. Það voru ekki nema sextíu ár á mili okkar Kingu þannig að við náðum vel saman í fjórmenningnum,“ sagði Eygló Geirdal úr Golfklúbbi Suðurnesja en hún var í liði GS í sveitakeppni GSÍ í ágúst.Það vakti athygli og smá aðdáun þegar Eyló mætti til leiks með hinni ungu og stórefnilegu Kingu Korpak í sveitakeppninni í sumar í Mos-fellsbæ. Lið GS var skipað ungum golfkonum og Eygló var hissa þegar haft var samband við hana um að vera í liðinu. „En ég sló auðvitað til og lét mig hafa það þó ég hefði þurft að spila fullt af golfi, meðal annars tvisvar tvo hringi sama daginn, sjötug kerlingin. Ég gæti verið amma þeirra allra. Þetta var auðvitað mjög gaman, Georg, kallinn minn dró fyrir mig og svo skemmdi ekki fyrir að okkur Kingu gekk vel saman,“ sagði Eygló við Golf á Íslandi og bætti því við að hún ætti nú ekki von á því að vera aftur kölluð til á næsta ári. En yrði líklega klár í slaginn ef símtalið kæmi.

Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili hefur á þessu ári tekið risastökk á heimslista áhugakylfinga. Hinn 17 ára gamli Hafn-firðingur var í sæti nr. 129 í lok september og hafði hann stokkið upp um 2371 sæti á einu ári. Alls eru 29 íslenskir karlar sem er á heimslistanum en bæði Íslandsbankamótaröð unglinga og Eim-skipsmótaröðin hafa fengið aukið vægi á heimslistanum eftir að mótin urðu 54 holu mót. Í kvennaflokki er Guðrún Brá Björgvins-dóttir efst af Íslendingunum en hún hefur farið upp um tæplega 700 sæti á einu ári. Guðrún Brá er í sæti nr. 321 á heimslistanum en var í sæti nr. 995.

Efstu íslensku kylfingarnir í karlaflokki á heimslist-anum:

129. Gísli Sveinbergsson, GK272. Bjarki Pétursson, GB284. Haraldur Franklín Magnús, GR588. Kristján Einarsson, GKj.862. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR1201. Aron Júíusson, GKG1325. Ragnar Már Garðarsson, GKG1386. Andri Þór Björnsson, GR1493. Axel Bóasson, GK1841. Rúnar Arnórsson, GK1991. Stefán Þór Bogason, GR2097. Fannar Steingrímsson, GHG

Efstu íslensku kylfingarnir í kvennaflokki á heimslist-anum eru:

321. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK502. Sunna Víðisdóttir, GR1150. Berglind Björnsdóttir, GR1273. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR1296. Signý Arnórsdóttir, GK1791. Anna Sólveig Snorradóttir, GK1911. Sara Margrét Hinriksdóttir, GK1964. Ólöf María Einarsdóttir, GHD2336. Tinna Jóhannsdóttir, GK

Risastökk hjá Gísla á heimslistanum- hinn 17 ára gamli kylfingur fór upp um 2.371 sæti á einu ári

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is12

www.siminn.is

EN

NE

MM

/ N

M6

154

6

IP símkerfi fyrir fast

gjald á mánuði

Fyrirtækjaþjónusta Símans er

partur af starfsemi Furu

Endurvinnslufyrirtækið Fura bútar sundur 2.500 bíla og fimm skip árlega. Eins og 15.000 önnur íslensk fyrirtæki treystir það á fyrirtækjaþjónustu Símans.

Síminn býður fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum upp á bæði fjarskipta- og upplýsingatækniþjónustu.

Starfsfólkið getur þannig einbeitt sér að sínu aðal-hlutverki meðan Síminn sér um rekstur, viðhald og öryggi kerfanna.

Nánar á siminn.is eða í síma 800 4000.

Láttu sérfræðinga okkar finna lausnina sem hentar þínu fyrirtæki

Árlegir Lávarðaleikar GSF fóru fram 13. september á Hagavelli Seyðisfirði. Þátt-takendur voru 32. Heiðursgestir voru sex. Leikarnir hófust kl. 10.02. Slegið var af öllum teigum samtímis eftir að ræst hafði verið út með kröftugum lúðrablæstri. Golfveður var frábært, Sv-átt, sól og stillt og hiti fór í +18 þegar best lét. Leikið var leikandi létt golf með forgjöf og sáust mögnuð fagnaðar-læti um víðan Hagavöll þegar vel tókst til við slátt og pútt. Um kvöldið buðu Lávarðar til mikillar uppskeruhátíðar í golfskála þar sem þátttakendur, girtir vel í brók að vanda, snæddu valið grillað lambakjét með fjöl-breyttu mauluðu meðlæti sem þeir renndu niður með mögnuðum Lávarðadrykk.

Riddarar GSF Adolf Guðmundsson nr. 16. Lárus Bjarnason nr.17 og Guð-mundur Sigurðsson nr. 18 voru „inn-vígðir “ í hæstvirta Lávarðadeild GSF af Yfir Lord og Form. Lávarða með

vísan til 17. gr. 6. mgr. í Lávarðareglum frá 2006 og 2.gr í viðauka frá 2012. 19. holan „L-B Þorvaldsbrautarbani“ var leikin kl. 21.45-22.30 á flóðlýstum teig með blikkandi baugjuljós á flaggi 9. flatar. Taktfastur, kröftugur, raddaður söngur þar sem allir sungu með sínu nefi,við undir-leik Hljómsveitar HÚSSINS, braust út milli Bjólfs og Strandatinds fram til kl. 23.45. Stundvíslega kl. 23.50 renndi rúta í hlað golfskála Hagavallar með Sigurð Valde-marsson við stýrið. Léttir í lundu stigu þátttakendur um borð og keyrt var inn í kaupstað. Sumir létu þar með gott heita en aðrir viðruðu sig ögn lengur í ljúfu nætur-lífi fjarðarins fagra sem engan svíkur. Lávarðar GSF þakka Riddurum GSF og öllum öðrum kylfingum frábært golfsumar og nú ganga þeir brattir inn í haustið og veturinn með þann eina ásetning að leika áfram golf á meðan stætt er.

Á Lávarðaleikum er leikið um 3 heiðurstitla GSF og veitt er ein tilnefning ársins. Þessi varð niðurstaðan: Meistari Lávarða GSF 2014: Sigurður Finnbogason. Meistari Riddara GSF 2014: Stefán Jóhannsson. Þorvaldsbrautarbani GSF 2014: Ólafur Ingi Mikaelsson (5.43). Tilnefning: Besti vinur Lávarða GSF 2014: Marco.

Lávarðar GSF þakka eigendum Brimbergs ehf. og Óttari Magna fyrir veittan stuðning og bjóða nýja Lávarða nr. 15., 16. og 17., vel-komna í hópinn

F.h. Öldungaráðs Lávarða Þ.J.

Lávarðaleikar GSF 2014. Stemmning á uppskeruhátíð:

19. holan leikin á flóðlýstum teig með blikkandi baugjuljós á flaggi 9. flatar

Keppendur á Lávarða-leikum GSF á Hagavelli á

Seyðisfirði.

Page 17: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is

Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800, Bílver, Akranesi, sími 431 1985Höldur, Akureyri, sími 461 6020, Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535

Horfðu á heildarmyndina

HONDA CR-V KOSTAR frá kr. 5.190.000

honda.is/cr-v

Hvort sem þú vilt þægindi og víðáttu innrarými fyrir ferðalagið eða skynvætt veggrip fyrir krefjandi akstursaðstæður þá er Honda CR-V fyrir þig. Bættu við hagstæðu verði og 5-stjörnu öryggi og þú sérð heildarmynd hagkvæma borgarjeppans sem hefur rakað að sér verðlaunum í öllum heimsálfum. Heildarmyndin endurspeglast í háu endursöluverði og verðlaunum sem áreiðanlegasti bílaframleiðandi heims áttunda árið í röð. Keyrðu Honda CR-V, betri 4x4 þegar á allt er litið.

Horfðu á heildarmyndina

víðátta & veggripVí-D átta & vEGGRIP

Page 18: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is18

„Brýnasta verkefni golfhreyfingarinnar næstu árin er að koma í veg fyrir fækkun félags-manna. Við höfum átt stórkostlegu gengi að fagna undanfarin ár og þurfum að halda áfram, ekki má slaka á,“ sagði Haukur en félagsbundnum kylfingum á Íslandi fækkaði um 1% í sumar.

Rekstrarniðurstaða sambandsins er í takt við þær væntingar sem fram komu í fjár-hagsáætlun fyrir árið 2014, en heildarvelta sambandsins er tæplega 150 milljónir króna og rekstrarafgangur 1,4 milljónir. Stjórn golfsambandsins hefur ávallt sýnt varkárni og aðhald í rekstri sínum og ekki stofnað til útgjalda fyrr en tekjur væru tryggar á móti. Það hefur verið stefna stjórnar að eigið fé sambandsins verði ekki lægra en 15-20% af heildargjöldum þess á hverjum tíma til að tryggja að hægt sé að taka við óvæntum áföllum og er ánægjulegt að sjá að það mark-mið sé að nást. Þá er það jafnframt langtíma-markmið sambandsins að auka sértekjur sambandsins þannig að hlutfall tekna af félagagjöldum lækki niður í þriðjung.Aukin samkeppni við aðrar íþróttir og af-þreyingu Í ræðu forsetans kom m.a. fram að stefnu-mótunarhópur sambandsins hafi orðið þess nokkuð áskynja að hinn almenni kylfingur, eða hinn hefðbundni félagsmaður, geri kröfur

Áherslan á hinn almenna kylfing

Fjölmenni á formannafundi GSÍ í Borgarnesi – Hagn-aður af rekstri og heildarveltan um 150 milljónir kr.

Um áttatíu manns mættu á formannafund Golfsambands Íslands sem fram fór á Hótel Borgarnesi laugardaginn 8. nóvember s.l. Haukur Örn Birgisson, for-maður GSÍ, flutti skýrslu stjórnar og sagði hann m.a. að við mótun nýrrar stefnu golfhreyfingarinnar hafi komið fram skýr vilji hreyfingarinnar að auka áherslu á hinn almenna kylfing.

um betri og fjölbreyttari þjónustu gagnvart sér, bæði frá golfkúbbunum og golfsam-bandinu.„Að þessu þarf forysta golfklúbbanna og hreyfingarinnar í heild að huga við val á framtíðarverkefnum sínum ef henni er ætlað að takast að halda áfram fjölgun kylfinga og halda félagsmönnum innan sinna raða. Sam-keppni við aðrar íþróttir og afþreyingu fer vaxandi og þarf forysta golfhreyfingarinnar að vera á tánum gagnvart óskum og þörfum sinna félagsmanna,“ sagði Haukur m.a. en hann tók það skýrt fram að aukin áhersla á hinn almenna kylfing þurfi ekki endilega

að vera á kostnað annarra kylfinga, t.a.m. afreksfólks, eins og einhverjir kunna að halda. Áfram verður því mikilvægt fyrir golf-hreyfinguna að huga vel að áframhaldandi afreksstarfi og hlúa að landsliðum sínum.“Forsetinn óskaði eftir auknu samstarfi við kylfinga sem hafa áhuga á að koma að vinnunni að stefnumótun GSÍ. Sambandið hefur tekið í notkun hugbúnaðinn Trello sem er sérstakt skipulags- og verkumsjónarkerfi.

„Hugmyndir og nýjar leiðir eru í stöðugri mótun og eiga að vera það næstu árin. Allir sem hafa áhuga á mega gjarnan koma að vinnunni og golfsambandið óskar sérstak-lega eftir fólki innan klúbbanna til að taka þátt í starfinu,“ sagði Haukur og benti á að vinna við eftirfylgni samþykktrar stefnu væri langtímaverkefni sem mun standa yfir fram til ársins 2020.

Haukur Örn í ræðupúlti á formannafund-inum. Hörður framkvæmda-stjóri GSÍ honum til hliðar.

Margir formenn og forráðamenn golfklúbbana mættu á fundinn.

Page 19: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

UMHVERFISMERKI

Prentgripur

141 825

Suðurhraun 1

Garðabæ

Sími: 59 50 300

www.isafold.is

VIÐ PRENTUM

Umbúðir • Bækur • Tímarit • Fyrir skrifstofuna • Bæklinga • Fjölpóst Kynningarefni • Dagblöð • Stafrænt • Allskonar!

SVALANDI ENGIFERBJÓR

WWW.CRABBIESGINGERBEER.CO.UKCrabbiesUK #CrabbiesTime

IT’S TIME FOR A CRABBIE’S

Iceland Tourist Bureau • tel. +354 585 4000 • [email protected] • www.itbtravel.is

1

2014–2015

Over 78 years of value, quality and service

Jómfrúin

2014Busablaðið

SEPTEMBER 2014 KIRKJA OG TRÚ, HÉR OG NÚ

KIRKJAN ER FÓLK

ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ FJÖLSKYLDUNNAR

5X3

MANNAUÐURINN ER FJÁRSJÓÐUR KIRKJUNNAR

KONUR TAKA YFIR?

SÖFNUÐUR VELUR PREST

HIÐ TRAGÍSKA HLUTLEYSI

FJÖRUTÍU GÓÐ ÁR MEÐ AUÐI

SAURBÆR, HALLGRÍMUR OG GRÆÐGIN

SÉRA MÁLMHAUS

ÞEGAR KVÖLDAR

Guð minn,í hendur þínar

fel ég þennan dag.

#morgunbaen

@truinoglifid

mánaðarins

BÍÓMYNDIR249. tbl. október 2014

NISSAN VERÐLISTI

Haust 2014

#4Haust / 2014

NUDEmagazineSmáralind

Steldu stílnum hjá

Tom Ford

+Jared LeTo

Gallaskyrtur yfirhafnir blátt gráttboots strigaskór bakpokar

GroominG9 aTriði Sem aLLir karLmenn þurFa að haFa á hreinu

viðtal:

Hinn Íslenski Dr. Woo? Wojciech á Bleksmiðjunni

Haust-tÍskan

TöFFarar á inSTaGramþú þarft að fylgjast

með þessum!

#4Haust / 2014

NUDEmagazine

Smáralind

viðtal:

konur á besta

alDrisvava johansen ræðir sinn persónulega stíl

og gefur góð ráð

Beauty:rauðarvarir

+dramaTíSk auGnhár

trenD report

Litirnir í haust yfirhafnir 60's stíllinn

pelsar rúllukragar fylgihlutirÚttekt á öllu því helsta í hausttískunni

Tískudagar í Smáralind

NU

DEm

agazine

September 2014

ómissandi!

ólýsanleg!

ótrúleg!

ómissandi!

ólýsanleg!

ótrúleg!MUNDUEFTIR APPINU!

Sýningarstaðir

HÁSKÓLABÍÓ, BÍÓ PARADÍS, TJARNARBÍÓ OG NORRÆNA HÚSIÐ

Miðasala Upplýsingar

Í TJARNABÍÓI OG Á RIFF.IS FRÁ 18. SEPT ALLAR UPPLÝSINGAR Á RIFF.IS

Skoðaðu sýnishorn úr myndunum www.riff.is

Allar myndir eru sýndar með enskum texta

&

7. TBL. 3. ÁRG. 2014

20. SEPTEMBER 2014RALLÝ

REYKJAVÍKH-DCICEDRIFT

Lokakeppni ársins 2014 Harley Davidson klúbburbls. 5bls. 11 bls. 18

&TAKTU EINTAK

BLAÐIÐ ER FRÍTT!

84. árg. 1.–2. hefti 2014Náttúru fræðingurinn

Meginþættir í vistkerfi Íslandshafs og breytingar á lífsháttum loðnu

Ólafur K. Pálsson, Ástþór Gíslason, Björn Gunnarsson, HafsteinnG. Guðfinnsson, Héðinn Valdimarsson, Hildur Pétursdóttir,Konráð Þórisson, Sólveig R. Ólafsdóttir og Sveinn Sveinbjörnsson

19Þröstur Þorsteinsson Árstíðabreytingar í tíðni gróðurelda á Íslandi

53Arnar Pálsson Stefnumót skilvirkni og breytileika: snertiflötur þroskunar og þróunar

27Árni HjartarsonHallmundarkviða, eldforn lýsing á eldgosi

43Kjartan Thors og Guðrún HelgadóttirHryggir í Lónsdjúpi

NF_84_1-2.indd 1 0909//14 09:28

Sími 535 2510 • www.gamar.is

Setjum umhverfið í fyrsta sætiGámaþjónustan hf.

hefur ásamt dótturfélögum notað slagorðið „Bætt umhverfi - betri framtíð“.

Umhverfisstefna fyrirtækisins byggir á þessu slagorði og er jafnframt nánari útfærsla á því.

• Gámaþjónustanerífararbroddiíflokkunogendurvinnslu úrgangsáÍslandiogstuðlaraðaukinniflokkunog endurvinnsluúrgangsviðskiptavinasinna.

• Gámaþjónustantekurtillittilumhverfismálaogleitastvið aðþekkjaumhverfisáhrifstarfseminnarogdragaúr neikvæðumáhrifumáumhverfið.

• Gámaþjónustanfylgirlagalegumkröfumásviðiumhverfis- málaogvinnureftirumhverfisstjórnunarstaðlinumISO14001 tilaðtryggjastöðugarumbætur.

• ÍrekstriGámaþjónustunnarerleitastviðaðfaravel meðauðlindirogtekiðertillittilumhverfissjónarmiðavið innkaup.

• Gámaþjónustaneinseturséraðkynnaviðskiptavinum fyrirtækisinsgildiúrgangsflokkunar,endurvinnsluog endurnýtingarmeðþaðaðmarkmiðiaðaukaflokkun úrgangsogbætanýtinguauðlinda.

NF_84_1-2.indd 80 0909//14 09:29

1409065 Natturufr 1A

CM

YK

56

ALLT TIL MERKINGA OG PÖKKUNARwww.pmt.is

PLUSÞÆGINDI& GÆÐI

KRONBORG GREENLAND ANDADúNSÆNGNotaleg og góð sæng fyllt með 90% af andadúni og

10% af andafiðri. Þyngd: 750 gr. Sængin er saumuð í

ferninga og því helst dúnninn jafn yfir alla sængina. Stærðir: 135 x 200 sm. 17.950 nú 9.950

135 x 220 sm. 19.950 nú 11.950Koddi: 50 x 70 sm. 7.995 Vnr. 4060050, 4060051,4260004

9.950FULLT VERÐ FRÁ: 17.950

Koddi 50 x 70 sm.

7.995

100% bómullarsatín

anDaDÚnsÆnG

jADE OG AFI SÆNGURVERASETTEfni: 100% bómullarsatín. Stærð:

140 x 200 sm. og 50 x 70 sm. Lokað að neðan með tölum. Vnr. 1274580, 1275580

100% bómullarsatín

2.9951 SETT FULLT VERÐ: 4.995

40%AFSLÁTTUR

SPARAÐU

8000AF SÆNGUM

79.990FULLT VERÐ: 109.950 27%

AFSLÁTTUR

DANNEMOSE SVEFNSÓFIFlottur svefnsófi með slitsterku áklæði. Þægilegur og auðveldur í notkun. Stærð: B209 x H78 x D80 sm. Í svefnstöðu: B140 x L190 sm. Litur: Grásvartur. Vnr. 3690011

SPORUP SKRIFBORÐSSTÓLLFlottur stóll með innbyggðri gaspumpu sem tryggir stiglausa hæðarstillingu. Hægt að rugga. Litur: Svartur. Vnr. 3620056

14.950FULLT VERÐ: 24.950

59.950FULLT VERÐ: 89.950

40%AFSLÁTTUR

33%AFSLÁTTUR

4.375

Gildir til: 10.09.14

www.rumfatalagerinn.is

ROYAL DREAM AMERÍSK DýNAGóð, miðlungsstíf amerísk dýna með MEMORY FOAM yfirdýnu. Vnr. 8880000703

MemorySvampur Ábyrgð

10 áradýnu

Ábyrgð

2áraáklæði

Svæða-skiptPokagormar Stífleiki

MjúkMeðalstíf

StífYfirdýna

ALLT AÐ 36 MÁNUÐIR

st. 120 x 200 sm.

Vörður Leví Traustason framkvæmdastjóri Samhjálpar:

Það getur enginn stoppað Guð

Gísli Hjálmar Svendsen, ljósmyndari

Sviptir hulunni af hryllingnum

Guðrún Ída Ragnarsdóttir var hætt komin:

Endurlífguð tvisvar

31 árg. 2. tbl. 2014

Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ

Fæst án lyfseðils

VO

L130

102

Verkir íhálsi og öxlum?Verkjastillandi og bólgueyðandi við verkjum í hálsi og öxlum!

20%afsláttur

1

Vetur2014-2015

Sólarferðir

Borgarferðir

Íþrótta- og afþreyingarferðir

Siglingar

Golfferðir

Aðventuferðir

Sérferðir

GEYSIR HAUKADALUR — 1

B I S T R O ¨ S O U V E N I R S ¨ M U S E U M ¨ R E S T A U R A N T S

Free ENTRANCE TO THE MULTIMEDIA SHOW

GEYSIRHAUKADALUR

www.elding.is

Reservations:+354 519 5000

Just imagine sailing out towards the unknown in search of the Northern Lights with their brilliant colours flashing across the evening sky.

NORTHERNLIGHTS CRUISE

Make sureit’s Elding!

WIN

TER

2014

-201

5

Stórlækkaðu kostnaðinnþegar þú notar símann í BNA og Evrópu.

Vertu eins ogheima hjá þér!

Ferðapakki Nova

Page 20: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is20

Kylfingar í golfklúbbum voru í lok sumars 16371 og fækkaði um 231 á árinu. Haukur sagði að á undanförnum 10 árum hafi tíu þúsund kylfingar hætt í íslenskum golf-klúbbum.„Á þessum sama áratug fjölgaði skráðum kylfingum engu að síður umtalsvert. Stærstur hluti þessa tíu þúsund kylfinga er enn kylfingar þótt þeir tilheyri ekki lengur golfklúbbi. Þessi fjöldi kylfinga hætti að sjá verðmæti í því að tilheyra klúbbi og það er okkar verkefni að sannfæra þá um annað. Það er okkar verkefni að sýna þeim fram á kosti félagsaðildar í stað greiðslu á ein-stöku vallargjaldi eða félagskorti í golfklúbbi starfsmannafélagsins. Það er ekki nóg að huga einungis að fjölgun nýrra félagsmanna, heldur verðum við að bregðast við brottfallinu.

Leiðirnar að þessu verkefni eru óteljandi margar og ekki hægt að benda á eina rétta leið umfram aðrar. Um er að ræða samspil mismunandi þátta sem hafa snertiflöt við mótamál, kynningarmál, afreksmál, þjónustu golfklúbba, bætta æfingaaðstöðu, golf-kennslu og fleira og fleira. Golfhreyfingin hefur sameiginleg markmið og þarf því að vinna sem ein heild. Þótt gríðarlegur árangur hafi náðst undanfarinn áratug þá er fjölgun íslenskra kylfinga ekkert lögmál. Við eigum að stefna sameiginlega á að fjölga kylfingum, halda þeim í okkar röðum og þjónusta þá eins vel og við getum. Það gerum við með auknu samstarfi á milli golfklúbba og GSÍ,“ sagði Haukur m.a. en árskýrslu GSÍ má lesa í heild sinni á golf.is.

Brýnasta verkefni golfhreyfingarinnar næstu árin er að koma í veg fyrir fækkun félagsmanna.

Á formannafundi GSÍ komu fram áhuga-verðar tölfræðiupplýsingar í skýrslu stjórnar. Meðalforgjöf karla á Íslandi er um 22 og hjá konum er þessi tala 32. Um 60% kylfinga eru á höfuðborgarsvæðinu en GR er með flesta félaga eða rétt um 3000 og er því annað stærsta íþróttafélag landsins. Heildarvelta golfklúbba landsins á ársvísu er rétt um tveir milljarðar kr.

• Fjöldi kylfinga í klúbbum er um 17 þúsund.• Fjölmennasti klúbburinn er GR með um 3000 félaga og er klúbburinn því annað stærsta íþróttafélagið á landinu.• Lengsta brautin á landinu er 600 m af gulum teig á Víkurvelli í Mýrdal.• Lengsti 18 holu völlur á landinu er Grafar-holtsvöllur, leikinn af hvítum teigum, samtals 6.057 m.• 60 hektarar er meðalstærð 18 holu golf-vallar. (43% eru undir brautum)• Meðalforgjöf íslenskra karlkylfinga er um 22 en kvenkylfinga um 32.• Um 60% allra kylfinga eru á höfuðborgar-svæðinu.• Á hverju ári eru leiknir hátt í 35.000 hringir á 18 holu völlum höfuðborgarsvæðisins.• Á æfingasvæðunum Básum og Hraunkoti eru yfir tíu milljónir bolta slegnir á ári.• Um 20% af öllum kylfingum taka þátt í meistaramótum klúbbanna.• 2% kylfinga á Íslandi er í forgjafarflokki 1 (forgjöf 4.4 og undir)• Rúmlega 130.000 forgjafarhringir eru skráðir á ári í tölvukerfi GSÍ.• Kylfingar eru að meðaltali með fimm skráða forgjafarhringi á ári.• Áætlaður fjöldi erlendra kylfinga sem leika hér er á hverju ári er um 5000.• Heildarvelta golfklúbba er um 2 milljarðar.

1% FÆKKUN Á MILLI ÁRA - 10.000 fyrrum félagsmenn farnir úr hreyfingunni

Lífleg umræða var um „fyrirtækjagolf-klúbba“ á formannafundinum í Borgarnesi. Undanfarin ár hafa 10.000 kylfingar hætt í golfklúbbum og stóra spurningin er hvert þeir kylfingar hafa farið? Álitaefnin eru mörg og m.a. hvort það sé jákvætt fyrir hreyfinguna að óhefðbundnum starfs-mannaklúbbum sé að fjölga en skiptar skoðanir voru um þetta mál á fundinum. Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri GOS, fór yfir þessi mál ásamt Hauki Erni Birgissyni, forseta GSÍ.

Hlynur fór yfir þá reynslu sem GOS hefur fengið að samstarfi klúbbsins við starfsmannagolfklúbb Íslandsbanka. Það jákvæða að mati Hlyns var að með slíkum samningi væri mun meira „líf “ á Svarfhóls-velli en um 50% af heildarfélagfjölda GOS kemur í gegnum fyrirtækjaklúbba. Þessi breyting hefði í raun bjargað klúbbnum sem hefði verið í miklum fjárhagserfið-leikum og tæknilega gjaldþrota.

Hlynur benti á að margir hafi byrjað í golfi í gegnum starfsmannafélög en það þyrfti að gæta vel að það væri ekki hagstæðara fyrir hinn almenna félagsmann að ganga úr sínum klúbb og fara í fyrirtækjaklúbbinn. Nokkrir tóku til máls í þessum lið og var bent á að stóru golfklúbbarnir hafi jafnvel verðlagt sig of lágt á þessum markaði – sem bitnaði mest á smærri klúbbunum sem þyrftu að fá meiri tekjur til að láta dæmið ganga upp.

Lífleg umræða um fyrirtækjagolfklúbba

Heildarársvelta golf-klúbba um 2 milljarðar -2% kylfinga er með 4,4 í forgjöf eða lægra

Page 21: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

FACEBOOK.COM/KRINGLAN.ISKRINGLAN.IS

GEFÐU AF ÖLLU

Gjafakort Kringlunnar er gjöf af öllu hjarta.Þú færð kortið á þjónustuborði á 1. hæð

við Hagkaup eða á kringlan.is

PIPA

R\

TBW

A •

SÍA

PIPA

HJARTA

Page 22: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is22

Tölur í stað lita í teigamerkingum

Breyta þarf viðhorfi kylfinga til þeirra teiga sem boðið er upp á golfvöllum en markmiðið er að taka upp nýjar merkingar á teigum á golfvöllum lands-ins. Rauði þráðurinn er að kylfingar eiga að leika af þeim teigum sem henta þeirra getu – óháð kyni eða aldri. Til þess að breyta þessu viðhorfi þarf að breyta útlitinu á teigamerkjum og hugtökin karla- og kvennateigar ættu að hverfa ef áætlunin gengi upp. Með því að breyta útliti á teigamerkjum í t.d. tölur, líkt og

gert er í Svíþjóð, ætti þeim kylfingum að fjölga á Íslandi sem leika af teigum sem hæfa þeirra getustigi. Á formannafundinum í Borgarnesi var m.a. bent á að Svíar merkja teigana með tölustöfum í stað þess að nota liti. Tölurnar s.s. 61, 53, 46 gefa til kynna heildarlengd vallarins af þeim teig. Þessi breyting hefur gefist vel hjá Svíum – þar hefur leikhraði aukist og upplifun kylfinga af völlunum verður ánægjulegri. Á fundinum var lögð fram tillaga

að stjórn GSÍ hefji innleiðingu á breytingum á teigasettum, í samstarfi við klúbba, með það að markmiði að teigar endurspegli getu kylfinga í stað kynferðis. Jafnframt er markmiðið að auka ánægju kylfinga af golfleik sínum og bæta leikhraða. Lagt er til að árangur vinnunnar verði kynntur á Golfþingi 2015 þar sem fyrir liggi athugun á upplifun kylfinga og klúbba af þessum breytingum. Tillagan var samþykkt með lófaklappi.

NÝTT Í BRAUTARHOLTI -AÐGANGSLYKILL OG FORGJAFARSKRÁNING

Golfklúbbur Brautarholts býður upp á aðgangs-lykil og jafnframt aðgang að forgjafarkerfi GSÍ.

5 skipta aðgangslykil á kr. 22.000,-10 skipta aðgangslykil á kr. 40.000,-

Heimilt er að nota aðgangslykil fyrir fjölskyldumeðlimi og gesti. Ef óskað er eftir aðgangi að forgjafarkerfi GSÍ greiðast til viðbótar kr. 5.000,- við kaup á aðgangslykli.

Bjóðum einnig stærri aðgangslykla fyrir golfhópa og fyrirtæki. Sjá nánar á www.gbr.is.

Page 23: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Símkerfi fyrir fast mánaðarlegt gjald

Með Símavist hefur þú aðgang að öflugu og sveigjanlegu símkerfi sem lagar sig að þörfum fyrirtækisins og stærð.

Kerfið býður upp á margvíslega möguleika til að stýra símtölum og það er engin þörf á borðsíma því starfsmenn sem eru mikið á ferðinni geta einfaldlega tengt farsímann inn í Símavist.

Hafðu samband í síma 8004000 eða sendu póst á [email protected] og láttu sérfræðinga okkar finna réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki.

Misstu aldrei

af símtali

[email protected]

Page 24: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is24

Landsliðskylfingarnir Gísli Svein-bergsson úr Keili og Bjarki Péturs-son úr GB hafa samið við banda-

ríska háskólaliðið Kent State og halda þeir utan næsta haust. Kent State er þekkt nafn í golfheiminum og margir þekktir kylfingar hafa komið úr röðum skólans sem er staðsettur í Ohio fylki.Gísli, sem er 17 ára gamall, hefur nú þegar leikið með íslenska landsliðinu í golfi en hann er án efa eitt mesta efni sem komið hefur fram á Íslandi á undanförnum árum. Gísli er í 107. sæti heimslista áhugamanna í golfi og er það besti árangur hjá Íslendingi frá því að listinn var settur á laggirnar árið 2007.Bjarki mun í vor flytja til Þýskalands þar sem hann mun æfa undir handleiðslu Arnars Más Ólafssonar golfkennara. Áður en að því kemur mun Bjarki fara til Bandaríkjanna í byrjun desember þar sem hann mun æfa og keppa fram að jólum.Bæði Bjarki og Gísli eru miklir körfubolta-áhugamenn og þeir ætla að nýta tækifærin sem gefast til þess að sjá leiki með Cleveland Cavaliers sem er aðeins í 40 mínútna fjar-lægð frá Kent State.„Ég ætla að standa mig gríðarlega vel og gera Íslendinga stolta. Þessi skóli er vel staðsettur fyrir mig og Bjarka. Við fáum hvíld í nóvem-ber eftir keppnistímabilið hér heima og getum því unnið í tækninni og styrkt okkur

líkamlega,“ sagði Gísli en hann nokkrir háskólar hafa verið með hann í sigtinu undanfarin misseri. Þjálfari frá Kent State kom hingað til lands í maí á þessu ári þar sem hann fylgdist með keppni á Egils-Gull mótinu á Hellu.Margir þekktir kylfingar hafa komið úr röðum Kent State en Ben Curtis er án efa sá þekktasti. Hann sigraði á Opna breska árið 2003 sem fram fór á Royal St Georges vell-inum í Skotlandi en það var jafnframt fyrsta risamótið sem hann tók þátt í.Það fjölgar því kylfingum sem leika golf við bestu aðstæður í Bandaríkjunum en nú þegar eru 10 kylfingar við nám úr afrekshópi GSÍ. Það að auki eru fleiri íslenskir kylfingar við nám í Bandaríkjunum sem eru ekki í afreks-hóp GSÍ. Þeir kylfingar sem eru í háskóla í Bandaríkjunum og eru í afrekshóp GSÍ eru:Andri Björnsson Nicholls StateBerglind Björnsdóttir Univ. of NC at Greensboro - UNCGEmil Þór Ragnarsson Nicholls StateGuðmundur Ágúst Kristjánsson East Ten-nessee StateGuðrún Brá Björgvinsdóttir Fresno StateGunnhildur Kristjánsdóttir Elon UniversityHaraldur Magnus Franklín Louisiana-Lafa-yetteRagnar Már Garðarsson McNeese StateRúnar Arnórsson MinnesotaSunna Víðisdóttir Elon University

GÍSLI OG BJARKI Á FÖRUM TIL KENT STATE

ALLTAF Á LAUGARDÖGUM

ÞAÐ ER EINFALT AÐ SPILA MEÐ SNJALLSÍMANUM

EN

NE

MM

/ S

ÍA /

NM

65

02

2

W W W. LOT TO . I S

Berocca® Performance er einstök samsetningaf B vítamínunum, C vítamíni, magnesíum og zínki.

Bættu frammistöðu þína með Berocca - rannsóknir hafa sýnt að það ber árangur.

uPP á þitt Besta!ÞÚ

SykurlauSt

Íslenskum afrekskylfingum

fjölgar í Bandaríkjunum

Page 25: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

ALLTAF Á LAUGARDÖGUM

ÞAÐ ER EINFALT AÐ SPILA MEÐ SNJALLSÍMANUM

EN

NE

MM

/ S

ÍA /

NM

65

02

2

W W W. LOT TO . I S

Page 26: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is26

Kristján Þór Einarsson átti frábært golfsumar en hann stóð uppi sem stigameistari á Eimskipsmóta-

röðinni áður en lokamótið fór fram á Akur-eyri. Kristján Þór, sem leikur fyrir Kjöl í Mosfellsbæ, ætlar sér stóra hluti á næsta ári og Íslandsmeistarinn í holukeppni ætlar að reyna við úrtökumótið fyrir Evrópumóta-röðina. Golf á Íslandi ræddi við Kristján Þór þar sem stiklað var á stóru á golfárinu sem er að líða en hann ætlar að gera enn betur á næsta ári.

Stigameistaratitillinn var þinn í sumar – í fyrsta sinn á ferlinum. Var markmið sumarsins að ná þessum titli?„Já, það var vissulega eitt af mínum mark-miðum sem ég setti fyrir sumarið og þetta er titill sem að mig hefur langað að landa í langan tíma þannig að það var rosalega ljúft að klára hann fyrir lokamótið í sumar,“ segir Kristján en hann sigraði á þremur mótum á Eimskipsmótaröðinni. Hann var ánægðastur með sigurinn á Goðamótinu sem fram fór á Jaðarsvelli.„Ég var að sjálfsögðu ánægður með Íslands-meistaratitilinn í holukeppni en ég held að sigurinn á lokamótinu á Akureyri standi upp úr á þessu ári. Ástæðan er sú að ég var búinn að tryggja mér stigameistaratitillinn fyrir mótið. Ég setti smá auka markmið á sjálfan mig fyrir mótið að spila vel og sýna það að ég ætti titilinn skilið. Ástæðan fyrir að þetta mót stendur upp úr er einnig hvernig ég spilaði lokahringinn á mótinu, spilaði á 68 höggum (-4) í mjög miklu roki þar sem ég tapaði ekki einu einasta höggi á hringnum og að mínu mati var ég óheppinn að hafa ekki spilað betur.

Það gekk ekki allt upp hjá Kristjáni í sumar og hann var ekki sáttur við Meistaramótið hjá sjálfum sér hjá Kili í Mosfellsbæ.„Vonbrigði sumarsins voru meistaramótið hjá klúbbnum mínum. Ég náði ekki að koma mér almennilega í gang á neinum hring. Þar var ég alltof fljótur að svekkja mig á hlutum sem gengu ekki upp of þar af leiðandi náði ég ekki að setja 100% fókus á minn leik.“Kristján reyndi við úrtökumótið fyrir Nordic

„STÓRI DRAUMURINN ER AÐ VERÐA EINN

AF ÞEIM BESTU“- Kristján Þór Einarsson ætlar að gera enn betur – annasamt ár framundan

Page 27: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

Töfrar jólanna Byrja í Nettó

Page 28: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is28

„Ég reyni að sinna krökk-unum mínum fram að golfæf-ingunum sem eru í um tvo tíma síðdegis. Ég tek kvöldmat með fjölskyldunni og síðan tekur við að koma börn-unum í rúmið“

Ecco atvinnumótaröðina í haust og var ná-lægt því að komast áfram. Hann segir að sú reynsla hafi verið skemmtileg og hann ætli sér stærri hluti á næsta ári.

Ætlar að toppa í september á úrtökumótunum„Þetta var skemmtileg reynsla en það var leiðinlegt að hafa ekki komist áfram. Ég veit það sjálfur að ég á fyllilega heima á þessari mótaröð. Staðan á mér eftir þetta er mjög góð. Ég veit mun betur núna hvað þarf að vera í 100% lagi fyrir næsta úrtökumót. Næsta ár verður mjög annasamt hjá mér en það er á dagskrá að byrja keppnistíma-bilið mun fyrr en ég gerði í fyrra. Ég stefni á að fara strax í febrúar á mót sem fram fer í Portúgal. Í lok mars er stefnan sett á úrtökumót fyrir EuroPro mótaröðina á Bretlandi. Í kjölfarið stefni ég á að spila í 2-3 mótum á Nordic Ecco mótaröðinni samhliða því að leika á sem flestum stigamótum hérna heima. Þetta verður allt liður í því að ég verði í sem besta keppnisforminu fyrir átökin í lok september. Á þeim tíma mun ég taka þátt í úrtökumótum fyrir Nordea mótaröðina og Evrópumótaröðina.“Kristján Þór er þegar farinn að æfa eins og hægt er hér á landi en hann ætlar að setja allt á „fulla“ ferð í janúar. „Í janúar ætla ég að æfa fimm sinnum í viku – þar sem mesta áherslan verður lögð á stutta spilið. Það eru tvær æfingaferðir á dagskrá – ein í febrúar og önnur í apríl.“

Sofnar oft í sófanumÞað er í nógu að snúast hjá Kristjáni en hann er í sambúð og á þrjú börn – hann er í byggingarvinnu í vetur og hefur einnig tekið að sér ýmis aukastörf í veitingaþjónustu. Á sumrin hefur hann verið að vinna hjá golf-klúbbnum Kili og þar sem hann hefur verið í umhirðu vallarins.„Ég vakna snemma, svona korter í sjö, það tekst ekki alltaf. Ég byrja að vinna 7:30 og vinn til 16.30. Ég reyni að sinna krökkunum mínum fram að golfæfingunum sem eru í um tvo tíma síðdegis. Ég tek kvöldmat með fjölskyldunni og síðan tekur við að koma börnunum í rúmið. Það gefst tími til að horfa á sjónvarpið um kl. 22 en oftar en ekki sofna ég í sófanum yfir sjónvarpinu.“

Eimskipsmótaröðin þarf að fá meira vægi í landsliðsvalinuLandsliðsmálin voru mikið rædd í sumar í golfhreyfingunni og þar fannst mörgum að Kristján Þór hafi átt að fá tækifæri í lands-liðinu. Kristján er á þeirri skoðun að auka þurfi vægi Eimskipsmótaraðarinnar þegar kemur að valinu á landsliðinu.„Í mínum huga er það æðsta markmið hvers kylfings að spila fyrir hönd Íslands á erlendri grundu á stærstu mótunum. Ég leyni því ekki að ég var svekktur að hafa ekki fengið tækifæri í sumar með landsliðinu. Stigin á Eimskipsmótaröðinni hafa vissulega gildi þegar að kemur að vali í landsliðið fyrir verkefni. Okkur var tilkynnt það á fundi í vor hvernig valið myndi standa þannig að það kæmi ekki neinum á óvart. Að mínu

mati mætti gera Eimskipsmótaröðina stærri og veigameiri með því að hún telji meira til landsliðs. Það er mín skoðun að þrjú efstu sætin á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar ættu að fá sæti í landsliði Íslands hverju sinni þegar valið er í verkefni. Mótanefnd GSÍ gerði vel með því að bæta einu móti við í byrjun sumarsins sem gerir landsliðsþjálfar-anum auðveldara að velja í liðið. Það gefur betri mynd á stöðu kylfinga fyrir valið á liðinu sem keppir á Evrópumótinu. Við erum að leika á þremur stigamótum fyrir það mót og landsliðsþjálfarinn hefur því betri sýn á hvernig staðan er á hópnum.“Eins og áður segir ætlar Kristján að leggja allt í sölurnar á næsta ári og hann á sér stóra drauma varðandi framtíðina. „Á næstu fimm árum sé ég sjálfan mig spila á Evrópu-mótaröðinni. Ég á mér mjög stóra drauma, bæði raunhæfa og kannski óraunhæfa. Mig dreymir um að verða einn af þeim bestu í íþróttinni og skapa mér nafn innan golf-sögunnar,“ segir Kristján og leggur áherslu á að hann þurfi að bæta margt í leik sínum til að ná upp á næsta stig á ferlinum.„Það er alltaf eitthvað sem má bæta en til að ná næsta „getustigi“ þarf ég vera miklu skarpari í „pitch“ höggunum. Þar er verk að vinna og skekkjurnar eru stundum miklar. Ég mun leggja mikla áherslu á þessi högg á æfingum. Það kemur alltaf fyrir að maður missir teighögg út í skóg eða eitthvað „drasl“. Þar af leiðandi þarf maður að treyst á gott „pitch“ högg til að bjarga parinu. Ég var ekki nógu sterkur á þessu sviði á úrtökumótinu fyrir Nordic Ecco mótaröðina í haust.“

Page 29: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 30: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is30

„Draumaholl Kristjáns“Rory McIlroy, Dustin Johnson

og Nicolas Colsaerts. Ég mundi síðan yfirdræva

þá alla strax á 1. holu.

Uppáhaldsholur á Íslandi

10. holan á Hlíðavelli, 16. holan í Vestmannaeyjum

og 3. holan á Akureyri.

Uppáhaldsvellirnir á Íslandi

Vestmannaeyjar, Hvaleyrarvöllur og Hlíðavöllur.

„Eftirminni-legasta höggið“

„Besta golfhögg sem ég hef slegið hingað til er annað höggið mitt á 18. holunni í Vestmannaeyjum þegar ég og Heiðar Davíð Bragason vorum í bráðabana um Íslandsmeistaratitilinn árið 2008. Ég missti teighöggið vel til vinstri og endaði boltinn minn á 9. brautinni. Það voru 208 metrar í holuna og pinninn var staðsettur hægra megin á flötinni. Það var mjög mikill vindur frá vinstri til hægri og því nánast ómögulegt að komast eitthvað nálægt holunni. Ég hef aldrei verið þekktur fyrir það að spila af mikilli varkárni svo að ég tók upp 3 járns blendingskylfuna sem ég átti þá og lét vaða. Ég man það mjög vel að ég miðaði á flaggstangirnar við skálann áður en ég sló höggið. Vindurinn sá síðan um að bera boltann til baka í átt að flötinni. Þetta heppnaðist fullkomlega og gott betur en það, boltinn lenti á flötinni og rúllaði út af henni hægra megin og stöðvaðist um 4-5 metra frá holu. Ég sé þetta högg fyrir mér í hvert einasta skipti þegar ég geng upp 18. brautina í Eyjum og ég mun aldrei gleyma þessu höggi. Ég þurfti tvö pútt til að koma boltanum í holuna en þetta högg tryggði fyrsta Ís-landsmeistaratitilinn að mínu mati.“

RYÐGUÐ ADAMS JÁRN OG ELDGAMALT 3-TRÉKristján Þór Einarsson er með „bland“ í golfpokanum en hann er frekar íhaldssamur á golfkylfuvalið. Hann er með Titleist Vokey SM4 fleygjárn, Adams MB2 járnasett sem er með mjög sérstöku útliti – en kylfuhausarnir ryðga með árunum og Kristján Þór segir að tilfinningin sé einstök að slá með þessum kylfum. Hann er með Titleist 904 F 3-tré sem er líklega 8 ára gamalt. Dræverinn er Titleist 909 D, 9,5 gráður og skaftið er XStiff beint úr verksmiðjunni. Pútterinn er frá Taylor Made, White Smoke.

HÖGGLENGDIN HJÁ STIGAMEISTARANUM:Dræver 265 m.3-tré 230 m.3-járn 205 m.4-járn 195m.5-járn 185 m.

6-járn 175 m.7-járn 163 m.8-járn 152 m.9-járn 140 m.PW 128 m.

52° fleygjárn 115 m. 56° fleygjárn 105 m.60° fleygjárn 85 m.Bolti: Titleist ProV1x.

„Draumaholl Kristjáns“Rory McIlroy, Dustin Johnson

og Nicolas Colsaerts. Ég mundi síðan yfirdræva

þá alla strax á 1. holu.

Uppáhaldsholur á Íslandi

10. holan á Hlíðavelli, 16. holan í Vestmannaeyjum

og 3. holan á Akureyri.

Uppáhaldsvellirnir á Íslandi

Vestmannaeyjar, Hvaleyrarvöllur og Hlíðavöllur.

Page 31: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is

Birt

með

fyrir

vara

um

pre

ntvi

llur.

Hei

msf

erð

ir ás

kilja

sér

rétt

til

leið

rétt

ing

a á

slík

u. A

th. a

ð v

erð

get

ur b

reys

t án

fyrir

vara

.E

NN

EM

M /

SIA

• N

M6

592

2

La Gomera La Sella Costa Ballena Alcaidesa Novo St. Petri Montecastillo Penha Longa

Golfveisla Heimsferða Í golfferðum Heimsferða er lögð áhersla á að allir þættir séu fyrsta flokks. Bjóðum vetrargolfferðir til paradísareyjunar La Gomera og vorgolfferðir til hinna sívinsælu Montecastillo, La Sella, Costa Ballena, Novo St. Petri og Alcaidesa á Spáni auk þess sem við bjóðum nú einnig Penha Longa í Portúgal.

GOLFSKÓLI. PERSÓNULEG FARARSTJÓRN.

Verð frá

kr. 159.900

Page 32: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is32

ÞARF AÐ BÆTA HUGARFARIÐKennaraverkfall fyrir áratug hafði gríðarlega jákvæð áhrif á golfferil Karenar

Karen Guðnadóttir stóð uppi sem stigameistari á Eimskipsmóta-röðinni í kvennaflokki en þetta er í

fyrsta sinn sem hún nær þeim árangri. Kar-en, sem er 22 ára úr Golfklúbbi Suðurnesja, tók þátt á öllum sjö mótum keppnistíma-bilsins og var hún í verðlaunasæti á fimm þeirra og endaði aldrei neðar en í sjöunda sæti. Alls fékk hún 7668.50 stig en Signý Arnórsdóttir úr GK, sem var stigameistari síðasta árs, varð önnur.

Karen segir að kennaraverkfall árið 2004, þegar hún var 12 ára, hafi haft mikil áhrif á golfferil hennar. „Heiða systir mín var byrjuð í golfi og pabbi spilaði einnig. Ég skildi það ekki hvernig þeim þótti þetta skemmtilegt. Þegar ég var 12 ára fór ég á námskeið hjá GS og fékk í kjölfarið „golfbakteríuna“. Um haustið skall síðan á sex vikna kennaraverk-fall og ég var bara alla daga úti á golfvelli á þeim tíma og það hjálpaði mikið,“ segir Karen. Hápunktar sumarsins voru nokkrir að mati stigameistarans.„Ég vann minn riðil á Íslandsmótinu í holu-keppni og það er í annað sinn sem það gerist. Ég lék til úrslita gegn Tinnu Jóhannsdóttur um titilinn og það var ánægjulegt að landa stigameistaratitlinum í fyrsta sinn. Íslands-mótið í höggleik fór ekki eins og ég vildi – ég hafði ekki nógu mikla trú á sjálfri mér úti á vellinum á því móti. Ég hefði viljað gera betur á Símamótinu í Borgarnesi og Goðamótinu á Akureyri.“

Karen segir að margir litlir hlutir séu ástæðan fyrir því að hún náði að vinna stigameistara-titilinn í fyrsta sinn á ferlinum. „Mér fannst erfiðasta tímabilið vera fyrsta árið á Eim-skipsmótaröðinni eftir að ég gekk upp úr unglingamótaröðinni. Það tímabil var erfitt. Síðastliðinn vetur bætti ég öll smáatriðin á æfingatöflunni. Fór til einkaþjálfara til að bæta líkamlega styrkinn og fór í fyrsta sinn í æfingaferð frá árinu 2007 erlendis. Ingi Rúnar Gíslason, þjálfarinn minn hjá GS, hefur hjálpað mér mikið og sérstaklega er hann duglegur að benda mér á þá styrkleika sem ég bý yfir.Stigameistarinn var ekki valinn í landsliðs-verkefnin hjá A-landsliðinu en hún er ekkert að svekkja sig á því. „Ég fór ekkert að pæla í því að vera ekki valin fyrr en aðrir fóru að

Page 33: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Í flóknu umhverfi leynast

tækifæriAð ná markmiðum í flóknu og síbreytilegu umhverfi kallar á

einbeitingu og aðlögunarhæfni. Við einföldum leiðina og gerum þér

kleift að ná markmiðum þínum.

kpmg.is

Page 34: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is34

Lokastaðan Eimskipsmóta-röðin 2014 (15 efstu kvk)1. Karen Guðnadóttir, GS 7668.50 stig

2. Signý Arnórsdóttir, GK 6361.00 stig

3. Sunna Víðisdóttir, GR 6257.50 stig

4. Guðrún Brá Björgvinsd., GK 6137.50 stig

5. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 5843.50 stig

6. Berglind Björnsdóttir, GR 4850.83 stig

7. Þórdís Geirsdóttir, GK 4781.00 stig

8. Sara Margrét Hinriksdóttir, GK 4458.33 stig

9. Tinna Jóhannsdóttir, GK 4212.50 stig

10. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 4128.50 stig

11. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 3570.00 stig

12. Særós Eva Óskarsd., GKG 3467.50 stig

13. Ólafía Þórunn Kristinsd., GR 3200.00 stig

14. Ingunn Einarsdóttir, GKG 3160.83 stig

15. Heiða Guðnadóttir, GKj. 3121.25 stig

ÁRANGUR

KARENAR

Á TÍMABILINU:

Nettómótið 3. sæti

EgilsGull mótið 3. sæti

Símamótið 7. sæti

Securitasmótið/ Íslandsmóti

í holukeppni 2. sæti

Eimskipsmótið/Íslandsmótið

í höggleik 5. sæti

Eimskipsmótið

Garðavelli 3. sæti

Goðamótið 2. sæti

ræða þessa hluti við mig eftir að landsliðin voru tilkynnt. Ég veit af hverju ég var ekki valin og er að vinna í því að bæta þau atriði og það eflir mig bara. Ég var mjög nálægt því í ár, og ég þarf að gera enn betur og það ýtir mér áfram.“Í vetur ætlar að Karen að breyta aðeins út af dagskrá síðasta veturs hvað æfingarnar varðar. „Ég verð með svipaðar áherslur hvað varðar tæknina og golfið. Það nýja sem ég geri er að fara í golfleikfimi hjá Gauta Grétarssyni í sjúkraþjálfun Reykjavíkur. Ég mun einnig fara í tvær æfingaferðir erlendis og ég fæ einnig nýjar kylfur sem eru sér-mældar fyrir mig. Það er ansi mikil breyting en ætti að hjálpa mér því ég lét þetta bíða of lengi. Hugarfarið þarf ég að bæta og einnig líkamlega þáttinn.“Karen segir að henni líði best á heimaslóðum en hún starfar við skóladagvist í grunnskóla og líkar það vel. „Ég stefni ekkert sérstaklega á það að komast til útlanda hvað varðar golfið en kannski á ég eftir að prófa það að búa erlendis. Hvort sem það tengist golfinu eða ekki. Mig langar að prófa að keppa erlendis og það er aldrei að vita hvað gerist.“Kvennagolfið hefur verið í ágætri sókn undanfarin ár en það má alltaf gera betur. Karen segir að það sé mikilvægt að sýna stelpum hve golfið sé fjölbreytt og skemmti-legt. „Maður þarf ekki að hafa félaga til að spila á móti eins og í hópíþróttunum og það er hægt að verða gríðarlega góður með því að æfa einn. Þegar ég var í elstu bekkjum grunn-skólans þá var ég sú eina sem æfði golf og það var bara heillandi að mínu mati,“ sagði Karen Guðnadóttir stigameistari ársins 2014 á Eim-skipsmótaröðinni.

Karen með Heiðu systur sinni sem einnig er mjög góður kylfingur.

Page 35: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

JólaleikurGolfbúðarinnar

Jólagjöfinendurgreidd.

Með jólapútter golfbúðarinnar.

Ein tilraun á mann.

Ef þú setur niður8 metra pútt.

Page 36: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is36

Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014?„Yfir heildina var hún mjög góð. Sigraði á þremur mótum á Íslands-bankamótaröðinni og var nokkrum sinnum í baráttunni á Eimskips-mótaröðinni.“

Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið? „Það var frábært að sigra með GKG í sveitakeppni unglinga í Þorláks-höfn.“

Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014?„Mér fannst Kristján Þór Einarsson koma mest á óvart í sumar.“

Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða högg væri það?„Það væri örugglega inn á höggið mitt á 18. holu á Íslandsmótinu í holukeppni unglinga. Var um 160 m frá stöng viss að par myndi duga til að komast í bráðabana. Ég dreg boltann með vindinum og enda í runna sem er 30 m fyrir aftan grínið sem kom mér í vonlausa stöðu og ég tapaði leiknum.“

Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver eru markmiðin fyrir næsta sumar?„Fyrir næsta tímabil þarf ég að leggja áherslu er að styrkja mig og taka púttin í gegn. Markmiðin eru að reyna að vera í toppbaráttunni á Eimskipsmótaröðinni og vonandi ná að sigra.“

„MARKMIÐIN ERU AÐ REYNA AÐ VERA Í TOPPBARÁTTUNNI Á EIMSKIPSMÓTARÖÐINNI OG

VONANDI NÁ AÐ SIGRA“

Arnór Snær Júlíusson

Hvað segja afrekskylfingar okkar?

Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014?„Á heildina lítið var hún bara nokkuð góð, en það er alltaf hægt að gera betur, náði 62% af markmiðunum mínum.“

Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið?„Það er fátt sem toppar það að vera í forystu á Íslandsmótinu í ein-hvern tíma. Síðan er alltaf jafnmikill heiður að vera valin í landsliðið.“

Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014?„Það voru fáir sem komu mér á óvart, en það voru margir sem sprungu út þetta sumarið.“

Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða högg væri það?„Það er helst tvö högg sem ég vil fá að endurtaka nokkrum sinnum, bæði þessi högg voru á lokaholunni á Íslandsmóti unglinga í höggleik á Hellu. Fyrsta lagi er það upphafshöggið og síðan annað höggið, þar gerði ég allt sem á ekki að gera á þessari holu. Of löng og vinstra megin við flötina.“

Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver eru markmiðin fyrir næsta sumar?„Halda áfram þeirri vinnu sem ég er búin að vera í, sem er bæta púttin hægt og rólega, ásamt ákvarðanatöku í stutta spilinu. Aðal-markmiðið að gera betur en seinasta sumar.“

„AÐALMARKMIÐIÐ AÐ GERA BETUR EN SEINASTA SUMAR“

Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014?„Sumarið var ekkert sérstakt hjá mér, bæði jákvæðir og neikvæðir punktar sem ég get tekið með mér inn í veturinn og vonandi bætt mig á þeim sviðum.“

„ÉG MUNDI ENDURTAKA LOKAPÚTTIÐ MITT Á

ÍSLANDSMEISTARAMÓTINU Í HOLUKEPPNI“

Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið?„Íslandsmeistaratitillinn í sveitakeppni var hápunkturinn.“

Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014?„Það var svo sem enginn sérstakur kylfingur sem kom mér svakalega á óvart en Gísli Sveinbergsson var ansi magnaður í sumar.“

Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða högg væri það?„Ef ég mætti endurtaka eitt högg mundi ég endurtaka lokapúttið mitt á Íslandsmeistaramótinu í holukeppni á móti Karen Guðnadóttur.“

Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver eru markmiðin fyrir næsta sumar?„Gæti alltaf bætt mig í púttunum. Markmiðin ekki komin niður á blað eins og er en ég ætla að halda áfram að njóta þess og hafa gaman af því að spila golf.“

Signý Arnórsdóttir

Ragnhildur Kristinsdóttir

Page 37: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

ÁNÆGJANHEFUR LOKSFUNDIÐ SINNSÁLUFÉLAGA

ÁNÆGJANHEFUR LOKSFUNDIÐ SINNSÁLUFÉLAGA

HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isUmboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði

Búnaður í Outlander Intense: 18" álfelgur, aðgerðastýri, upplýsingaskjár í mælaborði með bakkmyndavél, USB tengi og handfrjáls símabúnaður, hraðastillir, tvískipt tölvustýrð miðstöð, upphituð framsæti, upphituð framrúða, AM/FM útvarp, CD/MP3 spilari, rafdrifnir og upphitaðir útispeglar með stefnuljósum, vindskeið að aftan með LED lýsingu, þokuljós að framan, regnskynjari á rúðuþurrkum, sjö öryggispúðar, skyggt gler í hliðar- og afturrúðu, langbogar á þaki, þvottasprautur á aðalljósum, dagljósabúnaður.

35VIÐ FÖGNUM

ÁRUM MEÐÍSLENDINGUM

NÝR MITSUBISHI OUTLANDER INTENSE

FYRIR HUGSANDI FÓLK

Mitsubishi Outlander Sjálfskiptur, fjórhjóladri�nn frá:

5.290.000 kr.

Mitsubishi Outlander Intense er fjórhjóladri�nn fjölskyldubíll sem dúxar í sparneytni og lágum útblæstri kolefnis en skilar samt framúrskarandi afköstum. Háþróaður öryggisbúnaður, bakkmyndavél og handfrjáls símabúnaður eru bara örfáar ástæður til að hjálpa þér að gera upp hug þinn. Komdu og prófaðu ævintýralegan Outlander Intense.

Xenon aðalljós meðsérstaklega víðu birtusviði.

Sjö SRS loftpúðar vernda ökumann og farþega.

Sparneytin 2.0 lítra vél skilarlágum útblæstri kolefnis.

Page 38: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is38

Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014?„Miðað við aldur og fyrri störf þá geng ég bara nokkuð sáttur frá sumrinu, átti góð mót inni á milli og nokkuð stöðugur bara heilt yfir.“

Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið?„Fyrir mér stóð Íslandsmótið í holukeppni á Hvaleyrarvelli upp úr, spilaði frábært golf alla þrjá dagana og fékk púlsinn í gang með nokkrum bráðabönum og endaði í þriðja sæti. Það var líka einn leikur í Grafarholtinu mjög eftirminnilegur í sumar, þar sem 19 punkta sigur var niðurstaðan. Ég nefni engin nöfn til að hlífa koll-egum mínum.“

Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014?„Ég hafði gaman af því að sjá hvað margir ungir strákar eru farnir að hugsa eins og atvinnumenn. Þeir eru komnir langt í sportinu og það styttist í góða hluti að mínu mati. Sá sem kom mér mest á óvart hlýtur að vera Haraldur Heimisson, gömul kempa sem er með betri tölfræði í stutta spilinu en þeir bestu á Evróputúrnum. Ég þurfti að horfa upp á þessa „short-game“ veislu í meistaramótinu hjá GR.

Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða högg væri það?„Tveggja feta púttið á móti Bjarka Péturssyni á 19. holu í undanúr-slitum holukeppninnar. Ég reikna með jólagjöf frá honum þetta árið.“

Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver eru markmiðin?„Æfa stutta spilið, halda því í formi þar sem það er mikilvægast í þessari frábæru íþrótt. Annars er ég lítið í markmiðssetningum öðru en að hafa gaman af því að keppa, halda mér hungruðum í golf – þá gætu góðir hlutir gerst.“

„ÉG HAFÐI GAMAN AF ÞVÍ AÐ SJÁ HVAÐ MARGIR

UNGIR STRÁKAR ERU FARNIR AÐ HUGSA EINS OG

ATVINNUMENN“

Stefán Már Stefánsson

Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014?„Ég er bara nokkuð ánægður með frammistöðuna í sumar heilt yfir litið, 8. sæti á stigalistanum á Eimskipsmótaröðinni og klúbbmeistari GR.“

Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið?„Það var klárlega klúbbmeistaratitillinn hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.“

Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014?„Ég verð að segja að Kristján Þór hafi komið mér mest á óvart eftir að hafa ekki verið valinn í landsliðið og svo steig hann upp og sýndi hvað hann getur.“

Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða högg væri það?„Ég er ekki mikið fyrir það að dvelja við slæmu hlutina og því kýs ég að segja seinasta púttið á meistaramótinum því það veitti mér hvað mesta ánægju.“

Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver eru markmiðin fyrir næsta sumar?„Ég ætla að leggja áherslu á sveifluna og púttin í vetur. Markmiðin fyrir næsta sumar eru að komast í landsliðið og að berjast um sigra á mótaröðinni.“

„MARKMIÐIN FYRIR NÆSTA SUMAR ERU AÐ KOMAST Í

LANDSLIÐIГ

Stefán Þór Bogason

Hvernig metur þú frammistöðu þína á golfsumrinu 2014?„Frammistaða mín að afloknu golfsumri var viðunandi alltaf má gera betur og alltaf má æfa meira er yfir heildina sátt með mitt.“

Þórdís Geirsdóttir

„ALLTAF MÁ GERA BETUR OG ALLTAF MÁ ÆFA MEIRA“

Hver var hápunktur sumarsins - eftirminnilegasta atvikið?„Hápunkturinn var að sjálfsögðu að vinna Sveitakeppnina.“

Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart á árinu 2014?„Gísli Sveinbergsson kom mest að óvart ef það er hægt að segja. Hann er frábær kylfingur bæði á velli og utan vallar. Hlakka mikið til að fylgjast með honum á komandi árum.“

Ef þú mættir endurtaka eitt högg frá golfsumrinu 2014 - hvaða högg væri það?„Það er ekkert eitt högg frekar en annað sem ég vildi endurtaka það má alltaf gera betur en ekkert eitt högg sem hafði nein úrslitaáhrif.“

Hvaða atriði þarftu að leggja áherslu á fyrir næsta tímabil og hver eru markmiðin fyrir næsta sumar?„Það sem ég þarf að leggja áherslu á í æfingum vetrarins eru púttin og ætti ekki að koma neinum á óvart. Spurning um að heyra í Pall Ket enda er hann allur að vilja gerður að kenna mér að pútta. Markmið mín fyrir næsta sumar er að æfa meira og skila betri golfhringjum en á síðasta sumri svo er ég komin í þá stöðu að geta spilað á tveimur mótaröðum þar sem ég verð 50 ára á næsta ári og er stefnan sett á að mæta á nokkur mót á öldungamótaröðinnni – og jafnvel að finna mót erlendis ef ég finn eitthvað áhugavert.“

Page 39: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Hvernig tekst flugfélag á við eldfjall sem þeytir frá sér 750 tonnum af

ösku á sekúndu aðeins 250 km frá miðstöð flugrekstrarins?

Svar Icelandair við gosinu í Eyjafjallajökli var að færa miðstöð flugrekstrarins og

á þriðja hundrað starfsmanna til Glasgow.

Sérfræðingar Nýherja fengu það hlutverk að trygg ja að tölvukerfið stæðist álagið enda sjáum við um

upplýsingatækni Icelandair.

Við köllum það tafarlausn.

TAFARLAUSN

NÝHERJI ER LEIÐANDI FYRIRTÆKI Á SVIÐI UPPLÝSINGATÆKNI

Við höfum góða reynslu af framtíðinni!BORGARTÚNI 37

SÍMI 569 7700 WWW.NYHERJI.IS

EN

NE

MM

/ N

M6

58

45

Page 40: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is40

Hrafn Guðlaugsson hefur með mikilli þrautseigju og aga komist langt í keppnisgolfinu. Hrafn er

einn af fáum afrekskylfingum sem koma frá Austurlandi en hann stundar meistara-nám í stjórnun í Bandaríkjunum og leikur golf með skólaliði Faulkner háskólans í NAIA-deildinni. Golf á Íslandi rakti garnirnar úr Hrafni á dögunum og fyrsta spurningin var hvernig hann hafi kynnst golfíþróttinni. „Ég fékk mitt fyrsta golfsett þegar ég var 7 ára gamall og ég bjó á þeim tíma á Djúpa-vogi. Á þeim tíma var mikill áhugi á golfi og fór ég í golf með pabba, frændum mínum og fleirum. Ég flutti síðan til Egilsstaða þegar ég var 9 ára. Ég spilaði golf mér til gamans en það var ekki mjög sterkt barna og unglinga-starf í gangi,” segir Hrafn en hann komst í fyrsta sinn í kynni við golfþjálfun þegar Sturla Höskuldsson flutti austur árið 2006. „Sturla hjálpaði mér mikið og var það í fyrsta skiptið sem ég var með þjálfara. Það var gaman að alast upp á Austfjörðum og þar er mikið af frábæru fólki – og þessi tími er mér kær. Það eru opin golfmót flestar helgar á þessu svæði sem eru vel sótt af kylfingum frá öðrum stöðum.“

Hætti í fótbolta eftir fótbrotHrafn, sem er 24 ára, var í fótbolta samhliða golfinu fram til ársins 2009 en hann fót-brotnaði í leik það sumar og sneri sér alfarið að golfinu.„Ég flutti til Sturlu og Kristínar konu hans til Torreby í Svíþjóð og bjó þar sumrin 2011 og 2012. Þar var frábært að vera. Ég vann á golf-vellinum, æfði og spilaði eins og ég gat þess á milli. Flottar mótaraðir voru þar í gangi fyrir 21 árs og yngri og ég fékk dýrmæta reynslu frá þeim mótum,” segir Hrafn en hann hefur stundað nám í Faulkner í Alabama undan-farin ár.

„Ég hef verið mjög heppinn að hafa bæði góða liðsfélaga og þjálfara. Við höfum náð vel saman bæði innan og utan vallar. Að-stæðurnar eru mjög góðar og spilum við á heimsklassa völlum, ma. á Robert Trent Jones Capitol Hill svæðinu þar sem haldið er LPGA mót og eru þar þrír klassa-vellir.Á mínu öðru ári í skólanum spiluðum við mjög vel og komumst í „The NAIA National Championship“, sem haldið var í Salem, Oregon, í fyrsta skiptið í sögu skólans. Á síðasta ári unnum við héraðsdeildina okkar og komumst sjálfkrafa í lokamótið. Þar

spiluðum við vel, leiddum mótið eftir tvo hringi en lékum ekki nægilega vel loka-daginn. Ég spilaði fínt golf yfir árið, meðal-skor uppá 72.68 högg og var valinn í NAIA All-America liðið. Það gaf mér keppnisrétt í Patroit All-American mótinu sem er mót þar sem All-America leikmenn út öllum deildum koma saman og keppa. Mótið er haldið í Phoenix, Arizona og verður sýnt frá því á ESPN og The Golf Channel.”

Hrafn æfir gríðarlega mikið og ætlar sér langt. Hann lýsir dæmigerðum degi með eftirfarandi hætti. „Síðan ég byrjaði í meistaranáminu hef ég getað ráðið tíma mínum töluvert sjálfur. Ég byrja daginn 3-5 sinnum í viku á að fara í ræktina, læri svo fram að hádegismat og fer síðan á golfvöllinn eftir hádegi. Kvöldin nota ég til þess að læra ef þess er þörf. Meiðsli í úlnlið hafa hrjáð mig að undanförnu og ég hef lagt minni áherslu á að slá mörg full högg á æfingarsvæðinu. Í staðinn legg ég mikla áherslu á að æfa mikið innan við 100 metra, fleygjárn, vipp og pútt, og reyni að spila daglega.“

Ætlar að klára námið með sómaHvað framtíðardraumana varðar segir Hrafn að hann ætli að klára námið með sóma og bæta sig í golfinu eins og hægt er.„Það sem er framundan á næsta ári er í fyrsta lagi að klára námið með sóma og á sama tíma leggja hart að mér að bæta mig í golfi. Meistaranámið sem ég er í núna eru þrjár annir svo ég mun verja lokaönninni hér í Alabamahitanum næsta sumar. Ég er byrjaður að skoða þann möguleika að finna

starf hér í Bandaríkjunum eftir útskrift. Þá gæti ég haldið áfram að vinna í golfinu allan ársins hring. Ég ætla að leggja hart að mér núna á næsta ári í golfinu, sjá hvernig gengur og hvernig úlnliðurinn verður og vonandi næ ég þeim markmiðum í golfinu sem ég hef sett mér. Auðvitað set ég markið hátt í golfinu og ef ég held áfram að leggja tíma og vinnu í golfið þá tel ég allt hægt. Annars verður maður að vera raunsær og þess vegna hef ég einnig gefið skólanum góða athygli.“

Hrafn telur að hægt sé að byggja upp gott barna- og unglingastarf á Austfjörðum en það séu engar galdralausnir.

„Ég hef fulla trú á því að barna og unglinga-starfið muni styrkjast á næstu árum og áratugum. Ég veit að margir vinna hörðum höndum að byggja upp klúbbana en ég tel að það sé engin galdralausn. Ég sá um barna og unglinganámskeið þegar ég bjó fyrir austan og var það vel sótt og fullt af efnilegum kylfingum. Einar Bjarni Helgason er ungur kylfingur sem býr á Egilsstöðum, hefur hann lækkað forgjöfina niður í 6 á stuttum tíma og tel ég hann eiga framtíðina fyrir sér ef hann heldur áfram á sömu braut. Í Fljótsdalshéraði er fjarlægðin frá bænum upp á golfvöll stórt vandamál. Aðrar íþróttir, eins og fótbolti, grípa flesta og þar sem flestir vilja stunda íþróttir með vinum sínum. Lykilatriði er að byggja upp kjarna af ungum golfurum, mögulega kynna golfið betur í skólunum og þá tel ég að mun fleiri myndu bætast við. Síðan eru meðlimir Golfklúbbsins Baba-Slæs að dæla út börnum, svo framtíðin er björt,“ sagði Hrafn Guðlaugsson.

„Með mikilli vinnu er allt hægt“

- Austfirðingurinn Hrafn Guðlaugsson gerir það gott í háskólagolfinu í Alabama

Page 41: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 42: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is42

„ÞETTA ER ORÐIÐ FÍNT“

Jón Pétur Jónsson hættir sem formaður GR eftir 15 ára stjórnarsetu

Ég tók ákvörðunina í október að bjóða mig ekki fram og þegar ég fór að rifja þetta upp þá finnst mér

samt að það hafi bara verið í gær sem ég tók við þessu embætti. Það er merki um að maður hafi haft gaman að verkefninu,“ segir Jón Pétur Jónsson sem hætti sem formaður Golfklúbbs Reykjavíkur í byrjun desember en hann hafði gegnt embættinu frá árinu 2007.„Þetta er orðið fínt, ég er búinn að vera í stjórninni í 15 ár og ég held að það sé rétti tíminn að stíga til hliðar. Eru ekki allir búnir að fá nóg af mér,“ segir Jón í léttum tón þegar Golf á Íslandi hitti hann í Erninum sem er fyrirtæki í hans eigu.Það eru margir hápunktar sem Jón dregur fram þegar hann er inntur eftir því hvað standi uppúr í formannstíð hans. „Frá því um aldamót hef ég tekið þátt í verkefnum og fjárfestingum fyrir tæpan milljarð kr. hjá GR. Korpúlfsstaðavöllur er langstærsta verkefnið sem ég hef komið að sem stjórnarmaður. Það var virkilega gaman að því að hafa upplifað þá framkvæmd. Ég held að þegar Korpan var byggð þá var það hugmyndin að gera þægi-legan „sveitavöll“. Það kom mér þægilega á óvart þegar Birgir Leifur Hafþórsson sagði að Korpan væri einn af fáum almennilegum keppnisvöllum á Íslandi áður en hann var stækkaður í 27 holur. Keppniskylfingarnir sjá vellina með öðrum augum en við „áhuga-mennirnir“. Birgir sá þessa möguleika í vellinum og þessi orð hans vöktu marga til umhugsunar og breyttu ímynd vallarins. Korpan er glæsilegur keppnisvöllur og sér-

staklega eftir að hann var stækkaður í 27 holur og „Landið“ varð að veruleika.“

Skortur á teigtímum Helstu ágreinisefnin í stjórnartíð Jóns Péturs voru skortur á teigtímum fyrir félaga í GR en hann er ekki í vafa um að ástandið hefur lagast mikið eftir stækkunina í Korpu. Hann segir að það séu alltaf skiptar skoðanir í 3000 manna golfklúbb en hann upplifir ekki stemninguna með þeim hætti að það séu „pirraðir“ félagar í GR úti á bílastæði á morgnana með kröfuspjöld. „Það sem hefur gerst á Korpunni eftir stækkunina er að það er til nóg af teigtímum eins og ástandið hefur verið undanfarin tvö sumur. Veðurfarið gæti haft þar stór áhrif og það er of snemmt að draga álykt-anir frá síðustu tveimur sumrum. Það er engin launung að það er minna af leiknum hringjum á Grafarholtsvelli. Hann opnar seinna, kemur verr undan vetri og er erfiður undir fótinn. Það sem hefur slegið í gegn er efri hlutinn á Korpunni, Áin og Landið. Við erum með 8% aukningu á Korpunni í sumar og aðallega í 9 holu hringjum. „Sjórinn“ er að margra mati erfiðasti hluti vallarins og ég get alveg tekið undir það. Í gegnum árin hefur verið óánægja með teigtíma en það hefur verið leyst m.a. með fjögurra daga bókun. Að mínu mati er það lágmarks kurteisi að bóka sig fram í tímann.

Breytingar á Korpunni vel heppnaðarÞað hefur vakið lukku hjá gestum á Korpunni að sífellt er verið að breyta því

hvernig völlurinn er leikinn. Það er með ráðum gert segir Jón Pétur.„Við viljum ekki festa eina „9 holu lykkju“ sem fasta á Korpunni. Það er ávallt skipt um 9 holu lykkju og að mínu mati þá verður völlurinn sterkari sem heild fyrir vikið. Það eru allar 9 holurnar jafngóðar og við viljum geta keppt á öllum 9 holunum. Það er greini-legt að eftirspurnin eftir 9 holu golfhring er að aukast. Ég veit það sjálfur að það er mun auðveldara að „skreppa“ í golf og taka 9 holur á rúmlega 2 tímum með öllu. Og eftir slíkan hring þá finnst mér allur dagurinn vera eftir. Það eru uppi hugmyndir um að hafa einn til tvo daga í viku aðeins sem 9 holu hringi á Korpunni og það væri áhuga-vert að prófa slíkt.“ Básarnir áttu ekki að vera svonaÆfingasvæðið Básar er einnig stórt verkefni sem unnið var í stjórnartíð Jóns en Básar voru opnaðir árið 2004. Hann segir að í fyrstu hafi Básar alls ekki átt að vera eins og þeir eru í dag. „Fyrst þegar hugmyndin vaknaði að byggja æfingasvæðið Básar þá voru menn að hugsa um allt annað en það sem er raunin í dag. Það sem var byggt og er til staðar í dag var langt frá þeim hugmyndum sem voru ræddar í fyrstu. Við sáum ekki mikið meira en „yfirbyggða skúra“ á einni hæð – þetta var hugmyndafræðin sem var unnið með á þeim tíma. Hugmyndi þróaðist síðan upp í 72 bása æfingasvæði – sem gerir það að verkum að öll æfingastaða verður betri. Okkur tókst þetta og í framhaldinu kom Hraunkot í Hafnarfirði og það er ekki langt

Page 43: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

MP banki hefur verið valinn fremstur í flokki í eignastýringar þjónustu á Íslandi af alþjóðlega fjármálatímaritinu World Finance. Hafðu samband við sérfræðinga okkar og kynntu þér kosti eignastýringar MP banka.

www.mp.isÁrmúli 13a / 540 3200

Framúrskarandi eignastýring

Page 44: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is44

í að þriðja æfingasvæðið bætist í flóruna hjá GKG. Þetta er svipað og þróunin varð í knattspyrnuhúsunum á landsvísu. Fyrsta hugmyndin var að Básar yrðu aðeins fyrir fé-laga í GR en sem betur fer var fallið frá þeirri hugmynd. Þetta æfingasvæði átti að vera fyrir alla og það var um tíma þannig ástand að GR-ingar fengu ekki afslátt í Básum.“Nýverið tók GR yfir rekstur Bása að nýju eftir að fyrirtækið ProGolf hafði verið með rekstur Bása á leigu í nokkur ár. „Samvinnan hefur alltaf verið góð við ProGolf en pér-sónulega fannst mér áhuginn dofna þegar árin liðu. Við vitum núna hvað þarf að gera í þessum rekstri og eitt af því er að við viljum að það séu PGA kennarar að kenna í Básum. Það má einnig skoða opnunartímann betur. Að mínu mati er ekkert að því að loka yfir verstu vetrarmánuðina þegar boltarnir hreinlega týnast í snjósköflunum. Aðsóknin hefur aðeins dregist saman frá því sem fyrst var. Fyrsta árið sem Básar voru í gangi þá voru slegnir á bilinu 6 – 6 ½ milljónir boltar. Það hefur heldur dregið úr og að jafnaði hafa verið slegnir 4-5 milljónir boltar undanfarin ár.“

Golfhreyfingin þarf að vera vakandiJón segir að það sér stórt verkefni framundan í golfíþróttinni að vekja meiri áhuga og fjölga nýliðum í golfinu. „Er það ekki þannig að eftir sjö góð ár þá koma sjö mögur. Við erum kannski að kveikja á því að það vantar nýliðun. Eitt er veðrið en það er þetta nei-kvæða spjall í íþróttinni sem dregur okkur niður. Við þurfum að standa okkur miklu betur – ég sé í minni vinnu að hjólreiðamenn að koma í miklu mæli að stunda íþróttina af krafti. Menn eru að fara í hjólaferðir – ná-kvæmlega eins og golfferðir. Nánast sömu „klíkurnar“. Þetta er eitthvað sem þarf að sporna við og þarna finnst mér að GSÍ þurfi að spyrna við fótum. Ég hef engar áhyggjur af barna – og unglingastarfinu, það er í fínu standi víðast hvar. Kúnnahópurinn í golfinu er hinsvegar of gamall.

Sér eftir gamla Landsmótsinu í golfiJón hefur sterkar skoðanir á Íslandsmótinu í höggleik og hann hefur lengi verið talsmaður þess að Íslandsmótið sé á höfuðborgar-svæðinu fjögur ár í röð og fimmta hvert ár úti á landsbyggðinni.„Ég sakna „gamla Íslandsmótsins í höggleik,

sem var flokkaskipt. Það er ekkert leyndarmál að ég sakna þess. Kannski er þetta svipað og sakna gamla Glaumbars. Á gamla Íslandsmótinu var hinn rétti golfandi. Björgvin Þorsteinsson og fleiri ágætir menn fóru fremstir í flokki að breyta þessu – ég vil sjá gamla Íslandsmótið aftur. Meistaraflokkur karla ætti bara að vera 30 manns. Við eigum ekki fleiri afrekskylfinga. Hvar í heiminum myndi líðast það að keppendur kæmust í gegnum niðurskurðinn á Íslands-mótinu í höggleik með háa forgjöf. Á Opna breska komast áhugamenn í gegnum niður-skurðinn en þá er búinn að vera forkeppni. Ég sé fyrir mér Íslandsmót með 30 körlum og 20 konum. Og þeir bestu í flokka-skiptingunni tækju þátt. Það er eitthvað að þegar við náum ekki að fylla Íslandsmótið í höggleik á Korpunni. Í fyrra var ekki fullt. Hvað þurfum við að halda mörg Íslandsmót

með þessum hætti áður en GSÍ áttar sig á því að þetta er ekki að ganga upp. Kannski þarf að fara með mótið á tvo velli en það þarf að hugsa þetta upp á nýtt.Í formannstíð Jóns hefur Íslandsmótið í höggleik farið tvívegis fram hjá GR, árið 2009 í Grafarholtinu og 2013 í Korpunni. Framkvæmdin við mótið er mikil og tals-verður kostnaður sem fylgir því. „Íslands-mótið í Korpunni kostaði um 14-15 milljónir í framkvæmd og við í GR borguðum um 5-7 milljónir kr. í það mót. Það er allveg þess virði því við vildum sýna hvernig hægt er að gera hlutina og við vildum líka kynna nýju Korpuna. Það var dramatík í karla – og kvennaflokki allt fram á síðustu holu. Sérstaklega í kvennaflokki. Sjónvarpsút-sendingin frá Íslandsmótinu í höggleik hefur gríðarlega mikið að segja. Það var draumaveður – og eitt það jákvæðasta sem við höfum lent í á seinni árum. Slíkar stundir gefa þessu gildi. Af þvi maður veit að þessar útsendingar styðja við bakið á hreyfinguna. Mér leið einnig mjög vel þegar GR fékk loksins Íslandsmeistara í höggleik karla eftir 27 ára bið. Það eru ekki margir formenn GR sem hafa upplifað slíka stund og Haraldur

Franklín Magnús kætti mig mjög með þeim titli.“

Stingum ekki niður skóflu án aðstoðar ReykjavíkurborgarAð mati Jóns verður það framtíðarmúsíkin hjá GR að borga niður skuldir áður en ráðist verði í framkvæmdir og þar er aðkallandi verkefni að breyta ýmsu á Grafarholtsvelli.„Við fengum ekki þá fjármuni sem við teljum okkur eiga rétt á frá borgaryfirvöldum vegna ýmissa framkvæmda. Borgin stóð sig ekki og við höfum því verið að greiða niður skuldir á undanförnum árum. GR stefnir á að koma skuldunum niður í 20-30 milljónir kr. sem er eðlilegt fyrir klúbb af þessari stærðargráðu. Hvað Grafarholtsvöllinn varðar þá sé ég fyrir mér að það verði ráðist í miklar endurbætur á vellinum á næstu árum. Ég tel að slík fram-kvæmd kosti á bilinu 500-700 milljónir kr. Markmiðið ætti að hafa völlinn okkar opinn enda er hægt að gera margt án þess að trufla leik, og mikið að hausti til. Vonandi verður þetta komið í framkvæmd á næstu 10 árum því við rekum ekki skóflu niður án þess að hafa komist að samkomulagi við Reykja-víkurborg áður en af þessu verður. Það er alveg á hreinu. Við eigum alveg jafnmikinn rétt á því að fá stuðning við endurnýjun á íþróttamannvirki eins og Grafarholtið er. Eftir áratug verður komin nýr og miklu betri Grafarholtsvöllur. Ef við fáum að vera í friði þá verður Grafarholtið eitt af kennileitum Reykjavíkurborgar eins og hann er í dag. Það er magnað að geta leiki golf inn í miðri „stórborg“ – gerir það eftirsóknarverðara að búa í Reykjavík. Annars þarf maður bara að flytja í Hafnarfjörð því að Keilir fær að vera í friði með sitt starf og uppbyggingu.“ Vantar um 40 félagaJón segir að það sé ekkert leyndarmál að það vanti um um 40 félaga í GR.„Miðað við það markmið að við viljum vera með 2.750 félaga sem borga fullt ársgjald. Biðlistinn er frekar stuttur – við tökum inntökugjald sem er helmingur af árgjaldi. Þetta er regla sem er sett á aðalfundi GR en kannski verður að endurskoða þetta ákvæði. Við höfum ekki leyfi til þess að kvarta. Við eigum að geta rekið klúbbinn með 10—15% hagnaði – og það eiga að vera 40-50 milljónir á lausu til þess að framkvæma. Rekstraráætl-unin fyrir þetta ár er að ganga upp 99% og sýnir að við erum að ná tökum á rekstr-inum,“ segir Jón Pétur Jónsson.

Það sem hefur gerst á Korpunni eftir stækkun-ina er að það er til nóg af teigtímum eins og ástandið hefur verið undanfarin tvö sumur.

Jón með tveimur af helstu samstarfsmönnum sínum í GR, þeim Birni Víglundssyni, varaformanni og Garðari Ey-land framkvæmdastjóra.

Jón Pétur fagnar með Haraldi Franklín sem varð Íslands-

meistari í höðggleik á Hellu.

Page 45: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

M400. Run beyond ordinary.

polarfacebook.com/polarislandi

HVAÐ GERIR POLAR M400 GPS HLAUPAKLUKKAN FYRIR ÞIG? GPS mælirPúlsmælirHrey�mælirSkrefateljariMælir svefn

Æ�ngadagbókKaloríuteljariKlukkaVatnsheld... og margt �eira

Page 46: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is46

FRÁBÆR ÁRANGUR HJÁ KARLASVEIT KEILIS Á EM KLÚBBALIÐA„Þetta er skrítnasta mót sem ég hef tekið þátt í“

„Þetta er skrítnasta mót sem ég hef tekið þátt í,“ sagði Gísli Sveinbergsson eftir að karlasveit Keilis hafnaði í 3.-4. sæti á Evr-ópumóti klúbbaliða í Búlgaríu. Ofankoma setti keppnishaldið úr skorðum en úrkoma á fyrsta hringnum varð til þess að fyrsta umferðin var felld niður og snjókoma varð til þess að lokaumferðin var felld niður. Aðeins ein umferð af alls þremur var því leikinnAxel Bóasson lék þessar 18 holur á höggi undir pari, Gísli Sveinbergsson var á pari vallar og Henning Darri Þórðarson lék á +6 en tvö bestu skorin töldu. Árangur Keilis er samt sem áður með því besta sem Íslendingar hafa náð í þessari keppni. Parco di Roma frá Ítalíu og Clube de Golfe de Vilamoura frá Portúgal deildu efsta sætinu á -6 samtals en Kelir var þar á eftir ásamt Keer-bergen GC frá Belgíu. „Veðrið var ekki að vinna með okkur á þessu móti. Við spiluðum vel og það hefði verið gaman að spila fleiri hringi,“ sagði Axel Bóasson.„Stemningin var góð hjá okkur eftir mjög skrítið mót, þetta er skrítnasta mótið sem

hef tekið þátt í. Við vorum frekar svekktir að hafa ekki klárað fyrstu umferðina en það er ekkert hægt að gera í því. Við vorum efstir á þeim tíma en það eina sem við gátum gert var að halda áfram að spila vel. Þetta er „sjúklega“ flottur völlur. Veðrið var eins gott og það gat verið fyrir mótið, +20 stiga hiti og logn. Okkur brá því frekar mikið þegar við sáum allt þakið í snjó á lokadeginum. Þetta var samt sem áður mjög skemmtileg ferð í skemmtilegum félagsskap,“ sagði Gísli Sveinbergsson sem bætti því við að keppnis-völlurinn hafi hentað Keilismönnum mjög vel.

Mótshaldarar tóku ákvörðun snemma dags að stöðva leik og kalla keppendur inn í klúbbhús vegna úrkomu. Þeir ákváðu síðan að skorið á fyrsta hringnum yrði fellt niður aðeins hálftíma síðar í stað þess að bíða aðeins lengur og meta stöðuna. „Þetta var frekar undarleg ákvörðun hjá mótsstjórninni að stroka út skorið í þess að bíða eftir því að rigningin hætti. Það þýðir ekkert að svekkja sig á því – svona er þetta bara,“ sagði Axel.

Svona leit keppnisvöllurinn út í Búlgaríu á æfingadeginum fyrir mótið. Þannig var útsýnið yfir sama svæði á lokakeppnisdeginum.

Íslandsmeistarasveit Keilis í kvennaflokki endaði í 10. sæti á European Ladies Club meistaramótinu sem fram fór í Þýska-landi 2.-4. okt. Þórdís Geirsdóttir, Anna Sólveig Hinriksdóttir og Margrét Saga Hinriksdóttir skipuðu sveitina en Signý Arnórsdóttir gat ekki verið með vegna vinnu. Guðrún Brá Björgvinsdóttir var

fjarverandi en hún stundar nám í Banda-ríkjunum og Tinna Jóhannsdóttir var liðs-stjóri. Alls voru leiknir þrír hringir og var fyrsti keppnisdagurinn erfiðastur hjá Keili en tvö bestu skorin í hverri umferð taldi.Þórdís Geirsdóttir (87-79-85)Sara Margrét Hinriksdóttir (87-93-85)Anna Sólveig Snorradóttir (92-78-78)

KVENNASVEIT KEILIS ENDAÐI Í 10. SÆTI Á EM Í ÞÝSKALANDI

Anna Sólveig byrjaði illa en lék ágætlega í næstu tveimur hringjum í Þýskalandi.

Page 47: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook

Gjöf sem þú getur verið viss um að hittir í markGjafakort Íslandsbanka er gjöf með endalausa möguleika. Kortið gildir eins og önnur greiðslukort jafnt í verslunum um allan heim og á netinu.

Þú færð gjafakortið í fallegum umbúðum í næsta útibúi Íslandsbanka

Gjafakort Íslandsbanka

Gjöf sem er alltafefst á óskalistanum

Page 48: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is48

ÓTRÚLEG BARÁTTA VIÐ KLAKANN SÍÐASTA HAMFARAVETUR

-segir Haraldur Már Stefánsson vallarstjóri á Hamarsvelli í Borgarnesi

„Við gerðum okkar allra besta og það var erfitt fyrir mig að skila vellinum í því ásigkomulagi sem hann var í.

Ég vil hrósa og þakka keppendum fyrir þann skilning sem þeir sýndu við erfiðar aðstæður.“

Ljósmynd: Ó

mar Ö

rn Ragnarsson

Page 49: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is49

„Það var ótrúlegt verkefni að glíma við klakann í vetur. Ég hef starfað í þessu fagi frá árinu 1987 og ég hef aldrei upplifað annað eins. Þykktin á klakanum var þegar verst lét um 30 cm og ástandið var því mjög erfitt og krefjandi,“ segir Haraldur Már Stefánsson vallarstjóri á Hamarsvelli í Borgarnesi þegar hann var beðinn um að rifja upp hvaða „brögðum“ var beitt til þess að vinna úr þeim vandamálum sem upp komu í vor eftir „hamfaraklakaveturinn“ sem var á landinu s.l. vetur.Haraldur segir að reynslan sem hann og fleiri golfvallasérfræðingar hafi aflað sér í vetur sé ómetanleg – og það hafi margt komið á óvart. Gróðurinn á Hamarsvelli hafi gert baráttuna erfiðari. „Snjórinn safnast í skjólið sem myndast við gróðurinn. Þar bráðnar hann og frýs til skiptis og þegar snjóaði ofan í þetta ástand fraus klakinn við grasið og var ótrúlega fastur og þéttur. Vandræðin byrjuðu í byrjun desember á síðasta ári og þessi barátta stóð yfir fram í mars.“Veðrið var nánast eins á Hamarsvelli frá miðjun nóvember og fram í mars. Þurrt, lítill vindur, skýjað eða sól og hitastigið var á bilinu -7 og fór upp í frostmark á sólar-dögum. Það gerði aldrei rok og rigningu sem hefði hjálpað við að bræða klakann,“ segir Haraldur en hann væri alveg til í að fá sólina hærra á loft fyrir vetrarmánuðina þar sem Hafnarfjallið skyggir á Hamarsvöllinn í þau fáu skipti sem hennar naut við. „Ég keyrði stundum „suður fyrir fjall“ til að kanna aðstæður og sá að hitinn fór upp í +5-+7 gráður og þar var enginn klaki í túnum. Á sama tíma var hitastigið -1 eða við frostmark á Hamarsvelli og klakinn sat sem fastast. Þessar aðstæður gera það að verkum að Hamarsvöllur er seinni til á vorin, þar sem grasplantan tekur ekki við sér nema jarðvegshitinn sé um 3 gráður eða hærri.“Haraldur telur að margir fótboltavellir á höfuðborgarsvæðinu hafi lent í svipuðum aðstæðum vegna skuggamyndunar frá íbúðablokkum og stúkum. Aðferðirnar sem Haraldur notaði við að vinna á klakanum voru fjölmargar.„Við settum stóran traktor á grófar keðjur til þess að hann héldist á flötunum. Við settum „spiker“ gatara aftan í traktorinn með áföstum kústi sem sópaði klakabrotunum af flötunum, sem er algjört lykilatriði. Í þau

fáu skipti sem hitastigið fór yfir frostmark þá bráðnaði klakinn en það fraus allt saman á ný og sama rútínan tók við daginn eftir. Einnig notaði ég járnkarl í miklu mæli þar sem ekki var hægt að vinna með traktorinn.“Haraldur segir að mesti „höfuðverkurinn“ hafi verið að ákveða hvenær ætti að hætta þar sem skaðinn var hugsanlega að verða meiri en gróðinn.„Grasplantan er í dvala og ljóstillífar ekki né skapar sér orku til viðgerða. Það jákvæða var að ég grenntist og bætti á mig nokkrum kílóum í vöðvamassa við puðið í vetur. Það voru ýmis skemmtileg atvik í vetur. Ég var t.d. að dreifa Urea efni á flatirnar til að bræða klakann en það er vandmeðfarið efni. Í eitt skipti var ég á 2. flöt sem var, þrátt fyrir að halla, mikið hulinn klaka. Ég var efst á flötinni með áburðadreifara með Urea þar sem ég datt – ég hélt fast í dreifarann til að efnið færi ekki allt á sama stað. Ég rann niður alla flötina og endaði út í tjörn þar sem ég stóð og skellihló af sjálfum mér eftir þessa vonlausu stöðu sem ég kom mér í.“ Vatn var víða notað í baráttunni við klakann og er Haraldur ekki í vafa um að slíkt geti virkað vel ef nægur kraftur er á vatninu. „Það er enn verk að vinna hjá okkur hvað það varðar en þessi reynsla sem við búum yfir eftir þetta hamfaraástand fer í reynslu-bankann og mun nýtast vel í framtíðinni,“ sagði Haraldur Már.Þegar klakinn fór af Hamarsvelli í vor segir Haraldur að útkoman hafi verið langt um-fram væntingar þrátt fyrir að ástandið hafi verið slæmt.

„Við vorum stálheppnir að það var eitt-hvað gras á flötunum. Jarðvegurinn tók við sáningu í vor og plantan sem sett var niður tók við sér og lifði af. Grasplanta sem heitir Poa Annua fór afar illa og er það vel að mínu mati og það eina góða sem kom út úr þessu því sáningarnar setja æskilegri plöntu, Festuca í staðinn. Það er ástæða til að vera bjartsýnn og ef veturinn verður þokkalegur þá óttast ég ekkert.Sýran sem myndast í jarðveginum undir klakanum breytir sýrustigi jarðvegarins. Við vökvuðum flatirnar mikið til að skola sýrurnar úr jarðveginum. Þetta er mikil-vægur þáttur þegar sáð er á vorin og getur sparað mikla fjármuni til þess að vorsáningin skili árangri.“Haraldur segir að gæðin á Hamarsvelli í svona rigningarsumri geti aldrei verið mikil. „Náttúruleg jarðvatnsstaða er mjög há, jarð-vegurinn er þéttur og hann hleypir vatninu seint og illa í gegnum sig. Margar brautir liggja of lágt og það eru hönnunarmistök á nýja hlutanum. Við þurfum að lækka jarð-vegsstöðuna með því að búa til tjarnir og setja drenlagnir.“Símamótið á Eimskipsmótaröðinni fór fram í sumar á Hamarsvelli og er vallarstjórinn afar ánægður með það viðhorf sem keppendur sýndu við erfiðar aðstæður.„Við gerðum okkar allra besta og það var erfitt fyrir mig að skila vellinum í því ásig-komulagi sem hann var í. Ég vil hrósa og þakka keppendum fyrir þann skilning sem þeir sýndu við erfiðar aðstæður.“Haraldur er ekki í vafa um að samtökin SÍGÍ muni nýta þá reynslu sem fékkst í vetur til að gera gras- og golfvelli á Íslandi enn betri.„Samtökin SÍGÍ eru skipuð frábærum strákum sem vilja vel. SÍGÍ hefur í gegnum tíðina staðið sig frábærlega. Það er okkur sem störfum í þessu fagi mjög mikilvægt að hafa öflug samtök sem stuðla að aukinni þekkingu á okkar sviði. Við störfum á mörkum hins byggilega heims og það er magnað hversu góða golfvelli við bjóðum upp á í þeim veðurfarslegu skilyrðum sem við vinnum í. Ég minni bara á að Hvaleyrar-völlur komst í topp 100 í Evrópu fyrir utan velli á Bretlandseyjum. Það er ótrúlegur árangur.“

Eyjaholan var falleg í sumar.

„Við gerðum okkar allra besta og það var erfitt fyrir mig að skila vellinum í því

ásigkomulagi sem hann var í.“

Page 50: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is50

HIN 4 FRÆKNUeru fulltrúar hins venjulega kylfings á Íslandi.

Golf á Íslandi lagði fyrir þau spurningar og fékk þau til að prófa nýja púttera.

Grímur KolbeinssonAldur: 62Klúbbur: GRForgjöf: 16Uppáhaldsbolti: Titleist og Srixon.Uppáhaldshola: 16. í VestmannaeyjumUppáhaldsvöllur: KorpanMarkmið: Æfa meira og lækka forgjöfina

Grétar Agnarsson (Gressi)Aldur: 42Klúbbur: KeilirForgjöf: 8Uppáhaldsbolti: Titleist Pro V1 og Bridgestone.Uppáhaldshola: BergvíkinUppáhaldsvöllur: HvaleyrarvöllurMarkmið: Hafa gaman af golfinu

Hólmfríður EinarsdóttirAldur: 42Klúbbur: GKGForgjöf: 13Uppáhaldsbolti: Taylor Made og Srixon.Uppáhaldshola: 1. braut í LeirdalnumUppáhaldsvöllur: LeirdalsvöllurMarkmið: Að komast undir 10 í forgjöf

Þorlákur Helgi Ásbjörnsson Aldur: 52Klúbbur: GSForgjöf: 11Uppáhaldsbolti: Titleist Pro V1.Uppáhaldshola: 2. holan á HvaleyrarvelliUppáhaldsvöllur: GrafarholtsvöllurMarkmið: Að lækka forgjöfina

Page 51: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is51

Gressi: „Oftast á mínum heimavelli, Hvaleyrar-velli og ég leik þar 2-3 sinnum í viku. Ég reyni að keppa um helgar en ég fer einnig nokkuð oft í Grindavík og í Leiruna. Strandvellirnir eru í uppáhaldi.“Grímur: „Oftast á mínum heimavöllum hjá GR. Ég spila yfirleitt þrisvar í viku, oftast í Korpunni. Á vorin leik ég á vinavöllum GR, Þorlákshöfn á vorin, Leiran og Grindavík.“Hólmfríður: „Ég spila að meðaltali tvisvar í viku yfir sumartímann – og oftar ef ég er í fríi. Ég leik mest á Leirdalsvelli sem er minn heimavöllur og einnig í Úthlíð þar sem við erum með sumarbústað.“Helgi: „Ég spila 2-3 sinnum í viku, langmest á mínum heimavelli í Leirunni, en veðrið stýrir þessu mikið.“Hvenær byrjuðu þið að leika golf og hvað heillaði þið mest við þessa íþrótt?

Gressi: „Byrjaði fyrir 16 árum síðan – daginn eftir að eldri strákurinn minn fæddist. Þá tók ég fram golfkylfurnar. Útiveran og félags-skapurinn eru það sem heilla mest. Ég er í golfhóp sem kallast Golfsyrpan og við erum 15 í þeim hóp – og það er mjög gaman hjá okkur.“Grímur: „Ég byrjaði alltof seint, þegar ég varð fertugur eða fyrir 22 árum. Félagsskapurinn er það skemmtilegasta. Það kemur oft fyrir að maður dettur inn í ráshópa með fólki sem maður þekkir ekkert – og það er skemmtilegt að kynnast nýju fólki. Golf snýst um útiveru, hreyfingu og skemmtun.“Hólmfríður: „Ég byrjaði í golfi árið 1999 þegar ég fór til Flórída með manninum mínum og tvennum öðrum hjónum. Í þessari ferð sem stóð yfir í 16 daga var leikið golf á hverjum degi og eftir þessa ferð var ég alveg kominn með „bakteríuna“. Útiveran og félagsskapurinn heilla mest og mér þykir gaman að keppa.“

Kylfingum hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum 15 árum og flestir þeirra sem stunda golf í dag hófu að leika golf fyrir áratug eða svo. Golf á Íslandi ræddi við fjóra kylfinga á dögunum sem allir eiga það sameiginlegt að hafa byrjað „alltof seint“ í íþróttinni eins og þeir orða það – en eftir fyrstu kynni af þessari frábæru íþrótt var ekki aftur snúið og „golfbakterían“ hefur hel-tekið þau öll með tölu. Hinn almenni kylfingur í röðum Golfsambands Íslands er langfjölmennasti hópurinn og hér á eftir ætlum við að kynnast honum aðeins betur. Fyrsta spurningin var að sjálfsögðu hve oft þau leika golf í hverri viku og hvaða vellir verða helst fyrir valinu.

Helgi: „Það eru um 20 ár síðan ég fór á nám-skeið hjá Arnari Má í Hvaleyrinni – en þar hóf ég að leika golf. Það var nóg til þess að kveikja í mér. Félagsskapurinn, útiveran og keppnin við sjálfan sig heillar.“

Hvað finnst þér helst upp á vanta í golf-klúbbum og á golfvöllum hér heima?Gressi: „Það þarf að vera meira eftirlit – vera með golfbíla úti á vellinum að fylgjast með leikhraða. Kylfingarnir sjálfir mættu ganga betur um vellina og hirða upp rusl og þess háttar.“Grímur: „Mér finnst að kylfingar mættu gefa sér meiri tíma til að stoppa í golfskálanum eftir hring – spjalla og njóta stund-arinnar. 19. holan er nefnilega frábær.“Hólfmfríður: „Betra veður er það sem vantar hér á landi. Annars þýðir lítið að velta veðrinu fyrir sér ætli maður sér að spila mikið. Ég bjó í Hollandi um tíma og var þar í góðum golfklúbbi og samanburðurinn hér á landi hvað vellina varðar er nánast sá sami.“Helgi: „Það hefur oft pirrað mig að við göngum ekki nógu vel um vellina. Boltaförin á flötunum eru ekki löguð og þess háttar. Ég sakna þess að klúbbarnir séu ekki að bjóða upp á „kynningar“ á kylfum og þess háttar. Það ætti að vera hægt að prófa ýmsar kylfur á völlunum.“

Það kemur glampi í augu allra viðmælanda þegar spurt er um golfferðir erlendis en það er stór hluti af því að upplifa golfið frá nýju sjónarhorni.

Gressi: „Ég hef farið nokkrum sinnum erlendis til þess að spila golf. Helst fer ég til Skotlands og Englands. Það fer bara eftir því hvernig fjármálin standa hversu oft maður fer í slíkar ferðir.“Grímur: „Á seinni árum hef ég verið duglegri við að fara erlendis í golf. Mér líður vel þegar ég spila á Flórída en ég hef líka leikið á Eng-

landi og Spáni. Flórída er samt minn staður. Mér finnst þægilegt að vera þar, veðrið er gott, verðlagið skaplegt og nóg af rástímum í boði.“Hólmfríður: „Golfið er fjölskylduíþrótt hjá okkur og við förum því oft í ferðalög til þess að spila golf. Ég er mjög heppinn með að fjöl-skyldan spilar golf – og sá yngsti er farinn að æfa golf en hann er 7 ára. Ég hef líka reynt að komast með í æfingaferðirnar með börn-unum mínum hjá GKG.“Helgi: „Ég fer svona öðru hverju erlendis í golf. Það er erfitt að hætta því þegar maður kemst á bragðið en ég stefni á að komast til Bretlands í vor. Ég kann best við Bretland, það er eitthvað sem heillar mig við það. Ég hef verið að vinna í Svíþjóð og notað tæki-færið að leika þar.“

Margir kylfingar eru „helteknir“ af „græju-pælingum“ og kaupa sér ávallt það nýjasta sem boðið er upp á. Okkar viðmælendur eru frekar rólegir í tíðinni hvað slíka hluti varðar.

Gressi: „Ég get ekki sagt að ég sé mikill „græju-kall“. McGregor járnin sem ég nota eru 8 ára gömul sem ég keypti hjá Sigurgísla í Golfbúðinni. Ég hef skipt um „dræ-vera“ nokkrum sinnum en ég á þá allavega í ein-hvern tíma áður en ég skipti þeim út.“Grímur: „Græjufíknin“ hefur minnkað hjá mér – ég trúði því áður fyrr að það væri nóg að kaupa nýjan dræver. Ég veit betur í dag og það eru ekki bara upphafshöggin sem þarf að laga, það eru öll hin höggin sem skipta meira máli. Ég er ekki einn af þeim sem kaupi nýtt á hverju ári.“

Það þarf að vera meira eftirlit með leikhraða. // Það er horft mikið á golf á mínu heimili. //„Græjufíknin“ hefur minnkað hjá mér. // Ég hef ekki verið duglegur að fara til golfkennara. HIN 4 FRÆKNU

Page 52: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is52

Hólmfríður: „Ég hef sterkar skoð-anir á útbúnaði en ég pæli ekki mikið í slíku. Ég er það heppinn að maðurinn minn hefur meiri áhuga á þessu en ég. Hann hefur séð um þessa „deild“ en ég er með Taylor Made í pokanum og líkar það vel.“

Helgi: „Ég skipti út kylfum á um sjö ára fresti en það aldrei að vita að það gerist örar með aldrinum. Mér finnst gaman að prófa nýjar kylfur og ég pæli aðeins í slíkum hlutum.“Afreksgolfið hér heima og erlendis er á mis-munandi stað á forgangslistanum hjá viðmælendunum en þau fylgjast þó öll eitt-hvað með Eimskipsmótaröðinni á Íslandi.Gressi: „Ég reyni að fylgjast með Eimskips-mótaröðinni eins vel og ég get. Ég var í átta ár kylfusveinn hjá Tryggva Traustasyni vini mínum. Ég hef líka fylgst vel með Sveita-keppninni og að sjálfsögðu unglingagolfinu þar sem Atli sonur minn leikur.“Grímur: „Ég fylgist töluvert með afreks-golfinu hérna heima. Ég geng stundum með okkar bestu kylfingum og tek ljósmyndir í leiðinni en það er áhugamál hjá mér. Ég hef virkilega gaman af því að fylgjast með okkar bestu kylfingum.“Hólmfríður: „Ég er dugleg að fylgjast með afreksgolfinu hér á Íslandi. Emil Þór sonur minn er á Eimskipsmótaröðinni og dóttir mín Alma Rún er á Íslandsbankamóta-röðinni. Ég fæ stundum að vera „kaddý“ hjá dóttur minni.“Helgi: „Ég verð að viðurkenna að ég er ekki nógu duglegur að fylgjast með afreksgolfinu á Íslandi. Ég les kylfingur.is og fylgist með því sem þeir segja. Ég hef ekki mætt á vellina og gengið með kylfingunum.“

Þau fylgjast öll eitthvað með bestu kylfingum heims á mótaröðunum erlendis og flest eiga þau „uppáhaldskylfing.“

Gressi: „Ég fylgist töluvert með PGA móta-röðinni. Vellirnir heilla mig meira á PGA mótaröðinni og kylfingarnir sem eru þar eru betri. Tiger Woods er í uppáhaldi og ég skammst mín ekkert fyrir það.“Grímur: „Ég fylgist aðallega með Opna breska og Ryderkeppninni. Ég hef upplifað það nokkrum sinnum að vera í Evrópu með golfhóp þegar Ryderkeppnin er í Ameríku og það er mjög skemmtileg stemmning sem myndast. Á árum áður var það „Hvíti hákarlinn“ – Greg Norman, sem var minn maður. Á

seinni árum hef ég fundið aðeins til með Ser-gio Garcia og ég held líka með Rory McIlroy.“Hólmfríður: „Á mínu heimili er fylgst með flestum golfmótum í sjónvarpinu en ég læt lokaholurnar á sunnudeginum duga. Rory McIlroy er sá kylfingur sem ég hef fylgst hvað mest með frá því hann gerðist atvinnumaður. Hann er flottur íþróttamaður og fyrirmynd, með flotta sveiflu og kemur alltaf vel fyrir.“Helgi: „Stórmótin eru það sem ég fylgist mest með og þá sérstaklega Opna breska og Ryder-keppninni. Ég missi varla af Opna breska og það er bara skylda að horfa á Ryderinn. Phil Mickelson er skemmtilegur kylfingur en það eru margir þarna úti sem ég fylgist með.“

Fjórmenningarnir hafa flest farið til golf-kennara og það er markmið hjá þeim mörgum að leita meira til fagmanna í stétt-inni. Kennsluefni á veraldarvefnum er í uppáhaldi hjá Helga.

Gressi: „Ég hef ekki verið dug-legur að fara til golfkennara en ég spila oft með golfkennurum og þeir hafa gefið mér ýmis ráð. Þeir láta mig annars nánast alveg í friði. Ég reyni að fylgjast með í blöðum en ég er ekkert sérstaklega að leita eftir því.“Grímur: „Ég byrjaði eins og margir aðrir með félögunum í golfi. Ég veit það sjálfur að það skilar árangri að fara til golfkennara. Ég hef farið í golfskóla í Ameríku sem var mjög skemmtilegt. Ég er ekki duglegur að viða að mér kennsluefni.“Hólmfríður: „Þegar ég var að byrja var ég dugleg að fara til golfkennara og það skilaði árangri. Ég lækkaði um 4 í forgjöf á fyrsta tímabilinu. Ég hef ekki verið nógu dugleg að fara til golfkennara á undanförnum árum. Ég les Golf á Íslandi og skoða pistlana sem eru þar.“Helgi: „Ég hef ekki verið nógu duglegur að nýta mér golfkennarana á undanförnum árum. Ég hef verið duglegur að pæla sjálfur í sveiflunni minni.“

Öll hafa þau „metnaðarfull“ markmið um að lækka forgjöfina í vetur með stífum æfingum. Eða svona næstum því.

Gressi: „Það blundar alltaf í manni að verða betri í golfi en til þess þarf maður að æfa sig. Ég hef ekki verið sá duglegasti á því sviði. Ég hef náð að fara niður í 5 í forgjöf en ég hef aldrei æft mig í golfi – ég spila bara og reyni að hafa gaman af þessu.“Grímur: „Forgjöfin er 16,1 og hefur farið hækkandi undanfarin ár. Af þeim sökum tók ég þá ákvörðun í haust að ná henni niður. Ég hef nú þegar hafið æfingar hjá golfkennara og mun stunda það í vetur. Markmiðið er að komast neðar – ekki ofar.“

Hólmfríður: „Ég ætla að vera dugleg að æfa mig í vetur en langtímamarkmiðið er að komast undir 10 í forgjöf. Fyrst þegar ég var að byrja að spila golf þá mátti maðurinn minn lítið segja mér til. Í dag er ég duglegri að spyrja hvað sé að. Ég er óhrædd við að spyrja en ég vanda valið hvern ég spyr.“ Helgi: „Fyrir tveimur árum fór ég að taka sveifluna mína upp og komst að því að hlut-irnir eru ekki eins og maður heldur. Ég hef verið að prófa mig áfram, nota greiningar-forrit. Mark Crossfield hefur hjálpað mér mikið – og svo hef ég prófað að tengjast rotaryswing.com. Þar gat ég sett inn mynd-band, fengið ráð og æfingar í kjölfarið.“

Að lokum voru viðmælendurnir beðnir um að nefna þrjár uppáhaldsgolfholurnar hér á landi og þrjá velli.

Gressi: „Ein skemmtilegasta golfhola á Ís-landi er Bergvíkin í Leirunni. Það er erfitt að sleppa henni í slíkri upptalningu. Í Vest-mannaeyjum er 17. holan í miklu uppáhaldi, sú 7. í Keili er frábær en annað höggið þar krefjandi blint högg. Hvað vellina varðar þá er Hólmsvöllur í Leiru góður, Vestmanna-eyjar einnig en í uppáhaldi er Hvaleyrin.“Grímur: „Ég nötra alltaf á teignum á nokkrum holum. Þar má nefna 16. brautina í Vestmannaeyjum, Bergvíkina í Leirunni og 12. í Korpunni. Á þessum holum þar maður að íhuga vel hvað maður ætlar að gera og það eru margir þættir sem geta haft áhrif á teig-höggið. Korpan er skemmtileg, Hvaleyrin og Urriðavöllur eru líka í uppáhaldi. Ég þarf að fara fljótlega norður í land því Jaðarsvöllur er einnig í miklu uppáhaldi hjá mér.“Hólmfríður: „ Það margar fallegar golfholur á Íslandi. Bergvíkin, 2. holan á Akranesi er mjög falleg en 1. holan í Leirdalnum er í mestu uppáhaldi hjá mér. Braut sem er mikil áskorun og býður upp á marga möguleika. Hvað vellina varðar er Leirdalsvöllurinn í uppáhaldi, – Hvaleyrin er einnig fjölbreyttur og Garðavöllur á Akranesi. Leiran er einnig í uppáhaldi þar sem ég náði mínu besta skori fram til þessa – 79 högg.“Helgi: „Bergvíkin er í uppáhaldi, 15. í Grafarholtinu var komin á sálina hjá mér þegar ég var félagi í GR en ég kann vel við þá holu í dag. Önnur holan í hrauninu í Hval-eyrinni er einnig í uppáhaldi, maður þarf alltaf að hugsa á teignum hvað maður þarf að gera. Leiran er minn heimavöllur – ég hef verið félagi þar í átta ár og helsti kosturinn við völlinn er að tímabilið er langt. Hvaleyrin kemur þar á eftir en þar er um-hirðan alltaf til fyrirmyndar. Grafarholtið er uppáhaldsvöllurinn – mér finnst alltaf gaman að spila þar og því fylgir sérstök upplifun.“

Grétar

Hólmfríður

Helgi

Grímur

Page 53: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

EN

NE

MM

/ S

ÍA /

NM

34

79

2

Icelandair hótel Hamar - alvöru íslenskt golfhótel

REYKJAVÍK NATURA REYKJAVÍK MARINA Í KEFLAVÍK FLÚÐIR KLAUSTUR HÉRAÐ AKUREYRI HAMAR

Icelandair hótel Hamar, BorganesiNánari upplýsingar og bókanir: icelandairhotels.is eða í síma 433 6600

Hamarsvöllur er skemmtilegur 18 holu golfvöllur staðsettur í gullfallegu umhverfi á söguslóðum í Borgarnesi. Icelandair hótel Hamar er glæsilegt hótel þar sem gestir njóta einstakrar kyrrðar og snæða ljúfmeti sem framreitt er úr hráefni úr héraði. Af hótelinu er gengið beint út á golfvöllinn. Staðsetningin, aðstaðan og frábær tilboð á golfi og gistingu gera Icelandair hótel Hamar að draumaáfangastað golfarans, hvort sem um ræðir golfhelgi með ástinni eða heimsóknir stærri hópa.

Verið velkomin á Icelandair hótel Hamar.

Page 54: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is54

PÚTTERAR

PRÓFAÐIRScotty Cameron pútterar heill-uðu fjórmenningana mest þegar fimm gerðir af þessari mest notuðu kylfu voru prófaðar. Golf á Íslandi fékk fimm púttera hjá Hole in One versluninni, tvo Scotty Cameron og síðan eina gerð frá Oddysey, Mizuno og Ping. Scotty Cameron 5R endaði í efsta sæti og hlaut fullt hús, 60 stig af sextíu mögulegum. Það hefur orðið mikil þróun í pútterum á undanförnum og hún byrjaði líklega þegar Ping Anser kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir rúmum þrjátíu árum. Fjórmenn-ingarnir tjáðu sig um pútterana og hér má sjá þeirra niðurstöður og um-mæli.

Scotty á toppnum!

HIN 4 FRÆKNU PÚTTA

Scotty Cameron Futura X5R

Mizuno 90 T02

Ping Karsten TROdyssey Tank Cruiser #1

Scotty Cameron Futura X™

*Stigagjöfin var frá 1-5 og var hæst gefið 5. Scotty Cameron Futura X5R fékk fullt hús stiga og sigraði með yfirburðum í þessari könnun.

Útlit Tilfinning Virkni SamtalsScotty Cameron Futura X5R 20 20 20 60Scotty Cameron Futura X™ 14 16 15 45Odyssey Tank Cruiser #1 14 15 15 44Ping Karsten TR 13 13 12 38Mizuno 90 T02 11 10 10 31

Page 55: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

SMÁRALIND 5659730 / KRINGLAN 5680800 / AKUREYRI 4627800

SMÁRALIND XL 5650304

140905_DM_Island_210x300_lh.indd 1 9/3/14 2:10 PM

Page 56: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is56

Hólmfríður: „Ég fann það strax að þetta var pútterinn, Scotty Cameron 5R. Þetta var fyrsti pútterinn sem ég prófaði og hann fékk fullt hús stiga hjá mér. Þessi pútter er ekki ósvipaður þeim sem ég nota í dag – ég er með Odyssey og ég er hrifnari af stærri haus-unum. Ég hef aldrei átt Scotty Cameron og ef maðurinn minn er að lesa þetta þá væri þetta tilvalin jólagjöf. Útlitið skiptir miklu máli, hann verður að virka fyrir augun annars fer hann að trufla mig. Þetta er kylfan sem við notum mest og það er eins gott að hann virki vel fyrir augað. Ég æfi púttin töluvert yfir vetrartímann með börnunum mínum í pútt-mótaröð hjá GKG.“

Gressi: „Mér fannst Scotty Cameron 5R pútterinn bera af þessum fimm. Scotty X pútterinn var einnig góður. Þyngdin í þessum pútterum er svipuð og er í þeim sem ég nota og eflaust hefur það mikið að segja. Pútterinn er mikivægasta kylfan í pokanum – við endum hverja holu með þessari kylfu þannig að við þurfum að vera sátt við þessa kylfu. Ég æfi mig aðeins í púttunum áður en ég fer að keppa en annars er ég ekki duglegur að æfa mig. “

Grímur: „Mér fannst báðir Scotty Cameron pútterarnir sem ég prófaði góðir en ég er sammála Hólmfríði með að þetta er besti pútterinn, Scotty Cameron 5R. Pútterinn sem ég er með í pokanum er Cleveland og hann er nokkuð frábrugðin þessum 5R týpunni frá Scotty. Ég átti einu sinni Scotty Cameron en við vorum ekki í góðu sam-bandi. Ég fer kannski að gefa honum tæki-færi á ný. Valið á pútter snýst oft um trú á þeirri kylfu sem maður velur að nota. Maður þarf að geta treyst kylfunni en útlitið er ekki aðalmálið fyrir mig.“

Helgi: „Ég er sjálfur með Ping Anser en það kom mér á óvart hve langt hann var frá hinum pútterunum sem ég prófaði í dag. Það sem mér fannst sérstakt við Scotty Cameron pútterana var þyngdin í skaftinu. Ég er ekki vanur því en það vandist vel og ég kunni vel við það. Útlitið skiptir eflaust máli en það á ekki að gera það - það skiptir meira máli hvernig hann virkar. Ég er ekki nógu dug-legur að æfa mig í púttunum þrátt fyrir að ég viti að þar getur maður bætt skorið mikið.“

Um pútterana Scotty Cameron Futura X5R 56 stigÞað er áratugur frá því að Futura línan var kynnt fyrst. Hönnunin var „út fyrir kassann“ hugsun á þeim tíma sem hefur verið bætt enn frekar með þessari útfærslu. Stöðugleiki og öryggi einkennir hönnunina en þynging er í endanum á gripinu til þess að líkja eftir „löngu“ skafti sem verður brátt bannvara.

Scotty Cameron Futura X™ 49 stigAdam Scott kom að því að hanna pútterinn sem á að taka við löngu pútterunum sem verða bannaðir frá árinu 2016. Stöðugleiki er einkennisorðið sem notað er um pútt-erinn sem er með 50 gramma þyngingu í endanum á gripinu sem á að gefa svipaða tilfinningu og fylgir því að pútta með löngu skafti.

Odyssey Tank Cruiser #1 44 stigÞað eru þyngingar í botni púttersins sem hægt er að stilla en jafnvægið í blaðinu er einstakt. Nokkuð hefðbundið útlit en áferðin er „silkimjúk“ og útkoman einni.

Ping Karsten TR 38 stigEinn af fimm vinsælustu pútterum Ping frá upphafi. Það er hægt að fá mismunandi dýpt á raufunum í höggfletinum sem gefur aukna tilfinningu í lengdar- og hrað-astjórnun. Koparliturinn hefur verið „ein-kenni“ Ping allt frá því að Anser pútterinn kom fyrst fram á sjónarsviðið.

Mizuno 90 T02 31 stigÞað sem einkennir pútterinn er að tvær línur eru notaðar sem mið fyrir kylfinginn. Samkvæmt rannsóknum þá á auga áhuga-kylfingsins að nema betur þetta mið en hefðbundin lína sem er yfirleitt notuð. Línurnar eiga líka að stuðla að því að kylfingar pútti „beint“ í átt að skotmarkinu.

„Ég var búinn að spá því að Scotty Cameron Futura X5R yrði efstur í þessu prófi. Það sem einkennir pútterinn er að hann er ekki með neitt framan á höggfletinum til þess að „dempa“ höggið líkt og á mörgum öðrum pútterum. Það er gott jafnvægi í pútternum og góð tilfinning sem fylgir því að standa yfir boltanum á flötinni með þessa græju í höndunum,“ sagði Þorsteinn Hallgrímsson, golfsérfræðingur í Hole In One. Þorsteinn segir að á undanförnum tveimur árum hafi Odyssey nr. 7 verið vinsælasti pútterinn í verslun Hole In One en margir aðrir pútterar hafi einnig notið vinsælda - þar á meðal Ping og að sjálf-sögðu Scotty Cameron.

ÞAÐ ER GÓÐ TILFINNING Í ÞESSUM PÚTTER

HIN 4 FRÆKNU PÚTTA

Fjórmenningarnir gáfu pútter-unum einkunn frá 1 og upp í 5.

Hér er Gressi að skrá hjá sér.

Hólmfríður, Grímur og Helgi á pútt-flötinni í Laugardalshöllinni.

Page 57: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

KOMNAR ÚTwww.sena.is/tonlist

Jón Jónsson - HeimMannakorn - Í núinu

Todmobile - Úlfur

Páll Rósinkranz - 25 ár Ragga Gröndal - Svefnljóð

Raggi Bjarna - 80 ára

Fyrir börnin Gissur Páll - AríaUniimog - Yfir hafið

Helgi Júlíus - Crossroads Kvika - Seasons

Hermigervill - I

Óskalög þjóðarinnar John Grant og Fílharmóníuhljómsveit BBC - Live in Concert

SG jólalögin Pottþétt jól

Helgi Björns - Eru ekki allir sexý Pottþétt 63

Vio - Dive in

INNIH

ELDUR

2CD&DVD

SamSam

Ylja - Commotion

Hjálmar - Skýjaborgin

Nýtt íslensktNýtt íslensktIN

NIH

ELDUR

3xCD

INNIH

ELDUR

3xCD

INNIH

ELDUR

3xCD

INNIH

ELDUR

3xCD

INNIH

ELDUR

2xCD

INNIH

ELDUR

2xCD

INNIH

ELDUR

2xCD

INNIH

ELDUR

3xCD

INNIH

ELDUR

3xCD

INNIH

ELDUR

CD&DVD

Page 58: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is58

„Pay and Play“ næsta sumarBrautarholtsvöllur á Kjalarnesi rétt utan við Reykjavík var opnaður sem 9 holu völlur sumarið 2012 en ýmsar framkvæmdir standa yfir á vellinu. Gunnar Páll Pálsson, sem er í forsvari fyrir Golfklúbb Brautarholts, segir að unnið sé að stækkun vallarins í 12 holur og einnig hefur verið ákveðið að taka upp nýjung í aðildarformi frá og með næsta ári.

Skemmtileg upphafsbrautFyrsta brautin er með þeim betri hér á landi, stutt par 5 en reynir á nákvæmni kylfingsins. Sjórinn kemur inn í leik eftir upphafshöggið.

Boðið upp á nýtt aðgangskerfi í Brautarholti:

Þetta aðildarform (Pay and Play) hefur verið að ryðja sér til rúms erlendis og er heimild að nota aðgangslykil fyrir fjölskyldumeðlimi og gesti. Hægt verður að velja 5, 10, 15 og 20 skipta aðgangslykil með aðgang að forgjafar-kerfi GSÍ.

Aukinn sveigjanleiki„Við viljum bregðast við óskum kylfinga um aukinn sveigjanleika og skapa vettvang fyrir þann stóra hóp sem spilar golf en er ekki skráður í hefðbundinn golfklúbb. Jafnvel henta ekki að vera með hefðbundið aðildar-form en vilja halda utan um forgjöf á golf.is. Við áformum að bjóða upp á mismunandi lykla sem henta þörfum hvers og eins s.s. starfsmanna golfklúbba, fyrir þá sem vilja

spila fyrir hádegi eða bara um helgar. „Pay and Play“ aðgangslykillinn er liður í því og hefur náð vinsældum erlendis. Áfram verður samhliða boðið upp á fulla aðild með sam-bærilegum hætti og síðustu ár. „Pay and Play“ er nýr valmöguleiki sem við höfum trú á,“ segir Gunnar Páll.

Golfhópar og fyrirtækiBrautarholt ætlar einnig að taka upp aðgangs-lykil fyrir golfhópa og fyrirtæki þar sem t.d. 20 manna golfhópur getur keypt aðgang fyrir hópinn í nokkur skipti og gert Brautarholt að vinavelli golfhópsins.

Búið er að móta og sá í þrjár nýjar brautir á Brautarholtsvelli. Ein flöt er fullkláruð en

sáð verður í tvær flatir í byrjun næsta vors. Áætlað er að hægt verði að leika á þessum brautum haustið 2016 og verður Brautar-holtsvöllur þá 12 holur.

Sveitakeppni sumarið 2015Gunnar segir að langtímamarkmið GBR sé að Brautarholtsvöllur verði fullgildur keppnis-völlur fyrir stórmót. „Á meðan við erum 9 holur þá þarf það að bíða. Við höfum verið að fikra okkur áfram hvað mótahaldið varðar og svo verður áfram. Sveitakeppni GSÍ í 5. deild verði á næsta ári haldið á Brautarholtsvelli“.

Í nýja „Pay and Play“ aðgangslyklakerfinu er boðið er upp á eftirtalda valmöguleika:5 skipta aðgangslykil á kr. 22.000,-10 skipta aðgangslykil á kr. 40.000,-15 skipta aðgangslykill á kr. 56.000,-Ef óskað er eftir aðgangi að forgjafarkerfi GSÍ greiðast til viðbótar kr. 5.000,- fyrir hverja skráningu. Hægt er að uppfæra aðgangslykil-inn þegar líða fer á tímabilið.

Page 59: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is59

Erfiðasta á landinu?Fimmta brautin í Brautarholti er mögnuð par 3 hola, 200 metrar frá klúbbteig (gulum) og aðeins lengri á meistara-teigum. Hún fer því í flokk erfiðustu brauta landsins enda þurfa margir að munda stærstu kylfuna í pokanum.Kylfingar Golfs á Íslandi léku Brautar-holtsvöll í september og var völlurinn í frábæru standi. Tilfinningin eftir að hafa leikið völlinn er þannig að maður vill koma aftur. Forráðamenn Brautarholts segjast gjarnan heyra það. „Viðbrögð hafa verið mjög góð þannig að við getum verið bjartsýnir á framhaldið.“ Séð frá 4. flöti yfir á þá fimmtu.

Blankalogn og blíða í frábæru umhverfi.

Og hér er myndin tekin á 5. flötinni. Án efa ein af fall-egustu golfholum landsins.

Þriðja brautin er frekar stutt par 4 hola, sjórinn á hægri hönd alla leið.

Löng lokahola.Níunda brautin er 491 metra af aftasta teig og upphafshöggið þarf að fljúga yfir 200 metra til að ná inn á brautina.

Fjórða brautin er glæsileg eins og margar á Brautarholtsvelli. Höfuðborgin hinum megin hafsins.

Frábærar flatirSólarglampar framlengja sig af Atlantshafinu yfir á 2. flötina. Það er mikið landslag í flötum vallarins, rennsli mjög gott og alls staðar eins. Líklega bestu flatir hér á landi.

Page 60: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is60

Verkefnin eru óþrjótandi á Víkurvelli

- Golfklúbburinn Mostri í Stykkishólmi 30 ára

Reynt að efla unglingastarfiðFélagafjöldinn hefur haldið sér á undan-förnum árum en formaðurinn vonast til þess að eðlileg endurnýjun eigi sér stað í klúbbnum með markvissara barna- og unglingastarfi.„Það eru um 120 félagar í Mostra og þeir eru misvirkir í starfinu okkar eins og gengur og gerist. Félagafjöldin hefur haldist nokkuð stöðugur undanfarin ár en inn í þessari tölu eru börn og unglingar og að sjálfsögðu makar. Það sem við höfum verið að reyna að gera á þessu ári líkt og undanfarin ár er að efla barna- og unglingastarfið. Einar Gunn-arsson var lengi hjá okkur sem félagsmaður og kennari. Hann er farinn til Vestmanna-eyja núna og við fengum aðstoð frá Jóni H. Karlssyni og fyrirtæki hans í sumar. Félagar í klúbbnum hafa einnig verið til aðstoðar í þessu verkefni og haldið utan um þetta. Það er gríðarlega hörð samkeppni um athyglina hjá krökkunum. Helsta vandamálið sem við höfum glímt við er að fá þau til þess að halda áfram eftir að þau hafa náð þokkalegum tökum golfinu og fara í þetta af „alvöru“ og

Golfklúbburinn Mostri í Stykkishólmi var stofnaður þann 13. nóvember árið 1984 og fagnaði því 30 ára afmæli sínu fyrir skemmstu. Mostri dafnar vel að sögn Ey-þórs Benediktssonar formanns þegar Golf á Íslandi sló á þráðinn til hans eftir að

golfsumrinu lauk. „Við héldum vel heppnað afmælismót um miðjan ágúst og það var eina stóra „tilstandið“ hjá okkur á afmælisárinu,“ segir Eyþór en hann er á sínu fyrsta ári sem formaður Mostra en hann hefur verið viðloðandi stjórnarstörf hjá Mostra í mörg ár.

stefna hátt líkt og þau gera í öðrum íþróttum. Við gerum okkur vonir um að einhverjir skili sér áfram og það verðir eðlileg endurnýjun í golfklúbbnum. Það væri gott ef smærri klúbbarnir úti á landsbyggðinni gætu fengið meiri aðstoð frá Golfsambandinu hvað varðar uppbygginguna á barna- og unglingastarfinu. Það er mjög dýrt fyrir okkur að „finna upp

hjólið“ í þessum efnum og kannski er hægt að samnýta golfkennara til að halda utan þá krakka sem eru að byrja í golfinu.“

Miklar breytingarVerkefnin er óþrjótandi á Víkurvelli að sögn Eyþórs en það er ekki langt síðan að völlurinn var kominn í það horf sem upphaflega var gert ráð fyrir í teikningum. Í sumar var unnið við að endurbyggja eina af flötum vallarins, æfingaflöt var gerð í fyrra ásamt því sem að æfingaaðstaðan var bætt.„Það hafa átt sér miklar breytingar á vellinum á þessum þremur áratugum. Markmiðið er að gera völlinn að góðum 9 holu velli sem er vel

Page 61: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Verkfæri sem hægt er að treysta !

Viðarhöfða 6 - Reykjavík I Bæjarhrauni 12 - Hafnarfjörðurwww.sindri.is / sími 575 0000

1/2” topparSkrall 36 tannaStærðir 8 - 32mm Flott sem áfylling í sett

vnr IBTGABB2001

topplyklasett 20 stk

6.900 m/vsk

Okkar besta verð

7skúffur

199.900 m/vsk

pro plus seria

282 verkfæri

8skúffur

239.900 m/vsk

pro plus seria

322 verkfæri

7skúffur

179.900 m/vsk

sá vinsæli

283 verkfæri

14.900 m/vsk

fullt verð 25.231

verkfærasett 96 stkToppar 1/4” - 1/2” 4 - 32 mmToppar, lyklar, skrúfjárn, töngNippillyklar og fl.Sterk plasttaska

vnr IBTGcAI9601

21.900 m/vsk

fullt verð 37.200

18.900 m/vsk

fullt verð 28.396

verkfærasett 106 stkToppar 1/4 - 1/2” 4 - 32 mmFastir lyklar 6 - 22mmKertatoppar, bitasett og fl.Sterk plasttaska

vnr IBTGcAI106B

24.900 m/vsk

fullt verð 37.900

verkfærasett 130 stk1/4” - 3/8” - 1/2”Toppar 4 - 32 mm | 5/32” - 1 1/4” Lyklar 8 - 22 mmE toppar, sexkantbitar og fl.Sterk plasttaska

vnr IBTGcAI130B

topplyklasett 94 stk1/4” 4 - 14 mm1/2” 10 - 32 mmBitar og fl.Sterk plasttaska

vnr IBTGcAI094R

8skúffur

289.900 m/vsk

sá risastóri

360 verkfæri

1.490 m/vsk

Bara á netinuBara á netinu

5.900 m/vsk

Page 62: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is62

hirtur og skemmtilegur að heimsækja. Það er ekki grundvöllur að fara í að stækka í 18 holur – stærðin á samfélaginu leyfir það ekki. Reksturinn hefur gengið ágætlega hjá okkur undanfarin ár og klúbburinn er ekki skuld-settur. Klúbbhúsið er gömul kennslustofa úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og húsið rúmar okkar starf með ágætum. Það er búið að byggja pall í kringum húsið og þetta er fínn samkomustaður.“

Gott samstarf við bæjarfélagiðMostri hefur á undanförnum misserum séð um að reka tjaldsvæði Stykkishólmsbæjar og séð um umhirðu á fótboltavellinum.„Við tókum að okkur að reka tjaldsvæðið fyrir Stykkishólmsbæ fyrir nokkrum árum

og það hefur breytt ýmsu í okkar rekstri. Það gerir okkur kleift að hafa klúbbhúsið meira opið enda er tjaldsvæðið alveg við golfvöll-inn og vegalengdirnar ekki miklar. Þar að auki sjáum við um umhirðinu á knattspyrnu-vellinum ásamt tjaldsvæðinu,“ segir Eyþór en tveir til þrír starfsmenn vinna á Víkurvelli yfir sumartímann fyrir utan þá sem koma að þjónustunni í golfskálanum og tjaldsvæðinu. Samstarfið við sveitarfélagið hefur einnig verið með ágætum. Við höfum fengið aðstoð við mannahald ásamt ýmsu öðru.“ Aðsóknin á Víkurvöll hefur verið með ágætum og aukist jafnt og þétt á undan-förnum árum. Það er í takt við þá fjölgun sem hefur átt sér stað í golfíþróttinni.„Undanfarin sumur hafa verið frekar erfið

vegna veðurfars en vonandi koma góð sumur á ný. Það fer lítið fyrir heimsóknum erlendra ferðamanna sem eru hingað komnir til þess eins að spila golf. Það eru samt sem áður alltaf erlendir ferðamenn sem spila á hverju sumri enda er nálægðin við tjaldsvæðið mikil,“ segir Eyþór en hann er ánægður með samstarfið við aðra golfklúbba á Vesturlandi.„Konurnar hafa verið sérstaklega duglegar að hittast og Vesturlandsmótið hjá þeim er árviss viðburður. Hér á Snæfellsnesi erum við í góðu samstarfi við Vestarr á Grundar-firði ásamt hinum klúbbunum. Ef eitthvað bilar í vélunum yfir hásumarið þá leita menn til hvers annars og það eru allir tilbúnir að aðstoða ef því er að skipta,“ segir Eyþór Benediktsson formaður.

Markmiðið er að gera völlinn að góðum 9 holu velli sem er vel hirtur

og skemmtilegur að heimsækja. Það er ekki grundvöllur að fara í að stækka í 18 holur – stærðin á sam-

félaginu leyfir það ekki.

Page 63: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Öryggishnappur securitas - Hnappur sem getur bjargað þínu lífi og þinna nánustu.

Afar eru dýrmætustu manneskjur í lífi hvers manns. Stundum er eins og þeir komi úr einhverjum öðrum tíma með alla sína visku og hlýju. Þeir lauma til manns súkkulaðimolum þegar mamma sér ekki til. Þeir skamma mann af umhyggju. Það er eins og þeir bíði við símann eftir því þegar maður hringir og þarf að létta á sér.afar eiga að búa við öryggi.

Page 64: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is64

USA TravellerVelkomin í Vodafone

Byltingarkennd lækkun á farsímakostnaði í USA og KanadaNú getur þú ferðast um Bandaríkin og Kanada og notað snjallsímann þinn fyrir miklu lægra verð en áður.

Skráðu þig núna í Vodafone USA Traveller með því að senda sms-ið „USA“ í 1414.

Vodafone

Unglingasveitir Hamars hafa vakið gríðarlega athygli á undanförnum misserum og margir af allra bestu kylfingum úr þeim aldursflokki koma úr röðum Hamars sem telur um 100 fé-laga og þar af eru 30 sem eru 15 ára og yngri.

„Það hefur átt sér gríðarlega mikil upp-bygging í barna- og unglingastarfinu og það

Konur- og unglingar leika stórt hlutverk í 25 ára sögu Golfklúbbsins Hamars á Dalvík:

„Golfklúbburinn Hamar hefur aldrei verið eins mikið í fréttum og undanfarin ár – og starfið hlýtur því að vera í blóma,“ segir Guðmundur Ingi Jónatansson, varaformaður Hamars og einn af stofnfélögum Golfklúbbsins Hamars á Dalvík sem fagnaði 25 ára af-mæli á árinu 2015.„Staðan á klúbbnum er mjög góð. Við stöndum vel fjárhagslega og það er mikið líf í klúbbnum. Inniaðstaðan hjá okkur er með eindæmum góð sem margir öfunda okkur af. Það er eitthvað um það að aðrir klúbbar séu að nýta sér þessa aðstöðu sem er í gamla íþróttahúsinu.“

hefur svo sannarlega skilað sér. Okkar yngri kylfingar hafa náð frábærum árangri og ég hef ekki tölu á þeim Íslandsmeistaratitlum sem klúbburinn hefur unnið á síðustu árum.“

Guðmundur dregur ekkert úr því að golf-kennari Hamars eigi stóran þátt í því hvernig til hefur tekist.

„Það skiptir gríðarlega miklu máli að hafa góðan golfkennara og við erum heppinn að hafa fengið Heiðar Davíð Bragason til okkar. Ég get fullyrt að miðað við fjölda félaga í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík þá erum við með hlutfallslega stærsta og öflugasta barna- og unglingastarfið á landsvísu.“

Arnarholtsvöllur fór illa í baráttunni við klakabrynjuna sem lá yfir landinu síðast-liðinn vetur. Ástandið hefur sjaldan verið verra og af þeim sökum var ákveðið að fresta „afmælisviðburðum“. „Völlurinn var ekki tilbúinn í eitt né neitt í júní þegar klúbburinn átti afmæli. Við frest-uðum því öllu og það hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvað við gerum í því tilefni.“

MIKIÐ LÍF Á DALVÍK

Ungur kylfingur á 7. teig. Pabbi skammt undan. Efst má sjá kylfinga á 9. braut.

Page 65: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

USA TravellerVelkomin í Vodafone

Byltingarkennd lækkun á farsímakostnaði í USA og KanadaNú getur þú ferðast um Bandaríkin og Kanada og notað snjallsímann þinn fyrir miklu lægra verð en áður.

Skráðu þig núna í Vodafone USA Traveller með því að senda sms-ið „USA“ í 1414.

Vodafone

Page 66: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is66

Guðmundur hefur tekið þátt í félagsstarf-inu hjá Hamri frá upphafi og hann bendir á að konur hafi leikið stórt hlutverk í starfi klúbbsins. „Ég er einn af stofnfélögum GHD en ég er enginn snillingur í golfíþróttinni. Golf-klúbburinn var lengi vel með lögheimili heima hjá mér. Ég var formaður klúbbsins og Guðrún Konráðsdóttir, konan mín, hefur einnig verið á kafi í þessu starfi. Hún hefur einnig verið formaður klúbbsins. Það er oft mikið lagt undir þegar við keppum við hvort annað. Konur hafa verið fjölmennar í klúbbnum og það eru fáir golfklúbbar á Ís-landi sem hafa haft yfir að ráða eins sterkum kvennahópi. Í fjöldamörg ár var Hamar þekktur fyrir hve vel var tekið á móti gestum í golfskálanum – með hnallþórum sem nutu vinsælda. Það var allt saman konunum að þakka sem sáu um afgreiðsluna og veitinga-söluna í skálanum.“

Golfskálinn reis við Arnarholtsvöll fyrir um tveimur áratugum og segir Guðmundur að félagsmenn hafi lagt mikla vinnu á sig við þá framkvæmd. „Það var nú bara þannig að

klúbbmeðlimir tóku lán og báru ábyrgð á því að sumarbústaður var keyptur undir starfið. Menn unnu síðan bara í þessu og komu húsinu upp. Það hefur alltaf verið góður

félagsandi í klúbbnum og menn tilbúnir að leggja mikið á sig,“ sagði Guðmundur en hann býður alla kylfinga landsins velkomna á Arnarholtsvöll á næsta ári.

Sjöunda brautin er stutt par 3. Útsýnið er víða fallegt á vellinum eins og sjá má hér.

Önnur brautin er par 5 og er lengsta hola vallarins. Það eru víða hættur á leiðinni m.a. er vatnstorfæra fyrir framan og til vinstri.

Völlurinn fór frekar illa eftir harðan vetur eins og sjá á hluta 6. flatar.

ALLTAF GÓÐ VERÐ OG VIÐ SENDUM VÖRUR FRÍTT.10% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM GJAFABRÉFUM TIL JÓLA.

SKOÐAÐU TILBOÐSSÍÐUNA Á NETGOLFVORUR.IS.

Óskum öllum kylfingum gleðilegra jóla og þökkum viðskiptin á árinu.TAKTU ÞÁTT Í JÓLALEIK

OKKAR Á FACEBOOK.

Page 67: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Má ekki nota á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir, augu, sár, exem, vessandi húðbólgu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á altækum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Getur dregið úr frjósemi en þau áhrif ganga til baka. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.

Fæst án lyfseðils

Verkir?Verkjastillandi og bólgueyðandi!

VoltarenGEL011014KVK-A4 copy.pdf 1 28/09/14 21:45

Page 68: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is68

Hinn eini sanni Bjarni Felix-son hefur í gegnum tíðina lýst gríðarleg mörgum heimsbikar-

mótum í alpagreinum sem fram hafa farið í Garmisch-Partenkirchen. Það er óhætt að segja að íþróttafréttamaðurinn kunni á RÚV hafi komið skíðasvæðinu í þýsku Ölpunum inn í orðaforða Íslendinga á árum áður. Sem skíðaparadís er Garmisch-Partenkirchen vel þekkt en þar leynist líka frábær golfvöllur sem Golf á Íslandi heim-sótti í sumar.Umhverfið í Garmisch-Partenkirchen í Bæjaralandi er stórkostlegt. Fjallasýnin er einstök, þar sem á fimmta hundrað tindar gnæfa yfir bænum og hæsta fjall Þýskaland Zugspitze stendur þar hæst í 2.962 m. yfir sjávarmáli. Í raun koma fleiri ferðamenn til Garmisch-Partenkirchen yfir sumartímann en vetrartímann - því skíðatímabilið stendur frekar stutt yfir. Fyrir þá sem hafa áhuga á útivist er allt til staðar í Garmisch-Partenkirchen. Hægt er hægt að róa á kjak í Loisach-ánni sem er straumhörð og því mikil áskorun. Endalausir möguleikar eru á gönguleiðum um þýsku Alpana og hjólreiðaleiðir eru fjölbreyttar. Vinsælasta gönguleiðin á Garmisch-Par-tenkirchen svæðinu er upp að Kóngshúsi í Schachen. Fallhlífastökk er einnig vinsælt þar um slóðir. Í bænum Garmisch-Partenkirchen búa tæplega 30.000 manns en bærinn er hlýr og skemmtilegur – en tilkomumikil málverk eru á framhlið margra húsa í miðbænum. Líkt og margir aðrir bæir í Bæjaralandi eru matsölu-

STÓRKOSTLEG FJALLASÝN VIÐ ÞÝSKU ALPANA

- Garmisch-Partenkirchen golfvöllurinn kemur skemmtilega á óvart

Page 69: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Skjól í amstri dagsinsSmiðjuvegur 9 • 200 Kópavogur • Sími 535 4300 • Netfang [email protected] • www.axis.is

EINRÚM Hönnuður: Sturla Már Jónsson Húsgagna og innanhúsarkitekt

174.

186/

mag

gios

kars

.com

Page 70: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is70

staðir í hæsta gæðaflokki víðs vegar í Gar-misch-Partenkirchen og ætti enginn að vera svikinn af þeim kræsingum sem eru í boði á fyrsta flokks veitingahúsum.Garmisch-Partenkirchen sótti um að halda vetrarólympíuleikana í nágrannabæinn Schönau og München, höfuðborg Bæjara-lands. Vetrarleikarnir fóru fram þar um slóðir árið 1936 en Alþjóða ólympíunefndin úthlutaði leikunum árið 2018 til Pyeongc-hang í Suður-Kóreu.Náttúrufegurðin við Garmisch-Partenkir-chen er einstök og fyrir útivistarfólk er nánast allt í boði.Þekktir listamenn eru einnig tengdir bænum og má þar nefna tónskáldið Richard Strauss sem bjó í bænum í mörg ár. Hann skrifaði m.a. Alpasinfóníuna og sérstök Strauss hátíð fer fram í bænum á hverju sumri.Golfvöllurinn í Garmisch-Partenkirchen kom skemmtilega á óvart og ólíkt mörgum völlum sem eru nálægt fjöllum þá er hann tiltölulega flatur og auðveldur á fæti. Gæði vallarins eru mjög mikil líkt og á flestum völlum Þýskalands – flatirnar stórar og umhirðan fyrsta flokks. Fyrir þá sem eru að leika í fyrsta sinn á Garmisch-Partenkirchen

þá gæti það tekið nokkuð langan tíma að leika völlinn – því það er auðvelt að gleyma sér yfir náttúrufegurðinni. Útsýnið yfir þýsku Alpana er einstakt og á mörgum teigstæðum er líkt og kylfingarnir séu hluti af málverki – slík er fegurðin.Margar holur standa upp úr eftir heim-sóknina á Garmisch-Partenkirchen. Völlurinn er mun opnari á fyrri hlutanum miðað við það sem eftir kemur. Á síðari 9 holunum „þrengist“ aðeins um valmögu-leikana í teighöggunum og þéttur skógur liggur meðfram mörgum brautum á síðari hlutanum. Teigar, brautir og flatir eru í hæsta gæðaflokki og enginn verður svikinn af því að heimsækja völlinn sem er einstakur. Garmisch-Partenkirchen völlurinn er par 72 og 6.156 m. af hvítum teigum, og rétt tæplega 6.000 metrar af gulum teigum, 5.395 m af bláum og 5.222 m. af rauðum. Til samanburðar er Grafarholtsvöllur 6.057 m. af hvítum, 5.478 m. af gulum og 4.669 m. af rauðum.

Ferðalagið!Það eru ýmsir möguleikar á að komast til Garmisch Partenkichen. Ef flogið er

til München tekur það um 2 tíma að fara með lest, rútu eða bifreið frá flugvellinum í München.

Vallargjöld!Fyrir 18 holur í miðri viku er vallargjaldið 60 Evrur eða um 9000 kr. en 75 Evrur, 11.500 kr. um helgar. Hægt er að kaupa afsláttarkort sem gildir á fimm velli og kostar slíkt kort um 27.000 kr. og er umtalsverður sparn-aður að kaupa slíkt kort fyrir þá sem eru að ferðast um Þýskaland.Zugspitsland – hæsti fjallstindur Þýskalands!Það er óhætt að mæla með því að fara með kláfinum upp á hæsta tind Þýskalands, Zug-spitslandm, sem er í 2.962 metra hæð yfir sjávarmáli. Ferðalagið með kláfinum gæti tekið á fyrir lofthrædda en ferðamátinn er öruggur og gríðarleg upplifun að fara í slíkt farartæki. Það tekur um 15 mínútur að fara upp með kláfinum og á toppnum eru fyrir-taks veitingastaðir þar sem hægt er að njóta útsýnisins og gæða sér á góðum veitingum og drykkjum.

Nánar um golfvöllinn: www.golfclub-garmisch-partenkirchen.de

Útsýnið yfir þýsku Alpana er einstakt og á mörgum teigstæðum er líkt og

kylfingarnir séu hluti af málverki

Page 71: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Lá�u hjartað ráða

Rauðrófusafi er góður valkostur fyrir þá sem vilja hugsa vel um heilsuna.

Page 72: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is72

Árlega koma flestir stærstu golf-kylfuframleiðendur með fjölda af nýjum driverum. Sumir er

með allt að níu nýjar gerðir á einu ári, en einhverjir þó ekki með nýjungar nema á nokkurra ára fresti. Með hverri uppfærslu lofa öll þessi fyrirtæki að með nýju kylf-unum muni kylfingar slá beinna, stöðugar og aðallega lengra. Langmesta áherslan er lögð á að lofa aukinni högglengd, enda eru allir kylfingar til í að slá lengra.Ástæðurnar sem gefnar eru upp af hverju kylfingar eiga eftir að slá lengra eru fjölmargar. Kylfuhausarnir eru ýmist straumlínulagaðri, með massamiðjuna („center of gravity“) á öðrum stað sem á að hækka boltaflug og minnka spuna, léttari kylfur, sjáanlegir vasar sem auka fjöðrun, þynnri og „heitari“ höggflötur, betri sköft , ný og betri efni í kylfuhaus-unum, yfir hundrað mismunandi stillingar, betri orkuflutningur o.s.frv. Sumir fram-leiðendur virðast jafnvel farnir í hringi með breytingarnar. Eitt árið gera þeir kassa-lagaða drivera til að ná þyngdinni aftar og á jaðarinn til að auka hverfitregðu en næst setja þeir þyngdarskrúfur í miðjan kylfu-hausinn til að færa massamiðjuna nær höggfletinum til að minnka spuna. Eitt árið stækka þeir kylfuhausana í hámarksstærð en svo koma þeir með minni og svo má áfram telja. Þetta er svo allt saman vel markaðsett með grípandi orðum og auglýsingum. Gjarnan má sjá orð eins og „speed“, „hot“, „energy“ og „lower spin“. Bestu kylfingar heims tala svo um hvað þeir slá mikið lengra og beinna með nýjustu græjunum og það eru jafnvel gerð „fyrir og eftir“ auglýsingamyndbönd sem sýna tölur úr mæligræjum og hvað þeir standa sig mikið betur með nýrri kylfum.En þá er það spurningin, er þetta satt eða er þetta sölumennska? Slá bestu kylfingar heims lengra með þessum kylfum og munt þú slá lengra með nýjum driver? Kíkjum fyrst aðeins á hvað COR er áður en við svörum þeim spurningum. Hvað er COR?COR er skammstöfun fyrir „coefficient of restitution“. Þetta hugtak mætti kalla endurkastsstuðul á íslensku og er oft nefnt fyrir mistúlkun „trampolínáhrif “. Þetta er mælieining á hversu mikil hreyfiorka tapast þegar tveir hlutir rekast saman. Mælingin gæti verið 0.0 ef öll hreyfiorka tapast eða 1.0 ef engin hreyfiorka tapast. Dæmi um 0.0 árekstur væri ef þú hentir tyggjói í vegg, það festist við vegginn og hreyfist ekki, þá hefur öll hreyfiorka tapast. Dæmi um COR sem er nánast 1.0, er þegar þú skýtur kúlu í billiard

beint í aðra kúlu af sömu stærð og massa. Þá algjörlega stöðvast kúlan sem þú skaust í með kjuðanum, en hin kúlan fer af stað á næstum sama hraða.

Þegar kylfuhausar fóru að stækka ört frá 1991 fór málmurinn í þeim að verða þynnri og höggflöturinn fór þá að sveigjast við snertingu( „impact“). Því meira sem höggflöturinn sveigist, því minna kremst golfboltinn og þetta leiðir til hærri endur-kastsstuðuls. Ástæðan er að það tapast mikið meiri orka þegar golfboltinn kremst heldur en þegar höggflöturinn svignar. Árið 2003 voru sett mörk á hversu hátt COR kylfuhaus má vera og tóku þau líka gildi á PGA mótaröðinni. Mörkin voru sett í .83 COR. Fyrst voru þessi mörk sett á kylfur með undir 15° fláa, en seinna voru þau sett á allar golfkylfur. Þetta þýðir að ef golfbolta væri skotið á kyrr-stæðan höggflöt á golfkylfu á 100 km/klst hraða, þá mætti boltinn ekki koma til baka á meira en 83km/klst hraða.

Til að átta sig betur á hvað COR getur skipt miklu máli er hér dæmi til að gefa viðmið. Gamlir stál- eða tré-driverar sem voru ekki sérstaklega hannaðir með þunnan höggflöt eru með COR í mesta lagi .78. Ef kylfingur sem slær rúmlega 200m af teig með nútímadriver með .83 COR myndi nota slíkan driver, þá myndi hann slá boltanum rúmlega 10 m styttra í flugi en hann er vanur. Þeir sem slá lengra væru að tapa enn meiri lengd með gamla drivernum.

Muntu slá lengra með nýjum driver? Hér fyrir ofan sést súlurit yfir meðalhögg-lengd með driver á PGA mótaröðinni frá 1993 til lok tímabilsins 2014. Eins og sjá má þá rýkur lengdin upp á þeim tíma sem driverhausarnir voru að stækka og COR var að aukast. Árið 2003 voru flestir framleið-endur búnir að ná COR hámarki á miðjum höggfletinum. Meðallengdin árið 2003 var 262 metrar og núna árið 2014 var hún 264 metrar. Atvinnumennirnir á PGA móta-röðinni hafa bætt sig um heila 2 metra á síðustu 11 árum. Hank Kuehne á enn metið yfir heilt tímabil sem var 293,9 metrar árið

2003. Mesta meðallengdin var árið 2011 266 metrar, 2 m lengra en í dag árið 2014. Kylfu-hraðinn á PGA mótaröðinni mælist 0,6 mph hraðari nú í ár en frá því það var hann var fyrst mældur með radar 2007, en það þýðir aukna högglengd upp á 1,5 m að öllu öðru jöfnu. Það þarf ekki að rýna lengi í þetta súlurit til að sjá að það er ekki jafn mikil bylting í högglengd með hverri kynslóð af driverum eins og margir vilja

SANNLEIKURINN UM ÞRÓUN DRÆVERA

Page 73: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

www.ricedream.eu

Möndlumjólkina má notaá sama hátt og mjólk: á uppáhalds morgunkornið, í te eða kaffi, sem hressandi kældan drykk og jafnvel í bakstur og matargerð.

Njóttu góðrar heilsu

Page 74: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is74

halda fram. Það hefur þó á þessu tímabili orðið framför í fyrirgefningu á driverum sem myndi skila sér í meiri meðallengd hjá flestum kylfingum og þá helst hjá þeim sem lakari eru. Með reglum um hámark á hverfi-tregðu („MOI“) er búið að mestu leyti setja þak á það líka.

Öll mæld meðaltöl hafa vikmörk og það er eðlilegt að sjá meðaltölin fara örlítið upp og niður. Meðallengd teighögga á atvinnumóta-röðum er þar engin undantekning. Það er ljóst að driverarnir hættu að mestu, ef ekki öllu leyti, að lengja teighögg atvinnumanna árið 2003. Þeir hafa mun meiri kylfuhraða heldur en flestir kylfingar og myndu þeir sjá talsvert meiri bætingar í högglengd með breyttum spuna eða COR heldur en aðrir kylfingar með minni sveifluhraða. Stað-reyndin er augljóslega sú að ef þú hittir boltann á miðjan höggflötinn með driver sem var gerður árið 2003 og driver sem þú keyptir í dag og allt annað væri eins, þá væri sáralítill eða enginn munur á högglengdinni. Tölurnar ljúga ekki og með öllum þeim framförum sem eiga að hafa átt sér stað í kylfuhausum, boltum, sköftum og líkamlegu atgervi þá slá kylfingarnir á PGA móta-röðinni ekki nema 2 metrum lengra í dag en árið 2003.

Hvað þýðir þetta? Það er óþarfi fyrir kylfinga að eltast sífellt við nýjustu „byltinguna“ í driverum, hvort sem hún er auglýst á nokkurra ára fresti eða oft á ári. Loforðin frá markaðsdeildunum eru einfaldlega ekki sannleikanum sam-kvæm. Það sem er mikilvægast er hvort kylfan hentar þér og þinni sveiflu. Þau atriði sem skipta mestu máli eru t.d. lengd, þyngd og jafnvægi kylfunnar, flái og afstaða höggflatarins („face angle“), þykkt gripsins, stífleiki og þyngd skaftsins o.s.frv. Ef eitthvað við núverandi driverinn þinn passar ekki fyrir þig og þína sveiflu, þá slærðu hvorki eins langt og þú getur né spilar af hámarks getu. Ef þau eru hins vegar öll rétt, þá er engin ástæða til að skipta drivernum út. Til að lækka forgjöfina væri peningunum mikið betur varið í kennslu hjá góðum golfkennara heldur en í árlega áskrift af nýjustu afurð markaðsdeilda golfkylfuframleiðenda.

Birgir Vestmar Björnsson

Golfkylfusmiður www.golfkylfur.is

„Tölurnar ljúga ekki og með öllum þeim fram-förum sem eiga að hafa átt sér stað í kylfuhaus-um, boltum, sköftum og líkamlegu atgervi þá slá kylfingarnir á PGA mótaröðinni ekki nema 2 metrum lengra í dag en árið 2003“

Page 75: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is47

FlugFélag Íslands mælir með þvÍ að leika golf í sumar-blíðunni. Með því að nýta þér þjónustu okkar geturðu fjölgað góðu dögunum. Við mælum með því að taka hring á Jaðarsvelli á Akureyri, Tungudalsvelli á Ísafirði, Ekkjufellsvelli á Egilsstöðum eða Grafarholtsvelli í Reykjavík.Bókaðu núna á flugfelag.is eða hafðu samband í síma 570 3030

flugfelag.isBÆTTu fORgJÖfiNa MeÐ OKKuR

HOluR uM allT laND

isle

nsk

a si

a.is

FlU

638

31 0

4/13

paNTaÐu í Dag

eKKi á MORguN

á flugfelag.is

sláÐu TilTíaðu upp og

faRsíMavefuR: m.flugfelag.is viNguMsT: facebook.com/flugfelag.islands

L-staðaHægri handleggur og kylfan mynda aftur bókstafinn L undir lok sveiflunnar. Brjóstkassinn snýr að skotmarkinu.  

LokastaðaEftir að höggið ríður af hljóðna fuglarnir augnablik og eftirvæntingin hangir í loftinu.

pútta Í huga púttarans er jörðin flöt en kúlan hnöttótt. Málið er að láta kúluna snúast frekar en að slá hana. Ýttu henni í átt að holunni því hvernig sem jarðkúlan snýst þá er það tæknin sem gildir. 

akureyriÞeir sem hafa leikið golf á Jaðarsvelli vita að þar er betra að slá styttra en of langt. Júnínóttin á holu þrjú er rétti staðurinn til að æfa sig í að hafa augun á kúlunni. Þú gætir blindast um stund af miðnætursólinni ef þú lítur upp.    

upphafsstaðaHandleggir beinir og bakið. Axlabil á milli fóta. Rassinn út og hnén eilítið bogin líkt og maður sitji á barstól.

egiLsstaðirSkömmu eftir að þú lendir á Egilsstöðum gæti kúlan þín lent á mishæðóttum brautum Ekkjufells-vallar. Ef þú þarft að slá kúlu sem er aðeins upp í móti þá er þjóðráð að auka bilið milli fótanna þar til æskilegri stöðu er náð. 

pútta Hafðu minna bil á milli fótanna þegar þú púttar. Augun á boltanum. Nánar tiltekið, hafðu vinstra augað beint yfir kúlunni.

L-staðaVinstri handleggur og kylfa eiga að mynda bókstafinn L áður en höggið ríður af. Taktu flugið, taktu þér stöðu og njóttu þess að leika golf um allt land.   

Page 76: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is76

Framleiðum barmmerkií öllum stærðum og

gerðum.

Mikið úrval af bikurumog verðlaunapeningum.

Verið velkomin í verslunokkar að Síðumúla 17eða hafið samband í

síma 588-3244fax 588-3246

netfang: [email protected]

Það var tilviljun sem réði því að Auðunn Einarsson, PGA golfkenn-ari, réð sig til starfa í Noregi fyrir

tveimur árum. Auðunn kann vel við sig á nýja staðnum og það hefur margt komið Ísfirðingnum á óvart hjá frændum okkar Norðmönnum. Auðunn var á sínum tíma í fremstu röð afrekskylfinga á Íslandi og hann starfaði lengi hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði sem golfkennari. „Ég hafði verið á heimaslóðum á Ísafirði í tæp tvö ár og var að skoða möguleikana á að komast til útlanda. Ég sendi upplýsingar um sjálfan mig til PGA samtakana í Noregi og tveimur dögum síðar fékk ég símtal. Það má eiginlega segja að ég hafi laumast út án þess að vita hvort ég fengi starfið. Ég var á sínum tíma mjög ánægður í Hafnarfirði en vegna þreytu og persónulegra ástæðna ákvað ég að leita á önnur mið,“ segir Auðunn en hann starfar fyrir fyrirtæki sem heitir Golfbu-tikken sem hefur samstarf við fjóra golfvelli og golfverslanir.

Fjölbreytt verkefni„Það sem ég er að gera hérna í Noregi er nokkuð frábrugðið því sem ég var vanur heima á Íslandi. Golfbutikken rekur einn-ig ferðaskrifstofu og við erum fjórir PGA kennarar sem starfa hjá fyrirtækinu. Mitt svæði er við Arendal & Omegn golfklúbb-inn sem er rúmlega þúsund manna klúbbur með æðislegum 18 holu velli, 9 holu par 3 og góðu æfingasvæði. Ég sé einnig Grimstad GK sem er um 700 manna klúbbur, 9 holu völlur og er ansi skemmtilegur einnig. Gren-

land og Kragerø eru einnig undir sama hatti en ég fer lítið þangað. Kragerø er GolfResort og er á allt á öðru plani. Það má segja að eyðslusömu Norðmennirnir fara þangað yfir sumarið,“ segir Auðunn en Arendal er stað-sett skammt suður af höfuðborginni Osló og er nánast mitt á milli Oslóar og Kristiansand á suðurströnd Noregs. Eins og gefur að skilja er skipulagið mikið hjá Norðmönnum og segir Auðunn að einkatímarnir séu það eina sem ekki er skipulagt áður en vertíðin hefst.„Norðmenn eru ekki eins duglegir að nota einkatímana hjá golfkennurum eins og á Íslandi. Hinsvegar er ég með mikið af þriggja daga golfskólum, byrjendanámskeiðum og svo er klúbbaæfing yfir allt sumarið. Þar getur hinn almenni kylfingur gengið að mér vísum og verið á allt að 3 klst. æfingum sem skiptist niður í pútt, stutt spil og sveiflu. Ég vinn kannski langa daga eða frá 10 til 20 en þeir eru misþéttir og það er nokkuð flókið að útskýra fyrirkomulagið. Ég er tvo daga í Grimstad og þrjá í Arendal og sumar helgar deilast niður eftir námskeiðum og löngum helgarfríum sem ég fæ inn á milli. Þar sem ég hef skrifstofu í Arendal og stærri búð sé ég um allar pantanir og skipulagsvinnu þaðan. Aðstoða svo bara í búðinni ef ég er laus sem og í Grimstad. Þarf svo að flytja á milli staða vörur eftir þörfum,“ segir Auðunn.

Veðrið, bátar og niðursveiflaLíkt og víða annars staðar hefur niðursveifla verið í golfíþróttinni í Noregi. „Golfið er á niðurleið hérna eins og í

mörgum löndum og menn ekki á eitt sáttir hvað veldur. Ég hef heyrt oft þá kenningu að þegar aukningin var sem mest, þá hafi sprottið upp golfvellir út um allt og núna eru of fáir meðlimir í svona mörgum klúbbum. Sumir klúbbar hafa reynt að lokka til sín meðlimi með þvi að lækka árgjaldið. Svo heyrir maður af gjaldþrotum hér og þar en alltaf byrja þeir aftur. Sumir vilja meina að þetta sé eðlilegt og muni jafnast út fljótlega því útbreiðslan hafi verið svo gífurleg fyrir um 10 árum. Golfíþróttin er að keppa við svo margt á sumrin. T.d hjólreiðafólkið sem er svakalega vinsælt núna. Það eiga nánast allir Norðmenn báta og það hefur einnig áhrif á golfið. Ef veðrið er mjög gott þá eru

NORÐMENN ERU LANGT Á EFTIR ÍSLENDINGUM

- Ísfirðingurinn Auðunn Einarsson kann vel við sig á suðurströnd Noregs þar sem hann starfar sem PGA golfkennari

Auðunn og Laufey Garðarsdóttir, sambýliskona hans.

Page 77: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Framleiðum barmmerkií öllum stærðum og

gerðum.

Mikið úrval af bikurumog verðlaunapeningum.

Verið velkomin í verslunokkar að Síðumúla 17eða hafið samband í

síma 588-3244fax 588-3246

netfang: [email protected]

Page 78: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is78

Afreksstarf í Noregi er enn stór ráðgáta fyrir mér“

Norðmenn spila ekki ef veðrið er ekki nógu gott.Hér er Auðunn með tíma í góðu veðri!

Norðmenn ekki að spila golf því þá eru þeir á bátunum sínum. Þeir spila heldur ekki ef veðrið er ekki nógu gott – en allir íslenskir kylfingar myndu fagna því veðri sem Norð-menn telja ekki vera nógu gott, sem er dæmi-gert fyrir venjulegan Íslending.Laufey Garðarsdóttir er sambýliskona Auðuns og eiga þau eina unga dóttur sem fæddist í sumar. Auðunn segir að það sé ekk-ert fararsnið á þeim en það sé aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér.„Þeir sem þekkja mig vel vita að framtíðar-plönin hjá mér geta breyst með stuttum fyrir-vara. Það er gott að vera hér og fjölskyldan er að koma sér vel fyrir. Við eignuðumst litla prinsessu í sumar svo ég held að mér sé óhætt að segja að við erum ekki að leita eftir neinu nýju en við erum heldur ekki búin að ákveða okkur að setjast hér að. Á meðan maður hefur ennþá metnað fyrir þessu starfi mun ég halda áfram. Í samstarfi við minn vinnu-veitanda og klúbbana er ég stöðugt að reyna að bæta sjálfan mig og finna nýjar leiðir að betri árangri.“

Íslensk börn - og unglingar æfa mun meira en NorðmennAuðunn segir að afreksstarfið sé með allt öðrum hætti í Noregi en á Íslandi og íslensk börn – og unglingar æfi mun markvissara en Norðmenn.„Afreksstarf í Noregi er enn stór ráðgáta fyrir mér. Ef ég miða við það sem ég þekki best hérna í kringum mig þá eru Norðmenn langt á eftir Íslandi. Stóru klúbbarnir í Osló eru á allt öðru plani að mér skilst. Kostirnir eru samt sem áður augljósir. Ég fær miklu meiri tíma með hverjum og einum. Þau fá bara eina æfingu í viku hjá mér og stafar það fyrst og fremst að því að klúbbarnir borga þetta sjálfir. Hér þekkist ekki stuðningur frá bæjum og sveitarfélögum. Hérna reka klúbbarnir sig sjálfir og mismunandi hvernig þeir ná inn fjármagni. Mótahaldið er flókið, landið er stórt og ég er með stórar hugmyndir varðandi mótahaldið en það fer mestur tími í að ná inn nýjum meðlimum í golfklúbbana og á meðan situr barna og afreksstarfið á hakanum. Fjöldi unglinga í golfi er allavega langt frá því sem maður þekkir heima. Það gæti verið að unglingar hafi það of gott hérna í góðærinu og nenni ekki að æfa – ég bara veit það ekki,“ sagði Auðunn Einarsson.

Page 79: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 80: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is80

Brynjar Eldon Geirsson hefur ráðið sig til starfa hjá Märkischer Golfclub í Potsdam í Þýskalandi og hefur hann þar störf sem íþróttastjóri í febrúar á næsta ári. Brynjar lætur af störfum sem íþróttastjóri hjá GR í lok

janúar en þar hefur hann starfað frá því í ársbyrjun 2007 eða í tæplega átta ár.Brynjar segir að hlutirnir hafi gerst hratt í haust og hann hafi ákveðið að taka skrefið til Þýskalands þar sem hann tók PGA golfkennaranámið á árunum 2000-2004. Potsdam er rétt við Berlín og segir Brynjar að verkefnið sé afar spennandi.

„Korpan var opin í sex mánuði á þessu ári sem telst vera mjög gott. Á því svæði sem ég er að fara eru vellirnir opnir allt árið og það eitt er gríðarleg breyting fyrir mig. Að vera golfkennari á Íslandi er eins og að vera garðyrkjufræðingur á Grænlandi. Þetta er erfitt og það tekur á að halda einbeitingu yfir vetrarmánuðina. Það var erfið ákvörðun að yfirgefa GR en þegar þessi möguleiki kom upp fann að ég þurfti á nýrri áskorun að halda. Það eru spennandi hlutir að gerast hjá þessum klúbbi og aðstaðan er frábær. Völlurinn er opinn í 12 mánuði á ári og það eru 1400 félagsmenn í klúbbnum sem er með 18 holu völl og tvo 9 holu velli. Verkefnin sem bíða mín eru spennandi og þá sérstaklega sem snýr að afreksstarfinu og uppbyggingu á nýjum áherslum í barna- og unglingastarfi. Æfingaaðstaðan sem er í boði þarna er eins sú besta sem ég hef séð á mínum ferli. Svæðið í mikilli uppbyggingu og mikil fólks-fjölgun hefur átt sér stað á þessu svæði.“

Sterkt tengslanet í Þýskalandi varð til þess að Brynjar komst í samband við réttu aðilana.„Ég lærði í Þýskalandi og á því marga kunningja og vini úr því námi. Þetta starf kemur í gegnum slíka tengingu en mér var bent á að það væru breytingar fram-undan hjá þessum klúbbi. Það voru níu golfkennarar við störf hjá þeim en öllum var sagt upp og markmiðið er að byggja þetta upp með nýjum áherslum. Það var líka

BRYNJAR KVEÐUR GR OG HELDUR TIL ÞÝSKALANDS

- Golfkennari á Íslandi er eins og garðyrkjufræðingur á Grænlandi.

Ef ég lít yfir síð-ustu tíu ár hér á Íslandi þá erum við að taka fram-förum á afreks-sviðinu

Brynjar og Sigurpáll Geir Sveinsson en þeir hafa starfað lengi sem golfkennarar.

Page 81: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is97

Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is

Póstdreifing býður upp á fjölbreytta og örugga dreifingu á blöðum og

tímaritum. Við komum sendingunni í réttar hendur. Örugglega til þín.

GSÍ treystir okkur fyrir öruggri dreifingu á Golf á Íslandi

Við færum þér lægri forgjöf

Brand

enbu

rg

Page 82: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is82

áskorun fyrir mig að komast í samkeppnis-hæft umhverfi með nýjum áskorunum. Það er nauðsynlegt að víkka sjóndeildarhringinn. Mitt starf gengur út á að halda utan um kennsluþáttinn á öllum sviðum og undir mínum hatti verða nokkrir golfkennarar. Það er markmiðið að setja upp aðlaðandi umhverfi fyrir atvinnukylfinga á þessu svæði – þeir myndu þá greiða fyrir þá aðstöðu sem þeir nýta sér. Það er allt til alls þarna, aðstaða, útbúnaður og sérþekking. Það sem verður mitt fyrsta verk er að búa til „æfinga-pakka“ sem hentar fyrir börn og unglinga. Það er mikil eftirspurn á Berlínarsvæðinu að golfklúbbarnir bjóði upp á fagmannlegt og uppbyggilegt starf fyrir yngri kynslóðina. Það er ekki mikið af góðum kostum í boði og eigendur klúbbsins vilja feta þessa leið. Það voru 54.000 hringir spilaðir á þessum velli í fyrra sem er með því mesta í Þýskalandi. Völlurinn er opinn 12 mánuði á ári. Það eru 600.000 íbúar í 20 mínútna fjarlægð frá vellinum og í 30 mínútna fjarlægð er íbúa-fjöldinn 1,2 milljónir. Þetta eru því stærðir sem við þekkjum ekki á Íslandi.“

Eins og áður segir hefur Brynjar starfað hjá GR í tæplega átta ár og hefur hann átt góðar stundir með keppnisfólkinu. „Það verður erfitt að yfirgefa GR. Það hefur gengið vel að undanförnu og það er bjart framundan hjá klúbbnum. Það hefur verið gott að vinna hjá GR, sem er stór klúbbur með stórt og gott bakland. Ef ég lít yfir síðustu tíu ár hér á Íslandi þá erum við að taka framförum á afrekssviðinu. Þeim fjölgar sem komast inn á efri stigin á úrtökumótunum, bæði í karla- og kvennaflokki. Landsliðsmálin eru betri en áður þrátt fyrir að menn séu alltaf að

gagnrýna það. Það eru fullt af góðum hlutum sem hafa verið gerðir hérna á landi og við eigum að vera stolt af því. Það hefur verið gríðarleg framför hjá flestum klúbbum hvað varðar fagmennsku í þjálfun – sérstaklega á síðustu 10 árum eftir að PGA kennurum fór að fjölga. „Leikmaðurinn er samt sem áður alltaf sá sem hefur valdið hvort hann leggi það á sig að komast í fremstu röð.“

Brynjar var fljótur að svara þegar hann var inntur eftir því hvað stæði helst upp úr hjá honum hjá GR.„Margir Íslandsmeistarar hjá konunum. Langþráður Íslandsmeistaratitill í karla-flokki árið 2012. Annað sætið á Evrópumóti klúbba í karlaflokki var einnig eftirminnilegt. Þar vorum við hársbreidd frá því að loka því móti sem fram fór í Portúgal. Sveita-keppnirnar hafa einnig verið eftirminnilegar, sigruðum þrjú ár í röð með konunum og tvö ár í röð með körlunum. Það hefur verið smá niðursveifla síðustu tvö árin miðað við þær væntingar sem gerðar voru – en framtíðin er björt hjá GR. Ef barna- og unglingastarfið er að skila 2-3 samkeppnishæfum meistara-flokkskylfingum á hverju ári þá er það góð niðurstaða. Ég er viss um að það verður raunin á næstu misserum. Stærsti hlutinn af þeim sem ná árangri hérna heima eru þeir sem æfa mest og leggja mest á sig. Það má aldrei gleymast. Alveg sama hve þjálfarinn góður, þá gerast hlutirnir ekki af sjálfu sér. Hugarfarsþjálfunin er það sem við þurfum að laga mest í okkar þjálfun. Að börn og unglingar sjái að fyrir sér að komast í hóp þeirra allra bestu. Þar er verk að vinna,“ sagði Brynjar Eldon Geirsson.

Brynjar og Ólafur Már Sigurðsson en þeir hafa rekið Bása í mörg ár.

Þökkum fyrir skemmtilegar golfstundir á árinu.

Sjáumst hress á nýju golfári.

LIFANDI GOLFSÍÐAALLA DAGA ÁRSINS!

Page 83: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Traustsins verðir

Vörður nýtur trausts hjá öflugum íslenskum fyrirtækjum og stofnunum. Áhersla okkar á einföld og þægileg viðskipti er nokkuð sem fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum kunna að meta.

Hafðu samband og fáðu tilboð í tryggingar þíns fyrirtækis.

VIÐ VILJUM KYNNAST ÞÍNU FYRIRTÆKI BETUR

Við stöndum vörð um öflug fyrirtæki

RÚV

Til að tryggja landsmönnum fréttir, skemmtun og fróðleik

þarf fjölda starfsmanna, tæknibúnað og húsnæði.

Hér er góður staður fyrir þitt fyrirtæki

Brim

Þrír afkastamiklir frystitogarar og öflugt starfslið tryggja

Íslendingum hærri útflutnings-tekjur af gæðahráefni.

Atlantsolía

Með 19 sjálfsafgreiðslu-stöðvum, birgðastöð og

fjórum olíubílum er hægt að tryggja aukna samkeppni á eldsneytismarkaði á Íslandi.

Landsbankinn

Stærsta fjármálafyrirtæki á Íslandi með víðtækasta útibúa-netið tryggir trausta og alhliða fjármálaþjónustu um allt land.

Marel

Eitt af stærstu útflutnings-fyrirtækjum Íslands tryggir markaðnum hugvitsamlegar lausnir til vinnslu matvæla.

Isavia

Það þarf mikil umsvif til að tryggja öryggi á öllum flugvöllum landsins og sjá um nærri 5,5 milljóna km²

flugstjórnarsvæði.

Landsvirkjun

Stærsta fyrirtæki landsins í orkuvinnslu vinnur 73% allrar

raforku innanlands til að tryggja fólki og fyrirtækjum rafmagn.

Össur

Rannsóknir og nýsköpun styrkja stoðir atvinnulífsins með framleiðslu sem tryggir að fólk

geti staðið á eigin fótum.

Page 84: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is84

STUTTA SPILIÐVipp og fleyghögg (pitch) með Ívari Haukssyni PGA golfkennara

Það er aldrei of seint að bæta sig í stutta spilinu því það er jú einn stærsti hlutinn af leiknum, ekki satt. Eflaust kunna þetta margir eða alla vega halda það en það eru líka margir sem ekki eru með þessi högg á hreinu né hvernig á að framkvæma þau. Í þessum pistli ætla ég að kenna ykkur á ein-faldan hátt framkvæmd þessara högga.Vipp, fleyghögg (pitch), glompuhögg og pútt eru högg sem tilheyra stutta spilinu. Vipp og fleyg-högg virðast í fljótu bragði vera svipuð í fram-kvæmd en þau eru talsvert ólík og í þessari grein ætlum við að taka fyrir vipp og fleyghögg.

VIPPHÖGGVipp eru högg sem slegin eru í flatarkanti um það bil 5 metra frá og eru notaðar mismunandi kylfur við þessar lengdir. Einnig skiptir máli hvar flaggstöngin er staðsett og hvaða kylfur eru notaðar. Til að ná bestum árangri er þumalputtareglan þessi: Minna boltaflug - minni áhætta. Nota kylfur með minni fláa og rúlla boltanum inn að stönginni. Hitt er auðvitað hægt að gera, nota fleygjárnin og slá hærra högg með minna rúlli en það er erfiðara og meiri líkur á mistökum. Ég persónulega nota alltaf 7-járn þegar ég er í flatarkanti og hef mikið svæði til að vinna með. Eftir því sem ég er lengra frá og þarf að lyfta boltanum meira tek ég kylfur með hærri númerum, 8-9-járn og síðan fleygjárnin. Sandjárnið er síðan flott þegar maður þarf að lyfta boltanum mikið og láta hann stoppa snöggt. Allt snýst þetta um áhættuþáttinn. Miklu meiri líkur eru á mistökum með kylfur sem geta lyft boltanum meira en hinar með minni fláa. Gott er að hafa í huga að þegar flötin hallar niður á við notar maður frekar kylfu með meiri fláa og svo öfugt þegar maður þarf að koma boltanum upp flötina.

Fyrst er farið fyrir aftan boltann til að taka miðið um það bil 30-40 cm framan við boltann í sömu stefnu og þú vilt slá boltann. Við stöndum í örlítilli opinni stöðu með fætur saman með litlu millibili til að koma í veg fyrir hreyfingu á okkur sjálfum og til að auðvelda framsveifluna, þyngdin örlítið meiri á vinstri fætinum allan tímann, ekkert vagg frama og til baka með mjöðmum. Við höldum aðeins neðar á gripinu til að hafa meira vald á kylfunni og til að koma í veg fyrir úlnliðahreyfinu, þá höldum við aðeins fastar um kylfuna. Hér er nánast eingöngu axlahreyfing, fram og til baka. Höfuðið þarf að vera beint yfir boltanum og hendur aðeins framan við boltann, setja kylfuna fyrst framan við vinstra lærið, grípa um kylfuna og hafa hana hornrétta við höggstefnu áður en þú grípur um kylfuna. Þegar uppstillingin er klár þá erum við búin að mynda stafinn „y“ með kylfu handleggjum og öxlum. Þessari stöðu þurfum við að halda allan tímann í högginu. Sveifla svo fram og aftur. Þegar við endum höggið þá á kylfu-hausinn að vera tiltölulega nálægt sláttusvæðinu og skaftið á að vísa að jörðinni, ekki fram á við eftir að höggið hefur verið framkvæmt.

Ívar Hauksson og Antonio Solano

framkvæmdastóri golfvallarins fyrir

framan Inter-continental Hótelið á Mar Menor Golf Resortinu þar sem Ívar kennir. Hann

hefur verið með golf-ferðir fyrir Íslendinga

að undanförnu á Mar Menor Golf

Resortið og mun gera það áfram.

„Y“ staðan er í gegnum alla sveifluna.

Page 85: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Forskot er sjóður sem styður við efnilega íslenska kylfinga. Eimskip, Valitor, Icelandair Group og Íslandsbanki stofnuðu sjóðinn ásamt Golfsambandi Íslands árið 2012. Markmiðið er að styrkja framúrskarandi kylfinga sem eru að taka sín fyrstu skref út í heim atvinnumennskunnar og stefna á að komast í fremstu röð.

Fáðu forskot á mótherjana

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir

Page 86: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is86

Þessi högg eru gerð þegar við erum lengra frá flötinni og þarf flugið að vera talsvert hærra en í vipphöggum. Best er að nota fleygjárnin (47-60 gráður) og veltur flái kylfunnar á því hversu hátt við viljum að boltinn fljúgi og hversu snögglega við viljum að boltinn stoppi eftir að hann lendir. Boltastaðan er í miðri stöðu eða rétt aftan við miðju, meiri spuni myndast eftir því sem boltinn er aftar. Fætur eru nánast í axlabreidd, staða örlítið opin til að minnka hreyfinguna á okkur sjálfum og einnig til að auðvelda framsveifluna. Í uppstill-ingunni er nánast sama staða á öxlum, handleggjum og kylfu, þ.e. „Y“ staða. Þyngdin á að vera örlítið meiri í vinstri fætinum til að auðvelda hreyfinguna með kylfunni bratt niður á boltann. Í vippunum eiga úlnliðir að vera stífir allan tímann. Í þessum höggum verðum við að brjóta úlnliðina örlítið í aftursveiflunni því

kylfuhausinn þarf að koma brattar niður á boltann. Góð leið til að átta sig á hreyfingu úlnliðanna í aftursveiflunni er að setja annan bolta eða upprúlla handklæði um 30 cm. beint fyrir aftan boltann. Í aftursveiflunni verður að brjóta úlnliðina nóg til að fara yfir boltann eða handklæðið og halda því þannig þar til þú hittir boltann. Í þessum höggum er mjög mikið atriði að hafa í huga að þetta eru ekki högg sem slegin eru með afli heldur með góðu tempói og alls ekki stoppa kylfuna eftir að boltinn er sleginn því þá fer hann bara rétt áfram. Munið alltaf að fara í gegnum höggið á sama hátt og þið væru að henda bolta frá ykkur fram á við. Mikilvægt er að losa hægri fótinn aðeins frá jörðinni til að auðvelda framsveifluna. (Prófið að standa kyrr með báða fætur á jörðinni og einnig lyfta hægri fætinum frá jörðinni og finnið hvað það er miklu auðveldara að fara fram á við og klára höggið.)

Takk kærlega fyrir lesninguna og hafið það sem allra best.Ívar Hauksson PGA golfkennari.

FLEYGHÖGG

EKKI GERA SVONA!

Brjóta úlnliðina.

Hægri fótur upp.

Lyfta í baksveiflu(æfing).

„Y“ staða.

Ekki færa þyngdina á hægri fótinn í aftursveiflunni heldur viðhalda þyngdinni á vinstri allan tímann.

Ekki brjóta úlnliðinn í fram-sveiflunni heldur viðhalda allan tíman „y“ stöðu handleggja og herða.

Ekki færa þyngdina á hægri fótinn og ekki halda úlnliðum stífum, alltaf brjóta þá aðeins í aftursveiflunni.

Ekki skilja þyngdina eftir í hægri fæti og reyna að lyfta boltanum upp með úlnliða-hreyfingu.

Page 87: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLFSETTIÐ FERÐAST FRÍTT!

Þú nýtur þessara hlunninda:■ Þú greiðir ekkert gjald fyrir golfsettið þegar þú ferðast með Icelandair.■ Þú færð ýmis tilboð á golfvöllum hér heima og erlendis og hjá samstarfsaðilum Icelandair Golfers.

Innifalið í 6.900 kr. árgjaldi er m.a.:■ 2.500 Vildarpunktar ■ 2.000 kr. gjafabréf í Saga Shop Collection ■ 100 æfingaboltar í Básum ■ Merkispjald á golfpokann

Icelandair Golfers er klúbbur sem auðveldar þér að spila golf út um allan heim.

Skráðu þig í Icelandair Golfers á www.icelandairgolfers.is+

Meðlimir með Premium Icelandair American Express®frá Kreditkorti greiða ekkert árgjald í Icelandair Golfers

ÍSLENSKA

SIA

.IS

IC

E 6

9463

06/

14

Page 88: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is88

3. Stilltu fótinnÞetta hjálpar þér að halda mjöðmunum réttum aðeins lengur, þannig að kylfan fái tíma til að detta inn í rétta stöðu áður en þú snýrð vinstri hlið líkamans frá. Þetta gefur þér meiri kraft og beinna boltaflug, því þú skilar kylfunni á plani í stað þess að sveifla henni út-inn.

2. Einbeittu þér að því að minnka spennunaAuðvitað er þetta högg erfitt, sérstaklega fyrir þá sem slæva (slæsa) boltann. En með því að horfa á og óttast vatnið ertu bara að gera þér erfiðara fyrir. Nýttu þér þann veikleika heilans að geta ekki einbeitt sér að nema einum hlut í einu – og hugsaðu um eitt-hvað annað en vatnið. Einbeittu þér að því að finna hversu laust þú heldur um skaftið, þannig að kylfuhausinn geti snúist og sjáðu boltaflugið fyrir þér frá hægri til vinstri.

Leikskipulag

Versta martröð þeirra sem slæsa – takist á við hana!

1Þetta er teighögg sem allir rétthentir slævarar (slæsarar) óttast...vatn hægra megin við brautina og vík inn í hana,

rétt hjá þar sem flestir boltar lenda. En þetta er góð par 4 hola. Taki maður járn á teignum verður erfitt að komast á flötina í tveimur höggum – og jafnvel þótt járn yrði fyrir valinu, þá myndi sama vandamál blasa við í næsta höggi.

Besta leiðin til að forðast vatnið er að fá boltann til að beygja frá því. Til að draga boltann frá vatninu og inn á braut þarftu að hugsa rökrétt og vera hugrakkur á sama tíma. Ef þú stenst þessa raun eru verðlaun í boði: skraufa-þurr golfbolti á braut.

Með Gareth JohnstonYfirkennara á Calcot Park vell-inum í Berks-hire. Einn af aðalkennurum TG Elite hópsins.

Page 89: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

3. Sláðu í áttina að hættuKylfuhausinn kemur boltanum af stað og sveifluferillinn ræður flug-inu. Til þess að koma boltanum frá vatninu, skaltu stilla þér upp þannig að kylfuhausinn vísi beint niður brautina. Einbeittu þér svo að því að sveifla í átt að vatninu hægra megin – og búðu þannig til inn-út sveifluferil sem spinnur boltann til vinstri, eins og þegar knattspyrnumaður tekur horn. Taktu nokkrar æfingasveiflur til að ná þessu betur.

Tvær góðar æfingar

Niðursveiflan:gerðu sveifluferilinn betriÍ klassískri slæv-sveiflu sérðu kylfinginn kasta hægri öxlinni yfir frá toppi bak-sveiflunnar – þessi hreyfing leiðir til út-inn sveiflu. Komdu í veg fyrir þetta með því að láta hrygginn vísa að skotmarkinu eins lengi og þú getur þegar niðursveiflan hefst. Finndu fyrir höndum og öxlum snúa líkamanum á sama tíma og kylfan nálgast boltann.

Höggið: hanskinn horfir á skotmarkiðKomdu kylfuhausnum í rétta stöðu með því að sjá fyrir þér tána á kylfunni komast fram fyrir hælinn. Þú getur einnig framkallað þetta með því að ímynda þér merkið á golfhanskanum snúast og „horfa“ á skotmarkið. Þetta er auðveldara þegar skyrtuhnapparnir eru fyrir aftan boltann þegar kylfan kemur í hann; þetta gefur þér aðeins meiri tíma til að koma kylfu-hausnum réttum í höggið.

Page 90: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is90

Darren Clarke var ekki kátur þegar hann sá mynd af sér á Dunhill Links meistaramótinu í fyrra. „Ég

hugsaði með mér...dj...er ég feitur,“ segir Clarke þegar hann rifjar þetta upp.Nokkrum dögum síðar byrjaði hann í æfingum hjá Jamie Myerscough, vinsælum einkaþjálfara í Dublin. Eftir nokkra mánuði var Clarke búinn að léttast um meira en 12 kíló; eftir níu mánuði lýsti hann því yfir að meira en 24 kíló væru horfin, vöðvar væru komnir í staðinn og hann væri kominn í miklu betra form, bæði líkamlega og and-lega. Við ákváðum að biðja Myerscough að upplýsa hvernig þeir fóru að þessu.

Hver voru markmið Darrens í upphafi?Það var þrennt sem hann vildi; grenna sig, bæta líkamsástand, einbeitingu og vöðva-styrk og svo að ná betri heilsu.

Hvernig áætlun settuð þið upp?Við byrjuðum á því að breyta mataræðinu hjá honum, til að minnka sykurneyslu, því ég vissi að svona breyting myndi lækka insúlín-magnið í blóðinu. Það er lykilforsenda fyrir því að léttast, því insúlínið er hormón sem segir líkamanum að geyma fitu. Ég sagði honum að hætta að einbeita sér að þol-þjálfun og byrja á alhliða líkamsrækt, þar á meðal að lyfta þungum lóðum í 20 mínútur á dag, fjórum til fimm sinum í viku. Darren tekur þetta skipulega; hann einbeitir sér einn daginn að neðri hluta líkamans, næsta dag að brjóstvöðvum og baki, og þriðja daginn að handleggjum og öxlum til dæmis.

Bara 20 mínútur á dag?Ef þú ert með gott skipulag þá duga 20 mínútur fyllilega til að ná markmiðinu. Ég mæli heldur ekki með því að kylfingar geri of

mikið af þolþjálfun. Í fyrsta lagi skapar slík þjálfun misvægi milli vöðvahópa, í öðru lagi hafa rannsóknir sýnt fram á að sá líkams-massi sem hverfur við þolþjálfun kemur að mestu leyti til vegna minnkandi vöðva-massa og það er ekki gott fyrir kylfinga, því minni vöðvamassi þýðir minni styrkur. Auk þess er erfiðara að búa til kraft og hægja á meltingunni.

Hvaða líkamshluta ættu kylfingar að einbeita sér að?Miðhluti líkamans (core) þarf að vera sterkur, en ef ég ætti að velja einn líkams-hluta fram yfir annan, þá væru það fæturnir. Darren gerir réttstöðulyftur og hnébeygjur (squats and deadlifts), og ég veit að Justin Rose talar líka um gagnsemi þeirra. Báðar þessar æfingar eru góðar fyrir kylfinga, því með þeim byggir maður upp styrk í öllum líkamanum, en þó sérstaklega í lærvöðvum, rassinum og mjöðmunum, þaðan sem krafturinn í sveiflunni kemur.

Rory McIlroy hefur greinilega verið að byggja upp handleggsvöðvana. Ættum við að gera það líka?Já og nei. Það er mikilvægt að hafa styrk í framhandleggjum til að geta slegið fast niður á bolta sem situr í háu grasi. En ég mæli hins vegar ekki með því að fá of stóra fremri upphandleggsvöðva (biceps), því ef þeir eru of sterkir, þá halda þeir aftur af þríhöfðanum aftan á handleggnum (triceps). Þetta skiptir ekki svo miklu máli í öðrum íþróttagreinum, en í golfi er það þríhöfðinn sem réttir hand-leggina þegar kylfan kemur í boltann. Þess vegna reyni ég að fá mína kúnna til að leggja meiri áherslu á aftari handleggsvöðvana.

Hraðinn á snúningi mjaðmanna hefur

áhrif á kraftinn í sveiflunni, er það ekki? Hvernig æfir maður þetta?Teygjubönd eru góð leið til þess. Darren festir einn enda teygjubands í hurðarhún til dæmis, heldur í hinn endann og tekur æfingasveiflu. Mótstaðan í teygjubandinu eykur snúningsstyrkinn og þar með kraftinn í gegnum sveifluna.

Hvaða önnur ráð áttu fyrir áhugakylfinga sem vilja grennast og slá boltann lengra?Þeir ættu að líta réttum augum á leikfimi fyrir kylfinga. Margir virðast halda að gott líkamsform felist í því að geta hlaupið fimm kílómetra, en það segir ekki alla söguna. Gott líkamsform fer eftir æfingunum sem maður gerir; það að vera í góðu golfformi snýst um að geta tekið þrjátíu til fimmtíu góðar sveiflur í hverjum golfhring.

Segðu okkur að lokum eitthvað um æfingar sem fáir kylfingar vita.Karlmenn sem eru orðnir eldri en 27 ára, og konur sem eru eldri en 25 ára tapa um það bil 250 grömmum af vöðvamassa á hverju ári. Það virkar ekki mikið, en ef ekkert er gert til að vega á móti þessu, þá eru 47 ára gamall karlmaður og 45 ára gömul kona búin að tapa fimm kílóum af vöðvamassa á tuttugu árum. Þegar maður gerir sér grein fyrir þessu er auðvelt að skilja hvers vegna eldra fólk slær styttra og hvers vegna það er svo mikilvægt að stunda styrktar-þjálfun til að vinna gegn þessari þróun.

Einkaþjálfari Darrens gefur góð ráð

ÉG KOM DARREN CLARKE

Í GOTT FORM

Hér fór Gunnar holu í höggi árið 2004. Eitt fullkomið högg.

En það var ekkert vitni. Í 6 ár með upptökuvél og þolinmæðina

að vopni hefur Gunnar mætt reglulega á völlinn.

Nú vantar bara annað fullkomið högg.

ÞOLINMÆÐIBRUGGMEISTARA OKKAR SKILAR SÉR TIL ÞÍN.

2.25%A L C . V O L .A L C . V O L .2.25%

W O R L D ’ S B E S T S T A N D A R D L A G E R

O K K A R B J Ó R

Page 91: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is91

Hér fór Gunnar holu í höggi árið 2004. Eitt fullkomið högg.

En það var ekkert vitni. Í 6 ár með upptökuvél og þolinmæðina

að vopni hefur Gunnar mætt reglulega á völlinn.

Nú vantar bara annað fullkomið högg.

ÞOLINMÆÐIBRUGGMEISTARA OKKAR SKILAR SÉR TIL ÞÍN.

2.25%A L C . V O L .A L C . V O L .2.25%

W O R L D ’ S B E S T S T A N D A R D L A G E R

O K K A R B J Ó R

Page 92: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 93: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is93

Snillingur í stutta spilinu

DAVE PELZHann er fyrrum vísindamaður hjá NASA sem tapaði 22 sinnum fyrir

Jack Nicklaus. Núna er hann eftirsóttasti þjálfari í heimi fyrir þá sem vilja ná árangri í stutta spilinu.

Skólavist og sæti í golfliðinu í banda-rískum háskóla er fyrir marga fyrsta skrefið í átt að frægð og frama á

PGA, mótaröð bandarískra atvinnumanna í golfi. Ekki fyrir Dave Pelz. Hans fjögur ár í golfliði ríkisháskólans í Indiana voru mörkuð vonbrigðum. Tímasetningin var ekki heppileg, því um sama leyti og Pelz kom fram á sjónarsviðið í bandarísku

háskólagolfi, var Jack nokkur Nicklaus einnig að marka sér sess; Pelz spilaði

gegn Nicklaus í tuttugu og tvö skipti og laut alltaf í lægra haldi.Pelz var reyndar ágætis kylfingur, en

útreiðin

sem hann fékk hjá Nicklaus sannfærði hann um að það væri skynsamlegra að undir-byggja starfsferil í flugvélaverkfræði en að vonast eftir föstu sæti á PGA mótaröðinni. Þannig fór að snemma á sjöunda áratugnum, eftir að hafa útskrifast með gráðu í eðlis-fræði, endaði Pelz í vinnu hjá Goddard geimrannsóknarstöðinni, að rannsaka loft-hjúpinn á jörðinni og öðrum plánetum fyrir NASA, Geimvísindastofnun Bandaríkjanna.Vitandi þennan bakgrunn þá gæti maður haldið að tækifærið til að beita vísindalegum vinnubrögðum á stutta spilið í golfi hafi hvatt Pelz til að feta sig í þá átt. Hið rétta er

hins vegar að hann neitaði að gefast upp í viðleitni sinni til að verða betri kylfingur. Pelz hætti hjá NASA árið 1976 og ákvað þá að hefja sínar rannsóknir á golfinu. Hann komst að því að um 65% allra högga í golfi voru slegin innan við 90 metra frá flötinni. Þessi niðurstaða varð síðan grunnurinn að nýjum starfsferli Pelz sem þjálfara í stutta spilinu. Þekking hans leiddi til samstarfs við kylfinga á borð við Phil Mickelson og Colin Montgomerie, útgáfu bókarinnar The Short Game Bible, og þróunar á einstökum pútter með tveimur hvítum hringjum sem hann seldi síðan til Oddisey Golf. Sá pútter

Page 94: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is94

varð síðan einn sá vinsælasti sem settur hafði verið á markaðinn.Pelz ræddi ferilinn og rannsóknir sínar við Tony Dear, blaðamann Golf World, sem heimsótti hann til Austin í Texas, þar sem Pelz er með æfingabúðir sínar.

Hvernig myndir þú lýsa þinni nálgun að golfkennslu?Dave Pelz: Margir golfkennarar leiðbeina nemendum sínum út frá því að þeir eigi að vera með eina sveiflu sem virkar á öll högg. Ég er ósammála því. Ég segi að það séu þrjár sveiflur eða þrír hlutar af leiknum sem útheimta mismunandi aðgerðir. Við erum með kraftmiklu sveifluna þegar við erum að reyna að koma boltanum eins langt og við getum. Við erum með stutta spilið þar sem allt gengur út á að stjórna lengdinni sem boltinn fer í hvert skipti, og síðan erum við með púttstrokuna sem útheimtir nánast engan kraft. Mismunandi kröfur þýða ólíkar aðferðir.

Hvaðan koma áhrifavaldar þínir?DP: Eðlisfræðikennarinn minn í Indiana sagði mér að ef ég vildi þoka einhverjum fræðum áfram, þá ætti ég ekki að lesa kennslubækurnar, heldur hugsa sjálfstætt og láta ekki kreddur og venjur hafa áhrif á mig. Mínar aðferðir grundvallast auðvitað á vísindalegri hugsun og aðferðafræði, en líka á tilraunum; á þessu byggjast mínar kennsluaðferðir.

Er stutta spilið flókið – og ertu kannski ennþá að uppgötva nýja hluti?DP: Sveiflan í stutta spilinu er mun auð-veldari en í kraftmiklum höggum. Maður þarf ekki eins mikinn liðleika eða styrk til að slá högg með fleygjárni eins og með drífara. Á hinn bóginn eru höggin mun fjölbreytt-ari, þannig að þótt kröfurnar beinist ekki að líkamlegri getu, þá þarf hugmyndaflugið og hugsunin á bak við höggin að vera í lagi. Hitt svarið er já, ég er ennþá að læra eitthvað nýtt, því þessi grein kemur manni alltaf á óvart. Ég er orðinn 74 ára gamall og er nánast á hverjum degi að uppgötva nýja hluti um stutta spilið.

Hvað er það nýjasta?DP: Núna er ég að reyna að þróa tækni til að slá mjög stutt högg með miklum spuna. Ég er ekki búinn að ná þessu ennþá, en færist nær takmarkinu með hverjum degi sem líður.

Hvað er það mikilvægasta í stutta spilinu?DP: Vel útfærð sveifla með 8-járni leiðir venjulega til þess að maður slær gott högg með 8-járni. Í stutta spilinu getur þú slegið höggið nákvæmlega eins og þú ætlaðir, en ef þú klikkar á því að meta rétt legu boltans, eða lendingarstaðinn á flötinni til dæmis, þá er allt eins mögulegt að höggið verði lélegt. Þú verður að æfa þessa hluti; hvernig boltinn

bregst við á flötinni, högg frá mismunandi legum, mismunandi boltaflug...

Hver er versta klisjan í golfkennslu?DP: Ég held að hugmyndin um „góðar hendur“ sé stórlega ofmetin. Ef fólk sér kylfing sem er góður í stutta spilinu; kylfing eins og Phil Mickelson eða Seve Balleste-ros, þá er alltaf talað um að þeir hafi góðar hendur. En meðalskussar í golfi eru með sveiflu sem byggist allt of mikið á hreyfingu handanna og verða þess vegna aldrei góðir í stutta spilinu.

Hvaðan kemur þetta sem kylfingar kalla tilfinningu?DP: Góð tilfinning fyrir höggum kemur að stórum hluta frá því að kenna heilanum hvað muni gerast, áður en það gerist, og líka frá því að losa sig við miklar hreyfingar handanna. Adrenalínið í líkömum okkar hefur áhrif á hendur og fingur í sveiflunni og verður þannig að breytu sem afar erfitt er að hafa stjórn á. Til að þróa tilfinningu þarftu

að æfa höggin nógu oft til að vita hvað muni gerast. Það getur þýtt að maður slái eitthvað högg 20 þúsund sinnum. Sumir fá þessa tilfinningu í vöggugjöf og hafa minna fyrir þessu, en í öllum tilvikum útheimtir það mikla vinnu að öðlast góða tilfinningu.

Hversu mikilvægt er að beita öllum líkamanum í stutta spilinu?DP: Það er ekki eins mikilvægt og í fullri sveiflu, en þó mikilvægara en margir telja. Fyrir hundrað metra högg er mikilvægt að samhæfa snúning handa og skrokks; þetta högg er ekki framkvæmt með höndunum einum.

Er eitthvað eitt sem er öðru fremur mikilvægt fyrir stutta spilið?DP: Að hafa hæfileikann til að taka réttu æfingasveifluna fyrir viðkomandi högg, og geta síðan endurtekið þá sveiflu þegar mikið liggur við.

Page 95: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 96: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is96

PÚTTIN.Luke Donald.

Hann nær hvað bestum árangri viku eftir viku og það hefur hjálpað honum að viðhalda stöðu sinni nálægt toppnum, þótt hann hafi verið að breyta sveiflunni hjá sér og hafi þess vegna ekki slegið boltann eins vel og áður. Við getum öll lært af Luke; hann er aldrei að drífa sig að pútta. Sjáið hvernig hann stillir sér upp á ákveðinn og einbeittan hátt. Hann undirbýr sig alltaf eins og það ferli er einfalt og þægilegt. Áhugamenn eru sjaldnast með ferli sem þeir endurtaka; stundum horfa þeir einu sinni á línuna, stundum sex sinnum. Luke gerir þetta alltaf eins og það framkallar stöðuga púttstroku sem skilar honum árangri. Hann er góður í að lesa brot og ákveða hraðann á púttinu. Þetta er nokkuð sem áhugamenn verða að æfa og framkalla; koma boltanum á þann hraða sem er réttur fyrir línuna sem þeir hafa ákveðið.

GLOMPUHÖGGBrett Rumford

Brett hefur hæfileikann til að fá nákvæmlega þá snertingu sem hann kýs og láta boltann springa upp úr sandinum með nákvæmni og stjórn. Hann stillir sér upp þannig að hann „sest“ á vinstra hnéð – það snýr í áttina að skotmarkinu og beygist út. Sveifla Bretts snýst í kringum vinstra hnéð, rétt eins og Seve gerði alltaf. Hann slær líka boltann með opnum kylfuhaus, eins og aðrir kylfingar sem eru frábærir í þessum höggum. Þeir opna kylfuna, taka gripið, og opna hana svo enn meira með snúningi handanna. Ef þú getur gert það, þá notar þú botninn á kylfuhausnum á réttan hátt og höggin verða betri.

VIPPSteve Stricker

Flestir myndu horfa á Phil Mickelson fyrir þessi högg. En þótt hann geti framkallað ótrúleg högg með fley-gjárni, þá er erfitt fyrir áhugamenn að tileinka sér aðferð hans. Mickelson beygir úlnliðina mikið og viðheldur þeirri hreyfingu og það er ekki auðvelt að endurtaka. Ég myndi frekar horfa á kylfing eins og Steve Stricker. Hann beitir úlnliðunum lítið og fyrir áhugamenn er það öruggasta aðferðin til að slá svona högg. Handleggir hans og efri hluti líkamans vinna vel saman; það er næstum því eins og hann sé með fótbolta milli handleggjanna – þeir hreyfast nánast ekki neitt og hann bara snýr fram og til baka. Hraðinn á þessum snúningi, frekar en staða úlnliðanna, ræður lengd höggsins og þessi aðferð er auðveldari til að ná stöðugleika.

FLEYGHÖGGZack Johnson

Zack Johnson vann sinn risatitil á Augusta vellinum vegna þess hversu góður hann var af hundrað metra færi. Hann er með sterkt grip og rétt eins og Stricker notar hann hendurnar ekki mikið; nokkuð sem ég er afar hrifinn af. Sveifla Johnsons ræðst af snúningi líkamans; grip hans er sterkt, hann tekur baksveifluna og fer svo vel í gegnum höggið. Þetta er sveifla sem markast af snúningi skrokksins, ekki hreyfingum handa og úlnliða. Zack þarf ekki að „redda“ högginu með höndunum, því líkaminn sér um að stjórna kylfublaðinu, og þetta gefur honum mikinn stöðugleika, ekki síst í lengdarstjórnun. Þetta útheimtir þjálfun, en ef þú horfir á sveifluna hjá Zach og skilur þetta með „hæglátu hendurnar“, þá mun það koma fram í aukinni nákvæmni og betri lengdarstjórn.

Hver er bestur?Einn þekktasti golfkennari heims, David Leadbetter fjallar um

þá kylfinga sem eru að hans mati bestir í kringum flatirnar.

Pelz og Phil Mickelson hafa unnið vel saman.

Pelz og Phil Mickel-son saman á Opna

breska.

Hvaða galla sérðu á stutta spilinu meðal bestu kylfinganna?DP: Atvinnumenn æfa það mikið að þeir komast upp með að gera smávægileg tæknimistök. Sumir þeirra eiga stundum í erfiðleikum með að slá höggin nákvæmlega eins og þeir ætla sér, til dæmis hvað varðar spunann sem þeir ætla að setja á boltann.

Nefndu mér hæfileikaríkasta kylfing-inn sem þú hefur unnið með?DP: Nú heldur þú kannski að ég muni nefna Phil Mickelson. Ég ætla hins vegar að nefna Gary Hallberg eða Tom Purtzer. Phil er vissu-lega með óhemju mikla hæfileika, en Gary og Tom voru honum fremri, og hefðu sennilega getað verið í fremstu röð í hvaða íþrótt sem var. Þeir bjuggu yfir þvílíkum hæfileikum þegar þeir voru ungir að þeir þurftu í raun aldrei að þróa tæknina eða leggja að sér í þjálfun svo þeir næðu langt. Hefðu þeir virkilega gert það, þá hefðu þeir getað orðið í fremstu röð kylfinga – mögulega þeir bestu. Á hinum endanum er Tom Kite, sem var ekki með sömu meðfæddu hæfileikana í íþróttum. Hann braust áfram af eigin rammleik, gafst aldrei upp, og ávann sér sæti í Frægðarhöll golfsins.

Af þeim kylfingum sem þú hefur unnið með, hver er, eða var, sá besti í stutta spilinu?DP: Það er Mickelson. Hann er með bestu tilfinninguna fyrir þessum höggum og getur slegið þau öll þegar mikið liggur við, án nokkurs ótta við afleiðingarnar. Hann er afar vinnusamur og hefur jákvæða afstöðu. Mic-kelson er einfaldlega snillingur í stutta spilinu því hann hefur ræktað hæfileika sína svo vel.

Eru til þjálfunaraðgerðir í stutta spilinu sem þú ert algerlega ósammála?DP: Já, algjörlega. Nefnum dæmi: Phil beygir til dæmis úlnliðina snemma í baksveiflunni og heldur kylfuhausnum opnum í gegnum höggið. Steve Stricker beygir úlnliðina mun minna fyrir sömu tegund af höggi. Þeir eru báðir afar góðir í stutta spilinu. Paul Azinger og aðrir sem eru með óvenjuleg grip hafa þróað sínar eigin aðferðir og náð langt. Þann-ig að við höfum þurft að þjálfa hvern kylfing út frá hans eigin forsendum, líkamsbyggingu og nálgun. Það er hægt að sveifla fleygjárni á fleiri en einn hátt, þannig að ég er algerlega ósammála þeim sem segja að allir eigi að gera eins.

Page 97: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Ömmur eru dýrmætustu manneskjur í lífi hvers manns. Stundum er eins og þær komi úr einhverjum öðrum tíma með alla sína visku og hlýju. Þær lauma til manns súkkulaðimolum þegar pabbi sér ekki til. Þær skamma mann af umhyggju. Það er eins og þær bíði við símann eftir því þegar maður hringir og þarf að létta á sér.Ömmur eiga að búa við öryggi.

Öryggishnappur securitas - Hnappur sem getur bjargað þínu lífi og þinna nánustu.

Page 98: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is98

Meira en 7000 íslendingar á aldrinum 2ja til 98 ára hafa kynnst golfi í gegnum SNAG.

Allt frá byrjendum til afreksfólks í golfi hafa fundið leiðir til að bæta golftækni sína og hugarfar með SNAG. Fyrsta SNAG leið-beinendanámskeiðið á Íslandi var haldið í mars 2013. Síðan þá hafa rúmlega 80 manns á aldrinum 14-78 ára lært að kenna golf með SNAG kennslufræði.

Hvað er SNAG ?Upphafið að SNAG var að golf hafði lengi talist sport hinna efnameiri og talið erfitt að læra og spila. Aðstæður og þjálfarar voru ekki aðgengileg öllum, annað hvort vegna staðsetningar eða kostnaðar. Með því að fjar-lægja þessar hindranir kom í ljós að námið getur verið auðvelt, skemmtilegt og aðgengi-legt fyrir fólk á öllum aldri og hvaða getustigi sem er. Markmiðið með SNAG er að færa golfþátttöku til fjöldans með golfnámi sem þarfnast lítils rýmis, er ódýrt og sérlega skemmtilegt að taka þátt í. Allir eiginleikar og smáatriði hefðbundins golfs voru hafðir með í þróun SNAG kennsluaðferðanna og búnaðarins sem er

skemmtilegur, litríkur og auðveldur í notkun. Hægt að kynna golfíþróttina bæði á golf-vellinum og utan hans og hægt að æfa og spila bæði úti sem inni. Hann hentar yngstu kynslóðinni og hinni eldri og er frábært kennslu- og námstæki. SNAG hefur víða fengið verðlaun, meðal annars frá evrópsku PGA samtökunum árið 2012 fyrir að vera frábærlega vel hönnuð hjálpartæki við golf-kennslu. Formaður þeirrar dómnefndar var Tony Bennett sem er yfirmaður menntunar-mála PGA í Evrópu og ein aðalstoð íslenska golfkennaraskólans.

SNAG á ÍslandiSNAG er í örum vexti úti um allan heim. Ísland er á meðal 20 landa í Evrópu þar sem unnið er að útbreiðslu golfsins með SNAG. Útfærslan er mismunandi eftir löndum en hér á landi er að mótast öflugt grasrótarstarf með áhugafólki um útbreiðslu golfíþróttar-innar. Þar tengjast golfkennarar, afreks- og áhugafólk í golfi og öðrum íþróttum, fagfólk í íþróttum, fólk úr menntakerfinu og fólk á öllum aldri sem hefur áhuga á hreyfingu í hinum ýmsum myndum.Áhugaverð þróun í útbreiðslu golfsins er að

Meira en 7000 íslendingar 2-98 ára hafa kynnst golfi í gegnum SNAG:

Snag að slá í gegn á Íslandi

Krakkar á Snag námskeiði í Hraunkoti hjá Björg-vini Sigurbergssyni.

Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er fyrsti skólinn á framhaldsskólastigi þar sem nemendur á íþróttabraut læra fagið Golf. Þau læra SNAG og venjulegt golf og eru bæði inni og úti.

Faszination Autopflege mit Markenprodukten von SONAXLassen Sie mehr Glanz in Ihr Leben!

Gerðu bílinn kláran fyrir veturinn með SONAX bón- og hreinsivörum

Glansþvottalögur

SONAX er margverlaunað bílhreinsimerki frá Þýskalandi. SONAX býður allt sem þarf: bón fyrir allar gerðir af lakki, felguhreinsi, dekkjahreinsi, sápur, svampa, vínyl- hreinsi, gluggahreinsi og fleiri hágæða hreinsivörur.

Page 99: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Faszination Autopflege mit Markenprodukten von SONAXLassen Sie mehr Glanz in Ihr Leben!

Gerðu bílinn kláran fyrir veturinn með SONAX bón- og hreinsivörum

Glansþvottalögur

SONAX er margverlaunað bílhreinsimerki frá Þýskalandi. SONAX býður allt sem þarf: bón fyrir allar gerðir af lakki, felguhreinsi, dekkjahreinsi, sápur, svampa, vínyl- hreinsi, gluggahreinsi og fleiri hágæða hreinsivörur.

Page 100: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is100

eiga sér stað í þeim 30 sveitarfélögum sem SNAG er að festa rætur. Oft er samvinna á milli golfklúbbs, skóla og sveitarfélags sem stuðlar að samnýtingu búnaðar og kennslu fyrir mismunandi hópa í viðkomandi sam-félagi. Golfbúnaðurinn er þá oft staðsettur í íþróttahúsi staðarins svo auðvelt sé að nýta búnaðinn fyrir æfingar kylfinga, aldraðra, fatlaðra, leikskólabarna og fleiri hópa í samfélaginu auk notkunar í íþróttakennslu skólans.

SNAG - Hið nýja skólagolfÍ þeim skólum sem SNAG er komið inn í íþróttakennslu kynnast börnin golfi á skemmtilegan og öruggan hátt um leið og þau læra grunnhreyfingar golfsins. Þá kynn-ast börn golfi á sama máta og þau kynnast öðrum íþróttum í skólanum. Með SNAG búnaðinum geta þau einnig leikið sér á skóla-lóðinni eða í nánasta umhverfi sínu eins og þau leika sér í fótbolta eða öðrum íþróttum. Grunnþekking barnanna á golfi er því komin á sama tíma og grunnþekking þeirra á öðrum íþróttum. Þetta leiðir til þess að golfið verður fyrr valmöguleiki fleiri barna þegar þau velja sér íþrótt til að stunda.

„Mitt mat er það að SNAG búnaðirinn er framúrskarandi vel hannaður og hugsaður til að gera golf að hættulausum og stór-skemmtilegum leik fyrir börn ásamt því að kenna undirstöðuatriðin í alvöru golfi. Ásamt því sem búnaðinum fylgja mislitar keilur sem hægt er að útbúa golfbrautir úr og um leið kenna reglurnar“.

„SNAG bætti ekki bara golfkennsluna hjá mér heldur bætti þetta líka vipp tæknina hjá mér persónulega“.

„Búnaðurinn er sérlega handhægur og vandaður í alla staði. Kennarinn er fljótur að setja upp þau verkefni sem ætlað er að fara í og fljótur að taka saman og ganga frá að tíma loknum“.

„Krakkarnir urðu strax agaðri og tileinkuðu sér fljótar góða tækni“.

„Okkur í golfklúbbnum hérna datt ekki í hug að við gætum verið með golfæfingar yfir vetrartímann fyrr en við kynntumst SNAG“.

„Þetta er miklu skemmtilegra en ég hélt og ég þarf ekki einu sinni að fara út á golfvöll til að æfa mig“.

„Rútínan mín er orðin miklu markvissari vegna þess að ég skil mikið betur til hvers ég er að nota hana“.

„Ég lagði mikla áherslu á að tala við börnin í fáum og skýrum orðum og vera alltaf í

augnhæð við þau við kennslu. Góður agi er öryggismál og því þarf að gæta að því sleppa þeim aldrei lausum með kylfurnar heldur alltaf að láta þau leggja þær inní hringinn að höggi loknu“.

„Er búin að vera með fólk á öllum aldri og líka barn með á einhverfurófi. Þetta hentar öllum, góð samhæfing huga og handar hjá eldri borgurum og börnum með ADHD“.

„Það er einfaldara að kenna grunnat-riði golfsins, s.s. grip, uppstillingu og mið í SNAGi heldur en í venjulegum búnaði“.

„Það er auðveldara fyrir nemandann að fara inn í endurtekningarferli sem festir hlutina sem hann var að læra, grip, uppstillingu og mið“.

„Stutta spilið mitt er orðið einfalt eftir að ég lærði SNAG“.

SNAG leiðbeinendur hafa meðal annars kennt golf í leikskólum, íþróttakennslu í grunnskólum, valáföngum á unglingastigi og sem íþróttagrein á framhaldsskólastigi. Þeir miðla þekkingu og reynslu sín á milli og til nýrra leiðbeinenda í tengslaneti SNAG leið-beinenda. Hissa ehf. hefur leitt þróunina með SNAG leiðbeinendunum og þeim stofnunum

sem þeir tilheyra í samvinnu við Golfsam-bandið, Kylfing, Golfklúbbinn Keili og golf-kennaraskólann.

Hægt er að fá meiri upplýsingar um SNAG á Íslandi á heimasíðunni www.snaggolf.is og á Facebook síðunni „SNAG golf Island.“

UMMÆLI UM SNAG:

Verðandi Snag leiðbeinendur námskeiði hjá Magnúsi Birgissyni í Hraunkoti.

Eldri borgarar geta farið í Snag á elliheimilunum.

Page 101: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Verslanir á Laugavegi 182 og í Smáralind · sími 512 1300 · epli.is

Studio 2.0

Verð frá ..-Njóttu tónlistarinnar í ró og næði með ANC tækninni (Adaptive Noise Canceling) frá Beats. Þegar þú hlustar á tónlist þá útilokar ANC-tæknin umhverfishljóð eftir mismunandi hávaða og aðstæðum í umhverfinu.

Litir °°°°

Solo2

Verð ..-Solo2 heyrnartólin eru kraftmikil, tær og færa þig nær þeim gæðum sem tónlistarmaðurinn vill að þú upplifir.

Litir °°

UrBeats

Verð ..-UrBeats In-Ear heyrnartól, fást í iPhone litunum.

Litir °°°

Page 102: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is102

UNG OG EFNILEG

Kinga Korpak

Staðreyndir:Nafn: Kinga Korpak.Aldur: Verð 11 ára í desember.Klúbbur: GS.Forgjöf: 11,4.Uppáhalds matur: Pizza.Uppáhalds drykkur: Jarðarberjasafi.Uppáhalds kylfa: 6 járnið mitt.Ég hlusta á: Ed Sheeran og meira.Besta skor: 80 á Leirunni.Rory eða Tiger: Rory.PGA eða Evrópumótaröðin: Evrópu-mótaröðin.Besta blaðið: Golf á Íslandi.Besta bókin: Harry Potter og blendings-prinsinn.Besta bíómyndin: Hobbit.Hvað óttastu mest í golfinu: Ég er ekki hrædd við neitt.Evrópu- eða PGA-mótaröðin: Evrópumótaröðin.Besta bókin: Egils Saga.Besta bíómyndin: Shawshank Redemption.Hvað óttastu mest í golfinu? Slá „out of bounds.“

Golfpokinn:Dræver: Cobra.Brautartré: Titleist.Járn: Mizuno.Fleygjárn: MD.Pútter: Mizuno.Hanski: Foot-Joy.Skór: Ecco.Bolti: Titleist.

„ÉG ÆTLA AÐ BÆTA ALLT SAMAN Í MÍNUM LEIK“

Hver er ástæðan fyrir að þú hófst að leika golf?„Zuzanna systir mín byrjaði á undan mér og mig langaði bara að prófa þetta og vera með.“

Hvað er það sem heillar þig við golf?„Mér finnst mjög spennandi að spila.“

Hverjir eru þínir framtíðardraumar í golfinu?„Ég stefni á að komast í golfháskóla úti í Bandaríkjunum.“

Hefur þú bætt þig mikið í golfinu á undanförnum árum?„Já, frekar mikið.“

Hver er þinn helsti kostur og galli í golfinu og hvers vegna?„Ég er mjög góð í að pútta en ég er ekki jafn góð að slá.“

Hvað ætlar þú að bæta í þínum leik fyrir næsta sumar?„Ég ætla að bæta allt saman í mínum leik.“

Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir úr golfi?„Þegar ég vippaði af mjög löngu færi á 2. holu í Leirunni.“

Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?„Þegar ég sló út af vellinum í öðru höggi á fyrstu holunni á Íslandsmótinu í höggleik á Hellu í sumar.“

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju?„Rory Mcllroy, þegar ég sá hann fyrst var

hann að vinna í einhverju stórmóti og ég ákvað að verða jafn góð og hann.“

Í hvaða skóla ertu og hvernig gengur í náminu?„Ég er í Holtaskóla og mér gengur mjög vel í náminu.“

Hvað æfir þú mikið yfir vetrartímann?„Ég æfi mig á hverjum degi.“

Hver er uppáhalds golfvöllurinn og hvers vegna?„Urriðavöllurinn hjá Golfklúbbnum Oddi, því að holurnar eru skemmtilegar og spenn-andi.“

Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sérstöku uppáhaldi hjá þér?„16. í Leirunni, 18. á Urriðavelli og 1. holan á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ.“

Hvaða golfhola á Íslandi er ekki í sérstöku uppáhaldi hjá þér?„4. í Leirunni og 10. á Urriðavelli.“

Hvaða fjórir kylfingar skipa draumaráshópinn að þér meðtöldum?„Rory McIlroy, Bubba Watson og Tiger Woods.“

Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf?„Hanga með vinum og teikna.“

Page 103: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 104: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is104

Hver er ástæðan fyrir að þú hófst að leika golf?„Ég veit það ekki alveg, enginn í fjöl-skyldunni spilaði golf þannig að þetta voru ekki áhrif frá fjölskyldunni eða vinum. Var í ferðalagi með mömmu minni þegar ég var 2-3 ára og þar sem við vorum var mini golfvöllur sem við gengum fram hjá honum nokkrum sinnum á dag. Alltaf þegar við gengum fram hjá honum byrjaði ég að væla vegna þess að mig langaði svo mikið að prófa. Mamma gafst upp einn daginn og leyfði mér að prófa þó að kylfan væri tvisvar sinnum stærri en ég. Ég mætti svo á mína fyrstu æfingu 6 ára og eftir það var ekki aftur snúið.“

Hvað er það sem heillar þig við golf?„Hversu krefjandi þessi íþrótt er, að það sé allt undir sjálfum þér komið, útiveran og ýmislegt fleira.“

Hverjir eru þínir framtíðardraumar í golfinu?„Þeir sömu og flestra held ég, fara í háskóla-golfið og reyna að komast eins langt og ég get.“

Hefur þú verið að bæta þig mikið í golfinu á undanförnum árum?„Já, alveg helling.“

Hver er þinn helsti kostur og galli í golfinu og hvers vegna?„Mínir helstu kostir eru líklega þeir að ég fæ mikið af fuglum og gefst ekki auðveldlega upp. Mínir helstu gallar eru að ég fæ allt of mikið af sprengjum og skapið getur eyðilagt, það hefur þó verið að batna mikið.“

Hvað ætlar þú að bæta í þínum leik fyrir næsta sumar?

„Reyni auðvitað að bæta allt, stefni á að verða mikið stöðugri, fækka lélegu högg-unum sem enda í vítum. Var með allt af mikið af skrömbum sem eyðilögðu annars mjög góða hringi þannig að ég stefni á að fækka þeim.“

Hvert er eftirminnilegasta atvikið sem þú manst eftir úr golfi?„Þegar ég fór holu í höggi í fyrsta skipti 2009 og að verða klúbbmeistari GA í sumar.“

Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?„Þegar ég var að keppa á stigamóti í Leir-dalnum 2011 lenti ég í því að fá 14 högg á 3. holuna. Tók örugglega svona 40 mínútur að spila þessa holu og hollið á undan mér ábyggilega komið á 6. holu þegar við komumst inn á flötina.“

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju?Tiger út af öllu sem hann hefur afrekað. Arnold Palmer og Jack Nicklaus út af öllu sem þeir hafa gert fyrir íþróttina. Adam Scott og Louis Oosthuizen af því að þeir eru með fallegustu sveiflur sem ég hef séð.“

Í hvaða skóla ertu og hvernig gengur í náminu?„MA, upp og niður bara.“

Hvað æfir þú mikið yfir vetrartímann?„Eins mikið og ég get, hef ekki verið nógu duglegur undanfarna tvo vetur en ætla að bæta mig í því í vetur.“

Hver er uppáhalds golfvöllurinn og hvers vegna?Af þeim sem ég hef spilað er Arcos Gardens í uppáhaldi, án efa flottasti völlur sem ég hef komið á. Líka skemmtilega krefjandi að

pútta á flötunum þar vegna þess að þar er bermúdagras. Af völlunum hér heima eru Oddurinn, Korpan og Jaðar í uppáhaldi, finnst þeir mjög flottir. Finnst breytingarnar á Korpunni og Jaðri hafa komið vel út og gert vellina skemmtilegri.“

Hvaða þrjár golfholur á Íslandi eru í sér-stöku uppáhaldi hjá þér?„Bergvíkin í Leirunni, 17. í Vestmannaeyjum og 18. á Hellishólum, skemmtileg risk/reward hola, hægt að reyna við grínið í teig-högginu eða leggja upp og eiga þá skemmti-legt pitch eftir.“

Hvaða golfhola á Íslandi er ekki í sérstöku uppáhaldi hjá þér?„3. holan í Leirdalnum, finnst hún ekki skemmtileg.“

Hvaða fjórir kylfingar skipa draumaráshópinn að þér meðtöldum?„Tumi Kúld, tattúið hans er ómótstæðilegt, Tiger og Bubba“

Hver eru helstu áhugamál fyrir utan golf?„Blak“

Staðreyndir: Nafn: Ævarr Freyr Birgisson.Aldur: 18.Klúbbur: GA.Forgjöf: 2,8.Uppáhalds matur: Pasta.Uppáhalds drykkur: Vatn.Uppáhalds kylfa: 54° gráðu fleygjárnið.Ég hlusta á: Allt sem mér finnst gott, Pink Floyd er uppáhalds.Besta skor: Í móti er það -1 (70 högg) á Jaðri.Rory McIlroy eða Tiger Woods?Tiger þegar honum gengur vel, annars Rory svona heilt yfir.Evrópu- eða PGA-mótaröðin?Finnst gaman að horfa á báðar og langar að komast á báðar. Get varla valið, þær eru svo ólíkar.Besta vefsíðan: Facebook, YouTube og Kylfingur.Besta blaðið: Golf á Íslandi.Besta bókin: Les ekki mikið en af þeim sem ég hef lesið er Hobbitinn ofarlega á þessum lista.Besta bíómyndin: Pulp Fiction.Hvað óttastu mest í golfinu?Veit það ekki alveg, líklega að klúðra góðum hringjum eða mótum á lokasprettinum.

Golfpokinn: Dræver: Titleist 913D2 9,5°Brautartré: Titleist 913F 15°Járn: Titleist 714 CB 3-5 járn, MB 7-9 járn.Fleygjárn: Vokey 48°, 54° og 60°.Pútter: Scotty Cameron Studio Select Newport 2.Hanski: FootJoy, Asher.Skór: Adidas Tour 360.Bolti: Titleist ProV1 eða ProV1x, fer eftir aðstæðum.

„KLÚBBMEISTARA-TITILLINN Í GA

EFTIRMINNILEGASTUR“

UNGUR OG EFNILEGUR

Ævarr Freyr Birgisson

Page 105: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

SILKISKORIÐ ÁLEGG FRÁ GOÐA– gott á brauðið, í salatið eða bara eitt og sér!

KJÚKLINGAÁLEGG REYKT SPÆGIPYLSA HUNANGSSKINKA

SKINKA

EN

NE

MM

/ S

IA •

NM

63

258

Page 106: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is106

EFNILEGUSTU KYLFINGARNIR 2014Karlaflokkur: Gísli Sveinbergsson GKKvennaflokkur: Ragnhildur Kristinsdóttir GR

ÁSKORENDA-MÓTARÖÐ ÍSLANDSBANKAPiltaflokkur, 17-18 ára:1. Guðjón Heiðar Ólafsson GK 2700.002.-3. Þorsteinn Orri Eyjólfsson GKJ 1500.002.-3. Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson GK 1500.00

Drengjaflokkur, 15-16 ára:1. Emil Árnason GKG 5100.002. Einar Sveinn Einarsson GS 4177.503. Arnar Gauti Arnarsson GK 4136.25

Telpnaflokkur, 15-16 ára:1. Freydís Eiríksdóttir GKG 1500.00

Strákaflokkur, 14 ára og yngri:1. Kristófer Tjörvi Einarsson GV 6412.502. Aron Emil Gunnarsson GOS 5407.503. Máni Páll Eiríksson GOS 4747.50

Stelpuflokkur, 14 ára og yngri:1. Sigrún Linda Baldursdóttir GKJ 7132.502. Thelma Björt Jónsdóttir GK 5077.503. Kristín Sól Guðmundsdóttir GKJ 4747.50

Uppskeruhátíð Golfsambands Íslands fór fram í lok septem-ber í höfuðstöðvum Íslandsbanka við Kirkjusand. Þar voru veittar viðurkenningar til keppenda á Íslandsbanka-

mótaröð unglinga, áskorendamótaröð unglinga og Eimskipsmóta-röðinni. Gísli Sveinbergsson úr GK og Ragnhildur Kristinsdóttir voru kjörinn efnilegustu kylfingarnir.Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands, fór lauslega yfir árangur íslenskra kylfinga á golfsumrinu 2014. Haukur sagði að vallarstarfsmenn golfklúbba landsins hafi unnið þrekvirki að koma golfvöllum landsins í gott ástand eftir hamfaravetur sem einkenndist af klakamyndun. Hann þakkaði samstarfsaðilum Golfsambandsins, golfklúbbum og kylfingum fyrir samstarfið á þessu ári.Haukur sagði að það væri sérstaklega ánægjulegt að Golfklúbbur Akureyrar sé kominn að fullu inní dagskrá sambandsins eftir langt hlé en keppt var bæði á Íslandsbankamótaröðinni og Eimskipsmóta-röðinni á Jaðarsvelli í sumar. Innkoma GA styrki starf GSÍ sem er samband klúbba frá öllu landinu. Forsetinn fór yfir helstu afrek ársins í stuttu máli og nefndi þar m.a. að piltalandsliðið tryggði sér áfram-haldandi stöðu í A-deild, Gísli Sveinbergsson sigraði á Duke of York mótinu, varð einnig í þriðja sæti á Opna finnska áhugamannamótinu og einnig á Brabant Open mótinu í Hollandi.

GÍSLI OG RAGNHILDUR KJÖRINN EFNILEGUST Á UPPSKERUHÁTÍÐ GSÍ

Gísli Sveinbergsson og Ragnhildur Kristinsdóttir.

Haukur Örn Birgisson, Kinga Korpak, Zuzanna Korpak og Hólmfríður Einarsdóttir.

Haukur Örn Birgisson, Signý Arnórsdóttir, Karen Guðnadóttir og Dagný Jónsdóttir markaðsfulltrúi Eimskips.

Page 107: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 108: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is108

ÍSLANDSBANKAMÓTARÖÐIN Piltaflokkur, 17-18 ára:1. Aron Snær Júlíusson GKG 7920.002. Kristófer Orri Þórðarson GKG 6776.253. Tumi Hrafn Kúld GA 5836.88 Stúlknaflokkur, 17-18 ára:1. Helga Kristín Einarsdóttir NK 8367.502. Ragnhildur Kristinsdóttir GR 6600.003. Birta Dís Jónsdóttir GHD 6181.25 Drengjaflokkur, 15-16 ára:1. Arnór Snær Guðmundsson GHD 6446.252. Kristján Benedikt Sveinsson GA 6362.503. Henning Darri Þórðarson GK 6275.00Kristján Benedikt og Arnór voru fjarverandi. Henning Darri er annar frá vinstri, og Ólöf María Einarsdóttir tók við verðlaunum fyrir hönd Arnórs. Telpnaflokkur, 15-16 ára:1. Ólöf María Einarsdóttir GHD 9165.002. Saga Traustadóttir GR 8565.003. Eva Karen Björnsdóttir GR 6165.00 Strákaflokkur, 14 ára og yngri:1. Ingvar Andri Magnússon GR 7922.502. Kristófer Karl Karlsson GKJ 6936.253. Sigurður Arnar Garðarsson GKG 6425.00 Stelpuflokkur, 14 ára og yngri:1. Kinga Korpak GS 8670.002. Zuzanna Korpak GS 8047.503. Andrea Ýr Ásmundsdóttir GA 7177.50

EIMSKIPSMÓTARÖÐINKarlaflokkur:1. Kristján Þór Einarsson GKJ 8910.672. Bjarki Pétursson GB 6013.753. Gísli Sveinbergsson GK 5669.17 Kvennaflokkur:1. Karen Guðnadóttir GS 7668.502. Signý Arnórsdóttir GK 6361.003. Sunna Víðisdóttir GR 6257.50

JÚLÍUSARBIKARINN, Lægsta meðalskor á Eimskipsmótaröðinni 2014 Kristján Þór Einarsson GKj 71,37 högg

STIGAMEISTARAR KLÚBBA 2014 Karlaflokkur:Golfklúbbur Reykjavíkur Kvennaflokkur:Golfklúbburinn Keilir

STIGAMEISTARI KLÚBBA UNGLINGAFLOKKAR Golfklúbbur Reykjavíkur

STIGAMEISTARAR LEK Kvennaflokkur: Ásgerður Sverrisdóttir, GRKarlaflokkur: Jón Haukur Guðlaugsson, GR

Arnar Atlason formaður Keilis afhenti Júlíusarbikarinn en Einar Páll Einarsson faðir Kristjáns Þórs tók við bikarnum.

Haukur Örn Birgisson, Kristófer Karl Karlsson, Ingvar Andri Magnússon og Hólmfríður Einarsdóttir.

Haukur Örn Birgisson, Aron Emil Gunnarsson, Kristófer Tjörvi Einarsson, Máni Páll Eiríksson og Hólmfríður Einarsdóttir.

Haukur Örn Helga Kristín Karen Aron Snær Ingvar Andri Ólöf María, Kinga Korpak, Sigrún Linda og Kristófer Tjörvi.

Haukur Örn, Ragnhildur Kristinsdóttir, Helga Kristín Einarsdóttir og Ólöf María Einarsdóttir og Hólmfríður Einarsdóttir.

Haukur Örn Birgisson, Thelma Björt Jónsdóttir, Sigrún Linda Baldursdóttir, Kristín Sól Guðmundsdóttir og Hólmfríður Einarsdóttir.

Page 109: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 110: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is110

KYLFINGUR ÁRSINS

RORY SÁ BESTI ÁRIÐ 2014ÁRIÐ 2014 BYRJAÐI EKKI VEL FYRIR RORY MCILROY, EN ÞEGAR ÞVÍ LAUK VAR

HANN Í GÓÐUM MÁLUM, EINS OG HANN REKUR Í ÞESSU VIÐTALI.

Árið 2014 hjá Rory: 310,5 Meðallengd teighögga, 59,93 Hlutfall teighögga sem lenda á braut, 68,82 Meðal skor, það lægsta á PGA mótaröðinni, 69.44 Hlutfall af flötum í tilskyldum höggafjölda (GIR) 293 Fuglar sem McIlroy fékk á PGA mótaröðinni, 436 Lengsta teighögg Rorys, á Opna skoska meistaramótinu, 63 Lægsta skor hans, á Me-morial mótinu, 296,1 Meðallengd boltaflugsins með „dræver“, 179,73 Hraðinn á boltanum (í mílum), þriðji mesti hraðinn á mótaröðinni, 15 milljónir dollara: Verð-launafé Rorys árið 2014 20 milljón dollarar: Það sem hann þénaði annars staðar en á vellinum, samkvæmt Forbes tímaritinu.

Þúsundir áhorfenda voru við Tower brúna í London þegar borgar-stjórinn, Boris Johnson, klúðraði

golfhöggi, einn daginn í september, vikuna áður en Ryder keppnin hófst. Við hlið hans stóð ungur maður frá Ulster með breitt bros á andlitinu; glaðlegur þátttakandi í kynningarátaki – fyrir löngu orðinn eitt af þekktustu andlitum golfheimsins.

Rory McIlroy...Lionel Messi golfsins?„Ég þarf tíu ár eins og það sem er að líða núna,“ sagði kylfingurinn sem búinn er að sigra á fjórum risamótum. Spurningunni var varpað fram í léttum tón og svarið var á sömu nótum. En ótrúleg velgengni McIlroys í sumar hefur þaggað niður í hörðustu gagn-rýnendum hans.„Ég hélt að sigurinn á Opna breska myndi hjálpa mér að komast á hærri stall í íþrótt-inni,“ sagði McIlroy eftir frammistöðu sína á Hoylake og Valhalla, og Firestone, þar sem hann sigraði á Bridgestone Invitational. „Ég var þokkalega ánægður með tvo risatitla í safninu þegar árið byrjaði, en núna er ég kominn með fjóra slíka og stefni á Alslemm-una á Augusta. Ég bjóst aldrei við að vera búinn að ná þessum árangri á mínum aldri, en þetta hefur gengið vel og ég gæti auðvitað ekki verið ánægðari með hvar ég er staddur með golfið mitt.“

McIlroy tókst ekki að komast framúr Billy Horschel og vinna Tour Championship titilinn og tíu milljón dollara verðlaunaféð en hann er hins vegar handhafi Rauðvíns-könnunar, Wanamaker bikarsins, Gary Player verðlaunanna að ógleymdu toppsæti á Evrópumótaröðinni, Race to Duabai, og það sýnir þroska þessa 25 ára gamla kylfings. „Golfið er einfaldlega í fyrsta sæti hjá mér; allt annað er í aukahlutverki,“ segir McIlroy, sem komst aftur á topp heimslistans eftir sigurinn á WGC mótinu í Akron í Ohio. „Ég er búinn að leggja hart að mér, en mér hefur tekist að einbeita mér betur og það virðist hafa skilað sér.“Fyrsti sigur kappans á þessu ári kom á BMW meistaramótinu í maí. En árið byrjaði ekki vel og hann var gagnrýndur fyrir að vera ekki nógu einbeittur í golfinu. Hann stóð í málaferlum, skipti um kylfur og sambands-slit hans við Caroline Wozniacki fóru ekki framhjá neinum sem kunni að lesa. Bjartasta von golfsins þurfti að svara gagnrýni á hverjum einasta blaðamannafundi. En þegar sólin var að setjast í Louisville í Kentucky, þá tókst engum eða neinu – ekki einu sinni úrhellis rigningu – að koma í veg fyrir enn eitt töfrandi augnablik McIlroys. Hann stóð að lokum uppi sem sigurvegari, eftir erfitt mót og erfiða mánuði þar á undan.„Að ná svona árangri við erfiðar aðstæður

er það skemmtilegasta,“ segir McIlroy, þegar hann rifjar upp lokahringinn á Valhalla, þar sem rigningin gerði honum erfitt fyrir, svo ekki sé minnst á samkeppnina frá Phil Mic-kelson og Rickie Fowler. „Það skipti máli að sigra á þennan hátt, því það segir mér að ég geti það: ég veit að ég get náð keppinautum mínum, spilað með þeim bestu í heimi þegar risatitill er undir, og sigrað. Phil Mickelson er einn af bestu kylfingum sinnar kynslóðar og það að hafa sigrað hann á sunnudagseftir-miðdegi er gott að hafa í minningunni.“McIlroy er alinn upp í litlum bæ á Norður Írlandi og fékk tækifærið þar til að rækta hæfileika sem snemma komu í ljós. Þessi reynsla hefur fært McIlroy getuna til að horfa raunsætt á stöðu sína og gera sjálfur breytingar; nokkuð sem hefur skipt höfuð-máli undanfarin misseri. Hann hefur per-sónuleikann til að læra af mistökum sínum og snúa neikvæðum atburðum upp í eitthvað sem hann lærir af. McIlroy er búinn að gera sér grein fyrir því að sigurvegarar bíða ekki eftir tækifærinu til að ná á toppinn; þeir grípa það einfaldlega.

Ekki hugsa of mikið um efsta sætið„Með því að verða efsti maður heimslistans hef ég lært að hugsa ekki of mikið um það,“ segir McIlroy, sem varð fyrsti evrópski kylfingurinn til að sigra á þremur risamótum

Page 111: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 112: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is112

eftir að hafa hampað Rauðvínskönnunni. „Ég þarf ekki að hugsa um að í hverju móti sé ég að verja sætið. Það er vissulega heiður að vera í efsta sæti styrkleikalistans, en maður þarf bara að hugsa um að spila eins vel og maður getur, ekki að einblína á röðina á þessum lista.“McIlroy hefur einstakan hæfileika til að láta afrek líta út eins og daglegt brauð á golfvell-inum og menn taka eftir því sjálfsöryggi sem einkennir framkomu hans. Jack Nicklaus nefndi þetta í sumar. „He´s cocky in a nice way,“ sagði Jack, og náði þannig fullkomlega að grípa áruna í kringum McIlroy.Rory segist sjálfur trúa því að metnaður hans og einbeiting geti einn daginn komið honum á sama stall og Nicklaus og Tiger Woods. McIlroy er núna skör neðar; hann er þriðji yngsti kylfingurinn til að sigra á þremur af fjórum risamótum golfsins. Þeir tveir sem voru yngri eru einmitt Nicklaus og Woods. „Ég vonast auðvitað til að komast upp að hlið þeirra,“ segir hann. „Ég er aftur búinn að finna ástríðuna í íþróttinni; hún minnkaði svosem ekkert mikið, en þetta er ég að hugsa um þegar ég vakna á morgnana og ég fer að sofa á kvöldin.“Þegar hann lyfti Rauðvínskönn-unni á Hoylake í sumar, þá varð McIlroy litið á nöfnin sem búið er að grafa í silfur á elsta verðlauna-gripinn í golfi – Watson, Hagen, Player, Hogan, Nicklaus, Woods, Faldo, Ballesteros og mörg fleiri. McIlroy – sem bar höfuð og herðar yfir aðra kylfinga á Royal Liverpool vellinum – gæti risið hærra og náð lengra.„Þetta er alltaf erfitt,“ segir McIlroy, sem leyfir manni aldrei að gleyma því að innst inni er hann hógvær. „Maður reynir sitt ítrasta, en á sama tíma reynir maður líka að láta líta út fyrir að þetta sé ekki mjög erfitt.“McIlroy segir að leikagi hans á Opna breska hafi sprottið upp úr tveimur lykilhug-myndum sem hann var með í kollinum allt mótið, „skipulag“ og „punktur“. „Þetta var ekki flókið,“ segir hann. „En þetta var málið fyrir mig. Úti á vellinum vildi ég halda mér við skipulagið – hvernig ég lék holurna, og reyndi að hugsa ekki um úrslitin. ´Punktur´ var fyrir mér bara punktur á flötinni sem ég vildi láta boltann rúlla yfir á leiðinni í holuna. Ég var reyndar ekkert að hugsa um að setja púttið niður, hverju það myndi skila mér; ég vildi bara koma boltanum yfir þennan punkt. Ef hann fór í holu, þá fínt. Ef ekki, þá reyndi ég bara aftur.“

McIlroy komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Muirfield í fyrra, en trúir því að ný afstaða hans til leiksins skýri betra gengi hans í ár. „Haltu áfram að gera það sem þú gerir vel,“ segir hann.En aukið sjálfsöryggi skilar sér á ýmsan hátt, til dæmis í betri teighöggum. Meðallengd teighögga McIlroys í ár er 310,5 jardar, sem er svipað því sem hann sló á leiktíðinni 2012, þegar hann sigraði fjórum sinnum; þar á meðal á PGA meistaramótinu á Kiawah Island vellinum.„Því lengri sem kylfan er, því erfiðara er að slá vel með henni,“ segir McIlroy, sem er í þriðja sæti hvað högglengd af teig varðar, á eftir þeim Bubba Watson og Dustin Johnson. „Þannig að ef ég er að slá vel með erfiðustu kylfunni í pokanum, þá ættu hinar kylfurnar að láta þokkalega að stjórn.“ „Þegar ég slæ vel af teig, þá er ég alltaf að koma mér í stöðu til að slá á pinnann og búa til fuglafæri. Þetta hefur áhrif á allt golfið hjá mér, þannig að ef drífarinn er að virka, þá er líklegra að allt

hitt sé að virka vel líka.“

Í sínu besta formiFrammistaða hans á mótum að undanförnu og aukið sjálfsöryggi gefa til kynna að McIlroy sé um þessar mundir í sínu besta formi. „Þetta er mun betra,“ segir hann, þegar hann miðar núverandi form við það sem hann var í árið 2012, þegar hann var efstur á peninga-listum beggja vegna Atlants-hafsins. „Ég hef betri stjórn á

boltanum og flugi hans; ég er líka einbeittari úti á velli.“ Einbeiting og form McIlroys er ekki síst Michael Bannon að þakka – manninum sem segja má að hafi þjálfað McIlroy frá því hann var lítill patti í úthverfum Austur-Belfast. „Okkar samband hefur auðvitað þróast og breyst á undanförnum árum,“ segir McIlroy. „Ég er orðinn eldri og reyndari, þannig að við eyðum ekki eins miklum tíma saman og við gerðum. En ég er stundum að hugsa um einhver smáatriði í sveiflunni og þá tala ég við hann; reyndar ekki bara um golf-sveifluna, því Michael þekkir golfið út og inn og við tölum oft saman um leikskipulag, ákveðin högg fyrir ákveðnar aðstæður og slíkt, og þannig hefur okkar samband breyst í áranna rás.“McIlroy hefur þroskast sem kylfingur á undanförnum árum og geislar af sjálfsöryggi. En hvað með árið í fyrra, þegar naumur sigur á Opna ástralska meistaramótinu var sá eini

ÁLITIÐÞað sem bestu kylfingar heims segja um mann-inn á toppnum

Tiger Woods: Þegar hann kemst af stað þá virkilega fer hann í gang. Þegar illa gengur, þá gengur virkilega illa. Það er ýmist

í ökkla eða eyra, rétt eins og hjá Phil. Svona spilar hann einfaldlega golf.

Graeme McDowellRory sigrar með brautar-höggum. Eftir 340 metra teighögg á miðja braut, þá er

auðvelt að klára dæmið. Tiger gat klárað þetta úr erfiðum aðstæðu, og kannski á Rory eftir að sanna að hann geti það líka. Hann er með nægt sjálfsöryggi og það sést einfaldlega á því að ef hann byrjar illa, eða klúðrar einni eða tveimur holum, þá getur hann fengið fugl eða örn á þá næstu.

Jack NicklausRory býr yfir ótrúlegum hæfileikum. Ég held mikið upp á sveifluna hans, taktinn

og hvernig hann nálgast íþróttina. Hann er sjálfsöruggur og næstum því svolítið montinn, en hann fer vel með það. Svona sjálfsöryggi er gott að sjá í ungum manni. Hann er með ótrúlega hraða sveiflu og slær boltann feykilangt, en þó með miklu öryggi.

Gary PlayerEf Rory er ánægður og heldur heilsu, þá verður hann næsti maður til að

vinna öll risamótin. Ég sagði við hann eftir fyrsta risatitilinn að ég hefði óbilandi trú á honum. Ég tók Alslemm-una þegar ég var 29 ára gamall, þegar ég sigraði á Opna bandaríska meistara-mótinu árið 1965. Á næsta ári verða fimmtíu ár liðin frá því og það væri mjög gaman að sjá Rory klára sína Alslemmu á sama ári og ég fagna þessum áfanga.

Page 113: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014
Page 114: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is114

á leiktíðinni? McIlroy segir að hann hafi aldrei efast um eigin getu. „Nei, aldrei,“ segir hann. „Ég veit að sú vinna sem ég er búinn að leggja í sveifluna mína á eftir að skila mér árangri allan þann tíma sem ég verð atvinnukylfingur. Að sjálfsögðu á ég mín slæmu tímabil, en ég þekki sveifluna mína og veit hvað ég þarf að gera, þegar eitthvað fer úrskeiðis.“Minningar um góða frammistöðu, til dæmis á Opna bandaríska meistaramótinu árið 2011, hjálpuðu til, þegar á móti blés, eins og til dæmis á Honda Classic mótinu í fyrra, þegar McIlroy hætti keppni. „Getan var enn til staðar,“ segir hann um þetta tímabil á síðasta ári og fyrstu mánuði þessa árs. „Vandamálið var ekki að ég gæti ekki spilað gott golf; ég þurfti bara að finna leið til að leyfa getunni að koma í ljós aftur. Þegar ég komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska á Muirfield í fyrra, þá man ég að ég sagði við sjálfan mig að þetta ætlaði ég ekki að láta gerast aftur; það hefur margt breyst á einu ári.“

Með báðar fætur á jörðinniMcIlroy reynir hvað hann getur að halda báðum fótum á jörðinni, þrátt fyrir frægð sína og frama síðustu árin. Þess vegna er erfitt að fá hann til að tala um framtíðina og mögulegan sess í sögu golfsins. „Ég þarf að taka eitt skref í einu,“ segir hann og það er nokkuð ljóst að hann er að tala um löngun

sína til að sigra á Mastersmótinu næsta vor, klára Alslemmuna og verða þannig sigur-sælasti kylfingur Evrópu. „En golfheimurinn er svolítið að leita að einhverjum til að standa upp; ég hef alveg gefið til kynna að ég vilji verða sá maður.“„Það felst mikil ábyrgð í því að verða ´andlit golfsins´ eða eitt af þeim andlitum sem golfi-þróttin kennir sig við, en ég held að ég sé fær um að takast á við það. Maður verður að taka því fagnandi og ekki líta á það sem einhverja byrði. Mig langar til að verða kylfingurinn sem reglulega sigrar á risamótum og ég held að ég geti það. Ég er að spila gott golf um þessar mundir og vil auðvitað halda því áfram eins lengi og ég get. Það eru miklar væntingar bundnar við Masters mótið, en það er fullt af verkefnum áður en að því kemur.“Fyrir réttum sjö árum gekk átján ára gamall McIlroy af St. Andrews vellinum í Skotlandi og fór í hraðbanka: þá átti hann 170 þúsund pund. Hann var þá nýbúinn að tryggja sér þriðja sætið á Alfred Dunhill Links meistara-mótinu með því að spila síðasta hringinn á 68 höggum; þessi verðandi golfmeistari með óstýriláta hárið trúði því varla hvað hann var orðinn vel stæður. Að mörgu leyti hefur ekkert breyst. „Það er mjög mikilvægt að gleyma því ekki hvaðan maður kemur, halda haus og reyna að vera hreinskilinn. Ég er afar heppinn að geta einbeitt mér að þessari íþrótt. Hún hefur gefið mér mikið og ég vil gera það sem ég get.“

Bestu keppnis-tímabilin

Hvernig er tímabil Rorys í samanburði?

Bobby Jones, 1930Jones er eini kylfingurinn í sögu golfsins sem sigraði á meistaramótum áhuga-manna og atvinnumanna í Bretlandi og Bandaríkjunum á sama árinu. Hann dró sig í hlé eftir þetta afrek og kom Masters mótinu af stað þremur árum síðar

Ben Hogan 1953Fjórum árum eftir bílslys sem næstum lagði hann að velli var Hogan ósigrandi á vellinum árið 1953. Hann sigraði á öllum fimm mótum PGA mótaraðarinnar, þar á meðal á Masters og Opna bandaríska meistaramótinu, auk þess að sigra á Opna breska, en gat ekki spilað á PGA meistaramótinu.

Lee Trevino, 1971Trevino sigraði á Opna bandaríska, Opna kanadíska og Opna breska meistaramótinu þetta árið. Hann sigraði á sex mótum og fékk fjölda annarra viðurkenninga.

Jack Nicklaus, 1972Nicklaus sigraði átta sinnum árið 1971 og hélt sigurgöngu sinni áfram árið eftir, með því að sigra á Masters og Opna bandaríska. Hann lenti síðan í öðru sæti á Opna breska, einu höggi á eftir Lee Trevino.

Tiger Woods, 2000Tiger sigraði á níu mótum, þar á meðal þremur risamótum. Þegar hann sigraði svo á Masters árið eftir og kláraði ´Tiger Slam´, varð hann eini kylfingurinn í sögu íþróttarinnar að sigra á fjórum risa-mótum í röð.

Inbee Park, 2013Rétt eins og Babe Zaharias árið 1950 sigraði Park á þremur risamótum í röð og fékk þar með tækifærið til að verða eini kylfingurinn til að ná öllum fjórum risatitlunum á einu ári.

Page 115: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

BókhaldskerfiLaunakerfiVerslunarkerfiVistun

Veljum íslenskan hugbúnað

dk hugbúnaðurBæjarhálsi 1 110 ReykjavíkHafnarstræti 53 600 Akureyri

Sími 510 5800 | [email protected] | www.dk.is

Heildarlausn fyrir íslenskt atvinnulíf

Kaup eða áskrift

Golfmót dk hugbúnaðar 2014

C

M

Y

CM

MY

CY

CMY

K

JolaGolf_A5.pdf 1 26.11.2014 10:27:29

Elite CompressionElite þrýstisokkurinn er graduated eða þrýstingurinn er mestur neðst og minnstur efst. Blóðflæði eykst og flýtir þannig fyrir endurheimt og minnkar bólgur. Fullkomin til upphitunar, æfinga, keppni, fyrir endurheimt og í flugið. Henta frábærlega fyrir þá sem standa mikið við vinnu.Verð 8.990,-

Performance4 hæðir upp á legginn, 5 litir.

Performance sokkarnir eru mjúkir, koma í veg fyrir blöðrur og halda fætinum þurrum og þægilegum allan daginn. Þykkir undir, þunnir að ofan.Verð kr. 1.990,-

Elite4 hæðir upp á legginn,

2 þykktir. 20 litir.

Elite sokkarnir eru tæknilegustu sokkar Feetures, hannaðir fyrir vinstri og hægri fót. Stuðningur þar sem hann skiptir mestu máli. Heldur þétt um fótinn.Verð kr. 2.990,-

Theraputic (Sjúkrasokkar)Sjúkrasokkarnir eru hannaðir fyrir fólk sem er virkt í hreyfingu en hefur fótavandamál sem þarf að hugsa um. Eru án þröngvandi teygju og skerða ekki blóðflæði, hentar því sykursjúkum og þeim sem eru með bjúg á fótunum.Verð 3.490,-

Elite Merino+ 3 hæðir upp á legginn. 3 þykktir. 4 litir.

Elite Merino+ sameinar Elite tækni og einstaka blöndu af sérvalinni Merino ull og silkimjúku Rayon sem er unnin úr bambus, allt gert til að búa til þægilegustu sokka sem þekkjast. Fullkomin í utanvega og vetrarhlaupin.Verð 3.490,-

Bæjarlind 4 - 201 Kópavogi - Sími 55 77 100 - www.gongugreining.is

Page 116: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is116

Kjartan L Pálsson hélt upp á 75 ára afmæli sitt þann 6. október s.l. á Alicante Husa golfvellinum þar

sem hann starfar sem fararstjóri. Í tilefni dagsins var haldið afmælisgolfmót og kom Kjartan með áletraða verðlaunagripi með sér frá Íslandi fyrir þetta mót en á þeim stóð „KLP 75 Spánn 2014“. Kjartan starfar sem fararstjóri fyrir „heldri kylfinga“ á vegum Úrvals/Útsýnar, en við Husa golf-hótelið í Alicante er bráðskemmtilegur völlur sem er hannaður af hinum eina sanna Seve Ballesteros.Afmælismót KLP tókst vel en alls tóku 42 „mörlandar“ þátt eins og Kjartan orðar það sjálfur. „Það var mikið fjör og kátína eins og gerist ávallt í kringum íslenska kylfinga,“ segir Kjartan. Það voru kylfingar frá Vest-mannaeyjum sem sigruðu í bæði karla- og kvennaflokki á þessu 18 holu punktamóti sem fram fór við bestu aðstæður; logni, sól og 25 stiga hita.Kjartan segir að ástandið á „KLP“ á þessum tímamótum sé bara fjandi gott. „Mér fannst ég ekkert vera neitt eldri eftir afmælisdaginn. Ég hef verið að berjast við krabbamein í lunga en ég var skorin fyrir tveimur árum og

helmingur af lunganu var tekið. Ég er orðinn góður af því en það er eins og læknarnir hafi skorið eitthvað af „golfbakteríunni“ í leiðinni. Áhugi minn á golfinu sem leik hefur minnkað enda tók í skurðinn þegar ég lék golf lengi eftir aðgerðina. Ég varð að breyta sveiflunni og sú nýja passar ekki nógu vel og það gengur hægt að finna gömlu sveifluna aftur. Það mun koma til baka og næsta takmark er að spila hring á „aldri“ mínum. Möguleikarnir á því ættu að aukast þegar árunum fjölgar en ég þarf að vera dug-legri að spila og æfa mig til þess að ná því.“ Kjartan er einn af frumkvöðlunum í golf-ferðaþjónustu á Íslandi og hefur starfað sem fararstjóri í þrjá áratugi. „Ég var farþegi í fyrstu skipulögðum golferðunum frá Íslandi. Þær voru til North Berwick í Skotlandi og þessar ferðir opnuðu augu margra fyrir ýmsum nýjum hlutum sem hægt var að taka með heim. Ég var síðan fararstjóri í golf-ferðum til Írlands, Spánar, Flórída og Tæ-lands og þetta er búið að standa yfir í 30 ár,“ segir Kjartan en hann bætir því við að margt hafi breyst á þessum tíma.

Hefur ekki hugmyndum hve golfferðirnar eru margar„Þetta er allt önnur veröld að vinna í þessu núna en hér áður fyrr. Í fyrstu ferðunum var maður „redda“ rástímum út um allt tveimur dögum áður, og það greiddu allir sjálfir fyrir teigtímana. Ferðalagið var í leigubílum og allt frekar laust í reipunum. Í dag er þetta allt skipulagt með lengri fyrirvara og allt innifalið í „pakkanum“. Það eru allir að reyna að gera betur og betur og þannig verður upp-lifun farþegar skemmtilegri,“ segir Kjartan en hann hefur ekki hugmynd um í hve margar golfferðir hann hefur farið – en þær eru margar.“Eftirminnilegasta ferðin hjá Kjartani var til Mallorca á Spáni þegar hann fagnaði fimm-tugsafmæli sínu fyrir 25 árum.

Skipti út regngallanum fyrir fleiri bjóra„Ég var að vinna hjá Samvinnuferðum – Landsýn á þeim tíma sem almennur fararstjóri. Helgi Jóhannsson, þáverandi forstjóri félagsins, auglýsti vikugolfferð til Santa Ponsa á Mallorca og ferðin seldist upp

„SKÁRU ÚR MÉR GOLFBAKTERÍUNA“

- Afrek að vera enn þátttakandi í þessu eftir öll þessi ár segir hinn þaulreyndi fararstjóri Kjartan L. Pálsson

Page 117: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

bláber

hindber

rauðrófusafi

gojiber

spírulína

hörfræ

chiafræ

kínóa

hveitigras

Golfklúbbur Vatnsleysustrandar er góður kostur

fyrir þá sem vilja geta spilað þegar þeim hentar

fyrir þá sem vilja vera meðlimir í golfklúbbi á viðráðanlegu verði

fyrir alla fjölskylduna, byrjendur og lengra komna

fyrir þá sem kjósa fjölskrúðuga náttúru og fuglalíf í einstakri kyrrð

góð æfingaraðstaða og aðgangur að 8 vinavöllum

Golfklúbbur Vatnsleysustrandar Símar: 4246529 / 8214266 www.gvsgolf.is / [email protected]

Viltu njóta þess að spila golf?

Golfklúbbur Vatnsleysustrandar er góður kostur

fyrir þá sem vilja geta spilað þegar þeim hentar

fyrir þá sem vilja vera meðlimir í golfklúbbi á viðráðanlegu verði

fyrir alla fjölskylduna, byrjendur og lengra komna

fyrir þá sem kjósa fjölskrúðuga náttúru og fuglalíf í einstakri kyrrð

góð æfingaraðstaða og aðgangur að 8 vinavöllum

Golfklúbbur Vatnsleysustrandar Símar: 4246529 / 8214266 www.gvsgolf.is / [email protected]

Viltu njóta þess að spila golf?

Page 118: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is118

á hálfum degi. Ég vissi ekkert af þessari ferð fyrr en rétt áður en farþegarnir komu. Í þess-ari ferð var mikið og skrautlegt lið sem fyllti flugvélina. Ég þekkti ekki alla sem komu úr vélinni en margir af þeim urðu miklir vinir mínir og eru enn. Hér á Husa Golf í Alicante eru 4-5 sem voru í þessari afmælis-ferð fyrir 25 árum. Margir voru að fara í sína fyrstu utanlandsferð í golfi og þarna urðu ógleymanlegar uppákomur. Við erum enn að hlæja af sumu sem þarna gerðist. Ég var t.d. minntur á eina sögu í afmælinu núna sem gerðist í þessari ferð. Þá kom einn félaginn til mín á öðrum degi í golfmótinu sem var haldið og spurði mig grafalvarlegur hvort hann mætti taka regngallann sinn úr golf-pokanum. Ég hélt það nú enda glampandi sól og engin rigning í vændum næstu dagana. Þegar ég spurði nánar út í málið fékk ég þetta svar. „Sko, ef ég tek regngallann úr pok-

anum, þá kem ég miklu fleiri bjórum fyrir í honum.“Kjartan segir að hann verð viðloðandi farar-stjórn áfram á meðan einhver not verði fyrir hann eftir öll þessi ár. Þó ég segi sjálfur frá þá finnst mér það bara vera afrek að vera enn þátttakandi í þessu eftir öll þessi ár.

Kjartan kynntist golfíþróttinni í kringum árið 1970 þegar hann var á kynningarmóti fyrir íþróttafréttamenn úti á Nesvelli. Á þeim tíma var golfíþróttinni aldrei gerð nein skil á síðum dagblaða en Kjartan vann á þeim tíma á dagblaðinu Tímanum. „Ég smitaðist mjög alvarlega og illa af golfbakteríunni á þessum tíma og flæktist í svo í allt sem viðkom golfinu á Íslandi. Landsliðseinvaldur í mörg ár, formaður Einherjaklúbbsins í 34 ár og stjórnaði Nesklúbbnum í mörg ár, svo eitt-hvað sé nefnt, ég man þetta ekki allt lengur,“ segir Kjartan L. Pálsson.

Sex draumahögg og tveir AlbatrossarKjartan var um tíma sá íslenski kylfingur sem oftast hefur farið holu í höggi. Hann hefur afrekað það sex sinnum - og hann lét af formennskunni í Einherjaklúbbnum þegar Björgvin Þorsteinsson náði metinu af honum með sjöunda draumahöggi sínu. Kjartan hefur einnig náð því tvívegis að leika par 5 holu á 2 höggum sem kallast Albatross. „Í fyrra skiptið var það á velli í Frakklandi og ég setti annað höggið ofaní af um 120 metra færi. Upphafshöggið rúllaði endalaust niður brekku og ég hafði heppnina með mér. Í síðara skiptið var ég staddur á Írlandi og þar sló ég annað höggið í stein eða eitthvað álíka því hollið á undan okkur fann boltann ofan í holunni,” segir Kjartan.

Verðlaunahafar á afmælismóti KLP 2014Konur:1. Katrín Magnúsdóttir, GV 36 punktar.2. Hólmfríður Þórhallsdóttir, GKj 35 punktar.3. Bergdís Kristjánsdóttir, GR 34 punktar.

Karlar:1. Kristján Ólafsson, GV 34 punktar.2. Sigurgeir Steingrímsson, NK 32 punktar.3. Einar B. Gunnlaugsson, GR 32 punktar.

Golf Iceland var með kynningarbás á International Golf Travel Mart IGTM ferðasýningunni sem fram fór á Ítalíu dagana 26.-31. okt. Á þessari árlegu ferðaþjónustu-

sýningu kynntu samtökin almennt möguleika til að spila golf hér á landi svo og sérstaklega þjónustu sinna meðlima.Að þessu tóku um 1.100 aðilar þátt en þessi sýning er stærsta sér-hæfða golfferðasýning í heiminum.Þar af voru 600 aðilar sem kynntu sína áfangastaði, heil lönd, ákveðin golfsvæði í heiminum eða einstaka golfvelli fyrir um 350 sérhæfðum söluaðilum golfferða og um 150 fjölmiðlamönnum sem sóttu sýninguna.Samhliða sýningunni fer fram mikil kynning á golfi og ferðaþjónustu svo og alls konar tölfræði og niðurstöðum varðandi ferðahegðun kylfinga.Magnús Oddsson, verkefnastjóri Golf Iceland, sótti sýninguna og sá um kynninguna:

„Þarna fáum við margs konar tækifæri til að koma golfi á Íslandi á framfæri. Í fyrsta lagi eru fyrirfram bókuð viðtöl við söluaðila sem áhuga hafa á að kynna sér golf á Íslandi. Í öðru lagi þá eru sérstakar opnar kynningar á áfangastöðum sem eru vel sóttar. Og loks reynum við að koma okkur og okkar efni á framfæri við þá fjölmörgu fjöl-miðlamenn sem sækja sýninguna. Í allri okkar kynningu er lögð áhersla á möguleikana til að spila í okkar einstöku náttúru enda eru vellirnir hluti af henni svo ekki sé minnst á miðnæturgolfið, sem alltaf vekur mikla athygli. Samhliða auknum almennum áhuga á Íslandi,sem áfangastað fyrir ferðmenn hefur áhugi á Íslandi sem golfáfangastað farið vaxandi enda eru söluaðilar golfferða stöðugt að leita að nýjum og „öðruvísi“ stöðum fyrir sína viðskiptavini,“ segir Magnús.Að þessu sinni óskuðu söluaðilar frá alls 14 löndum eftir viðtölum; mismunandi margir frá hverju landi,en mestur áhugi var frá Mið-Evrópu, Bretlandi og Bandaríkjunum auk Norðurlandanna.

ÍSLENSKT GOLF KYNNT Á STÆRSTU GOLFFERÐASÝNINGU HEIMS

Page 119: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Gleðileg jól og farsælt komandi golfár!

Page 120: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is120

Regla Allar torfærur, þ.e. bæði vatnstorfærur og glompur

(Skil-greining á miðun)

Almenna reglan er sú að leikmaður telst hafa miðað bolta þegar hann hefur lagt kylfuhausinn niður þétt framan eða aftan við boltann. Í torfæru má ekki leggja kylfuhausinn niður og því telst leikmaður almennt ekki miða boltann í torfæru.

7-2 Eftir að leik um holu er lokið má æfa má pútt og vipp við síðustu flöt, næsta teig og á æfingaflötum, að því gefnu að leikur tefjist ekki og að ekki sé slegið úr torfæru. Athugið þó að æfing af þessu tagi kann að vera takmörkuð í keppnisskilmálum, sbr. t.d. flest GSÍ-mót.

12-1a Ef við teljum að boltinn okkar sé grafinn í sandi megum við hreyfa við sandinum til að leita að boltanum. Þetta á við alls staðar á vellinum og við fáum ekki víti þótt boltinn sé okkar og hann hreyfist við leitina. Við þurfum þá sjálfsögðu að leggja boltann aftur á sinn stað og við þurfum að endurgera legu boltans ef hún hefur breyst.

12-1b Þegar leitað er að bolta í torfæru má hreyfa við lausung í því skyni að finna boltann. Við fáum þó víti ef boltinn sjálfu hreyfist við þetta.

13-4 Eftir að boltinn er fundinn eru ýmsar takmarkanir á því sem má gera þegar boltinn er í torfæru, s.s. að prófa ástand torfærunnar, snerta lausung í tor-færunni eða snerta yfirborð torfærunnar.

20-2 Ef bolti er látinn falla verður að endurtaka það ef boltinn veltur út í og stöðvast inni í torfæru, eða veltur út úr og stöðvast utan torfæru.

23 Við megum fjarlægja alla lausung sem okkur sýnist á vellinum nema þegar lausungin og boltinn liggja í eða snerta sömu torfæru. Einfalda lýsingin á lausung eru allir náttúrulegir hlutir sem eru ekki jarðfastir og sem loða ekki við boltann, t.d. laufblöð, trjágreinar, lausir torfusneplar og steinar. Algeng staðarregla í golfvöllum á Íslandi skilgreinir steina í glompum sem óhreyfanlegar hindranir. Ef slík staðarregla er í gildi teljast steinarnir ekki vera lausung og því má fjarlægja þá.

24-1 Hreyfanlegar hindranir má alltaf fjarlægja, einnig þegar boltinn og hindr-unin eru í sömu torfæru. Hreyfanlegar hindranir erumanngerðir hlutir sem er hægt að færa til án þess að tefja leik eða valda skemmdum, t.d. hrífur, gosflöskur og sælgætisbréf.

Golfreglurnar geta verið dálítið villandi þegar kemur að glompum og vatnstorfærum. Að ákveðnu marki eru þessi tvö fyrirbrigði sett

undir sama hatt en samt sem áður gilda ólíkar reglur um þau í sumum tilfellum.Í golfreglunum er orðið „torfæra“ samheiti yfir glompur og vatnstorfærur. Segja má að það sé óheppi-legt að orðið torfæra sé þannig notað á tvennan hátt, bæði fyrir samheitið og þegar talað er um vatnstor-færur sérstaklega. Þetta er þó ekki bundið við íslenska þýðingu golfreglnanna, í henni er sama orðið notað í báðum tilvikum því það er gert í ensku útgáfunni þar sem talað er um „hazards“ og „water hazards“.Samheitið torfæra er notað þegar sömu reglur gilda um bæði glompur og vatnstorfærur. Dæmi um þetta eru:

DÓMARAPISTILLHörður Geirsson, alþjóðadómari skrifar

TORFÆRUR

Page 121: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

Regla Vatnstorfærur Glompur

20-3b Ef lega bolta sem á að leggja aftur í vatnstor-færu hefur breyst verður að leggja boltann í áþekkustu legu innan kylfulengdar í vatns-torfærunni, ekki nær holunni.

Ef lega bolta sem á að leggja aftur í glompu hefur breyst verður að búa til legu, eins líka þeirri upphaflegu og hægt er, og leggja boltann þar.

24-2b Liggi boltinn í vatnstorfæru fæst engin lausn frá óhreyfanlegum hindrunum.

Liggi boltinn í glompu fæst lausn frá óhreyfanlegum hindrunum. Næsti staður fyrir vítalausa lausn verður að vera innan glompunnar.

28 Liggi boltinn í vatnstorfæru er ekki hægt að dæma hann ósláanlegan.

Dæma má bolta í glompu ósláan-legan. Lausn skv. reglum 28b og 28c verður að vera innan glompunnar .

25-1b Liggi boltinn í vatnstorfæru fæst engin lausn frá óeðlilegu ástandi vallar.

Lausn fæst frá óeðlilegu ástandi vallar þótt boltinn liggi í glompu. Næsti staður fyrir vítalausa lausn verður þó að vera innan glompunnar.

26-2b Þetta er mjög sérstök regla sem leyfir kylfingi hvenær sem er að taka víti upp úr vatnstor-færu ef bolti hans er í torfærunni. Þá skiptir ekki máli þótt slegið hafi verið eitt eða fleiri högg innan vatnstorfærunnar.

Regla 26-2b á einungis við um vatnstorfærur og engin sambærileg regla er varðandi glompur.

Á hinn bóginn eru nokkur ákvæði í golfreglunum sem meðhöndla þessi fyrirbæri á ólíkan hátt:

Eins og sjá má af þessu er ýmislegt sameiginlegt með reglum um glompur og vatnstorfærur en annað er gjörólíkt. Við þurfum því að vera vel á verði þegar við lesum golfreglurnar og gæta að því hvort viðkomandi regla eigi almennt við um allar torfærur eða hvort ólíkar reglur gilda um vatnstorfærur og glompur.

Hörður Geirsson

Page 122: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is122

Nítján manna hópur Indverja kom til að leika golf á Íslandi í sumar. Allir í þessum hópi áttu það sameiginlegt að hafa aldrei komið til Íslands áður, en á fötulista margra (þ.e. bucket list) var að spila golf á Íslandi, og ekki skemmdi fyrir að hér eru jöklar, heitir hverir og stórbrotið landslag til að skoða í leiðinni.

Í þessum hópi voru kylfingar á flestum getu-stigum, allt frá besta kylfingi Indlands upp í fólk sem var með rúmlega 20 í forgjöf. Með í för voru sem sagt þrír af bestu atvinnu-mönnum Indlands í golfíþróttinni, Chikka Rangappa, Angad Cheema og Anirban Lahiri.

En af hverju Ísland? Maðurinn á bakvið þessa ferð, Gaurav Shirke frá Nýju-Delhi og eigandi Bentbrass Golf, átti sér þann draum að spila golf á Íslandi eftir að hafa fyrir tilviljun hitt íslenska fulltrúa UN Women í lok október á síðasta ári sem unnu að heimildarmynd um sýruárásir. Sagan segir að Gaurav hafi spurt í hálfgerðu gríni hvort að það væru golfvellir á Íslandi (landið heitir jú Iceland - ólíklegt að hægt sé að spila golf þar ekki satt?). Eftir að hafa fengið önnur viðbrögð við þessari spurningu heldur en hann bjóst við, jók á forvitni hans og hann setti sér það markmið að koma með hóp hingað áður en nýafstaðið

Besti kylfingur Indlands í Íslandsheimsókn

Nítján manna hópur Indverja lék golf í Brautarholti og í Kiðjabergi:

tímabilið væri úti. Tæplega ári seinna kom hópurinn hingað til lands fullur eftir-væntingar að spila golf á bestu golfvöllum landsins sem partur af svokallaðri Bentbrass Experience - sem er golfferð þar sem atvinnu-menn ferðast með almennum kylfingum til framandi golfáfangastaða, spila með þeim, veita þeim ráð og mynda persónulegt tengsl í formi vináttu og virðingar.Upphaflega var áætlunin að dvelja hér á landi í fimm daga og spila þrjá golfhringi, en sökum þess að hópurinn missti af síðasta tengifluginu sínum til Íslands þá styttist ferðin í fjóra daga og ákveðið var vegna veðurs að sleppa síðasta golfhringnum, enda var þeim nánast búið að blása og rigna niður þegar komið var að lokum ferðarinnar. Síðasti dagurinn fór því í óvæntan útsýnistúr um Suðurlandið og vakti það mikla kátínu enda voru flestir dolfallnir yfir fegurð landsins og þrátt fyrir óvenju mikinn blástur og vætu þá fannst flestum það gott frí frá hitanum sem er í Indlandi á þessum tíma ársins.Vellirnir sem urðu fyrir valinu voru Brautar-holtsvöllur og Kiðjabergsvöllur. Einn þeirra, Angad Cheema, var á góðri leið með að setja vallarmet á Brautarholtsvelli þegar hann ákvað að koma sér inn í hlýjuna þegar tvær holur voru eftir - sem sagt ekkert að spá í

skorið. Þannig gat hann líka dáðst betur að vellinum og landslaginu og átti hann ekki orð yfir fegurðinni enda búinn að eiga sér þann draum að heimsækja landið eftir að hann sá kvikmyndina „The Secret Life of Walter Mitty“, sem var að stórum hluta tekin upp hér á landi. Brosti hann hringinn alla ferðina þó að veðurguðirnir hafi ekki beint endurgoldið honum það viðmót, en honum var að eigin sögn alveg sama um slíkt og óskaði hans þess heitast að hafa getað verið lengur og séð fleiri staði og spilað fleiri velli og tóku margir aðrir undir það í hópnum.

Þekktastur þessara kylfinga er án efa Anirban Lahiri sem nýverið tryggði sér fullan þátt-tökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi og situr í 70. sæti heimslistans í golfi þegar þetta er skrifað. Stuttu áður hafði hann tekið þátt í PGA risamótinu og British Open og ákvað að slást með í för þrátt fyrir að þurfa að stytta ferðina sökum þess að hann átti að taka við Arjuna verðlaununum af forseta Indlands. Það eru næst mestu heiðursverðlaun sem íþróttamaður getur hlotið í Indlandi. Átti hann mjög erfitt að koma orðum að því hversu fallegir golfvellirnir voru og landslagið í kring, og hversu magnað það var að ganga um götur Reykjavíkur á Menningarnótt og fá beint í æð eftir langt ferðalag þá stemmningu sem var í miðbænum.Þrátt fyrir stutt gaman í frekar slæmu veðri þá er óhætt að segja að allir hafi skemmt sér mjög vel og voru jafn hrifnir af náttúru landsins og fólkinu sem varð á vegi þeirra í þessari ferð. Sérstakar þakkir fær starfsfólk GBR og GKB fyrir afbragðs þjónustu og lið-legheit og það er von margra í þessum hópi að geta heimsótt aftur og þá spilað fleiri golf-velli enda er af nægu að taka í þeim efnum. Heimurinn hefur því stækkað örlítið fyrir þetta fólk enda voru golfvellir á Íslandi ekki til í þeirra huga fyrir ári síðan.

Birgir Sverrisson.

Anirban Lahiri, besti kylfingur Indverja var ánægður á Íslandi.

Page 123: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is123

Ólafía Þórunn og Valdís á úrtökumótumÓlafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, leikur á lokaúrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröð kvenna með því að komast í gegnum fyrra stigið á úrtökumótinu sem fram fór í Mar-okkó í byrjun nóvember. Ólafía Þórunn, sem er Íslandsmeistari í höggleik, lék hringina fjóra á 19 höggum yfir pari vallar (74-78-80-75). Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, leikur á fyrra stiginu dagana 8.-11. desember á Royal Golf Dar Es Salam vellinum sem Ólafía lék á í nóvember.Valdís Þóra fór í gegnum þetta ferli fyrir ári síðan en þá komst hún inn á lokaúr-tökumótið. Leikið er á tveimur stöðum dagana 8.-11. desember, í Marokkó og Kína. Valdís Þóra lék á LET Access mótaröðinni á þessu ári en það er næsta deild fyrir neðan LET mótaröðina. Lokaúrtökumótið stendur yfir 17.-21. desember en það fer einnig fram í

Það var mjög óvenjulegt tíðarfar á Íslandi í október og nóvember og fjölmargir golfvellir voru með opið inn á sumarflatir fram til loka nóvember. Ástandið var það merkilegt að opnað var inn á sumar-flatir tvær helgar í röð á Jaðarsvelli á Akureyri um miðjan nóvem-ber – og voru mót sett upp á báðum helgunum.Á Suðurnesjum var mikið um að vera hjá GS, GG og GSG. Þar voru haldin mót um hverja helgi í október og nóvember – og leikið inn á sumarflatir við góðar aðstæður. Víða um land voru kylfingar á ferðinni en haust – og vetrarmótaröð Kjalar í Mosfellsbæ var vel sótt og sömu sögu er að segja af vetrarmótaröð Leynismanna á Akranesi. Haustmót fór fram á Vestmannaeyjavelli um miðjan nóv-ember. Hinn eini sanni „Geiri Bakari“ í Borgarnesi hélt upp á sex-tugsafmælið með golfmóti á Hamarsvelli 22. nóvember. Þegar mest lét voru hátt í 500 kylfingar við keppni á einnig helgi í nóvember.

Marokkó en þar verður leikið á Samanah og Al Maaden golfvöllunum.„Þetta var mjög lærdómsríkt og er miklu erfiðara en fólk heldur. Það er erfitt að halda einbeitingu og sama hugarfari alla fjóra

keppnisdagana. Ég er að læra betur á sjálfa mig, hvað ég á að gera undir svona miklu álagi, sem er mjög mikilvægt,“ sagði Ólafía en hún hefur æft í Þýskalandi þar sem hún er búsett.

Keppt víða um land í nóvember

- óvenjulegt ástand og opið víða inn á sumarflatir

Kylfingur á teig í Leiru á efri mynd en annar á flöt á Húsatóftavelli á þeirri neðri. Golffjör í nóvember.

Page 124: Golf á Íslandi - 5. tbl. 2014

gleðilegt golfár!Við sendum golfurum nær og �ær jóla- og nýárskveðjur og óskum þeim framfara og velfarnaðar í næstu mótaröð.

Eimskip er stoltur stuðningsaðili Golfsambands Íslands.