53
Rannveig G. Lund, júní, 2000 1 Greiningaraðferðir í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu Rannveig G. Lund, 6. Júní-2000

Greiningaraðferðir í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

  • Upload
    annis

  • View
    98

  • Download
    0

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Greiningaraðferðir í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu. Rannveig G. Lund, 6. Júní-2000. Ein tegund lestrarerfiðleika sem talin er arfgeng og af líffræðilegum toga hefur fengið þessi heiti: Dyslexía (K og L) Les- og stafsetningarhömlun (K) Torlæsi (K) - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 1

Greiningaraðferðir í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikumí lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, 6. Júní-2000

Page 2: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 2

Ein tegund lestrarerfiðleika sem talin er arfgeng og af líffræðilegum toga hefur fengið þessi heiti:

Dyslexía (K og L)Les- og stafsetningarhömlun (K)Torlæsi (K)Lesblinda, (L)Orðblinda, (L)Sértækir lestrar- og stafsetningarerfiðleikar (L)Sértæk les- og stafsetningarröskun (L)K= kennslufræðilegt hugtakL= læknisfræðilegt hugtak

Page 3: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 3

Hér verður notað hugtakið ,,dyslexía”. Í beinni þýðingu merkir hugtakið: Erfiðleikar með orð. Venjulega er átt við rituð orð.

Page 4: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 4

Framangreindur fjöldi hugtaka gefur til kynna:

Að ekki er fullrannsakað, hvers vegna sumir eiga erfitt með að ná tökum á ritmálinu (lestri og stafsetningu). Þess vegna er ekki að fullu ljóst hverjar orsakir eru.

Að togstreita ríkir milli kennslufræðilegra- og læknisfræðilegra viðhorfa. Það á við um einkenni, orsakir, framvindu og greiningaaðferðir. Togstreita er bæði til staðar hérlendis og erlendis.

Page 5: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 5

Togast á innan fagstéttar - læknastéttarinnar-

Árið 1980 lögðu Bresku læknasamtökin (Britsh Medical Association) til við félaga innan vébanda sinna að líta ekki á dyslexíu sem læknisfræðilegt vandamál.

Taugalæknar andmæltu tillögunni (Doyle, 1966)

Page 6: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 6

Fagstéttir togast á. Læknisfræði -kennslufræði1981 skrifar Critchley, taugalæknir:Greining á dyslexíu er á ábyrgð

læknisfræðinnar. Sama ár skrifaði Whittaker,

skólasálfræðingur í Bretlandi: Dyslexía er ekki læknisfræðilegt mál, við erum með kennslufræðilegt vandamál sem snýst um hvernig á að kenna á áhrifaríkari hátt.

(Doyle, 1996).

Page 7: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 7

Togstreita á Íslandi.

Greiningaraðferðir í Lestrarmiðstöð taka mið af kennslufræðilegri sýn og rannsóknum síðustu 25 árin.

ICD-10 - flokkunarviðmið alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar WHO eru annars vegar sniðin að læknisfræðilegri sýn sem á rætur að rekja til síðustu áratuga 19. aldar- hins vegar að nýrri rannsóknarþekkingu.

Margt er sameiginlegt í greiningaraðferðum en einnig talsvert frábrugðið.

Page 8: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 8

Mismunandi skilgreiningar á dyslexíu ná oftast til sömu nemendanna. En ólíkar skilgreiningar geta einnig valdið því að sami nemandi er talinn vera með dyslexíu út frá einni skilgreiningu en ekki annarri.

Heppilegra er í litlu landi að samkomulag sé um, út frá hvaða skilgreiningu á dyslexíu er gengið.

Ef skilgreining skapar einum rétt öðrum fremur, þarf að vera hægt að rökstyðja þann rétt út frá rannsóknaþekkingu, kennslufræðilegri nálgun og út frá lögum og reglugerðum um skólastarf.

Page 9: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 9

Skilgreiningin þarf að fela í sér lýsingu á einkennum, hugsanlegum orsökum og skýra hvað greinir dyslexíu frá annars konar lestrarerfiðleikum.

Þess vegna þarf líka að skilgreina ,,annars konar” lestrarerfiðleika.

Page 10: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 10

Tilgangur skilgreininga er oft sá að tryggja þjónustu og viðeigandi aðgerðir fyrir þá sem eiga við sérstaka erfiðleika að stríða.

Með þjónustu er til dæmis átt við sérhæfða kennslu¹til framfara og úrræðum² sem draga úr hömluninni sem sá stendur frammi fyrir í námi sem er með dyslexíu.

¹t.d sérkennslu²t.d lengri tíma í prófum, leturstækkunum, notkun segulbands við nám og próftöku.

Page 11: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 11

Lestrarmiðstöð: dyslexía og aðrir lestrar og stafsetningarerfiðleikar.

Einkenni dyslexíu eru umskráningarerfiðleikar á mismunandi stigi. (sjá skilgreiningar, rammi 3 -lestrarerfiðleikar 2-3 og rammar 4,5 og 6, lýsing á umskráningarerfiðleikum).

Þeir sem glíma við umskráningarerfiðleika/ dyslexíu eru nemendur á mismunandi greindarstigum og í mismunandi félagslegum aðstæðum (sjá skilgreiningar, rammi 3, lestrarerfiðleikar 2 og 3).

Page 12: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 12

Lestrarmiðstöð: Dyslexía og aðrir lestrar og stafsetningarerfiðleikar

Langvarandi lestrarerfiðleikar geta valdið því að nemandi sem er eingöngu með umskráningarerfiðleika (sjá skilgreiningar, ramma 3, lestrarerfiðleikar 2) snemma á skólagöngu, glími síðar á skólagöngu sinni bæði við umskráningar- og skilningserfiðleika ( sjá skilgreiningar, ramma 3, lestrarerfiðleika 3). Til að fyrirbyggja það, er þverfagleg samvinna heimilis, skóla og sérfræðinga á fræðslumiðstöðvum og skólaskrifstofum nauðsynleg.

Page 13: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 13

Lestrarmiðstöð: Dyslexía og aðrir lestrar og stafsetningarerfiðleikar

Orsakir: Flest rannsóknarök benda til að um varanlega veikleika af líffræðilegum toga í hljóðkerfisferli* sé að ræða. Hljóðkerfisferlið byggir á samspili margra þátta. Gert er ráð fyrir að framtíðarrannsóknir leiði fleiri orsakaþætti í ljós

* Grunnþekking á stöfum og hljóðum og lestur eftir hljóðaaðferð reynir á hljóðkerfisferlið.

Page 14: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 14

Fræðileg rannsóknarrök fyrir greiningarstefnu Lestrarmiðstöðvar er m.a að finna hjá:

Felton og Wood, 1992; Fletcher, Francis, Rourke, Shaywitz og Shaywitz, 1992; Fredman og Stevenson, 1988; Hurford o.fl., 1994; Höien og Lundberg, 1991; Maughan, Hagell, Rutter og Yule, 1994; Pennington, Gilger, Olson og De Fries, 1992; Rispens, van Yeren, og van Duijn, 1991; Schuerholz og.fl. 1995; Share, MacGee, McKenzie, Williams, og Silva 1987; Scheywitz, Fletcher, Holahan, 1992; Siegel, 1988,1989, 1992; Stanovich og Siegel, 1994 o.fl. (sjá hjá Blachman 1997).

Page 15: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 15

Lestrarmiðstöð:Aðrir lestrarerfiðleikar.Einkenni: Skilningserfiðleikar (t.d.á ritmál

sem hlustað er á), -erfiðleikar koma fram í lesskilningi- ekki í umskráningu (sjá skilgreiningar bls. 1 rammi 3 lestrarerfiðleikar 1).

Orsök: Lítill orðaforði, þröngur reynsluheimur, slök tilfinning fyrir beygingarfræðilegum þáttum málsins

(sjá skilgreiningar, áhrifaþætti á skilning, rammi 10).

Page 16: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 16

Lestrarmiðstöð:Aðrir lestrarerfiðleikarOrsakir annarra lestrarerfiðleika geta

tengst einhverju af þessu:

Slakri greind og/eða uppeldisaðstæðum svo sem lítilli örvun, lítilli lestrariðkun, takmarkaðri einbeitingu, rangri námstækni

(sjá skilgreiningar, rammi 3, lestrarerfiðleikar ....1, sjá um áhrifaþætti, rammi 10).

(Stothard, 1996; Turner o.fl. 1996)

Page 17: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 17

Læknisfræðileg sýn- ICD-10-sértæk lesröskun

Einkenni eru umskráningarerfiðleikar í lestri og stafsetningu. (sjá skilgreiningar bls. 1, rammar 4,5 og 6)

Orsakir: M.a. varanlegir veikleikar í hljóðkerfisferli ásamt öðrum óþekktum orsökum.

Hverjir fá dyslexíu skv. ICD-10?: Nemendur með góða greind og í góðum félagslegum aðstæðum. Marktækt misræmi þarf að vera milli greindar og lestrargetu (þ.e.lesskilnings/ lestrarnákvæmni annars vegar og greindar hins vegar skv. ICD-10).

Page 18: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 18

Læknisfræðileg sýn-ICD-10: Aðrir lestrarörðugleikar (hér er vísað til ICD-10 skilgreiningarinnar). Einkenni: Geta verið umskráningarerfiðleikar hjá eftirtöldum:

Hjá þeim sem mælast ekki með marktækt misræmi milli greindar og lestrargetu.

Hjá þeim sem eru félagslega illa settir. Hjá þeim sem ekki hafa notið kennslu. Hjá þeim sem eru með hegðunartruflanir.

Orsakir: Lítið misræmi milli lesskilnings-og/ eða lestrarnákvæmi og greindar, erfiðleikar í hegðun og umhverfi.

Page 19: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 19

Læknisfræðileg sýn á dyslexíu-sértæka lesröskun, tengist meðal annars skólasögu 19. aldar en ekki rannsóknum eins og þær eru stundaðar í dag. Flokkun í skóla eftir efnahag og félagslegri stöðu viðgekkst sums staðar í Evrópu á 19. öld.Fátækir og illa gefnir voru t.d. hafðir saman í skóla aðgreint frá öðrum (Simonsen, 1999).

Því var talið eðlilegt að sumir væru illa læsir (heimskir) en óeðlilegt að aðrir væru ekki læsir (J.Pind, 1997).

Page 20: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 20

Er hægt að réttlæta dyslexíu eins og litið er á hana í Lestrarmiðstöð út frá þeirri takmörkuðu fræðilegu þekkingu sem

fyrir liggur ?og skólastefnu

menntamálaráðuneytisins?

Page 21: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 21

Fræðileg rök

Veikleikar í hljóðkerfisferli: greina nemendur með

umskráningarerfiðleika frá þeim sem ná tökum á lestri. Þeir finnast hjá mismunandi vel gefnum einstaklingum.

(sjá heimildir í ramma 14)

Page 22: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 22

Rök út frá skólastefnu.

Stefnan í nýrri aðalnámskrá 1999.

1994. Stefnt að skóla án aðgreiningar - stefnt að því að leggja niður sérdeildir og sérskóla. Allir með - enginn útundan. Íslendingar eru aðilar að Salamancayfirlýsingunni.

Það mætti því ætla að minni þörf en áður sé fyrir að flokka nemendur með greindarprófum í bekki, sérskóla og sérdeildir.

Page 23: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 23

Rök út frá skólastefnu

1999. Aðalnámskrá grunnskóla, almennur

hluti. Stefnan er þessi: Börn á öllum greindarstigum og mismunandi félagslegum aðstæðum, eiga fá kennslu við hæfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum og sveigjanlegum kennsluháttum.

Page 24: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 24

Rök út frá skólastefnu

Aðalnámskrá, almennur hluti:…sambærileg og jafngild tækifæri

fyrir alla (bls. 16)Nemendur eiga rétt á viðfangsefnum

sem henta námsgetu þeirra og hæfni (bls.21).

Page 25: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 25

Sömu viðhorf til dyslexíu ryðja sér til rúms erlendis.

Dæmi frá 1999: The British Psychological Society (BPS), Division of Educational and Child Psychology setur fram nýja skilgreiningu: Dyslexía er til staðar þegar nákvæmur og þjáll lestur og/eða stafsetning orða þróast á ófullkominn hátt eða með miklum erfiðismunum.Vandinn verður að vera mikill og langvarandi þótt námsaðstæður hafi verið við hæfi.

Page 26: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 26

Afstaða BPS

1999 framhaldEndurskilgreining miðað við það sem tíðkaðist

1991 þykir nauðsynleg af tvennum ástæðum:To get away from ,,deficit” practice- that is

only accepting a child is dyslexic and drawing on extra teaching resources when their reading age is three or four years behind their intellecutal ability.

Page 27: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 27

Afstaða BPS

1999 framhaldThe second is to crystallise its meaning as a

condition that can affect all children: Black and white, English and multi-lingual speakers; rich and poor, highly intelligent and slow learners.

(Úr Times Educational Supplement, 29. okt,1999 byggt á skýrslu BPS)

Page 28: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 28

Það sem áður tíðkaðist (fyrir 9 árum) hjá BPS:

1991. Division of Educational and Child Psychology of the British Psychological Society (BPS).

Könnun sýndi að 78% af 882 skólasálfræðingum í Bretlandi notuðu greindarmælingu sem viðmið þegar þeir kváðu upp úr um dyslexíu.

Page 29: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 29

SamantektHvað er líkt með greiningarviðmiðum

og viðhorfum Lestrarmiðstöðvar og World Health Organization ICD-10 til dyslexíu?

Hvað er ólíkt ?Getum við fundið eina skilgreiningu

sem hægt er að rökstyðja út frá rannsóknarþekkingu og fellur að íslenskri skólastefnu?

Page 30: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 30

Það sem er sameiginlegt er með greiningarstefnunum í Lestrarmiðstöð og ICD-10 viðmiðunum.

Ástæður eru líffræðilegar Áttun, gróf- og fínhreyfingar eru ekki talin

sameiginlegt einkenni einstaklinga með dyslexíu og þess vegna eru þessir þættir hvorki inni í skilgreiningum Lestrarmiðstöðvar né ICD-10.

Talið er mikilvægt í báðum skilgreiningum að leggja mat á hljóðkerfisþætti.

Sjónrænir þættir eru ekki álitnir orsakavaldar dyslexíu.

Page 31: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 31

Enginn ágreiningur um að:

Einkennin í lestri og stafsetningu koma fram sem umskráningarerfiðleikar (sjá skilgreiningar,

bls. 1, rammar 5 og 6) sem hafa áhrif á lesskilning, leshraða og stafsetningu

(sjá skilgreiningar, ramma 9)

Page 32: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 32

Enginn ágreiningur um aðbirtingarform er mismunandi eftir aldri.

Á leikskólaaldri: Máltruflanir oft merkjanlegar eða eru undirliggjandi (Catts, 1989, Scarborough,

1990).

Á grunnskólaaldri: Lestrarerfiðleikar hamla mest námi en stafsetningarerfiðleikar líka.

Önnur skólastig: stafsetningarerfiðleikar í íslensku og tungumálum, stundum lestrarerfiðleikar á erlendum málum og jafnvel íslensku.

Page 33: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 33

Ágreiningsmál milli greiningarkerfanna eru þessi:

Hvort skilgreina eigi dyslexíu út frá greind.

Hvort skilgreina eigi dyslexíu út frá félagslegum aðstæðum og tilfiningalegri líðan.

Page 34: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 34

Greind og dyslexíasjónarhorn í Lestrarmiðstöð.Þrjú börn, 10 ára að aldri eru með

umskráningarerfiðleika .Þau lesa öll eins og börn í 7 ára bekk

greind A er eins og hjá 12 ára barni (sjá næsta ramma - lestrarerfiðleikar 2)

greind B er eins og hjá 10 ára barni(sjá

næsta ramma - lestrarerfiðleikar 2). greind C er eins og hjá 8 ára barni (sjá

næsta ramma - lestrarerfiðleikar 3).

Page 35: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 35

LestrarmiðstöðEinfalda lestrarlíkaniðHöfundar: Gough og Tunmer, 1986;

Dyslexía og aðrir lestrarerfiðleikar

Læsirgóð umskráninggóður skilningur(miðað við bækur við aldurs hæfi)

Lestrarerfiðleikar 1góð umskráningslakur skilningur(lesskilningserfiðleikar)

Lestrarerfiðleikar 2slök umskráninggóður skilningur(verulegir umskráningarerfiðleikar í merkingunni

dyslexía)

Lestrarerfiðleikar 3slök umskráningslakur skilningur(dyslexía í merkingunniumskráningarerfiðleikar en annars konarlestrarvandi líka).

(dy

Page 36: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 36

Greind og dyslexía - sjónarhorn á greind í Lestrarmiðstöð.

A og B og C hafa öll verið í sama bekk frá upphafi skólagöngu. Þau eru einu börnin í bekknum sem ekki hafa náð tökum á lestri.

Umskráningarerfiðleikar og greining á undirþáttum sýnir veruleg frávik í hljóðkerfisferli hjá öllum þremur.

A og B eiga gott með að skilja þegar námsefnið er útskýrt eða lesið fyrir bekkinn en ekki C.

Page 37: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 37

A, B, og C hafa öll þörf fyrir mikla aðstoð.

Skv. aðanámskrá eiga þau öll rétt á námi við hæfi eins og öll önnur börn.

C þarf að læra að lesa eins og A og B í lesefni sem hann hefur forsendur til að skilja. Það vilja foreldrar hans. Hann þarf námsefni sem lagað er að skilningi hans.

Þess vegna getur C tekið framförum í lestri eins og A og B á lesefni sem miðast við skilningsforsendur hans. (Aaron, 1997; Snowling, 1999)

Page 38: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 38

Félagslegar og tilfinningalegar aðstæður. Greining á lestri er ekki í tómarúmi.

Það þarf að greina fleira en aðeins lestur. Það er ekki einungis styrkur lestrarerfiðleika heldur einnig aðstæður¹ og persónuleiki² þess sem við erfiðleikana glímir sem hafa áhrif á hve auðvelt/erfitt er að mæta þörfum við hæfi og stuðla að framförum. ¹Aðstæður heima og í skóla ²Þættir í persónuleika: Til dæmis baráttuvilji og atferli.

Page 39: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 39

Umhverfi og persónuleiki +/- hafa áhrif á framfarir

Fullkomnar aðstæðurheimili/kennsla +hegðun/ atrerli +

Erfiðar aðstæðurheimili/kennsla +hegðun/ atferli -

Erfiðar aðstæðurheimili/kennsla -hegðun/ atferli +

Erfiðar aðstæðurheimili/kennsla -hegðun/ atferli -

Page 40: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 40

Félagslegar aðstæður - sjónarhorn á dyslexíu í Lestrarmiðstöð Dæmi:5 af 20 börnum í 10 ára bekk býr við

erfiðar heimilisaðstæður. Þannig er það með A. EN hann er sá

eini sem glímir við dyslexíu í merkingunni

umskráningarerfiðleikar (sjá skilgreiningar

rammi 3 lestrarerfiðleikar 2) - hin 4 urðu fengu sömu kennslu og urðu læs.

Page 41: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 41

,,Áður var t.d. oft talið, að þroskaskerðingu án þekktra orsaka mætti rekja til umhversáhrifa. Slíkar hugmyndir eru mjög á undanhaldi nú á tímum.”

Tryggvi Sigurðsson, mars, 2000. Morgunblaðið.

Dyslexía er ekki þroskaskerðing, heldur þroskafrávik eða þroskaröskun. Eru hugmyndir um umhverfisáhrif ekki á sama hátt, einnig á undanhaldi ?

Page 42: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 42

Samvinna Lestramiðstöðvar við aðrar fagstéttir. Dæmi af

26 nemendum á aldrinum 7-12 ára frá sem komu til greiningar í Lestrarmiðstöð á ákveðnu tímabili.

Af þeim höfðu 25 sérkennslu. Samvinna var við

foreldra, umsjónarkennara,þá sem önnuðust sérkennsluna.

Af þessum 25 nemendur höfðu 16 farið í sálfræðilega greiningu áður en

þeir fóru í greiningu í LestrarmiðstöðSóst var eftir upplýsingum og samvinnu við

sálfræðinga með leyfi foreldra. 1 var vísað af Lestrarmiðstöð í sálfræðilega

greiningu.

Page 43: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 43

Af blaðaskrifum mætti ráða að flokkunarkerfi Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, ICD-10 á sjúkdómum og andlegum vandkvæðum sé viðurkennt á öllum sviðum sem það tekur á- líka sértækri lesröskun/dyslexíu.

(sjá Tryggvi Sigurðsson, 4. apríl, 2000. Morgunblaðið)

Page 44: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 44

Þess vegna var spurt:

Hvaða lönd nota ICD-10 viðmiðin sem opinbera stefnu við að greina sértæka lesröskun?

WHO= svaraði ekki

Page 45: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 45

Spurt var: Hvaða lönd nota ICD-10 viðmiðin sem opinbera stefnu í því að greina sértæka lesröskun?OECD-Peter Evans, Svar:“I really do not know the answer to

your question. ICD-10 has never been mentioned by any OECD country when gathering definitions of disabilities for educational purposes. Perhaps it is used by medical authorities especially in the pre-school and post -school periods”.

Page 46: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 46

Spurt var: Hvaða lönd nota ICD-10 viðmiðin sem opinbera stefnu í því að greina sértæka lesröskun?

Svar Anitu hjá European Agency for Development in Special Needs Education:

,,Unfortunately, the Agency does not possess such information, and I am sorry to tell you that we do not know where to provide it at the moment”.

Page 47: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 47

Að lokumAllar skilgreiningar ber að umgangast

sem vinnutilgátur, ekki heilagan sannnleik, meðan ekki er meira vitað um lestrarerfiðleika og orsakir þeirra.

Heppilegt er að ná samstöðu um skilgreiningu sem hægt er að rökstyðja út frá íslensku skólakerfi og út frá rannsóknarrökum, skilgreiningu sem skerðir ekki rétt eins til aðstoðar á kostnað annars sem einnig er hjálparþurfi.

Page 48: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 48

Að lokum

Greining er mjög kostnaðarsöm - hún þarf að beinast að því að skoða þá þætti sem flestar rannsóknir sýna að greini börn með lestrarerfiðleika best frá börnum án lestrarerfiðleika.

Ef ekki er um aðstoð við hæfi að ræða innan skólanna virkar greining aðeins sem stimpill og skýring en nýtist síður til framfara.

Page 49: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 49

Að lokum

Besta fyrirkomulag á greiningum á lestri og stafsetningu er að hún haldist náið í hendur við kennslu.

Besta fyrirkomulag er að greiningaraðilinn sé fagmaður innan skólans og vinni annað hvort út frá greiningunni sjálfur eða gefi samkennara/samkennurum ráð um hvað gera skuli.

Page 50: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 50

Að lokumÞetta þýðir að sérkennarar þurfa að hafa

stöðluð, áreiðanleg og réttmæt próf til þess að meta með lestur, stafsetningu og fjölmarga undirþætti til þess að skilgreina dyslexíu og aðra lestrarerfiðleika.

Sérkennarar þurfa að koma að gerð þessara prófa, því þeir vita einfaldlega mikið um lestur. Þeir hafa fram til þessa ógjarnan kveðið upp úr um dyslexíu þar sem þeir, líkt og aðrir sérfræðingar á Íslandi, hafa fram til þessa ekki haft nægilega fjölbreytt og áreiðanleg mælitæki.

Page 51: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 51

Að lokum

Það er ekki hægt að mismuna börnum sem glíma við sama vanda á fræðilegum forsendum í skóla sem á að þjóna þörfum allra.

Page 52: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 52

Heimildir Aaron, P.G. (1997). The Impending Demise of the Discrepancy

Formula. Review of Educational Research, vol 67 nr.4 Aðalnámskrá grunnskóla, (1999). Almennur hluti. Reykjavík.

Menntamálaráðuneytið. Catts, H. (1989). Defining dyslexia as a developmental language

disorder.Annals of dyslexia, Vol 39. Doyle J. (1996). Dyslexia: An Introduyctory Guide. Whurr

Publishers Ltd. Gough P.,Tunmer W. (1986). Decoding, Reading, and Reading

Disability.Rase 7(1), 6-10. The ICD- 10 Classification of Mental and Behavioural Disorders.

Clinical Descriptions and Diagnostic Guidelines. 1992. Geneva. The world Health Organization.

Jörgen Pind (1997). Sálfræði ritmáls og talmáls. Reykjavík: Háskólaútgáfan.

Rea Reason (1996). Discrepancy Definitions or phonological assessment? Dimensions of dyslexia. Bell& Bain.

Page 53: Greiningaraðferðir  í Lestrarmiðstöð - flokkun á erfiðleikum í lestri og stafsetningu

Rannveig G. Lund, júní, 2000 53

Scarborough, H.(1990). Very early language dificits in dyslexic children. Child Development, 61.

Stanovich,K.,Siegel,L.o.fl. (1997). Subtypes of Developmental Dyslexia: Differences in Phonological and Orthographic Doding. Í Blachman, B.(ritstjóri). Foundation of Reading Acquisition and Dyslexia. Lawrence Erlbaum.

Simonsen, E.(1999). Historien-kuriosa eller kunnskapskilde? Nordisk tidsskrift for specialpedagogikk, nr.3-4.

Stothard, S. (1996). Assessing Reading Comprehension.Hjá Snowling og Stackhouse (ritstj.) Dyslexia Speech and Language. Whurr publishers.

Snowling M. Málhæfni og lestrarnám, námskeið Lestrarmisðtöðvar, 4. Júní 1999.

Tryggvi Sigurðsson (2000). Blaðagreinar í morgunblaðinu í .. mars og 4. apríl.

Turner,M.Geiger,S og Feuell,C. (1996). The role of listening comprehension. Hjá G. Reid(ritstj.)Dimensions of dyslexia. Bell& Bain.