efn
isy
firlit
11
22
44
55
66
77
88
1177
1188
1199
2200
2222
2233
Stefna og hlutverk
Ávarp forstjóra
Lykiltölur
Skipurit
Stjórnendur
Ársskýrsla
Skýrsla & áritun stjórnenda
Áritun endurskoðenda
Rekstrarreikningur
Efnahagsreikningur
Yfirlit um sjóðstreymi
Skýringar
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
22
H LU T V E R K & Á H E R S LU R
Hlutverk
Íslandspóstur annast sendingar á bréfum og bögglum, þ.e. sendingar sem eru undir 30 kílóum.
Íslandspóstur rekur í því skyni víðfeðmt dreifikerfi innanlands þar sem lögð er áhersla á fagleg
vinnubrögð og góða þjónustu. Íslandspóstur lítur á það sem sitt hlutverk að:
- starfrækja öflugt dreifikerfi hér á landi með víðtæku neti móttöku- og afhendingarstaða og
tengingu við erlend dreifikerfi
- bjóða heildarlausnir á sviði flutninga og dreifingar
- annast hraðflutninga með samfelldri flutningsábyrgð
- veita einfalda og örugga greiðslumiðlun fyrir vöru sem dreift er með Íslandspósti
- stunda verslun með vörur og þjónustu til að styrkja rekstur þjónustumiðstöðva
Þungamiðjan í starfsemi Íslandspósts er dreifing. Íslandspóstur gegnir því hlutverki að vera
tengiliður milli kaupenda og seljenda og síðasti hlekkur í virðiskeðju fyrirtækja.
Áherslur
Íslandspóstur veitir viðskiptavinum sínum góða og trausta þjónustu sem byggist á hæfu starfsfólki, mörgum val-
kostum, heildarlausnum og víðtæku dreifikerfi.
Áhersla er lögð á að skila eigendum Íslandspósts góðum arði með markvissri stjórnun og framlagi hæfra starfs-
manna, vaxandi veltu og bættri framleiðni.
Hjá Íslandspósti er leitast við að gera störf áhugaverð og vinnustaði aðlaðandi. Áhersla er lögð á að kjör starfs-
manna taki mið af viðleitni og frammistöðu. Lagt er upp úr starfsþjálfun og skapast með því tækifæri til þroska
og frama innan Íslandspósts.
Íslandspóstur mætir þjóðfélagslegri ábyrgð sinni með skipulagningu og rekstri öflugra dreifikerfa sem tryggja
almenningi hvar sem er á landinu örugga, hraða og skilvirka póstþjónustu. Starfsemi Íslandspósts tekur mið af
eðlilegum kröfum um umhverfismál og stuðlað er að góðu samstarfi við eftirlitsaðila, s.s. Póst- og fjarskipta-
stofnun, Samkeppnisstofnun og samgönguráðuneytið.
hlu
tve
rk &
áh
ers
lur
33
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
á v a r p
44
Batamerki á grunnrekstri Íslandspósts
Margt hefur áunnist í rekstri Íslandspósts á liðnum árum. Engu að síður var tap á rekstrinum á
síðastliðnu ári og er afkoman ekki viðunandi. Þær kröfur eru gerðar til hlutafélaga að þau skili
hagnaði. Markmiðið með því að breyta Íslandspósti í hlutafélag í ársbyrjun 1998 var að losa fyrir-
tækið úr viðjum ríkisrekstrar og gera það hæft á samkeppnismarkaði.
Íslandspóstur hefur einkarétt á dreifingu bréfa undir 250 g en horfur eru á því að sá einkaréttur
verði afnuminn á fyrsta áratug þessarar aldar. Þá verður Íslandspóstur í samkeppnisumhverfi á
öllum sviðum. Miklu skiptir að fyrirtækið verði vel í stakk búið að takast á við breytta tíma. Það
er ánægjuefni að veruleg batamerki eru á grunnrekstri Íslandspósts. Framlegð fyrir fjármagnsliði
hefur batnað ár frá ári. Mikil stefnumótunarvinna hefur farið fram ásamt hagræðingu í rekstri
og sókn inn á nýja markaði. Starfsmenn Íslandspósts um allt land eiga mikinn þátt í að vel hefur
tekist til í þessum efnum.
Þegar horft er til framtíðar eru ýmsar blikur á lofti. Upplýsingatæknin er stöðugt að leysa bréfa-
samskipti af hólmi, nú síðast með rafrænum undirskriftum. Reynslan erlendis gefur vísbendingu
um að þessi þróun muni halda áfram, en bréfasendingar eru uppistaðan í rekstri Íslandspósts. Þá
er útlit fyrir aukna samkeppni. Íslandspóstur heyr því varnarbaráttu. En samhliða því hefur fyrir-
tækið leitað nýrra sóknarfæra. Góður árangur hefur náðst á bögglamarkaði og áhersla verið
lögð á að efla vitund markaðsfólks um auglýsingapóst.
Miðað við heildarafkomu Íslandspósts og horfur í rekstri er ljóst að halda þarf áfram á sömu
braut. Ef vel tekst til í stefnumótun, markaðssókn og hagræðingu er bjart framundan.
Skýringin á bágri afkomu Íslandspósts felst í því að jaðartekjur hafa dregist saman. Munar þar mestu um að
Landssíminn hefur dregið viðskipti sín frá pósthúsum. Því fylgir mikið tekjutap og verkefnamissir. Þá fylgir mikil
útgjaldaaukning þeirri breytingu að landpóstar dreifa pósti fimm daga vikunnar, þar sem því verður við komið,
í stað þriggja áður. Til að mæta tekju- og verkefnamissi á pósthúsum hefur Íslandspóstur þurft að endurskil-
greina starfsemina. Dregið hefur verið úr starfsmannahaldi og yfirbyggingu og unnið markvisst að uppbyggingu
póstafgreiðslna í samstarfi við önnur þjónustufyrirtæki. Sömu þróunar hefur gætt hjá póstfyrirtækjum annars
staðar á Norðurlöndunum. Höfuðáhersla er lögð á að þjónustan skerðist ekki með þessum breytingum.
ÁV
AR
PF
OR
ST
JÓ
RA
55
t ö l u r
LY K I L T Ö LU R
2000 1999
Tekjur
Rekstrartekjur 4.160.926 3.899.991
Seld starfsemi póstgíró 75.000
Tekjur alls 4.235.926 3.899.991
Gjöld
Laun og launatengd gjöld 2.508.786 2.322.981
Annar rekstrarkostnaður 1.367.916 1.489.642
Afskriftir 273.957 192.614
Rekstrargjöld samtals 4.150.659 4.005.237
Fjármagnstekjur (gjöld) 98.881 15.040
Hagnaður (tap) fyrir tekju- og eignaskatt 13.614 90.206
Tekju- og eignaskattur 4.878 30.729
Hagnaður (tap) ársins 18.492 59.477
Kennitölur
Veltufjárhlutfall 1,47 1,24
Eiginfjárhlutfall 0,45 0,46
Innra virði hlutafjár 1,46 1,41
Arðsemi eigin fjár 0,9% 2,9%
2 0 0 0
( )
( )
( )
( ) ( )
( )
( )
( )
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0sk
ipu
rit
S K I P U R I T
stjórn
starfsmannastjóri
alfljó›amál
forstjóri
framkvæmdastjórifijónustusta›a
rekstrarstjóri
pósthús 1-22
fyrirtækjapósthús
póstmi›stö›
dreifingastö›var
útkeyrsla
flutningar innanlandsog landpóstar
fasteigna- og bifrei›adeild
framkvæmdastjóriflutningasvi›s
innra eftirlit
bókhald
hagdeild
launadeild
tölvu- og uppl‡singadeild
framkvæmdastjórifjármálasvi›s
kynningarmál
sölu- og fijónustudeild
bréfapóstur í einkarétti
flutningafljónustainnanlands
flutningafljónustatil útlanda
augl‡singapóstur
frímerkjadeild
póstgíró
framkvæmdastjórimarka›s- og sölusvi›s
66
stjó
rn
en
du
r
Stjórnarmenn Íslandspósts: (frá vinstri)
Guðmundur Oddsson
Elías Jónatansson, ritari
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Ólafur Sigurðsson, varaformaður stjórnar
Ellert Kristjánsson
Ísólfur Gylfi Pálmason
Björn Jósef Arnviðarson, stjórnarformaður
Framkvæmdastjórn: (frá vinstri)
Andrés Magnússon, starfsmannastjóri
Áskell Jónsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs
Einar Þorsteinsson, forstjóri
Anna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri þjónustustaða
Tryggvi Jónsson, framkvæmdastjóri flutningasviðs
S T J Ó R N E N D U R Í S L A N D S P Ó S T S
77
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
88
Í haust flutti Íslandspóstur höfuðstöðvar sínar í nýtt húsnæði að Stórhöfða 29. Eftir flutningana eru aðalskrif-
stofur og stoðdeildir undir sama þaki en voru áður dreifðar á fimm staði á höfuðborgarsvæðinu. Breytingunum
fylgir ótvírætt hagræði þar sem öll starfsemi og þjónusta verður markvissari. Vinnuaðstaða starfsmanna hefur
batnað til muna og eru um 100 starfsmenn í nýja húsnæðinu.
Á R S S K † R S L A
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
99
Auglýsingapóstur í sókn
Það verður stöðugt dýrara fyrir fyrirtæki að ná til einstaklinga á hefðbundinn hátt með aug-
lýsingum í fjölmiðlum. Oft er markpóstur mun hagkvæmari leið til að koma skilaboðum til neyt-
enda og er hann kjörin leið fyrir fyrirtæki sem vilja koma sérhæfðum skilaboðum á framfæri til
ákveðins hóps. Rannsóknir sýna að fólk les í miklum mæli markpóst sem berst inn á heimili. Jafn-
framt sýna kannanir að markpósti hefur aldrei verið helgað stærra hlutfall af auglýsingafjár-
magni fyrirtækja en nú.
Fjölpóstur hefur ótvírætt sannað gildi sitt sem áhrifaríkur auglýsingamiðill. Til marks um það
hafa markaðskannanir sýnt að stór hluti landsmanna les fjölpóst, en það kemur sér vel fyrir fyrir-
tæki sem vilja kynna vörur sínar og þjónustu.
Rafræn tollafgreiðsla
Nýtt verklag hefur verið tekið upp í tollafgreiðslu sem felst í því að viðtakendum ber að skila á
rafrænan hátt tollskýrslum til Tollstjórans í Reykjavík en ekki til pósthúsa eins og áður var mögu-
legt. Í tengslum við þetta fyrirkomulag býður Íslandspóstur nýja þjónustu. Viðtakendur geta fengið
Íslandspóst til að gera fyrir sig tollskýrslur og er þá hægt að afhenda sendingar strax til viðtakenda.
Því fylgir hraðari afgreiðsla og minni umsýsla fyrir viðtakendur og má ætla að flutningstíminn stytt-
ist fyrir vikið um 1 til 2 daga.
á r s s k ý r s l aHeimakstur skráðra sendinga
Íslandspóstur leitar stöðugt nýrra leiða til að bæta þjónustu sína. Stórt skref var stigið í þá átt þegar heimakstur
hófst á ábyrgðarbréfum og bögglum. Með heimakstri verður meginhlutverk pósthúsa að taka við bréfum og
bögglum og skila þeim inn í dreifikerfi fyrirtækisins, en flutningasvið sér um að koma þeim heim að dyrum.
Þetta er umfangsmikið verkefni enda áætlað að heimakstur hafi verið um 1,5 milljónir sendinga á fyrsta starfs-
ári og náð til 95% heimila í landinu. Með þessari nýju þjónustu opnast ýmsir vaxtarmöguleikar, m.a. í heima-
verslun, póstverslun og netverslun, þar sem viðtakendur fá bögglana nú senda heim og þurfa ekki að sækja þá
í póstafgreiðslu. Þannig vinnur Íslandspóstur með fyrirtækjum að því að verða síðasti hlekkurinn í virðiskeðju
þeirra.
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
1100
Breytingar í rekstri pósthúsa
Töluverðar breytingar urðu á póstafgreiðslu á höfuðborgarsvæðinu vegna þeirrar nýju þjónustu
sem fólst í heimakstri á sendingum og breyttum reglum um tollafgreiðslu. Þá fækkaði verkefnum
á pósthúsum um allt land. Símaþjónusta er lítil sem engin, greiðslumiðlun hefur minnkað og al-
mennum bréfasendingum fækkað. Munar þar mestu um að Landssíminn hefur dregið viðskipti
sín út úr pósthúsunum. Það hefur leitt til óhjákvæmilegrar hagræðingar í rekstri og fækkunar
starfsfólks. Víðast hvar hefur það að mestu verið leyst með starfsmannaveltu og tilfærslum.
Breytingar á höfuðborgarsvæðinu fólu í sér að pósthúsið að Stórhöfða flutti á vormánuðum í
Spöngina í Grafarvogi og í haust flutti verslun Frímerkjasölunnar í pósthúsið í Pósthússtræti.
Ráðist hefur verið í uppstokkun á þjónustu Íslandspósts á landsbyggðinni og gripið til þess að draga úr yfirbygg-
ingu og starfsmannahaldi með því að efna til samstarfs við önnur þjónustufyrirtæki. Með því móti er póstþjón-
ustan aðlöguð nýjum aðstæðum en þjónustustigi haldið á hagkvæman hátt. Í sumar fluttu póstafgreiðslur á
Laugarvatni og Flúðum í húsnæði Búnaðarbankans á hvorum stað. Í september hófst samstarf Íslandspósts og
BVT ehf. í húsnæði þess síðarnefnda í Vík í Mýrdal. Einnig hófst samstarf við Sparisjóð Ólafsfjarðar og Sparisjóð
Norðfjarðar á Reyðarfirði. Íslandspóstur flutti í húsnæði Sparisjóðsins á Ólafsfirði, en Sparisjóður Norðfjarðar
keypti húsnæði Íslandspósts á Reyðarfirði. Alls eru 13 samstarfsaðilar víðs vegar á landinu sem sjá um
póstafgreiðslu.
Afgreiðslustaðir póstsins ogaðaldreifingaleiðir.
Pósthús
Afgreiðslustöðvar
Samstarf
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
1111
Nýtt þjónustuver á Akureyri
Nýtt þjónustuver með aðalskiptiborði Íslandspósts var stofnað á Akureyri í október og er því ætl-
að að auðvelda viðskiptavinum Íslandspósts að afla sér upplýsinga og koma ábendingum á fram-
færi. Starfsmenn þjónustuversins hafa fengið sérstaka þjálfun í að svara og vinna úr fyrirspurnum
um allt sem lýtur að þeirri þjónustu sem í boði er hjá Íslandspósti. Áhersla er lögð á skjót og
markviss vinnubrögð. Þessum aðgerðum fylgir mikil hagræðing, sem felst m.a. í betri nýtingu á
tíma starfsmanna. Þjónustuverið annast fyrst og fremst þjónustu við einstaklinga en ráðgjöf til
fyrirtækja verður áfram sinnt af sölu- og þjónustudeild Íslandspósts í höfuðstöðvunum á
Stórhöfða.
Mikið álag um jólin
Mikið álag var á Íslandspósti um síðustu jól. Áætlað hafði verið að 10% aukning yrði á póstmagni miðað við árið
1999. Þó svo að það gengi eftir hafði ekki verið gert ráð fyrir að aukningin kæmi öll fram síðustu vikuna fyrir
jól. Þá viku voru 23 þúsund eða 40% fleiri bögglar póstlagðir en árið áður. Álagið vegna þessa mikla böggla-
magns varð gríðarlegt. Þrátt fyrir að yfir 100 bílar sinntu útkeyrslu og unnið væri dag og nótt í bögglaflokkun
náðist ekki að koma tæpum 2 þúsund bögglum í dreifingu eða um 2,5% af því óheyrilega magni sem barst síð-
ustu dagana. Vert er þó að taka fram að dreifing bréfa gekk vel sem og afhending böggla á landsbyggðinni.
Meiri viðbúnaður verður fyrir afhendingu sendinga síðustu dagana fyrir næstu jól.
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
1122
Útgáfa frímerkja
Um auðugan garð er að gresja þegar útgáfa íslenskra frímerkja árið 2000 er skoðuð og hafa við-
fangsefnin sjaldan verið fleiri. Mikið bar á efni úr náttúru Íslands auk þess sem tveggja stór-
atburða var minnst, þ.e. að þúsund ár voru liðin frá landafundum í Vesturheimi og kristni var lög-
tekin á Íslandi. Jafnframt var 125 ára afmælis landnáms Íslendinga vestanhafs minnst á veglegan
hátt. Margt fleira ber fyrir augu í frímerkjaflóru liðins árs. Forvitnilegt er að virða fyrir sér hvala-
tegundirnar andarnefju, hnúfubak, leiftur og hrefnu og þá ekki síður að fylgjast með lúnóttum
Leppalúða og lendabreiðri Grýlu arka til byggða á jólafrímerkjunum.
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
1133
Myntsölu ýtt úr vör
Á haustmánuðum bauð Íslandspóstur upp á nýtt söfnunarsvið í nafni Myntsölunnar. Frímerkjadeildin hefur yfir-
umsjón með starfseminni, sem er í samvinnu við norska fyrirtækið Samlerhuset AS, en það er stærsta fyrirtæki í
útgáfu og sölu minnispeninga og myntbréfa á Norðurlöndum. Samlerhuset kom að útgáfu á fyrsta íslenska
myntbréfinu sem Íslandspóstur gaf út á síðasta ári í tilefni landafunda í Vesturheimi, en það var silfursleginn
minnispeningur. Með hliðsjón af mjög góðum viðtökum má vænta fleiri myntbréfa á komandi árum.
Söfnunarklúbbur fyrir krakka
Merkilegi klúbburinn var stofnaður á haustdögum með það að markmiði að efla áhuga á frí-
merkjasöfnun hjá krökkum. Árangurinn fór fram úr björtustu vonum; félagar í klúbbnum eru nú
þegar orðnir 1200 talsins og eru flestir þeirra áskrifendur að nýjum frímerkjum. Ákvörðunin um
stofnun klúbbsins var tekin í framhaldi af könnun sem sýndi að 6 til 12 ára börn víða á landinu
hafa mikinn áhuga á alls konar söfnun, þó sérstaklega á frímerkjum, póstkortum og límmiðum.
Samhliða þessu var vefsíða Merkilega klúbbsins sett á fót, www.postur.is/klubbur, þar sem hægt
er að fara í létta leiki, eignast penna- og netvini, fá frekari fræðslu um frímerki og margt fleira.
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
1144
Besti fyrirtækjavefurinn
Íslensku vefverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn 26. október og var www.postur.is, vefur Íslands-
pósts, valinn besti fyrirtækjavefurinn. Alls voru veitt verðlaun í sjö flokkum, en um 3 þúsund til-
nefningar bárust til keppninnar.
Auglýsingar báru árangur
Hvað er jólakort? Þannig var spurt í nýrri sjónvarpsauglýsingu sem sýnd var fyrir jólin. Tilgangur-
inn var að minna á þá fallegu hefð að senda jólakort, sem er einföld og skemmtileg leið til að
gleðja vini og vandamenn. Sjónvarpsauglýsingin fékk viðurkenningu frá Biskupsstofu í samkeppni
um þá auglýsingu sem væri mest í anda jólanna, en hún þótti miðla vel kyrrð og innileika helgi-
haldsins, auk þess að færa boðskap um að gleðja aðra yfir hátíðirnar.
Í janúar var heimakstur kynntur í auglýsingaherferð í sjónvarpi, blöðum og útvarpi. Þá var sendur póstur til allra
heimila og fyrirtækja þar sem þjónustan var kynnt rækilega. Töluverð aukning hefur verið á bögglasendingum
og ánægja ríkt hjá viðskiptavinum með þjónustuna.
100
90
80
70
60
50
í millj.sendinga
19951996
19971998
(72)
(67)(65)
(63)
19992000
(85)
(94)
Þróun á póstmagni innan-lands árin 1995–2000.Heildarmagn póstflutningainnanlands er enn að aukasteins og línuritið sýnir.
1155
Starfsmenn í hátíðarskapi
Það lýsir vel góðum vinnuanda hjá Íslandspósti að starfsmenn fjölmenna jafnan þegar eitthvað
stendur til. Úr nógu var að velja. Einna hæst bar sumar- og fjölskylduhátíðir Íslandspósts sem
haldnar voru víða um land í fyrravor. Um 1.200 starfsmenn ásamt fjölskyldum komu saman í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal, á Akureyri var farið í hjólreiðatúr um bæinn og sam-
verustundar í Kjarnaskógi notið, starfsmenn frá Akranesi, Borgarnesi og Reykholti heimsóttu
Stykkishólm og fóru í siglingu um Breiðafjörð og Reyðfirðingar, Eskfirðingar og Norðfirðingar
brugðu sér til Egilsstaða. Auk þess voru farnar póstgöngur um allt land og fjölmenn og vel
heppnuð árshátíð haldin á Broadway. Fjöldi starfsmanna í árslok var 1.777 manns sem töldu um
1.317 ársverk.
Á R S S K † R S L A Í S L A N D S P Ó S T S 2 0 0 0
1166
11 88
Til stjórnar og hluthafa í Íslandspósti hf.
Við höfum endurskoðað ársreikning Íslandspósts hf. fyrir árið 2000. Ársreikningurinn hefur að geyma
skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymi og skýringar nr. 1–18. Ársreikningurinn
er lagður fram af stjórnendum félagsins og á ábyrgð þeirra í samræmi við lög og reglur. Ábyrgð okkar
felst í því áliti sem við látum í ljós á ársreikningnum á grundvelli endurskoðunarinnar.
Endurskoðað var í samræmi við góða endurskoðunarvenju. Samkvæmt því ber okkur að skipuleggja og
haga endurskoðuninni þannig að leitt sé í ljós að ársreikningurinn sé í meginatriðum án annmarka. End-
urskoðunin felur meðal annars í sér greiningaraðgerðir, úrtakskannanir og athugun á gögnum til að
sannreyna fjárhæðir og aðrar upplýsingar sem fram koma í ársreikningnum. Endurskoðunin felur einnig
í sér athugun á þeim reikningsskilaaðferðum og matsreglum sem notaðar eru við gerð ársreikningsins og
mat á framsetningu hans í heild. Við teljum að endurskoðunin sé nægjanlega traustur grunnur til að
byggja álit okkar á.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu 2000, efnahag þess
31. desember 2000 og breytingu á handbæru fé á árinu 2000 í samræmi við lög, samþykktir félagsins og
góða reikningsskilavenju.
Ríkisendurskoðun, 6. apríl 2001.
Sigurður Þórðarson,
ríkisendurskoðandi.
Reynir Kristjánsson,
endurskoðandi.
Á R I T U N E N D U R S K O ‹ E N D A
Skýr. 2000 1999
Rekstrartekjur :
Tekjur af póstþjónustu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5 3.714.211 3.252.820
Aðrar rekstrartekjur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 446.715 647.171
Seld starfsemi póstgíró . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 75.000
4.235.926 3.899.991
Rekstrargjöld:
Laun og launatengd gjöld . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 16 2.508.786 2.322.981
Beinn kostnaður við póstdreifingu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 720.124 746.696
Húsnæðiskostnaður . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 195.904 174.362
Kostnaðarverð seldra vara . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 54.074 94.123
Annar rekstrarkostnaður . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 397.814 474.461
Afskriftir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8 273.957 192.614
4.150.659 4.005.237
Rekstrarhagnaður (tap) án fjármunatekna og fjármagnsgjalda 85.267 ( 105.246)
Fjármunatekjur og f jármagnsgjöld:
Vaxtatekjur, verðbætur og gengismunur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 56.085 96.391
Vaxtagjöld og verðbætur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 117.161) ( 89.754)
Gengismunur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 44.873) 16.405
Reiknuð tekju- (gjald) færsla vegna verðlagsbreytinga . . . . . . . . . . 2 7.068 ( 8.002)
( 98.881) 15.040
Tap fyrir tekjuskatt og eignarskatt ( 13.614) ( 90.206)
Tekjuskattur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 0 35.762
Eignarskattur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 4.878) ( 5.033)
Tap árs ins: . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 18.492) ( 59.477)
11 99Fjárhæðir eru í þúsundum króna
R E K S T R A R R E I K N I N G U R
Eignir
Skýr. 31.12.2000 31.12.1999
Fastaf jármunir :
Varanlegir rekstrarfjármunir:
Fasteignir og lóðir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.699.828 1.627.022
Áhöld, tæki og bifreiðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 586.340 570.524
2,8 2.286.168 2.197.546
Áhættufjármunir og langtímakröfur:
Eignarhlutir í öðrum félögum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8.121 2.521
Skuldabréf og bundnar innstæður . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 25.706 33.904
33.827 36.425
Fastafjármunir samtals 2.319.995 2.233.971
Veltuf jármunir :
Birgðir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7 82.355 35.002
Skammtímakröfur:
Viðskiptakröfur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 774.723 675.953
Orlofskröfur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 471.371 533.239
Aðrar skammtímakröfur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 165.656 432.656
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.411.750 1.641.848
Markaðsverðbréf . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 426.553 357.207
Handbært fé . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 396.143 136.258
Veltufjármunir samtals 2.316.801 2.170.315
Eignir samtals 4.636.796 4.404.286
22 00
E F N A H A G S R E I K N I N G U R
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Skuldir og eigið fé
Skýr. 31.12.2000 31.12.1999
Eigið fé:
Hlutafé . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.447.500 1.447.500
Endurmatsreikningur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 218.134 133.451
Varasjóður . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 440.437 458.929
Eigið fé samtals 10, 11 2.106.071 2.039.880
Langtímaskuldir :
Skuldabréfalán . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12 952.766 616.855
Skammtímaskuldir :
Innlánsreikningar Póstgírós . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 347.037 270.000
Skuld við orlofsþega . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 481.331 507.442
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir . . . . . . . . . . . 715.512 951.844
Næsta árs afborganir langtímaskulda . . . . . . . . . . . . . . . . 13 29.201 13.232
Skattar ársins . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4.878 5.033
1.577.959 1.747.551
Skuldir samtals 2.530.725 2.364.406
Skuldir og eigið fé samtals 4.636.796 4.404.286
Ábyrgðarskuldbindingar 15
22 11Fjárhæðir eru í þúsundum króna
3 1 . D E S E M B E R 2 0 0 0
Skýr. 2000 1999
Rekstrarhreyf ingar:Tap ársins . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 18.492) ( 59.477)
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8 273.957 192.614
Reiknaðar (tekjur) gjöld vegna verðlagsbreytinga . . . . . . 2 ( 7.068) 8.002
Tekjuskattsskuldbinding . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 0 ( 18.968)
Verðbætur af langtímaskuldum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 65.753 34.391
Hagnaður af sölu eigna . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 15.934) ( 55.982)
Veltufé frá rekstri 298.216 100.580
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, (hækkun) . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 47.353) ( 11.604)
Skammtímakröfur, lækkun (hækkun) . . . . . . . . . . . . . . . . 168.230 ( 309.930)
Skammtímaskuldir, (lækkun) hækkun. . . . . . . . . . . . . . . . . ( 236.487) 2.406
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 115.610) ( 319.128)
Handbært fé (til) frá rekstri 182.606 ( 218.548)
Fjárfest ingarhreyf ingar:Varanlegir rekstrarfjármunir:
Fasteignir og lóðir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8 (161.965) ( 442.277)
Áhöld, tæki og bifreiðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8 ( 178.260) ( 281.480)
Söluverð seldra eigna . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 85.331 259.573
Áhættufjármunir og langtímakröfur:
Fjárfesting í eignarhlutum í öðrum félögum . . . . . . . . . . . ( 5.600) 0
Breyting á skuldabréfaeign . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8.198 4.903
( 252.296) ( 459.281)
Fjármögnunarhreyf ingar:
Tekin ný langtímalán . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 300.000 0
Afborganir langtímalána . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 13.873) ( 12.511)
Hækkun á viðskiptareikningum Póstgírós . . . . . . . . . . . . . . . . 112.794 ( 137.155)
398.921 ( 149.666)
Hækkun ( lækkun) á handbæru fé . . . . . . . . . 329.231 ( 827.495)
Handbært fé í ársbyrjun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 493.465 1.320.960
Handbært fé í árs lok . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 822.696 493.465
Aðrar upplýsingar:
Greiddir vextir langtímalána 49.052
Greiddir skattar 5.032
22 22
Y F I R L I T U M S J Ó ‹ S T R E Y M I Á R I ‹ 2 0 0 0
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Reikningsski laaðferðir
1. Ársreikningur félagsins er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu
og innihald ársreikninga og samstæðureikninga. Hann er í meginatriðum gerður eftir sömu reikn-
ingsskilaaðferðum og árið áður. Framsetningu hans hefur þó verið breytt til samræmis við reglu sem
Reikningsskilaráð setti nýlega um framsetningu reglulegra og óreglulegra rekstrarliða. Reglur þessar
fela í sér að hagnaður af sölu eigna að fjárhæð 15 millj. kr. er færður meðal rekstrartekna. Söluhagn-
aður eigna hefur undanfarin ár verið sýndur sem sérstakur liður, að frádregnum tekjuskatti, meðal
annarra tekna og gjalda. Samanburðarfjárhæðum fyrra árs hefur verið breytt til samræmis við fram-
angreinda breytingu, en þá nam hagnaður af sölu eigna 39 millj. kr.
2. Áhrif almennra verðlagsbreytinga á rekstur og fjárhagsstöðu félagsins eru reiknuð og færð í árs-
reikninginn miðað við hækkun á vísitölu neysluverðs á árinu, sem var 4,2%.
Varanlegir rekstrarfjármunir eru endurmetnir með því að framreikna upphaflegt stofnverð þeirra og
afskriftir til ársloka. Afskriftir eru færðar til gjalda á meðalverðlagi ársins. Áhrif verðlagsbreytinga á
peningalegar eignir og skuldir eru reiknuð og færð í reikningsskilin og mynda reiknaðar tekjur
vegna verðlagsbreytinga að fjárhæð 7 millj. kr. Endurmatsbreytingar hafa þau áhrif að fjárhæðir í
efnahagsreikningi eru á verðlagi í árslok og rekstrarárangur ársins á meðalverðlagi.
Endurmatshækkun rekstrarfjármuna og verðbreytingarfærsla eru færð í endurmatsreikning meðal
eigin fjár í efnahagsreikningi, sbr. skýringu 10.
3. Skammtímakröfur, sem námu 1.412 millj. kr. í árslok samkvæmt efnahagsreikningi, eru færðar niður
um 41 millj. kr. Ekki er um endanlega afskrift að ræða heldur er myndaður mótreikningur sem mæta
á þeim kröfum sem kunna að tapast.
4. Áunnið ótekið orlof starfsmanna í árslok er fært til skuldar í efnahagsreikningi og nam það 136 millj.
kr. Ógreiddar eftirstöðvar starfslokasamninga námu 10 millj. kr. í árslok og er sú fjárhæð færð til
skuldar í efnahagsreikningi.
5. Tekjur félagsins af póstþjónustu eru bókaðar í þeim mánuði sem þjónustan er innt af hendi án tillits
til þess hvenær uppgjör fyrir hana berast.
6. Eignir í erlendum gjaldmiðlum eru umreiknaðar í íslenskar krónur á kaupgengi í árslok en skuldir eru
umreiknaðar á sölugengi. Eignir og skuldir sem bundnar eru verðtryggingu eru færðar miðað við
vísitölur sem tóku gildi 1. janúar 2001.
7. Birgðir félagsins samanstanda af frímerkjum og rekstrarvörum. Frímerki eru færð til eignar á fram-
leiðslukostnaðarverði og rekstrarvörubirgðir á innkaupsverði.
22 33
S K † R I N G A R
Varanlegir rekstrarf jármunir
8. Varanlegir rekstrarfjármunir, endurmat þeirra og afskriftir eru reiknaðar sem fastur árlegur hundraðs-
hluti, og greinast þannig:
Fasteignir Áhöld, tæki Samtals
og lóðir og bifreiðar
Heildarverð 01.01.2000 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.797.230 796.099 2.593.329
Endurmat á árinu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 76.470 36.330 112.800
Viðbót á árinu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 161.965 178.260 340.225
Selt og niðurlagt á árinu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 70.698) ( 23.959) ( 94.657)
Heildarverð 31.12.2000 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.964.967 986.730 2.951.698
Afskrifað áður . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 170.208 225.575 395.783
Endurmat á árinu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8.596 12.451 21.047
Afskrifað á árinu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 95.809 178.149 273.957
Afskriftir færðar út . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 9.473) ( 15.785) ( 25.257)
Afskrifað samtals . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 265.139 400.390 665.530
Bókfært verð 31.12.2000 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.699.828 586.340 2.286.168
Afskriftahlutföll . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 0 - 4% 15 - 20%
9. Fasteignir og lóðir í eigu félagsins, sem bókfærðar eru á 1.700 millj. kr. í ársreikningnum, voru metn-
ar á 1.402 millj. kr. samkvæmt fasteignamati í árslok 2000. Brunabótamat sömu eigna nam 2.632
millj. kr. á sama tíma.
Eigið fé
10. Yfirlit um eiginfjárreikninga:
Hlutafé Endurmats- Varasjóður Óráðstafað
reikningur eigið fé Samtals
Staða 01.01.2000 .. . . . . . . . . . . 1.447.500 133.451 458.929 0 2.039.880
Tap ársins . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 18.492) ( 18.492)
Endurmat fastafjármuna . . . . . 91.751 91.751
Tekjufærsla vegna
verðlagsbreytinga . . . . . . . . . ( 7.068) ( 7.068)
Tap jafnað fyrir varasjóð . . . . . ( 18.492) 18.492
Eigið fé samtals . . . . . . . . . . . . 1.447.500 218.134 440.437 0 2.106.071
22 44
S K † R I N G A R F R H .
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
11. Eigið fé félagsins nam 2.040 millj. kr. í ársbyrjun sem jafngildir 2.125 millj. kr. í árslok miðað við 4,2%
verðlagsbreytingar innan ársins. Eigið fé í árslok nemur 2.106 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi
eða 19 millj. kr. lægri fjárhæð en í ársbyrjun miðað við verðlag í árslok.
Breytingin greinist þannig:
Samkvæmt Á verðlagiársreikningi 31.12.2000
Eigið fé í ársbyrjun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2.039.880 2.125.147
Tap ársins . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . (18.492) (19.074)
Endurmat að frádreginni verðbreytingafærslu . . . . . . . . . 84.685
Eigið fé í árslok . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2.106.073 2.106.073
Langtímaskuldir
12. Yfirlit um langtímaskuldir:
Fjölmyntalán, vextir breytilegir. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 339.539
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, verðtryggt lán, fastir vextir 6% . . . . . . . . . . . . 642.428
981.967
Næsta árs afborganir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . ( 29.201)
Langtímaskuldir samkvæmt efnahagsreikningi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 952.766
13. Afborganir af langtímaskuldum í árslok greinast þannig á næstu ár:
Árið 2001 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 29.201
Árið 2002 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 29.201
Árið 2003 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 29.201
Árið 2004 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 368.740
Árið 2005 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 29.201
Síðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 496.423
981.967
Skattamál
14. Yfirfæranlegt skattalegt tap félagsins í árslok nam 82 millj. kr. Skattalegt tap sem ekki nýtist á móti
hagnaði innan átta ára frá því að það myndast fellur niður. Yfirfæranlegt skattalegt tap í árslok er
nýtanlegt sem hér segir:
Tap ársins 1999 nýtanlegt til ársloka 2007 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 66.110
Tap ársins 2000 nýtanlegt til ársloka 2008 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14.612
Ójafnað skattalegt tap samtals . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 80.722
22 55
S K † R I N G A R F R H .
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Veðsetningar og ábyrgðarskuldbindingar
15. Félagið hefur skuldbundið sig til að greiða viðbótarframlag til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sem
nemur 6% af mismuni heildarlauna og viðmiðunarlauna þeirra starfsmanna sem nýta sér rétt til
greiðslu iðgjalda í sjóðinn meðan þeir starfa hjá félaginu. Aðrar skuldbindingar vegna lífeyris-
greiðslna hvíla ekki á félaginu.
Starfsmannamál
16. Laun og launatengd gjöld greinast þannig:
2000 1999
Laun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2.118.803 1.978.981
Launatengd gjöld . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 272.875 263.310
Annar starfsmannakostnaður . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 117.108 80.690
Laun og launatengd gjöld samtals . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2.508.786 2.322.981
Meðalfjöldi starfsmanna umreiknuð í heilsársstörf . . . . . . 1.317 1.298
Sundurl iðanir
17. Meginstarfsemi félagsins felst í póstdreifingu sem er að hluta rekin í samkeppni við aðra aðila í sam-
bærilegum rekstri og að hluta samkvæmt einkarétti til póstdreifingar. Rekstrarreikningi félagsins
fyrir árið 2000 hefur verið skipt upp í þessa helstu rekstrarþætti eftir aðferðum sem þróaðar hafa
verið af starfsmönnum félagsins. Taka aðferðir þessar mið af talningum á þeim pósti sem dreift er í
samkeppni og samkvæmt einkarétti. Skipting rekstrarreiknings í framangreinda rekstrarþætti miðað
við framangreindar forsendur er þannig:
Einkaréttur Samkeppni Samtals
Rekstrartekjur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2.139.390 1.712.305 3.851.695
Rekstrargjöld . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.978.434 2.121.293 4.099.727
Hagnaður (tap) fyrir efnahagsliði . . . . . 160.956 ( 408.988) ( 248.032)
Hagnaðaráhrif frá efnahag . . . . . . . . . . . 229.540
Hagnaður (tap) ársins . . . . . . . . . . . . . . . ( 18.492)
Kennitölur
18. Helstu kennitölur um fjárhagsstöðu félagsins: 2000 1999
Veltufjárhlutfall - veltufjármunir/skammtímaskuldir 1,47 1,24
Eiginfjárhlutfall - eigið fé/heildarfjármagn 0,45 0,46
Innra virði hlutafjár - eigið fé/hlutafé 1,46 1,41
Arðsemi eigin fjár (0,9%) (2,9%)
22 66
S K † R I N G A R F R H .
Fjárhæðir eru í þúsundum króna
Umsjón, hönnun og umbrot: Mekkano
Ljósmyndir: Kristján Maack
Prentvinnsla: Svansprent hf.