Click here to load reader
Upload
sigrun-lara
View
1.891
Download
3
Embed Size (px)
Citation preview
TRÚARBRAGÐAFRÆÐI – MAÐURINN OG TRÚIN
SVÖR VIÐ SPURNINGUM AF BLS. 12.
1) Hver eru útbreiddustu trúarbrögðin í veröldinni?
Útbreiddustu trúarbrögð veraldar eru kristintrú (u.þ.b. 1/3 hluti mannkyns) og islam (1/5
hluti mannkyns). Næst á eftir kemur hindúasiður og síðan búddhadómur.
2) Hvers vegna er mikilvægt að þekkja eitthvað til trúarbragða fólks sem er annarrar
trúar en við sjálf?
● Svo við getum skilið hugsunarhátt þess og
áttað okkur á sögu þess og menningu.
● Til þess að eyða fordómum og
ranghugmyndum.
3) Hvaða fjögur atriði skipta máli þegar við reynum að átta okkur á því hvað
trúarbrögð eru?
● Sannfæring einstaklings um tilvist guðs
eða guða og þekkingu hans og skilning á
grundvallaratriðum trúarinnar.
● Trúarbrögð fela í sér tilfinningalega eða
trúarlega reynslu.
● Í þeim felast ýmiss konar athafnir, svo sem
margs konar helgisiðir og tilbeiðsla og
uppfylling ýmiss konar siðaboða.
● Þau skapa samfélag milli manna og hafa
áhrif á þjóðfélag þeirra.
4) Hver er meginmunurinn á trúarbrögðum og göldrum?
Í trúarbrögðum álítur fólk sig háð máttarvöldunum en í göldrum reynir það að ná valdi yfir
þeim.
5) Hvað er mana?
Dulmegin = að trúa því að guðir, andar,menn og dýr búi yfir sérstökum mætti eða
einginleikum sem gerir þeim kleift að framkvæma óvenjulega hluti.
6) Hvað er háguð?
● Guð sem hefur örlög manna í hendi sér og
veldur bæði heill og óhamingju.
● Algengir meðal þjóða án ritmenningar.
7) Hvað einkennir helst frjósemisguði?
● Þeir veita jörðinni frjósemi til að hún láti
spretta af sér nægan gróður.
● Frjósemisguðir deyja og lifna eftir
árstíðum.
8) Hver er munurinn á eingyðistrú, fjölgyðistrú og algyðistrú?
● Í fjölgyðistrú er trúað á marga guði.
● Í eingyðistrú er aðeins einn guð.
● Í algyðistrú er guð ekki persóna sem hægt er að tala við í bæn, heldur eins konar kraftur
sem býr í allri tilverunni.
9) Hvað er bæn?
Bæn er samtal við guð.
10) Hver er munurinn á bæn og íhugun?
● Bæn felur í sér samtal við guð.
● Íhugun beinist inn á við, í sálarlíf eða hugarfylgsni þess sem íhugar.
11) Geturðu nefnt 2 – 3 dæmi um mismunandi fórnir?
● Gjafarfórnir.
● Samneytisfórnir.
● Friðþægingarfórn.
12) Hvers vegna heldur fólk trúarhátíðir?
Gjarnan til þess að minnast einhverra atburða sem eru mikilvægir fyrir trúarbrögðin.
13) Hvað er tilbeiðsludrama?
Þegar flókin tilbeiðsla, sem minnir jafnvel á leiksýningu fylgir hátíð. Henni fylgir
saga eða goðsögn sem útskýrir hana og þátttakendur í tilbeiðslunni “endurlifa” atburðina
sem sagan segir frá.
14) Geturðu nefnt dæmi um vígslur?
● Hjónavígslur.
● Skírn.
● Ferming.
15) Hver eru helstu embættin sem koma fyrir í trúarbrögðum?
● Prestar.
● Spámenn.
● Töframenn.