Upload
osgood
View
98
Download
0
Embed Size (px)
DESCRIPTION
opkrans. lok. forkím. gró (1n). hetta. Spírun gróa. Baukur (gróhirsla). Karl- kynlið-ur (1n). gróliður (2n). kvenkynliður (1n). Lífsferil dæmigerðs mosa (baukmosa) Fjölgar sér með gróum. egghirlsur. frjóvgun. frjóhirlsur. kvenkynliður (1n). plöntukím (2n). - PowerPoint PPT Presentation
Citation preview
kvenkynliður (1n)
Ungur gróliður (2n)
opkrans
hetta
gróliður (2n)
Baukur (gróhirsla)
lok
gró (1n)
forkím
Okfruma (2n)
kvenkynliður (1n)
Karl- kynlið-ur (1n)
egghirlsur
frjóhirlsur
plöntukím (2n) egghirsla
Lífsferil dæmigerðs mosa (baukmosa)
Fjölgar sér með gróum
Spírun gróa
frjóvgun
Fyrir áhugasama Auka glæra – EKKI til prófs
Lífsferill dæmigerðs burkna
Gróblettur
Spírun gróa
Gró (1n)
Fullþroska gróhirsla með gróum
Gróhirsla (2n)
Frjóhirsla (1n)
Egghirsla (1n)
Fullþroska kynliður (1n) (forþal)
Plöntukím (2n)
Okfruma (2n)
frjóvgun
Gróblettir
Gróliður (2n)
kynliður (1n)Ungur gróliður (2n) áfastur kynlið (1n)
rætur
jarðstöngul
“fiðluhaus”=ung upprúllað blað
Laufblað
Fyrir áhugasama Auka glæra – EKKI til prófs
Kyn blóma
• Blóm geta ýmist verið tvíkynja með bæði fræfla og frævu(r) í sama blómi
EÐA
• Einkynja með annað hvort aðeins fræfla eða aðeins frævu(r)
• Einkynja blóm eru þá ýmist á sömu plöntu (monoecious) eða á sitt hvorri plöntunni og kallast það að vera sérbýla (dioecious)
- stíll
frjópípa
frjókorn
frjóþráður
frjóhnappur
fræfill
- eggbú
- eggleg
- eggmunni
okfruma plöntukím
fræhvíta Tveir kjarnar n+n
sæðis- fruma
fræva
fræni stíll eggleg
bikarblöð
blómstilkur
Fræva / fræblað
Frævun = frjókorn lendir á fræni
Frjóvgun = samruni sæðisfrumu og eggs
Flóruríki jarðar• Holarktíska flóruríkið (Boreal) - Nær yfir allt norðurhvel Jarðar
• Paleotrópíska flóruríkið - Afríka, Arabíuskaginn, Indland sunnan Himalajafjalla, SA-Asía, Indónesía, og Norðurey Nýja-Sjálands.
• Ástralska flóruríkið - Ástralía, Tasmanía og Suðurey Nýja-Sjálands
• Neotrópíska flóruríkið - S-Ameríka og mið-Ameríka
• Suður-Afríska flóruríkið - Höfðasvæðið (Capensis)
• Antarktíska flóruríkið -Suðurskautslandið auk syðsta odda S-Ameríku
og syðsta odda Nýja-Sjálands
Hver er staða Íslands m.t.t. flóruríkja
• Ísland telst til holarktíska flóruríkisins
• Allar stórar ættir hér á landi eru einnig áberandi í holarktísku flórunni eins og körfublómaætt, hjartagrasaætt, sóleyjarætt og víðiætt
• Hins vegar eru stórar ættir æðplantna sem ekki vaxa hér en eru annars algengar í holarktísa flóruríkinu eins og mjólkurjurtaætt, stokkrósaætt, furuætt, grátviðarætt,
Holarktíska flóruríkið• Holarktíska svæðið nær yfir 4 lífbelti (biomes)
• túndra/heimskautabeltið
• barrskógabeltið
• blandaðir barr- og laufskógar
• laufskógabeltið
• Holarktísku flórunni er skipt upp í sífellt minni svæði og er arktíska svæðið eitt þeirra
• Ísland telst til (lág)arktíska svæðisins skv. þessari flokkun (ath! umdeilt)
• Algengar ættir arktísku flórunnar eru grasaættin, staraættin, körfublómaættin, krossblómaættin, hjartagrasaættin, allt algengar ætti hér.
Einkenni íslensku flórunnar
• Fábreytt• Engar tegundir taldar einlendar (endemic) sem
þýðir: vex eingöngu á Íslandi, ATH þó maríuvött• Örfáar hafa borist frá Vesturheimi. • Fjölga sér með alls kyns kynlausri æxlun –
orkukræft að setja fræ í slæmu árferði • Harðviður ekki til villtur (hástig í framvindu)• Harðger gróður, hægvaxta, varnir gegn þurrki • Vorkoman erfið, stillt á ljóslotu fremur en hitastig
Lífmyndir Raunkiers 1937 • Flokkun eftir því hvar plöntur
geyma brumhnapp yfir óhagstæð vaxtarskilyrði:
• Loftplöntur - brum hátt ofan við yfirborð (ýmis tré og hærri runnar)
• Runn- og þófaplöntur - brum rétt ofan við svörðin (lambagras, krækilyng)
• Svarð plöntur - brum í sverði (brennisóley)
• Jarðplöntur - brum í jörðu sem laukar eða jarðstöngul (klófífa, friggjargras)
• Einærar plöntur - fræ (naflagras, dýragras)
Flóra landsins skoðuð eftir breiddarbaugum
• Einkenni boreal flóru: – hátt hlutfall svarðplantna, hærra hlutfall loftplantna en
hjá arktískri flóru
• Einkenni arktískrar flóru:– hátt hlutfall runn- og þófaplantna– hátt hlutfall einkímblöðunga, t.d. grasa og stara– mjög lágt hlutfall loftplantna og einærra tegunda
• Hér eru svarðplöntur 54% af flóru landsins en 13% eru runna- og þófaplöntur
• Hlutfall runna- og þófaplantna eykst þó eftir því sem við förum hærra yfir sjávarmál
Flóra landsins skoðuð eftir lengdarbaugum
• Um helmingur íslensku flórunnar er algengur allt í kringum norðurpólinn, eru sirkumpólar
• ¼ hluti finnst beggja vegna Atlantshafsins en ná ekki allan hringinn, eru amphi-atlantískar
• ¼ hluti finnst einnig í Evrópu og Asíu en ekki í N-Ameríku, eru austrænar
• Aðeins 8 tegundir íslensku flórunnar eru vestrænar, finnast í N-Ameríku en EKKI í Evrópu og Asíu
Átta vestrænar tegundir
Vestrænar tegundir teljast vera: 1. Eyrarrós (Epilobium latifolium) 2. Grávíðir/Fjallavíðir ((Salix arctica einnig þekktur sem S.
callicarpaea eða S. glauca ssp. Callicarpaea (flokkunarfræðilegt vandamál))
3. Friggjargras (Platanthera hyperborea)4. Blástjarna (Lomatogonium rotatum) 5. Davíðslykill ((Primula egalikensis) líklega útdauð hér á
landi núna)), 6. Lógresi, til tvær deilitegundir, önnur þeirra finnst hér svo
og á Grænlandi og Ameríku, ekki Evrópu ( Sú sem finnst hér er: Trisetum spicatum ssp. spicatum)
7. Gulstör (Carex lyngbyeii) 8. Toppastör (Carex krausei)
Hlutfall íslensku flórunnar í flórum nágrannalanda
Land Hlutfall flóru %
Noregur 97
Skotland 87
Færeyjar 57
Grænland 60
Staða íslensku flórunnar innan holarktísa flóruríksins
• Ef miðað er við skiptingu flórunnar eftir breiddarbaug þá finnast bæði arktískar og borealskar tegundir hér á landi
• Hér eru stærstu ættirnar grös og starir sem er eitt af einkennum arktísku flórunnar og hér er aðeins ein tegund, birki, sem myndar skóga – landið hefur yfirbragð túndru
• Ef miðað er við lífmyndir Raunkiers þá ætti íslenska flóran frekar að teljast til boreal flórunnar en þeirrar arktísku
• Segja má að íslenska flóran sé mitt á milli borealska og arktíska svæðisins og að við getum talað um arktíska flóru ofan við 400 m.y.s. en borealska flóru á láglendi
• Ef miðað er við skiptingu flórunnar eftir lengdarbaugum og skyldleika íslensku flórunnar við flóru nágrannalanda þá er greinilegt hún er skyldari flóru Evrópu en N-Ameríku.
Hópur Lýsing Dæmi # teg
Þörungar Frumbjarga frumverur Kísilþörungar, Klóþang 1660
Sveppir Ófrumbjarga, fjölga sér með sveppgróum
Gorkúla, grasdrjóli 2100
Fléttur sambýli sveppa og þörunga Fjallagrös, hreindýramosi
738
Mosar Flestir án sérhæfðra leiðsluvefja Hraungambri,
Melagambri
606
Æðplöntur, skiptast í; byrkinga, berfrævinga, blómplöntur
Sérhæfðir leiðsluvefir til flutnings vatns og næringar milli plöntuhluta
486(+3 og
+7)
Byrkingar Dreifa sér með gróum jafnar, burknar, elftingar álftalaukar
37
Berfrævingar dreifa sér með fræjum sem liggur á opnu fræblaði
Barrtré: einir(lerki, sitkagreni, stafafura)
1 (+3)
Blómplöntur, skiptast í ein- og rauntvíkímblöðunga
dreifa sér með fræjum sem eru í lokuðum fræblöðum (fræva)
Grös “blóm” 448(+4)
Einkímblöðungar 1 kímblað, slétt beinstrengjótt blöð Grös, starir, sef, brönugrös
145
Rauntvíkímblöðungar 2 kímblöð, margskonar lögun á blöðum, t.d. handstrengjótt,
brennisóley,blágresi, birki,víðir
303(+4)
Fjöldi íslenskra plöntutegunda og annarra “tengdra” hópa
Stærstu ættir æðplantna á Íslandi
Ætt Dæmi Fjöldi teg
Stararætt stinnastör, mýrastör, þursaskegg 53
Grasætt hálíngresi, túnvingull 49
Körfublómaætt túnfífill, baldursbrá (46)
Hjartagrasaætt lambagras, vegarfi 28
Rósaætt holtasóley, engjarós, ljónslappi (29)
Krossblómaætt hrafnaklukka, melablóm 22
Grímublómaætt lokasjóður, augnfró, smjörgras 19
Steinbrjótsætt þúfusteinbrjótur, vetrarblóm 15
Sefætt móasef, hrossanál 17
ATH! Mismunandi hve menn ganga langt í að telja tegund íslenska (t.d. ílendir slæðingar sem bundnir eru við mannabústaði, einnig undirtegundir.
Unnið úr flórulista Harðar Kristinssonar, www.floraislands.is september 2009
Maríuvöttur (Alchemilla faröensis):
Hverjar eru ástæður fyrir aðeins einni einlendri tegund hér ?
Eru það sömu ástæður og eru fyrir tegundafátækt landsins?
Eina tegundin sem hugsanlega getur talist einlend hér á landi
Er geldæxlandi tegund sem finnst á Austfjörðum og í Færeyjum
Íslenska flóran er tegundafátæk saman borið við nágrannalönd
Land Fjöldi æðplantna
Ísland 486
Kanada 4150
Nýfundnaland 900
Færeyjar 400
Bretland 1480
Skandinavía 1700
Norður-Evrópa 3400
Ástæður sem liggja að baki tegundafæð landsins?
• Stutt síðan að Ísland varð íslaust (um 10.000 ár)
• Ísland á hárri breiddargráðu, tegundamyndun hæg?
• Ísland er eyja
Hver er sérstaða íslensku flórunnar?
• Þó að heildaryfirbragð landslags og gróðurs sé mjög sérstakt þá er kannski kaldhæðnislegt að segja að hér vaxa ekki neinar "sérstakar" plöntutegundir. Þær plöntutegundir sem hér vaxa finnast líka annars staðar
• Þó má nefna að sumar tegundir sem eru algengar hér t.d. vetrarkvíðastör, gullbrá, lambagras, okkar afbrigði af blóðbergi, eru sjaldgjæfar t.d. í Evrópu og sumar hverjar þar á válista.
Friðlýstar tegundir• 31 tegund friðlýst skv. lögum um náttúruvernd• allt blómplöntur• allar nema ein einnig á válista• allar sjaldgæfar • aðeins hjá fáum þessara friðlýstu tegunda má
kenna umsvifum mannsins um stöðu stofna• að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands (2002)
eru 35 tegundir í viðbót verndar þurfi
• Válisti– Náttúrufræðistofnun Íslands– kom út 1996– alþjóðleg viðmið
Gullbrá (Saxifraga hirculus)er útdauð víða í Evrópuvegna búsvæðaröskunar en er mjög algeng á Íslandi,einkum á hálendi.
Eyrarós(Epilobium latifolium)
• Vex hvergi villt annarsstaðar í Evrópu.
• Vekur athygli innlendra og erlendra ferðamanna sem sjá hana á áreyrum.
• Setur mikinn svip á umhverfi sitt
• Sterk og falleg í hrjóstrugu landi
Ætihvönn (Angelica archangelica)
• Vex um allt land, einkum við ár og vötn
• Setur mikinn svip á landið
• Tegund sem flestir þekkja hér á landi
• Gömul lækninga og nytjaplanta
Blóðberg (Thymus praecox ssp. arcticus)
• Algengt um allt land• Oft í breiðum og því
áberandi í blóma• Sú undirtegund sem finnst
hér á landi (ssp. arcticus) er sérstök fyrir landið og finnst ekki víða annarsstaðar
• Lækningaplanta • Krydd (Timian)
ÞjóðarblómiðHoltasóley (Dryas octopetala)
• Algeng hér á landi• Er sérstök fyrir norðurslóðir• Bundin ísl. menningu með
sérstaka nafngift fyrir aldin sem er hárbrúða og laufin kallast rjúpnalauf
• Tengist lífsferli rjúpunnar og fálkans
• Var einnig kölluð þjófarót – í tengslum við þjóðtrú
Fífur; Hrafnafífa (Eriophorum scheuchzeri)Klófífa (E. Angustifolium)
• Vekja athygli
ferðamanna þegar hún er komin í aldin
• Tengist votlendi, mýrum sem eru víða horfnar í Evrópu
• Voru nýttar, fræullin í svæfla og sessur,
• lýstu upp þjóðina - fífukveikir
Fléttur; Fjallagrös (Cetraria islandica) og hreindýramosi/krókar (Cladonia arbuscula)
• Algengar um allt land• Fjallagrös voru nýtt
sem lækningaplanta og til litunar (gult og rautt)
Fjallagrös
Hreindýrakrókar
Dýjamosar• Algengir um allt land,
bæði á láglendi og hálendi
• Áberandi skærgrænir í landslagi
• Vísbending um uppsprettu – ferskt vatn
Dýjahnappur (Philonotis fontana)
Lindaskart (Pohlia wahlenbergii )
Melasól (Papaver radicatum)
• Algeng á Vestfjörðum en síður annarsstaðar.
• Til eru þrjú litarafbrigði í landinu, gult, hvítt og bleikt.
• Það gula er algengast en það bleika og hvíta nefnist Stefánssól sem er mjög sjaldgæf og friðuð.
Burnirót (Rhodiola rosea) • Er með þykk, safarík blöð• Vex víða, bæði á láglendi
og hálendi• Þolir illa beit og vex því
helst þar sem sauðfé nær ekki til hennar
• Er sérbýla, þ.e. hver einstaklingur ber aðeins karlblóm (gul) eða kvenblóm (rauðleit)
• Lækningaplanta• Einnig nefnd svæfla –
góð við svefnleysi?
Alaskalúpína (Lupinus nootkatensis)
• Er af ertublómaætt• Var fyrst reynd 1885 en hefur frá
1945 verið notuð í landgræðslu.• Öflug landgræðslujurt þ.e.
niturbindandi bakteríur í rótarhnýði
• Vex í skriðum og áreyrum í Alaska en lætur síðan undan í samkeppninni við hávaxnari gróður
• Fer ekki í algróið land en getur verið varasöm hér þar sem gróður er lágvaxinn og víða rofdílar í gróðurþekju, ath. þó Skaftafell og Hrísey
• Getur hörfað eftir 15-20 og við tekur graslendi en getur einnig viðhaldist í yfir 20 ár þá sérstaklega á Suðurlandi
Alaskalúpína (Lupinus nootkatensis) Kostir
• Öflug landgræðslujurt – notuð hér fyrst til landgræðslu 1945
• Niturbindandi- sambýli við bakteríurnar af ættkvíslinni Rhizobium) =>þarfnast ekki áburðar
• Breiðist út af sjálfdáðum
• Fjölær, viðheldur sér eftir sáningu
• Nýtir stuttan vaxtartíma, rótarforði
• Mikil fræframleiðsla
• Fræforði viðhelst lengi í jarðvegi
• Er landnemaplanta, fer yfir ógróið/lítt gróið land
• Undirbýr jarðveg fyrir aðrar tegundir
Alaskalúpína (Lupinus nootkatensis) Gallar
• Hafa í huga að hér á landi er gróður lágvaxinn og gróðuþekja víða rofin
• Hefur marga eiginleika eins og illgresi – tækifærissinni
• Útrýmir víða gróðri sem fyrir er –skugga- og sinumnyndandi
• Myndar fræforða í jarðvegi
• Getur viðhaldist sumsstaðar í langan tíma
Skógarkerfill (Anthriscus sylvestris)
• Er fyrst getið á Akureyri á 3. áratug síðustu aldar
• Slæðingur sem nú er orðinn ílendur og dreifir sér ört út
• Myndar samfelldar breiður í áburðarríkum jarðvegi (t.d. Í kjölfar lúpínu sbr. Esjuhlíðar)
• Þolir einnig vel skugga og þekur sumstaðar skógarbotna
Viðja (Salix myrsinifolia ssp. borealis)
• Innflutt tegund sem hefur verið ræktuð í görðum og skjól-beltum hér frá því um miðja síðustu öld
• Er sú innflutta trjátegund sáir sér mest hér
• Vex auðveldlega upp í þéttum grassverði
Vallhumall (Achillea millefolium)
• Er líklega ein af þeim tegundum þar sem amk. 2 stofnar eru til í landinu.
• Gamall stofn líklega frá því fyrir landnám og vex villt einkum á Norður- og Norðausturlandi og fer sumsstaðar inn á hálendið
• Slæðingur sem líklega hefur borist með mönnum og er þá fyrst og fremst bundinn við bæi og kauptún
....og fleiri
• Öll barrtré fyrir utan eini
• Aðrar trjáplöntur og runnar
• Garðplöntur
• Nytjaplöntur
Grasagarðar á Íslandi• Grasagarðurinn í Laugardal í Reykjavík (Hortus
Botanicis Reykjavikensis)
• Hefur verið starræktur frá 1961
• Elsta deild garðsins er Flóra Íslands sem er með í dag um 260 tegundir af þeim 490 blómplöntum og byrkingum sem teljast til íslensku flórunnar
• Er í eigu Reykjavíkurborgar
• Hann hefur 2,5 ha lands til umráða en hefur nýlega fengið aukið landrými
• Meginhlutverk: söfnun, varðveisla og skráning á innlendum og erlendum plöntutegundum
• Níu safndeildir: Flóra Íslands, fjölærar erlendar jurtir, lyngrósir, rósasafn, skógarbotnsplöntur, trjásafn, garðskáli, steinhæð og nytjajurtagarður
• Allar plöntur eru merktar íslensku og latnesku tegunda- og ættaheiti og getið heimkynna þeirra
• Skipulögð fræðsla á sumrin, bæklingar á íslensku og ensku í garðskála
• http://www.grasagardur.is/ - er í vinnslu
• Lystigarðurinn á Akureyri (Hortus Botanicis Akureyrensis)
• Var upphaflega almenningsgarður (1912) en síðar grasa- og skrúðgarður frá 1957
• Rekinn af Akureyrarbæ
• Hefur 3,7 ha lands til umræða
• Í dag eru um 7000 erlendar plöntur og flestar tegundir íslensku flórunnar
• Gott gagnasafn á heimasíðu garðsins yfir þær tegundir sem eru í garðinum.
• Margþætt hlutverk: – Áhersla á söfnun harðgerða erlendra
plantna til ræktunar– Þjóna sem almenningsgarður sem
nýtist fólki til fróðleiks og skemmtunar.
http://www.lystigardur.akureyri.is/