15
Rannveig Lund, 2013 Teikningar: Rakel McMahon @Lestrarsetur Rannveigar Lund

Gauti 1 14

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: Gauti 1 14

Rannveig Lund, 2013Teikningar: Rakel McMahon@Lestrarsetur Rannveigar Lund

Page 2: Gauti 1 14

Bls. 1

Ég er alger auli í fótbolta.

Þess vegna hata ég fótbolta.

Í haust varð ég auðvitað að

keppa með bekknum mínum á móti 4. S. Fyrir leikinn var ég alveg í mauki.

Ég kveið svo fyrir.

Page 3: Gauti 1 14

Bls. 2

Leiknum lauk 2-0 fyrir okkur.

Í bæði skiptin var það ég

sem skoraði.

Ég sem er vonlaus í fótbolta.

Þetta er bara draumur, hugsaði ég. En þá flautaði dómarinn leikinn af.

Þetta var ekki draumur.

Page 4: Gauti 1 14

Bls. 3

Í fyrra skiptið sem ég skoraði var aukakast.

Ég stóð nákvæmlega þar

sem boltinn kom inn á.- Skjóttu Gauti, hrópaði Sæmi,

rauður í framan af æsingi.

Ég lokaði augunum og spark.

Boltinn þaut beint í netið.

Page 5: Gauti 1 14

Bls. 4

Sá í markinu

átti ekki von á þessu.

Hann kraup og var að reima skóinn sinn,þegar boltinn flaug inn.

Page 6: Gauti 1 14

Bls. 5

- Klaufi, aumingi, kölluðu hans menn.

Hvað varstu að hugsa?

Svo bauluðu þeir á hann.

- Aumingja hann.

Page 7: Gauti 1 14

Bls. 6

Hitt markið kom enn meira á óvart.

Alger hundaheppni.

Það var Mikki maur

sem skaut í átt að markinu.Þótt hann sé smár skýtur hann rosalega föstum skotum.

Skotið fór í stöngina.

Page 8: Gauti 1 14

Bls. 7

Boltinn þaut eins og eldflaug

aftur út á völlinn,

í áttina til mín.

Ég beygði mig til að fá hann ekki í hausinn. Samt lenti hann rétt ofan við augað á mér. Boltinn rauk í netið,

óverjandi skalli og mark.

Page 9: Gauti 1 14

Bls. 8

Allt í einu lá ég undir

haug af strákum.

Ég var orðinn sá besti.

- Þú gerðir allt laukrétt í stöðunni, sögðu þeir.

- Og hugsið ykkur, sagði Mikki maur,

Gauti sem æfir ekki einu sinni með liði.

Page 10: Gauti 1 14

Bls. 9

- Gauti, þú neyðist

til að byrja að æfa.

Okkur vantar gaur

eins og þig í 1. deild hjá Nautunum.

Við erum á botninum.

Þeir fá aldeilis á baukinn ef þú ferð að spila með okkur.

Page 11: Gauti 1 14

Bls. 10

Ég flaug í loftinu

alla leið heim.

Ég hef aldrei hlaupið

eins hratt.

Nú verður pabbi ánægður með mig.

- Pabbi, ég vil fara í fótboltalið.

Ég vil byrja að spila með Nautunum.

Page 12: Gauti 1 14

Bls. 11

Pabbi lá upp í sófa og hraut

en vaknaði við hávaðann í mér.

- Loksins, tautaði hann fyrst.

- Gauti minn, ég er búinn að bíða

svo lengi eftir þessu augnabliki. Loksins, kom að því.

Síðan þaut hann upp, rauk á mig

og faðmaði mig.

Page 13: Gauti 1 14

Bls. 12

Svo saug hann fast upp í nefið.

Hann er með kæk. Ef hann er æstur,

sýgur hann upp í nefið.

Svo strauk hann mér aftur og aftur um hárið.

Ég skildi ekki hvað hafði hlaupið í pabba.Hann, sem er oft svo fúll þegar ég vek hann.

Page 14: Gauti 1 14

Bls. 13

- Pabbi, ég þarf að fá buxur,

bol og góða fótboltaskó.

Þú veist að það kostar

mikið að kaupa svona dót. Þú átt örugglega ekki til aur fyrir því.

Þú átt aldrei aur þegar ég bið um dót sem mig langar í.Manstu skautana, manstu bílabrautina,manstu rauða bolinn?

Page 15: Gauti 1 14

- Gauti minn, ég elska að kaupa allt

handa þér sem þarf í fótboltann. Pabbi raulaði þegar hann þaut út.

Hann ætlaði að hitta vini sína í laugunum.

Ég veit alveg hvað hann talar um í heita

pottinum.

Bls. 14