17
Rannveig Lund, 2013 Teikningar: Rakel McMahon @Lestrarsetur Rannveigar Lund

Gauti 15 30

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: Gauti 15 30

Rannveig Lund, 2013Teikningar: Rakel McMahon@Lestrarsetur Rannveigar Lund

Page 2: Gauti 15 30

Bls. 15

Ég komst í 6. flokk hjá

Nautunum.

Að vísu fann ég að

Haukur þjálfari

var ekki viss um að ég væri eins góður

og strákarnir sögðu.

Ég stóð hjá þegar þeir töluðu við hann.

Ég laug ekki neinu að Hauki.

Page 3: Gauti 15 30

Bls. 16

Hann gaf sig þegar strákarnir

þóttust ekki vilja spila

nema ég væri með.

- Allt í lagi þá, sagði Haukur.

Þú verður á miðjunni.

Það er ekkert spaug Gauti minn.

Þú veist hvað það er, er það ekki?

- Auðvitað, ég er ekki neinn sauður, svaraði ég.

Page 4: Gauti 15 30

Bls. 17

- Fínt, þá reikna ég með þér

fyrir leikinn við Hrútana.

Hann er á laugardaginn.

- Við treystum á þig, sögðu Nautinvinir mínir í 6. flokki. Pabbi hlakkar til.

Hann er búinn að taka laugardaginn frá.

- Gauti minn, ég mæti sko á fyrsta leikinn

á ferli þínum.

Page 5: Gauti 15 30

Bls. 18-19

Það er ekki auðvelt

að vera í mínum sporum.

Ég finn að ég er að fáhausverk.

Ég fæ alltaf hausverk þegar ég er stressaður.

Ég veit mjög vel að ég er ekki

góður í fótbolta. Oftast er ég dauð-hræddurvið boltann.

Page 6: Gauti 15 30

Bls. 18-19

En hvað gerist þegar

pabbi og vinir mínir

í Nautunum sjá að ég er

Ég er líka dauðhræddur við það.

alger auli í boltanum?

Page 7: Gauti 15 30

Bls. 20

Ég lagðist upp í rúm.

Ég varð að finna leiðút úr þessu.

Mér datt aðeins ein leiðí hug.

Ég varð að meiðast fyrir laugardaginn

en bara mátulega mikið. Menn spila ekki með

ef þeir meiðast.

Page 8: Gauti 15 30

Bls. 21

Laugardagurinn rann upp.

Leikurinn átti að byrjaklukkan eitt.

Klukkan átta um morguninn

fór ég út í skúr og leitaði að gamla hjólinu mínu.

Það stóð innan um haug

af drasli sem átti að henda.

Page 9: Gauti 15 30

Bls. 22

Ég var búinn að veljaljósastaur

Ég ætlaði að hjóla á hanná fullri ferð.

Og það gerði ég. Ég miðaði, fór á fulla ferðog beint á staurinn.

Fram-dekkið lenti á staurnum.

Ég flaug yfir stýrið.

í næstu götu.

Page 10: Gauti 15 30

Bls. 23

Um leið og ég þaut

í gegnum loftið

hugsaði ég:

Þetta endar ekki vel.

Sú varð líka raunin. Ég vaknaði á spítalameð heila-hristing. Það var búið að saumasautján spor í ennið á mér.

Ég braut líka framtönn.

Page 11: Gauti 15 30

Bls. 24 - 25

Mér dauð-leiddist

á spítalanum.Þó komu mamma,pabbi og Gauja systirá hverjum degi.

Sæmi og Mikki maur komu líka til mín.

Haukur þjálfari hafði sagt þeim

frá slysinu rétt fyrir leikinn.

Page 12: Gauti 15 30

Bls. 25

- Við vorum sko í áfalli, sagði Mikki maur.

Haukur sagði að við yrðum að vinna

leikinn fyrir þig. Þú ættir það skilið.

Page 13: Gauti 15 30

Bls. 26

Svo fórum við í hnappog Haukur öskraði:

- Fyrir hvern ætlum viðað vinna?

- Gauta, öskruðum við þá. - Og veistu hvað, Gauti.Við unnum leikinn!

Við erum ekki lengur á botninum.

Allt þér að þakka. Það er búið að ákveða

að þú geymir bikarinn.

Page 14: Gauti 15 30

Bls. 27

- Láttu þér batna sem fyrst

svo að þú getir spilað með.

Okkur vantar þig!

Pabbi hafði horft á leikinn.

- Þá vantaði þig í hópinn. Þú átt eftir að gera

góða hluti með Nautunum, Gauti minn.

Það er aug-ljóst að ég er ekki

laus úr boltanum.

Page 15: Gauti 15 30

Bls. 28-29

Ég er kominn heimog má ekki fara straxí skólann.

Ég ligg í rúminu

dag eftir dag og legghausinn í bleyti, hugsa og hugsa.

Ég verð að finna góða lausn á þessu.Ég reyni ekki aftur að meiða mig fyrir leik.

Page 16: Gauti 15 30

Það er nú eins og að leika sér

að dauðanum, ekki satt.

Hausinn er mikil-vægur.Og ekki vil ég verða tann-laus.

Það er tvennt sem mér dettur í hug.

Page 17: Gauti 15 30

Bls. 30

Að æfa og reyna að verða gott Naut.

Eða vera bara hann Gauti

sem vill ekki spila fótbolta.

En þá verð ég að þora að segja það

og sjá hvað gerist.