15
Svanhildur Kr. Sverrisdóttir Gott að vita . . . Gott að vita . . . um um ævintýri ævintýri

Svanhildur Kr. Sverrisdóttir Gott að vita . . . um ævintýri

  • Upload
    ehren

  • View
    83

  • Download
    3

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Svanhildur Kr. Sverrisdóttir Gott að vita . . . um ævintýri. Hvað dettur þér í hug þegar þú sérð þessa mynd?. Líklega datt þér í hug . . . ævintýri. Ævintýri. Á þessum glærum er að finna umfjöllun um ýmislegt sem ævintýri eiga sameiginlegt. Einnig er fjallað svolítið um helstu einkenni - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Svanhildur Kr. Sverrisdóttir

Gott að vita . . .Gott að vita . . .um um

ævintýriævintýri

Page 2: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Hvað dettur þér í hug þegar þú sérð þessa mynd?

Page 3: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 3

Líklega datt þér í hug . . .

ævintýri

Page 4: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 4

ÆvintýriÆvintýri

Á þessum glærum er að finna umfjöllun um ýmislegt sem ævintýri eiga sameiginlegt. Einnig er fjallað svolítið um helstu einkenniævintýra og reynt að svara spurningum eins og:

1. Hvað er ævintýri?

2. Um hvað fjalla ævintýri?

3. Er ævintýri sama og þjóðsaga?

4. Hvaðan koma ævintýrin?

5. Er eitthvað vitað um höfunda ævintýranna?

6. Eru íslensk ævintýri eins og erlendu ævintýrin?

7. Hver eru helstu einkenni ævintýra?

8. Eru öll ævintýri gömul?

9. Eru ævintýri byggð á sönnum atburðum?

Page 5: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 5

Fleiri spurningar?

Kannski hefur þú fleiri spurningar um ævintýri. Þá getur þú spurt kennarann þinn, leitað í bókum eða á Netinu. Þú gætir jafnvel sent spurninguna þína á Vísindavefinn og athugað hvort hægt er að fá svör þar.

http://www.visindavefur.hi.is/

Á næstu glærum verður leitast við að svara áðurnefndumníu spurningum.

Page 6: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 6

1. Hvað er ævintýri?

Ævintýri eru frásagnir sem sagðar eru fólki til skemmtunar.

Þau flakka á milli landa, taka á sig mismunandi myndir og fara í nýja búninga í nýjum heimkynnum.

Dæmi um íslenskt ævintýri er sagan Búkolla. Það á mjög

margt sameiginlegt með ævintýrum annarra þjóða.

Page 7: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 7

2. Um hvað fjalla ævintýri?

Í ævintýrum koma gjarnan fyrir kóngur, drottning, prins, prinsessa, bóndi, bóndasonur og bóndadóttir.

Í þeim er oft norn eða galdrakarl. Þau gerast oft í höll eða kastala, stundum líka á bóndabæ. Ævintýri eru oftast full af furðum, kynjaverum, álögum og töfragripum. Ævintýri fjalla yfirleitt um baráttu góðs og ills. Sögurnar enda oftast vel, a.m.k. fer alltaf vel fyrir helstu persónunum. Aðalpersónurnar eru alltaf góðar en í sögunum eru yfirleitt einhverjir

slæmir eða illir. Sögurnar hefjast oftast á orðunum:

Einu sinni var . . . Þær enda gjarnan á orðunum:

Köttur úti í mýri . . .

Page 8: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 8

3. Er ævintýri sama og þjóðsaga?

Ævintýri

frásagnir sem ekki er ætlast til að menn trúi

eru oftast langar frásagnir

gerast í ímynduðum heimi

eru óbundin stað og tíma

hafa oft að geyma galdra eða töfra

Þjóðsögur hafa varðveist í

munnmælum eru yfirleitt stuttar frásagnarhátturinn er

vanalega einfaldur lýsa gjarnan

raunverulegum atburðum

Ævintýri og þjóðsögur er ekki það sama en eiga margt sameiginlegt og stundum er erfitt að greina á milli.

Page 9: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 9

Ævintýri eru alþjóðleg, þ.e.a.s. svipaðar eða mjög líkar sögur eru til í ýmsum löndum.

Hefð fyrir ævintýrum er ákaflega gömul, t.d. voru ævintýri skráð á bækur á dögum Forn-Egypta.

Ein af þekktari ævintýrabókum er Þúsund og ein nótt. Hún var fyrst skrifuð á arabísku en síðan þýdd á mörg tungumál, t.d. íslensku um miðja 19. öld.

Til eru ævintýrasöfn á ítölsku og frönsku frá 16. og 17. öld.

Á 18. öld komu Grimms-ævintýrin til sögunnar og eftir það urðu ævintýri frekar vinsæl meðal almennings.

4. Hvaðan koma ævintýrin?

Page 10: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 10

5. Er eitthvað vitað um höfunda ævintýranna?

Höfundar sumra ævintýra eru ekki þekktir og þau sögð höfundalaus.

Einn þekktasti og vinsælasti ævintýrahöfundurinn er H. C. Andersen (1805–1875).

Ævintýri H. C. Andersen urðu seinna fyrirmynd flestra barnaævintýra.

Aðrir þekktir höfundar eru til dæmis Grimms-bræður.

Page 11: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 11

6. Eru íslensk ævintýri eins og erlend ævintýri?

Stundum er erfitt að sjá hvort ævintýrin eru íslensk eða erlend því munurinn er svo lítill.

Sum ævintýri hafa þó alveg séríslensk einkenni.

Ævintýri með dýr í aðalhlutverki eru til í mörgum löndum en þó ekki á Íslandi.

Ef þú lest nokkur erlend ævintýri og berð þau saman við íslensk ævintýri getur þú kannað muninn.

Page 12: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 12

7. Hver eru helstu einkenni ævintýra?

Persónur eru yfirleitt fáar og persónusköpunin einföld. Ævintýri eru tímalaus og staðlaus. Mjög mörg ævintýri innihalda einhvern siðaboðskap. Tölurnar 3, 6, 9 og 12 koma oft fyrir. Vísur, stef og stuðlanir gera textann hljómrænan. Alþjóðleg minni eru algeng, t.d. stjúpmæðraminnið. Nöfn persóna eru oft lýsandi fyrir þær t.d. um innræti eða stöðu. Föst orðatiltæki og orðasambönd eru algeng. Í þeim koma oft fyrir andstæður; góður – vondur, ríkur –

fátækur, fallegur – ljótur, heimskur – fátækur.

Page 13: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 13

8. Eru öll ævintýri gömul?

Ævintýri eru misgömul. Þau elstu margra alda gömul en yngri ævintýri eru t.d. frá 19. og 20. öld.

Getur þú rifjað upp eitt ævintýri sem þú heldur að sé mjög gamalt og annað sem þú heldur að sé yngra?

Page 14: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 14

9. Eru ævintýri byggð á sönnum atburðum?

Nei, hvorki þjóðsögur né ævintýri byggjast á

raunverulegum atburðum. Sumar þjóðsögur geta þó verið

sprottnar upp úr einhverju sem átti sér stað. Ævintýrin eru

hins vegar skáldskapur.

Page 15: Svanhildur Kr. Sverrisdóttir  Gott að vita . . . um  ævintýri

Miðbjörg / SKS 15

Heimildir og ítarefni

Vefefni: Þúsund og ein nótt: http://www.snerpa.is/net/1001/1001.htm

Skrifað í skrefum: http://www.namsgagnastofnun.is/skrifad/index.htm

Kennsluverkefni: http://www.ismennt.is/vefir/barnung/skilabod/default.htm

Íslensk ævintýri: http://www.snerpa.is/net/thjod/aevin.htm

Vísindavefurinn: http://www.visindavefur.hi.is/

Bækur: Ásgeir S. Björnsson og Baldur Hafstað. 1988. „Eitt verð ég að segja þér . . . “ Um listina að segja sögu. Iðunn, Reykjavík.

Hugtök og heiti í bókmenntafræði. 1983. Ritstj. Jakob Benediktsson. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands, Reykjavík.