102
Tillaga á vinnslustigi 21. mars 2014

Höfuðborgarsvæðið 2040

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040 – Kynning á vinnslustigi

Citation preview

Page 1: Höfuðborgarsvæðið 2040

3

1 // Inngangur

Tillaga á vinnslustigi21. mars 2014

Page 2: Höfuðborgarsvæðið 2040

4

Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040

TILLAGA Á VINNSLUSTIGI

21. mars 2014

2. útgáfa

ÚTgefandi

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SSH

SvæðiSSkipulagSnefnd 2010-2014:

Reykjavíkurborg:

Páll Hjaltason formaður

Júlíus Vífill Ingvarsson

kópavogsbær:

Kristinn Dagur Gissurarson

Margrét Júlía Rafnsdóttir

Hafnarfjarðarkaupstaður:

Sigríður Björk Jónsdóttir varaformaður

Rósa Guðbjartsdóttir

garðabær:

Stefán Konráðsson ritari

Steinþór Einarsson

Mosfellsbær:

Bryndís Haraldsdóttir

Ólafur Gunnarsson

Seltjarnarneskaupstaður:

Ólafur Egilsson / Bjarni Torfi Álþórsson

Ragnhildur Ingólfsdóttir

kjósarhreppur:

G. Oddur Víðisson

Sigurbjörn Hjaltason

fagRáð

Arinbjörn Vilhjálmsson Garðabær

Birgir H. Sigurðsson Kópavogur

Bjarki Jóhannesson Hafnarfjörður

Finnur Birgisson Mosfellsbær

Haraldur Sigurðsson Reykjavík

Jón Eiríkur Guðmundsson Kjós

Þórður Ó. Búasson Seltjarnarnes

lJÓSMYndiR

Páll Guðjónsson

Hönnun

darriulfsson.com

fagHÓpuR

Hrafnkell Á. Proppé

Jón Kjartan Ágústsson

Hildigunnur Haraldsdóttir

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir

Matthildur Kr. Elmarsdóttir

Þorsteinn R. Hermannsson

Þráinn Hauksson

Page 3: Höfuðborgarsvæðið 2040

5

kYnning, SaMþYkkT og STaðfeSTing

Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins er unnið í samræmi

við 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samkomulag um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins

var undirritað 24. ágúst 2012.

Svæðisskipulagsnefnd samþykkti verkefnislýsingu

skv. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga, 24. maí - 2013.

Tillagan sem hér er lögð fram eru drög að nýju svæðis-

skipulagi höfuðborgarsvæðisins, til kynningar á vinnslu-

stig og umsagnar skv. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga.

Page 4: Höfuðborgarsvæðið 2040

6

Sýn Höfuðborgarsvæðisins 2040

Höfuðborgarsvæðið er eina borgarsvæðið á Íslandi

og gegnir veigamiklu hlutverki sem miðstöð

stjórnsýslu, menntunar og menningar fyrir landið allt. Í

nútímasamfélagi, þar sem fólk, fyrirtæki og fjármagn eru

hreyfanleg, hafa öflug borgarsvæði sífellt meira vægi sem

drifkraftur nýsköpunar og nýrra tækifæra. Það er lykilatriði

í samkeppnisstöðu landsins að höfuðborgarsvæðið verði

nútímalegt borgarsamfélag með alþjóðlegu yfirbragði

þar sem lífskjör og tækifæri verði sambærileg við bestu

borgir. Höfuðborgarsvæðið 2040 er sameiginleg áætlun

sveitarfélaganna um náið samstarf um skipulagsmál og

markvissan vöxt svæðisins næstu 25 árin.

Höfuðborgarsvæðið hefur verið í örum vexti og allt bendir

til að svo verði áfram. Lykilatriði er að sá vöxtur verði

hagkvæmur og ekki verði gengið á umhverfisgæði þeirra

sem þar búa fyrir. Það er því nauðsynlegt að fyrirsjáanlegri

fólksfjölgun verði mætt án þess að bílaumferð aukist

í sama hlutfalli og án þess að óbyggt land verði brotið

í sama mæli og síðustu áratugi. Nýtt hágæðakerfi

almenningssamgangna, Borgarlína, getur gengt þar

lykilhlutverki og tengt kjarna allra sveitarfélaganna saman

með samgöngu- og þróunarási. Með Borgarlínu verður

til skilvirkur valkostur í samgöngum sem auðveldar fólki

að ferðast um höfuðborgarsvæðið og nota aðra vistvæna

ferðamáta s.s. hjólreiðar.

Höfuðborgarsvæðið er eitt búsetusvæði, einn atvinnu- og húsnæðismarkaður með sameiginleg grunnkerfi, útivistarsvæði, auðlindir og náttúru.

Byggðarþróun verður samofin góðu samgönguneti.

Uppbyggingu íbúða og atvinnu verður beint í sem mestum

mæli inn á svæði sem njóta góðra almenningssamgangna.

Farþegagrunnur almenningssamgangna verður því styrktur

og þannig skapast skilyrði fyrir bætta þjónustu. Borgarlína

og samgöngumiðuð uppbygging sem beint er á miðkjarna

víðsvegar um höfuðborgarsvæðið mun styrkja öll hverfi

á höfuðborgarsvæðinu. Álag á miðborgina minnkar með

því að skapa fleiri eftirsóknarverð svæði sem eru tengd

hágæða almenningssamgöngum.

Hið gjöfula samstarf sem lagður er grunnur að í

nýju svæðisskipulagi - Höfuðborgarsvæðið 2040 -

verður drifkraftur fyrir farsæla uppbyggingu nútíma

borgararsvæðis þar sem unnið verði að sjálfbærri þróun.

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru ólík og mikilvægt

er að þau fóstri sín sérkenni til að allir geti fundið byggð við

sitt hæfi. Þannig verði skapaður frjósamur jarðvegur sem

laði það besta fram á svæðinu öllu.

Page 5: Höfuðborgarsvæðið 2040

7Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

ÞEMAKORT OG SKýRINGARMyND

Þemakort til vinstri sýnir meginstef Höfuðborgarsvæðisins 2040 um kjarna og vaxtamörk. Dregin er upp einföld skýringarmynd af höfuðborgarsvæðinu með kjörnum og samgöngu- og þróunarás sem tengir sveitarfélögin saman meðfram nýjum almenningssamgöngum - Borgalínu. Nánari umfjöllun um stefnuna er í 3. kafla.

Page 6: Höfuðborgarsvæðið 2040

8

Ávarp

Heildin er sterkari en summa einstakra hluta er stundum haft á orði

þegar ólíkir þættir koma saman og mynda eina sterka heild. Þetta

orðatiltæki á vel við á höfuðborgarsvæðinu þar sem við höfum sjö ólík

sveitarfélög sem öll hafa sína sérstöðu en njóta um leið nálægðarinnar

hvert við annað. Þessi mynd er staðfest í nýju svæðisskipulagi sem hér

er kynnt

Höfuðborgarsvæðið er eitt búsetusvæði og íbúar þess njóta

sameiginlega þeirra gæða sem það býður upp á, hvort sem horft

er til menningar, útivistarsvæða eða atvinnutækifæra. Með góðri

samvinnu sveitarfélaganna og sameiginlegri stefnu um byggðaþróun,

samgöngumál og umhverfismál svo dæmi séu tekin aukast lífsgæði

íbúa, hægt verður að bjóða upp á betri þjónustu og um leið stuðla að

aukinni hagkvæmni og sjálfbærni. Í samvinnunni felast gullin tækifæri

sem við eigum að vera óhrædd við að grípa.

Um leið og við styrkjum heildina inn á við með lífsgæði íbúa í huga

styrkist hún jafnframt út á við. Höfuðborgarsvæðið er auk íslenskrar

náttúru það sem helst dregur ferðamenn og fjárfesta til landsins. Með

því að styrkja höfuðborgarsvæðið eru undirstöður atvinnulífsins styrktar

og svæðið verður eftirsóknarverðara heim að sækja bæði fyrir landa

okkar af landsbyggðinni og þá sem koma lengra að.

Gunnar Einarsson,

bæjarstjóri Garðabæjar

og formaður stjórnar SSH

Page 7: Höfuðborgarsvæðið 2040

9Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

Page 8: Höfuðborgarsvæðið 2040

10

Í fyrsta kafla er fjallað um hvers konar svæðisskipulag Höfuðborgarsvæðið 2040 er, gerð grein fyrir sögulegu samhengi þess og lykilhugtök skýrð.

Annar kafli dregur fram þær áskoranir sem höfuðborgarsvæðið stendur frammi fyrir næstu áratugi og nauðsynlegt er að svæðisskipulagið taki mið af.

Í þriðja kafla er stefnan sett fram undir leiðarljósum, í markmiðum og aðgerðum. Stefnan er skýrð frekar með þemakortum og skýringarmyndum.

Fjórði kafli er helgaður framfylgd og árangursmati Höfuðborgarsvæðisins 2040.

Í fimmta kafla er að finna lýsingu á hvernig umhverfisáhrif stefnunnar voru metin og tilgreind þau viðmið sem höfðu áhrif á mótun stefnunnar.

Page 9: Höfuðborgarsvæðið 2040

11Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

HVAÐ ER HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 2040?Inngangur

Hvernig er Höfuðborgasvæðið 2040 frábrugðið eldra svæðisskipulagi?

Hvernig ber að túlka Höfuðborgarsvæðið 2040?

Skilgreiningar

Sögulegt og landfæðilegt samhengi

UMHVERFISMAT SVÆÐISSKIPULAGSTILLLÖGUNANRTilgangur og nálgun

Áfangaskipting

Samræmi milli stefnu svæðisskipulags og matsspurninga

HELSTU ÁSKORANIRÁframhaldandi vöxtur

Fækkun í heimili og breyttar húsnæðisþarfir

Samvinna enn í mótun

Alþjóðleg samkeppnishæfni

Breytingar í umhverfi - loft, lögur og láð

Lýðheilsa

INNLEIÐING OG ÁRANGURSMÆLINGLEIÐARLJÓS 6: Árangursríkt samstarf um þróun höfuðborgarssvæðisins

Innleiðing í skipulagsáætlanir

Endurskoðun

Árangursmæling

HEIMILdASKRÁ

VIÐAUKIMatsþættir og matspurningar

EFNISYFIRLIT

bls 12

14

14

15

15

16

18

20

21

22

22

23

23

24

28

36

48

54

64

70

72

75

79

79

81

86

88

90

90

100

102

102

STEFNA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 2040LEIÐARLJÓS 1: Hagkvæmur vöxtur höfuðborgarsvæðisins

LEIÐARLJÓS 2. Skilvirkar samgöngur og nútímalegt samgöngukerfi

LEIÐARLJÓS 3: Aukin alþjóðleg samkeppnishæfni

LEIÐARLJÓS 4: Heilnæmt umhverfi

LEIÐARLJÓS 5. Gott nærumhverfi.

Landnotkun megindrættir

123

54

Page 10: Höfuðborgarsvæðið 2040

12

1 // Inngangur

1

Page 11: Höfuðborgarsvæðið 2040

13

HVAÐ ER HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 2040?Inngangur

Hvernig er Höfuðborgasvæðið 2040 frábrugðið eldra svæðisskipulagi?

Hvernig ber að túlka Höfuðborgarsvæðið 2040?

Skilgreiningar

Sögulegt og landfæðilegt samhengi

23

54

UMHVERFISMAT SVÆÐISSKIPULAGSTILLLÖGUNANRTilgangur og nálgun

Áfangaskipting

Samræmi milli stefnu svæðisskipulags og matsspurninga

HELSTU ÁSKORANIRÁframhaldandi vöxtur

Fækkun í heimili og breyttar húsnæðisþarfir

Samvinna enn í mótun

Alþjóðleg samkeppnishæfni

Breytingar í umhverfi - loft, lögur og láð

Lýðheilsa

INNLEIÐING OG ÁRANGURSMÆLINGLEIÐARLJÓS 6: Árangursríkt samstarf um þróun höfuðborgarssvæðisins

Innleiðing í skipulagsáætlanir

Endurskoðun

Árangursmæling

STEFNA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 2040LEIÐARLJÓS 1: Hagkvæmur vöxtur höfuðborgarsvæðisins

LEIÐARLJÓS 2. Skilvirkar samgöngur og nútímalegt samgöngukerfi

LEIÐARLJÓS 3: Aukin alþjóðleg samkeppnishæfni

LEIÐARLJÓS 4: Heilnæmt umhverfi

LEIÐARLJÓS 5. Gott nærumhverfi.

Landnotkun megindrættir

Page 12: Höfuðborgarsvæðið 2040

14

1 // Hvað er Höfuðborgarsvæðið 2040

HVAÐ ER HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu samþykktu í ágúst

2012, með sérstöku samkomulagi, að vinna að heildarendur-

skoðun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. Nýtt

svæðisskipulag skyldi taka mið að þeim eðlisbreytingum

sem urðu á svæðisskipulagsstiginu með nýju skipulags-

lögum. Skrifstofu SSH var falin verkefnisstjórn og í lok árs

2012 var ráðinn svæðisskipulagsstjóri til að leiða verkefnið

í samvinnu við svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðis-

ins. Margir hafa komið að verkefninu; þverfaglegt ráðgjafa-

teymi, stutt lykilstarfsmönnum sveitarfélaga, mótaði

verkefnið og einnig var haft samráð við lykilstofnanir

s.s. Vegagerðina og Skipulagsstofnun.

Nýtt svæðisskipulag, sem hefur fengið yfirskriftina Höfuð-

borgarsvæðið 2040, er sameiginleg áætlun sveitarfélaganna

um uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu til næstu 25 ára.

Í Höfuðborgarsvæðinu 2040 er að finna ýmis nýmæli og

breytingar frá svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-

2024 og verður hér gerð grein fyrir þeim helstu og hvernig

áætlunin nýtist sveitarfélögunum og öðrum hagsmunaaðil-

um við þróun byggðar.

Með nýjum skipulagslögum nr. 123/2010 var lögfest að

ávallt skuli vera í gildi svæðisskipulag fyrir höfuðborgar-

svæðið. Í skipulagslögum og skipulagsreglugerð 090/2013

kemur fram skýr vilji löggjafans til að skerpa á ólíku

hlutverki skipulagsáætlana eftir skipulagsstigum, samspili

þeirra og koma í veg fyrir óþarfa skörun. Lögð er áhersla á

að breyta umgjörð svæðisskipulags frá því að vera stað-

bundið landnotkunarskipulag yfir í að móta sameiginlega

sýn, með meginstefnu um helstu hagsmunaþætti sveitar-

félaganna, sem aðrar skipulagsáætlanir byggja á.

Höfuðborgarsvæðið 2040 er því stefnumótandi áætlun þar

sem sett eru fram leiðarljós og markmið og aðgerðir sem

miða að þeim, um þau viðfangsefni sem snerta sameigin-

leg hagsmunamál sveitarfélaganna.

Svæðisskipulaginu er ekki ætlað að fjalla um einstakar

framkvæmdir eða útfæra nákvæmlega staðsetningu

ákveðinnar landnotkunar. Slíkar ákvarðanir eru settar fram

og útfærðar í aðalskipulagi sveitarfélaganna sem skulu

vera í samræmi við stefnumarkandi áherslur Höfuðborgar-

svæðisins 2040.

Inngangur

Hvernig er Höfuðborgasvæðið 2040frábrugðið eldra svæðis-skipulagi?

Page 13: Höfuðborgarsvæðið 2040

15Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

1 // Hvað er Höfuðborgarsvæðið 2040

Það er mikilvægt að skilningur sé til staðar á þeim eðlis-

mun sem felst í Höfuðborgarsvæðinu 2040 og hefðbundnu

landnotkunarskipulagi. Stefnan er sett fram í greinargerð

og á leiðbeinandi þemaukortum sem marka umgjörð um

aðalskipulagsáætlanir sveitarfélaganna.

Sögulegt og landfræðilegt samhengi

Hvernig ber að túlka Höfuðborgarsvæðið 2040?

Höfuðborgarsvæðið 2040 endurspeglar þá þróun sem

hefur orðið á sviði skipulagsmála á heimsvísu þar sem

borgarsvæði eru skipulögð í víðu samhengi til að takast

á við flókin viðgangsefni sem nái yfir stjórnsýslumörk.

Umgjörðin er því sveigjanleg og lögð eru fram leiðbeinandi

viðmið um útfærslur sem skulu eiga sér stað á aðal-

skipulagsstigi sveitarfélaganna.

Nánar er fjallað um framkvæmd og eftirfylgni Höfuðborgar-

svæðisins 2040 í kafla 4.

Allt frá því að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu

hófu með sér formlegt samstarf árið 1976 með stofnun

Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hafa

skipulagsmál verið eitt af megin verkefnunum. Þetta

svæðisskipulag er það þriðja frá upphafi og leysir af hólmi

svæðisskipulag höfuðborgarsvæðissins 2001 - 2024.

Svæðisskipulag er skipulagsáætlun tveggja eða fleiri

sveitarfélaga sem varðar sameiginlega hagsmuni

þeirra. Sjö sveitarfélög standa að svæðisskipulagi

höfuðborgarsvæðisins: Garðabær, Hafnarfjörður,

Kjósarhreppur, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík

og Seltjarnarnes.

Þessi sveitarfélög eiga í margþættu samstarfi með

formlegum samstarfsverkefnum s.s. Sorpu bs., Strætó

bs., skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins og slökkviliði

höfuðborgarsvæðisins. Einnig er samstarf um framtíðar

stefnumótun með gerð sóknaráætlunar og endurskoðun

á vatnsverndarsvæðum. Höfuðborgarsvæðið 2040 tekur

mið af þessum samstarfverkefnum sveitarfélaganna,

sem skjóta styrkari stoðum undir árangursríkt samstarf

sveitarfélaganna.

Page 14: Höfuðborgarsvæðið 2040

16

1 // Hvað er Höfuðborgarsvæðið 2040

SKILGREININGAR

Blönduð byggð• Markmið blandaðrar byggðar er að nýta land með hagkvæmum

hætti, stuðla að fjölbreyttu og líflegu borgarumhverfi, bættu

aðgengi að þjónustu, styttri fjarlægðum milli heimilis og vinnu,

minni ferðaþörf og því minni bílnotkun og mengun.

Borgarbyggð• Með borgarbyggð er vísað til alls þéttbýlis innan vaxtarmarka.

• Um er að ræða samheiti yfir þéttbýli (e. urban) hvort sem um

ræðir úthverfi eða kjarna.

Borgarlína • Hágæða almenningssamgöngukerfi sem ferðast í eigin rými óháð

bílaumferð,

• Léttvagnar á teinum eða gúmmíhjólum (e. light rail / bus rapid

transit eða BRT)

• Viðbót við núverandi strætisvagnakerfi

Meginstofnvegir• Stofnvegir í Höfuðborgarsvæðinu 2040 eru flokkaðir í

meginstofnvegi og stofngötur með mismunandi áherslum.

• Meginstofnvegir tryggja greiða og örugga umferð fólks og vöru til

og frá höfuðborgarsvæðinu.

• Á meginstofnvegum er hugað að greiðu og öruggu flæði einka-

og þunga- umferðar.

• Sveitarfélög þurfa að tryggja rými og möguleika á aukinni

afkastagetu meginstofnvega ef þörf krefur.

• S.br. Leiðarljós 2 og þemauppdrátt undir Markmiði 2.4.

Miðkjarnar• Miðkjarnar eru þéttbyggð svæði með fjölbreytilega starfsemi og

gegna lykilhlutverki í þjónustu við nálæga byggð.

• Kjarnarnir eru flokkaðir í lands-, svæðis- og bæjarkjarna.

Einkennum þeirra er lýst í Töflu 2, bls. 34.

Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins• Skylt er að hafa svæðisskipulag yfir höfuðborgarsvæðið og á það

að ná yfir öll sveitarfélög innan vébanda SSH. Í svæðisskipulagi

er sett er fram sameiginleg stefna um byggðaþróun og þá

þætti landnotkunar sem talin er þörf á að samræma vegna

sameiginlegra hagsmuna hlutaðeigandi sveitarfélaga.

Samgöngu- og þróunarás• Kjarnar og uppbyggingarsvæði sem tengja saman sveitarfélögin

línulega.

• Borgarlínan (nýtt hágæða almenningssamgöngukerfi e. light rail /

bus rapid transit eða BRT) myndar ásinn, byggðinn er þéttust við

biðstöðvar.

Samgöngumiðuð þróunarsvæði• (e. Transit oriented development) Reitir sem eru vel tengdir við

almenningssamgöngur, Borgarlínu eða hefðbundum strætó með

hátt þjónustustig.

• Viðbót við miðkjarna en viðmið um einnkenni eru samskonar og á

miðkjörnum, sjá töflu 2.

Stofngötur• Stofnvegir í Höfuðborgarsvæðinu 2040 eru flokkaðir í

meginstofnvegi og stofngötur með mismunandi áherslum.

• Stofngötur geta þróast með bætta sambúð þéttbýlis og umferðar

að leiðarljósi

• Áhersla að draga úr neikvæðum áhrifum umferðar á

nærumhverfi.

• Geta þróast í borgargötur, án þess að dregið verði úr afkastagetu

þeirra.

Vaxtarmörk• Vaxtarmörkum þéttbýlis höfuðborgarsvæðisins er ætlað að skapa

skýr skil milli þéttbýlis og dreifbýlis með áherslu á sjálfbæra

byggð og varðveislu náttúrusvæða og landbúnaðarlands.

• Skýr vaxtarmörk hjálpa sveitarfélögum að ná fram hagkvæmri

byggðarþróun og stýra vexti byggðarinnar í átt að vel

tengdum svæðum meðfram samgönguneti stofnvegakerfis og

almenningssamganga.

Page 15: Höfuðborgarsvæðið 2040

17Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

1 // Hvað er Höfuðborgarsvæðið 2040

SVEITARFéLöG SEM MyNDA HöFUðBORGARSVæðIð

KJÓSARHREPPUR

REyKJAVÍKURBORG

MOSFELLSBæR

KÓPAVOGSBæR

KRÍSUVÍK

GARðABæR

HAFNARFJARðAKAUPSTAPUR

SELTJARNARNESKAUPSTAðUR

Page 16: Höfuðborgarsvæðið 2040

18

1 // Inngangur

2

Page 17: Höfuðborgarsvæðið 2040

19

1

3

54

HVAÐ ER HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 2040?Inngangur

Hvernig er Höfuðborgasvæðið 2040 frábrugðið eldra svæðisskipulagi?

Hvernig ber að túlka Höfuðborgarsvæðið 2040?

Skilgreiningar

Sögulegt og landfæðilegt samhengi

UMHVERFISMAT SVÆÐISSKIPULAGSTILLLÖGUNANRTilgangur og nálgun

Áfangaskipting

Samræmi milli stefnu svæðisskipulags og matsspurninga

HELSTU ÁSKORANIRÁframhaldandi vöxtur

Fækkun í heimili og breyttar húsnæðisþarfir

Samvinna enn í mótun

Alþjóðleg samkeppnishæfni

Breytingar í umhverfi - loft, lögur og láð

Lýðheilsa

INNLEIÐING OG ÁRANGURSMÆLINGLEIÐARLJÓS 6: Árangursríkt samstarf um þróun höfuðborgarssvæðisins

Innleiðing í skipulagsáætlanir

Endurskoðun

Árangursmæling

STEFNA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 2040LEIÐARLJÓS 1: Hagkvæmur vöxtur höfuðborgarsvæðisins

LEIÐARLJÓS 2. Skilvirkar samgöngur og nútímalegt samgöngukerfi

LEIÐARLJÓS 3: Aukin alþjóðleg samkeppnishæfni

LEIÐARLJÓS 4: Heilnæmt umhverfi

LEIÐARLJÓS 5. Gott nærumhverfi.

Landnotkun megindrættir

Page 18: Höfuðborgarsvæðið 2040

20

2 // Helstu áskoranir

HELSTU ÁSKORANIR

Áframhaldandi vöxtur

Höfuðborgarsvæðið hefur verið í örum vexti frá því í byrj-

un síðustu aldar og dregið að sér sífellt stærra hlutfall af

landsmönnum öllum. Síðustu 25 ár fjölgaði íbúum svæðisins

um 70.000 og gera má ráð fyrir að til ársins 2040 haldi íbúa-

fjöldinn áfram að vaxa.

Þéttbýlið á höfuðborgarsvæðinu er nú orðið nær samfellt

frá Hafnarfirði í suðri til Mosfellsbæjar í norðri. Hin síðari ár

hefur byggðin þynnst verulega, þannig að meira landrými fer

nú undir hvern íbúa en nokkru sinni fyrr. Árið 2012 bjuggu að

meðaltali 35,5 íbúar á hverjum hektara, sem er mjög dreifð

byggð fyrir borgarsvæði. Gert er ráð fyrir að árleg fjölgun

verði um 1,1% og til ársins 2040 fjölgi íbúum á höfuðborgar-

svæðinu um ríflega 70.000. Á sama tíma og íbúum fjölgar

benda spár til mikillar fjölgunar ferðamanna. Einnig má gera

ráð fyrir að íbúum nágrannabyggða fjölgi töluvert og íbúar

þar muni í auknum mæli sækja vinnu, nám og þjónustu á

höfuðborgarsvæðið.

Landrými til uppbyggingar á höfuðborgarsvæðinu er tak-

mörkuð auðlind og erfitt er að halda áfram að dreifa upp-

byggingu út frá núverandi byggð. Árið 1985 voru íbúar á höf-

uðborgarsvæðinu um 133.000 eða ríflega 70 þúsund færri

en árið 2012. Þá bjuggu að meðaltali 54 íbúar á hektara, en

árið 2012 var það hlutfall komið niður í 35 ibúa á hektara. Frá

1985 hafa 37,5 km2 verið teknir undir íbúðabyggð, sem er

álíka stórt landsvæði og Reykjavík vestan Suðurlandsvegar

ásamt Seltjarnarnesi. Nær ómögulegt verður að finna svo

mikið byggingarland fyrir næstu 70 þúsund íbúa þegar tekið

er tillit til allra takmarkana sem eru á landnotkun.

Fólksfjölgun fylgir aukið álag á inniviði höfuðborgarsvæðis-

ins. Bílaumferð hefur vaxið hlutfallslega meira en íbúafjöldi

síðustu áratugi með breytingum á ferðavenjum. Lengd ferða

hefur aukist eftir því sem mörk byggðarinnar hafa þanist út.

Hlutfall ferða sem farnar eru á bíl á höfuðborgarsvæðinu er

með því hæsta sem finnst í borgum af sambærilegri stærð

á norðlægum slóðum eða um 75%. Hlutdeild almennings-

samgangna í ferðum innan svæðisins er lág í alþjóðlegum

samanburði, einungis 4% ferða.

135.000Íbúafjöldi

Dreifingbyggðar

Íbúar / Ha

205.000 275.000

1985 2012 2040

54 35 4054 35 40

135.000 205.000

67.500 125.50067.500 125.500

275.000

Fjöldi fólksbíla

Page 19: Höfuðborgarsvæðið 2040

21Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

2 // Helstu áskoranir

Aldursskipting íbúa á höfuðborgarsvæðinu hefur breyst

verulega á síðustu 20 árum og hefur miðaldur hækkað úr

31.3 árum í 34.2 ár. Gert er ráð fyrir að þessi þróun muni

halda áfram á næstu áratugum. Til ársins 2040 verður lang

mest fjölgun í elsta aldurshópnum, 67 ára og eldri, eða um

38%. Samhliða þeirri þróun verður hægari fjölgun í aldurs-

hópnum 20-39 ára eða um 13% aukning.

Þróun í lýðfræði á höfuðborgarsvæðinu bendir í þá átt að

heimilum án barna fjölgi hlutfallslega meira en heimilum

með börn. Þróun á sambærilegum borgarsvæðum erlendis

gefur vísbendingar um hvert þróunin stefnir og hvaða áhrif

það mun hafa á breyttar kröfur til húsnæðismarkaðarins,

þ.e.a.s. þörf á húsnæði fyrir einstaklinga og barnslausar

fjölskyldur.

Breytt í aldurssamsetning og fjölskyldumynstur eru líkleg til

að hafa markverð áhrif á húsnæðismarkaðarinn. Á grund-

velli þessa má gera ráð fyrir hlutfallslega minni spurn eftir

íbúðum fyrir barnafólk. Sú aukna spurn sem er nú eftir minni

íbúðum er því líkleg til að verða viðvarandi, sérstaklega í ljósi

mikillar fjölgunar í aldurshópnum 67 ára og eldri.

Erfiðleika hefur gætt á húsnæðismarkaði á höfuðborgar-

svæðinu síðustu árin. Skortur á húsnæði á viðráðanlegu

verði hefur aukist verulega frá efnahagshruni jafnt til kaups

og leigu. Leigumarkaðurinn hefur lengi verið óstöðugur og

íbúar haft lítið annað val en að fjárfesta í eigin húsnæði.

Kannanir sem gerðar hafa verið, sýna aukna ásókn í smærri

íbúðir miðsvæðis þar sem gott aðgengi er að margvíslegri

þjónustu. Að sama skapi hefur verið erfiður markaður fyrir

stór einbýlishús í jaðri höfuðborgarsvæðisins.

0-19

21%

14.500 9.000

2010 2020 2030 2040

20.000

70.000

26.500

13% 29% 38%

Fjölgun aldurshópa frá 2010 – 2040

20-39 40-66 67+

Fækkun í heimili og breyttar húsnæðisþarfir

Í upphafi skipulagstímabilsins eru um 126 þús. fólksbifreið-

ar á skrá á höfuðborgarsvæðinu. Að jafnaði eru því yfir 1,5

fólksbifreið á hverju heimili. Ef fólksbifreiðum fjölgar í sama

hlutfalli og íbúum og ferðavenjur verða óbreyttar, munu rúm-

lega 40 þús. fólksbifreiðar bætast við bílaflota höfuðborgar-

svæðisins til ársins 2040. Það jafngildir öllum fólksbifreiðum

í Kópavogi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ.

Page 20: Höfuðborgarsvæðið 2040

22

2 // Helstu áskoranir

Samtök sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu (SSH) voru

sérstaklega stofnuð árið 1976 sem samstarsvettvangur um

skipulagsmál. Á þeim tæpu 40 árum sem sveitarfélögin

hafa átt samvinnu í gegnum SSH, hafa samtökin gengið í

gegnum nokkur skeið þar sem mismikil áhersla er lögð á

skipulagsmál. Frá efnahagshruni hefur verið ríkt samstarf

milli aðildarsveitarfélaga.

SSH eru ekki formlegt stjórnvald né heldur er sveitarfé-

lögunum skylt að eiga aðild að samtökunum, því hvílir

samstarf sveitarfélaganna á veikum grunni. Svæðisskipulag

höfuðborgarsvæðisins er eina lögbundna samstarfsverk-

efnið. Sveitarstjórnir skipa stóran sess í stjórnsýslu landsins

þar sem hér eru einungis tvö stjórnsýslustig, ríki og sveitar-

félög. Sveitarstjórnarlög tryggja hverju sveitarfélagi sjálfs-

ákvörðunarrétt og samstarf sveitarfélaga kristallast á þeim

rétti. Grunnurinn að samstarfinu er því aldrei sterkari en svo

að sveitarfélögin verða að sjá sér beinan hag í samstarfi.

Nýtt svæðisskipulag er mótað á þessum samstarfsgrunni

og út frá skipulagslögum. Mikilvægt er að draga lærdóm af

reynslunni við framfylgd svæðisskipulags höfuðborgarsvæð-

isins 2001 - 2024. Þar lögðu sveitarfélögin upp í metnaðar-

fullan leiðangur og lögðu mikið í mótun skipulagsins. Hins

vegar varð framfylgdinni verulega ábótavant. Lærdómurinn

af því skipulagi er sá, að ef stefnumótandi skipulag á að

nýtast sem gott stjórntæki, er nauðsynlegt að því sé stöðugt

haldið við og samvinnunni sleppi ekki eftir staðfestingu.

Fólksflutningar úr dreifbýli í þéttbýli - sérstaklega í borg-

arumhverfi - er ein stærsta umbreyting á ásýnd byggðar í

heiminum á síðustu öld. Fátt bendir til að sú þróun muni

hætta, þó víst sé að það hægi töluvert á henni, sérstaklega

í þróuðum hagkerfum líkt og á Íslandi. Alþjóðleg samkeppni

milli borgarsvæða harðnar með hverju ári og helst í hendur

við flæði fólks, fjármagns og fyrirtækja þvert á landamæri

og landshluta. Kröfur eru gerðar um spennandi umhverfi til

að starfa í , búa í og stunda tómstundir. Borgir eru efna-

hagslegur drifkraftur þjóðríkja og suðupottur hugmynda og

nýsköpunar.

Í nýlegum úttektum hefur komið í ljós að höfuðborgarsvæð-

ið stendur hinum Norðurlöndunum að baki (PWC, 2012)

samhliða því sem samkeppnishæfni Íslands hefur lækkað í

alþjóðlegum samanburði (IMD, 2013).

Ísland er fámennt land og höfuðborgarsvæðið eina borgar-

svæðið. Höfuðborgarsvæðið á því ekki í samkeppni við önn-

ur borgarsvæði innanlands, heldur mun frekar samkeppni

við erlendar borgir með íbúafjöldann 100.000-500.000 íbúa.

Mikilvægt er að landið verði áfram valkostur fyrir vel mennt-

að fólk til að setjast að.

Með markvissu skipulagi má móta umgjörð um ýmsa

málaflokka á borð við lífsgæði, sjálfbærni, heilsu, öryggi og

samgöngur, sem vega þungt í samkeppnishæfni svæða út

á við. Hæfni til nýsköpunar er forsenda samkeppnishæfni

borga sem og ríkja í nútímasamfélagi.

Mannauður og nýsköpun

Meiri

Minni

Tiltæk tækni Innviðir Heilbrigði og öryggi

Sjálfbærni Alþjóðleg efnahagsumsvif

Vingjarnlegt efnahagsumhverfi

Kostnaður LífsgæðiAlþjóðleg gátt

Stokkhólmur

Reykjavík

Osló

Kaupmannahöfn

Helsinki

Samvinna enn í mótun Alþjóðleg samkeppnishæfni

Mæling á samkeppnishæfni Skandinavískra höfuðborga í 10 málaflokkum. Markvisst skipulag og áætlanagerð getur haft mikil áhrif á þróun málaflokkanna, (PWC. 2012).

Page 21: Höfuðborgarsvæðið 2040

23Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

2 // Helstu áskoranir

Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu ráðast að miklu leyti af auk-

inni bílaumferð en hún hefur aukist mikið sl. áratugi með til-

heyrandi útstreymi gróðurhúsalofttegunda og svifryksmeng-

un. Auk áhrifa á loftgæði leiðir losun gróðurhúsalofttegunda

til hærra hitastigs og hlýnunar á jörðinni. Mikilvægt er því

að draga úr losun og eru margvíslegar mótvægisaðgerðir

mögulegar t.d. í samgöngum með aukinni notkun almenn-

ingssamgangna og að fleiri velji að hjóla eða ganga (Bryn-

hildur Davíðsdóttir o.fl., 2009). En til að slíkar mótvægisað-

gerðir í samgöngum gangi upp þarf að stemma stigu við

útþenslu borgarinnar, beina vextinum í auknum mæli innávið

og ná þannig að byggja upp hagkvæmar samgöngur.

Athafnir manna á síðustu 50 árum hafa haft meiri áhrif á

vistkerfi heimsins en á nokkru öðru tímabili í sögu mannsins

og dregið hefur úr líffræðilegum fjölbreytileika. Þeir þættir

sem hafa valdið mestum áhrifum, eru m.a. eyðing búsvæða,

ósjálfbær nýting náttúruauðlinda og mengun.

Mörg heilsuvandamál nútímans, svo sem hjartasjúkdómar,

sykursýki, offita, stoðkerfisverkir og þunglyndi, tengjast

lífstíl sem einkennist af kyrrsetu og hreyfingarleysi. Sein-

ustu áratugi hafa rannsóknir dregið fram að mjög miklar

líkur séu að skipulag byggðar og umhverfis þettbýlis geti

örvað eða latt fólk til útiveru og hollra lifnaðarhátta. Skipulag

sem einkennist af stuttum vegalengdum, þéttri byggð,

blöndun íbúða og atvinnustarfsemi, áherslu á almennings-

samgöngur, göngu og hjólreiðar ásamt góðu aðgengi að

útivistarsvæðum, ýtir undir hreyfingu fólks.

Áhrif umhverfisins á sálfræðilegar eða andlegar hliðar heilsu

skipta líka máli og leita þarf leiða til þess að gera borgarum-

hverfið þannig úr garði að það auki vellíðan, bæti andlega

heilsu og hvetji til hreyfingar.

Umhverfi má telja heilsuvænt ef það:

• Tryggirhreintvatnogloftogeralmenntómengað.

• Hveturfólktilreglubundinnarhreyfingar.

• Kveikirjákvæðarhugsanirogtilfinningaroggefurfæriá

að slaka á og endurnærast.

• Ýtirundiraðfólkhittistogeigisamskiptisemstyrkir

bæði félagslega heilsu einstaklinga og samfélagsins.

• Hefursterksérkennisemskapaskýraímyndíhugum

fólks sem aftur styrkir sjálfsmynd einstaklinga og sam-

félags.

Niðurstöður rannsókna um jákvæð áhrif náttúrunnar á heilsu

manna gefa líka tilefni til að huga betur að því hvaða hlut-

verki náttúrulegir þættir eins og vatn, fuglalíf, tré og annar

gróður geta gengt í að skapa heilnæmt borgarumhverfi.

Breytingar í umhverfi - loft, lögur og láð Lýðheilsa

Page 22: Höfuðborgarsvæðið 2040

24

1 // Inngangur

3

Page 23: Höfuðborgarsvæðið 2040

25

12

54

HVAÐ ER HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 2040?Inngangur

Hvernig er Höfuðborgasvæðið 2040 frábrugðið eldra svæðisskipulagi?

Hvernig ber að túlka Höfuðborgarsvæðið 2040?

Skilgreiningar

Sögulegt og landfæðilegt samhengi

UMHVERFISMAT SVÆÐISSKIPULAGSTILLLÖGUNANRTilgangur og nálgun

Áfangaskipting

Samræmi milli stefnu svæðisskipulags og matsspurninga

HELSTU ÁSKORANIRÁframhaldandi vöxtur

Fækkun í heimili og breyttar húsnæðisþarfir

Samvinna enn í mótun

Alþjóðleg samkeppnishæfni

Breytingar í umhverfi - loft, lögur og láð

Lýðheilsa

INNLEIÐING OG ÁRANGURSMÆLINGLEIÐARLJÓS 6: Árangursríkt samstarf um þróun höfuðborgarssvæðisins

Innleiðing í skipulagsáætlanir

Endurskoðun

Árangursmæling

STEFNA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 2040LEIÐARLJÓS 1: Hagkvæmur vöxtur höfuðborgarsvæðisins

LEIÐARLJÓS 2. Skilvirkar samgöngur og nútímalegt samgöngukerfi

LEIÐARLJÓS 3: Aukin alþjóðleg samkeppnishæfni

LEIÐARLJÓS 4: Heilnæmt umhverfi

LEIÐARLJÓS 5. Gott nærumhverfi.

Landnotkun megindrættir

Page 24: Höfuðborgarsvæðið 2040

26

3 // Stefna

STEFNA HÖFUÐBORGAR-SVÆÐISINS 2040

Höfuðborgarsvæðið 2040 er sameiginleg sýn á vöxt svæðis-

ins til næstu 25 ára. Það byggir á því sjónarmiði að aukin og

markviss samvinna sé lykillinn að farsælli úrlausn á því flókna

verkefni sem er uppbygging góðrar borgarbyggðar.

Stefna Höfuðborgarsvæðisins 2040 sem hér er lögð fram

markar stefnu í þeim málaflokkum sem sveitarfélögin vilja

vinna að breytingum á og sem talin er þörf á að samræma

vegna sameiginlegra hagsmuna. Höfuðborgarsvæðið 2040

er ekki allsherjar lausn á öllum þeim flóknu skipulagsvið-

fangsefnum sem íbúar svæðisins munu standa frammi fyrir

næstu 25 árin. Stefnan skapar hins vegar umgjörð um náið

samstarf sveitarfélaganna og er ætlað að stuðla að betri

skipulagsákvörðunum.

Stefna Höfuðborgarsvæðisins 2040 um þau viðfangsefni

sem lúta að nýtingu lands er sett fram undir fimm leiðarljós-

um sem hvert og eitt er brotið niður í ákveðin markmið. Undir

hverju markmiði hafa verið skilgreindar aðgerðir sem beinast

annars vegar að svæðisskipulagsnefnd og SSH og hinsvegar

að sveitarfélögunum og byggðasamlögum sem þau reka.

Einnig er athyglinni beint að nausynlegri aðkomu annarra s.s.

stjórnvalda, stofnana og félaga sem ekki lúta stjórn sveitar-

félaganna. Með þessu er lögð áhersla á mikilvægi fjölþættrar

aðkomu svo vel megi takast til við hið flókna úrlausnarefni

sem þróun höfuðborgarsvæðisins er.

Aðgerðir sem beinast að svæðisskipulagsnefnd, SSH og

sveitarfélögum eiga sér bakland í samkomulagi sem sveitar-

félögin gerðu með sér um gerð nýs svæðisskipulags, sóknar-

áætlun og öðrum stefnumótandi verkefnum. Þær aðgerðir

sem beinast að öðrum eiga oftast rætur í lögskipuðu hlutverki

þeirra eða koma úr fyrirliggjandi áætlunum eða öðrum stefnu-

skjölum. Dæmi um slíka áætlun er samgönguáætlun ríkisins.

Við mótun markmiða og aðgerða var sérstaklega litið til þeirra

áskoranna sem höfuðborgarsvæðið stendur frammi fyrir

og þeirrar sýnar sem stefnt er að. Jafnframt var stuðst við

umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar. Þar var settur fram

listi yfir þætti sem hafa áhrif á lýðheilsu og lífsgæði í borg-

um og hann yfirfarin m.t.t. sjálfbærni, samkeppnishæfni og

stefnu íslenskra stjórnvalda í umhverfis- og skipulagsmálum.

Við vinnslu umhverfismatsins voru matsþættirnir skilgreindir

út frá líkani Barton og Grant (2006), sjá 5. kafla. Við mótun

Höfuðborgarsvæðisins 2040 voru drög að stefnumiðum rýnd

m.t.t. samræmis við þessi viðmið um lýðheilsu, sjáfbærni og

samkeppnishæfni til að tryggja að áhrif stefnunnar á um-

hverfi, samfélag og efnahag yrðu sem jákvæðust.

Sá hluti stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040 sem snýr að

auknu samstarfi sveitarfélaganna um umgjörð og áherslu

skipulagsmála er sjötta leiðarljósið sem fær sérstaka umfjöll-

un í 4. kafla: Innleiðing og árangursmat. Þar er meðal annars

lagður grunnur að fjögurra ára þróunaráætlun sem gerðar

verða eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar með stefnu

Höfuðborgarsvæðisins 2040 að leiðarljósi.

Stefnan er sett fram í texta, á skýringarmyndum og með

þemakortum sem ekki eru eiginlegir skipulagsuppdrættir.

Page 25: Höfuðborgarsvæðið 2040

27Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

LEIðARLJÓS 1

Hagkvæmur vöxtur

Skýr mörk eru dregin milli þéttbýlis og dreif-

býlis. Vaxtamörk beina vexti í auknum mæli

að kjörnum og þróunarsvæðum með háu

þjónustustigi almenningssamgangna. Með

samgöngumiðaðri, blandaðri uppbyggingu

mun íbúum og störfum fjölga án þess að álag

á stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins aukist

í sama hlutfalli.

Gott ræktarland er verðmæti sem haldið

er við með vaxtarmörkum. Staðbundin mat-

vælaframleiðsla færist í vöxt og mikilvægt

er fyrir borgarsvæðið að öflugur landbúnaður

sé innan 50 km frá markaði.

LEIðARLJÓS 4

Heilnæmt umhverfi

Hreint loft, ómeðhöndlað drykkjarvatn, nálægð

við fjölbreytt útivistarsvæði og náttúrulegt

umhverfi eru undirstaða að lífsgæðum á höfuð-

borgarsvæðinu og marka sérstöðu svæðisins

umfram önnur borgarsvæði.

Íbúar höfuðborgarsvæðisins eiga greiðan

aðgang að sameiginlegu útivistarsvæði um-

hverfis borgina. Þetta gefur þeim færi á að

viðhalda góðri heilsu, slaka á og endurnærast,

hvort sem um ræðir ströndina, græna trefilinn,

heiðar eða fjöll.

Aukin samvinna er um nýtingu neysluvatns og

viðhald vatnsverndar.

LEIðARLJÓS 2

Skilvirkar samgöngur

Skipulag samgöngukerfis höfuðborgarsvæðis-

ins tryggir skilvirkum samgöngum fyrir íbúa,

atvinnulíf og sífellt fleiri gesti.. Áhersla er

lögð á eflingu hagkvæmra, vistvænna sam-

göngumáta sem auka ekki álag á stofnvega-

kerfið. Skilvirkni samgangna á mælikvarða

hagkvæmni og umhverfis er aukin.

Þétt og aðlaðandi uppbygging íbúða og

atvinnu í göngufæri frá almenningssamgöngu-

ásum gefur einstaklingum og fjölskyldum fjöl-

breytta valkosti í vali á ferðamáta, sem styður

við minni umhverfisáhrif, bætta lýðheilsu og

sparnað í samgöngukostnaði heimilanna.

Stofnleiðir vega, almenningssamgangna,

göngu og hjólreiða mynda heildstæð kerfi

sem tengja sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-

inu og stærri hverfiseiningar þeirra vel saman.

Þessi stofnkerfi eru samþætt þannig að veg-

farendur eigi auðvelt með að nota fleiri en

einn ferðamáta í hverri ferð kjósi þeir það.

LEIðARLJÓS 5

Gott nærumhverfi

Höfuðborgarsvæðið samanstendur af ólíkum

hverfum sem bjóða upp á mismunandi um-

hverfi fyrir einstaklinga, fjölskyldur

og atvinnulíf.

Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa aðgang

að viðeigandi húsnæðiskosti á viðráðanlegu

verði á öllum stigum lífsins. Íbúðarbyggð þarf

að mynda sólrík og skjólgóð nærsvæði, sem

stuðla að samveru fólks nærri heimilum. Íbúar

búa að góðu og vel hönnuðu borgarumhverfi,

sem er í sátt við veðurfar, sólfar, fyrirliggjandi

umhverfi og sérstöðu hvers sveitarfélags.

Sjálfbærar hverfiseiningar byggjast á fjöl-

breyttum húsakosti og blandaðri landnotkun

með nærþjónustu í göngufæri og aðgengi að

öflugu almenningssamgöngukerfi.

LEIðARLJÓS 3

Sókn og samkeppnishæfni

Höfuðborgarsvæðið er alþjóðlegt borgar-

svæði. Það verður að standa jafnfætis sam-

bærilegum borgarsvæðum í samkeppni um

mannauð, fjármagn og fjárfestingar.

Efnahagskerfi svæðisins byggir á margþættum

grunni sem svarar atvinnuþörfum einstaklinga

með ólíka menntun og starfsmannaþörfum

fyrirtækja.

Grunnur að aukinni samkeppnishæfni höfuð-

borgarsvæðisins fæst með því að beina fjár-

festingum í innviði sem auka við fjölbreytta

uppbyggingu atvinnulífsins. Sérstök áherslu

er lögð á nýsköpun og þekkingaruppbyggingu

og sköpun verðmætra og vel launaðra starfa.

LEIðARLJÓS 6 – Sjá 4. kafla

Árangursrík samvinna

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eiga með

sér náið, viðvarandi samstarf og vinna sameig-

inlega að byggðaþróun með sérstaka áherslu á

samþættingu skipulags byggðar, samgangna og

þjónustuframboðs. Samstarfsvettvangur er

á grunni SSH og verkefni unnin eftir stefnumótun

svæðisskipulagsnefndar.

Ein lykilafurð samstarfsins er virkt svæðisskipulag

sem nálgast skipulag höfuðborgarsvæðisins heild-

stætt og leiðbeinir þróun þess í átt að hagkvæmni

og sjálfbærni með hagsmuni heildarinnar að

leiðarljósi.

Viðhald lykiltalna sem snerta viðfangsefni svæðis-

skipulagsins er grunnurinn að góðri eftirfylgni.

Leitast er við að víkka samstarfið þannig að viðhald

lykiltalna nái yfir allt SV horn landsins.

Page 26: Höfuðborgarsvæðið 2040

28

1 // Inngangur

LEIÐARLJÓS 1

Hagkvæmur vöxtur höfuðborgarsvæðisins

Síðustu áratugi hefur vöxtur höfuðborgarsvæðisins leitt til

dreifðari byggðar og aukinna vegalengda. Byggðarþróun og

uppbygging þjónustu hefur á köflum verið ómarkviss og stutt

illa við markmið um sjálfbærni. Höfuðborgarsvæðið 2040 leggur

megináherslu á að fyrirsjáanlegri fólksfjölgun verði mætt þannig

að byggðin dreifi ekki óhóflega úr sér. Leiðarljós 1 styður sveitar-

félögin við að ná fram hagkvæmum vexti í þróun byggðar og

draga þar með úr útþenslu og óhagkvæmri uppbyggingu sem

hefur neikvæð áhrif á umhverfi og lífsgæði íbúa og takmörkuð

jákvæð hagræn áhrif.

Samgöngu- og þróunarás er hryggjastykkið í Höfuðborgar-

svæðinu 2040 og verður langtíma verkefni á samstarfsvettvangi

sveitarfélaganna í útfærslu og þróun. Í stefnu Höfuðborgarsvæð-

isins 2040 eru stigin fyrstu skref í skilgreiningu þróunarássins

og mörkun viðmiða fyrir áframhaldandi greiningu á endanlegri

legu, sem verður tekin að undangenginni ítarlegri kostnaðar- og

ábatagreiningu fyrir sveitarfélögin og notendur. Samgöngu- og

þróunarásinn mun tengja sveitarfélögin saman og liggja um

miðkjarna þeirra sbr. töflu 2, bls. 34. Samgöngumiðuð þróunar-

svæði skulu tengjast við samgöngu- og þróunarás með vist-

vænum samgöngum með háu þjónustustigi. Við ákvörðun um

legu hágæða almenningssamganga - Borgarlínu, á höfuðborgar-

svæðinu skal tekið mið af legu samgöngu- og þróunaráss.

Vaxtamörk marka skýr skil milli þéttbýlis og dreifbýlis. Nýrri byggð verður fyrst og fremst beint á samgöngumiðuð þróunarsvæði. Samgöngu- og þróunarás mun tengja sveitarfélögin saman og leggja grunn að nútíma almenningssamgöngum.

28

Samgöngu- og þróunarás er hryggjastykkið í nýju svæðisskipulagi og tengir sveitarfélögin saman. Kjarnar og þróunarsvæði við hann munu njóta nútíma almenningssamgangna og bjóða uppá eftirsóknaverð uppbyggingarsvæði.

Page 27: Höfuðborgarsvæðið 2040

29Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Eftirfarandi MARKMIÐ, sem endurspegla LEIÐARLJÓS 1, eru sett fram sem stefna Höfðborgarsvæðisins 2040:

Þróun þéttbýlis verður innan vaxtarmarka borgarbyggðar.

Meginþunga vaxtar verður beint á miðkjarna og önnur samgöngumiðuð þróunarsvæði. Hlutfall íbúðabyggðar á þeim svæðum vaxi úr 30% í 66% af allri borgarbyggðinni.

Gott landbúnaðarland verður nýtt undir matvælaframleiðslu og náttúruríkt umhverfi varðveitt.

1.1

1.2

1.3

Page 28: Höfuðborgarsvæðið 2040

30

3 // Stefna

markmið 1.1 Þróun þéttbýlis verður innan vaxtarmarka borgarbyggðar.

öll uppbygging þéttbýlis verður að eiga sér stað innan

skilgreindra vaxtarmarka. Nýrri íbúðarbyggð verði almennt

komið fyrir innan núverandi þéttbýlis eða í þéttu og sam-

felldu framhaldi af byggð sem fyrir er, eftir því sem stað-

hættir leyfa.

Byggðin verður látin þróast á þeim stöðum þar sem veðurfar

og loftslagsbreytingar hafa minnst áhrif á búsetu. Að jafnaði

skal velja byggðinni stað undir 100 m hæð yfir sjávarmáli þar

sem úrkoma og lágt hitastig að vetri hafa takmarkandi áhrif

á umferð um svæðið. Einnig þarf að taka sérstakt tillit til

hækkunar sjávar með staðsetningu byggðar við ströndina

og setningu lágmarkskvóta.

Fylgst verður grannt með mannfjöldaþróun og spár endur-

nýjaðar reglulega þannig að sveitarfélög og aðrir hagsmuna-

aðilar á byggingamarkaði séu með sem áreiðanlegastar

upplýsingar á hverjum tíma með það að markmiðið er

að stuðla að sem mestu jafnvægi á byggingarmarkaði.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

1.1.1 Svæðisskipulagsnefnd fylgist með og tryggir sam-

ræmi vaxtarmarka og aðalskipulagsáætlana sveitarfélaga.

1.1.2 SSH uppfærir mannfjöldaspá við gerð fjögurra ára

þróunaráætlunar og miðlar þeim upplýsingum til svæðis-

skipulagsnefndar og sveitarfélaganna vegna nauðsynlegrar

samræmingar.

Sveitarfélög og byggðarsamlög

1.1.3 Sveitarfélögin leggja vaxtarmörkin til grundavallar

sínum aðalskipulagsáætlum.

1.1.4 Sveitarfélögin, byggðarsamlög og veitustofnanir

taki mið af framtíðar þéttbýlismörkum við þróun stoðkerfa.

1.1.5 Sveitarfélögin taki mið af uppfærðum mannfjölda-

spám við gerð fjögurra ára þróunaráætlunar.

Aðkoma og aðgerðir annarra

1.1.6 Ríkið taki mið af vaxtarmörkum í sinni stefnumótun

og áætlanagerð.

Page 29: Höfuðborgarsvæðið 2040

31Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

LANDSKJARNI

SVæðISKJARNI

BæJARKJARNI

VAxTARMöRK

VEGIR

BORGARByGGð (2012)

Vaxtarmörkum er ætlað að skapa skýr skil milli þéttbýlis og dreifbýlis og stuðla að sjálfbærri byggð og varðveislu náttúrusvæða og landbúnaðarlands.

Page 30: Höfuðborgarsvæðið 2040

32

3 // Stefna

markmið 1.2 Meginþunga vaxtar verður beint á miðkjarna og önnur samgöngumiðuð þróunarsvæði. Hlutfall íbúðabyggðar á þeim svæðum vaxi úr 30% í 66% af allri borgarbyggðinni.

Meginþunga uppbyggingar verður beint á svæði meðfram

samgöngu- og þróunarás. Þar verða miðkjarnar og vel tengd

samgöngumiðuð þróunarsvæði með þéttri byggð fyrir íbúð-

ir, störf og nærþjónustu. Þessar áherslur styðja við notkun

almenningssamgangna og að dregið sé úr losun

gróðurhúsalofttegunda.

Fylgst verður grannt með uppbyggingu á miðkjörnum og öðrum

samgöngumiðuðum þróunarsvæðum. Skemmri þróunaráætlanir

dragi fram hversu mikil uppbygging er áætluð á þeim svæðum.

Leiðarkerfi almenningssamgangna verður þróað í takt við

þróunaráætlanir með það að marki að fjölga samgöngumiðuðum

þróunarsvæðum innan höfuðborgarsvæðisins.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

1.2.1 SSH viðheldur kortagrunni og lykiltölum um

staðsetningu og uppbyggingu íbúða og starfa á mið-

kjörnum og öðrum samgöngumiðuðum þróunarsvæðum

með hliðsjón af töflu 1.

1.2.2 SSH setur fram leiðbeinandi viðmið um útfærslu á

miðkjörnum og öðrum samgöngumiðuðum þróunarsvæðum.

1.2.3 Svæðisskipulagsnefnd setur fram fjögurra ára

þróunaráætlun í samvinnu við sveitarfélögum. Í áætluninni

komi fram fjöldi íbúða og starfa í miðkjörnum og öðrum

samgöngumiðuðum þróunarsvæðum með hliðsjón af töflu 1.

Sveitarfélög og byggðarsamlög

1.2.4 Sveitarfélög útfæra markmið 1.2. í sínu í aðal-

skipulagi og gera sérstaklega grein fyrir:

• Nánari útfærsla á staðsetningu og afmörkun miðkjarna

og samgöngumiðaðra þróunarsvæða á skipulagsupp-

drætti aðalskipulags, með hliðsjón af þemakorti 1 og

töflu 2.

• Nánari áætlun um uppbyggingu íbúða og starfa á kjörn-

um og öðrum samgöngumiðuðum þróunarsvæði, með

hliðsjón af töflu 1.

1.2.5 Sveitarfélögin og Strætó bs. vinni markvisst að efl-

ingu þjónustustigs almenningssamgangna í takt við fjögurra

ára þróunaráætlanir.

1.2.6 Sveitarfélögin og Strætó bs. leggja til lykiltölur um

húsnæðisuppbyggingu og þróun almenningssamgangna.

Miðkjarnar eru þéttbyggð svæði með fjölbreytilega starfsemi og gegna lykil-hlutverki í þjónustu við nálæga byggð. Kjarnarnir eru flokkaðir í lands-, svæðis- og bæjarkjarna.

Page 31: Höfuðborgarsvæðið 2040

33Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

TAFLA 1

1. Viðmið fyrir samgöngumiðuð þróunarsvæði skulu höfð til hliðsjónar við útfærslu á

aðalskipulagi aðildarsveitarfélaga og skipulagi almenningssamgangna hjá Strætó BS.

2. „Annað þéttbýli“ vísar til allra svæða innan vaxtarmarka sem ekki eru skilgreind sem

miðkjarnar eða uppfylla kröfur sem gerðar eru til samgöngumiðaðra þróunarsvæða.

Landskjarni

Svæðiskjarni

Bæjakjarnar

Miðkjarnar alls

Samgöngumiðuð þróunarsvæði

Annað þéttbýli

Dreifbýli

Höfuðborgarsvæðið alls

2012ÍBúÐIR 2025 - Viðmið 2040 - Viðmið

#

13.100

12.000

56.000

2.000

83.100

%

16%

14%

67%

2%

100

#

1.200

1.000

2.800

18.100

32.300

46.400

2.050

98.850

%

18%

33%

47%

2%

100

#

1.500

1.500

5.700

21.800

53.800

37.400

2.100

115.100

%

19%

47%

32%

32%

100

Aðkoma og aðgerðir annarra

1.2.7 Ríkið og stofnanir þess beini starfsemi sinni á

miðkjarna og samgöngumiðuð þróunarsvæði.

Samgöngumiðuð þróunarsvæði eru reitir sem eru vel tengdir við almenningssamgöngur, Borgarlínu eða hefðbundnum strætó með hátt þjónustustig.

Page 32: Höfuðborgarsvæðið 2040

TÝpuR

landskjarniMiðborgin (teygir anga sína í hverfishlutakjarna við Kringlu Skeifu og Voga.

SvæðiskjarniSmáralind (teygir anga sína í hverfishlutakjarna við Mjódd.

BæjarkjarnarMiðbæjar Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Hamraborg, miðbær Seltjarnarness og Mosfellsbæjar.

Hverfishlutakjarnar Kringlan, Skeifan, Vogar, Mjódd, Keldur/Keldna-holt.

Samgöngumiðuð þróunarsvæðiÞróunarsvæði biðstöðv-ar almenningssam-gangna sem hafa hátt þjónustustig (6 vagnar á klst)

BYggðaRMYnSTuR

Viðmiðunarstaðsetning miðkjarna er að finna á þemakorti. Staðsetning og mörk verða útfærð nánar í aðalskipulagi sveitarfélaga. Miðborgin er miðstöð fyrir landið í heild, þar eru helstu stjórnsýslu, mennta- og menningar-stofnanir landsins.

Svæðiskjarni er miðstöð fyrir svæðisbundna starfsemi.

Í miðborg og svæðiskjarna verði fjölþætt starfsemi, stofnanir, samfélagsþjónusta og afþreyingariðnaður.

Ákjósanleg sta ðsetning m.t.t. almenningssamganga. Almennt innan 400-800m frá einni eða fleiri stoppistöðvum hágæðakerfis Borgarlínu, eða innan 400m frá mótum tveggja eða fleiri leiða strætisvagna með hátt þjónustustigi.

Byggðin er þétt (miðborg) til meðalþétt (svæðiskjarni) borgarbyggð þar sem íbúðabyggð og atvinnustarfsemi fléttast saman. Tryggja ber að visst hlutfall íbúða verði á viðráðanlegu verði.

Gott aðgengi að almenningsgörðum og góðum almenningsrýmum og/eða náttúruríkum svæðum.

Skjólgóðar hjóla- og gönguleiðir þar sem umhverfi gleður augað.

Smáralind fær aukið vægi sem svæðisbundin þjónustukjarni sem styrkt er með annarskonar atvinnustarfsemi og íbúabyggð.

Viðmiðunarstaðsetning miðkjarna er að finna á þemakorti. Staðsetning og mörk verða útfærð nánar í aðalskipulagi sveitarfélaga.

Almennt innan 400-800m frá stoppistöð hágæðakerfis almenningssamgangna eða innan 400m frá leið/leiðum strætisvagna með háu þjónustustigi.

Fjölbreytt starfsemi; þjónustufyrirtæki, verslanir, skrifstofur og afþreying sem þjónar heilu sveitarfélagi eða hverfishluta.

Miðstöð opinberrar þjónustu og menningarstofnana.

Þéttleiki er mikill, að jafnaði skal miðað við 60 íbúðir á hektara en 60.

Íbúðarhúsnæði þarf að vera fjölbreytt að gerð og eignarhaldi, ávalt skal hluti íbúða vera á viðráðanlegu verði.

Kjarni atvinnulífs í hverfiseiningum.

Skjólgóðar hjóla- og gönguleiðir þar sem umhverfi gleður augað. Gott aðgengi að almenn-ingsgörðum og góðum almenningsrýmum og/eða náttúruríkum svæðum.Bæjarkjarnar eru miðstöðvar verslunar, þjónustu, atvinnu og afþreyingar sem þjónar bæjarfélaginu eða hverfishlutanum sérstaklega.

Endanleg staðsetning er útfærð af sveitarfélögum í samvinnu við SSH og Strætó bs. á lægri skipulagstigum.

Almennt innan 400-800m frá biðstöð hágæðakerfis almenningssamgangna eða innan 400m frá leið/um strætisvagna með háu þjónustustigi.

Fjölbreytt starfsemi; þjónustufyrirtæki, verslanir, skrifstofur og afþreying sem þjónar nærum-hverfinu og/eða stærra svæði.

Þéttleiki þarf að vera miðlungs hár til mikill 40 - 60 íbúðir á hektara.

Íbúðarhúsnæði þarf að vera fjölbreytt að gerð og eignarhaldi, ávallt skal hluti íbúða vera á viðráðanlegu verði. Áhersla þarf að vera á vöxt á völdum stöðum samsíða leiðum í hágæða-kerfi almenningssamgangna eða strætisvagnaleiðum með háu þjónustustigi, þéttast nærri stoppistöðvum, minni þéttleiki fjær.

Skjólgóðar hjóla- og gönguleiðir þar sem umhverfi gleður augað. Gott aðgengi að almenningsgörðum og góðum almenningsrýmum og/eða náttúruríkum svæðum.

SaMgöngueinkenni

Miðstöð samgangna fyrir landið, landshluta og/eða svæðið í heild þar sem fjöldi almenningssamgönguleiða með háu þjónustustigi fer um.

Aðgerðir til að tryggja forgang almenningssamgangna í gatnakerfi (sérreinar, forgangur á gatnamótum, forgangs-stýringar á umferðarljósum).

Góðar tengingar við stofnvegakerfi.

Hágæða umhverfi fyrir óvarða vegfarendur, hjólandi og gangandi.

Kröfur um hámarksfjölda bílastæða og aðrir skipulags-skilmálar styðja mjög við notkun almenningssamgangna í ferðum að/frá svæðinu. Hærri bílastæðagjöld hvetja til notkunar almenningssamgangna.

Miðstöð almenningssamgangna fyrir bæjarfélag eða hverfishluta sem tengist strætisvagnakerfi með háu þjónustustigi.

Miðað skal við að bæjarkjarnar tengst framtíðar samgöngu- og þróunarási (hágæðakerfi) ef uppbygging styður við nægjanlega eftirspurn farþega.

Aðgerðir til að tryggja forgang almenningssamgangna í gatna-/vegakerfi (sérreinar, forgangur á gatnamótum, forgangsstýringar á umferðarljósum).

Góðar tengingar við stofnvegakerfi.

Hágæða umhverfi fyrir óvarða vegfarendur, hjólandi og gangandi.

Kröfur um hámarksfjölda bílastæða og aðrir skipulags- skilmálar styðja mjög við notkun almenningssamgangna í ferðum að/frá svæðinu.

Tengist núverandi leiðum strætisvagna með háu þjónustustigi eða þar sem fyrirhugað er að bæta almenningssamgöngur.

Getur tengst á framtíðar samgöngu- og þróunarás (hágæða-kerfi) ef uppbygging styður við nægjanlega eftirspurn farþega.

Aðgerðir til að tryggja forgang almenningssamgangna í gatna-/vegakerfi (sérreinar, forgangur á gatnamótum, forgangsstýringar á umferðarljósum).

Hágæða umhverfi fyrir óvarða vegfarendur, hjólandi og gangandi.

Kröfur um hámarksfjölda bílastæða og aðrir skipulags- skilmálar styðja mjög við notkun almenningssamgangna í ferðum að/frá svæðinu.

TAFLA 2

1. Þessi viðmið lýsa megináherslum landnotkunareinkenna og samgönguáherslna sem

miða á við í miðkjörnum og á samgöngumiðuðum þróunarsvæðum. Viðmiðunum er ekki

ætlað að greina eða forgangsraða svæðisbundinni uppbyggingu eða samgöngubótum.

Svæðisskipulagsnefnd og sveitarfélögin í samvinnu við Strætó bs og samgönguyfirvöld

útfæra frekari uppbyggingar- og samgönguviðmið í fjögurra ára þróunaráætlun og

annarri skipulagsvinnu.

2. Leiðarnet með háu þjónustustigi er sá hluti af leiðarkerfi Strætó bs. sem nú hefur

hátt þjónustustig alla virka daga og burði til aukinnar eftirspurnar. Leiðarkerfi með

háu þjónustustigi byggir á strætókerfinu en ætlað er að þróa viðbótar hágæðakerfi -

Borgarlínu. Frekari upplýsingar eru á korti x.x. í viðauka sem unnið er í samvinnu

við Strætó BS.

Page 33: Höfuðborgarsvæðið 2040

35Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

markmið 1.3 Gott landbúnaðarland verður nýtt undir matvælaframleiðslu og náttúruríkt umhverfi verður varðveitt.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

1.3.1 SSH viðheldur, í samvinnu við sveitarfélögin og ríkið,

upplýsingum um gott ræktarland og náttúrríkt umhverfi.

1.3.2 Svæðisskipulagsnefnd leitar leiða í samvinnu við

sveitarfélögin og ríkið til að forðast árekstra landbúnaðar við

aðra starfsemi s.s. útivist, frístundabyggð og náttúruvernd.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

1.3.3 Sveitarfélögin tryggja nýtingu landbúnaðarlands fyrir

matvælaframleiðslu og takmarka uppbyggingu sem skerðir

það. Þau gera einnig grein fyrir nánari útfærslu til að viðhalda

og styðja við gott landbúnaðarland í aðalskipulagsáætlunum.

1.3.4 Sveitarfélögin safna saman upplýsingum um

landbúnaðarsvæði og áætlanir þeim tengdum og útfæra

stefnu í aðalskipulagi á grunni þess.

Aðkoma og aðgerðir annarra

1.3.5 Kalla þarf eftir því að ríkið og stofnanir leiti allra leiða

til að skerða ekki gott landbúnaðarland við framkvæmdir

s.s. vegagerð og lagningu háspennulína.

1.3.6 Þörf er á að ríkið og stofnanir viðhaldi skráningu

á góðu ræktarlandi.

Staðbundin matvælaframleiðsla færist sífellt í vöxt og eftir-

sóknarvert er fyrir borgarsvæði að gróskumikill landbúnaður

sé innan 50 km frá markaði eða innan þeirra viðmiða sem

gilda um staðbundin smásölufyrirtæki sem afhendir matvæli

beint til neytenda.

Mikilvægt er að kortleggja gott ræktarland þannig að góð

yfirsýn náist yfir auðlindina. Skipulagsáætlanir sveitarfélag-

anna eiga að stuðla að verndun landbúnaðarlands og leita

leiða til að ýta undir lífleg viðskipti með matvöru úr héraði

innan borgarbyggðar.

Með borgarbyggð er vísað til alls þéttbýlis innan vaxtarmarka.

Page 34: Höfuðborgarsvæðið 2040

1 // Inngangur

LEIÐARLJÓS 2

Skilvirkar samgöngur og nútímalegt samgöngukerfi

Síðustu áratugi hefur vöxtur svæðisins og gildandi svæðis-

skipulag kallað á miklar fjárfestingar í stofnvegakerfi sem

ekki hafa náð fram að ganga nema að hluta til. Ekki hefur

tekist að auka afkastagetu kerfisins í takt við vöxt bíla-

umferðar og neikvæð áhrif umferðar hafa aukist. Umferðar-

spár vegna vegaáætlunar 2007-2018 sýndu að þrátt fyrir

tillögur sveitarfélaganna um miklar framkvæmdir til að

bæta afkastagetu stofnvegakerfisins dygði það ekki til.

Árið 2011 voru 76% allra ferða á höfuðborgarsvæðinu

farnar á einkabíl, 4% með almenningssamgöngum og

íbúar fóru um 20% ferða sinna gangandi og hjólandi.

Í stefnumótun Höfuðborgarsvæðisins 2040 um samgöngur

er lögð aukin áhersla á fleiri valkosti, samgöngumáta sem

taldir eru hagkvæmari og vistvænni en einkabíll.

Undir leiðarljósi 2 eru sett fram markmið sem snerta sam-

göngur á landi og tengsl þeirra við alþjóðlegar flutnings-

gáttir. Innanlandsflugvöllur verður starfræktur í Vatnsmýri

í það minnsta til ársins 2022 skv. samkomulagi Reykjavíkur-

borgar, ríkisins og Icelandair Group. Fullkanna þarf helstu

staðsetningarkosti innanlandsflugs á höfuðborgarsvæðinu

þannig að hægt sé að taka ákvörðum um framtíðar-

staðsetningu sem allra fyrst.

Ferðaþörf verður uppfyllt á skilvirkan* og fjölbreyttan máta. Fólksfjölgun verður mætt án þess að álag á stofnvegakerfið aukist í sama hlutfalli.* Skilvirkni þéttbýlissamgagna felst í að uppfylla ferðaþarfir fólks með sem minnstum tilkostnaði og umhverfisáhrifum

36

Almenningssamgöngur mynda tveggja laga kerfi sem léttir á stofnvega- kerfinu og styrkir uppbyggingu kjarna og þróunarsvæða.

Page 35: Höfuðborgarsvæðið 2040

37Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Eftirfarandi MARKMIÐ, sem endurspegla LEIÐARLJÓS 2, eru sett fram sem stefna Höfðborgarsvæðisins 2040:

Á höfuðborgarsvæðinu verður raunhæft val um skilvirka samgöngumáta.

Hlutdeild almenningssamgangna í öllum ferðum innan svæðisins árið 2040 verður a.m.k. 12%.

Hlutdeild göngu- og hjólreiða í öllum ferðum innan svæðisins árið 2040 verður a.m.k. 30%.

Meginstofnvegir tryggja greiða og örugga umferð fólks og vöru.

2.1

2.2

2.3

2.4

Page 36: Höfuðborgarsvæðið 2040

38

3 // Stefna

markmið 2.1 Á höfuðborgarsvæðinu verður raunhæft val um skilvirka samgöngumáta.

Við uppbyggingu samgöngukerfisins þarf verklag að vera

með þeim hætti að ávallt sé leitað hagkvæmustu lausna til

að ná settum markmiðum. Í þéttri byggð getur verið erfitt

og dýrt að stytta ferðatíma og draga úr umferðartöfum með

uppbyggingu mannvirkja. Reynslan hefur sýnt að ólíklegt

er að hefðbundnar lausnir í vegagerð geti uppfyllt ferðaþörf

íbúa á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar á hagkvæman hátt.

Ljóst er að leita þarf víðtækari lausna.

Skilvirkni þéttbýlissamgangna felst í að uppfylla ferðaþarfir

fólks með sem minnstum tilkostnaði og umhverfisáhrif-

um. Skilvirknin grundvallast á samþættingu samgangna

og byggðarþróunar og eflingu hagkvæmra og vistvænna

samgangna. Byggðarþróun samofin góðu samgöngukerfi er

því kjarninn í stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040 og þeirri

áherslu að fyrirsjáanlegri fólksfjölgun verði mætt án þess að

álag á stofnvegakerfið aukist í sama hlutfalli. Þróun síðustu

áratuga varpar ljósi á þá víxlverkandi þætti sem eiga sér stað

milli samgangna og byggðarþróunar á höfuðborgarsvæðinu

og undirstrikar jafnframt nauðsyn þess að þróun til framtíðar

sé grundvölluð á fleiri þáttum en öflugu kerfi fyrir bílaumferð.

Hlutdeild skilvirkra samgangna eykst ef meginþunga vaxtar

er beint að miðkjörnum og á samgöngumiðuð þróunarsvæði.

Með því styttast ferðir fólks og ferðatími við daglegar athafn-

ir og stutt er við aukið framboð á nærþjónustu. Stóraukin

áhersla á hagkvæmar og vistvænar samgöngur styður við

breytt ferðmátaval og samgönguvalkosti sem aftur skapa

betri grundvöll fyrir þéttingu byggðar. Í miðkjörnum og á

samgöngumiðuðum þróunarsvæðum er í skipulagi lögð

áhersla á að fólk geti farið erinda sinna innan hverfis gang-

andi eða hjólandi og að stór hluti þeirra ferða sem farnar eru

að/frá hverfinu verði með almenningssamgöngum. Þannig

eru gæði byggðar hvað varðar umferðaröryggi, hljóðvist og

loftgæði aukin. Um leið minnkar orkuþörf samgangna, notk-

un jarðefnaeldsneytis og losun gróðurhúsalofttegunda.

Page 37: Höfuðborgarsvæðið 2040

39Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

2.1.1 SSH setur fram samræmdar leiðbeiningar um

samgöngumiðaða byggðarþróun. Þar verða m.a. sett fram

viðmið þéttleika byggðar, aðgengi að almenningssamgöngum

og bílastæðafjölda og aðrar aðgerðir sem ýta undir

vistvænar samgöngur.

2.1.2 Svæðisskipulagsnefnd Setur fram fjögurra ára þró-

unaráætlun í samvinnu við sveitarfélögin. Þróunaráætlanir

verði gerðar með hliðsjón af leiðbeinandi töflu 1 og töflu 2,

og samræmist stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040 og þeim

aðgerðum og viðmiðum sem þar koma fram.

2.1.3 SSH viðheldur, í samvinnu við sveitarfélögin, Strætó

bs. og Vegagerðina, virkum gagnagrunni með upplýsingum

um bílaumferð, farþegafjölda almenningssamgangna og

ferðavenjur og flæði fólks frá heimili til vinnu.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

2.1.4 Vinna að því að litið verði heildstætt á vélknúnar

samgöngur á höfuðborgarsvæðinu með því að grunnkerfi

almenningssamgangna fái sambærilega stöðu og stofnvega-

kerfið og fjármagn í stofnframkvæmdir, viðhald og rekstur

í áætlunum ríkisins.

2.1.5 Sveitarfélögin útfæri markmið 2.1. í aðalskipulags-

áætlanir með áherslu á:

• landnotkun og skipulagsaðgerðir sem styðja almenn-

ingssamgöngur og virka ferðamáta.

• samgöngur og aðgerðir sem auka hlutfall vistvænna

samgöngumáta, stytta vegalengdir og draga úr þörf

á vélknúnum ökutækjum.

2.1.6 Sveitarfélögin beina meginþunga uppbyggingar að

samgöngu- og þróunarási sbr. markmið 1.2, eftir því sem

hann myndast, og vinna skipulagsáætlanir í samræmi við

leiðbeiningar um samgöngumiðuð þróunarsvæði, til að:

• Tryggja að fyrirsjáanlegri fólksfjölgun verði mætt án

þess að álag á stofnvegakerfið aukist í sama hlutfalli.

• Tryggja góðan farþegagrunn og góða nýtingu bæði

hágæðakerfis og strætisvagnakerfis.

2.1.7 Sveitarfélögin og byggðasamlög taki upp vistvæna

samgöngustefnu.

Aðkoma og aðgerðir annarra

2.1.8 Sveitarfélögin og byggðarsamlög taki upp vistvæna

samgöngustefnu með samgöngustyrkjum, styðji þannig

starfsfólk sitt við val á vistvænum samgöngum og séu einka-

fyrirtækjum fyrirmyndir.

2.1.9 Nauðsynlegt er að ríkið vinni að því að samþætta

samgönguáætlun við aðra áætlanagerð og opinbera

stefnumótun. Ríkið verði samráðsaðili við gerð fjögurra ára

þróunaráætlunar sveitarfélaganna og taki mið af þeim við

reglubundna endurskoðun samgönguáætlunar hverju sinni.

2.1.10 Ríkið leggi áherslu á að leita hagkvæmustu lausna

til að ná markmiðum samgönguyfirvalda og horfi á sam-

göngukerfið sem eina heild. Nýir innviðir verði skipulagðir

og forgangsraðað með hliðsjón af félagshagfræðilegri

greiningu. Ríkið styðji við aðgerðir sem stuðla að breyttum

ferðavenjum til að draga úr þörf á uppbyggingu umferðar-

mannvirkja á höfuðborgarsvæðinu.

2.1.11 Vegagerðin og samgönguyfirvöld vinni áætlun

um sjálfbærar samgöngur í samvinnu við sveitarfélög með

aukna áherslu á almenningssamgöngur, göngu og hjólreiðar

með þau markmið að leiðarljósi að draga úr umhverfisáhrif-

um, samgöngukostnaði og auka nærþjónustu við borgarana.

Með áætluninni verði dregið úr mikilvægi einkabíla, ásamt

því að draga úr orkuþörf samgangna og breyta ferðavenj-

um. Í sjálfbærri samgönguáætlun verði settar fram skuld-

bindingar ríkis og sveitarfélaga til langs tíma.

2.1.12 Ríkið og stofnanir þess taki upp vistvæna sam-

göngustefnu með samgöngustyrkjum og stjórnvöld vinni

með fyrirtækjum og stofnunum að því að móta og útfæra

markvissa samgöngustefnu yrir vinnustaði.

2.1.13 Vegagerðin ásamt SSH, sjái um framkvæmd

reglulegrar könnunar á ferðavenjum íbúa höfuðborgarsvæð-

isins og SV hornsins í tengslum við gerð stefnumótandi

samgönguáætlunar og mat á framfylgd stefnu Höfuðborgar-

svæðisins 2040. Vegagerðin viðhaldi, í samvinnu við sveitar-

félögin og Strætó bs. virkum gagnagrunni með lykilupplýs-

ingum um bílaumferð, farþegafjölda almenningssamgangna

og ferðavenjur.

Page 38: Höfuðborgarsvæðið 2040

40

3 // Stefna

markmið 2.2 Hlutdeild almenningssamgangna í öllum ferðum innan svæðisins árið 2040 verður a.m.k. 12%.

Almenningssamgöngur innan þéttbýlis höfuðborgarsvæð-

isins eiga að mynda heildstætt tveggja laga kerfi. Annars

vegar verður byggt upp nýtt hágæðakerfi almennings-

samgangna, Borgarlína, sem flytur fjölda fólks á milli helstu

miðkjarna og valinna þróunarsvæða. Hins vegar er strætis-

vagnakerfi, sem verður aðlagað hágæðakerfinu og myndar

net um þéttbýli höfuðborgarsvæðisins.

Unnið verður að markvissri þróun og uppbyggingu Borg-

arlínu, hágæða almenningssamgöngukerfis sem hefur mikla

flutningsgetu, hátt þjónustustig og ferðast í sérrými, þ.e.

kemst greitt milli staða óháð töfum í bílaumferð. Áætlanir

um uppbyggingu húsnæðis og hágæðakerfis verða sam-

tvinnaðar til að hægt sé að uppfylla ferðaþarfir sem flestra

íbúa og ferðamanna með kerfinu og byggja um leið sterkari

farþegagrunn. Þannig myndar hágæðakerfið kjarnann í sam-

göngu- og þróunarás höfuðborgarsvæðisins. Hefðbundið

strætisvagnakerfi verður aðlagað að hágæðakerfinu, hágæða

biðstöðvar skipulagðar með tilliti til aðgengis hjólandi og

gangandi og grundvöllur þess að veita gott aðgengi einka-

bíla að endastöðvum í hágæðakerfinu verður kannaður.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

2.2.1 Svæðisskipulagsnefnd greinir nánar legu og útfærslu

samgöngu- og þróunaráss, í samvinnu við sveitarfélög. Hugað

verður að hagkvæmri áfangaskipting uppbyggingar kerfisins

ákveðin, í takt við núverandi byggð og byggðarþróun.

2.2.2 Svæðisskipulagsnefnd hefur farþegaspár til grund-

vallar við mótun fjögurra ára þróunaráætlana.

2.2.3 Svæðisskipulagsnefnd hefur farþegaspár til grund-

vallar við mótun fjögurra ára þróunaráætlunar.

2.2.4 SSH kallar eftir fjármögnun frá sveitarfélögum og

ríki til að ná fram markmið um a.m.k. 12% hlutdeild almenn-

ingssamgangna 2040.

Hágæðakerfi almenningssamgangna, annað hvort hraðvagnakerfi (e. Bus Rapid Transit) eða léttlestarkerfi (e. Light Rail Transit) eru til staðar eða í uppbyggingu á fjölmörgum borgarsvæðum sem eru með sambærilegan íbúafjölda og í örum vexti eins og höfuðborgarsvæðið.

Page 39: Höfuðborgarsvæðið 2040

41Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

2.2.5 Sveitarfélögin vinna með svæðisskipulagsnefnd

og SSH nánari greiningu á legu samgöngu- og þróunaráss.

Sveitarfélögin innleiða að því loknu legu hágæðakerfis

almenningssamgangna og helstu biðstöðvar inn í aðal-

skipulagsáætlanir.

2.2.6 Sveitarfélögin og Strætó bs. þjónustu sína að há-

gæðakerfi þannig að til verði tveggja laga samþætt almenn-

ingssamgöngukerfi með skilvirkum tengingum.

2.2.7 Sveitarfélögin og Strætó bs. leita leiða til að reiðhjól

verði auðveldur ferðamáti.

Aðkoma og aðgerðir annarra

2.2.8. Samgönguyfirvöld þurfa að setja fram skilgreiningu

á grunnneti almenningssamgangna í þéttbýli, þar sem gert

verður ráð fyrir auknum forgangi almenningssamgangna í

umferðinni með uppbyggingu sérreina, forgangi á umferðar-

ljósum og öðrum aðgerðum..

2.2.9. Vegagerðin taki þátt í nánari greiningu á legu sam-

göngu- og þróunaráss þar sem lega hágæðakerfis almenn-

ingssamgangna verður ákvörðuð og hagkvæm áfangaskipt-

ing uppbyggingar kerfisins í takt við byggðarþróun ákveðin.

2.2.10. Nauðsynlegt er að samgönguyfirvöld tryggi nægj-

anlegt fjármagn til uppbyggingar og reksturs almenningssam-

gangna þannig að markmið um a.m.k. 12% hlutdeild þeirra

árið 2040 gangi eftir.

LANDSKJARNI

SVæðISKJARNI

BæJARKJARNI

VAxTARMöRK

VEGIR

BORGARByGGð (2012)

STOFNLEIðIR GöNGU- OG HJÓLREIðA

BIðSTöðVAR MEð HÁU AðGENGI (2014) FLEIRI EN 10 FERðIR Á KLUKKUSTUND

BIðSTöðAR MEð MEðAL- AðGENGI (2014) 4-10 FERðIR Á KLUKKUSTUND.

OPIN SVæði

Page 40: Höfuðborgarsvæðið 2040

42

3 // Stefna

markmið 2.3 Hlutdeild göngu- og hjólreiða í öllum ferðum innan svæðis-ins árið 2040 verður a.m.k. 30%.

Haldið verður áfram þeirri uppbyggingu stofnleiða göngu- og

hjólreiða innan þéttbýlis milli sveitarfélaga og hverfiseininga

sem hafin er í samstarfi sveitarfélaganna og Vegagerðar-

innar. Stofnleiðir göngu og hjólreiða tengja allt þéttbýli

höfuðborgarsvæðisins saman og auðvelda notkun virkra

ferðamáta. Stofnleiðir ásamt innri göngu- og hjólaleiðum

sveitarfélaganna myndi heildstætt göngu- og hjólastíganet.

Með þeim skipulagsáherslum og aðgerðum sem settar eru

fram undir leiðarljósi 2.1. er styrktur til muna grundvöllur

þess að fleiri geti farið og velji að fara ferða sinna gangandi

og hjólandi.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

2.3.1 SSH setur fram viðmið um útfærslu og rekstur

göngu- og hjólaleiða sem sveitarfélögum hafa til hliðsjónar.

Unnið verður að samræma þjónustustig á stofnleiðum

göngu- og hjólreiða.

2.3.2 Við gerð fjögurra ára þróunaráætlunar greinir

svæðisskipulagsnefnd hvar bæta þarf stofnleiðakerfi

göngu- og hjólreiða eftir því sem höfuðborgarsvæðið þróast.

Sú greining verði grundvöllur samvinnu við ríkið við gerð

samgönguáætlunar og annarrar opinberrar stefnumótunar.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

2.3.3 Sveitarfélögin innleiða stofnleiðir göngu- og hjól-

reiða inn í aðalskipulagsáætlanir og útfæra þær nánar.

2.3.4 Sveitarfélögin tryggja að skilgreindu þjónustustigi á

stofnleiðum göngu- og hjólreiða verði náð.

2.3.5 Sveitarfélögin stuðla að góðum göngu- og hjóla-

leiðir að/frá biðstöðvum hágæðakerfis og meginbiðstöðvum

strætisvagnakerfis.

Page 41: Höfuðborgarsvæðið 2040

43Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Aðkoma og aðgerðir annarra

2.3.6 Miklvægt er að ríkið taki áfram þátt í að efla göngu

og hjólreiðar sem valkosti í samgöngum til að draga úr losun

gróðurhúsalofttegunda og stuðla að jákvæðum áhrifum

á heilsu manna

2.3.7 Samgönguyfirvöld vinni að því í samgönguáætlun

hverju sinni að vegfarendum verði tryggt öruggt og heil-

næmt umhverfi, óháð ferðamáta. Sérstaklega verði hugað

að öryggi samgöngumáta, t.d. hjólreiða, sem fara hratt

vaxandi og slysatíðni er óljós.

2.3.8 Vegagerðin vinni áfram með sveitarfélögum

að uppbyggingu stofnleiða göngu- og hjólreiða.

Núverandi götumynd

Endurbætt götumynd

Page 42: Höfuðborgarsvæðið 2040

44

3 // Stefna

markmið 2.4 Meginstofnvegir tryggja greiða og örugga umferð fólks og vöru.

Meirihluti ferða innan höfuðborgarsvæðisins 2040 verður

líklega á einkabíl þótt ferðavenjur breytist umtalsvert með

þróun samgöngukerfa og byggðar og vöxtur bílaumferðar

verði mun hægari en síðustu áratugi. Stofnvegakerfið gegnir

áfram mikilvægu hlutverki í flutningum fólks og vöru og í

hugsanlegri rýmingu höfuðborgarsvæðisins á hættu- og

neyðartímum.

Í Höfuðborgarsvæðinu 2040 eru stofnvegir á svæðinu

flokkaðir í meginstofnvegi og stofngötur með mismun-

andi áherslum fyrir hvorn flokk fyrir sig. Meginstofnvegir

tryggja greiða og örugga umferð fólks og vöru að og frá

höfuðborgarsvæðinu með áherslu á alþjóðlegar megingáttir

samgöngukerfis landsins. Aðrir stofnvegir, þ.e. stofngötur

höfuðborgarsvæðisins, geta þróast með bætta sambúð

þéttbýlis og umferðar að leiðarljósi. Á stofngötum verður

megináhersla lögð á að draga úr neikvæðum áhrifum um-

ferðar á nærumhverfið.

Einn meginstofnvegur liggur norður-suður í gegnum svæðið

og tengir saman Hringveg (Vesturlandsveg) á Kjalarnesi í

norðri og Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar í suðri. Við

þennan stofnveg er aðal inn- og útflutningshöfn landsins

og aðal inn- og útflutningsflugvöllur landsins. Annar megin-

stofnvegur tengir Hringveg í austri (Suðurlandsveg) við

norður-suður stofnveginn.

Á meginstofnvegum verður umfram aðra stofnvegi hugað

sérstaklega að greiðu og öruggu flæði einka- og þunga-

umferðar og sveitarfélögin tryggja rými og möguleika á

aukinni afkastagetu ef þörf krefur. Aukning afkastagetu

með fjölgun akreina eða mislægum vegamótum má þó ekki

skerða lífsgæði íbúa í nærumhverfi né einangra byggðir,

tryggja þarf góðar þveranir fyrir alla ferðamáta, öryggi, hljóð-

vist og loftgæði.

Vesturlandsvegur um sundin (Sundabraut) og tenging

Reykjanesbrautar ofan byggðar í Hafnarfirði til að beina

fjarumferð framhjá gatnakerfi bæjarins, þ.e. nýjar útfærsl-

ur meginstofnvega eins og þeir eru í dag, verða áfram til

skoðunar og ekki útilokaðar í aðalskipulagsáætlunum sveitar-

félaga. Sundabraut verður hluti af norður-suður meginstofn-

vegi, verði hún byggð á skipulagstímabilinu, en samhliða fer

núverandi Vesturlandsvegur þá í flokk stofngatna. Sama gildi

um mögulega nýja útfærslu Reykjanesbrautar.

Við endurbætur og endurhönnun á stofngötum verður minni

áhersla lögð á framkvæmdir sem hafa það markmið að auka

afkastagetu en meiri á aðgerðir sem hafa það markmið að

draga úr neikvæðum áhrifum umferðar á nærumhverfið og

smærri staðbundnar aðgerðir til að bæta umferðarflæði.

Á köflum geta þessar stofngötur þróast yfir í borgargötur

án þess að dregið verði úr afkastagetu þeirra. Kannaðir

verða möguleikar á aukinni nýtingu aðliggjandi svæða undir

byggð. Á það sérstaklega við þar sem stofngötur liggja um

miðkjarna og samgöngumiðuð þróunarsvæði. Meginstofnvegir tryggja greiða og örugga umferð fólks og vöru til og frá höfuðborgar-svæðinu. Á þeim er hugað að greiðu og öruggu flæði einka- og þungaumferðar.

Page 43: Höfuðborgarsvæðið 2040

45Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

MEGINSTOFNVEGIR

ÚTFæRSLUR TIL SKOðUNNAR

ALÞJÓðAFLUGVöLLUR

VöRUFLUTNINGAHöFN

BORGARByGGð (2012)

VAxTAMöRK

VEGIR

Page 44: Höfuðborgarsvæðið 2040

46

3 // Stefna

Page 45: Höfuðborgarsvæðið 2040

47

1 // Inngangur

Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

2.4.1 SSH skilgreini nánar stofnvegir og stofngötur

í samvinnu við Vegagerðina ásamt því að meta kosti frekari

flokkunar stofngatna. Skilgreina þarf ásættanlegt þjónustu-

stig fyrir hvern flokk sem taki mið af nærumhverfi og ýmsum

öðrum þáttum.

2.4.2 Svæðisskipulagsnefnd setur fram umferðarspár

við mótun fjögurra ára þróunaráætlunar sem hafðar verða til

hliðsjónar við forgangsröðun framkvæmda. Þessar tillögur

verði grundvöllur viðræðum við ríkið um endurskoðun sam-

gönguáætlunar og mótun annarra opinberra áætlana.

2.4.3 Svæðisskipulagsnefnd vinnur greiningu á almanna-

hættu vegna náttúruvár á höfuðborgarsvæðinu og rýmingar-

áætlun í samvinnu við almannavarnir. Sú áætlun og niður-

stöður greiningar á flöskuhálsum í samgöngukerfinu við við

rýmingu verði til hliðsjónar í samvinnu við ríkið við endur-

skoðun samgönguáætlunar.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

2.4.4 Sveitarfélögin innleiða flokkun stofnvega á höfuð-

borgarsvæðinu sbr. aðgerð 2.4.1. í aðalskipulagsáætlanir

og útfæra nánar.

2.4.5 Sveitarfélögin tryggja öruggt og gott flæði bíla-

umferðar á meginstofnvegum og rými í skipulagi til aukn-

ingar afkastagetu þeirra með mislægum vegamótum og

fjölgun akreina ef þörf krefur. Sveitarfélögin taka frá rými

í skipulagsáætlunum fyrir nýjar útfærslur stofnvega sem

áfram verða til skoðunar, þ.e. Vesturlandsveg um sundin

(Sundabraut) og tengingu Reykjanesbrautar ofan byggðar

í Hafnarfirði.

2.4.6 Sveitarfélögin í samráði við Vegagerðina vinna

tillögur að endurhönnun stofngatna, eftir því sem byggð

og samgöngur þróast. Áherslur verði á aðgerðir og fram-

kvæmdir sem dregið geta úr neikvæðum áhrifum umferðar

á nærumhverfið og smærri staðbundnar aðgerðir til að bæta

umferðarflæði. Tillögurnar verði grundvöllur samvinnu við

ríkið við endurskoðun samgönguáætlunar og mótun annarra

opinberra áætlana.

Aðkoma og aðgerðir annarra

2.4.7 Ríkið verði samráðsaðili við gerð fjögurra ára

þróunaráætlana sveitarfélaganna og taki mið af tillögum

sveitarfélaganna um forgangsröðun aðgerða á stofnvegum

og stofngötum við reglubundna endurskoðun samgönguá-

ætlunar hverju sinni.

2.4.8 Almannavarnir höfuðborgarsvæðisins og tengdir

aðilar vinni með sveitarfélögunum að verkefni um rýmingu

á höfuðborgarsvæðinu og frekari rannsóknum því tengdu.

2.4.9 Ríkið vinni að því að þróa áfram og festa í sessi

formlegt verklag við ákvarðanir um uppbyggingu vegakerfis-

ins í þéttbýli þar sem kostnaður og ábati mismunandi leiða

að markmiðum samgönguyfirvalda er borinn saman.

2.4.10 Samgönguáætlun leggi áherslu á að tryggja greið-

ar tengingar höfuðborgarsvæðið og landsbyggðar við alþjóð-

legar megingáttir, Reykjavíkurhöfn og Keflavíkurflugvöll.

2.4.11 Samgönguyfirvöld vinni aðgerðaáætlun um aukin

loftgæði í helstu þéttbýliskjörnum í samstarfi við sveitar-

félögin, viðhalda kortlagningu umferðarhávaða og vinni að

lagasetningu sem gerir sveitarfélögum kleift að skilgreina

sérstök umhverfissvæði og um leið að takmarka þar umferð

til að auka loftgæði.

Page 46: Höfuðborgarsvæðið 2040

1 // Inngangur

LEIÐARLJÓS 3

Aukin alþjóðleg samkeppnishæfni

Um allan heim er þróunin sú að fólk og fyrirtæki sækja í

auknum mæli á öflug borgarsvæði. Hefðbundnar hindr-

anir eins og landamæri skipta æ minna máli og því getur

það skipt sköpum fyrir Ísland að höfuðborgarsvæðið sé

samkeppnishæft á alþjóðavísu. Höfuðborgarsvæðið keppir

einkum við erlend borgarsamfélög um ungt vel menntað

fólk og fyrirtæki. Höfuðborgarsvæðið stendur öðrum borg-

arsvæðum að baki hvað varðar efnahagsumsvif skapandi

greina og ýmsa aðra þætti sem snerta lífskjör og samkeppn-

ishæfni. Að óbreyttu er því hætta á að höfuðborgarsvæðið

og þar með landið allt dragist aftur úr í samkeppni um

fólk og fjármagn.

Í Höfuðborgarsvæðinu 2040 er ein megináherslan á að

auka samkeppnishæfni með því að skapa góð skilyrði fyrir

þekkingariðnað og aðra vaxtarsprota. Einn helsti styrkleiki

höfuðborgarsvæðisins er fólginn í nálægð við alþjóðlegar

gáttir, Keflavíkurflugvöll og Sundahöfn. Þetta auðveldar

fyrirtækjum aðgengi að erlendum mörkuðum. Atvinnulíf

þarf að geta treyst á öfluga innviði s.s. nútímalegar sam-

göngur og örugg fjarskipti. Einnig skiptir sköpum að

svæðið sé eftirsóknarvert til búsetu.

Höfuðborgarsvæðið býður upp á eftirsóknarvert umhverfi fyrir fólk, fyrirtæki og fjárfestingar. Miðkjarnar með nútíma samgöngum skapa möguleika á spennandi uppbyggingu fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi um alla borgarbyggðina.

48

Höfuðborgarsvæðið sem eitt markaðs- og atvinnusvæði. Atvinnustarfsemi nýtur góðs af nýju hágæðakerfi sem einfaldar ferðamáta. Svæðið býður upp á fjölbreytt umhverfi fyrir ólíkar þarfir atvinnulífsins.

Page 47: Höfuðborgarsvæðið 2040

49Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Eftirfarandi MARKMIÐ, sem endurspegla LEIÐARLJÓS 3, eru sett fram sem stefna Höfðborgarsvæðisins 2040:

Alþjóðleg samkeppnisstaða höfuðborgarsvæðisins verður styrkt með markvissu skipulagi sem samþættir skilvirkar samgöngur og eftirsóknarverð uppbyggingarsvæði.

Samstarf sveitarfélaga á suðvesturhorninu um hagkvæma byggðaþróun verður eflt.

3.1

3.2

Page 48: Höfuðborgarsvæðið 2040

50

3 // Stefna

markmið 3.1 Alþjóðleg samkeppnisstaða höfuðborgarsvæðisins verður styrkt með markvissu skipulagi sem samþættir skilvirkar samgöngur og eftirsóknarverð uppbyggingarsvæði.

Til að atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu blómstri verður að

tryggja að samgöngur stuðli áfram að nálægð við erlenda

markaði og að landnotkun uppfylli þarfir ólíkrar atvinnu-

starfsemi. Bjóða þarf fyrirtækjum upp á eftirsóknaverða

staðsetningarkosti á miðkjörnum eða samgöngu- og

þróunarás þar sem Borgarlína, nýtt hágæðakerfi almenn-

ingssamgangna einfaldar ferðalög fólks um höfuðborgar-

svæðið. Ferðaþjónusta mun njóta góðs af uppbyggingu við

samgöngu- og þróunarás og dreifa úr álagi við uppbyggingu

gistirýmis og annarrar aðstöðu sem hefur hingað til mikið

einskorðast við miðborg Reykjavíkur.

Miðstöð þekkingar og nýsköpunar með markvissri klasa

uppbyggingu vísinda- og tæknigarða nálægt tveimur

stærstu háskólum landsins. Háskólasjúkrahús mun styrkja

samkeppnisstöðu höfuðborgarsvæðisins og auka hlutdeild

þekkingargreina í hagkerfinu.

Tryggja verður að sjávarútvegur geti þróast áfram sem

grunnatvinnugrein með því að festa í sessi hlutverk fiski-

hafna og ýta undir nýsköpun sem tengist greininni.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

3.1.1 SSH leiðbeinir sveitarfélögum við innleiðingu

stefnumiða sem bæta munu samkeppnishæfni höfuðborgar-

svæðisins s.s. nútímalega uppbyggingu á miðkjörnum og

tengingu við vistvæna samgöngumáta.

3.1.2 SSH viðheldur upplýsingum um dreifingu starfa og

öðrum hagtölum sem tengjast þekkingargreinum, nýsköpun

og ferðaþjónustu og gera aðgengilegar.

3.1.3 Í framsetningu fjögurra ára þróunaráætlann verði

m.a. horft til um atvinnuuppbyggingu í miðkjörnum og

öðrum samgöngumiðum þróunarsvæðum.

3.1.4 SHH stuðlar að aukinni samvinnu við háskóla, há-

skólasjúkrahúss og annarra þekkingargeira um uppbyggingu

nýrrar þekkingarmiðstöðvar.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

3.1.5 Sveitarfélögin hafi til hiðsjónar að við uppbyggingu

miðkjarna verði mótað umhverfi sem laðar að nýjar

fjárfestingar.

3.1.6 Sveitarfélög tryggja að fiskvinnsla og önnur hafn-

sækin starfsemi hafi nægt landrými við helstu fiskihafnir.

Óskyldri starfsemi verði beint á samgöngu- og þróunarás

eftir því sem við á.

3.1.7 Sveitarfélögin marka stefnu um uppbyggingu gisti-

rýmis og annarrar aðstöðu fyrir ferðaþjónustu.

3.1.8 Strætó bs. vinnur að því að umgjörð almennings-

samgangna verði notendavæn fyrir erlenda ferðamenn og ýti

þannig undir dreifingu ferðaþjónustu um höfuðborgarsvæðið.

Page 49: Höfuðborgarsvæðið 2040

51Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Aðkoma og aðgerðir annarra

3.1.9 Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Landspít-

alinn Háskólasjúkrahús vinni með sveitarfélögunum og SSH

að markvissri uppbyggingu þekkingarmiðstöðvar og höfuð-

borgarsvæðisins sem háskólaborg.

HÁSKÓLI

LANDSSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS

FISKIHöFN

ALÞJÓðAFLUGVöLLUR

VöRUFLUTNINGAHöFN

STÓRIðJA

LANDSKJARNI

SVæðISKJARNI

BæJARKJARNI

VAxTARMöRK

VEGIR

BORGARByGGð (2012)

Page 50: Höfuðborgarsvæðið 2040

52

3 // Stefna

markmið 3.2 Samstarf sveitarfélaga á suðvesturhorninu um hagkvæma byggðaþróun verður eflt.

Mikilvægt er að gott jafnvægi sé í búsetuskilyrðum og þróun

atvinnulífs á landinu öllu. Mörg mál sem snerta atvinnulífið

og byggðarþróun krefjast að leitað sé hagkvæmra leiða sem

ná út fyrir mörk höfuðborgarsvæðisins við úrlausn þeirra s.s.

sorpmál og vöru- og fólksflutningar.

Horfa þarf heildstætt á samspil höfuðborgarsvæðisins við

suðvesturhornið og landið allt. Sveitarfélögin á höfuðborgar-

svæðinu leita leiða til að viðhalda gagnagrunni lykiltalna sem

nær yfir allt suðvesturhorn landsins. Einnig munu sveitar-

félögin á höfuðborgarsvæðinu leita hagkvæmra lausna

í samstarfi við nágranna byggðir um úrlausn sorpmála

og annarra mála sem lúta ekki landfræðilegum mörkum.

Skilvirkar og öruggar samgöngur eru lykilatriði þegar sá

hópur sem sækir vinnu á höfuðborgarsvæðið frá nágranna-

byggðum fer stækkandi. Á meginstofnvegum sem tengja

höfuðborgarsvæðið við nágrannabyggðir þarf að viðhalda

greiðu og öruggu flæði einka- og þungaumferðar. Auka þarf

hlutdeild almenningssamgangna og samspil þeirra við nýtt

hágæða almenningssamgöngukerfi - Borgarlínu.

Með stækkandi vöruflutningaskipum má búast við að þörf

verði á nýrri vöruflutningarhöfn sem geti leyst Sundahöfn

að hólmi. Mikilvægt er að náið samstarf verði við ríkið og

nágrannabyggðir um framtíðar staðsetningu megininnflutn-

ingshafnar landsins.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

3.2.1 SSH kalli eftir að stofnað verði til formlegs samráðs

landshlutasamtaka á suðvesturhorni landsins, um þróun

byggðar, samgöngur, sorpmál og önnur sameiginleg hags-

munamál.

3.2.2 SSH safnar og miðlar lykiltölum um þróun byggðar

og samgangna á suðvesturhorninu.

3.2.3 Svæðisskipulagsnefnd metur áhrif fyrirhugaðrar

fólksfjölgunar á suðvesturhorninu við gerð fjögurra ára þróun-

aráætlunar.

3.2.4 Sorpu bs. fylgir eftir tillögum og markmiðum sem

sett eru fram í svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í því

samstarfi sem nú er í gildi milli sorpssamlaga á suðvesturlandi.

3.2.5 Kanna til hlítar möguleika og hagkvæmni þess

að tengja nýtt hágæðakerfi almenningssamgangna við

Keflavíkurflugvöll.

Page 51: Höfuðborgarsvæðið 2040

53Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

3.2.6 Sveitarfélögin tryggja rými í aðalskipulags-

áætlunum fyrir öruggt og gott flæði bílaumferðar á megin-

stofnvegum sem tengja höfuðborgarsvæðið og aðliggjandi

svæði. Sveitarfélögin taka frá rými í skipulagsáætlunum fyrir

nýjar útfærslur meginstofnvega sbr. aðgerð 2.4.6.

3.2.7 Strætó bs. í samstarfi við landshlutasamtök á

aðliggjandi svæðum, vinni að því að gott samræmi sé milla

almenningssamgangna sem mynda stærra leiðanet.

Aðkoma og aðgerðir annarra

3.2.8 Þátttaka landshlutasamtök á suðvesturhorni

landsins í uppbyggingu sameiginlegs gagnagruns um þróun

byggðar á suðvesturhorn landsins.

3.2.9 Hafnir á höfuðborgarsvæðinu auki samvinnu með

það að markmiði að auka hagkvæmni nýtingar hafnar-

mannvirkja og hafnsöguskipa og að tryggja nægt framboð

að lóðum fyrir hafnsækna starfsemi.

3.2.10 Hafnir á höfuðborgarsvæðinu skoði áfram kosti fyrir

framtíðar aðalinnflutningshöfn landsins sem gæti tekið við af

Sundahöfn í lengri framtíð.

SORPMEðHöNDLUN

FISKIHöFN

ALÞJÓðAFLUGVöLLUR

VöRUFLUTNINGAHöFN

STÓRIðJA

RAFLÍNUR

VEGIR

ÞéTTBýLI

Page 52: Höfuðborgarsvæðið 2040

1 // Inngangur

LEIÐARLJÓS 4

Heilnæmt umhverfi og heilbrigt líf

Hreint loft, ómengað drykkjarvatn, nálægð við útivistar-

svæði og náttúrulegt umhverfi eru undirstaða þeirra lífs-

gæða sem felast í að búa á höfuðborgarsvæðinu og marka

sérstöðu svæðisins umfram önnur borgarsvæði. Mikilvægt

er að vernda óskert náttúrusvæði og tryggja að aukin ásókn

skerði ekki verndargildi.

Áhersla er lögð á að byggðin taki mið af sérkennum lands-

lags sem vefur útivistarsvæða byggir á. Ár, lækir, hraun-

jaðrar og umhverfi þeirra mynda samhangandi svæði um

dali og drög í landi og tryggja leiðir um byggðina frá fjöru til

heiða. Strandlengja höfuðborgarsvæðisins verður eins og

kostur er gerð aðgengileg. Um ströndina og önnur útivistar-

svæði liggur net stíga sem gefur möguleika á umhverfis-

vænum og heilnæmum ferðamátum um samfelldar leiðir

milli sveitarfélaga og borgarhluta. Mikilvægt er að tryggja

gott aðgengi að fjölbreyttum strandsvæðum og greiðfæra

leið milli þeirra og græna trefilsins.

Vefur útivistarsvæða gefur fólki kost á reglulegri hreyfingu í daglegum athöfnum og endurnæringu í frítíma. Grænn vefur dregur fram sérkenni landslags og tengir bláþráð strandlengjunnar og grænan trefil í jaðri borgarbyggðar.

54

Strandlengjan, grænir geirar og græni trefillinn opna á samfelldar útivistar-leiðir um byggðina sem eru öllum aðgengilegar.

Page 53: Höfuðborgarsvæðið 2040

55Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Eftirfarandi MARKMIÐ, sem endurspegla LEIÐARLJÓS 4, eru sett fram sem stefna Höfðborgarsvæðisins 2040:

Íbúar höfuðborgarsvæðisins eiga aðgang að fjölbreyttum útivistar-svæðum sem hvetja til reglulegrar hreyfingar, náttúruupplifunar og jákvæðra félagslegra samskipta.

Náttúruverndarsvæði eins og fólkvangar, friðlýst svæði, náttúru-vætti, hverfisverndarsvæði og svæði á náttúruminjaskrá skapa höfuðborgarsvæðinu sérstöðu og gegna mikilvægu fræðslu- og útivistarhlutverki.

Tækifæri til útivistar og ferðaþjónustu innan fólkvanga og fjallahrings höfuðborgarsvæðisins verða nýtt frekar. Hugað verður að samræmdri yfirstjórn og aðgerðum til að tryggja að not ólíkra hópa geti farið saman.

Á höfuðborgarsvæðinu verði ávallt nægt framboð af hreinu ómeð-höndluðu drykkjarvatni með markvissri vernd vatnsbóla og aukinni samræmingu við nýtingu auðlindarinnar.

4.1

4.2

4.3

4.4

Page 54: Höfuðborgarsvæðið 2040

56

3 // Stefna

markmið 4.1 Íbúar höfuðborgarsvæðisins eiga aðgang að fjölbreyttum útivistarsvæðum sem hvetja til reglulegrar hreyfingar, náttúruupplifunar og jákvæðra félagslegra samskipta.

Á höfuðborgarsvæði eru fjölbreytt náttúruleg svæði sem

nýta skal til útivistar, fræðslu, náttúruupplifana og endur-

næringar fyrir íbúa.

Græni trefillinn er sameiginlegt og samfellt útivistarsvæði

við efri jaðar borgarbyggðarinnar. Trefillinn teygir sig frá

Mógilsá í norðri til Helgafells í suðri og tengist þannig

fjalllendi Esjunnar, Bláfjallafólkvangi og jarðvangi Reykjanes-

fólkvangs. Trefillinn fléttar saman skógarteiga, hraun, vötn

og fell. Áhersla er lögð á verndun sérstæðs landslags og

lífríkis. Þar er aðstaða til fjölbreyttrar útivistar svo sem

athafnasvæði hestamanna, golfvellir og fjölbreytt náttúra,

hraunbreiður og votlendi, ræktaður skógur og náttúrulegt

kjarr. Í treflinum er skógrækt stunduð í sátt við sérkenni

landslags og náttúrufars, til skjóls og yndisauka, til bættra

útivistarskilyrða, til að hefta ösku- og jarðvegsfok og

bindingar kolefnis og svifryks frá umferð.

Græni stígurinn, samfelldur göngu- og hjólastígur tengir öll

sveitarfélögin saman og liggur eftir treflinum endilöngum og

áfram til norðurs og suðurs. Lega stígsins og staðsetning

mikilvægustu aðkomusvæða kvarðast í aðalskipulagi sveitar-

félaganna. Hesthúsahverfi eru samtengd með reiðsígum

milli sveitarfélaga. Kannaður verði samstarfsgrundvöllur

um frekari stefnumörkun, samræmdar aðgerðir og rekstur

útivistaraðstöðu í græna treflinum og græna stígnum.

Grænir geirar liggja frá græna treflinum eftir stórum landslags-

dráttum s.s. um dali með hraunjöðrum, ám og lækjum, niður

að strandlengjunni. Strandlengjan verði gerð eins aðgengileg

og kostur er með samfelldum hjóla- og göngustígum,

fjölbreytilegri útivistaraðstöðu og áningarstöðum. Hjáleiðir

um nærliggjandi byggð verði skilgreindar þar sem landnotkun

og eignarhald takmarkar aðgengi.

Innihaldsríkir borgar- og bæjargarðar gegna mikilvægu hlut-

verki í þéttri byggð. Þeir eru eins konar græn lungu byggðar-

innar og hafa rannsóknir sýnt fram á að aðgengi að grænum

svæðum stuðlar að andlegri vellíðan og góðri lýðheilsu.

Í borgar- og bæjargörðum er aðstaða til leikja, samkomu-

halds og daglegrar endurnæringar. Tækifæri til ræktunar

matjurta í almenningsrýmum verða aukin til muna, í formi

skólagarða og almennra matjurtagarða. Laugardalur,

Hljómskálagarður, Vatnsmýri, Klambratún, öskjuhlíð,

Víðistaðatún og Ullarnesbrekkur eru dæmi um garða

með þetta hlutverk.

Page 55: Höfuðborgarsvæðið 2040

57Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

4.1.1 SSH setur fram leiðbeinandi viðmið um útfærslu

sameiginlegra útivistarsvæða og stíga.

4.1.2 SSH viðheldur virkum kortagrunni og upplýsinga-

öflun um þróun græna trefilsins og sameiginlegra útivistar-

stíga í útmörk og með ströndinni.

4.1.3 Svæðisskipulagsnefnfd vinni fjögurra ára þróunar-

áætlun, þar sem dregið verður fram áform um framkvæmdir

á sameiginlegum útivistarsvæðum.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

4.1.4 Sveitarfélögin móti , í samvinnu við skógræktar-,

náttúruverndar- og útivistarfélög frekari stefnu og mögu-

legar aðgerðir, verndun og rekstur útivistaraðstöðu í græna

treflinum

4.1.5 Sveitarfélög útfæri í aðalskipulagsáætlanir aðgerðar-

markmið 4.1. og gera sérstaklega grein fyrir útfærslu sam-

eiginlegra útivistarsvæða s.s. græna trefilsins og helstu

aðkomusvæða, græna stígsins, grænna geira og strandstígs.

4.1.6 Sveitarfélögin leitist við að samræma aðgengi að

helstu útivistarsvæðum og net göngu, hjóla og reiðstígu

sem tengja sveitarfélögin saman.

4.1.7 Sveitarfélögin koma á reglubundnum samstarfs-

vettvangur umhverfis- og garðyrkjustjóra sveitarfélaganna

sem hafi það að markmiði að samræma þróun sameiginlegra

útivistarsvæða.

Aðkoma og aðgerðir annarra

4.1.8 Skógræktarfélag Íslands, Skógræktarfélögin á höf-

uðborgarsvæðinu, Skógrækt ríkisins aðstoði SSH um viðhald

upplýsinga um skóga í græna treflinum.

4.1.9 Svæðisnefnd Landssambands hestamanna og

Vegagerðin aðstoði SSH um viðhald upplýsinga um reiðvegi.

Page 56: Höfuðborgarsvæðið 2040

58

1 // Inngangur

GRæNI TREFILLINN

GRæNI STÍGURINN

GRæNIR GEIRAR

STRANDSTÍGUR

ÚTIVISTARLEIð UM HEIðAR

ÚTIVISTARLEIð UM FJALLLENDI

FÓLKVANGUR

FJALLLENDI

VAxTARMöRK

AðALVEGIR

AðRIR VEGIR

VATNSFöLL

BORGARByGGð (2012)

OPIN SVæðI

MöRK HöFUðBORGARSVæðISINS

Page 57: Höfuðborgarsvæðið 2040

59Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

4.2.1 SSH viðheldur virkum kortagrunni og upplýsinga-

öflun um svæði sem njóta verndar.

4.2.2 Svæðisskipulagsnefnd vinnur fjögurra ára þróunar-

áætlun þar sem fram koma áform um frekari verndun svæða

eða breytingar á mörkum þeirra.

4.2.3 SSH mótar, í samvinnu við sveitarfélög og heilbrigðis-

eftirlit frekari stefnu og flokkar helstu vatnsföll á höfuð-

borgarsvæðinu m.t.t. laga um stjórn vatnamála.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

4.2.4 Sveitarfélög útfæri í aðalskipulagi markmið 4.2.

samræmi sérstaklega mörkun og aðgerðir á þeim svæðum

sem virða ekki lögsögumörk s.s. stærri verndarsvæðum,

ám og vatnasviðum.

4.2.5 Sveitarfélögin vinni að samræmdum umgengis-

reglum á verndarsvæðum.

Aðkoma og aðgerðir annarra

4.2.6 Umhverfisstofnun leggi til upplýsingar um friðlýst

svæði og taki mið af fjögurra ára þróunaráætlun við gerð

náttúruverndaráætlunar hverju sinni.

markmið 4.2 Náttúruverndarsvæði eins og fólkvangar, friðlýst svæði, náttúruvætti, hverfisverndarsvæði og svæði á náttúruminjaskrá skapa höfuðborgarsvæðinu sérstöðu og gegna mikilvægu fræðslu- og útivistarhlutverki í nálægð þéttbýlisins.

Mjög fjölbreytt náttúrufar er á höfuðborgarsvæðinu. Nálægð

þess við eldvirka sprungukerfið á Reykjaneshryggnum

skapar því sérstöðu meðal annarra borga. Mörg og víðáttu-

mikil svæði hafa verið friðlýst undir ýmsum formerkjum eða

njóta verndar á annan hátt til dæmis með vatnsvernd og

hverfisvernd. Fylgja þarf verndun svæða eftir með miðlun

upplýsinga til almennings um tilgang með friðun, umgengnis-

reglum og aðgerðum til að bætts aðgengis og að stýra

umferð um viðkvæm svæði í ákveðna farvegi.

Mikilvægt er að lög um stjórn vatnamála séu höfð til grund-

vallar í skipulagsáætlun sveitarfélaga. Unnin verður stefna

um flokkun og verndun vatnasviðs helstu áa á höfuðborgar-

svæðinu: Elliðaáa og Hólmsár, Köldukvíslar og Leirvogsár,

Blikdalsár og Laxár. Skoðað verður sérstaklega hvort slík

vinna leiði til endurskoðunar á mörkum þeirra svæða sem

eru á náttúruminjaskrá.

Page 58: Höfuðborgarsvæðið 2040

60

3 // Stefna

markmið 4.3 Tækifæri til útivistar og ferðaþjónustu innan fólkvanga og fjallahrings höfuðborgarsvæðisins verða nýtt frekar. Hugað verður að samræmdri yfirstjórn og aðgerðum til að tryggja að not ólíkra hópa geti farið saman.

Fjalllendi Esjunnar og Reykjanesfjallgarðurinn er vettvangur

fjallamennsku, lengri útivistarleiða, ferðaþjónustutækifæra

og vetraríþrótta. Landbúnaðarnytjar í fjalllendinu verði

óskertar svo fremi sem beitarþol og samkomulag um

verndun gefur tilefni til. Að teknu tilliti til beitarnota í Esjunni

verði hugað sérstaklega að þeim tækifærum sem felast

í útivist og ferðaþjónustu, þ.mt. heilsársnýtingu gistiskála

á skíðasvæðum og jafnvel stofnun Esjuvangs með tilheyr-

andi landvörslu, umhverfisfræðslu og miðlun upplýsinga.

Skoðaðir verði möguleikar á tengingu ferðamannaleið milli

Kjósar og Krísuvíkur um Mosfellsheiði, Bláfjallaveg og Kleifar-

vatn sem opna myndi nýjar og spennandi hringleiðir um

suðvesturhorn landsins.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

4.3.1 SSH aflar upplýsinga um ferðamennsku á jaðri

höfuðborgarsvæðisins og skoði möguleika á þeim tækifærum

sem felast í að nýta fjallahringinn í auknu mæli til ferða-

mennsku þannig að aðstöðuuppbygging fái aukin not.

4.3.2 SSH leitast við, í samvinnu við hlutaðeigandi

sveitarfélög, að komið verði á samræmdri stjórn yfir fjallendi

Esjunnar með að leiðarljósi að tryggja að ólíkir hagsmuna-

hópar geti nýtt svæðið í sátt og samræmi sé í uppbyggingu

og viðhaldi á stígum, girðingum og annarri aðstöðu.

4.3.3 Svæðisskipulagsnefnd vinnar fjögurra ára þróunar-

áætlun þar sem fram koma áform um uppbyggingu ferða-

mannaaðstöðu og ferðamannaleiða.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

4.3.4 Sveitarfélög útfæri í aðalskipulagsáætlanir

markmið 4.3. og samræmi sérstaklega mörkun og aðgerðir

innan fjallendis.

4.3.5 Sveitarfélögin leitist við að samræma umgengis-

reglur á svæðum þar sem líkur eru á árekstrum milli ólíkra

hagsmuna.

Aðkoma og aðgerðir annarra

4.3.6 Mikilvægt er að eiga samstarf við Vegagerðina um

þróun ferðamannavegar milli Kjósar og Krísuvíkur.

Page 59: Höfuðborgarsvæðið 2040

61Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

markmið 4.4 Á höfuðborgarsvæðinu verði ávallt nægt framboð að hreinu ómeðhöndluðu drykkjarvatni með markvissri vernd vatns-bóla og aukinni samræmingu við nýtingu auðlindarinnar.

Stuðla verður að hámarkshollustu neysluvatns á höfuð-

borgarsvæðinu til framtíðar með því að koma í veg fyrir

óæskileg áhrif af völdum athafna, starfsemi og umsvifa á

vatnsverndarsvæðum vatnsbóla á svæðinu. Með því verður

tryggt að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi alltaf þau lífsgæði

að geta gengið að hreinu ómeðhöndluðu neysluvatni vísu.

Neysluvatnsauðlindin er sameiginleg fyrir mest allt höfuð-

borgarsvæðið. Mikilvægt er að auka samstarf um nýtingu

auðlindarinnar og vinna að aðgerðum sem stuðla að auknu

öryggi neytenda.

Sameiginleg vernd er á neysluvatnsbólum sem þjóna borgar-

byggðinni og birtist hún í heilbrigðissamþykkt. Sveitar-

félögin verða að innleiða mörk vatnsverndarsvæða og reglu

samþykktarinnar í sínar aðalskipulagsáætlanir. Áhrifasvæði

vatnsbóla ná út fyrir lögsögumörk höfuðborgarsvæðisins.

Nauðsynlegt er að eiga samráð við sveitarfélagið ölfuss

og Grindavíkurbæ um möguleg áhrif landnýtingar og

framkvæmda innan skilgreindra svæða á neysluvatn

höfuðborgarsvæðisins.

Um vatnsverndarsvæðið liggur einn fjölfarnasti þjóðvegur

landsins, Suðurlandsvegur. Þar er einnig Bláfjallavegur sem

liggur að stærsta skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins og

ferðamannasvæði við Þríhnúka. Huga þarf að mengunar-

vörnum við hönnun og endurgerð vega innan vatnsverndar-

svæða til að draga úr líkum á olíumengun vegna umferðar.

Einnig þarf að setja upp vegrið þar sem hætta er á útafakstri.

Nær vatnstökusvæðum á megin vatnstökusvæði höfuð-

borgarsvæðisins eru vegir sem liggja m.a. að skipulögðum

útivistarsvæðum, skógræktarsvæðum, frístundabyggð og

brunnsvæðum. Skipulagsáætlanir sveitarfélaga verða að

taka mið af ákvæðum vatnsverndar um viðhald og frágang

vega, vegrið ofan brunnsvæða og fjarlægð bílastæða frá

brunnsvæðum.

Page 60: Höfuðborgarsvæðið 2040

62

3 // Stefna

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

4.4.1 SSH viðheldur, í samvinnu við framkvæmdastjórn

vatnsverndar, kortagrunni yfir samþykkt vatnsverndarsvæði

og önnur áhrifasvæði vatnsbóla.

4.4.2 Svæðisskipulagsnefnd upplýsir vatnsveitur um

breytingar á mannfjöldaspám við gerð fjögurra ára þróun-

aráætlun og leitar eftir sameiginlegu mati á bestu nýtingu

auðlindarinnar.

4.4.3 SSH leitar leiða til að auka samvinnu vatnsveitna

við að tryggja að íbúar á höfuðborgarsvæðinu eigi alltaf

kost á ómeðhöndluðu vatni jafnvel þó óhapp verði í

einhverju vatnsbóli.

4.4.4 SSH vinnur með framkvæmdastjórn vatnsverndar

að aukinni samræmingu eftirlits og viðbragðsáætlana á

vatnsverndarsvæðum. Skilgreina þarf vegi og samgöngur

um vatnsverndarsvæði sérstaklega m.t.t. hættumats.

4.4.5 SSH vinnur með sveitarfélögum og framkvæmda-

stjórn vatnsverndar að skilgreiningu á mannvirkjabelti um

vatnsverndarsvæðin með það að markmiði að einfalda mót-

vægisaðgerðir og viðbrögð við mengunaróhöppum.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

4.4.6 Sveitarfélögin innleiða mörk vatnsverndarsvæða og

reglur heilbrigðissamþykktarinnar í sínar skipulagsáætlanir

og vinna að því að markmiðum vatnsverndar verði ekki ógn-

að með landnotkun eða starfsemi innan vatnsverndarsvæða.

4.4.7 Sveitarfélögin taki mið af skilgreindu mannvirkja-

belti á vatnsverndarsvæðum í sínum skipulagsáætlunum

og við veitingu framkvæmdaleyfa.

4.4.8 Vatnsveitur sveitarfélaganna leiti leiða til að koma

á hringtenginu í neysluvatnskerfinu þannig að hægt sé að

veita vatni frá mismunandi vatnsbólum til einstakra staða

í dreifikerfinu.

4.4.9 Sveitarfélögum, vatnsveitur og, framkvæmdastjórn

vatnsverndar vinna áætlun um viðhald rennslislíkans með það

að markmiði að ákvarða með kerfisbundnum bætti hvar helst

skuli bera niður við mælingar og aðra upplýsingaöflun til að

treysta frekar stoðir við skipulag vatnsverndar til framtíðar.

4.4.10 Sveitarfélögin, framkvæmdastjórn vatnsverndar

meti þörf fyrir ákvæði um staðsetningu bílastæða á

Heiðmerkursvæðinu og lokun vega sé þeim ekki viðhaldið

þar sem akstur um þá skapi of mikla hættu vegna verndunar

vatnsgæða auk annarra takmarkana á umferð.

Aðkoma og aðgerðir annarra

4.4.11 Vegagerðin vinni í samvinnu við sveitarfélögin

að mótvægisaðgerðum og reglubundinni vöktun á mengun

frá vegum innan vatnsverndarsvæða. Sérstaka áherslu þarf

að leggja á mótvægisaðgerðir á Suðurlandsvegi

og Bláfjallavegi.

4.4.12 Landsnet taki mið af skilgreindu mannvirkjabelti

við hönnun og lagningu háspennulína. Unnið verði að því að

núverandi háspennulínur flytjist á mannvirkjabeltið þegar

kemur að eðlilegri endurnýjun.

Page 61: Höfuðborgarsvæðið 2040

63Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

VAxTARMöRK

BORGARByGGð (2012)

OPIN SVæðI

MöRK HöFUðBORGARSVæðISINS

VATNSVERND - BRUNNSVæðI

VATNSVERND - GRANNSVæðI

VATNSVERND - FJARVæðI

VATNSVERND - öRyGGISSVæðI VEGNA GRUNNVATNS OG yFIRBORðSVATNS

FÓLKVANGAR

HÁSPENNULÍNUR

AðALVEGIR

AðRIR VEGIR

Page 62: Höfuðborgarsvæðið 2040

1 // Inngangur

LEIÐARLJÓS 5

Gott nærumhverfi eykur gæði borgarbyggðar

Fjölbreytileiki svæðisins er mikils virði. Æskilegt er að

sveitarfélögin skapi sér mismunandi hlutverk til að styrkja

heildarmynd höfuðborgarsvæðisins. Undanfarin ár hefur

dregið úr þjónustu í þeim hluta borgarbyggðar sem er í

úthverfum, fjarri miðkjörnum. Mikilvægt er að tryggja að

allir íbúar geti gengið að ákveðnum gæðum vísum í sínu

nærumhverfi. Þau gæði geta þó aldrei verið þau sömu alls

staðar, enda er eðli borgarbyggðar að bjóða upp á marg-

breytilegt umhverfi sem höfðar til ólíkra þarfa íbúa.

Megin áhersla í Höfuðborgarsvæðinu 2040 er að stuðla

að markvissri uppbyggingu þjónustukjarna sem tengdir

eru saman með nútíma almenningssamgöngukerfi. Þessi

áhersla leiðir einnig til betra aðgengis þeirra sem búa

í dreifðri byggð í úthverfum að þjónustu í hverfiseiningum.

Höfuðborgarsvæðið er á norðlægri breiddargráðu þar

sem sól er lágt á lofti og sterkir vindar blása. Mikilvægt er

að þróun byggðar og almenningsrýma dragi úr neikvæðum

veðuráhrifum og stuðli að góðu aðgengi að sólríkum

og skjólsælum svæðum.

Á skipulagstímabilinu er gert ráð fyrir miklum breytingum

í aldurssamsetningu og fjölskylduformi íbúa. Fjölgun í eldri

aldurshópnum verður mjög mikil og heimilum með börn

mun fækka. Þessar breytingar munu hafa áhrif á byggðar-

Markviss uppbygging þjónustukjarna og nútíma almenningssamgöngukerfis eykur gæði nærumhverfis og bætir þjónustustig í almennri borgarbyggð. Góð almenningsrými hvetja íbúa til aukinnar útiveru og stuðla að bættri lýðheilsu.

þróun og auka eftirspurn eftir minna og hentugra húsnæði

fyrir eldri borgara og þá sem hyggjast hefja búskap. Þannig

mun framboð af sérbýli og stærri eignum aukast að

einhverju leyti sjálfkrafa.

64

Höfuðborgarsvæðið er samansett úr ólíkum einingum sem tengjast saman innbyrðis og mynda sterkari heild. Innan þeirra geta íbúar sótt viðeigandi húsnæði, gæði og þjónustu. Hryggjastykki svæðisins er samgöngu og þróunarás.

Page 63: Höfuðborgarsvæðið 2040

65Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Eftirfarandi MARKMIÐ, sem endurspegla LEIÐARLJÓS 5, eru sett fram sem stefna Höfðborgarsvæðisins 2040:

Borgarbyggðin mótist af viðmiðum 20 mínútna hverfisins.Byggð og umhverfi verður mótað út frá mannlegum þörfum og mælikvarða sem fellur að landslagi og styður samskipti og útiveru.

Á höfuðborgarsvæðinu verði fjölbreyttur húsnæðismarkaður sem uppfylli þarfir íbúa. Hugað verður sérstaklega að framboði á húsnæði á viðráðanlegu verði.

5.1

5.2

Page 64: Höfuðborgarsvæðið 2040

66

3 // Stefna

markmið 5.1 Borgarbyggðin mótist af viðmiðum 20 mínútna hverfisins. Byggð og umhverfi verður mótað út frá mannlegum þörfum og mælikvarða sem fellur að landslagi og styður samskipti og útiveru.

Í stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040 er lögð sérstök áhersla

á tuttugu mínútna hverfiseiningar. Hugmyndin er að íbúar

geti gengið að ákveðnum gæðum í þjónustu og umhverfi

innan 20 mínútna frá sínu heimili, hvort sem það er í þéttum

miðkjarna eða úthverfi. Innan tuttugu mínútna hverfisein-

ingarinnar eru íbúðir af öllum toga, margvíslegar starfsstöðvar

og þjónusta af ýmsu tagi. Vel útfærð almenningsrými skipa

mikilvægan sess í að hvetja íbúa til útiveru og gera þeim

fært að sinna helstu erindum gangandi eða hjólandi. Með

auknu þjónustustigi, betri almenningsrýmum og fleiri íbúum

sem sinna sínum daglegu erindum innan hverfis, verður

mannlífið í tuttugu mínútna hverfinu fjölskrúðugra og

umhverfið líflegra.

Miðað verður við að innan tuttugu mínútna göngufjarlægðar

eigi íbúar kost á grunnþjónustu eins og íþrótta- og tóm-

stundastarfsemi, leikskóla, grunnskóla og matvöruverslun.

Ávallt verði aðgangur að biðstöð almenningssamgangna

með háu þjónustustigi og þjónustu sem styður við fjölbreytt

mannlíf og samveru. Dæmi um slíka þjónustu eru kaffi-

hús, veitingastaðir og skjólgóð og sólrík almenningsrými.

æskilegt er að innan hverfiseiningar verði skólagarðar og

matjurtagarðar til að stuðla að sjálfbærri ræktun. Leggja

verður áherslu á að innan tuttugu mínútna hverfisins sé

byggðin blönduð a.m.k. að ákveðnum hluta. Blöndun

byggðar snýr ekki einungis að breytilegri starfsemi, heldur

einnig því að húsnæði sé fjölbreytilegt og ýti undir eðlilega

aldurshringrás innan hverfa.

Mikilvægt er að móta skjólgott og sólríkt borgarumhverfi

þar sem leik- og dvalarsvæði og göngu- og hjólaleiðir verði

í nánum tengslum við heimili. Lögð verði áhersla á að byggð

verði felld vel að umhverfi og þétting taki mið af aðstæðum.

Víða getur þétting byggðar bætt aðstæður, aukið skjól

og gæði útivistarsvæða og styrkt rýmismyndun í þegar

byggðum hverfum. Þó skal við þéttingu gæta þess að

vernda staðbundin einkenni og byggingararf og halda

í séreinkenni sveitarfélaganna. Með þéttari byggð er

brýnt að tryggja gæði byggðar og ytra umhverfis.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

5.1.1 SSH mótar leiðbeiningar um ákjósanlegar útfærslur

byggðarmynsturs sem stuðli að gæðum byggðar og sjálf-

stæðum hverfiseiningum.

5.1.2 SSH viðheldur upplýsingum um dreifingu þjónustu

s.s. verslunarhúsnæðis sbr. aðgerð 6.1.2.

5.1.3 Svæðisskipulagsnefnd vinnur fjögurra ára þróunar-

áætlun í samvinnu við sveitarfélögin þar sem dregin verði

fram áform um uppbyggingu þjónustu.

Page 65: Höfuðborgarsvæðið 2040

67Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

3 // Stefna

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

5.1.4 Við útfærslu markmiðs 5.1. verða sveitarfélög að

gæta að verndun byggingararfs og umhverfis. Metið verði

hvort fyrirhuguð byggð kalli á húsakönnun og/eða um-

hverfisgreiningu. Sérstök áhersla verði lögð á vel heppnaðar

útfærslur við þéttingu eldri byggðar.

5.1.5 Sveitarfélög útfæri í aðalskipulagsáætlunum mark-

mið um lýðheilsu og geri grein fyrir nánari útfærslu hjóla- og

göngustíga sem stuðli að daglegri hreyfingu.

Aðkoma og aðgerðir annarra

5.1.6 Skipulagsstofnun aðstoði við mótun leiðbeininga

um útfærslur og viðmið sjálfstæðra hverfiseininga.

5.1.7 Minjastofnun Íslands veiti aðgang að upplýsingum

um húsnæði sem nýtur friðunar.

Leiksvæði og önnur dvalarsvæði

Bókasafn / sundlaug og kaffihús

Göngu- og hjólaleiðir

Borgarlína

StrætóBorgargarðar og

stærri útivistarsvæði

Starfsstöðvar

Hverfisverslunog nærþjónusta

Garðlönd

Fjölbreytt húsnæði

Leikskólar og grunnskólar

Page 66: Höfuðborgarsvæðið 2040

68

3 // Stefna

markmið 5.2 Á höfuðborgarsvæðinu verði fjölbreyttur húsnæðismarkaður sem uppfylli þarfir íbúa. Hugað verður sérstaklega framboði á húsnæði á viðráðanlegu verði.

Lögð verði áhersla á að fjölga valkostum um íbúðagerðir og

eignarform á nýjum uppbyggingarsvæðum. Gera verður ráð

fyrir aukinni spurn eftir minni íbúðum vegna fjölgunar eldri

borgara og minnkandi fjölskyldustærðar. Tryggja skal framboð

húsnæðis á viðráðanlegu verði svo að allir íbúar hafi tök á að

útvega sér húsnæði á almennum markaði. Með aukinni sam-

þættingu byggðarþróunar við almenningssamgöngur með

hátt þjónustustig má lækka rekstrarkostnað heimila.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

5.2.1 SSH mótar, í samvinnu við sveitarfélögin, heild-

stæða húsnæðisstefnu með sérstaka áherslu á framboð

húsnæðis á viðráðanlegu verði.

5.2.2 SSH viðhaldur gagnagrunni með upplýsingum um

þróun fólksfjölda, aldurssamsetningu og fjölskyldugerð með

reglulegum hætti og setur í samhengi við svæðisskipulagið

og framfylgd þess.

5.2.3 SSH viðheldur upplýsingar um þróun húsnæðismark-

aðar og hlutfall húsnæðis á viðráðanlegu verði hverju sinni.

5.2.4 Svæðisskipulagsnefnd vinnur í samvinnu við

sveitarfélögin, fjögurra ára þróunaráætlun, þar sem fram

kemur áætluð uppbygging íbúða flokkaðar eftir tegund,

eignarhaldi og hvort þær falli undir viðmið um húsnæði

á viðráðanlegu verði.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

5.2.5 Sveitarfélögin útfæri nánar húsnæðisstefnu í sínum

áætlunum.

2.2.6 Sveitarfélögin leggi reglulega til upplýsingar um

þróun húsnæðismarkaðar.

2.2.7 Sveitarfélögin í samvinnu við ríkið leiti leiða til

að auka hlutdeild húsnæðis á viðráðanlegu verði.

Aðkoma og aðgerðir annarra

5.2.8 Hagstofan og Þjóðskrá veiti upplýsingar um þróun

lýðfræði og húsnæðismarkaðar.

5.2.9 Skipulagsstofnun og Mannvirkjastofnun veiti leið-

beiningar varðandi vel heppnaðar útfærslur á blönduðum

hverfum og litlum ódýrum íbúðum.

5.2.10 Ríkisskattstjóri leiti leiða til að ná utan umfjölda

og staðsetningu leiguíbúða í gegn um skattframtöl.

5.2.11 Skipulagsstofnun og Mannvirkjastofnun veita

leiðbeiningar varðandi vel heppnaðar útfærslur á blönduðum

hverfum og litlum ódýrum íbúðum.

Page 67: Höfuðborgarsvæðið 2040

69

1 // Inngangur

Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

Page 68: Höfuðborgarsvæðið 2040

70

3 // Stefna

Page 69: Höfuðborgarsvæðið 2040

71Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

Skilgreiningar

3 // Stefna

LaNDNOTkUNmEGiNDrÆTTirMegindrættir landnotkunar eru settir saman á þemakort til að gera áhersl-

ur Höfuðborgarsvæðisins 2040 sem sýnilegastar. Ekki er um eiginlegan

skipulagsuppdrátt að ræða en sveitarfélögin verða að útfæra megindrætti

landnotkunar til hliðsjónar við mótun aðalskipulagsáætlanir. Þeir þættir sem

hafa bindandi staðsetningu, vaxtarmörk og vatnsverndarsvæði eru aðgengi-

legir í kortagrunni svæðisskipulagsins.

LANDSKJARNI

SVæðISKJARNI

BæJARKJARNI

VAxTARMöRK

AðALVEGIR

AðRIR VEGIR

BORGARByGGð (2012)

OPINSVæðI

LANDBÚNAðARSVæð

GRæNI TREFILLINNI

FJALLLENDI

FÓLKVANGUR

MöRK HöFUðBORGARSVæðISINS

HÁSKÓLI

LANDSSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS

FISKIHöFN

VöRUFLUTNINGAHöFN

ALÞJÓðAFLUGVöLLUR

STÓRIðJA

VATNSVERND - BRUNNSVæðI

VATNSVERND - GRANNSVæðI

VATNSVERND - FJARVæðI

VATNSVERND - öRyGGISSVæðI VEGNA GRUNNVATNS OG yFIRBORðSVATNS

Page 70: Höfuðborgarsvæðið 2040

72

1 // Inngangur

4

Page 71: Höfuðborgarsvæðið 2040

73

123

5

HVAÐ ER HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 2040?Inngangur

Hvernig er Höfuðborgasvæðið 2040 frábrugðið eldra svæðisskipulagi?

Hvernig ber að túlka Höfuðborgarsvæðið 2040?

Skilgreiningar

Sögulegt og landfæðilegt samhengi

UMHVERFISMAT SVÆÐISSKIPULAGSTILLLÖGUNANRTilgangur og nálgun

Áfangaskipting

Samræmi milli stefnu svæðisskipulags og matsspurninga

HELSTU ÁSKORANIRÁframhaldandi vöxtur

Fækkun í heimili og breyttar húsnæðisþarfir

Samvinna enn í mótun

Alþjóðleg samkeppnishæfni

Breytingar í umhverfi - loft, lögur og láð

Lýðheilsa

INNLEIÐING OG ÁRANGURSMÆLINGLEIÐARLJÓS 6: Árangursríkt samstarf um þróun höfuðborgarssvæðisins

Innleiðing í skipulagsáætlanir

Endurskoðun

Árangursmæling

STEFNA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 2040LEIÐARLJÓS 1: Hagkvæmur vöxtur höfuðborgarsvæðisins

LEIÐARLJÓS 2. Skilvirkar samgöngur og nútímalegt samgöngukerfi

LEIÐARLJÓS 3: Aukin alþjóðleg samkeppnishæfni

LEIÐARLJÓS 4: Heilnæmt umhverfi

LEIÐARLJÓS 5. Gott nærumhverfi.

Landnotkun megindrættir

Page 72: Höfuðborgarsvæðið 2040

74

4 // Framgangur, innleiðing og árangursmæling

INNLEIÐING OG ÁRANGURSMÆLING

Forsenda þess að sýn Höfuðborgarsvæðisins 2040 nái

fram að ganga er sú að leiðarljós, markmið og aðgerðir séu

innleiddar og mælikvarðar séu til staðar til að meta árangur

hverju sinni.

Innleiðing á stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040 er í höndum

svæðisskipulagsnefndar, skrifstofu SSH, sveitarfélaga og

byggðarsamlaga. Mikilvægt er að um þau atriði sem hafa

mikið svæðisbundið gildi verði ávallt náið samstarf á sam-

vinnuvettvangi sveitarfélaganna. Þau atriði sem einungis

snerta staðbundna landnotkun er vísað til útfærslu í aðal-

skipulagsáætlun sveitarfélaga.

Stefna Höfuðborgarsvæðisins 2040 tekur einnig til sam-

starfs sveitarfélaganna og birtist sem sérsttak leiðarljós.

Page 73: Höfuðborgarsvæðið 2040

1 // Inngangur

Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

LEIÐARLJÓS 6

Árangursríkt samstarf um þróun höfuðborgarssvæðisins

Stefnumótun um árangursríkt samstarf skapar umgjörð

fyrir nánara samstarf sveitarfélaganna sem leiðir til aukinnar

hagkvæmni, betri samgangna, sjálfbærni í byggðarþróun

og styður betri ákvörðunartöku við úrlausn sameiginlegra

hagsmunamála íbúa höfuðborgarsvæðisins.

Sveitarfélögin eiga í nánu samstarfi og styðja við framfylgd á stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040 til að tryggja sjálfbæran vöxt og hagkvæma byggðarþróun.

75

Með aunku samstarfi eykst þörfin á virkum samstarfs-

vettvangi og öflugu utanumhaldi. Skrifstofa SSH verður

svæðisskipulagsnefnd til halds og trausts með framfylgd

Höfuðborgarsvæðisins 2040 og viðhaldi reglulega lykil-

tölum um byggðaþróun, aðstoði sveitarfélögin við mótun

styttri þróunaráætlana, sameiginlegra leiðbeininga og

annist eftirfylgni á stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040.

Page 74: Höfuðborgarsvæðið 2040

76

Eftirfarandi MARKMIÐ, sem endurspegla LEIÐARLJÓS 6, eru sett fram sem stefna Höfðborgarsvæðisins 2040:

Skrifstofa SSH veður vettvangur virks samstarfs um þróun höfuðborgarsvæðisins.

Metnaðarfullt svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið liggi fyrir á hverjum tíma þar sem sett er fram sameiginleg stefna um hagkvæma og sjálfbæra byggðarþróun.

6.1

6.2

4 // Framgangur, innleiðing og árangursmæling

Page 75: Höfuðborgarsvæðið 2040

77Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

markmið 6.1 Skrifstofa SSH veður vettvangur virks samstarfs um þróun höfuðborgarsvæðisins.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

6.1.1 Svæðisskipulagsnefnd hefur yfirumsjón með svæðis-

skipulaginu. Skrifstofa SSH er hefur umsjón með rekstri

svæðisskipulagsnefndar með skilvísri stjórnsýslu.

6.1.2 SHH viðheldur, í samvinnu við sveitarfélögin, lifandi

kortagrunni með tilvísun til samkomulags sveitarfélaga á

höfuðborgarsvæðinu þar að lútandi.

6.1.3 SSH viðheldur gagnagrunn svæðisskipulags, þar

sem lykiltölur um þróun byggðar eru uppfærðar reglulega,

í það minnsta árlega.

6.1.4 SSH aðstoðar svæðisskipulagsnefnd við gerð

fjögurra ára þróunaráætlun í samvinnu við sveitarfélögin

sem taka mið að uppfærðum mannfjöldaspám. Markmið

þróunaráætlana er að stuðla að markvissri uppbyggingu

höfuðborgarsvæðisins sem styður við markmið Höfuð-

borgarsvæðisins 2040. Þróunar áætlanir verða unnar af

afloknum sveitarstjórnarkostningum.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

6.1.5 Sveitarfélögin standa að starfi skrifstofu SSH og

svæðisskipulagsnefndar og fela henni aukið stefnumótandi

hlutverk í góðu samstarfi við skipulagsnefndir þeirra og

önnur stjórnvöld m.a. við:

• Gerð fjögurra ára þróunaráætlana fyrir höfuðborgar-

svæðið að loknum sveitarstjórnarkosningum.

• Samráð við gerð aðalskipulags aðildarsveitarfélaga.

• Samráð við ríkisvaldið um gerð og framfylgd lands-

skipulagsstefnu.

6.1.6 Með tilvísun til samkomulags sveitarfélaga á höfuð-

borgarsvæðinu við LUKR um gagnagrunn svæðisskipulags

munu sveitarfélögin skuldbinda sig til að skila inn gögnum

með markvissum og öruggum hætti, í það minnsta árlega.

Aðkoma og aðgerðir annarra

6.1.7 Samráð verði haft við viðeigandi stofnanir um gögn

sem snerta lykiltölur um þróun byggðar: Hagstofa, Þjóðskrá,

Vegagerðin, Byggðastofnun, RSK, Landmælingar Íslands.

4 // Framgangur, innleiðing og árangursmæling

Page 76: Höfuðborgarsvæðið 2040

78

markmið 6.2 Metnaðarfullt svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið liggi fyrir á hverjum tíma þar sem sett er fram sameiginleg stefna um hagkvæma og sjálfbæra byggðarþróun.

Svæðisskipulagsnefnd og SSH

6.2.1 Svæðisskipulagsnefnd og Skrifstofa SSH fylgjast

með framfylgd skipulagsins og benda á sveitarfélögum

misræmi við aðalskipulagsáætlnir ef þörf er á.

6.2.2 Skrifstofa SSH hefur yfirumsjón með stjórnsýslu-

hluta svæðisskipulagsis, sér um reglulega uppfærslu

upplýsinga, tölfræðilega úrvinnslu, framsetningu skipulags-

ins, miðlun upplýsinga og samstarf við skipulagsyfirvöld

í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu og aðliggjandi

sveitarfélögum.

6.2.3 Svæðisskipulagsnefnd skal eftir skipun hennar

í upphafi nýs kjörtímabils sveitarstjórnar leggja fram verk-,

tíma- og kostnaðaráætlun. Ávallt skal meta hvort þörf sé

á að endurskoða svæðisskipulagið.

Aðildarsveitarfélög og byggðarsamlög

6.2.4 Sveitarfélögin skuldbinda sig til að umgangast

staðfest svæðisskipulag af festu og virðingu og innleiða

í gildandi aðalskipulagsáætlanir.

6.2.5 Við gerð aðalskipulags aðildarsveitarfélaganna

og endurskoðun þeirra skal byggja á stefnumörkun svæðis-

skipulagsins.

Aðkoma og aðgerðir annarra

6.2.6 Skipulagsstofnun veitir leiðsögn um framfylgd,

viðhald og endurskoðun svæðisskipulagsins ef þörf er á.

4 // Framgangur, innleiðing og árangursmæling

Page 77: Höfuðborgarsvæðið 2040

79Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

Innleiðing í skipulagsáætlanir

Svæðisskipulag er rétthærra en aðalskipulagsáætlanir og

skulu sveitarfélögin gæta að innra samræmi skipulagsáætl-

ana og að aðalskipulagsáætlanir og aðrar áætlanir vinni ekki

gegn stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040.

Sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins skulu hafa innleitt stefnu

Höfuðborgarsvæðisins 2040 í aðalskipulagsáætlanir innan

18 mánaða frá samþykki þess.

Sveitarfélögin skulu leggja fram tillögu að innleiðingu til

svæðisskipulagsnefndar og SSH, sem munu fjalla um

tillöguna ásamt fagráði og framkvæmdanefnd svæðis-

skipulagsnefndar. Tillagan skal gera grein fyrir framfylgd

sveitarfélagsins við útfærslu á stefnu Höfuðborgarsvæðisins

2040 ásamt nánari stefnumótun og áætlanagerð eftir því

sem á við.

4 // Framgangur, innleiðing og árangursmæling

Endurskoðun á stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040 skal

eiga sér stað samkvæmt málsmeðferð eins og hún kemur

fram í skipulagslögum og skipulagsreglugerð og skal vera

í höndum svæðisskipulagsnefndar og SSH.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum skal svæðisskipulags-

nefnd koma saman og meta hvort ástæða sé til að endur-

skoða svæðisskipulagið. Skal sú ákvörðun m.a. taka mið af

því hvort landsskipulagsstefna kalli á endurskoðun svæðis-

skipulagsins.

Ennfremur skal svæðisskipulagsnefnd taka tillit til þess

hvort forsendur, þ.m.t. efnhagaslega og samfélagsleg þróun

hafi breyst og hvort framfylgd svæðisskipulagsins hafi geng-

ið eftir eins og aðvar stefnt.

Endurskoðun á stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040

Aðalskipulag skal gera sérstaklega grein fyrir:

• Hlutverki sveitarfélags við útfærslu samgöngu- og þró-

unaráss sem mun tengja höfuðborgarsvæðið saman.

• Sýn og stefnu sveitarfélagsins á legu mögulegrar Borg-

arlínu.

• Hvernig uppbygging samræmist stefnu Höfuðborgar-

svæðisins 2040 með tilliti til viðmiða eins og þau birtast

í töflu 1 og töflu 2.

Um málsmeðferð á endurskoðaðri áætlun fer sem um gerð

nýs svæðisskipulags væri að ræða. Ef niðurstaða svæðis-

skipulagsnefndar er að svæðisskipulagið þarfnist ekki

endurskoðunar heldur stefna þess áfram gildi sínu. Tilkynna

þarf Skipulagsstofnun um niðurstöðu svæðisskipulags-

nefndar hvort endurskoða bera svæðisskipuag eða ekki.

Allar breytingar sem gerðar eru á svæðisskipulagi kalla á

málsmeðferð skv. 22.–25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í töflu 3 er settur fram rammi um hvaða atriði kalla á

breytingar á svæðisskipulagi og hvernig málsmeðferð

er þá hátað. Meginreglan er að eftir því sem efnisatriðin

hafa meira svæðissbundi mikilvægi því meiri þörf er að

málsmeðferð breytinga sé formlegt breytingarferli.

Page 78: Höfuðborgarsvæðið 2040

80

BreyTingar

Grundvallarbreyting á sýn og stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040

Breyting á áætlun um byggðarþróun og/eða landnotkun með svæðis-bundið gildi eða staðbundinni landnotkun með svæðisbundið gildi

Staðbundnar breytingar sem hafa áhrif á nærliggjandi sveitarfélög,

Staðbundnar breytingar sem hafa engin áhrif á nærliggjandi sveitarfélög

Mikið svæðisbundið

mikilvægi

Lítið svæðisbundið

mikilvægi

Viðfangsefni

Vaxtarmörk

Vatnsvernd

Miðkjarnar, samgöngumiðuð þróunarsvæði

Meginstofnvegir

Lega samgöngu og þróunaráss

Lega borgarlínu

Stofngötur

Stofnstígar

Breytingar á græna treflinum og sameiginlegum útivistarsvæðum.

Staðsetning hafna og flugvalla

Stór verslunarsamstæður (e. big box) af stærðargráðu sem hefur umtalsverð áhrif umfram nánasta umhverfi

Stór iðnaðarsvæði af stærðargráðu sem hefur umtalsverð áhrif umfram nánasta umhverfi

Aðalskipulagsbreyting

Landnotkunarbreytingar, t.d. í iðnaðarsvæði

HverfaskipulagsbreytingDeiliskipulagsbreyting

MálsMeðferð

Formleg breyting á svæðis-skipulagi skv. málsmeðferð 22. - 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Matsskylda: Þau sveitarfé-lög sem óska eftir breyting-um leita eftir áliti svæðis-skipulagsnefndar hvort þörf sé á formlegri breytingu á svæðisskipulagi.

Afgreiðsla svæðisskipulags-nefndar um hvort meðferð eigi að vera í samræmi þarf að fá staðfestingu hjá öllum aðildarsveitarfélögum.

Vísað til hlutaðeigandi sveitarfélaga

Vísað til sveitarfélags

4 // Framgangur, innleiðing og árangursmæling

TAFLA 3

Page 79: Höfuðborgarsvæðið 2040

81Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

Árangursmæling

Til þess að aðstoða við framfylgd á stefnu Höfuðborgas-

svæðisins 2040 mun SSH hafa umsjón með upplýsinga- og

mælaborð með lykil skipulagstölum og annast útgáfu yfirlits

um stöðu þróun skipulagsmála á höfuðborgarsvæðinu.

LeiðarLjós 1 Hagkvæmur vöxtur

Í vinnslu....

• Í vinnslu.....

Meginþunga vaxtar er beint að miðkjörnum og á samgöngumiðuð þróunarsvæði.

• Úttekt á dreifingu uppbyggingar á miðsvæði, samgöngumiðuð þróunarsvæði og

önnur uppbyggingarsvæði.

• Fjöld, gerð, þéttleiki og vöxtur - íbúa íbúða, starfa og atvinnuhúsnæðis á miðkjörnum

og samgöngumiðuðum þróunarsvæðum.

• Úttekt á uppbyggingu miðað við áætlaða þörf

Varðveita gott landbúnaðarland og styrkja markað með staðbundin matvæli.

• Stærð góðs landbúnaðarlands

LeiðarLjós 2 Vistvænar samgöngur og nútímalegt samgöngukerfi

Íbúar og gestir hafa raunhæft val um hagkvæma og skilvirka samgöngumáta sem grund-

vallast á samþættingu samgöngumiðaðrar byggðarþróunar og eflingu vistvænna sam-

gangna.

• Fjöldi fólksbifreiða í umferð á hvern íbúa

• Ferðavenjur ferðamáta með bifreiðum, almenningssamgöngum, gangandi og

hjólandi, hlutdeild og breytingar milli ára

1.1

1.2

1.3

2.1

4 // Framgangur, innleiðing og árangursmæling

Page 80: Höfuðborgarsvæðið 2040

82

2.2

2.3

2.4

3.1

3.2

Almenningssamgöngur mynda heildstætt tveggja laga kerfi. Hlutdeild almenningssam-

gangna í öllum ferðum innan svæðisins árið 2040 verður a.m.k. 12%.

• Lengd almenningssamgangnakerfis

• Fjöldi íbúa sem býr í 5 mín fjarlægð frá næstu stöð.

• Lengd kerfis með háu þjónustustigi

• Fjöldi íbúa sem býr í 5 mín fjarlægð frá næstu stöð.

• Fjöldi og hlutdeild notenda almenningssamgangakerfis og breytingar milli ára.

Stofnleiðir hjóla- og göngustíga tengja allt höfuðborgarsvæðið saman og auðvelda notkun

virkra ferðamáta. Hlutdeild göngu- og hjólreiða í öllum ferðum innan svæðisins árið 2040

verður a.mk. 30%.

• Lengd hjólastígakerfis höfuðborgarsvæðisins, innan og milli sveitarfélaga.

• Fjöldi og hlutdeild gangandi og hjólandi og breytingar milli ára.

Meginstofnvegir tryggja greiða umferð fólks og vöru að og frá höfuðborgarsvæðinu með

áherslu á alþjóðlegar megingáttir samgöngukerfis landsins. Á öðrum stofnvegum verður

megináhersla lögð á að draga úr neikvæðum áhrifum umferðar á nærumhverfið.

• Fjöldi ekinna km bifreiða á gatnakerfi

• Árlegt magn jarðefnaeldsneytis keypt á höfuðborgarsvæðinu

• Vegin meðal vegalengd frá heimili til vinnu eftir ferðamátum.

LeiðarLjós 3 Aukin alþjóðleg samkeppnishæfni

Vel tengdir miðkjarnar bjóða uppá spennandi valkosti á öllu höfuðborgarsvæðinu fyrir

nútíma atvinnulíf.

• Fjöldi og vöxtur starfa og fyrirtækja á miðkjörnum, samgöngumiðuðum þróunar-

svæðum og öðrum svæðum.

• Fjöldi og hlutfall starfandi og í virkri atvinnuleit

• Fjöldi ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu

Styrkja samkeppnisstöðu höfuðborgarsvæðisins með markvissri uppbyggingu vísinda-

og tæknigarða.

• Fjöldi sprotafyrirtækja og fjöldi starfa.

• Hlutdeild höfuðborgarsvæðisins í hagkerfi Íslands.

• Fjöldi fyrirtækja í vísinda- og tæknigarði og fjöldi starfa.

• Úttekt á stöðu sveitarfélaga við að skapa sér hlutverk í að styrkja samkeppnishæfni

höfuðborgarsvæðisins

4 // Framgangur, innleiðing og árangursmæling

Page 81: Höfuðborgarsvæðið 2040

83Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

Tryggja að með samgöngum og landnotkun að höfuðborgarsvæðið verði áfram í sem

mestri nálægð við erlenda markaði.

• Stærð lands undir atvinnustarfsemi

Tryggja að sjávarútvegur geti áfram verið grunn atvinnugrein með því að festa í sessi

hlutverk fiskihafna og ýta undir nýsköpun sem tengist greininni.

• Fjöldi sjávarútvegsfyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu

• Magn sjávarfangs sem er landað

• Fjöldi sprota- nýsköpunarfyrirtækja í sjávarútvegi

• FJöldi starfa í sjávarútvegi

.

Samstarf um byggðaþróun á suðvesturhorni landsins er aukin til muna.

• Fjöldi funda með öðrum landshlutasamtökum.

• Fjöldi og hlutdeild ferðamáta milli höfuðborgarsvæðisins og nágrannasveitarfélaga

• Fjöldi og hlutfall erlendra ferðamanna til og frá höfuðborgarsvæðinu.

LeiðarLjós 4 Heilnæmt umhverfi

• Lengd göngustíga um græna trefilinn

• Lengd göngustígakerfis höfuðborgarsvæðisins.

• Magn CO2 útblásturs frá heimilum, fyrirtækjum og samgöngukerfis.

• Magn trjáræktar innan og utan vaxtamarka

LeiðarLjós 5 Gott nærumhverfi

Byggðarmynstur styðji við markmið um sjálfbærni. Nauðsynlegasta þjónusta verði innan

20 mínútna göngufjarlægðar, en verði misfjölbreytileg á mismunandi svæðum.

• Fjöldi íbúa sem býr innan við 20 mín göngufjarlægð frá:

• Samgöngu og þróunarás

• Miðkjörnum eða samgöngumiðum þróunarsvæðum

• Góðri matvöruverslun

• Starfi

• Almenningsgarði

• Útivistarsvæði

3.3

3.4

3.5

5.1

4 // Framgangur, innleiðing og árangursmæling

Page 82: Höfuðborgarsvæðið 2040

84

Brugðist verði við breytingum í aldurssamsetningu og fjölskyldumynstri. Styðja skal við

fjölbreyttan húsnæðismarkað og valkosti í viðráðanlegu húsnæði, sem uppfylli þarfir íbúa.

Stuðlað verði að jafnvægi á byggingarmarkaði og dregið úr þenslu og samdrætti.

• Útgáfa byggingarleyfa eftir fjölda, gerð og stærð íbúðarhúsnæðis.

• Fjöldi, gerð og stærð íbúðarhúsnæðis í byggingu.

• Fjöldi viðráðanlegs húsnæðis

• Fjöldi leigusamninga, leiguhúsnæðis og umsóknir húsaleigubóta.

• Fjöldi félagslegs húsnæðis

• Fjöldi sveitarfélaga sem hafa mótað sér húsnæðisstefnu

Byggð verði felld vel að umhverfi og þétting taki mið af aðstæðum. Vernda skal staðbund-

in sérkenni og byggingararf.

Mótaðar verði markvissar aðgerðir til að stuðla að bættri lýðheilsu.

LeiðarLjós 6 Árangursríkt samstarf um þróun höfuð borgarsvæðisins

Skrifstofa SSH er efld og starfsemi hennar sem vettvangur frekara samstarfs á sviði

stefnumótunar og skipulagsmála er fest í sessi.

• Fjöldi funda á skrifstofu SSH

• FJöldi funda svæðisskipulagsnefndar

• Fjöldi verkefna

Metnaðarfullt svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið liggi fyrir á hverjum tíma þar sem

sett er fram sameiginleg stefna um hagkvæma og sjálfbæra borgarþróun.

• Úttekt á framkvæmd og innleiðingu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2015-

2040 í aðalskipulagsáætlanir sveitarfélaga.

5.2

5.3

5.4

6.1

6.2

4 // Framgangur, innleiðing og árangursmæling

Page 83: Höfuðborgarsvæðið 2040

85

1 // Inngangur

Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

Page 84: Höfuðborgarsvæðið 2040

86

1 // Inngangur

5

Page 85: Höfuðborgarsvæðið 2040

87

UMHVERFISMAT SVÆÐISSKIPULAGSTILLLÖGUNANRTilgangur og nálgun

Áfangaskipting

Samræmi milli stefnu svæðisskipulags og matsspurninga

1234

HVAÐ ER HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 2040?Inngangur

Hvernig er Höfuðborgasvæðið 2040 frábrugðið eldra svæðisskipulagi?

Hvernig ber að túlka Höfuðborgarsvæðið 2040?

Skilgreiningar

Sögulegt og landfæðilegt samhengi

HELSTU ÁSKORANIRÁframhaldandi vöxtur

Fækkun í heimili og breyttar húsnæðisþarfir

Samvinna enn í mótun

Alþjóðleg samkeppnishæfni

Breytingar í umhverfi - loft, lögur og láð

Lýðheilsa

INNLEIÐING OG ÁRANGURSMÆLINGLEIÐARLJÓS 6: Árangursríkt samstarf um þróun höfuðborgarssvæðisins

Innleiðing í skipulagsáætlanir

Endurskoðun

Árangursmæling

STEFNA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 2040LEIÐARLJÓS 1: Hagkvæmur vöxtur höfuðborgarsvæðisins

LEIÐARLJÓS 2. Skilvirkar samgöngur og nútímalegt samgöngukerfi

LEIÐARLJÓS 3: Aukin alþjóðleg samkeppnishæfni

LEIÐARLJÓS 4: Heilnæmt umhverfi

LEIÐARLJÓS 5. Gott nærumhverfi.

Landnotkun megindrættir

Page 86: Höfuðborgarsvæðið 2040

88

UMHVERFISMAT

Tilgangur og nálgun

TilgangurTilgangur umhverfismats er að tryggja eftir föngum að

umhverfisáhrif skipulagsáætlana séu metin við gerð þeirra

og þannig stuðlað að því að tekið sé tillit til líklegra áhrifa við

stefnumótunina. Áhrif eru almennt metin með því að skoða

breytingar frá núverandi stöðu og þróun, þ.m.t. frá gildandi

stefnu. Hins vegar með því að setja viðmið um æskilega

þróun og meta hvort stefna svæðisskipulagsins vísar í þá

átt. Við svæðisskipulagsvinnuna var síðari leiðin valin og

sett fram viðmið um skipulag sem stuðlar að góðri lýðheilsu,

sjálfbærri þróun og samkeppnishæfni (sjá að neðan). Engu

að síður er gerð grein fyrir stöðu og þróun helstu mála sem

setja matið á sviðsmyndunum í samhengi við helstu áskor-

anir sem takast þarf á við í skipulagi höfuðborgarsvæðisins

(3. kafli).

NálgunMat á stefnumiðum er byggt upp út frá þeim þáttum sem

hafa áhrif á lýðheilsu og lífsgæði fólks, en þeir eru: Lífsstíll,

samfélag, efnahagur, athafnir dagslegs lífs, manngert um-

hverfi, náttúrulegt umhverfi og hnattrænir umhverfisþættir

(mynd bls. 89).

Skipulag getur haft margvísleg áhrif á þessa þætti sem aftur

hafa áhrif á lýðheilsu og lífsgæði og því eru þeir kallaðir

áhrifaþættir eða áhrifavaldar. Sem dæmi getur gott skipulag

haft jákvæð áhrif á:

• lífstíl fólks með því að styðja við möguleika til að

hreyfa sig dags daglega, t.d. til og frá vinnu eða á að-

gengilegum íþrótta- og útivistarsvæðum.

• samfélag með því að tryggja íbúðarsvæði fyrir fjöl-

breytt húsnæði, blöndun húsagerða innan hverfa,

almenningsrými sem veita möguleika á samveru og

samskiptum ásamt góðu aðgengi að samgöngum og

þjónustu.

• efnahag með því að tryggja vel staðsett og vönduð

svæði fyrir fyrirtæki í fjölbreyttum atvinnugreinum,

einkum þeim sem helst má vænta vaxtar í eða stuðla að

alþjóðlegri samkeppnishæfni í atvinnulífi; og með því að

tryggja hagkvæm samgöngu- og veitukerfi.

• athafnir dagslegs lífs með því að stuðla að góðu

aðgengi að nærþjónustu, grænum svæðum og öðrum

útivistarsvæðum og almenningsrýmum sem bjóða upp

á margvíslega notkun.

• Manngert umhverfi með því að stuðla að sveigjanlegu

íbúðar- og atvinnuhúsnæði sem stenst tímans tönn,

aðlaðandi og fjölbreyttum almenningsrýmum, verndun

byggingararfsins og góðum gæðum umhverfisins m.t.t.

umferðaröryggis, loftgæða, hljóðvistar og birtustigs.

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

Page 87: Höfuðborgarsvæðið 2040

89Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

• náttúrulegt umhverfi með því að haga landnotkun og

grunnkerfum þannig að neikvæð áhrif á loftgæði, vatns-

gæði, landslag og náttúrufar séu lágmörkuð og að þróa

byggð m.t.t. náttúruvár.

• Hnattræn umhverfismál með því að haga landnotkun

og samgöngukerfum þannig að útblástur gróðurhúsa-

lofttegunda verði sem minnstur og takmarka notkun

auðlinda eins jarðefnaeldsneytis, er unnið gegn

loftslagsbreytingum sem m.a. geta valdið hærra hita-

stigi og hækkun sjávarborðs. Skipulag sem stuðlar að

því að viðhalda líffræðilegri fjölbreytni er líka hnattrænt

verkefni.

Viðmið um ákjósanlega þróun voru sett fram sem spurn-

ingar fyrir ofangreinda þætti og lögð áhersla á að þær næðu

til eftirfarandi sjónarhorna:

1. Lýðheilsu og lífsgæða í borgum.

2. Sjálfbærni borga.

3. Alþjóðlegrar samkeppnishæfni borga.

4. Stefnu íslenskra stjórnvalda í umhverfis-

og skipulagsmálum.

Til að tryggja það var m.a. stuðst við eftirfarandi heimildir

fyrir hvert sjónarhorn:

1. Módel um heilsuvænt skipulag þéttbýlis (e. Healthy

Urban Planning) og verkefni alþjóða heilbrigðisstofn-

unarinnar um þetta efni (Barton og Grant, 2006)

2. Evrópskt módel um sjálfbært skipulag þéttbýlis RFSC

(e. Reference Framework for European Sustainable

Cities) (RFSC, 2014).

3. Þættir sem hafa áhrif á samkeppnishæfni borga

(PWC, 2012).

4. yfirlit um stefnu stjórnvalda í einstökum málaflokkum

sem varða landnotkun (Skipulagsstofnun, 2013) auk

viðeigandi stefnuskjala á sviði umhverfismála (sjá lista í

heimildaskrá yfir stefnuskjöl).

Þá var við nálgun umhverfismatsins tekið mið af áherslum

í Samkomulagi um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins

sem sveitarfélögin á svæðinu samþykktu þann 24. ágúst

2012, en þar er m.a. sett fram markmið um hagkvæma og

sjálfbæra borgarþróun. Matsþættir og matsspurningar fyrir

mat á umhverfismatið má sjá í viðauka.

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

Page 88: Höfuðborgarsvæðið 2040

90

Annar áfangi svæðisskipulagsvinnunnar snýst um að

setja fram stefnu fyrir málaflokka og viðfangsefni svæðis-

skipulagsins. Þegar drög að stefnumiðum lágu fyrir frá

faghópnum voru þau borin saman við matsspurningar og

gengið úr skugga hvort samræmi eða ósamræmi væri milli

stefnumiðanna og matsspurninganna. Í umfjölluninni var

leitast við að draga fram neikvæð og jákvæð áhrif á viðkom-

andi umhverfisþátt og athuga hvort að stefnumiðin næðu

til allra matsþátta og matsspurninga þeim tengdum. Sjá má

drög að matstöflu í töflu 4 Matsþættir og matsspurningar

fyrir mat á áhrifum byggðarþróunar á lýðheilsu og lífsgæði

og töflu 6 sem er styttri samantekt.

Áfangaskipting

Samræmi milli stefnu svæðisskipulags og matsspurninga

Tveir áfangarSkipulagsvinnan og tilheyrandi umhverfismat skiptist í tvo

megin áfanga. Í fyrri áfanganum voru mótaðar þrjár sviðs-

myndir um mögulega byggðarþróun og þær bornar saman

m.t.t. viðmiða um lýðheilsu, sjálfbæra þróun og samkeppn-

ishæfni. Í síðari áfanganum var samræmi einstakra stefnu-

miða við viðmiðin yfirfarið. Matið í heild sinni er sett fram

í umhverfisskýrslu sem er fylgiskjal með svæðisskipulags-

greinargerð.

Vinna við matið í fyrri áfangaMatið í fyrra áfanga svæðisskipulagsvinnunnar fór þannig

fram að ráðgjafateymi svæðisskipulagsvinnunnar ásamt

svæðisskipulagsstjóra fóru sameiginlega yfir matsspurn-

ingar fyrir hverja sviðsmynd og mátu samræmi hennar við

viðmið um lýðheilsu, sjálfbærni og samkeppnishæfni. Skýr-

sla úr þeim áfanga var lögð fyrir svæðisskipulagsnefnd sem

tók ákvörðun um framhaldið á fundi sínum þann 17. janúar

2014. Ákveðið var að vinna út frá sviðsmynd B sem gerði ráð

fyrir að uppbyggingu yrði beint í auknum mæli inn á við en

þó þannig að tekið væri tillit til fyrirliggjandi áætlana sveitar-

félaga um uppbyggingu.

Sviðsmynd B gerði ráð fyrir að ný byggð yrði að mestu innan

núverandi útmarka byggðarinnar en svigrúm yrði til nokkur-

ar uppbyggingar utan núverandi byggðar. Í sviðsmyndinni

var miðað við stofnbrautakerfið eins og það er í dag með

fyrri áfanga Sundabrautar og að auki gert ráð fyrir nokkru

fjármagni í óstaðsettar framkvæmdir til að bæta umferðar-

flæði og öryggi. Sviðsmyndin fól í sér töluverðar fjárfestingar

í hágæðakerfi fyrir almenningssamgöngur, annað hvort

15-20 km hraðvagnaleið eða 15-20 km léttlest. Hefðbundið

strætisvagna kerfi yrði rekið áfram.

Vinna við matið í síðari áfangaMatsþættir og viðmið sem notuð voru í fyrri áfanga eru

notuð áfram í mati á stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040

(sjá töflu í viðauka).

Val á matsþáttum byggir á stigi og eðli svæðisskipulagsins

sem stefnumarkandi áætlunar sem nær fyrst og fremst til

borgarsvæðis. Í samræmi við þetta stig og eðli áætlunarinnar

er unnið út frá líkani Barton & Grant (2006) yfir þætti sem hafa

áhrif á lýðheilsu og lífsgæði í borgum. Gengið var úr skugga

um að þessir þættir næðu til allra þátta sem fjalla skal um

í umhverfismati skv. lögum um umhverfismat áætlana.

Samanburðurinn segir til um hvort samræmi er við viðmið

um lýðheilsu, sjálfbærni og alþjóðlega samkeppnishæfni og

stefnu íslenskra stjórnvalda í málflokkunum. Samanburður-

inn gefur einnig vísbendingar um hvar má styrkja stefnuna

svo hún falli betur við viðmiðin.

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

Page 89: Höfuðborgarsvæðið 2040

91Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

Spurningum fyrir hvern þátt er svarað með því að gefa einkunn og tákna hana með lit, sem hér segir:

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

MATSÞÁTTUR

lífsstíll

Umhverfi sem hvetur

til hreyfingar og

vellíðunar.

STEFNA SVÆÐISSKIPULAGSINS Í HNOTSKURN OG SAMRÆMI VIÐ VIÐMIÐ

Stefnt er að breyttum ferðavenjum þar sem hærra hlutfall gangi, hjóli og ferðist

með almenningssamgöngum. Sett eru tölusett markmið, hlutdeild göngu- og hjól-

reiða í öllum ferðum innan svæðisins fari úr 21% í dag í 30% árið 2040 og hlutdeild

almenningssamgangna fari úr 4% í dag í 12% árið 2040. Stutt er við markmið um

breyttar ferðavenjur með stefnu um þéttingu byggðar, uppbyggingu samgöngu- og

þróunaráss, stuðning við stefnu um að draga úr bílastæðafjölda o.fl.

Sjá nánar markmið númer 1.2, 2.1, 2.2, 2.3, 2.4 og aðgerðir þeim tengdum.

Í stefnunni felst að íbúar höfuðborgarsvæðisins eigi greiðan aðgang að útivist-

arsvæðum nær og fjær. Bætt skilyrði til ræktunar skuli nýtt til trjáræktunar og

matvælaframleiðslu. Áhersla er lögð á að allir íbúar hafi aðgang að útivistarsvæðum

í nágrenni við heimilið og góðum hjóla- og gönguleiðum.

Sjá nánar markmið 4.1, 5.1 og aðgerðir þeim tengdum tengdum.

Sett er stefna um gott aðgengi að græna treflinum í upplandi byggðarinnar sem og

strandlengju höfuðborgarsvæðisins með göngu- og hjólastígum. Fjalllendið norðan

þéttbýlisins og Reykjanesfjallgarðurinn verði vettvangur fjallamennsku, lengri

útivistarleiða, ferðaþjónustutækifæra og vetraríþrótta. Náttúruverndarsvæði gegna

mikilvægu fræðslu- og útivistarhlutverki í nágrenni þéttbýlisins.

Sjá nánar markmið 4.1, 4.2 og 4.3 og aðgerðir þeim tengdum.

SPURNINGAR TIL AÐ META ÁHRIF STEFNU

1. Styður stefnan við breyttar

ferðavenjur þ.e. hærra hlutfall

gangandi og hjólandi og

farþega með almenningssam-

göngum?

2. Styður stefnan möguleika til

hreyfingar og útiveru á græn-

um svæðum innan hverfa?

3. Styður stefnan við möguleika

til hreyfingar og útiveru í

náttúrulegu umhverfi, þ.e. við

strönd, á grónum svæðum á

jaðri byggðarinnar og í græna

treflinum?

TAFLA 4 – Matsþættir og matsspurningar fyrir mat á áhrifum byggðarþróunar á lýðheilsu og lífsgæði.

Page 90: Höfuðborgarsvæðið 2040

92

MATSÞÁTTUR

samfélag

Félagsleg tengsl,

jafnræði, samheldni

og þátttaka í sam-

félaginu.

STEFNA SVÆÐISSKIPULAGSINS Í HNOTSKURN

Stuðningur við fjölbreyttan húsnæðismarkað og valkosti í viðráðanlegu húsnæði

sem uppfylli þarfir íbúa. Fjölbreyttar íbúðargerðir standi til boða og gert ráð fyrir

hærra hlutfalli minni íbúða á svæðum með góðar almenningssamgöngur sem höfða

m.a. til eldri borgara og taka tillit til þeirrar þróunar að færri eru í heimili.

Leitað verður leiða til að taka saman upplýsingar um þróun lykiltalna á húsnæðis-

markaði til að stuðla að því að nýtt húsnæði henti eftirspurn á markaði.

Sjá nánar markmið 5.1, 5.2 og aðgerðir þeim tengdum.

Sveitarfélögin leggi áherslu á fjölbreytt framboð af eignar- og leiguhúsnæði. Í kjörn-

um og á samgöngumiðuðum þróunarsvæðum verði blönduð byggð atvinnu- og

íbúða í sveigjanlegu húsnæði. Fjölbreytilegar húsagerðir standi til boða á upp-

byggingar- og þróunarsvæðum.

Sjá nánar markmið 5.1 og 5.2 og aðgerðir þeim tengdum.

Uppbygging í þéttri byggð styður við meira borgarlíf og aukna útiveru á sameig-

inlegum opinberum svæðum í almenningsrými, s.s. torgum, grænum svæðum,

gangstéttum, stígum og opnum svæðum. Sett er fram stefna um að íbúar höfuð-

borgarsvæðisins eigi greiðan aðgang að vef fjölbreytilegra og innihaldsríkra útivist-

arsvæða nær og fjær.

Sjá nánar markmið 1.2 og 4.1 og aðgerðir þeim tengdum.

Gert er ráð fyrir uppbyggingu almenningssamgangna og þéttleika byggðar sem

styður við notkun almenningssamgangna. Þar með batnar aðgengi fyrir alla. Þéttari

byggð styttir vegalengdir við daglegar athafnir og bætir aðgengi fyrir alla. Um-

ferð einkabíla verður greið um meginstofnvegi og álag á stofnvegkerfið á ekki að

aukast. Leyfileg uppbygging á völdum svæðum utan við núverandi byggð dregur

úr jákvæðum áhrifum þéttingar byggðar og hefur um leið neikvæð áhrif á rekstur

skilvirkra almenningssamgangna.

Sjá nánar markmið 1.1, 1.2, 2.1, 2.2, 2.4, aðgerðir þeim tengdum.

SPURNINGAR TIL AÐ META ÁHRIF STEFNU

1. Mætir stefnan áætluðum hús-

næðisþörfum, m.t.t. stærðar

íbúða og staðsetningar íbúðar-

svæða?

2. Styður stefnan við möguleika

á að blanda félagshópum í

hverfum/borgarhlutum, t.d.

með fjölbreyttri blöndun húsa-

gerða?

3. ýtir stefnan undir að fólk nýti

sér almenningsrými og stuðlar

hún þannig að samskiptum

og samveru íbúa? Dæmi um

almenningsrými: Götur, torg,

gangstéttar, stígar, græn

svæði.

4. 4. Gerir stefnan öllum

þjóðfélagshópum kleift að

ferðast auðveldlega um t.a.m.

með almenningssamgöngum,

bílum, gangandi eða akandi að

þjónustu, vinnustöðum o.fl. ?

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

TAFLA 4 frh.

Page 91: Höfuðborgarsvæðið 2040

93Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

MATSÞÁTTUR

efnahagur

Aðgengi að störfum

og alþjóðleg

samkeppnishæfni

svæðisins.

STEFNA SVÆÐISSKIPULAGSINS Í HNOTSKURN

Stefnan veitir möguleika á fjölbreyttum atvinnusvæðum í bland við íbúðabyggð

meðfram stofnæðum almenningssamgangna, í vel tengdum miðkjörnum og á

þéttingarsvæðum. Þéttari byggð getur rutt jarðveginn fyrir fjölbreyttari starfsemi

og samgöngumiðuð þróunarsvæði laði að sér fyrirtæki í þekkingargeira, nýsköpun

og ferðaþjónustu. Góðar samgöngur styðji við sjávarútveginn og uppbyggingu fiski-

hafnar. Framboð verður af svæðum fyrir landfreka starfsemi í útjaðri byggðarinnar.

Sjá nánar markmið 3.1 og 1.2 og aðgerðir þeim tengdum

Stefnan gerir ráð fyrir þéttingu byggðar innan núverandi byggðasvæða og áherslu

á uppbyggingu innan kjarnasvæða á samgöngu- og þróunarás. Eftirspurn eftir

húsnæði á slíkum svæðum er meiri en á nýjum byggðasvæðum. Uppbygging nýrra

íbúða í úthverfum er ekki líklegt til að svara eftirspurn á markaði eftir minni íbúðum,

íbúðum á miðsvæðum og íbúðum innan núverandi byggðar. Ný vel tengd hverfi við

samgöngu- og þróunarás og kjarna eru líklegri til að vera eftirsóknarvert búsetuum-

hverfi en illa tengd úthverfi.

Markmið um að nauðsynleg þjónusta verði innan 20 mínútna göngufjarlægðar

styður við gott búsetuumhverfi.

Innan vaxtarmarka þéttbýlisins er möguleiki á nýjum svæðum fyrir sérbýli sem

margir hafa áhuga á að búa í.

Sjá nánar markmið 1.1, 1.2, 5.1, 5.2 og aðgerðir þeim tengdum.

Stefnt er að breyttum ferðavenjum með aukinni hlutdeild þeirra sem ferðast um

með almenningssamgöngum, hjólandi og gangandi. Slík stefna kemur mun betur

út í kostnaðar- og ábatagreiningu fyrir notendur samgöngukerfa, hið opinbera og

samfélagið allt heldur en stefna sem gerði ráð fyrir óbreyttum ferðavenjum. Því

meiri sem breytingarnar verða á ferðavenjum, því betri áhrif á alla vegfarendahópa.

Innan skilgreindra vaxtarmarka fyrir þéttbýlið er mögulegt að byggð verði ný

úthverfi með dreifðri byggð sem eykur þörf fyrir einkabílinn, eykur vegalengdir

milli vinnustaðar eða þjónustu og minnkar líkur á að fólk gangi, hjóli eða nýti sér

almenningssamgöngur. Slík uppbygging getur hægt á þróun í breytingum á ferða-

venjum og dregið úr hagkvæmni samgöngukerfisins.

Sjá nánar markmið 1.1, 2.1, 2.2, 2.3, 2.4, aðgerðir þeim tengdum.

Sett er stefna um að auka samvinnu við nágrannabyggðir og að sorpsamlög á SV

horninu hafi samstarf um að finna hagkvæmar leiðir fyrir meðhöndlun úrgangs.

Umfang þess svæðis sem sorphirða fer fram á og þjónusta þarf með veitukerfum

innan vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins eykst talsvert ef byggð verða ný hverfi.

Þéttari byggð á öðrum svæðum getur vegið þetta upp. Styttri kerfi eru hagkvæm-

ari í rekstri og alla jafna er frekar hagræði að því að þétta byggð, þó það geti verið

kostnaðarsamt að bæta við kerfin á byggðum svæðum og valdið ónæði.

Sjá markmið 1.1 og 3.2, aðgerðir þeim tengdum.

SPURNINGAR TIL AÐ META ÁHRIF STEFNU

1. Veitir stefnan möguleika á

svæðum fyrir fjölbreytta at-

vinnustarfsemi sem vænta má

vaxtar í á svæðinu ?

2. Veitir stefnan möguleika á eft-

irsóknarverðu búsetuumhverfi

sem höfðar til fjölbreytts hóps

fólks og stuðlar að alþjóðlegri

samkeppnishæfni búsetu?

3. Miðar stefnan að hagkvæmu

samgöngukerfi?

4. Veitir stefnan möguleika á

hagkvæmu grunnkerfi veitna

og sorphirðu?

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

TAFLA 4 frh.

Page 92: Höfuðborgarsvæðið 2040

94

MATSÞÁTTUR

athafnir daglegs lífs

Gott umhverfi fyrir

daglegar athafnir.

STEFNA SVÆÐISSKIPULAGSINS Í HNOTSKURN

Þéttari byggð í miðkjörnum og á samgöngumiðuðum þróunarsvæðum bætir

skilyrði fyrir fjölbreytt framboð af nærþjónustu. Sett er markmið um að nauðsyn-

legasta þjónusta s.s. kaupmaðurinn á horninu, verði innan 20 mínútna göngufjar-

lægðar frá íbúum þéttbýlisins. Þeir sem búa nær kjörnum og samgöngumiðuðum

þróunarásum geti búist við fjölbreyttara þjónustuframboði en þeir sem búa í

úthverfum og dreifðari byggð.

Sjá nánar markmið 1.1, 1.2 og 5.1 og aðgerðir þeim tengdum.

Afmörkun vaxtarmarka utan um þéttbýlið veitir möguleika á uppbyggingu nýrra

úthverfa sem dregur úr stuðningi við nærþjónustu. Lítil eftirspurn hefur reynst vera

eftir því að byggja upp þjónustu og verslun í nýjum hverfum, ekki síst þegar gott

framboð er af atvinnusvæðum sem eru meira miðsvæðis. Þetta hefur verið reynsla

sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og hefur t.d. leitt til breytinga á skilmálum

í skipulagi þar sem skipulagsskilmálar um uppbyggingu verslunar og þjónustu hafa

verið felldir niður fyrir íbúðabyggð (dæmi: Sjáland, Norðlingaholt, Úlfarsárdalur)

(Hlynur Torfi Torfason, 2012).

Þétting byggðar býður upp á aðstæður til að ferðatími gangandi og hjólandi standi í

stað eða styttist þegar fleiri tækifæri verða til að búa miðsvæðis nær vinnustað og

aðstæður batna fyrir nærþjónustu innan hverfa. Í þéttri byggð getur verið erfitt og

dýrt að stytta ferðatíma og draga úr umferðartöfum með uppbyggingu mannvirkja

til að greiða fyrir bílaumferð. Með stefnu svæðisskipulagsins er meginþunga vaxtar

beint að miðkjörnum og á samgöngumiðuð þróunarsvæði. Með því styttast ferðir

fólks og ferðatími við daglegar athafnir. Stefna um gott aðgengi að nærþjónustu

og stefna sem setur þéttbýlinu vaxtarmörk og dregur úr útþenslu byggðar stuðlar

að styttri ferðatíma. Við óbreyttar ferðavenjur og megin uppbyggingu í úthverfum

sýna sviðsmyndir að ferðatími mun aukast.

Sjá nánar markmið 1.1, 1.2, 2.1, 5.1 og aðgerðir þeim tengdum.

Möguleg uppbygging í úthverfum innan vaxtarmarka þéttbýlisins dregur úr jákvæð-

um áhrifum þéttingar og ferðatími íbúa þar við daglegar athafnir er líklegur til að

vera langur.

Sett er stefna um að varðveita skuli gott landbúnaðarland og styrkja markað með

staðbundin matvæli. Takmarka skal uppbyggingu sem skerðir gott landbúnað-

arland. Bætt skilyrði til ræktunar verði nýtt til trjáræktar og matvælaframleiðslu.

Tækifæri verði nýtt til matjurtaræktunar á opnum svæðum í almenningsrýmum

innan þéttbýlisins .

Sjá nánar markmið 1.2 og 4.1. og aðgerðir þeim tengd.

SPURNINGAR TIL AÐ META ÁHRIF STEFNU

1. Styður stefnan við gott fram-

boð af nærþjónustu?

2. Stuðlar stefnan að styttri

ferðatíma við daglegar

athafnir?

3. Hefur stefnan áhrif á aðgengi

að svæðum á jaðri byggðar-

innar fyrir skógrækt, matjurta-

rækt eða landbúnað?

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

TAFLA 4 frh.

Page 93: Höfuðborgarsvæðið 2040

95Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

MATSÞÁTTUR

Manngert umhverfi

Gæði manngerðs

umhverfis.

STEFNA SVÆÐISSKIPULAGSINS Í HNOTSKURN

Í kjörnum og á samgöngumiðuðum þróunarsvæðum er stefnt að blandaðri byggð

atvinnu- og íbúða í sveigjanlegu húsnæði í góðum tengslum við almenningssam-

göngur.

Sjá markmið 1.2 og aðgerðir því tengdu.

Almenningsrými verði vel útfærð og hvetji íbúa til útiveru. Borgarumhverfi verði vel

hannað með skjólgóðu og sólríku borgarumhverfi með hentugum almenningsrým-

um s.s. leik- og dvalarsvæðum, göngu og hjólaleiðum.

Sjá markmið 5.2. og aðgerðir því tengdu.

Engin bein stefna er sett um umferðaröryggi og hljóðvist en önnur stefnumið geta

haft áhrif á þessa tvo þætti.

Stefnt að því að hlutdeild ferða með bílum minnki sem hefur jákvæð áhrif á hljóð-

vist. Lögð er áhersla á að fólk geti farið ferða sinna gangandi og hjólandi og að

stærri hluti ferða verði farin með almenningssamgöngum. Með því aukast gæði

byggðar hvað varðar umferðaröryggi og hljóðvist.

Sett er stefna um að aukning afkastagetu stofnvega með fjölgun akreina komi

ekki niður á lífsgæðum íbúa í nærumhverfi þar sem tryggja þarf umferðaröryggi og

hljóðvist.

Sjá nánar umfjöllun um markmið 2.1 og 2.4 og aðgerðir þeim tengdum.

Við þéttingu skal gæta þess að vernda staðbundin einkenni og byggingararf og

halda í sérkenni sveitarfélaganna.

Sjá nánari umfjöllun um leiðarljós 5, markmið 5.1. og aðgerðir þeim tengdum.

SPURNINGAR TIL AÐ META ÁHRIF STEFNU

1. Veitir stefnan möguleika á að

atvinnu- og íbúðarsvæði bjóði

upp á sveigjanlega notkun

eftir því sem þarfir íbúa og

atvinnustarfsemi breytast?

2. Styður stefnan við að til verði

almenningsrými af góðum

gæðum, m.t.t. efnisnotkunar,

gróðurs og fjölbreyttra

nýtingarmöguleika?

3. Styður stefnan við aukin gæði

byggðarinnar hvað varðar

umferðaröryggi og hljóðvist?

4. Styður stefnan við varðveislu

byggingararfs og sérkenna

hins byggða umhverfis höfuð-

borgarsvæðisins?

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

TAFLA 4 frh.

Page 94: Höfuðborgarsvæðið 2040

96

MATSÞÁTTUR

náttúrulegt

umhverfi

Virðing fyrir náttúru

og viðhald vistkerfa.

STEFNA SVÆÐISSKIPULAGSINS Í HNOTSKURN

Stefna um breyttar ferðavenjur þar sem auka á hlutdeild gangandi, hjólandi og

almenningssamganga draga úr neikvæðum áhrifum umferðar á loftgæði. Ef stefnt

væri áfram að því að viðhalda núverandi hlutfalli einkabíla má ætla að loftmengun

gæti farið oftar yfir viðmiðunarmörk en nú er og þá sérstaklega ef horft er til við-

miða um svifryk.

Við endurbætur og hönnun á öðrum stofnvegum verðu lögð áhersla á að draga úr

neikvæðum áhrifum umferðar á nærumhverfið.

Stefna um að meginþunga vaxtar sé beint að miðkjörnum og á samgöngumiðuð

þróunarsvæði styður við stefnu um breyttar ferðavenjur sem dregur úr neikvæðum

áhrifum umferðar á loftgæði.

Sjá markmið 1.2, 2.1, 2.2, 2.3, 2.4 og aðgerðir þeim tengdum.

Tryggt verður að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi alltaf aðgang að hreinu og

ómeðhöndluðu neysluvatni, vatnsbólin verði vernduð og nýting vatnsauðlindarinnar

verði sjálfbær. Tryggja þarf að kröfur um eftirlit á vatnsverndarsvæðum sé óháð

lögsögumörkum og viðbragðsáætlanir samrýmdar

Sjá markmið 4.4 og aðgerðir því tengdu.

Skilgreind vaxtarmörk fyrir þéttbýlið takmarka röskun á óhreyfðu landi.

Það dregur úr jákvæðum áhrifum stefnunnar að innan vaxtarmarkanna er óhreyft

land sem verður heimilt að raska.

Á móti kemur að það eru jákvæð áhrif af því að skýra skil þéttbýlis og dreifbýlis.

Sjá nánar markmið 1.1 og aðgerðir því tengdu.

Stefnan gerir ráð fyrir að unnin verði greining á almannahættu vegna náttúruvár á

höfuðborgarsvæðinu og rýmingaráætlun í samvinnu við almannavarnir.

Gert er ráð fyrir að byggð sé að jafnaði ekki valinn staður í meira en 100m hæð yfir

sjávarmáli þar sem úrkoma og lágt hitastig hafa takmarkandi áhrif á umferð um

svæðið.

Sjá nánar markmið 1.1 og 2.4 og aðgerðir þeim tengd.

Möguleg uppbygging í úthverfum í yfir 100 m hæð yfir sjávarmáli dregur úr

jákvæðum áhrifum stefnunnar. Miðað við skilgreind vaxtarmörk fyrir byggðina

getur ný byggð risið í Vatnsendakrika og Vatnsendahlíð í Kópavogi og Helgafells-

landi í Mosfellsbæ.

SPURNINGAR TIL AÐ META ÁHRIF STEFNU

1. Stuðlar stefnan að bættum

loftgæðum?

2. Lágmarkar stefnan áhrif á

neysluvatn?

3. Lágmarkar stefnan röskun á

óhreyfðu landi?

4. Lágmarkar stefnan hættu

vegna náttúruvár?

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

TAFLA 4 frh.

Page 95: Höfuðborgarsvæðið 2040

97Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

MATSÞÁTTUR

Hnattræn

umhverfismál

Loftslagsbreytingar

og líffræðileg fjöl-

breytni.

sTEFNA SVÆÐISSKIPULAGSINS Í HNOTSKURN

Stefna um breyttar ferðavenjur þar sem auka á hlutdeild gangandi, hjólandi og

almenningssamganga draga úr neikvæðum áhrifum umferðar á loftgæði. Ef stefnt

væri áfram að því að viðhalda núverandi hlutfalli einkabíla má ætla að loftmengun

gæti farið oftar yfir viðmiðunarmörk en nú er og þá sérstaklega ef horft er til við-

miða um svifryk.

Við endurbætur og hönnun á öðrum stofnvegum verðu lögð áhersla á að draga úr

neikvæðum áhrifum umferðar á nærumhverfið. Út frá sviðsmyndagreiningu verður

útblástur gróðurhúsalofttegunda minni en áætlað er miðað við óbreytta þróun.

Sjá markmið 2.1, 2.2, 2.3, 2.4 og aðgerðir þeim tengdum.

Stefna um breyttar ferðavenjur þar sem auka á hlutdeild gangandi, hjólandi og

almenningssamganga stuðlar að minni notkun jarðefnaeldsneytis. Ef stefnt væri

áfram að því að viðhalda núverandi hlutfalli einkabíla má ætla að notkun jarðefna-

eldsneytis muni aukast.

Sjá markmið 2.1, 2.2, 2.3, 2.4 og aðgerðir þeim tengdum.

Sett er stefna um að taka þurfi tillit til hækkunar sjávar með staðsetningu byggðar

við ströndina og setningu lágmarkskvóta.

Sjá nánar umfjöllun um markmið 1.1 og aðgerðir því tengdu.

Stefnan hefur áhrif á votlendi sem forðast skal að skerða á svæði á Esjumelum

(LMÍ Corine, 2006). Það er nú innan vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins og einnig

skilgreint sem byggðasvæði í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030.

Að öðru leyti tekur stefnan tillit til ákvæða náttúruverndarlaga um líffræðilega fjöl-

breytni og verndarsvæða.

Sjá markmið 1.1. og aðgerðir því tengdu

SPURNINGAR TIL AÐ META ÁHRIF STEFNU

1. Hefur stefnan þau áhrif að það

dragi úr útlosun gróðurhúsa-

lofttegunda?

2. Stuðlar stefnan að minni notk-

un jarðefnaeldsneytis?

3. Tekur stefnan tillit til mögu-

legrar hækkunar sjávarborðs?

4. Hefur stefnan áhrif á svæði

sem falla undir ákvæði nátt-

úruverndarlaga um líffræði-

lega fjölbreytni?

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

TAFLA 4 frh.

Page 96: Höfuðborgarsvæðið 2040

98

Í hnotskurnÍ töflu 5 má sjá yfirlit yfir hvaða markmið í stefnu svæðis-

skipulagstillögunnar hafa mest áhrif á matsþættina sem eru til

skoðunar í umhverfismatinu.

lífstíll

samfélag

efnahagur

athafnir daglegs lífs

Manngert umhverfi

náttúrulegt Umhverfi

Hnattræn áhrif

1. Hagkvæmur

vöxtur

2. Skilvirkar

samgöngur

3. Sókn og

samkeppnishæfni

4. Heilnæmt

umhverfi

5. Gott

nærumhverfi

1.1

1.1

1.1

1.1

1.1

1.1

1.2

1.2

1.2

1.2

1.2

1.2

1.2

2.1

2.1

2.1

2.1

2.1

2.1

2.1

4.1

4.1

4.1

3.1

5.1

5.1

5.1

5.1

5.1

2.2

2.2

2.2

2.2

2.2

4.2

3.2

5.2

5.2

5.2

5.2

2.3

2.3

2.3

2.3

4.32.4

2.4

2.4

2.4

2.4

2.4

4.4

Stefnan hefur verið rýnd með tilliti til áhrifa á lýðheilsu og

lífsgæði í borgum, sjálfbærni, samkeppnishæfni og samræmi

stefnunnar við stefnu íslenskra stjórnvalda í umhverfis- og

skipulagsmálum. Almennt leiðir stefnan til jákvæðra áhrifa á

umhverfið. Hér eru dregin fram nokkur stefnumið úr svæðis-

skipulaginu, hvaða áhrif þau hafa á matið og hvar taka mætti

betur utan um tengsl stefnunnar við matsþættina.

• Þétting byggðar með samgöngu og þróunarás hefur víð-

tæk jákvæð áhrif. Uppbygging í þéttri byggð styður við

meira borgarlíf og aukna útiveru á sameiginlegum opin-

berum svæðum í almenningsrými, s.s. torgum, grænum

svæðum, gangstéttum, stígum og opnum svæðum og

bætir alþjóðlega samkeppnishæfni svæðisins til búsetu.

• Stefnu um breyttar ferðavenjum þar sem hærra hlutfall

gangi, hjóli og ferðist með almenningssamgöngum

hefur jákvæð áhrif á alla matsþætti og bætir aðgengi

fyrir alla.

• Stefnan veitir möguleika á fjölbreyttum atvinnu-

svæðum. Þéttari byggð getur skapað aðstæður

fyrir fjölbreyttari starfsemi auk þess sem framboð

verður af svæðum fyrir landfreka starfsemi í útjaðri

byggðarinnar.

• Í þéttri byggð er líklegra að aðgengi verði að

húsnæði í líflegu borgarumhverfi sem hefur góð

áhrif á lífsgæði.

• Stefna um gott aðgengi að grænum svæðum

innan og utan þéttbýlisins hefur m.a. jákvæð áhrif

á lífsstíl, samfélag og athafnir daglegs lífs.

• Í mörgum tilfellum dregur það úr jákvæðum

áhrifum stefnu um þéttingu byggðar og breyttrar

ferðavenjur að ennþá er gert ráð fyrir rými fyrir

nýja byggð/úthverfi innan vaxtarmarkanna sem

getur orðið dreifð og óhagkvæm og gengur á

óhreyft land.

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

TAFLA 5 – yfirlit yfir tengsl matsþátta í umhverfismati og markmiða í stefnu svæðisskipulagsins.

Page 97: Höfuðborgarsvæðið 2040

99Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

• Stefnt er að varðveislu landbúnaðarlands en styrkja

mætti stefnu um matjurtarræktun t.d. í og við þéttbýlið.

• Taka mætti betur utan um tengsl stefnunnar við bætt

loftgæði, umferðaröryggi, hljóðvist og minni notkun

jarðefnaeldsneytis.

Í töflu 6 er samantekt á áhrifum stefnunnar á matsspurn-

ingar í umhverfismatinu. Niðurstaðan gefur vísbendingu um

hversu vel stefna svæðisskipulagsins samræmist viðmið-

um umhverfismatsins. Matið mun halda áfram að mótast

m.a. í vinnu faghópa svæðisskipulagsins. Matið ver nú

kynnt almenningi og umsagnaraðilum sem geta tekið þátt í

mótun matsins með ábendingum sínum og athugasemdum.

Samspil skipulags og umhverfis er margþætt og æskilegt að

sjónarmið og þekking komi víða að við mótun matsins.

5 // Umhverfismat svæðisskipulagstillögunnar

MATSÞÁTTUR

lífsstíllUmhverfi sem hvetur til

hreyfingar og vellíðunar.

samfélagFélagsleg tengsl,

jafnræði, samheldni og

þátttaka í samfélaginu.

efnahagurAðgengi að störfum og

alþjóðleg samkeppnis-

hæfni svæðisins.

athafnir daglegs lífsGott umhverfi fyrir dag-

legar athafnir.

Manngert umhverfiGæði manngerðs

umhverfis.

náttúrulegt umhverfiVirðing fyrir náttúru og

viðhald vistkerfa.

Hnattræn umhverfismálLoftslagsbreytingar og

líffræðileg fjölbreytni.

SPURNINGAR TIL AÐ META ÁHRIF STEFNU Litur sýnir samræmi stefnu svæðisskipuLagstiLLögu við matsspurningar

1. Styður stefnan við breyttar ferðavenjur þ.e. hærra hlutfall gangandi og hjólandi og farþega með almenningssamgöngum?

2. Styður stefnan möguleika til hreyfingar og útiveru á grænum svæðum innan hverfa?

3. Styður stefnan við möguleika til hreyfingar og útiveru í náttúrulegu umhverfi, þ.e. við strönd, á grónum svæðum á jaðri byggðarinnar

og í græna treflinum?

1. Mætir stefnan áætluðum húsnæðisþörfum, m.t.t. stærðar íbúða og staðsetningar íbúðarsvæða?

2. Styður stefnan við möguleika á að blanda félagshópum í hverfum/borgarhlutum, t.d. með fjölbreyttri blöndun húsagerða?

3. ýtir stefnan undir að fólk nýti sér almenningsrými og stuðlar hún þannig að samskiptum og samveru íbúa? Dæmi um almenningsrými:

Götur, torg, gangstéttar, stígar, græn svæði.

4. Gerir stefnan öllum þjóðfélagshópum kleift að ferðast auðveldlega um t.a.m. með almennings-samgöngum, bílum, gangandi, akandi

að þjónustu, vinnustöðum o.fl.?

5. Veitir stefnan möguleika á svæðum fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi sem vænta má vaxtar í á svæðinu?

1. Veitir stefnan möguleika á eftirsóknarverðu búsetuumhverfi sem höfðar til fjölbreytts hóps fólks og stuðlar að alþjóðlegri samkeppn-

ishæfni búsetu?

2. Miðar stefnan að hagkvæmu samgöngukerfi?

3. Veitir stefnan möguleika á hagkvæmu grunnkerfi veitna og sorphirðu?

1. Styður stefnan við gott framboð af nærþjónustu?

2. Stuðlar stefnan að styttri ferðatíma við daglegar athafnir?

3. Hefur stefnan áhrif á aðgengi að svæðum á jaðri byggðarinnar fyrir skógrækt, matjurtarækt, eða landbúnað?

1. Veitir stefnan möguleika á að atvinnu- og íbúðarsvæði bjóði upp á sveigjanlega notkun eftir því sem þarfir íbúa og atvinnustarfsemi

breytast?

2. Styður stefnan við að til verði almenningsrými af góðum gæðum, m.t.t. efnisnotkunar, gróðurs og fjölbreyttra nýtingarmöguleika?

3. Styður stefnan við aukin gæði byggðarinnar hvað varðar umferðaröryggi og hljóðvist?

4. Styður stefnan við varðveislu byggingararfs og sérkenna hins byggða umhverfis höfuðborgarsvæðisins?

1. Stuðlar stefnan að bættum loftgæðum?

2. Lágmarkar stefnan áhrif á neysluvatn?

3. Lágmarkar stefnan röskun á óhreyfðu landi?

4. Lágmarkar stefnan hættu vegna náttúruvár?

1. Hefur stefnan þau áhrif að það dragi úr útlosun gróðurhúsalofttegunda?

2. Stuðlar stefnan að minni notkun jarðefnaeldsneytis?

3. Tekur stefnan tillit til mögulegrar hækkunar sjávarborðs?

4. Hefur stefnan áhrif á svæði sem falla undir ákvæði náttúruverndarlaga um líffræðilega fjölbreytni?

TAFLA 6 – Samantekt; matsþættir og matsspurningar fyrir mat á áhrifum byggðarþróunar á lýðheilsu og lífsgæði.

Page 98: Höfuðborgarsvæðið 2040

100

Eftirfarandi áætlanir, stefnur og rannsóknir voru hafðar til hliðsjónar við mótun viðmiða í umhverfismati sviðsmyndanna. Umhverfismat svið-myndanna gefur sterka vísbendingu um hversu vel sviðsmyndirnar samræmast eftirfarandi stefnuskjölum.

Barton, H. og Grant, M. 2006. A health map for the local human habitat. The Journal for the Royal Society for the Promotion of Health, 126(6), 252-253.

RFSC. 2014. Reference framework for european sustainable cities, a toolkit for the integrated approach.Sótt 25. september 2013 af http://www.rfsc-comm-unity.eu.

PWC, 2012. Northern Lights, the Nordic Cities of Opportunity. Sótt 14. nóvember 2013 af http://www.pwc.com/en_GX/gx/psrc/pdf/northern-lights-2012.pdf

Skipulagsstofnun, 2013. Yfirlit um stefnu stjórnvalda í einstökum málaflokkum sem varða landnotkun. uppfært með viðbrögðum Skipulagsstofnunar við athugasemdum. Fylgiskjal með Landsskipulagsstefnu 2013-2024.

Hlynur Torfi Torfason, 2012. Blöndun íbúðarbyggðar og atvinnusvæða á höfuðborgarsvæðinu. Hugmyndafræði og skipulagsframkvæmd. MS-ritgerð, Land-búnaðarháskóli Íslands.

LMÍ Corine, 2006. Corine- flokkun landgerða. Sjá upplýsingar á http://www.lmi.is/corine/

Umhverfismat:Stefnuskjöl

1. Íslensk stefnuskjöl á landsvísu

a. Umhverfisráðuneytið. (2010). Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Sótt 19. nóvember 2013 af http://www.umhverfisraduneyti.is/ media/PDF_skrar/Adgerdaaaetlun-i-loftslagsmalum.pdf

b. Alþingi. (2011). Þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2010–2013. Sótt 19. nóvember 2013 af http://www.althingi.is/ altex-t/139/s/pdf/1328.pdf

c. Umhverfis-, Sjávarútvegs- og Utanríkisráðuneytið. (2004). Hafið – Stefnumótun íslenskra stjórnvalda. Reykjavík: Umhverfis-, Sjávarút-vegs- og utanríkisráðuneyti.

d. Velferðarráðuneytið. (2011). Húsnæðisstefna, skýrsla samráðshóps um húsnæðisstefnu. Reykjavík: Velferðarráðuneyti.

e. Forsætisráðuneytið. (2011). Ísland 2020 – sókn fyrir atvinnulífið og samfélag: Þekking, sjálfbærni, velferð. Reykjavík: Forsætisráðuneytið.

f. Mennta- og menningarmálaráðuneytið. (2011). Stefnumótun mennta- og menningarmálaráðuneytis í íþróttamálum. Reykjavík: Mennta- og menningarmálaráðuneyti.

g. Alþingi. (2012). Tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2013-2024. Sótt 19. nóvember af http://www.althingi.is/altext/141/s/pdf/ 1087.pdf

h. Umhverfisráðuneytið. (2008). Stefnumörkun Íslands um framkvæmd Samnings um líffræðilega fjölbreytni. Sótt 19. nóvember af http://www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/liffjolbreytni.pdf

i. Alþingi (2010). Þingsályktun um náttúruverndaráætlun 2009-2013. Sótt 17. nóv. 2013 af http://www.althingi.is/altext/ 138/s/0224.html.

j. Stýrihópur um mótun heildstæðrar orkustefnu. (2011). Orkustefna fyrir Ísland.

k. Menntamálaráðuneytið. (2007). Menningarstefna í mannvirkjagerð.

l. Alþingi. (2003). Þingsályktun um samgönguáætlun fyrir árin 2011–2022. Sótt 19. nóvember 2013 af http://www.althingi.is/ altext/140/s/pdf/1630.pdf

m. Umhverfisráðuneytið. (2007). Stefnumörkun í loftslagsmálum. Sótt 19. nóvember 2013 af http://www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_sk-rar/Stefnumorkun_i_loftslagsmalum.pdf

n. Umhverfisstofnun. (2004). Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2004-2016. Sótt 19. nóvember 2013 af http://www.ust.is/library/Skrar/Atvinnulif/urgangur/Landsaatlun_2004-2016_VEF.pdf

o. Umhverfisráðuneytið. (2012). Drög að landsáætlun um meðhöndlun úrgangs. Sótt 19. nóvember 2013 af http://www.ust.is/library/Skrar/Einstaklingar/urgangur/Landsaaetlun-um-urgang-drog-juni-2012.pdf

p. Umhverfisráðuneytið. (2010). Velferð til framtíðar. Sjálfbær þróun í íslensku samfélagi. Áherslur 2010-2013. Sótt 19. Nóvember 2013 af http://www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/Velferd-til-framtidar-2010-2013.pdf

HEIMILdASKRÁ

Page 99: Höfuðborgarsvæðið 2040

101Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

2. Íslensk lög lögð til grundvallar viðmiðum

a. Lög um menningarminjar nr. 80/2012.

b. Lög um náttúruvernd nr. 60/2013.

c. Lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

d. Skipulagslög nr. 123/2010.

3. Norræn stefnuskjöl

a. Norden. (2012). Norræn framkvæmdaáætlun í umhverfismálum 2013-2018. Kaupmannahöfn:Norræna ráðherranefndin.

b. Norræna ráðherranefndin. (2009). Sjálfbær þróun – Ný stefna fyrir Norðurlönd. Kaupmannahöfn: Norræna ráðherranefndin.

c. Norræna ráðherraráðið (2012): Ett gott liv i ett hållbart Norden. Nordisk strategi för hållbar utveckling. Sótt 19. Nóvember 2013 af http://www.norden.org/is/utgafa/utgefid-efni/2013-725 og á íslensku af http://www.norden.org/is/utgafa/utgefid-efni/2013-727

4. Evrópsk stefnuskjöl

a. RFSC. (e.d.). Reference framework for european sustainable cities, a toolkit for the integrated approach.Sótt 25. september 2013 af http://www.rfsc-community.eu

b. European Commission. (2010). Making our cities attractive and sustainable. How the EU contributes to improving the urban environment. Sótt 19. nóvember af http://ec.europa.eu/ environment/pubs/pdf/urban/cities_of_the_future.pdf

5. Alþjóðlegir samningar sem Ísland er aðili að

a. Ríó-yfirlýsingin. Sótt af http://habitat.igc.org/agenda21/rio-dec.htm

b. Ramsarsamþykkt um verndun votlendis

c. Bernarsamningur um verndun villtra plantna og dýra

d. Ríósamningurinn um verndun líffræðilegrar fjölbreytni

e. Kyoto-bókunin

f. OSPAR samþykktin um verndun sjávar frá 2010. Sótt af http://www.ospar.org/html_documents/ospar/html/10-03e_nea_environment_strategy.pdf

6. Viðmið um heilsu og borgarskipulag:

a. Barton, H. og Grant, M. (2006). A health map for the local human habitat. The Journal for the Royal Society for the Promotion of Health, 126(6), 252-253.

b. Barton, H., Grant, M., Mitcham, C. og Tsouro, C. (2009). Healthy urban planning in European cities. Health Promotion International, 24(1), i91-i99.

c. Barton, H., Grant, M. og Guise, R. (2010). Shaping neighbourhoods for local health and global sustainability. (2. útg.). London: Routledge.

d. Barton, H, Mitcham, C. og Tsourou, C. (2003). Healthy Urban Planning in practice:experience of European cities. Report of the WHO City Action Group on Healthy Urban Planning. Kaupmannahöfn: WHO.

e. WHO. (2013). Healthy city checklist. Sótt 18. nóvember af http://www.euro.who.int/en/ health-topics/environment-and-health/ur-ban-health/activities/healthy-cities/who-european-healthy-cities-network/what-is-a-healthy-city/healthy-city-checklist

7. Annað efni sem byggt er á:

a. Skipulagsstofnun. (2005): Leiðbeiningar um flokkun umhverfisþátta, viðmið, einkenni og vægi umhverfisþátta. Reykjavík: Skipulagsstofnun.

b. Skipulagsstofnun (2007): Leiðbeiningar um umhverfismat áætlana. Reykjavík: Skipulagsstofnun.

Page 100: Höfuðborgarsvæðið 2040

102

MaTsþáTTUr

lífsstíllUmhverfi sem hvetur til hreyfingar og vellíðunar.

samfélagFélagsleg tengsl, jafnræði, samheldni og þátttaka í samfélaginu.

efnahagurAðgengi að störfum og alþjóðleg samkeppnishæfni svæðisins.

athafnir daglegs lífsGott umhverfi fyrir daglegar athafnir.

Manngert umhverfiGæði manngerðs umhverfis.

náttúrulegt umhverfiVirðing fyrir náttúru og viðhald vistkerfa.

Hnattræn umhverfismálLoftslagsbreytingar og líffræðileg fjölbreytni.

sTefnUskjöl seM ByggT er á

Samgönguáætlun 2011-2022, Aðgerðaráætlun í loftslagsmálum, Orkustefna fyrir Íslands,Velferð til framtíðar.

Samgönguáætlun 2011-2022, Húsnæðisstefna.

Ísland 2020 – Stefnumótun íslenskra stjórnvalda,Byggðaáætlun 2010-2013,Samgönguáætlun 2011-2022

Húsnæðisstefna,Samgönguáætlun 2011-2022.

Samgönguáætlun 2011-2022,Menningarstefna í mann-virkjagerð.

Velferð til framtíðar, Samgönguáætlun 2011-2022,Líffræðileg fjölbreytni. Stefnumörkun Íslands um framkvæmd samningsins um líffræðilega fjölbreytni.

Stefnumörkun í loftslags-málum,Aðgerðaráætlun í loftslags-málum, Ísland 2020 – Stefnumótun íslenskra stjórnvalda,Samgönguáætlun 2011-2022,Velferð til framtíðar.Líffræðileg fjölbreytni. Stefnumörkun Íslands um framkvæmd samningsins um líffræðilega fjölbreytni,Náttúruverndarlög.

Viðfangsefni í skipUlagi

• Aðstæðurfyrirgangandioghjólandivegfarendur.• Aðstæðurfyrirhreyfinguogútiveru.• Aðgengiaðstærrigrænum/náttúrlegumsvæðum.

• Framboðásvæðumfyriríbúðarhúsnæðisemsvarareftirspurn á húsnæðismarkaði.

• Blöndunhúsagerðainnanhverfaeðaborgarhluta.• Almenningsrýmisemveitamöguleikaásamveruog

samskiptum.• Aðgengiaðalmenningssamgöngum.

• Staðsetningogútfærslasvæðafyrirfyrirtækiífjöl-breyttum atvinnugreinum, einkum þeim sem helst má vænta vaxtar í og/eða stuðla að alþjóðlegri samkeppn-ishæfni í atvinnulífi.

• Staðsetningogútfærslaíbúðarsvæðaogmótunbúsetuumhverfis sem höfðar til fjölbreytts hóps fólks, einkum starfsfólks í þeim atvinnugreinum sem helst má vænta vaxtar í og/eða stuðla að alþjóðlegri samkeppnishæfni til búsetu.

• Aðgengiatvinnusvæðaaðstofnæðumogsamgöngu-kerfinu almennt.

• Aðgengiaðnærþjónustu,semm.a.hefuráhrifádag-legan ferðatíma.

• Aðgengiaðgrænumsvæðumogöðrumútivistarsvæð-um og almenningsrýmum sem bjóða upp á margvís-lega notkun, þ.m.t. ræktun.

• Gæðiogstaðsetningbygginga,einkumm.t.t.möguleika á breytingum á húsnæðinu eftir því sem þarfir íbúa og atvinnustarfsemi breytast. Í samhengi stefnu um byggðaþróun snýst málið fyrst og fremst um hvort byggingar geta nýst ýmist til búsetu eða fyrir atvinnustarfsemi.

• Gæðialmenningsrýma,þ.m.t.gatnaogopinnasvæða, t.d. m.t.t. efnisnotkunar, gróðurs og nýtingar-möguleika.

• Umhverfisgæði,s.s.umferðaröryggi,loftgæði,hljóðvistog birtustig.

• Sérkennibyggðarogbyggingararfur.

• Fyrirkomulaglandnotkunaroggrunnkerfageturhaftáhrif á loftgæði og vatnsgæði.

• Fyrirkomulaglandnotkunaroggrunnkerfageturhaftáhrif á landslag og náttúrufar.

• Staðsetningogfyrirkomulagbyggðargeturhaftáhrifáöryggi m.t.t. náttúruvár.

• Fyrirkomulaglandnotkunaroggrunngerðargeturhaftáhrif á útblástur gróðurhúsalofttegunda.

• Fyrirkomulaglandnotkunaroggrunngerðargeturhaftáhrif á notkun takmarkaðra auðlinda eins jarðefnaelds-neytis, t.d. með því að stuðla að mikilli notkun bifreiða.

• Fyrirkomulaglandnotkunaroggrunngerðargeturaukiðlíkur á skaða vegna sjávarflóða.

spUrningar Til að MeTa áHrif sTefnU á MaTsþáTTinn

1. Styður stefnan við breyttar ferðavenjur þ.e. hærra hlut-fall gangandi og hjólandi og farþega með almennings-samgöngum?

2. Styður stefnan möguleika til hreyfingar og útiveru á grænum svæðum innan hverfa?

3. Styður stefnan við möguleika til hreyfingar og útiveru í náttúrulegu umhverfi, þ.e. við strönd, á grónum svæð-um á jaðri byggðarinnar og í græna treflinum

1. Mætir stefnan áætluðum húsnæðisþörfum, m.t.t. stærðar íbúða og staðsetningar íbúðarsvæða?

2. Styður stefnan við möguleika á að blanda félagshópum í hverfum/borgarhlutum, t.d. með fjölbreyttri blöndun húsagerða?

3. ýtir stefnan undir að fólk nýti sér almenningsrými og stuðlar hún þannig að samskiptum og samveru íbúa? Dæmi um almenningsrými: Götur, torg, gangstéttar, stígar, græn svæði.

4. Gerir stefnan öllum þjóðfélagshópum kleift að ferðast auðveldlega um t.a.m. með almenningssamgöngum, bílum, gangandi, akandi að þjónustu, vinnustöðum o.fl.?

1. Veitir stefnan möguleika á svæðum fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi sem vænta má vaxtar á svæðinu ?

2. Veitir stefnan möguleika á eftirsóknarverðu búsetuum-hverfi sem höfðar til fjölbreytts hóps fólks og stuðlar að alþjóðlegri samkeppnishæfni búsetu?

3. Miðar stefnan að hagkvæmu samgöngukerfi?4. Veitir sviðmyndin möguleika á hagkvæmu grunnkerfi

veitna og sorphirðu?

1. Styður stefnan við gott framboð af nærþjónustu?2. Stuðlar stefnan að styttri ferðatíma við daglegar

athafnir?3. Hefur stefnan áhrif á aðgengi að svæðum á jaðri

byggðarinnar fyrir skógrækt, matjurtarækt, eða land-búnað?

1. Veitir stefnan möguleika á að atvinnu- og íbúðarsvæði bjóði upp á sveigjanlega notkun eftir því sem þarfir íbúa og atvinnustarfsemi breytast?

2. Styður stefnan við að til verði almenningsrými af góðum gæðum, m.t.t. efnisnotkunar, gróðurs og fjöl-breyttra nýtingarmöguleika?

3. Hvaða stefna kemur best út m.t.t. gæða byggðarinnar hvað varðar umferðaröryggi og hljóðvist?

4. Styður stefnan við varðveislu byggingararfs og sér-kenna hins byggða umhverfis höfuðborgarsvæðisins?

1. Stuðlar stefnan að bættum loftgæði?2. Lágmarkar stefnan áhrif á neysluvatn ?3. Lágmarkar stefnan röskun á óhreyfðu landi ?4. Lágmarkar stefnan hættu vegna náttúruvár?

1. Hefur stefnan þau áhrif að það dragi úr útlosun gróður-húsalofttegunda

2. Stuðlar stefnan að minni notkun jarðefnaeldsneytis? 3. Tekur stefnan tillit til mögulegrar hækkunar sjávar-

borðs?4. Hefur stefnan áhrif á svæði sem falla undir ákvæði

náttúruverndarlaga um líffræðilega fjölbreytni?

VIÐAUKI

Matsþættir og matsspurningar fyrir mat á áhrifum byggðarþróunar á lýðheilsu og lífsgæði.

Page 101: Höfuðborgarsvæðið 2040

103Tillaga á vinnslustigi21.mars 2014

Page 102: Höfuðborgarsvæðið 2040

SSH2014