16
VIRÐING VON LAUSN LÍFSGÆÐI www.matarheill.is [email protected] 2014 Matarheill eru vettvangur þeirra sem leita lausna við matarvanda sem heilbrigðisvanda. Samtökin standa vörð um réttindi fólks með matarfíkn og annarra sem eiga við matarvanda að stríða, hvetja til fræðslu og vinna að forvörnum. Þau vinna að viðurkenningu á matarfíkn sem sjúkdómi og stuðla að meðferðarúrræðum við hæfi. Upplýsingaefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Matarheill eru vettvangur þeirra sem leita lausna við matarvanda sem heilbrigðisvanda. Samtökin standa vörð um réttindi fólks með matarfíkn og annarra sem eiga við matarvanda að stríða, hvetja til fræðslu og vinna að forvörnum. Þau vinna að viðurkenningu á matarfíkn sem sjúkdómi og stuðla að meðferðarúrræðum við hæfi.

Citation preview

Page 1: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

VIRÐING – VON – LAUSN – LÍFSGÆÐI

www.matarheill.is [email protected]

2014

Matarheill eru vettvangur þeirra sem leita lausna við matarvanda sem heilbrigðisvanda. Samtökin standa vörð um réttindi fólks með matarfíkn og annarra sem eiga við matarvanda að stríða, hvetja til fræðslu og vinna að forvörnum. Þau vinna að viðurkenningu á matarfíkn sem sjúkdómi og stuðla að meðferðarúrræðum við hæfi.

Upplýsingaefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og

meðferð við matarfíkn

Page 2: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 2

Efnisyfirlit

Kæri starfsmaður í heilbrigðis-, velferðar-, uppeldis- eða fíknimeðferðargreinum. ......................................... 3

Hvað er matarfíkn? ........................................................................................................................................ 3

Hvernig er matarfíkn greind? ........................................................................................................................ 3

Hvað skal gera? ............................................................................................................................................. 3

Mismunandi matmenn og mismunandi lausnir ................................................................................................. 4

Offita – átröskun – matarfíkn ............................................................................................................................ 5

Skimun fyrir sykurfíkn frá Bitten Jonsson .......................................................................................................... 6

Skimun fyrir matarfíkn frá ACORN ..................................................................................................................... 7

Greiningarpróf til að meta þróun matarfíknar .................................................................................................. 8

Matarfíkn: Stigvaxandi þróunarferli hennar og ráðlögð úrræði ...................................................................... 10

Fræðsla, rannsóknir og meðferðarferli ............................................................................................................ 11

Rannsóknir ................................................................................................................................................... 12

Hvað er til ráða? .......................................................................................................................................... 14

Meðferðarúrræði á Íslandi .......................................................................................................................... 15

Page 3: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 3

Kæri starfsmaður í heilbrigðis-, velferðar-, uppeldis- eða

fíknimeðferðargreinum.

Ert þú með skjólstæðing sem þjáist af offitu eða öðrum átvanda? Ert þú með skjólstæðing sem virðist ófær um að grenna sig eða breyta mataræði sínu, þrátt fyrir að hann vilji það einlæglega og þrátt fyrir að hann viti að matarvenjur hans hafi slæm áhrif á heilsufar hans? Þá er líklegt að skjólstæðingur þinn þjáist af matarfíkn. Hvað er matarfíkn? Vitað er að ýmis unnin matvæli, sérstaklega þau sem innihalda mikið af sykri, sterkju og fitu, geta örvað umbunarstöðvar heilans á svipaðan hátt og nikótín, áfengi og eiturlyf. Hjá mörgum getur þetta valdið fíkn, á nákvæmlega sama hátt og eiturlyfjafíklar verða háðir eiturlyfjum. Hjá matarfíklum finnast mörg einkenni sem passa við efnaánetjun (e. Substance Abuse) skv. greiningarlistanum DSM-5.

Samtök bandarískra fíknilækna (ASAM) skilgreina fíkn sem krónískan sjúkdóm sem hefur áhrif á boðkerfi m.a. í umbunar-, hvatningar- og minnisstöðvum heilans. Þegar þessi boðkerfi virka ekki sem skyldi birtist það í ýmsum sjúklegum einkennum, bæði líffræðilegum, sálrænum, félagslegum og andlegum. Þetta lýsir sér í sjúklegri hegðun þar sem einstaklingurinn sækist eftir umbun og/eða vellíðan með því að nota viðkomandi efni og/eða ástunda hegðunina sem um ræðir. Samtökin telja að matarfíkn falli innan þessarar skilgreiningar. Hvernig er matarfíkn greind? Matarfíkn er ekki enn viðurkennd sem sjúkdómur samkvæmt DSM-listanum en þó var lotuofát (e. Binge Eating Disorder) viðurkennt í nýjustu útgáfunni, DSM-5. Lotuofát er talið vera átröskun en margt er mjög líkt með því og matarfíkn.

Fagaðilar við Yale-háskóla í Bandaríkjunum hafa búið til greiningartæki sem nefnist Yale Food Addiction Scale. Þetta er listi með 25 spurningum sem eru notaðar til að meta hvort einstaklingur er haldinn matarfíkn. Þessi skali hefur verið sannreyndur og notaður í mörgum rannsóknum.

Annað greiningartæki til að greina matarfíkn, ásamt öðrum þeim fíknum sem viðkomandi skjólstæðingur gæti verið haldinn, er ADDIS-SUGAR. Það er nýtt og ítarlegt greiningartæki sem Bitten Jonsson MS hefur hannað. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Matarheilla. Bitten hefur ennfremur hannað skimunarpróf fyrir matarfíkn sem birt er hér að aftan.

Rannsóknir sýna að matarfíkn er raunverulegt vandamál. Á undanförnum árum hafa nokkrar rannsóknir verið gerðar á tíðni matarfíknar. Flestar þeirra hafa leitt í ljós sterkt samband milli einkenna á Yale-skalanum og þyngdar og fituprósentu, en eins og allir vita eru offita og annar átvandi orðin gríðarlega útbreidd vandamál í nútímasamfélagi. Hvað skal gera? Margir vísindamenn telja að matarfíkn sé einn undirflokkur offitu og að þeir einstaklingar sem hún hrjáir þurfi öðruvísi lausn en annað of feitt fólk. Einnig telja margir að unnin matvæli, sem innihalda gjarnan mikið af sykri, sterkju og fitu, geti haft þau áhrif á umbunarstöðvar heilans að fólk borðar yfir sig af þeim og fitnar.

Á Íslandi eru til nokkur úrræði fyrir matarfíkla. Ef þú hefur til meðferðar skjólstæðing sem á við þennan vanda að stríða, mælum við með að vísa honum á eftirfarandi staði:

MFM-miðstöðin (www.matarfikn.is): Meðferðarstöð vegna matarfíknar, sem hefur starfað frá árinu 2006. Þar býðst skjólstæðingum greining á vandanum og fagleg einstaklingsmiðuð meðferð við honum.

OA-samtökin (www.oa.is): 12 spora samtök fyrir matarfíkla og fólk með átraskanir, svipuð og AA-samtökin.

GSA-samtökin (www.gsa.is): 12 spora samtök þar sem lögð er áhersla á nákvæma matardagskrá. Þú getur fundið meiri upplýsingar, meðal annars vísindalegar heimildir fyrir öllum fullyrðingunum hér að ofan á heimasíðu Matarheilla: www.matarheill.is/upplysingar.

Page 4: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 4

Mismunandi matmenn og mismunandi lausnir

„Venjulegur“ matmaður „Vandamálaát“ Matarfíkill

í ofþyngd (átraskanir) (efnaánetjun)

Vandamálið er

líkamlegt:

ofþyngd

Vandamálið er líkamlegt

og huglægt/tilfinninga-

legt:

lotuát, svelti og/eða framkölluð uppköst (vegna tilfinningalegrar vanlíðunar)

áföll sem ekki hefur verið unnið úr

oft þyngdarvandamál (yfirþyngd eða undir-þyngd)

Vandamálið er líkamlegt,

huglægt/tilfinningalegt og

andlegt:

líkamleg löngun (falskt hungur)

huglæg þráhyggja (óraunhæf hugsun)

eigin vilji á villigötum (óraunhæf sjálfstjórn)

oft áföll og þyngdarvandi

Lausnin er líkamleg:

læknisfræðilega viðurkennd matardagskrá

líkamsrækt í hófi

stuðningur við að breyta mataræði, auka hreyfingu og bæta lífsstíl

Lausnin er

huglæg/tilfinningaleg:

að ávinna sér færni til að ráða við tilfinningar sínar og líðan án þess að svelta sig, framkalla uppköst og/eða borða yfir sig

að vinna úr tilfinninga-legum áföllum og óraunhæfum hugsanamynstrum

... og líkamleg:

þær lausnir sem eru taldar hér til vinstri til viðbótar við þær sem taldar eru hér að ofan

Lausnin er andleg:

fráhald frá þeim fæðutegundum sem neytt hefur verið í óhófi og að láta af skaðlegri áthegðun

algjör heiðarleiki gagnvart öllum hugsunum og tilfinningum

andleg vinna, t.d. 12 spora bataleiðin

... huglæg/tilfinningaleg

og líkamleg:

þær lausnir sem eru taldar hér til vinstri til viðbótar við þær sem taldar eru hér að ofan

Það sem virkar:

viljastyrkur

Það sem virkar:

meðalhóf

vera meðvitaður um tilfinningar sínar

Það sem virkar:

að láta af stjórn

© Copyright Philip R. Werdell and Mary Foushi, 1997 (revised 2002). Þýtt með góðfúslegu leyfi höfunda.

Page 5: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 5

Offita – átröskun – matarfíkn

Hver er munurinn á þeim sem glímir við ofþyngd, átraskanir og matarfíkn?

Ofþyngd:

Flestir geta átt í vanda með ofþyngd ef þeir borða of mikið af orkuríkum mat og hreyfa sig of lítið. Margir þessara einstaklinga geta breytt mataræði sínu, farið að stunda heilbrigða hreyfingu og viðhaldið eðlilegri þyngd. Fyrir þá virkar viljastyrkurinn; bara leggja niður hnífapörin og ýta sér frá borðinu.

Vanlíðan og át:

Aðrir glíma við áföll og vanlíðan með því að „hugga“ sig með áti. Það fólk er gjarnan í stöðugu jójó-ástandi með þyngd sína, er annaðhvort í átaki, ofáti eða að glíma við ýmiss konar átvanda. Einhverjir þróa með sér greinanlegar átraskanir, s.s. lystarstol og lotugræðgi eða framkalla uppköst. Vandinn er ekki hvað þú ert að éta, heldur það sem er að éta þig. Fyrir þá sem eiga við þess háttar vandamál að stríða virkar rétt samsett mataræði og hófleg líkamsrækt, ásamt því að tileinka sér leiðir til að höndla tilfinningar sínar.

Matarfíkn:

Til að um matarfíkn geti verið að ræða, þarf þrennt að koma til: 1. Stjórnleysi í áti og þráhyggja varðandi át og þyngd. 2. Viðkomandi glímir við skaðlegar afleiðingar af áti, s.s. þyngdarvanda, þunglyndi eða annan

heilsuvanda. 3. Þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar heldur viðkomandi hegðun sinni áfram.

Þetta veldur síðan vítahring sjálfseyðingarhvatar, skammar og þunglyndis.

Matarfíkn er tvíþættur sjúkdómur

Líkamlegur þáttur vandans:

Þegar líkaminn hefur ánetjast ákveðnum efnum í mat, hafa orðið breytingar í efnaboðskiptum heilans. Helstu einkenni þess eru

aukin löngun í matvæli sem innihalda oftast sykur, sterkju (t.d. hveiti, glúten), fitu og salt eða löngun í mat í miklu magni.

Líkaminn myndar aukið þol fyrir þessum matartegundum og viðkomandi borðar stöðugt meira magn, annaðhvort í lotum eða er

sínartandi. Þetta ástand stigversnar ef ekkert er að gert. „Meira“ er ekki „nóg“ og verður aldrei nóg.

Huglægur þáttur vandans:

Þegar einstaklingur heldur áfram að borða það sem hann veit að kveikir fíkn, þrátt fyrir afleiðingarnar og þrátt fyrir að hafa

einlæglega einsett sér að gera það ekki, er hann haldinn þráhyggju. Hann er varnarlaus gagnvart fyrsta bitanum sem leiðir alltaf

af sér annan og síðan enn annan.

Þegar sá sem á við matarfíknivanda að stríða hættir að nota fíkniefnið (sykur, sterkju, fitu, salt eða stóra skammta) eða ástunda

átröskunarhegðunina sem deyfir tilfinningalíðan hans, byggist upp tilfinningapressa sem veldur því að hann leitar aftur í matinn

og þá fróun og vellíðan sem hann finnur við að borða. Við tekur síðan sektarkennd og vanlíðan yfir því að hafa enn aftur misst

stjórn á átinu. Hann nær ekki að ýta sér frá borðinu og segja „nei takk!“

Eftir því sem fíknin ágerist, verða matarfíklarnir vanmáttugri gagnvart líkamlegri ílöngun og hugmyndir þeirra um matarþarfir

sínar brenglast og þeir þróa með sér þráhyggju, sem heldur þeim í afneitun á ástandi sínu.

Það sem virkar fyrir matarfíkil:

Megrun, átak eða aðhald dugar ekki fyrir matarfíkil og þerapía ein og sér ekki heldur. Matarfíkill nær bata þegar hann er tilbúinn

að láta af stjórn, gefast upp fyrir þeim breytingum sem felast í fráhaldi, taka úr fæði sínu fíknivaldandi matvæli og stíga inn í það

ferli sem þarf til að viðhalda bata. Í uppgjöfinni felst sú andlega breyting, sem hefur gefið þúsundum sem átt hafa í vanda með

ílöngun í mat NÝTT LÍF.

Byggt á efni frá Phil Werdell og Esther Helgu Guðmundsdóttur með góðfúslegu leyfi þeirra.

Page 6: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 6

Skimun fyrir sykurfíkn frá Bitten Jonsson

(með sykri er átt við hvaða kolvetni sem er: pasta, brauð, sælgæti, kex, gos, ís, ruslfæði o.s.frv.)

Svaraðu spurningunum með JÁ eða NEI

1. Óplönuð notkun

Hefurðu borðað meira af sætindum* en þú ætlaðir þér eða eytt meiri tíma í að borða og nota sætindi* en

þú ætlaðir síðasta árið?

JÁ NEI

2. Vanræksla

Hefurðu einhvern tíma vanrækt venjulegar skyldur þínar og daglegt líf vegna neyslu á sætindum* eða

ofáts?

JÁ NEI

3. Minnkuð neysla

Hefur þig langað til að minnka neyslu á sætindum* eða þér fundist þú þurfa þess síðastliðið ár?

JÁ NEI

4. Aðfinnslur **

Hefur einhver fundið að ofáti þínu á sætindum* eða hefur fjölskylda þín, vinir eða aðrir einhvern tíma sagt

þér að þeir hafi áhyggjur af matarvenjum þínum?

JÁ NEI

5. Þráhyggja

Hefur þér einhvern tíma fundist þú vera mjög upptekin(n) af löngun í sætindi* eða hafa hugsanir þínar snúist mikið um sætindi/mat?

JÁ NEI

6. Tilfinningaleg vanlíðan Hefurðu einhvern tíma notað sætindi/mat* til að draga úr tilfinningalegri vanlíðan, svo sem syfju, sorg, reiði, þreytu, leiðindum og þ.h.?

JÁ NEI * Með því að svara spurningum um sætindi/ofneyslu matar* fjórum sinnum eða oftar með JÁ eru miklar líkur

á að viðkomandi eigi við efnalega ánetjun að stríða. Þá er mælt með greiningarviðtali og ADDIS-SUGAR-prófi til að fá nákvæmari greiningu.

** Spurning 4: Ef skjólstæðingur svarar þessari spurningu neitandi en flestum öðrum spurningum játandi, skal spyrja hann að því hvort hann haldi að þeir sömu myndu finna að ef þeir sæju hvað og hvernig hann borðaði (t.d. sætindi/mat)?

Túlkun: 0-1 JÁ: Bendir til félagslegar neyslu, vandamál er ekki fyrir hendi. 2-3 JÁ: Bendir til misnotkunar/skaðlegrar notkunar og skynsamlegt væri að fá ráðgjöf um lífsstílsbreytingar. 4 eða fleiri JÁ: Bendir til ánetjunar og fíknar, mælt er með ADDIS-SUGAR-greiningu eða dýpra mati.

BJ © 2007. www.bittensaddiction.com. Þýtt með góðfúslegu leyfi Bitten Jonsson.

Page 7: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 7

Skimun fyrir matarfíkn frá ACORN

Einkenni fyrri stiga matarfíknar:

JÁ NEI 1. ____ ____ Notar þú stundum mat til að fylla upp í „tómarúm“ þegar þér leiðist eða þú ert einmana? 2. ____ ____ Borðar þú stundum meira en þú ætlar þér? 3. ____ ____ Hefur neysla þín aukist á einhvern hátt frá því fyrir einhverjum mánuðum eða árum?

(Hefur þú þyngst?) 4. ____ ____ Eyðir þú stundum meiri fjármunum í „fljóttekinn mat“ (sælgæti, snakk, skyndibita) en þú

ættir að gera? 5. ____ ____ Hafa fjölskylda, vinir eða atvinnurekandi verið áhyggjufull vegna áthegðunar þinnar eða

útlits? 6. ____ ____ Reynir þú að gera lítið úr því hvernig þú borðar og segir öðrum að þú sért annaðhvort í

átaki eða á leiðinni í það? 7. ____ ____ Hefur þú beitt þig hörðu með því að fara í stranga megrun eða fasta og leitast með því við

að sýna að þú hafir stjórn á vandanum? 8. ____ ____ Hefur þú byrjað í átaki þrisvar sinnum eða oftar á síðastliðnum 6 mánuðum eða ætlað að

gera það? 9. ____ ____ Heldur þú áfram að borða þá fæðuflokka sem veita þér vellíðan, jafnvel þótt þú vitir að

þeir eru skaðlegir fyrir þig? 10. ____ ____ Hefur þú tilhneigingu til að borða áberandi meira en ella þegar þú ert undir miklu álagi? 11. ____ ____ Finnst þér að ástæður fyrir ofáti þínu séu vegna þeirra vandamála sem þú átt við að etja í

lífi þínu? Einkenni seinni stiga matarfíknar: JÁ NEI 1. ___ ____ Ert þú smeyk(ur) við að breyta um starfsvettvang, vegna þyngdaraukningar, þyngdartaps

og/eða útlits? 2. ____ ____ Finnur þú t.d. fyrir einhverju af eftirfarandi þegar þú reynir að takmarka át þitt: þunglyndi,

höfuðverkjum, skapstyggð, viðkvæmni eða svefntruflunum? 3. ____ ____ Átt þú vanda til að halda áfram áti fram eftir kvöldi eða jafnvel snemma morguns? 4. ____ ____ Álítur þú að ofát og lotuát geti eyðilagt heilsu þína? 5. ____ ____ Er ofnotkun þín á mat og afleiðingar þess að brjóta niður sjálfsvirðingu þína? 6. ____ ____ Hefur maki þinn hótað að yfirgefa þig vegna þess hvernig þú umgengst mat og hvernig

áhrif matur hefur á þig? 7. ____ ____ Ert þú farin(n) að skipuleggja lotuát eða fela mat til að borða seinna? 8. ____ ____ Langar þig oftar aðra í sykraðan, sterkjuríkan eða feitan mat? 9. ____ ____ Hefur læknirinn þinn tilkynnt þér að hann „geti ekki gert meira fyrir þig“? 10. ____ ____ Ert þú farin(n) að eyða svo miklum fjárhæðum í skyndimat að það er orðið að vandamáli í

lífi þínu? Niðurstöður:

Ef þú hefur svarað þremur spurningum játandi, gætir þú átt við matarfíkn að stríða, en ert sennilega á

byrjunarstigi í sjúkdómnum.

Ef þú hefur svarað sex eða fleiri spurningum játandi, bendir allt til að matarfíkn sé vandi og við mælum

með að þú leitir þér aðstoðar.

Þýtt með góðfúslegu leyfi: ACORN Food Dependency Recovery Services, Sarasota, Florida. www.foodaddiction.com

Page 8: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 8

Greiningarpróf til að meta þróun matarfíknar

1. Fyrstu stig

1. Þú nýtur þess að borða, nánast meira en nokkurs annars.

2. Þú borðar stundum meira en þú vilt en getur haft stjórn á því.

3. Þú öfundar þá sem geta borðað mikið en samt haft stjórn á þyngd sinni.

4. Þú tekur eftir að þú hefur stundum meiri áhuga á mat en fjölskylda þín og vinir.

5. Þú missir þig stundum í ofát (borðar hömlulaust) og segir engum frá því.

6. Þú manst oft eftir fyrsta skiptinu sem þú borðaðir ákveðinn mat eða matartegund.

7. Þér finnst matur vera leið til að finna fyrir vellíðan.

2. Miðstig

1. Þú heldur upp á ákveðinn mat og/eða góðgæti sem þú borðar oft.

2. Þú ert orðin(n) þyngri en talist getur heilbrigt fyrir hæð þína og/eða líkamsgerð.

3. Þú hefur farið í megrun oftar en einu sinni á fimm árum.

4. Þú hefur reynt ýmsar aðferðir til að hafa stjórn á þyngdinni, s.s. að fasta, kasta upp, farið í

dáleiðslu o.s.frv.

5. Þú nærð stundum að léttast en þyngist síðan jafnóðum aftur, jafnvel meira en áður.

6. Þú hefur eignast vini sem borða á sama hátt og þú.

7. Þú hefur stundum tilhneigingu til að borða sérlega hratt eða sérlega hægt.

8. Það hefur komið fyrir að þú munir ekki hvað þú hefur borðað.

9. Þú hefur upplifað að þig langi til að hætta að borða en ekki getað hætt.

10. Þú færð þér oft millibita fyrir og/eða eftir máltíðir.

11. Þú vildir að þig langaði til að hætta narti og ofáti.

12. Þú lítur á mat sem vin þinn.

3. Seinni stig

1. Þér finnst þú verða að borða ákveðnar matartegundir daglega, t.d. mat sem inniheldur sykur,

hveiti, koffín eða annað.

2. Þú færð oft samviskubit og/eða sektarkennd eða verður þunglynd(ur) eftir að hafa borðað.

3. Þú lýgur oft, svíkur og/eða stelur út af matnum þínum.

4. Þú hefur farið til læknis, næringarfræðings og/eða ráðgjafa sem hafa sagt þér að þú þurfir að

léttast eða breyta mataræði þínu en þú breytir engu.

5. Þú líður fyrir afleiðingar af ofáti en getur ekki hætt og/eða haldið þér frá mat þótt þú reynir það.

6. Þú hefur verið í meðferð eða 12 spora samtökum vegna matarfíknar en ekki náð að komast í

fráhald.

7. Þú hefur í einlægni ákveðið, oftar en einu sinni, að hætta áti en ekki getað það.

8. Það líður varla sá dagur að hugsanir um mat og/eða löngun til að borða hellist ekki yfir þig

fljótlega eftir máltíð eða á milli mála.

9. Þig langar stundum frekar að borða eða vera ein(n) með matnum þínum en að vera með vinum

og fjölskyldu.

10. Ofát þitt hefur áhrif á sambönd þín, vinnuna og/eða sálarlíf þitt.

11. Þú borðar undir stýri – jafnvel þótt þú hafir komist í hann krappan.

12. Þú skammast þín vegna þess hvernig þú borðar.

13. Maturinn er það sem þér þykir vænst um í lífinu og/eða er mikilvægasta umbunin í lífinu.

Page 9: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 9

4. Lokastig

1. Þú nýtur þess ekki að borða eins og áður – en borðar samt.

2. Þú heldur áfram að borða löngu eftir að það hættir að veita þér ánægju.

3. Þú hefur lent á spítala, í fangelsi eða á stofnun vegna matartengdrar hegðunar (t.d. á

Heilsustofnuninni í Hveragerði, Reykjalundi eða þ.u.l.).

4. Þér finnst þú frekar vilja deyja en þurfa að hætta að borða ofátsmatinn þinn.

5. Þú telur það gjörsamlega vonlaust að eiga heilbrigt samband við mat.

6. Þú veist ekki alltaf hvenær þú ert að segja satt í tengslum við mat.

7. Þú ert hætt(ur) að fara til lækna, næringarfræðinga og/eða ráðgjafa vegna þess að þú veist að

þú ert ekki fær um að fylgja því sem þeir leggja til.

8. Þú hefur reynt 12 spora bataleið en ekki getað haldið þér í fráhaldi – jafnvel ekki í einn dag.

9. Þig langar að borða meira, jafnvel þótt þú getir ekki með nokkru móti komið niður meiri mat.

10. Þú hefur misst vinnu, samband við annað fólk og/eða getu til að starfa eðlilega vegna þyngdar

og/eða matarvenja þinna.

11. Þér finnst matur það mikilvægasta í þínu lífi, þó að hann sé að eyðileggja líf þitt.

12. Þér finnst sem maturinn sé orðinn hálfgerður guð í lífi þínu og/eða sért nánast eins og

andsetin(n).

5. Dauði

Niðurstaða:

Ef tíu eða fleiri af þessum atriðum eiga við þig ertu sennilega haldin(n) matarfíkn.

Ef þrjú til fjögur atriði í einhverjum þessara flokka eiga við þig ertu sennilega matarfíkill á því stigi þar sem

flest svörin eru.

Þýtt með góðfúslegu leyfi Phil Werdell og Mary Fuschi frá ACORN www.foodaddiction.com

Page 10: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 10

Matarfíkn: Stigvaxandi þróunarferli hennar og ráðlögð úrræði

Þróunarstig sjúkdómsins Ráðlögð úrræði og aðgerðir

Engin einkenni um matarfíkn Forvarnir

Engin merki um óeðlilegt samband við

mat né viðbrögð við ákveðnum

matartegundum. Ef engin merki

ánetjunar eða þráhyggju vegna matar og

áts þróast helst einstaklingurinn á þessu

stigi út lífið.

Fræðsla um matarfíkn. Vera stöðugt

vakandi gagnvart einkennum

efnaánetjunar. Gæta hófs varðandi fæðu,

sérstaklega þekkt ávanabindandi matvæli,

t.d. sykur, sterkju, koffín og fitruríka fæðu.

Gæta hófs við neyslu áfengis og annarra

vímuefna.

Fyrstu stig Afeitrun og fráhald

Vandi við að stjórna þyngd,

þyngdaraukning og þyngdartap sitt á

hvað með sífelldri þyngdaraukningu aftur

eftir megrun. Einstaka átköst þar sem

mikið magn af sykri, sterkju eða fitu er

innbyrt. Getur verið um að ræða fyrsta

stig matarfíknar eða venjulegan

matmann sem velur stundum óhollustu.

Þekkja hver ávanabindandi matvæli eru.

Hætta ofáti, hætta að borða matvæli sem

vekja fíkn. Fara í afeitrun. Þessar aðgerðir

gætu virst öfgafullar hjá þeim sem finnst

ekki að neyslan hafi neikvæðar afleiðingar

fyrir sig. Þetta gæti hins vegar einnig verið

afneitun á upphafseinkennum sjúkdóms-

ins.

Miðstig 12 spora vinna/ráðgjöf

Tíð átköst og/eða sífellt nart. Uppköst

framkölluð eða ströng megrun gæti

byrjað. Réttlæting áður en borðað er og

sektarkennd eftir á. Gæti verið merki um

vaxandi matarfíkn eða tilfinningalegan

eða sálfræðilegan vanda sem lýsir sér í

átröskun.

Þátttaka í tólf spora samtökum, t.d. OA

eða GSA, og/eða vinna með matar-

fíkniráðgjafa (MFM miðstöðin). Aðstoð við

að takast á við erfiðleika vegna fráhalds,

einkum afneitun á sjúkdómnum. Þróa

tilfinningalega færni og vinna úr áföllum.

Seinni stig Meðferðaráætlun og sterkur stuðningur

Alvarlegar afleiðingar af ofáti – mikil

offita. Stöðugt át þrátt fyrir alvarlegar

afleiðingar, eins og sykursýki 2,

langvarandi þunglyndi og andlega

vanlíðan. Matur og át veitir ekki lengur

vellíðan, deyfingu eða flóttatilfinningu frá

lífinu eins og áður. Aukið stjórnleysi með

stöðugt aukinni þörf fyrir meira, þ.e. þol

eykst.

Þátttaka í vel skipulögðum 12 spora

samtökum, t.d. OA, GSA eða öðrum samtökum tengdum matarfíkn. Göngudeildarmeðferð og/eða námskeið eins og þau sem eru í boði hjá MFM-miðstöðinni (sjá www.matarfikn.is, staðfært fyrir íslenskar aðstæður). Til að halda fráhald þarf andlegan styrk (12 spora nálgun).

Lokastig Innlögn og dvalarmeðferð

Alvarlegar afleiðingar, svo sem

sjúkrahúsinnlögn vegna hjartaáfalls,

tilraunir til sjálfsvígs, atvinnumissir eða

skert vinnufærni. Eyðilögð sambönd,

meðferðir og/eða magaminnkunar-

aðgerðir með bakslagi, viðkomandi

kemst ekki lengur út úr húsi og/eða

sjúkrahúsdvöl fylgir í kjölfarið.

MFM-miðstöðin býður upp á göngudeildar-

meðferð en ekki enn innlögn. Hægt er að

leita aðstoðar hjá meðferðaraðilum í

Bandaríkjunum á borð við Turning Point í

Tampa, Milestones, Shades of Hope og

ACORN. Tilfinnanlegur skortur er á

innlagnarmeðferð fyrir langt gengna

matarfíkla á Íslandi. Unnið er að því að

setja upp slíka meðferð.

Dauði Þýtt og staðfært með góðfúslegu leyfi Phil Werdell

frá ACORN www.foodaddiction.com

Page 11: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 11

Fræðsla, rannsóknir og meðferðarferli

Til fagfólks í heilbrigðis-, velferðar- og uppeldisgreinum ásamt þeim sem starfa við ýmiss konar fíknimeðferð.

Eftirfarandi eru upplýsingar sem geta skipt sköpum fyrir skjólstæðing þinn!

Annast þú skjólstæðing sem þjáist af offitu en nær ekki að létta sig eingöngu með breyttu mataræði og líkamsrækt?

Annast þú skjólstæðing sem hefur prófað fjölmarga matarkúra og sálfræðimeðferð til að kljást við ofátsvanda sinn án árangurs?

Annast þú skjólstæðing sem hefur ekki náð að viðhalda kjörþyngd til langframa þrátt fyrir að hafa tekið megrunarlyf eða geðlyf?

Annast þú skjólstæðing sem hefur íhugað magaminnkunaraðgerð en nær ekki að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru fyrir slíka aðgerð? Annast þú skjólstæðing sem hefur farið í slíka aðgerð en síðan bætt nánast öllu á sig aftur? Annast þú skjólstæðing sem hefur farið í magaminnkunar-aðgerð, lést og síðan ánetjast áfengi eða lyfjum?

ÞÁ ER HUGSANLEGT AÐ SKJÓLSTÆÐINGUR ÞINN SÉ HALDINN MATARFÍKN. Jan Wilson skrifaði eftirfarandi um matarfíkn í fréttabréf um efnið (Food Addiction Newsletter) fyrir meira en tveimur áratugum: „Ég tel að um sé að ræða líkamlega fíkn vegna lífefnafræðilegra boðefna og að þessari röskun valdi óþoli fyrir vissum fæðutegundum, jafnvel í frekar smáum skömmtum. Þessar fæðutegundir eru fyrst og fremst sykur, sterkja og fita og/eða sambland þessara efna, jafnvel í óverulegu magni, og raunar næstum hvaða fæðutegundir sem er, ef þeirra er neytt í stórum skömmtum. Það sama getur einnig gerst þegar fólk sveltir sig, framkallar uppköst eða hugsar látlaust um mat.“ Þegar Wilson skrifaði þetta árið 1989 lágu varla fyrir nokkrar vísindalegar ritrýndar rannsóknir sem gætu sannfært efafulla lækna, næringarfræðinga eða meðferðarfræðinga um að matarfíkn væri til. Tuttugu og einu ári síðar birtist í Physical Craving and Food Addiction fyrsta ritrýnda vísindarannsóknin um matarfíkn sem var gerð á vegum The Food Addiction Institute. Þar kemur fram að fleiri rannsóknir liggi fyrir um tilvist efnalegrar ánetjunar í mat en lágu fyrir þegar samfélag lækna lýsti á sínum tíma yfir tilvist vanabindandi eiginleika áfengis og annarra fíkniefna (Substance Abuse Disorders). Samtök bandarískra fíknilækna (ASAM) skilgreina fíkn sem krónískan sjúkdóm sem hefur áhrif á boðkerfi

m.a. í umbunar-, hvatningar- og minnisstöðvum heilans. Þegar þessi boðkerfi virka ekki sem skyldi birtist

það í ýmsum sjúklegum einkennum, bæði líffræðilegum, sálrænum, félagslegum og andlegum. Þetta lýsir

sér í sjúklegri hegðun þar sem einstaklingurinn sækist eftir umbun og/eða vellíðan með því að nota

viðkomandi efni og/eða ástunda hegðunina sem um ræðir. Samtökin telja að matarfíkn falli innan þessarar

skilgreiningar.

Það sem einkennir fíknihegðun er að einstaklingurinn getur ekki haldið sig frá fíknivaldinum að staðaldri,

hann getur ekki stjórnað hegðun sinni og ílöngun, hann gerir sér í æ minna mæli grein fyrir hegðunar-

vandamálum sínum, þótt veruleg séu; vandræði hans í samskiptum við annað fólk aukast og hann verður

tilfinningalega vanhæfur. Eins og með aðra króníska sjúkdóma einkennist fíkn oft af batatímabilum og

bakslagi á víxl. Ef sjúklingurinn fer ekki í meðferð og tekur ekki virkan þátt í bataferli sínu, þróast fíknin

áfram og getur að lokum leitt til örorku og dauða fyrir aldur fram.

Page 12: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 12

Rannsóknir

Eftirfarandi umfjöllun er ætlað að sýna niðurstöður rannsókna á matarfíkn sem ber allar að sama brunni og jafnframt er ætlunin að benda á gagnlegar leiðir til að hjálpa matarfíklum hvar sem þeir eru staddir í sjúkdómi sínum. Vísað er í eina eða tvær heimildir um hvert atriði til að nýjustu og bestu rannsóknir um efnið komi fram. 1. D2-dópamínerfðavísirinn (sem tengist áfengissýki og lyfjafíkn) hefur fundist í offitusjúklingum sem

þjást af ofáti án þess að þeir séu haldnir áfengissýki eða ánetjaðir lyfjum.

Noble og fl.: „D2 Dopamine Receptor Gene and Obesity“, International Journal of Eating Disorders, 15:205-219, 1994.

2. Í dýrarannsóknum sem gerðar hafa verið til að rannsaka áfengissýki og lyfjafíkn hefur komið í ljós að

sum dýr geta orðið fíkin í sykur, önnur sætuefni og fitu í miklu magni.

Avena og fl.: „Evidence of Sugar Addiction: Behavioral and Neurochemical Effects of Intermittent, Excessive Sugar Intake“, Neuroscience and Biobehavioral Reviews, 20-39, 2008.

Leibowitz, „Over Consumption of Fats: A Vicious Cycle from the Start“, Summit on Obesity Epidemic and Food Addiction, 2009.

3. Við rannsóknir á mannsheilanum sem gerðar eru með jáeindaskanna (PET-skanna) hefur komið í ljós

að aukið dópamín mælist hjá fullorðnum ofætum sem þjást af offitu á sama hátt og það mælist hjá þeim sem greinast með áfengis- og eiturlyfjafíkn.

Gold (ritstj.): Eating Disorders, Overeating, Pathological Attachment to Food: Independent or Addictive Disorder? Haworth Medical Press, 2004 (einnig gefið út sem The Journal of Addictive Diseases, 23:3, 2004).

4. Fjölmargir vísindamenn eru sammála um að hjá sumu fólki sem sífellt borðar yfir sig og fer í stranga

megrun á víxl verði til innrænt morfín (endogenous opioids) í líkamanum.

Drewnowski o.fl.: „Taste Response and Preference for Sweet, High-fat Foods: Evidence of Opioid Involvement“, Physical Behavior, 51:371-9.

Colantuoni: „Evidence That Intermittent, Excessive Sugar Intake Causes Endogenous Opioid Dependence“, Obesity Research, 10: 478-88, 2002.

5. Vísbendingar hafa komið fram um að erfðamörk offitu og leptínskortur tengist truflunum á

mettunarboðum, svipað og hjá þeim matarfíklum sem eru haldnir magnfíkn í allan mat.

Shell: „The Hungry Gene: the Science of Fat and Future of Thin“, Atlantic Monthly Press, 2002.

Deneen, Gold og Liu: „Food Addiction and Cues to Prader-Willi Syndrome“, Addictive Medicine, 3:11, 2009.

6. Greinar hafa birst í fagtímaritum um klínískar rannsóknir þar sem sýnt er fram á að efnafíkn í mat er af

öðrum toga en einfalt ofát og er ekki það sama og hefðbundin átröskun.

Werdell: „Food Addiction: Beyond Ordinary Eating Disorders“, The Clinical Forum, International Association of Eating Disorder Professionals, 1994.

7. Komið hefur fram í rannsóknum að sumar ofætur hafa öll einkenni efnafíknar á sama hátt og aðrir

fíklar („food as a Substance Use Disorder“).

Ifland o.fl.: „Refined Food Addiction: A Classic Substance Use Disorder“, Medical Hypotheses, 518-526, 2009.

Page 13: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 13

8. Til eru þúsundir frásagna af einstaklingum sem hafa ánetjast mat.

Danowski: Locked Up for Eating too Much: the Diary of a Food Addict in Rehab, Hazelden, 2002.

Bullitt-Jonas: Holy Hunger: A Woman’s Journal from Food Addiction to Spiritual Fulfillment, Vintage, 1998.

Prager: Fat Child, Thin Man, 2010. 9. Til eru fjölmargar athuganir á of feitu fólki sem hafði árum saman reynt að grenna sig en gat það ekki

en grenntist síðan og hélt sig frá ofþyngd eftir að það fór að líta á sig sem matarfíkla og sneiða algerlega hjá öllum mat sem það hafði áður borðað í óhófi.

Dufty: Sugar Blues, Warner Books, 1975.

Appleton: Lick the Sugar Habit, Avery, 1988.

Overeaters Anonymous, OA World Service, 1. hefti 1980 og 2. hefti 2002.

The Connection, Journal of Food Addicts in Recovery Anonymous, 2004. 10. Í rannsóknum á meðferðarheldni hefur verið sýnt fram á að sumir þeir sem reynt hafa tólf spora kerfið

ná árangri þegar þeir nálgast vandann sem matarfíklar.

Overeaters Anonymous (OA): Membership Survey Report, Overeaters Anonymous, Inc. 2004.

Kirz: The Efficacy of Overeaters Anonymous in Fostering Abstinence in Binge-eating Disorder and Bulimia Nervosa, Virginia Polytechnic Institute, 2002.

11. Í allmörgum rannsóknum er sagt frá sjúklingum sem ná árangri hjá læknum sem beita fíknimeðferð

eftir að hafa árangurslaust farið í fjölmarga hefðbundna megrunarkúra.

Kline: The Junk Food Withdrawal Manual, Total Life, 1978.

Bernard: Breaking the Food Seduction: the Hidden Reasons Behind Food Craving – and 7 Steps to End Them Naturally, St. Martin’s Press, 2003.

12. Í ákveðinni rannsókn á meðferðarheldni kom í ljós að góður árangur náðist af meðferð við matarfíkn

sem var byggð á fíknimeðferðargrunni, bæði á vistmönnum geðsjúkrahúss og öðrum sem fóru í hópmeðferð og þurftu ekki sérstaka læknisfræðilega meðhöndlun.

Carroll: The Eating Disorder Inventory and Other Predictors of Successful Symptom Management of Bulimic and Obese Women Following an Inpatient Treatment Program Employing an Addictions Paradigm, Department of Psychological and Social Foundations, University of South Florida, 1993.

Þær vísindarannsóknir sem nefndar eru hér að ofan eru aðeins lítill hluti fjölmargra marktækra rannsókna. Til að fá góða heildarmynd af stöðu þessa rannsóknarsviðs er ráð að fara á vefslóðina www.foodaddictionsummit.org. Þar er hægt að sjá myndbönd af fyrirlestrum helstu vísindamanna og meðferðaraðila á ráðstefnunni The Summit on Obesity and Food Addiction, Bainbridge, WAS, 2009. Til að nálgast yfirlit yfir 34 vísindagreinar sem fjalla um sameiginlega þætti matarfíknar er best að fara á vef stofnunarinnar Refined Food Addiction Research Foundation – www.refinedfoodaddiction.org. Á heimasíðu Food Addiction Institute – www.http://foodaddictioninstitute.org/FAI-DOCS/Full-Bibliography.pdf er hægt að finna lista yfir 2733 vísindarit og -greinar þar sem getið er heimilda um matarfíkn sem birst hafa í meira en 100 mismunandi vísindatímaritum.

Page 14: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 14

Hvað er til ráða?

Svo hvað er til ráða ef þú rekst á sjúkling sem gæti verið matarfíkill?

Þeim sem hafa slíka sjúklinga til meðferðar er bent á að byrja á því að skýra frá því að vísindalegar vísbendingar séu um að sumt fólk geti orðið háð ákveðnum efnum í fæðu. Hægt er að afhenda þessum sjúklingum eintak af þessu skjali, benda þeim á vefslóð Matarheilla (www.matarheill.is), MFM-miðstöðvarinnar (www.matarfikn.is), Food Addiction Institute (www.foodaddictioninstitute.org), eða sjálfshjálparbækur um matarfíkn, eins og t.d.:

Jim A.: Matarfíkn – leið til bata, Huxa, 1994.

Hollis: Fat is a Family Affair, Hazelden, 1985.

Sheppard: Food Addiction: The Body Knows, Health Communications, 1989.

Danowski og Lazaro: Why Can’t I Stop Eating? Hazelden, 2000.

Ifland: Sugars and Flours: How They Make Us Crazy, Sick and Fat and What to Do About It, First Books Library, 2000.

Tarman/Werdell; Food Junkies, Dundurn, 2014. Einnig má benda á efni sem mælt er með á www.foodaddictionintitute.org. Þetta er prýðilegur útgangs-puntkur til að byrja að skoða málin á netinu. Í öðru lagi getur verið árangursríkt að stinga upp á við sjúklinginn að hann geri nákvæman lista yfir matinn sem hann borðar í óhófi. Þar eru langoftast fæðutegundir eins og sykur, sterkja, fita, koffín og áfengi. Einnig eru milljónir manna háðar hveiti, salti, gervisætuefnum og ýmsum öðrum fæðutegundum. Galdurinn við að vinna á matarfíkn er að halda sig alfarið frá þeim fæðutegundum sem valda oftast ofáti hjá viðkomandi. Á byrjunarskeiði matarfíknar getur fólk oft gert þetta án aðstoðar. Vandinn er hins vegar sá að á þessu byrjunarskeiði fíknarinnar virðast afleiðingarnar ekki vera það alvarlegar að brýn þörf sé á svo róttækum aðgerðum. Best er að leita ráða hjá lækni, næringarfræðingi eða meðferðaraðila sem skilur eðli matarfíknar til að fá einstaklingsmiðaðar ráðleggingar og meðferð sem hentar hverjum og einum. MFM-miðstöðin veitir slíka ráðgjöf (www.matarfikn.is). Í þriðja lagi er gott að benda fólki á samtök fyrir matarfíkla og beina því til meðferðaraðila sem náð hafa árangri í meðferð við matarfíkn. Á Íslandi starfa eftirtalin samhjálparsamtök sem veita stuðning við að ná bata frá matarfíkn:

• Greysheeters Anonymous (GSA.is) • Overeaters Anonymous (OA.is)

Ef skjólstæðingurinn er ekki fær um að viðhalda stöðugu bataferli með þinni hjálp og 12 spora kerfinu einu saman, er grunnreglan í fíknimeðferð sú að hjálpa honum til að láta af stjórn og beygja sig undir enn meiri stuðning við bataprógrammið og sterkari ramma. Til að ná bata frá matarfíkn – eins og við að ná bata frá áfengi eða eiturlyfjum – er einfaldasta og ódýrasta leiðin að nýta sér 12 spora samtök, fá trúnaðarmann og fara að ráðleggingum hans, sækja sem flesta fundi – og ef það dugar ekki, til þá fara á enn fleiri fundi, sækja viðburði á vegum samtakanna og starfa innan þeirra.

Sérfræðihjálp

Hinn möguleikinn er að fá sérfræðihjálp. Ef einstaklingsmiðuð ráðgjöf dugar ekki til, er ráð að fara í meðferð við matarfíkn. Ef vikulegir fundir duga ekki í fráhaldi, ætti að reyna á göngudeildarmeðferð og/eða

Page 15: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 15

dvalarmeðferðarnámskeið vegna matarfíknar. Ef það dugar enn ekki, þarf að leggjast inn til meðferðar. Ef enn meiri stuðnings og ramma er þörf kann að vera nauðsynlegt að dvelast í lengri eða skemmri tíma á áfangaheimili þar sem skilningur á matarfíkn ríkir. Í bókinni From the Front Lines: Best Practices in Treatment for Late Stage Food Addicts eftir Phil Werdell, sem kom út hjá bókaútgáfunni Brownell and Gold, eru viðmið sem hægt er að nota til að meta mismunandi meðferðarstöðvar fyrir matarfíkla. Ekki ber síst að benda á að læknar, næringarfræðingar og meðferðaraðilar gagnast þeim sjúklingum sínum sem eru matarfíklar best með því berjast fyrir því að fagfélög þeirra viðurkenni matarfíkn sem sjúkdóm og að samtök amerískra geðlækna (APA) bæti matarfíkn á listann yfir röskun af völdum fíknvaldandi efna (Substance Use Disorder) í næstu útgáfu greiningarlista yfir geðsjúkdóma (DSM). Byggt á efni frá heimasíðu Food Addiction Institute.org ©Phil Werdell með góðfúslegu leyfi hans. www.foodaddictioninstitute.org

Meðferðarúrræði á Íslandi

MFM MATARFÍKNARMIÐSTÖÐIN www.matarfikn.is /[email protected] /568-3868

Einstaklingsmiðuð meðferð með göngudeildarsniði er í boði hjá MFM-miðstöðinni sem innifelur meðal

annars fræðslu um offitu, matar-/sykurfíkn, átraskanir og kynningu á leiðum til lausna, m.a. 12 spora

bataleiðinni. Unnið er í litlum meðferðarhópum og í einstaklingsviðtölum. Leiðbeint er um mataræði,

skjólstæðingar eru studdir í „fráhaldi“, kennt er að elda fyrir nýjan lífstíl ásamt því að skoðað er og unnið

er með hvað getur verið undirliggjandi því að skjólstæðingur notar mat/sykur og matartengdar hegðanir.

Fyrsta skref

Viðtöl

Fyrsta skrefið er viðtal; þar er farið yfir sögu viðkomandi hvað varðar matar- og þyngdarvandamál og

skimunar- og greiningarferli er sett af stað til að kanna hvort um matarfíkn og/eða átraskanir geti verið að

ræða. Fyrir þá sem búa ekki á höfuðborgarsvæðinu er boðið upp á viðtöl í síma/eða á skype.

Annað skref

NÝTT LÍF – meðferðarnámskeið

Í meðferðinni er leitast við að styðja skjólstæðinga í breyttum lífsstíl og bataferli sem felur í sér stuðning við

þær mataræðisbreytingar sem þeir eru að takast á við og jafnframt er skoðað hver er undirliggjandi orsök

vandans og þeir aðstoðaðir við að ná tökum á honum. Meðferðin hefst með undirbúningsfundi og

helgarnámskeiði, þar sem skjólstæðingar hefja meðferð. Meðferðin felur í sér daglegan stuðning við

matardagskrá og unnið er í meðferðarhóp sem hittist vikulega (og á skype fyrir þá sem komast ekki á

fundi). Í hópnum er unnið að huglægum og tilfinningalegum bata ásamt fyrirlestrum og kynningum, m.a. á

12 spora bataleiðinni. Mælt er með einstaklingsviðtölum eftir þörfum.

Page 16: Upplýsingarefni fyrir fagfólk varðandi skimun, greiningu og meðferð við matarfíkn

www.matarheill.is 16

Þriðja skref

FRÁHALD Í FORGANG – framhaldsmeðferðarnámskeið

Námskeiðið er fyrir endurkomufólk og þá sem hafa lokið meðferðinni NÝTT LÍF og vilja áframhaldandi

stuðning og dýpri vinnu með vandamál sín.

Fjórða skref

Að viðhalda batanum

Þetta skref getur falið í sér regluleg viðtöl með ráðgjöfum MFM-miðstöðvarinnar, meðferðarhópa fyrir þá

sem eiga í vanda með að viðhalda fráhaldi og endurkomur í skemmri og lengri tíma eftir þörfum.

Mælt er með að lágmarki 5 vikna meðferð og boðið er upp á framhald sem getur tekið allt að ári.

Unnið er að því að setja upp og starfrækja úrræði þar sem hægt verður að bjóða upp á

dvalar- og innlagnarmeðferð á árinu 2015.

Starfandi 12 Spora samtök fyrir þá sem eiga við hömlulaust át að stríða á Íslandi

GSA (Greysheeters Anonymous) GSA.is /greysheet.org

OA (Overeaters Anonymous) OA.is /overeatersanonymous.org