10
1. Kafli Heimur efnafræðinnar Hugmyndir alkemista eða gullgerðarmanna fornaldar og miðalda um eðli efnanna beindist að frumefnunum fjórum það er eldi, lofti, vatni og jörð. Hugmyndin var sú að hægt væri að gera hvaða efni sem er með því að blanda þessum frumefnum rétt saman. Áhuginn beindist einkum að því að búa til gull.

Kafli Heimur efnafræðinnar

  • Upload
    lucky

  • View
    73

  • Download
    2

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Kafli Heimur efnafræðinnar. Hugmyndir alkemista eða gullgerðarmanna fornaldar og miðalda um eðli efnanna beindist að frumefnunum fjórum það er eldi, lofti, vatni og jörð. Hugmyndin var sú að hægt væri að gera hvaða efni sem er með því að blanda þessum frumefnum rétt saman. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Kafli Heimur efnafræðinnar

1. KafliHeimur efnafræðinnar

• Hugmyndir alkemista eða gullgerðarmanna fornaldar og miðalda um eðli efnanna beindist að frumefnunum fjórum það er eldi, lofti, vatni og jörð.

• Hugmyndin var sú að hægt væri að gera hvaða efni sem er með því að blanda þessum frumefnum rétt saman.

• Áhuginn beindist einkum að því að búa til gull.

Page 2: Kafli Heimur efnafræðinnar

1. KafliHeimur efnafræðinnar

• Lengi framan af áttu menn erfitt með að greina í sundur efni.

• Í lok átjándu aldar tókst Frakkanum Lavoasier að sundra vatnssameindum og sanna þar með að vatn væri efnasamband vetnis (H) og súrefnis (O).

• Lavoasier birti töflu yfir þá þekkt frumefni um 30 talsins en tók með í töfluna orkuformin ljós og varma.

Page 3: Kafli Heimur efnafræðinnar

1. KafliHeimur efnafræðinnar

• Efni skiptast í hrein efni annars vegar og efnablöndur hins vegar.

• Hreinum efnum er svo skipt í frumefni og efnasambönd.

Page 4: Kafli Heimur efnafræðinnar

1. KafliHeimur efnafræðinnar

• Frumefni táknum við með stórum bókstaf H (vetni) eða stórum staf og litlum He (helín).

• Efnaformúla efnis segir okkur samsetningu efnisins H2O (2 vetnisfrumeindir og 1 súrefnis-frumeind).

• Efnasamband er alltaf samsett úr efnum í ákveðnum hlutföllum. H2O er þá hlutfallið 2:1

• Efnaformúla ákveðins efnis er föst það er óbreytanleg s.s matarsalts er alltaf NaCl.

• Lífverur eru gerðar úr fjölda frumefna sem mynda flókin efnasambönd.

Page 5: Kafli Heimur efnafræðinnar

1. KafliHeimur efnafræðinnar

• Frumefni og efnasam-bönd geta breytt um eiginleika það gerist við hamskipti.

• Hamskipti eiga sér stað þegar efnið fær varma eða varmi er fluttur úr efninu ( hitun / kæling)

• Hamskipti geta gengið í báðar áttir.

Page 6: Kafli Heimur efnafræðinnar

1. KafliHeimur efnafræðinnar

• Hamir efnis kallast storku-hamur (s) , vökvahamur (l) og lofthamur (g).

• Hamur efnis er táknaður með bókstöfunum s,l og g.

• Efnasambandið vatn er táknað með efnaformúlunni H2O. Hamir vatns táknum við H2O(s)

H2O(l) H2O(g) Önnur aðferð til að tákna hami vatns er að nefna hamina ís vatn vatnsgufu

• H2O(s) H2O(l) þessa breyt-ingu köllum við efnajöfnu.

Page 7: Kafli Heimur efnafræðinnar

1. KafliHeimur efnafræðinnar

• Efni bráðna / sjóða við ákveðið hitastig sem nefnist bræðslu- eða suðumark.

• Hitastigið í efninu ákvarðar í hvaða ham efnið er.

• Það tíðkast að tala um ham efnis við eðlilegar aðstæður sem er stofuhiti (25°C) og segjum við að efnið sé fast (fastur hamur), fljótandi (fljótandi hamur) eða lofttegund (lofthamur) við skilgreindar aðstæður.

Page 8: Kafli Heimur efnafræðinnar
Page 9: Kafli Heimur efnafræðinnar

1. KafliHeimur efnafræðinnar

• Suðumark efnis er háð loftþrýstingi sem getur verið breytilegur frá degi til dags en einnig er hann háður hæð yfir sjávarmáli.

• Suðumark miðast því við staðalþrýsting 1013 hektopasköl.

Page 10: Kafli Heimur efnafræðinnar

1. KafliHeimur efnafræðinnar

• Efnabreytingar eru þrenns konar, hamskipti, leysingar og efnahvörf.

• Leysing er þegar sykur leysist upp í vatni sem dæmi.

• Efnahvörf valda því að ný efni myndast eins og þegar kerti brennur.